Lundarbrekka 2007

Ýmis fróðleikur um Lundarbrekkufólkið.

Gestabók

3.5.2012 kl. 11:10

Fallegt veður í Kópavoginum í dag!

Sælt veri fólkið og gleðilegt sumar!
Allir hressir hjá okkur og lífið gengur sinn vanagang, gróðurinn farinn að taka við sér og vorverkin að bresta á. Um páskana vorum við heima við og gengum á Páskadag á Esjuna við Palli með Ara og það tók á, en það var mjög ánægður 9 ára strákur þegar upp að "steini" var komið og brosti hringinn. Við fórum í frábæra ferð til Prag með starfsfólki Sýslumannsins í Kópavogi og Hafnarfirði ásamt mökum 19-22 apríl, mjög fallegt í Prag og vel heppnuð ferð. Við Guðrún ásamt dætrum okkar fórum á útskriftartónleika hjá Önnu Sæunni og bekkjarfélugum í Kvikmyndaskólanum á þriðjudagskvöldið og var það mjög gaman, mikið upplifelsi fyrir unglingana okkar að sjá listafólkið og sitja með okkur á vínveitingastað í miðborginni :) Framundan er síðasti mánuður í skólanum hjá krökkunum fyrir sumarfrí með prófum og tilheyrandi vorskemmtunum. Við stefnum á norðurferð um Hvítasunnuna og síðan er sumarið framundan með fótbolta, fjallgöngum og fjöri.
Vonandi verður sumarið veðursælt og gott hjá okkur öllum.
Bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

20.4.2012 kl. 21:41

Gleðilegt sumar

allir ættingjar og vinir og afmælisbörnum mánaðarins færðar innilegar hamingjuóskir allt gott frá mér og mínum Nonni farinn til Noregs að sækja varðskipið og vonandi verður nú allt í lagi hjá þeim eftir þetta langa stopp Finnur Árni dafnar vel er farin að ganga og verður í pössun hjá ömmu í sumar mamman fer að vinna fljótlega þetta er bara voða gaman Vona að allt komi vel undan vetri í dalnum fagra og sauðburður gangi vel og verði ekki eins slæmt vor og síðast heilsist ykkur öllum vel með kveðju

Guðrún besta frænka

3.4.2012 kl. 8:04

Vorið hlýtur að vera

á næsta leiti Allt gott að frétta frá mér og mínum Fór snögga ferð austur á land um helgina þar sen haldið var upp á 1 árs afmæli Finns Árna og Anna og Nonni giftu sig þann sama dag bara yndislegt allt saman þau verða yfir páskan fyrir austan vona að nú fari að hlýna og vorið komi Gleðilega páska öll

Guðrún besta frænka

2.4.2012 kl. 10:11

Apríl

Sælt veri fólkið!
Nú hefur apríl heilsað og mikill munur á birtunni núna. Í dag er frekar kaldur og bjartur dagur en hér er orðið autt. Þann 25. mars sl. var Eva Margrét fermd og áttu við yndislegan dag saman. Ég þakka öllu fyrir hlýjar kveðjur og gjafir þann dag. Nú styttist verulega í páskana og Dymbilvikan hafin. Ég óska Jóni Árna og Önnu Berglindi innilega til hamingju með brúðkaupið á laugardaginn var og vona að þeim vegni vel í framtíðinni. Bið að heilsa í bili.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

27.3.2012 kl. 12:32

Kveðja úr Kópavoginum.

Sælt veri fólkið, hér hef ég ekki skrifað inn í allt of langan tíma en ætla að setja hér inn nokkrar línur núna. Afmælisbörnum óska ég til hamingju, en það má með sanni segja að nóg sé af afmælum í ættinni í þessum mánuði, allavega hef ég stundum að orði að við séum meir og minna öll marsbúar í minni fjölskyldu með einstaka undantekningum! Af okkur er allt gott að frétta allt gengur sinn vanagang í vinnu og frístundum. Mikið snýst um fótbolta en Ari og Palli fóru á fótboltamót til Akureyrar um sl. helgi en við mæðgur ákváðum að vera heima því ekki máttum við missa af fermingu okkar stórfrænku Evu Margrétar, það var nú aldeilis góður dagur og flott veisla. Veðurlega séð finnst mér nóg komið af rigningu hér hjá okkur og íbúðin mín ber þess merki hversu blautur vetur hefur verið, því það lekur inn með einum glugga í stofunni en það bíður vors að laga það. Eitthvað þarf að fara að huga að sumarvinnu fyrir unglinginn sem ætlar helst ekki að vinna í unglingavinnunni hjá Kópavogsbæ í sumar en ég held að ekki sé um auðugan garð að gresja með vinnu annarsstaðar fyrir 15 ára krakka svo ég held hún megi vera ánægð ef hún fær allavega smá vinnu þar. Kórinn minn verður með vortónleika á sumardaginn fyrsta 19, apríl í Óperunni en ég verð ekki með að þessu sinni, sem er þá í annað sinn á mínum 12 árum í Léttsveitinni sem ég er ekki með á tónleikum, sleppti vortónleikum vorið sem Ari minn fæddist og núna fer ég með mínum vinnufélögum til Prag akkúrat þann 19 apríl í helgarferð en það má segja að þetta sé svokölluð árshátíðarferð og við notum sjóð sem við höfum safnað í dágóðan tíma og makarnir okkar fá að koma með ef þeir vilja og Palli ætlar að slá til. Sennilega verður það eina fríið okkar saman þetta árið fyrir utan fótboltamót sem við förum á til Vestmannaeyja í júní. Palli fer ekki mikið í frí þetta sumarið því hann byrjaði í nýrri vinnu í október og á þ.a.l. ekki fullt sumarfrí. Ég verð í sumarfríi í júlí og okkur langar að komast í Laugavegsgöngu ásamt fleiri góðum göngufélögum og það verður þá túlega lengd ein góð helgi í júlí.
Annars hef ég verið allt of löt að ganga á fjöll það sem af er þessu ári en betur má ef duga skal og skal nú apríl og maí vera tekin með trompi hvað það varðar.
Stefni á mikla útivist og fjölskyldurækt heima við um páskana.
Læt þennan pistil duga að sinni og vona að allir hafi það sem best.
Bestu kveðju
Hanna

Jóhanna Marína

1.3.2012 kl. 14:51

Góan við völd með sínum pilsaþyt.

Ég má nú biðja afsökunar á ódugnaði mínum við skriftirnar.
Vil byrja á því að óska öllum afmælisbörnum febrúarmánaðar og líklega janúarbörnum líka til hamingju með afmælin sín. Ég var 2 vikur , seinast í janúar og 1-2 daga af febrúsr á sjúkrahúsinu á Húsavík í hressingar og hvíldarinnlögn og hafði gott af. Veðurfarið er svolítið hryssingslegt en þótt hafi snjóað hefur snjórinn fljótlega farið aftur svo það hefur heilt yfir ekki verið slæmur vetur, stundum meira leiðinlegur Við fórum á þorrablótið okkar Bárðdælinga fyrsta laugardag þorra og skemmtum okkur vel.
Síðasta laugardag var svo mikil veisla hér í Kiðagili, Mýrarhjón buðu til mannfagnaðar í tilefni af 70 ára afmæli Guðrúnar, sem reyndar er í dag, 1. mars. Það var matur,drykkur, skemmtiatriði, ræður söngur og dans eins og best gerist í Bárðardal. Læt þetta duga núna . Bestu kveðjur til ykkar allra.

Hjördís Kristjánsdóttir

21.2.2012 kl. 20:59

Frænkukvöld og fleira skemmtilegt

Sæl öll! Setti inn nokkrar myndir frá frænkukvöldinu sem Guðrún Jóns, hélt núna 26. janúar sl. Það var virkilega gaman að hittast og mikið hlegið. Hled að Guðrún hafi samt alveg gleymt að passa uppá að það væri tekin mynd af henni sjálfri :-). Annars er allt gott hér hjá okkur.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

21.2.2012 kl. 7:54

Sprengidagurr

Þá er komin Góa við búin að þreyja Þorrann með öllu sínu áti af þorramat og þá er að þreyja góuna Í kvöld verur saltkjöt og baunir á borðum landsmanna Á morgun á ég von á þeim Mæðgum frá Reyðarfirði og verður það gaman hef ekki séð þær í marga marga mánuði Tíðarfar hér eintómir ummhleypingar ansi þreytandi það rigning snjór rigning til skiptis Annars allt gott af mér og mínum eigið góða daga gott fólk með kærri kveðju

Guðrún besta frænka

16.2.2012 kl. 8:39

Éljagangurl

góðan daginn gott fólk jörð var orðin auð en nú gengur á með éljum annars er allt gott að frétta frá mér og mínum allir farnir að bíða eftir vorinu litlu auðnutittlingarnir reu að reyna að skemmta mér með söng í trjánum en veðtrið er ekki upp á það besta núna syngja mikið þegar veður er gott bara yndislegt að heyra ,vona að allt gangi vel hjá ykkur öllum með kveðju

Guðrún besta frænka

5.2.2012 kl. 10:01

Febrúar

Sæl öll!
Nú er víst kominn 4. febrúar og sólin örlítið farin að hækka á lofti. Hér er indælisveður í dag og gott að eiga sunnudaginn framundan. Við erum farin að spá aðeins í fermingu og undirbúning hennar en Eva Margrét verður fermd þann 25, mars næst komandi. Krakkarnir báður búin með miðannapróf og gekk ljómandi vel. Vona að þið eigið góðan febrúar.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

31.1.2012 kl. 9:41

Góðan daginn

hér rignir núna og tekur snjóinn fljótt upp fuglarnir farnir að syngja í trjánum og bara gaman Allt gott héðan frænkukvöldið tókst vel á fimmtudaginn var alltaf gaman að hittast og spjalla Finnur Árni dafnar vel er 10 mánaða í dag voða líður tíminn fljótt fynnst svo stutt síðan hann fæddist Skemmtilegt innskot í Landanum á sunnudaginn af þorrablótinu ykkar vona að allir séu hraustir og hafi það gott með kveðju

Guðrún besta frænka

25.1.2012 kl. 9:48

Kveðja úr Álfaheiðinni.

Sælt veri fólkið og gleðilegt ár.
Hörkuvetur á höfuðborgarsvæðinu en allt gengur sinn vanagang hjá okkur í Álfaheiðinni. Einhver kvefpest að hrjá heimilisfólkið þessa dagana en gengur vonandi fljótt yfir. Frekar rólegt hjá mér í vinnunni þegar færi og veður setur strik í reikninginn. Allt gengur vel hjá Særúnu og Ara í skólanum en Særún var að klára janúarprófin. Helgarnar fara oft í handbolta og fótboltamót og svo er kórstarfið hjá mér komið á fullt skrið á nýrri önn. Mikið stendur til eins og oft áður, vortónleikar með söngleikjaívafi í Íslensku óperunni í vor og kóramót á spáni í júní!
Við göngukellur búnar að labba saman á eitt fjall á árinu 2012 en það hefur nú ekki viðrað vel til fjallgangna það sem af er ári, ef veðrið hefur verið skikkanlegt þá hefur færi vegna hálku spillt fyrir, en við höldum ótrauðar áfram og ætlum að vera rosalega duglegar á þessu ári. Hlakka til árlegs frænkuboðs á fimmtudagskvöldið hjá Guðrúnu Jóns.
Ég hitti Dídí frænku hér í vinnunni í gær og nefndi ættarmót Stafnsættar í sumar við hana, en áttaði mig svo á að sennilega hefur það hvergi verið kynnt nema á fésbókinni enn sem komið er, en væntanlega verður sent út bréf varðandi það. Allavega er ég búin að skrifa ættarmót á dagatalið síðustu helgin í júní og stefni að því að mæta nema ef ske kynni að það verði fótboltamót sömu helgi :)
Læt þennan pistil duga í bili og vona að það líði ekki svona langt aftur á milli skrifa hjá mér.
Gangi ykkur allt sem best
Bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

18.1.2012 kl. 13:48

Jæja fésbókin

búin að yfirtaka öll skrif hér og er það miður Hér er hörku vetur núna gengur á með snjókomu og hvassviðri Langt síðan ég hef orðið eins veik af flensu eins og núna vona að ég verði orðin góð 26 þegar frænku hittingurinn verður hjá mér í súpu alltaf tilhlökkunarefni verið dugleg að koma hér við alltaf gaman að heyra frá ykkur annars staðar en á fésinu með kveðju

Guðrún besta frænka

9.1.2012 kl. 20:56

Hörku vetur

í borginni núna erfitt að fara um vegna hálku og snjóruðninga langt síðan ég hef séð svona mikinn snjó í Rvk, Annars bara allt gott smá flensa hefur verið að angra mig og fleiri í fjölskyldunni en vonandi fer það nú allt að lagast vonandi hafa allir það gott og verið' dugleg að kíkja hér inn frændur og vinir með kærri kveðju

Guðrún besta frænka

5.1.2012 kl. 21:42

Komið árið 2012

Gleðilegt nýár allir lesendur Lundarbrekkusíðu.
Það er búin að vera leiðinda vetrartíð allar götur síðan í október hér og ekki farið að sjá í neitt skemmtilegra tíðarfar á nýju ári.
Það tókst þó að messa á jóladag og kirkjusókn bara góð.
Við vorum hér sex í mat á gamlaárskvöld, þau komu Bjarnarstaðahjón að venju og dætur þeirra komu frá Akureyri í matinn og fóru þegar búið var að skjóta upp flugeldum. Við fórum í Bjarnarstaði í matarboð á annan í jólum þar sem stórfjölskyldan sem til náðist var samankomin. Annað höfum við ekki rótað okkur um jólin. Við höfum sem sagt haft það mjög rólegt. Heilsufarið er gott hjá Geira, ég er lakari en það er einkum gigt og alls konar verkir henni tengdir sem hrjá mig, en sef nokkuð vel og þá er ekki þörf að kvarta.Sendum bestu kveðjur og þökkum liðið ár.
Lifið öll heil.
Dísa og Geiri Lundarbrekku.

Hjördís Kristjánsdóttir

1.1.2012 kl. 11:08

Árið 2012

er gengið í garð vonandi verður það gæfuríkt öllum Hjá mér voru bara róleg heit var ein heima Árni að vinna en mikið var skotið upp af flugeldum í kringum mig sást ekki í næsta hús fyrir mengun. Allt rólegt hjá öllum mínum allir hafa notið jóla og áramóta og er það vel vona að þetta ár verði gott hjá bændum og búaliði vona að við öll verðum duglegri að skrifa ´a síðuna á þessu ári finnst fésið vera farið að taka allt of mikið yfir frá þessari síðu verðum að halda henni gangandi og ég skora á ykkur frændfólk mitt að vera duglegri á þessu ári að koma hér við óska ykkur öllum gæfu og góðs gengis á þessu ári kveðja

Guðrún besta frænka

31.12.2011 kl. 21:43

Áramót 2011-2012

Hér er rólega Gamlárskvöld, Eiríkur og Kristófer í Liverpool en þeir fóru út þann 28.desember og koma heim 2. janúar. Aðal tilgangur ferðarinnar var leiku Liverpool og Newcasle í gærkvöli og bar Liverpool sigur úr bítum á Anfield... gaman gaman. Við hér óskum ykkur árs og friðar og þökkum liðið ár.

Guðrðun Sigurgeirsdóttir

23.12.2011 kl. 18:47

Jól 2011

Heil og sæl!
Við fjölskyldan óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs 2012. Hér hefur verið rólegt síðustu daga, ekkert jólastress. Búið að skera og steikja laufabrauð, sjóða hangikjöt frá pabba, baka aðeins og þrífa aðeins líka. Fallegu jólarúmfötin með heklaða milliverkinu frá mömmu komin á öll rúm. Jólatréð stendur skreytt í stofunni og búið að raða jólapökkum undir það. Ég vona að þið eigið góða daga í fríinu og njótið samveru fjölskyldu og vina.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

17.12.2011 kl. 10:11

Jólakveðja 2011

Heil og sæl öll sömul Jólasnjór í borginni og jólaljósin skarta sínu fegursta jólaundirbúningur hjá mér langt komin búið að baka rúsínikökur hálfmána og litlu kúmen kringlurnar sem allir í minni fjölskyldu baka fyrir jólin einskonar ættaruppskrift. ómissandi um jól. Við verðum bara 2 gömlu hjónin og er það í fyrsta skipti í okkar búskap Litla fjölskyldan í Goðaborgum ætla að halda sín fyrstu jol með litla kút heima hjá sé og hinn helmingurinn heldur sín jól á Reyðarfirði svo nú er búið að klippa alfarið á naflastrenginn segi ég þegar hvorugt barnana heldur aðfangadags kvöld hjá mér og er þetta bara gaman Allt annars gott að frétta fór og hlustaði á Léttsveitina syngja um daginn og var það góð skemmtun annars gengur allt sinn vanagang hér allir hraustir og það er fyrir mestu vona að þið eigið góð og gleðileg jól og njótið hátíðarinnar með bestu kveðju og gleðileg jól

Guðrún besta frænka

12.12.2011 kl. 11:15

Viðbót!

Ætlaði einnig að óska desemberafmælisbörnum til hamingju með afmælin :o)
Kv. Hanna

Jóhanna Marína

12.12.2011 kl. 11:12

Jólaundirbúningur!

Sælt veri fólkið
Hjá okkur eru allir hressir og glaðir og jólaundirbúningur hafinn, búin að baka nokkrar smákökutegungir og kaupa flestar jólagjafir eftir að ganga frá og senda frá mér og skrifa jólakortin en það er verkefni þessarar viku. Í dag ætlum við Guðrún og fjölskylda að skera í laufabrauð saman eins og við höfum gert undanfarin ár svo steikjum við á morgun. Ætlum að hlusta á "jólin hennar ömmu" og rifja upp bernskujólin :) Í dag er fallegt vetrarveður og hefur heldur hlínað en snjór yfir öllu, bætti aðeins á í nótt. Við frænkur skelltum okkur sl. laugardag í Ljósafossgöngu í Esjunni, en veðrið var nú frekar slæmt en við létum það ekki á okkur fá og voru það ánægðar fjallafrænkur sem komu heim um kvöldið. Léttsveitin er komin í jólafrí óvenju snemma þetta árið og óvanalegt að eiga öll kvöld fyrir sig í jólanotalegheit heima fyrir. Ég tek mér smá aukafrí fyrir jólin og verð í frí 22 og 23 desember og ætla að njóta þeirra daga með krökkunum mínum í síðasta jólaundirbúningnum.
Vona að allir hafi það sem best og njóti aðventunnar.
Bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

9.12.2011 kl. 23:58

Desember

Sæl og blessuð! Langt síðan ég hef skrifað hér í gestabókin. En héðan er allt gott að frétta. Vetur í Kópavogi! En mér finnst nú allt í lagi að það sé vetur á þessum árstíma og líkar mikið betur að hafa snjó og frost heldur en rok og rigningu.... hef nú sennilega skrifað þetta áður hér :-). Við erum byrjuð að undirbúa komu jólanna í rólegheitum, ekkert jólastress hér á bæ. Ég fer í jólafrí 20. desember og Eva Margrét líka, en Eiríkur er búinnn eitthvað fyrr. Njótið Aðventunnar!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

25.11.2011 kl. 16:13

Vetur á höfðuborgarsvæðinu.

Sælt veri fólkið loks ætla að skrifa smá hér inn, sé að ég hef ekki skrifað síðan í september. Allt gott að frétta hjá okkur nóg að starfa hjá öllum. Aðventutónleikar Léttsveitarinnar í Hörpu á sunnudag og mikið sem stendur til, síðan erum við nánast komnar í jólafrí fram í janúar. Í dag hefur snjóað nánast stanslaust og sumum finnst ansi jólalegt en ég er ekkert hrifin af þessum snjó. Palli skipti um vinnu 1. október og er farinn að starfa sem gæðastjóri hjá ÁTVR :) svo nú erum við bæði orðin ríkisstarfsmenn. Við göngukellur höfum ekki verið nógu duglegar að ganga á fjöll en vonandi fer það nú að breytast. Allt gengur vel hjá Særúnu og Ara í skóla og frístundum og allir heilsuhraustir. Læt þetta duga að sinni og óska ykkur góðrar aðventu.
Bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

24.11.2011 kl. 17:46

Aðventan nálgast.

Eftir nokkurrra daga logn , auða jörð og frostleysu snjóaði í logni í allan gærdag og hvessti svo í gærkvöldi og sópaði fölinu í skafla. Kannski snjóar svo aftur í nótt.
Við erum á svipuðu róli og verið hefur. Kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

17.11.2011 kl. 7:37

Elsku frændur mínir Kári Sigurðarson og Jónas Baldursson

Til hamingju með afmælisdagana ykkar kveðja

Guðrún besta frænka

15.11.2011 kl. 10:14

Kári Sigurðsson

Bestu hamingjuóskir með afmælið
elsku Kári litli. Kveðjur.

Dísa og Geiri Lundarbrekku.

13.11.2011 kl. 9:46

Hjörtur Sigurðsson

F. 13. nóvember 1938.
D. 19. október 1998.
Minningin lifir.

Hjördís Kristjánsdóttir

13.11.2011 kl. 7:36

'i dag

minnist ég elskulega frænda míns sem hefði átt afmæli í dag og kveiki á kerti honum til heiðurs Óska öllum nóvembrs afmælisbörnum til hamingju með daginn kveðja

Guðrún besta frænka

9.11.2011 kl. 12:33

Heil og sæl

Nóvembrr genginn í garð og styttist ti jóla Nonni kominn heim með nýja varðskipið en tók sér frí þennan fyrsta túr sem skipið fer kringum landið miklir fagnaða fundir hjá þéim feðgum þegar hann kom Finnur Árni skríður nú um allt og voða spennandi að taka til í öllum hillum sem eru við gólfið Rignig en hlýtt allt gengur sinn vanagang og allir orðnir hressir eftir leiðinda kvefpest sem hefur hrjáð okkur hér heilsist ykkur öllum vel kveðja

Guðrún besta frænka

4.11.2011 kl. 14:34

Nóvember

Góðan daginn kæru ættingjar og aðrir góðir!
Hér er rigningardagur í dag en alveg þokkalega bjart þratt fyrir það. Ég segi eins og mamma, ég óska öllum nóvember-afmælisbörnunum til hamingju með daginn sinn í nóvember.
Hér er allt líkt og síðast, og lítið að frétta og er það bara gott.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

3.11.2011 kl. 8:51

Ég óska öllum nóvember afmælisbörnum til hamingju með afmælin sín og óska þeim öllum góðs gengis á næsta afmælisári.
Ég borga árgjaldið á 123.is lundarbrekka, núna þú hefur ekki áhyggjur af því Guðrún mín.
Þetta voru minnir mig 3990 kr.

Hjördís Kristjánsdóttir

23.10.2011 kl. 16:45

Afmæli o.fl.

Ætlaði að óska afmælisbörnum mánaðarins innilega til hamingju með afmælin og einnin að óska ykkur góðs vetrar!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

23.10.2011 kl. 16:43

Vetrurinn genginn í garð á dagatalinu!

Sæl öll!
Já ég var búin að sjá þennan póst frá 123 en hélt að við hefðum frest fram til mánaðarmóta til að greiða árgjaldið. Takk mamma fyrir að greiða þetta, hvað var þetta mikið?
Hér er Sævar frændi í heimsókn í vetrarfríinu sínu en við Eva erum í frí á morgun og þriðjudag. Bara yndislegt að hafa frænda hér. Veðrið er nú bara ljómandi gott í dag. Eva Margrét er alltaf í handboltanum og gengur vel þar sem og í skólanum. Eiríkur er ánægður í MK og spilar fótbolta í MK-deildinni. Við frænkur reynaum eins og við getum að samræma tíma okkar og komast á fjöll en það gengur misvel en alltaf komast einhverjar :-).

Guðrún Sigurgeirsdóttir

22.10.2011 kl. 16:27

Slapp fyrir horn.

Fór að líta inn á síðuna núna , eða öllu heldur ætlaði að gera það.Þá var búið að loka henni, einmitt í dag voru síðustu forvöð að borga árgjaldið. Ég fór og borgaði , var samt ekki viss um að ég kynni þetta til hlítar__, en sjá hún opnaðist og ég vona að nú sé allt í lagi næstu 12 mánuði.. Hér er kyrrt og skýjað, um 1,5 °hiti. Búinn að vera kirkjuskóli í dag og presturinn búinn að líta til okkar. Geiri mjög vel frískur og ég er ágæt en afköstin engin.Snjóföl, sem kom fyrir meira en viku má heita farið, hvort sem það stendur til lengdar að við höfum auða jörð.Bestu kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir

20.10.2011 kl. 6:56

Tíminn líður fljótt

Í gær voru 13 ár síðan elskulegur frændi minn kvaddi þennan heim og í dag hefði hún Marína elsku frænka mín átt afmæli hugsa stöðugt til þeirra sakna þeirra beggja blessuð sé minning þeirra

Guðrún besta frænka

16.10.2011 kl. 11:21

Heil og sæl

sé að ég hef skrifað hér19 sept síðast og tel mig ekki vera í svo mikilli skömm. Allt gott héðan Nonni komin til Boston með nýja skipið og á að vera hér heima 27 okt eftir 5 vikna fjarveru það gengur vel hjá okkur Finni Árna þá daga sem hann er í pössun hjá ömmu og honum fer vel fram Anna á fullu við að skrifa lokaritgerðina sína en smá kvef hefur sett strik á þetta hjá okkur í síðustu viku en allir að verða frískir aftur Vona að allt gangi vel hjá ykkur bændur og fé komi vænt af fjalli þótt tíð hafi ekki verið upp á sitt besta kvrðja og kvitt

Guðrún besta frænka

12.10.2011 kl. 15:44

Fjöruga umræðan

Ég fór nú að skoða síðuna okkar og vissi upp á mig skömmina með leti og ómennsku. Þakka þér Guðrún mín fyrir að halda uppi heiðri okkar skifaða orðs og Siggi, það var gott hjá þér að drífa inn myndir af októberafmælisfólki. Svo þetta var bara allt í sómanum. Í dag er snjófölið frá því í gær að hverfa. Óli fór með Geira og þeir gengu frá bátnum uppi við Kálfborgarárvatn. Einn dag var hann í notkun í sumar ,enda var Geiri ekki við góða heilsu þann tima sem hefði þurft að fara á flot.Nú er hann sen betur fer allur annar , bæði að útliti og orku.Búið að senda öll lömb á sláturhús og vænleiki meiri en búist var við eftir þetta leiðinlega sumar. Ég var 2 vikur í hressingardvöl á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga í september og hafði gott af. Vonandi verður ekki búið að loka henni þegar ég þarf næst á því að halda. Ég er orðlaus yfir því hvernig stöðugt á að níðast á dreifbýlinu ár eftir ár. Bestu kveðjur til ykkar allra.

Hjördís Kristjánsdóttir

12.10.2011 kl. 14:44

Fjörug umræða

Hér er alltaf jafn "fjörug" umræðan :-) ...... en svona er nú bara þetta, nóg að gera hjá öllum. Við fórum norður um síðustu helgi í hefðbundna haustferð. Heldur var nú vetrarlegt í Bárðardalnum. Alltaf gott að koma heim og vera hjá mömmu og pabba og þökkum við innilega fyrir okkur. Hér er rok og rigning í dag og sýnist mér spáin þannig áfram næstu daga. Við frænkur fórum í fjallgöngu í gær og náðum að ganga í glampandi haustsól. Á niðurleiðinni var svo tunglið farið að skína skært. Eva Margrét er komin á fullt bæði í skóla og handbolta og Eiríkur í sínum skóla og fótbolta með MK. Vona að ég sjái einhverjar færslur hér von bráðar :-).. njótið "haustblíðunnar"

Guðrún Sigurgeirsdóttir

27.9.2011 kl. 17:24

Kveðja úr Álfaheiðinni

Allt gott að frétta hjá okkur og allt gengur sinn vanagang. Búinn að vera ljúfur september, allir frískir og nóg að starfa. Við göngu-stelpur höfum verið duglegar að ganga og ætlum að vera áfram. Kórstarfið hafið og ætlunin að syngja aðventutónleika fyrsta sunnudag í aðventu í Hörpunni.
Vona að öllum heilsist vel og hafi það sem best.
Bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

19.9.2011 kl. 9:53

Nú er orðið haustlegt

gróðurinn að taka á sig allskonar lit Allt gott af mér og mínum Nonni fór í nótt áleiðis til Cile að sækja nýtt varðskip verður í 5 vikur í burtu þar af vera 4 vikur á siglingu heim meiri vegalengdin það en vonandi gengur allt vel leggja af stað heim 23 sept Litli Finnur Árni dafnar vel er 3 daga í viku hjá ömmu meðan mamma skrifar lokaritgerð og er aðeins með í skólanum þetta gengur allt vel og er gaman bara að láta vita aðeins af mér kveðja og kvitt

Guðrún besta frænka

18.9.2011 kl. 10:46

Komið haust

Sæl öll!

Jæja þá er kominn 18. sepetmber og fyrsta september afmælið í dag hjá meðlimum Lundarbrekkufólks. Það hefur lítið á daga mín drifið síðan síðast, nokkrar gönguferðir bæst í safnið en annars gengur þetta allt sinn vanagang. Heldur haustlegt í dag hér á þessu landshorni, dáltítið hvasst og smá úrkoma. Ég vona að þið fáið góðan tíma núna fyrir norðan hvað veðrið varðar.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

3.9.2011 kl. 9:32

Enn rignir.

Höfuðdagur og Egedíus að baki, fyrir þá sem ekki lesa almanakið að staðaldri eru þette 29. ágúst og 1. september. Þá var trú manna að veðurfar breyttist og haustið færi mjög eftir því hvernig veður væri þessa daga. Einar Sveinbjörnsson veðufræðingur tók mjög í sama streng í veðurbloggi sínu núna um mánaðarmótin. En-- breytingin er greinilega að það hefur hlýnað að mun, en það rignir og rignir. Það er ekki viðlit að stunda heyskap, nema að vera algjörlega á tánum hverja þurra stund og heyið sem næst er samt sem áður sennilega vorhey. Flestir í mínu nágrenni hafa þó náð að ljúka heyskað. Enda komnar göngur. Farið var í 1. göngur austan Skjálfandafljóts í Bárðardal í gærmorgun og komið til baka á morgun sunnudag og réttað þá í Víðikersrétt. Vestan fljóts er búið að fara í svokallaðar 0 göngur en 1. göngur þar eru um næstu helgi. Geiri er hættur á öllum lyfjum , líðan öll batnandi og matarlyst , Kvartar samt yfir þróttleysi og getuleysi til verka, ætlast til þess að hann geti gengið til vinnu sem áður fyrr.En svona fer aldurinn með okkur og enginn fær við því gert. Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

1.9.2011 kl. 10:16

September

Sælt veri fólkið september genginn í garð með smá rigningu en mildu veðri vona að allur heyskapur sé búinn hjá ykkur góða fólk Hér er lítill 5 mánaða snáði komin í pössun hjá ömmu verður í dagpössun nokkra daga í viku mamman er að skrifa ritgerð og er smá í skóla með og amma ætlar að létta undir svo mamman geti klárað háskólanámið í vor þetta er bara yndisleg og gott fyrir mig að hafa nóg að gera eigið góða daga gott fólk kveðja

Guðrún besta frænka

31.8.2011 kl. 14:17

Síðasti ágúst í dag

Sælinú!
Á morgun er 1. september og þá er ég tilbúin að viðurkenna að haustið sé í nánd :-). En síðust daga hefur verið mjög gott veður hér, hlýtt og rigning af og til og ég veit að þið fyrir norðan hafið fengið smá sumar núna end tími til kominn. Í kvöld ætla ég að ganga á Lambafell með Útivistarræktinni en þá eru bara eftir tvær göngur með þeim í haust. En við fjallakonur ætlum að halda áfram að ganga saman eitt kvöld í viku og á laugardögum eins og undanfarið. Gaman væri að heyra hér frá einhverjum og jafnvel einhverjum sem sjaldan tjáir sig hér :-). Alltaf gaman að fylgjast með fólki.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

26.8.2011 kl. 13:05

Skólinn hafinn

Góðan dag ættingar og vinir! Hér skín sólin í dag og kominn föstudagur. Ég er komin í helgarfrí og vonandi verður það vel notað. Ætla allavega að ganga með frænkum mínum á Geitafell í fyrramálið og njóta þess í góða veðrinu. Ég átti ljúfa daga í Bárðardalnum í síðustu viku og gott að pabbi er á batavegi. Eiríkur var að byrja í sínum skóla í gær en hann er kominn á annað ár í MK og líkar það vel. Eva Margrét var að byrja í 8. bekk í Álfhólsskóla og er byrjuð í fermingarfræðslu en það á að ferma hana 1. apríl í Hjallakirkju. Ég er byrjuð að kenna og er það ósköp ljúft að hitta bæði samstarfsfólk og nemendur eftir sumarfríið. Haustið leggst vel í mig og vonandi ykkur líka.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

20.8.2011 kl. 20:47

Geiri kominn heim

Kom heim í gær,Guðrún sótti hann , svo fór hún um kl 11 í morgun. Hún kom sl þriðjudagsmorgun norður og er búin að vera hjálparhella foreldra sinna þessa viku. Algjör himnasending.. Nú þarf hann bara að passa sig , það er 10 daga lyfjataka framundan, en hann er stax líflegri eftir rúman sólarhring heima. Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

16.8.2011 kl. 7:03

Sælt veri fólkið

gott að heyra að heilsan er að koma hjá frænda Ég tel mig nú standa mig svona nokkuð vel í skrifum hér en lengi má bæta sig aðeins finnst mér haust vera komið í loftið og gróðurinn en eigið góða daga kveðja og kvitt

Guðrún besta frænka

15.8.2011 kl. 22:43

Kveðja úr Grímsnesinu

Sælt veri fólkið ég er fegin að heyra að voandi er allt í rétta átt með bata frænda. Við erum í sumarbústað í Grímsnesi aldeilis flottum bústað sem stéttarfélag Verkfræðinga á ágætis einbýlishús á einni hæð, væri alveg til í að flytja það með mér heim til mín :) Fyrstu vikunni minni í fríinu þ.e. í byrjun ágúst eyddum við á Akureyri og fylgdumst með fjórum fótbotaleikjum á Ak. og nágr. en bróðursonur Palla er að spila með Landsliðinu undir 17 ára. Við kíktum líka á Handverkshátiðina á Hrafnagili og Fiskihátíð á Dalvík, að ógleymdir göngu minni á Súlur með Guðrúnu og Möllu. Viku tvö dvöldum við heima við og ég náði einni alvöru fjallgöngu með Guðrúnu á Kistufellið. Hér erum við svo búin að vera síðan seinnipart á föstudag með smá skreppi með Ara á fótboltamót í Reykjavík á laugardaginn. Fengum sjö manns í heimsókn í gær og var það aldeilis góður sunnudagur í sveitinni og ég bakaði stóran stafla af pönnukökum. Í dag áttum við frekar rólegan dag skruppum aðeins í Sólheima og smá rúnt um sveitina. Þegar við svo komum heim á föstudag fer nú að styttast í skólabyrjun og frílok og allt að komast í fastar hversdagsskorður aftur sem er að sjálfu sér hið besta mál, allt er þetta gott í bland.
Vona að allir hafi það sem best.
P.S(vantar nokkra daga uppá að ég geti týnt mér ber útí skyrið hér við hliðina á bústaðnum)
Bestu kveðjur til ykkar allra
Hanna

Jóhanna Marína

15.8.2011 kl. 22:30

Frekar líflaust hér já það er satt.....

...en við reynum nú samt að skrifa hér eitthvað stöku sinnum, held það lesi það fleiri en okkur grunar :-). Hjá mér byrjaði vinnan í dag, Eva Margrét var að byrja í fermingarfræðslu í dag og verður alla þessa viku og svo eru handboltaæfingarnar að byrja hjá henni á morgun. Kennsla hefst svo hjá bæði mér og krökkunum í næstu viku. Vonandi fer nú heilsufarið hjá pabba að lagast, góðir hlutir gerast hægt stendur einhversstaðar.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

15.8.2011 kl. 21:05

Góðar fréttir

Geiri er búinn að vera 10 daga á Sjúkrahúsinu á Húsavík og verður eitthvað lengur. Hann fór í dag í sneiðmyndatöku á lungum á Akureyri og þetta er hæg og sígandi í betri átt. þetta er ekker illkynjað en svæsin bólga einhvers staðar , hann er enn með tvenns konar sýklalyf í æð og hefur verið að fá skyndilega hitatoppa sem þarf að ná að yfirvinna. En vonandi er þetta nú að ganga.Það væri nú gaman að sjá meira líf í síðunni, þegar sumarfríum lýkur. Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

9.8.2011 kl. 16:29

Ágúst

Skrifaði hér í morgun og gat aldrei sent það. reyni aftur núna.
Ég er ein í kotinu , Geiri var lagður inn á Sjúkrahúsið á Húsavík á laugardag og ég veit ekki hvenær hann kemur heim, kannski á morgun. Hann var settur á fúkkalyf í æð, það er vatn í brjóstholinu ,talið stafa af því að hann hafi fengið lungnabólgu einhverntíman í vor. Hann er búinn að vera slappur lengi, en þettaá að virka.. Líklega verið að enda við slátt hér á Lundarbrekku, síðan þarf þurrk á morgun og hinn ef þetta á að nást. Bestu kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir

9.8.2011 kl. 13:23

Ágúst genginn í garð

og skólarnir að byrja voða er sumarið stutt hjá okkur Við hjónin fórum á sunnudaginn í Flatey á Breiðafirði og vorum þar meðan ferjan fór til Brjánslækjar og svo heim með henni í bakaleiðinni skemmtilegt að koma þangað allt svo gamaldags kirkjan falleg skreytt eftir Baltasar og gömlu húsin svo falleg uppgerð og vel við haldið veðrið var gott og gott í sjóinn vel heppnuð ferð vonandi gengur heyskapur vel kveðja og kvitt

Guðrún besta frænka

25.7.2011 kl. 9:44

Júlí langt kominn

Góðan daginn!
Smá pistill frá mér. Í byrjun júlí þ.e. þann 3. fórum við Eva Margrét til Guataborgar með HK á handboltamót og gekk það mjög vel og var virkilega skemmtilegt. Ég var liðsstjóri með 10 stelpur sem allar voru til mikillar fyrirmyndar, við vorum heppin með veður og allt gekk að óskum. Við hjónin brugðum okkur svo í gönguferð á Hornstrandir 13.-18. júlí með sama hópnum og síðasta sumar og var það virkilega gaman líka. Veðrið lék við okkur og ekki var félagsskapurinn af verri endanum. Malla og Jói komu svo í bæinn með Sævar á Rey-Cup um helgina en eru farin heim, mikið að gera hjá þeim til að ná að fylgjast með leikjunum en við náðum að fara í eina fjallgöngu saman og borða saman fjölskyldurnar ásamt þeim Hönnu, Palla og fjölsk. og var það gaman. Svo er stefnan tekin norður, fyrir heiðar fyrir verslunarmannahelgi, en við leigðum sumarhús í Kjarnaskógi í viku. Ef ef þið eruð á ferðinni þar væri gaman að þið kíktuð við og rékkuðuð á hvort er heitt á könnunni :-).
Eiríkur vinnur hjá Kópavogsbæ í sumar og ber út Moggann eins og áður. Eva Margrét er komin í handboltafrí og nýtur þess að hafa Sævar frænda í heimsókn þessa daga.
Njótið sumarsins!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

18.7.2011 kl. 9:44

Yndisleg helgi að baki

Fórum í sólarhrings ferð á snæfellsnesið börn tengdabörn og barnabörn gáfu okkur í afmælisgjafir gistingu 5 rétta kvöldmáltið og morgunverðarhlaðborð á Hótel Búðum á Snæfellsnesi fórum og skoðuðum Djúpalónssand Rif Lóndranga Hellnar og fl keyðum í Stykkishólm í gærmorgun skoðuðum eldfjallasafnið undir leiðsögn Haraldar Sigurðssonar eldfjallafræðings hittum þar kæra vini frá Neskauðstað og eyddum löngum tíma með þeim með kaffibolla og spjalli komum heim um kl 16,00 ógleymanleg ferð Vona að nú fari að komast skriður á heyskap hjá ykku kæra frændfólk með kveðju

Guðrún besta frænka

15.7.2011 kl. 11:42

Sumar og sól

Góðan daginn.
Ég sé núna að það er rétt hjá Guðrúnu frænku að ég hef ekki skrifað lengi hér inn. Fór 3 ferðir norður með stuttu millibili en hefði reyndar alveg viljað sleppa við að þurfa að fara þriðju ferðina en við systur fórum að kveðja Skarphéðin, móðurbróður okkar sem eins og þið vitið lést mjög snögglega og alltof snemma. En hinar ferðirnar voru mjög ánægjulegar og innihéldu gönguferðir, fermingar og stúdentsveislu og ég hitti fullt af ættingjum og skemmtilegum sveitungum. Ég er að fara í 5 vikna sumarfrí eftir daginn í dag og það fyrsta sem er á dagskrá í fríinu en að fara í fjallgöngu í kvöld í blíðunni. Í lok næstu viku er stefnan tekin til Spánar þar sem við ætlum að vera í 2 vikur. Eftir það ætlum við svo að dvelja í viku í húsi FÍH á Súðavík. Vona að gras fari að spretta hjá bændum að einhverju viti.
Bestu kveðjur.
Elma

Elma

12.7.2011 kl. 9:27

Vorum að heiman

Bóndinn orðinn 80 ára, varð það 8. júlí. Við fórum um morguninn í Fosshól þar sem Marína og Jóhannes komu til móts við okkur og tóku við að aka bílnum okkar svo afmælisbarnið gæti notið útsýnis og verið í afslöppun. Við fórum fyrst til Húsavíkur, síðan í Mánárbakka þar sem við enduðum inni í eldhúsi í kaffi og spjalli. En við Beta deildum stofu á Sjúkrahúsinu á Húsavík nokkra daga sl. vor og fór vel á með okkur.Síðan fórum við í Skúlagarð þar sem við fengum okkur dýrindis fiskisúpu í hádeginu.Að því loknu fórum við upp með Jökulsá að vestan , en það var eins og innanríkisráðherrann okkar lýsti, fagurt landslag nær byggðinni en vegurinn frumstæður , verð þó að segja að hann var sléttur og furðu góður af niðurgröfnum malarvegi að vera., síðan bílastæði og vegur frá Dettifossi sem hæft hefði stórborgum úti í heimi , en útsýnið eyðimörk.Áfangastaðurinn var Svartiskógur í Jökulsárhlíð, þangað komum við á 5. tímanum.Þangað komu svo Óli og Dika og Sigga og Danni úr Fellabænum og borðuðu með okkur um kvöldið og við gerðum okkur glaðan dag.Sigga og Danni fóru heim um miðnættið, við hin gistum og komum heim um miðjan dag 9. júlí. Malla kom með okkur hingað heim og tók til við þvott og hreingerningar þar sem frá var horfið fyrr í sumar. Jói kom í gær og lagði síðustu hönd að kalla á breytingar hér á baðinu, , en hann er búinn að skipta út baðkari fyrir sturtuklefa skipta um klósett , flísaleggja og breyta. Þau fóru svo eftir hádegið í gær og fara nú af stað í ferðalag í dag stefnan tekin á Vestfirði.Þetta er orðin góð skýrsla í bili. Bestu kveðjur og hafið það öll sem best í sól og sumaryl sem við loks fáum að njóta hér á Norðurlandi.

Hjördís Kristjánsdóttir

11.7.2011 kl. 11:14

Komin heim

eftir góða gada hjá fjölskyldunni á Reyðarfirði fórum í Vaðlavík og Viðfjörð þangað hef ég ekki komið í mörg herrans ár góð og skemmtileg ferð fórum heim í gær með viðkomu hjá elsku Dísu og Geira og vorum trakteruð með þessari lika fínu kjötsúpu þar var Malla frænka og var ljúft að hitta hana ferðin heim gekk vel flugminjasafnið skoðað yndislegt veður alla leiðina vona ég að sumarið og hlýjan sé komið hjá ykkur kveðja

Guðrún besta frænka

4.7.2011 kl. 21:36

Tíminn flýgur.......

Sælt veri fólkið, já ég verð að viðurkenna að ég hef verið allt of löt að skrifa hér. Ég fór í nokkra daga sumarfrí í júní eða milli hvítasunnu og þjóðhátíðar en 17 júní og þeirri helgi eyddum við á Akranesi á fótboltamóti. Næsta frí hjá mér er ekki fyrr en í ágúst en þá ætla ég að vera í frí amk. þrjár vikur. Þá er stefnan tekin norður í eihvnerja daga og svo leigjum við sumarbústað í Grímsnesi 12-19 ágúst og þið eruð velkomin í heimsókn :o) Fjallavinkonur mínar heimsækja mig vonandi þá og jafnvel náum við að ganga hring uppi á Ingólfsfjalli eins og við töluðum um í fyrra sumar þegar við gengum þar upp. Núna er Særún mín í Svíþjóð með handboltanum og finnst mér voða notalegt að vita af Guðrúnu frænku sem einum fararstjóranum, ekki það að þetta er allt indælir foreldrar sem fóru með. Særún hefur verið hálfan daginn í Vinnuskólanum hjá bænum og hefur vinnu þar tvær vikur eftir að hún kemur heim. Palli ætlar að taka sér gott sumarfrí þetta sumarið, fer í frí um miðjan júlí og byrjar ekki aftur fyrr en um 20 ágúst. Þeir feðgar fara 15 júlí til Ólafsfjarðar á fótboltamót ásamt fleiri flottum 8 ára HK strákum. Nú hellirignir og frekar haustlegt út að líta en annars var júní þokkalegur hér allavega miðað við fyrir norðan en maí alveg ömurlegur hvað veður snertir. Ari hefur verið á íþróttanámskeiði á morgnana tvær sl. vikur en er svo bara að hvíla sig þessa vikuna nema þessar venjulegu fótboltaæfingar. Mér hálf brá nú þegar ég kom loks heim úr vinnu í dag þá var hann steinsofandi í sófanum, ekki beint líkt honum en allt í góðu með hann hafði sofnað út frá mynd :)
Vona að þið hafið það öll sem best og sendi kveðjur og knús úr Kópavoginum
Hanna

Jóhanna Marína

2.7.2011 kl. 9:46

Komið langþráð sumar.

Ég skrifaði hér í gær og glopraði því einhvernveginn niður. En nú er þriðji eða fjórði dagurinn með tveggja stafa hitatölu, hvílík dásemd. 13°ímorgun fór í nærri 17°í gær. Vonandi sprettur nú einhver jarðargróður. Búið að umbylta hér í baðherbergi, setja upp sturtu og taka gamla baðkerið, það var að verða spurning hvort ég sæti þar einhvern tíma og kæmist ekki upp úr því, en það var ekki vandamál að komast upp í það.Þökk sé þeim Jóa tengdasyni sem vann verkið og Ingólfi Péturssyni sem lagði á ráð og var píparinn, hjartans þakkir báðir. Guðrún mín frænka, ég hefi ekkert verið dugleg að skrifa, en kannski verður nú einhver betrum bót. Það væri gaman að sjá ykkur , við verðum að heiman 8. og 9. júlí, þið vitið það þá.Gott að vita ykkar ferða áætlun.Sendum svo öllum bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

2.7.2011 kl. 8:21

Heil og sæl

ósköp er fólk eitthvað latt að skrifa hér sakna ykkar hér Hanna Elma og Dísa mín Héðan er allt gott að frétta Við ætlum að skreppa austur í næstu viku og koma við á Lundarbrekku í bakaleiðinni ef húsráðendur þar eru heima. Nonni og fjölskylda fer austur undir næstu helgi og verða þau um einn mánuð á Egilsstöðum góð tíð hefur verið hjá okkur en mikið er ég búin að hugsa til ykkar þarna fyrir norðan vona að það sé komin betri tíð með sprettu og til langdvalar þetta er orðið alveg nóg þá er ég búin að kvitta og bið ykkur guðs blessunar

Guðrún besta frænka

19.6.2011 kl. 22:12

Sumarfrí

Sælinú!

Við fjölskyldan lögðum land undir fót föstudaginn 10. júní og fórum beint í Bárðardalinn. þar áttum við ljúfa daga hjá mömmu og pabba. Þann 11. júní fórum við í fermingu Daða Jónssonar og þökkum innilega fyrir okkur og svo fórum við þann 16. til Akureyrar og vorum í tvöfaldri stúdentsveislu þeirra Hjördísar Ólafsdóttur og Ásgeirs Jóhannessonar. Við stoppuðum svo á Akureyri þar til í dag að við drifum okkur suður í sumarið. En ég vona nú að það fari að láta sjá sig á öllu landinu von bráðar.
Við frænkur, ég, Hanna, Elma, Malla og Palli hennar Hönnu fórum í góða göngu uppá Brunnfell í þoku og súld á annan í hvítasunnu, en það var yndisleg ganga þrátt fyrir allt. Takk allir fyrir okkur!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

17.6.2011 kl. 14:12

17.júní 2011

Gleðilega hátíð allir ættingjar og vinir 17 júní er þríheilagur hjá mér Þjóðhátíðardagurinn brúðkaupsdagurinn og bóndinn afmæli og nú á hann 70 ára afmæli og eldist bara vel Vona að tíð sé farin að batna hjá ykkur Sendi nýstúdentunum Hjördísi og Ásgeiri og fjölskyldum þeirra innilegar óskir með daginn njótið hans vel með hátíðarkveðju

Guðrún besta frænka

10.6.2011 kl. 10:24

Þvílíkt sumar

þetta er búið að vera leiðinda sumar sem af er ég hef hugsað mikið til ykkar elsku frændfólk í sveitinni fyrir norðan alveg agalegt en nú spáir hlýnandi allavega hér ´a suðvestur horninu og vona ég að hún nafna mín Sigurgeirsdóttir dragi eitthvað af hitanum sem spáð er hér næstu daga með sér norður enginn á meira skilið hlýju en norðlendingar og austfirðingar það er komið nóg af þessari ótíð. Annars allt gott frá mér og mínum Nonni og Anna að undirbúa för á austurlandið Finnur Árni ætlar að vera hjá Rannveigu ömmu smá tíma ekkert farið að planleggja sumarfrí hjá okkur gömlu en við leggjum nú land undir fót eitthvað smáveigis held ég með von um betri tíð og gróður á´ tún kveð ég að sinni

Guðrún besta frænka

2.6.2011 kl. 7:32

Júní

Góðan dag! Ég ætla að byrja á að þakka fyrir afmæliskveðjuur til Eiríks og Evu Margrétar! Héldum uppá afmælin þeirra á Sunnudaginn var, sem var 30 ár samtals. Eva var með afmælisboð á afmælisdaginn sinn fyrir bestu vini sína og var það líka mjög skemmtilegt. Nú er farið að styttast í að ég komist í sumarfrí, bara nokkrir vinnudagar eftir.... verður vel þegið. Ætlum að byrja á að kíkja í sveitina og náum að komast í útskriftarveislur Hjördísar og Ásgeirs! Hlakka til!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

26.5.2011 kl. 21:50

Góða kvöldið.
Allt við það sama í Glaðheimum - allir hressir og nóg að gera í vinnunni. Mikil dagskrá í leikskólanum hjá Atla, alls konar ferðir og skemmtilegheit.
Þetta er fyrsta vorið í ég veit ekki hvað mörg ár sem ég fer ekki norður í sauðburð og það finnst mér svolítið skrýtið. En svona er þetta, maður getur því miður ekki verið alls staðar. En við stefnum norður á bóginn í næstu viku í fermingu Emilíu, sem verður fermd á sjómannadaginn og svo helgina þar á eftir í fermingu Daða og ætlum þá að vera fyrir norðan í 10 daga. Atli á einungis eftir að vera í 6 vikur í leikskólanum svo tekur við sumarfrí og eftir það skólavist í Vogaskóla. Tíminn flýgur aldeilis. Við frænkur höfum verið býsna duglegar í fjallgöngum undanfarnar vikur og stefnum að því að vera það áfram. Stefnum á göngu á Norðurlandinu um hvítasunnuna þegar við verðum allar þrjár staddar þar. Ég vona svo að veðrið fari að skána bæði hér á höfuðborgarsvæðinu og ekki síður á Norðurlandinu.
Elma

Elma

26.5.2011 kl. 21:42

Maílok

Sæl öll. Nú líður senn að maílokum og eins og stundum áður hefur maí verið kaldur og snjóþungur miðað við árstíma. Nú fer að verða stutt í sumarfrí hjá mér , komin í frí um hádegi á morgun, á reyndar eftir að sitja einhverja fundi og vinna skipulagsvinnu fyrir komandi haustönn.
Við stöllur af matvælabraut fórum í skemmtilega kynnisferð í dag austur í Mývatnssveit og til Húsavíkur til að skoða og spjalla við rekstraraðila í ferðaþjónustu. Sólskin og bjart en loftkalt og ægifagurt hvert sem litið var.
Framundan er helgarhittingur hjá saumaklúbbnum mínum og síðan taka við fermingarhelgar þar sem ég ætla að sinna matargerð. Og vonandi verður síðan Ásgeir minn stúdent þann 17. júní n.k. Allir mínir karlmenn á góðu róli í sínu. Með ósk um að nú fari að hlýna og sumarið fari að láta sjá sig. Malla

Marína Sig.

22.5.2011 kl. 22:20

Yndislegir afmælistónleikar

Karlakórs Reykjavíkur í dag en ekki eins gaman í kvöld aska farin að falla hjá okkur viðbjóður vonandi stendur þetta gos ekki lengi agalegt ástand hjá bændum bæði norðan austan og sunnan lands Það átti að verða heimsendir í gær kanski þetta allt sé byrjunin á því en vonum ekki vonandi fer þessu öllu að linna eigið góða daga kveðja

Guðrún besta frænka

22.5.2011 kl. 17:39

Íslensk náttúra fer sínu fram hvort sem okkur líkar betur eða verr.

Ég er kom heim á föstudag eftir 11 daga hressingardvöl á sjúkrahúsinu á Húsavik. Fékk ný lyf og sjúkraþjálfun alla virka daga og líður miklu betur , þótt ekki sé nú orkan til að hæla sér af.. Svo er norðan átt og vetrartíð en spáð batnandi í næstu viku og bændur reyna að þrauka þangað til og ekki þurfa þeir að öfunda starfsbræður sína sunnan jökla því það er hátíð að hafa snjó miðað við hin ósköpin.Vona bara að þessu linni sem fyrst á báðum stöðum.

Hjördís Kristjánsdóttir

20.5.2011 kl. 9:34

Hvers eiga bændur að gjalda

í sauðburði þessa árs hugurinn er hjá ykkur sem standið frammi fyrir vetrarríki með allt f´eð og litlu lömbin sem ættu að vera að skokka um öll tún núna Hér er kalt en bjart og autt þetta er bara ekki sanngjarnt með von um betri tíð og blóm í haga að aftur komi vor í dalinn fagra kveðja og kvitt

Guðrún besta frænka

15.5.2011 kl. 21:10

15. maí

Gott kvöld!
Hér er fremur kalt í dag en sól og fallegt gluggaveður. Við fórum í smá túristalabb um miðbæinn í dag við fjölskyldan og fundum þar vel hversu loftkalt er. Eiríkur er búinn í skólanum og búinn að fá flestar einkunnir og gekk ljómandi vel hann er líka búinn að taka skriflega bílprófið og tekur það verklega 26. maí. Eva Margrét er að byrja í sínum prófum núna þessa dagana og verður alla næstu viku í prófum.
Vona að þið njótið vorsins!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

14.5.2011 kl. 11:23

Evrovision kvöld

Góðan daginn gott fólk það verður spennandi kvöld í kvöld þegar vinir Sjonna stíga á svið í Dusseldorff Skýjað hér í dag en milt og gott veður Harpa vígð í gær með pompi og prakt flott hús en miklir peningar þar lagðir í í kreppunni vonandi stendur þetta hús undir væntingum Vona að sauðburður gangi vel og allt komi vel undan vetri eigið góða og skemmtilega helgi kveðja og kvitt

Guðrún besta frænka

8.5.2011 kl. 9:44

Mæðradagurinn

Til hamingju með daginn allar mæður hér í borginni er yndislegt veður sól og blíða Allt að verða grænt og gróður í óða önn að springa út yndislegur tími. Allt gott frá mér og mínum Litli Finnur Árni dafnar vel og allt gengur vel og vona ég að sauðburður gangi vel hjá ykkur bændafólkinu og tíðarfar verði gott fyrir litu lömbin njótið lífsins gaman að vera til núna kveðja og kvitt

Guðrún besta frænka

5.5.2011 kl. 13:46

Vorið komið og hunangsflugurnar líka!

Hér er nú bara orðið verulega vorleg og hunangsflugur og geitungadrottingar vaknaðar til lífsins. Börn að leik fram eftir kvöldi og allur gróur að lifna við. Yndislegur árstími sem framundan er. Eiríkur er er í prófum núan en það síðasta tekur hann 13. maí. Hann fær vonandi vinnu hjá Kópavogsbæ í sumar en við vitum það ekki ennþá. Eva Margrét er með finnska stelpu í heimsókn en bekkurinn hennar á vinabekk í Finnlandi sem er hér staddur og mun ein stúlka úr bekknum vera hjá okkur fram á laugardag. Allskonar dagskrá er semsagt framundan hjá þeim. Ég sé að það er nú ekki mjög mikið skrifað hér á síðuna en vonandi lát einhverjir í sér heyra áður en langt líður.
Kveðja Guðrún

Guðrún Sigurgeirsdóttir

30.4.2011 kl. 22:13

30.apríl 2011

og hér snjóar bara og snjóar en milt og gott veður Páskarnir búnir og Særún mín komin heim til sín aftur það var ljúft að hafa hana um páskana Finnur Árni litli dafnar vel vona að allt gangi vel í sauðburði hjá ykkur frændfólk mitt og vinir var bara að kvitta eigið góða daga kveðja

Guðrún besta frænka

28.4.2011 kl. 18:13

Alveg að koma maí!

Góðan og blessaðan daginn!

Nú er búin vika af blessuðu sumrinu og vona ég að hún sé ekki alveg að gefa tóninn hvað veður varðar hér á þessu svæði, rok rigning, hagl, slydda, sjókoma, sólarglenna stöku sinnum en yfirgnæfandi hundleiðinlegt veður. Það var nú bara gott að koma aftur í vinnuna eftir annars mjög fínt páskafrí. Gaman að fá Möllu, Jóa, Ásgeir og Sævar í heimsókn. Tvær flottar fermingarveislur þ.e. hjá Særúnu og Kristjáni Atla. Nokkarar góðar göngur þ.e. á Þríhnúka, Úlfarsfell og kringum Helgafell. Í gær var svo ganga með Útivistarræktinni og var farið í Búrfellshraun og Búrfellsgjá og verð ég nú að segja að það þarf ekki að fara langt til að komast í ótrúlegt landslag. En þetta er nú bara í Heiðmörkinni.
Vona svo að þið verðið dugelg að segja hér nokkur orð á síðunni áfram og eigið góðan maímánuð. Óska þess líka að sauðburður muni ganga vel og tíðin verði hagstæð.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

24.4.2011 kl. 12:15

Kveðja úr Álfaheiðinni.

Góðan dag kæru ættingjar og gleðilega páska og sumar. Af okkur er allt fínt að frétta Særún okkar fermd og allt gekk vel. Innilegar þakkir kæra fjölskylda og frændfólk fyrir komuna til okkar, gjafir og kveðjur. Þessi dagur var skemmtilegur og verður vel geymdur í minningabankanum. Nú slöppum við bara af heima um páskana í góða veðrinu (eða þannig) um næstu helgi fer ég svo á kóramót á Selfossi og er bara farin að hlakka til. Maímánuður verður svo trúlega rólegur hvað varðar félagslífið svo hann ætla ég að nýta vel í vinnunni og fjallgöngur :) Um hvítasunnuna förum við svo norður í fermngu Daða og í framhaldi af því byrja svo fótboltamót sumarsins.
Vona að þið hafið það sem allra best og þú fáir bata elsku Dísa mín.
P.S. mikið var það fallegt sem þú skrifaðir í kortið til Særúnar, takk takk
Bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

24.4.2011 kl. 9:04

Gleðilega páska!

Hér er ekki skemmtilegt veður á Páskadagsmorgni... mikið rok og rigning og búið að vera þannig síðan fyrripartin í nótt!
Allir frískir hér og ætla að halda sig heima í þessu veðri!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

21.4.2011 kl. 22:17

Gleðilegt sumar og bestu þakkir fyrir veturinn!

Við fjölskyldan óskum ykkur öllum gleðilegs sumars og .ökkum fyrir veturinn. Hér er ekki mjög sumarlegt í augnablikinu, hífandi rok og rigning eða er það e.t.v. sumarlegt hér á þessu svæði?
Ég vona innilega að þú farir að fá einhvern bata mamma mín.
Kæar kveðjur

Guðrún Sigurgeirsdóttir

21.4.2011 kl. 20:30

Sumardagurinn fyrsti

Gleðilegt sumar og þakka ykkur fyrir veturinn.Afmælisbörn síðustu daga, til hamingju með afmælin ykkar. Ég er með einhverja taugaklemmu í hægri mjöðm og gengur svo illa að sitja framan við tölvuna , þess vegna er ég ekki að orðlengja það meira

Hjördís Kristjánsdóttir

21.4.2011 kl. 6:44

Sumardagurinn fyrsti

fallegt veður svona í morgunsárið páskahátíðin að ganga í garð og vonandi eigið þið góða páska Særún Birta kemur í kvöld til að eyða páskunum með afa og ömmu og verður það voða gaman Óska ykkur öllum gleðilegs sumars og takk fyrir samskiptin hér í vetur og gleðilega páskahátið eigið góða og skemmtilega daga kveðja

Guðrún besta frænka

18.4.2011 kl. 21:14

Alskonar veður

búið að vera hér síðustu daga alhvít jörð í morgun rigning í dag og jörð orðin auð orðin svolítið leið á þessu tíðarfari. Litli maðurinn fékk nafn í dag var nefndur Finnur Árni og dafnar vel kominn með síðu á Nino.is allt að gerast Særún mín kemur á fimmtudaginn og verður hjá ömmu og afa yfir páskana verður voða gaman að fá hana Hún er orðin spennt að sjá litla frænda sinn annasrs allt gott héðan eigið góða daga ættingjar og vinir kveðja

Guðrún besta frænka

15.4.2011 kl. 12:17

Páskafrí

Í dag er síðasti vinnudagur hjá mér´fyrir páskafrí og er það vel þegið að þessu sinni. Eiríkur er kominn í frí en MK var með árshátíð á Hótel Sögu í gær og svo frí í dag. Eva Margrét fer einnig í frí eftir daginn í dag. Særún og Kristján Atli verða fermd um páskana og óska ég þeim til hamingju með það.
Við fórum til Húsavíkur um síðustu helgi með Evu Margréti og þeim HK stelpum í handbolta og komu þær heim með gullið og urðu semsé Íslandsmeistarar þrijða árið í röð. Við fórum líka í Lundarbrekku og var að indælt að vanda og koma þangað og þökkum við fyrir okkur elsku mamma og pabbi.
Við óskum ykkur öllum gleðilegra páska og vonum nú að vorið fari að koma. En hér var snjóbylur í morgun þegar ég var að bera út Moggann :-)

Guðrún Sigurgeirsdóttir

10.4.2011 kl. 11:31

Söngveislu helgin mikla

Fór í gær og hlustaði á Karlakór Rykjavíkur þvílík unaðs söngveisla svo í dag fer ég að hlusta á Léttsveitina og Bergþór Pálsson Í gær kom litli ljósgeislinn hennar ömmu í sína fyrstu heimsókn til okkar svaf allan tíman svo rólegur og fínn nú er að hvessa hér á að vera bálhvass í dag en vorið er komið svo verður áfram læti út af kosningunum verði þeim bara að góðu sem sögðu nei. ekki batnar ástandið eftir þessar kosningar ég segi nú bara guð blessi Ísland og leiði okkur út úr þessari vitlaysu njótið vorsins kæru vinir kveðja

Guðrún besta frænka

1.4.2011 kl. 13:51

Myndir

Sæl öll!
Gaman væri að fá myndir af þessum nýju einstaklingum sendar til að setja hér inn á síðuna okkar..
Heiðbrá Hekla Sigurgeirsdóttir
Friðrik Veigar Ólafsson
og hr, Jóns Árna og Önnu Berglindarson..

Guðrún Sigurgeirsdóttir

1.4.2011 kl. 13:47

1. apríl

Góðan dag og innilegar hamingjuóskir með soninn Nonni og Anna Berglind og einnig Guðrún og Árni til hamingju með sonarsoninn.
Gaman að hvað fjölgar hratt í ættinni. Allt gott hjá mér og mínum. Tek undir með Guðrúnu um að framundan er spennandi Útsvarskvöld og hlakka ég til að horfa á það, og mun örugglega sakna þeirra þátt næstu föstudaga.

Vonandi vorlegur apríl framundan og góðir tímar!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

1.4.2011 kl. 9:56

Vor?

Hjartanlega til hamingju Guðrún, Árni, Jón Árni og Anna Berglind og fjölskyldur ykkar með litla vorblómið sem sprakk út i gær.
Fyrsti þröstur vorsins sást hér í morgun og tveir fálkar eltu rjúpu í gær sem komst held ég í skjól undir bílum hér á hlaðinu, þeir flugu a.m. k. allslausir burt. Úrslitakeppni Útsvars í kvöld og gaman að norðanmenn þurfi að kljást um þetta.. Hefði viljað geta haldið með báðum en Norðurþing stendur þó enn nær okkur en Akureyri og við höldum með þeim í lokahrinunni. Sendum ykkur kærar kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir

1.4.2011 kl. 8:23

Lítill drengur

12 merkur og 50 cm fæddist í gær hjá Önnu Berglind og Nonna eintóm hamingja öllum líður vel Nú held ég að vorið sé komið fallegur dagur spennandi útsvarskvöld í kvöld vonandi gengur Norður Þingi vel eigið góða daga

Guðrún besta frænka

29.3.2011 kl. 9:21

Heldur að hlýna.

Það er þokudrungað þessa dagana en samt heldur að verða vorlegra. Góan var löng og leiðinleg og þótt ég sé mátulega trúuð á sögnina um að Öskudagurinn eigi 18 bræður þá var það nokkuð sem passaði núna. Hér sér nú vel í auða jörð á pörtum eftir hláku síðasta laugardag, en strax norðan til í Bárðardal eru tún nær alhvít og miklu vetrarlegra.
Sl. laugardag var litli drengurinn þeirra Óla Hjartar og Elvu skírður, hann heitir Friðrik Veigar í höfuðið á báðum ömmum sínum. Bestu kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir

28.3.2011 kl. 13:58

Snjórinn alveg að fara

Hér er að verða meira og minna autt og mikill munur á birtustiginu á morgnana. Gott að keyra í björtu í vinnuna og núna vantar bara herslumuninn á að það sé bjart við Moggaútburðinn. Ég fór á Helgafellið á laugardaginn ásamt þeim Elmu og Rúnu svilkonu og var það alveg ljómandi ganga í þoku og súld.
Hjá okkur er ekkert að frétta og lífið gengur sinn vana-gang!
Njótið lífsins!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

26.3.2011 kl. 11:59

Held að vorið sé farið

að kíkja aðeins fyrir hornið núna fallegt veður og nafna mín búin að klifa eitt fjall í morgun krafturinn í þessum kellum . Nú er spennan komin í hámark hér rétt tvær vikur í settan tíma hjá krílinu hjá Önnu og Nonna allt gott að öðru leiti ætla að fara á tónleikana hjá Hönnu og Léttsveitinni alltaf gaman hjá þeim vona að vorið sé komið hjá ykkur kæra frændfólk í sveitinni ekki veitir af sauðburður nálgast og allt sem því fylgir eigið góða daga kveðja og kvitt

Guðrún besta frænka

22.3.2011 kl. 10:39

Tíminn flýgur hratt......

Sælt veri fólkið, loks læt ég heyra frá mér hér og vil byrja á því að óska afmælisbörnum undanfarna daga til hamingju með dagana sína. Nú styttist all verulega í fermingu Særúnar og nóg að gera líka í mörgu öðru, maður þarf að hafa sig allan við að ná að muna allt. Börnin að keppa til skiptins um helgar og stutt í vortónleika kórsins þannig að það er að ýmsu að hyggja. Lítið verið gengið á fjöll undanfarið en stendur vonandi til bóta þegar um hægist í söng og fermingarstússi. Við héldum upp á 8 ára afmæli Ara á sunnudaginn með góðri fjölskydluveislu í Álfaheiðinni og svo ætlar Særún mín í svokallaða prufuhárgreiðslu á næsta laugardag og þá ætlum við líka að láta taka myndir af henni og okkur fjölskyldunni. Fyrstu helgina í apríl fer Ari svo á Selfoss að keppa í handbolta og helgina á eftir er árshátíð í vinnunni hans Palla og tvennir vortónleikar Léttsveitarinnar semsagt brjálað stuð....... allt gengur þetta nú upp með góðri samvinnu og gleði :-)
Vona að þið eigið góða daga hvar sem þið eruð og að vorið fari að líta dagsins ljós.
P.S. Malla ég gerði prufu ricekrispies kransaköku og hún tóks bara vel.
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

22.3.2011 kl. 8:58

Vetur

Sæl öll!
Já maður er nú farinn að finna verulegan mun á birtunni og frábært að keyra í vinnuna í björtu..... þó svo enn sé hávetur hér þ.e. snjór og hálka. Ímorgun var nú bara bylur á mér við að bera út og spáin allra næstu daga er vetrarleg. Við fórum tið Englands á miðvikudaignn var í vinnuverð með vinnunni minn en við heimsóttum stóra námsgagnasýningu í Birmingham og eyddum svo rúmum sólarhring í London á leiðinni heim. Vorið var komið í Englandi, útsprungnar páskaliljur og grænar grundir og hitinn um 10- 14 gráður yfir daginn en kaldara þegar kvöldaði.
Kær kveðja til allra!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

21.3.2011 kl. 21:14

Marspistill

Af mér og mínum er allt gott að frétta. Við höfum samt fengið okkar skammt af kvefi, hálsbólgu og slíkum leiðindum en nú fer þetta allt batnandi með hækkandi sól. Mars hefur þrátt fyrir þetta liðið mjög hratt við leik og störf og finnst mér sem hann sé rétt byrjaður, kanski er það aldurinn.
Um næstu helgi förum við hjón á árshátíð VMA starfsfólks og á laugardag er heilmikil Oddfellóhátíð en ég er að ganga í Oddfellóregluna. Svo nú verður dustað rykið af sparidressunum. Svo eru bara skemmtilega margar fermingar framundan hjá Lundarbrekkufólki.
Bestu kveðjur um von um að vorið sé handan við hornið. Malla

Marína Sig.

16.3.2011 kl. 11:39

Orðið tómlegt í kotinu

Þær farnar austur aftur en þetta voru ljúfir dagar Leiðinda veður hér flesta daga og sjóföl á jörðu endalausir umhleypingar Annars allt gott ég nýt bara daganna og prjóna og fer í postulínsmálun ekki komið á hreynt hvenær Árni hættir að vinna Nú styttist í litla krílið hjá Nonna og Önnu og spennan í hámarki fermingar farnar á fullt og nóg að gera hjá mörgum Vona að þið eigið góða daga lifið heil kvitt

Guðrún besta frænka

14.3.2011 kl. 18:50

Leiðinda veður

Suðvestan hvassviðri í nótt og dag , gerði stærðarskafla í nótt, þiðnaði í morgun og búin að vera hláka og taka mikið fer svo sennilega að frjósa.Ekkert ferðaveður svo ég sleppti sjúkraþjálfuninni. Held ég sé loks að skána af kvefinu en finn ekki mikinn bata í bakinu, ef ég stend eða geng leggur verk og dofa niður í fætur.Fengum góða heimsókn í gærkvöldi , Vígslubiskup Hólastiftis var að visitera hér á Lundarbrekku og með honum sóknarpresturinn, og svo líka sóknarnefndin. Skemmtilegt fólk og eins gott að þá var ekki komið þetta óveður. Kærar kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir

9.3.2011 kl. 7:23

Öskudagur

og svo er sagt að hann eigi 18 bræður það virðist ætla lofa góðu hér sunnan heiða bjart en ansi kalt.Í´kvöld koma þær að austan mæðgur og vinkona Særúnar og hlakka ég mikið til að fá þær svo er ég að fara í postulínsmálunina nuna kl 9 svo þetta verður ljúfur dagur Möllu frænku minni óska ég innilega til hamingju með stóra daginn hennar Annars er allt gott að frétta frá mér og mínum styttist í stóru stundina hjá Önnu og Nonna spennan alveg í hámarki hér því enginn veit hvort kynið verður voða gaman eigið ljúfa daga ættingjar og vinir kveðja

Guðrún besta frænka

4.3.2011 kl. 10:43

Mars

Sæl öll!
Þá er koinn mars og daginn tekið að lengja svo um munar! Af okkur hér er allt gott, í dag eru tvær vikur síðan ég braut eitt bein í ristinni á mér og er ég á góðum batavegi, búin að leggja hækjunum og hef það bara gott. Heppin að brjóta ekki ökklann eða eitthvað enn verra. Ég óska öllum afmælisbörnunum febrúar og mars til hamingju með afmælisdagana sína. Einnig óska ég Óla Hirti og Elvu og Geira og Svölu til hamingju með nýfæddu börnin sín. Gieri og Svala búin að skíra og fékk litla stúlkan nafnið Heiðbrá Hekla og óska ég þeim líka til hamingju með það. Vona svo að þið eigið góða helgi!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

28.2.2011 kl. 7:34

Heiðurs konurnar

Hjördís og Sigrún Lundarbrekku eiga afmæli í dag til hamingju með daginn konur Rigning í borginni í morgun en bara gott veður Bjarnastaða hjónum óska ég til hamingju með nýju barnabörnin Hef það gott eftir að ég hætti að vinna prjóna alveg út í eitt á væntanlegt barnabarn sem óðar styttist í og spennan alveg í hámarki Árni enn að vinna ekki alveg komið á hreynt hvenær hann hættir Þær mæðgur frá Reyðarfirði koma 9 mars og vinkona Særúnar með og verða í viku bara gaman hef meiri tíma til að sinna þeim núna finnst eins og vorið sé ekki langt undan eigið góða daga og njótið kveðja og kvitt

Guðrún besta frænka

26.2.2011 kl. 21:31

Tíminn líður hratt

Góða kvöldið
Mér finnst tíminn alltof fljótur að líða. En það er allt gott að frétta hjá mér og minni fjölskyldu. Skrapp norður til að fylgja Jónídu frænku minni síðasta spölinn og það eru orð að sönnu sem hér hafa verið viðhöfð að það var góð jarðarför. Blessuð sé minning hennar. Annars gengur allt sinn vanagang - mikið að gera í vinnunni hjá okkur báðum og Atli unir glaður við sitt í leikskólanum en brátt er sú vist á enda og mér finnst ótrúlegt að vera búin að skrá "nýfædda" drenginn minn í grunnskóla. Við frænkur hittumst reglulega og göngum ýmist innanbæjar eða á fjöllin hér í kringum Reykjavík. Við Hanna skruppum á Úlfarsfellið í morgun og það var bara norðlenskur bylur á toppnum rétt á meðan við stoppuðum þar. Óska svo þeim Óla Hirti og Geira til hamingju með afkomendurna.
Elma

Elma

26.2.2011 kl. 10:49

Lítil stúlka

Lítil stúlka leit dagsins ljós í gærmorgun.Foreldrar hennar eru Svala Vigfúsdóttir og Sigurgeir Ólafsson.Hún fékk keisaralegar móttökur var 14 1/2 mörk og 52 sm.
Alveg nógu stór þótt hún væri heldur fyrr á ferð en gert var ráð fyrir. Suðvestan sveljandi, glottir til sólar en 2-3°frost. Kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir

24.2.2011 kl. 9:04

Fæddur drengur

Það hefur veri einhver púki í Lundarbrekkusíðunnu ég hefi ekki komist inn á hana í einhverja daga.
En það fæddist drengur hjá Óla Hirti og Elvu 18. febrúar, 15 merkur og 50 sm.Allt gekk vel og þau komu heim á laugardag.Óli átti eftir að vinna eina viku en fer svo í fæðingarorlof núna um helgina. Svala er skrifuð 4. mars , en þyrfti að geta átt fyrr, hefur verið með háan blóðþrýsting og var höfð inni á sjúkrahúsinu í fyrrinótt. Geiri er á sínum síðasta vinnudegi í dag , er svo kominn í fæðingarorlof og má ekki seinna vera.
Við Geiri fórum á Opið hús fyrir aldraða í Stórutjarnaskóla á þriðjudag. það var fjölmennt og skemmtilegt. Ég á að mæta n.k. mánudag hjá Bjarka Karlssyni bæklunarlækni á Akureyri.Hann ætlar að gera tilraun til að sprauta einhverju bólgueyðandi í bakið á mér. Það er spurning hverju það skilar, gæti orðið vont á eftir , vonandi svo bætt eitthvað , í versta falli yrði ég óbreytt. Það er búinn að vera sv átt og 3-5°hiti í nótt, en hefur ekki náð að taka nýjasta snjóinn. Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

22.2.2011 kl. 8:14

Í dag eru

105 ár síðan faðir minn fæddist og minnumst við hans með hlýju og þökk fjölskyldan blessuð sé minning hans .Héðan allt gott að frétta ekki laust við að það sé komið smá vor í loft eigið góða daga kveðja

Guðrún besta frænka

22.2.2011 kl. 8:14

22. febrúar 2011

Góðan dag kæru ættingar og aðrir sem heimsækja þessa síðu. Langar að minnast þess að í dag eru 105 ár liðin frá fæðingu Jóns Lunda Baldurssonar.
Blessuð sé minning hans.

Eigið góðan dag!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

20.2.2011 kl. 10:27

Konudagurinn

og góan gengin í garð til hamingju með daginn allar bárðdælskar konur og við hinar allar Hér er yndælis veður smá rigning í morgun en nú er að létta til og Bjarnastaðahjón til hamingju með nýja barnabarnið og Dísa mín og Geiri einnig hamingjuóskir með nýja langömmu og langafa barnið Ég á von á þeim mæðgum frá Reyðarfirði í byrjun mars og með í för verður besta vinkona Særúnar það verður gaman finnst eins og það sé smá vor í lofti krokusarnir farnir að kíkja upp úr moldinni og það er gaman þá er farið að vora vona að þið eigið góða daga og kveð að sinni

Guðrún besta frænka

17.2.2011 kl. 14:18

Sól og snjór í dag

17. febrúar skartar sýnu fegursta hér á stór-Kópavogssvæðinu í dag. Esjan með öllum sínum fallegu tindum er snjóhvít og glampar á Móskarðshnúkana. Er með smá fjallafiðring þegar ég horfi á þetta fallega veður og fjöllin. Við göngu-stöllur gengum í gærkvöldi úr Kópavogi og út á Álftanesi (næstum í Bessastaði) í logni og tunglskyni en töluverðri hálku á köflum. Annars gengur lífið sinn vanagang hjá okkur og lítið að frétta. Vona að þið hafið það sem best!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

14.2.2011 kl. 13:21

Skemmtileg gjöf

barst í hendur mér í morgun frá Kristjáni frænda mínum Geisladiskur með upplestri Jónasar föðurbróður míns erindi Byggjum landið Gaman að hlusta á þetta annars er bara allt gott frá mér og mínum allavega veður í dag rigning slydda og sól Átti góðan dag með fjölskyldunni sem hér er á þessu svæði á laugardaginn takk fyrir kveðjurnar ættingjar mínir og vinir nú nýt ég bara lífsins eigið góða daga kveðja

Guðrún besta frænka

12.2.2011 kl. 11:02

Hækkandi sól

Óska afmælisbörnum undanfarinna daga til hamingju með afmælin. Slyddurigning í morgun , en svo er að létta til og sér til sólar en hitastigið er um frostmark.Hafið það öll sem best

Hjördís Kristjánsdóttir

7.2.2011 kl. 21:01

Sól rís sól sest

Þannig er lífið. Bubbi dó á afmæli Óla Hjartar, Óli Skagfjörð fæddist á afmæli Bubba svo ég reikna með að litla systkinið hans Óla Skagfjörð fæðist á afmæli Hönnu, veit nú samt að móðirin vill ekki bíða svo lengi.
Þegar ég var að fylgja Jónídu á laugardaginn var ég svo hugsi yfir því hve líflína manna væri mislöng. Amma Marína og Jónída voru samferðakonur og vinkonur. Amma var 6 árum eldri en Jónída en í vor eru 33 ár síðan við fylgdum henni síðasta spölinn.
Bárðardalurinn var svo stilltur og fallegur á þessum kveðjudagi og svo sannarlega var þetta góð jarðarför.
Blessuð sé minning Bubba og Þuru og svo er stutt í fjölgun í Bjarnastaðafjölskyldunni. Ég bið þess að þar gangi allt vel.
Bestu vetrar kveðjur Malla

Marína Sig.

7.2.2011 kl. 20:11

7. febrúar

Í dag eiga bæði Óli Hjörtur og Viktoría afmæli eins og fram hefur komið á forsíðunni, en Í dag eru líka 6 ár síðan Bubbi dó þ.e. 7. febrúar 2005. Blessuð sé minning hans.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

6.2.2011 kl. 9:25

Góð jarðarför.

Í Brekkukotsannál hjá Halldóri Laxness talar dómkirkjupresturinn um góða jarðarför. Hér var ein slík í gær. Jónída okkar á Sigurðarstöðum var kvödd í kyrrlátu svölu veðri. Allt gekk eins og fyrirhugað var, dálítið á annað hundrað manns kom og kirkjan troðfull og fólk sat líka í bílum og inni í húsum All gert eftir hennar óskum og fyrirmælum , nema hún fékk sína útfararræðu sem henni þótti óþarfi , en held samt að hún hafi verið ánægð með eftir á að hyggja, séra Bolli komst af innsæi og næmi svo nálægt því sem segja þurfti með aðstoð Ríkarðar. Við minnumst hennar með söknuði , en gleðjumst yfir að hún hafi fengið lausn úr hrörlegum líkama.
Svo minnist ég dánardags Þuru okkar á Bjarnarstöðum , sem kvaddi 5. febrúar 1999. Blessuð sé minning þeirra beggja.

Hjördís Kristjánsdóttir.

5.2.2011 kl. 21:51

Loksins

Að heilsast og kveðjast er lífsins gangur í dag eru 12 ár frá því að Þura á Bjarnarstöðum dó og í dag var Jónída á Sigurðarstöðum jarðsett, því fer óðum fækkandi fólkinu sem setti svip sinn á umhverfri æskunnar og mótaði okkur sem yngri erum. Blessuð sé minnig þeirra. Af þessum bæ er ósköp lítið að segja skepnuhöld hafa verið góð það sem af er vetrar, en kindur og kýr er það sem lífið snýst um hér.Fæddir eru þrír kálfar á nýju ári og er það helstu viðburðir í búskapnum á þessum tíma.Svo er bara að halda öllu í sem skástu standi og bíða vors.

Friðrika Sigurgeirsdóttir

5.2.2011 kl. 10:39

Mér er hugsað til Sigurðarstaða í dag

frá því ég var lítil stelpa var hefð að koma við á Sigurðarstöðum á ferð og dvöl í Bárðardal þar var tekið á móti manni með miklum höfðingja skap kaffi og góðgæti og eftir að ég eignaðist mína fjölskyldu var alltaf komið við hjá Ídu og fengið kaffi nú hugsa ég til hennar með hlýhug og þökk og nú er hún komin heim í dalinn sinn alkomin við hlið Sölva síns blessuð sé minning þín vina

Guðrún besta frænka

2.2.2011 kl. 18:23

Febrúar - snjór

Sæl veri þið kæru ættingar!

Nú hefur febrúar heilsað með hvíta voð hér á höfuðborgarsvæðinu..... óneitanlega er nú bjartara yfir þegar hvítt er og eitthvað svo mikið hreinna (nú fussar pabbi minn).... rigning og slabb á einvhernveginn bara ekki við í janúar og febrúar í mínum huga. Mikið um allskonar pestir í vinnunni minni bæði hjá starfsfólki og nemendum. Við hér erum frísk og lífið gengru sinn vanagang. Eiríkur er í fríi í dag vegna starfsdags kennara í MK og Eva Margrét var í fríi í gær en þá var foreldardagur í Álfhólsskóla en hún fékk ágætis vitnisburð eftir miðönnina. Við stöllur í gönguklúbbnum ætlum að skella okkur í innanbæjargöngu í kvöld og njóta þess að ganga saman.
Njótið lífsins!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

31.1.2011 kl. 14:05

Hækkandi sól

Góðan dag!
Eins og þið hafið vonandi tekið eftir þá er daginn tekið að lengja. Í lok janúar verður dagurinn rúmlega 2 klst. lengri en hann var á vetrarsólstöðum í desember! Þessar upplýsingar eru miðaðar vð höfuðborgarsvæðið en ég held það skeiki nú ekki neitt mjög mörgum mínútum við norðurlandið.


Dags. Birting Sólris Sólarlag Myrkur
22.des 10:03 11:22 15:30 16:49
10.jan 09:55 11:06 16:05 17:16
25.jan 09:29 10:29 16:51 17:52

1.feb 09:12 10:09 17:15 18:11
12.feb 08:42 09:34 17:51 18:43
25.feb 08:02 08:50 18:33 19:21

1.mar 07:48 08:36 18:45 19:33
12.mar 07:11 07:58 19:19 20:06
25.mar 06:24 07:12 19:57 20:46

1.apr 05:58 06:47 20:18 21:08
12.apr 05:14 06:08 20:51 21:45
25.apr 04:20 05:22 21:32 22:35

1.maí 03:53 05:01 21:51 23:01
12.maí 02:54 04:24 22:27 23:59
25.maí 03:43 23:09

*Birting og myrkur reiknast þegar sólmiðan er 6°undir sjónbaug, en það er nálægt mörkum þess að verkljós sé úti við. Sólris og sólarlag teljast þegar efri rönd sólar sýnist vera við sjónbaug... Almanak Háskóla Íslands 2011.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

31.1.2011 kl. 14:02

Síðasti dagur janúarmánaðar..

..er í dag, og hefur hann flogið áfram eins og reyndar flestir mánuðir. Hér er búið að vera leiðnlegt veður um helgina og í dag, slyddu-rigning og rok. Við göngukonur drifum okkar samt í göngu í gær sunnudag, þ.e. gengum kringum V'ifilsstaðavatn og í Vífilsstaðahlíð og niður í Heiðmörk, fengum okkur kaffi í Maríuhelli og gengum svo aftur að bílnum við vatnið, bara yndiselg ganga í ýmsum veðrum. Foreldradagur í Álfhólsskóla á morgun og við Eva förum í viðtal og hún fær sínar einkunnir fyrir miðönnina.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

30.1.2011 kl. 10:06

Lífið er ljúft

Komin í 20 daga orlof þar sem ég átti svo mikið frí inni og starfslok 28 febrúar tek þessu fagnandi og hugsa gott til þess sem framundan er leist út með blómum og gullúri og fleiru síðasta vinnudaginn Alstaðar eru þorrablótin á fullu þessa dagana og það er gott rok og rigning hér gott á meðan ekki er hálka Annars gengur allt sinn vanagang hér allir hraustir gott á meðan það er eigið góða daga gott fólk kveðja

Guðrún besta frænka

26.1.2011 kl. 22:28

Afi Sigurður á Lundarbrekku

Vorum að koma úr göngu stelpurnar og barst þá í tal að í dag væri afmælisdagur afa heitins á Lundarbrekku en hann var fæddur 26. janúar 1899 og eru því 112 ár frá fæðingu hans. Blessuð sé minning hans.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

26.1.2011 kl. 19:48

Heyrði í úigvarpinu í dag

að elsku vina mín hún Ída hefði kvatt þesa jarðvist blessuð sé minning hennar eflaust södd lífdaga hún var yndisleg kona alltaf var hún góð við mig og mína og minnist ég hennar í þökk og sendi Steinunni og Rikka okkar innilegustu samúðarkveðjur héðan af Kleppsveginum kveðja

Guðrún besta frænka

24.1.2011 kl. 19:01

Janúar afmæli

Sæl öll. Sendi janúar afmælisbörnum kærar afmæliskveðjur.
Hef ekki verið duglega að skoða síðuna nú á nýju ári. En allt gott að frétta af mér og mínum. Ásgeir búinn með næstsíðustu prófalotuna í MA og allt gengið vel sem vitað er um. Jói tekur virkan þátt í heimsmeistarmótinu og svitnar og skelfu eftir því hvernig gengur og svo var bara sorgarferli í dag.
Við fórum á virkilega skemmtilegt og vel hepppnað þorrablót í Bárðardal á laugardagskvöl. Bestu kveðjur Malla

Marína Sig.

24.1.2011 kl. 17:21

Afmæli 22. janúar

Elva Rósa Helgadóttir á afmæli 22. janúar og varð þá 35 ára. Sendi henni og öðrum afmælisbörnum sem ég hef látið framhjá mér fara bestu kveðjur og hamingjuóskir

Hjördís Kristjánsdóttir

22.1.2011 kl. 22:15

Líf og fjör

Gleðilegt nýtt ár kæru ættingjar og vinir, maður verður nú að láta heyra í sér annars lagið fyrst betri helmingurinn er ekki sá virkasti í bréfaskriftum. Af okkur er allt gott að frétta ég var að ljúka síðasta verknáminu mínu í gær og er búin að vera að vinna á geðdeildinni í 3 vikur. Er reynslunni ríkari eftir þann tíma, svo er bara skóli strax á mánudag, við hjónin erum með tvö aukabörn um helgina Katrín er hjá okkur en Anna og Nonni skruppu suður og svo er barnabarnið hjá okkur hann Jón Þór. Þar sem Sandra og Baldur fóru vestur á Þorrablót, Jónas keyrði hálfa leið suður á móti þeim í gær og svo skellum við okkur með hann á morgun áleiðis suður. Ótrúlegt hvað allt lendir hjá manni á sama tíma og svo bara rólegt í nokkrar vikur kanski. Þannig að í dag er búið að fara í sund út að drullumalla og ýmislegt skemmtilegt gert. Yndislegt að hafa börnin hjá okkur það fylgir þeim svo mikið líf og fjör. Buðum svo tengdamömmu í kvöldmat, En núna er allt dottið í dúna logn og amma gamla og afi ætla að snúa tánum upp í loft úúfffffffff :)
Bestu kveðjur Kristín og Jónas.

kristín Reykjalín

22.1.2011 kl. 10:13

Yndislegt kvöld

með yndislegum frænkum í gærkvöld takk fyrir komuna og skemmtunina frænkur mínar alltaf gaman að hittast. Sendi ykkur ættingjar mínir og vinir kveðju og skemmtið ykkur vel í kvöld á þorrablótinu væri sko gaman að vera komin svo er það bara handboltinn í kvöld og senda strákunum sterka strauma kveðja

Guðrún besta frænka

22.1.2011 kl. 7:44

Frænkuboð

Hið árlega boð hjá Guðrúnu Jóns, var í gærkvöldi og skemmtum við okkur frænkur vel og nutum veitinga hjá Guðrúnu. Virkilega vel heppnað og skemmtilegt! Alltaf jafn gaman að hittast og spjalla.
Fjölbreyttur dagur framunda hjá mér sem snýst samt meira og minna um handbolta! Njótið helgarinnar

Guðrún Sigurgeirsdóttir

21.1.2011 kl. 11:39

Bóndadagur!

Góðan dag og til hamingju með daginn kæru frændur og aðrir "bóndar" á Lundarbrekkusíðunni.
Allt bærilegt að frétta hjá okkur, próf að klárast hjá unglingnum og handboltamót framundan um helgina. Veðrið í Kópavogi gott miðað við janúar, rigning og hlýtt.
Í kvöld er árlegt frænkuboð hjá Guðrúnu Jóns. og gaman að það sé orðin hefð fyrir því og hvað við höfum líka eflt okkar samskipti frænkurnar á höfuðborgarsvæðinu því eftir því sem maður eldist þá einhvernvegin finnst manni svona lagað skipta meira máli. Við fjallageitur gengum í Laugardalnum á miðvikudagskvöld "hverfinu hennar Elmu" og var það hressandi ganga í rigningunni. Við stefnum svo á fjall í fyrramálið.
Vona að þið hafið það öll sem best og góða helgi.
ÁFRAM ÍSLAND
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

19.1.2011 kl. 18:12

Hér sal gerð bragabót

og kvitta Hjá mér gengur allt sinn vanagang 6 vinnudagar eftir hjá mér þá fer ég í 20 daga orlof sem ég átti inni og 28 febr eru starfslok hjá mér en ég mæti ekki aftur til vinnu eftir 28 janúar og er ég farin að hlakka til svo á föstudaginn fæ ég frænkur mínar hér á svæðinu í árlegan frænku hitting og hlakka ég til Allt gengur vel hjá Jóni og Önnu veit ekki af þessari meðgöngu er alvef fílhraust og glöð sem bertu fer allir spenntir . Rigning og rok núna og allur snjór farinn Eigið góða daga á Þorranum sem verður ekki lengi að líða vona að allir séu hraustir og hafi það gott með kærri kveðju

Guðrún besta frænka

19.1.2011 kl. 14:21

Loksins komst ég að :-)

Nei mamma það er ekki hægt að segja að fólk standi hér í röðum til að tjá sig. Hér er ringing og rok í nótt og dag og frekar subbulegt veður. Eva Margrét er búin að liggja veik síðan á sunnudag en hún er með einhverja leiðinlega pest, þ.e. mikinn höfuðverk og svima og allt sem því fylgir. Hún og hennar bekkur höfðu palnað að vera í Reykjaskóla í Hrútafirði þessa viku og fóru þau á mánudaginn og koma á föstudaginn. Hún missir af þessu öllu blessunin. Ótrúleg óheppni, var búin að leggja á sig heilmikla vinnu við að safna peningum til að geta farið. Svona er nú bara lífið og ekki getur maður neitt gert í þessu. Vonum bara að hún fari að hressast og geti farið í skólann í næstu viku. Ég eyddi síðustu helgi með gömlum vinkonum frá Laugaskóla í sumarbústað í Grímsnesi og var það virkilega skemmtilegt og mikið spilað og hlegið. Á föstudaginn er svo Bóndadagurinn og ætlum við frænkur hér sunnanheiða að storma til Guðrúnar Jóns. og eyða saman kvöldinu, hlakka til!
Annars vona ég að janúar fari vel með ykkur öll.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

16.1.2011 kl. 16:40

Ekki stendur fólk í röðum

til að skrá í gestabók síðunnar okkar á nýju ári. Hér á norðanverðu landinu ekki heldur upplífgandi veðurfar þessar tvær vikur sem liðnar eru frá áramótum. Það styttist í þorrablót hér og verður vonandi orðið gott veður og færi þá. Bjart og sólskin í dag og frostið fór í 11°, en hvorki snjókoma eða renningsskrið og það er tilbreyting. Malla og Jói heimsóttu okkur í gær og það var gott og gaman. Ekki mikið um gestakomur og póstferðir féllu niður í fyrri viku. Það er búið að aflétta snjóflóðaviðvörunum en þær náðu ekki til okkar í Bárðardal, í svona mikilli austanátt er ekki snjósöfnun hér í fjallinu.Ég er búin að skrifa dagbók í rúmlega 50 ár. Þann 17. janúar 1961 bjuggum við í gamla húsinu og þetta kvöld komu hér saman ungmennafélagar að byrja að æfa leikrit fyrir þorrablót. Ég gaf þeim kvöldkaffi, og þetta voru: Hjörtur, Kristján, Ragga, Svana, Rikki og Mæja Páls. Geiri var hvíslari. Leikritið hét "Hattar í misgripum"
Hafið það svo öll sem best.

Hjördís Kristjánsdóttir

11.1.2011 kl. 9:42

Lengi í gang á nýju ári.....

Sælt veri fólkið og gleðilegt ár og takk fyrir það liðna.
Ekki hef ég nú verið að standa mig að skrifa inn á síðuna síðan í fyrra en af okkur er allt gott að frétta og allt gengur sinn vanagang. Alveg ótrúlegt hvað endalaust snjóar fyrir norðan og fréttir af snóflóðum og ófærð. Annars leggst nýja árið vel í mig og verður vonandi fljótt batnandi tíð með blóm í haga. Stefnan er sett á margar fjallgöngur, ferma frumburðinn og sumarfrí innanlands. Nú fer kórstarfið aftur á stað eftir gott jólafrí og í vor förum við á kóramót á Selfossi sem verður án efa mjög gaman og hlakka ég til sérstaklega að hitta líka vinkonur mínar í Kvennakór Hornafjarðar. Allt er enn við það sama með mína vinnu en mikil óvissa framundan varðandi hver heldur sinni vinnu þegar sameinuð verða embætti sem er þegar byrjað að skipuleggja.
Vona að allir hafi það sem best og tíðafarið fari að lagast
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

9.1.2011 kl. 13:01

Árið 2011 byrjaði ekki blíðlega.

Þá er kominn 9. dagur janúarmánaðar og sólin greinilega aðeins byrjuð að hækka á lofti. Það var rólegt veður um jól og áramót, jólamessa kl 14 á jóladag og sæmilega sótt.. Jólaboð á Bjarnarstöðum á annan í jólum, öll systkinin voru heima um jólin og fram yfir þetta boð.Barnaball var svo 27. jan Um áramótin vorum við sex í mat hér, auk okkar Óli , Dika og Hjördís, og Anna Sæunn kom frá Akureyri og þær systur voru hér að skjóta upp flugeldum og fóru svo til Akureyrar.Þegar skólahald hófst svo í vikunni á eftir kom norðan áhlaup og allt fór á kaf í snjó. Svona snjó höfum við ekki séð síðan 1995.Í fyrradag var allt kolófært og hver varð að sitja þar sem hann var staddur.En nú er búið að opna helstu vegi og á að heita úrkomulaust en kalt og þungbúið. Við sluppum vel því hér varð ekki rafmagnslaust nema 2-3 klst með hléum. Það áttu ýmsir viðburðir að vera hér í sveitunum í gærkvöldi en allt fellt niður vegna illviðra og ófærðar. Ég hef heyrt því fleygt að spáð sé batnandi tíð um 20. jan. Alltaf gott að heyra góða spádóma og vonandi rætist þessi . Góðar kveðjur til allra lesenda Lundarbrekkusíðu.

Hjördís Kristjánsdóttir

5.1.2011 kl. 13:51

Allt að færast í rétt horf

eftir þessa jólahátið sem bara var ein helgi Ég var að vinna milli hátíðanna og svo eyddi ég gamlárskvöldi og nýársnótt í svæsna ælupest og Árni tók við 2 dögum seinna Árið legst vel í mig og vona ég að allt fari að breytast til batnaðar á þessu landi á nyju ári er búin að senda frænkum mínum skilaboð og þær eiga að ákveða daginn fyrir árlegan frænkuhitting hér hjá mér bíð spennt eftir viðbrögðum eigið notalega daga kveðja

Guðrún besta frænka

5.1.2011 kl. 13:30

Janúar

Sæl öll!
Þá er allt að falla í fastar skorður aftur eftir jól og áramót. Ég byrjaði að vinna á mánudaginn og Eva Margrét byrjaði í skólanum á þriðjudaginn, Eiríkur byrjar svo á fimmtudaginn. Annars var jólafríið rólegt og gott og við fjölskyldan nutum samveru. Við þökkum innilega fyrir fallegar kveðjur og góðar gjafir. Árið 2011 leggst vel í mig og hef ég fulla trú á að þetta verði gott ár.
Verið nú dugleg að skrifa nokkur orð hérna á síðuna okkar.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

1.1.2011 kl. 18:35

Gleðilegt ár , 2011.

Sendum öllum ættingjum , venslafólki, vinum og öðrum gestum á Lundarbrekkusíðunni
okkar bestu óskir um gott og gæfuríkt nýtt ár og þökkum það liðna

Hjördís Kristjánsdóttir

1.1.2011 kl. 16:09

Og þá er komið árið 2011

Kærar árámótakveðjur og ósk til ykkar allra um gott ár. Malla

Marína Sig

30.12.2010 kl. 16:06

Áramót 2010-2011

Sendi ykkur öllum ættingjar og vinir bestu óskir um gleðilegt nýtt ár og þakka fyrir samskiftin hér á síðunni á árinu Þetta er búið að vera fjölbreytilegt ár eldgos eimtómt rugl á Alþingi vona að við þurfum ekki að hlusta á vælið út af öllu allt næsta ár Verum hamingjsöm þá er lífið ljúft verum glöð og brosum Gleðilegt nýtt ár

Guðrún besta frænka

30.12.2010 kl. 13:52

Áramót

Góðan dag kæra frændfólk!

Nú á þessum næstsíðasta degi ársins ætla ég að óska ykkur sem þetta lesið farsæls nýs árs og kærar þakkir fyrir árið sem er nú að kveðja, Við höfum notið jólanna hér í friði og ró. Magga tengdamamma hefur verið hér síðan á Þorláksmessu og verður framyfia áramót.. Fjölskyldan tók að sér auka Mogga-útburð í jólafríinu og erum við að klára það verkefni í fyrramálið, en það hefur gengið vel. Í dag er smá súld og 4 stiga hiti hér en spáir vel fyrir gamlárskvöldi og líkur á ágætis útsýni af Víghólnum....

???.*¨`*..¸ ¸.*¨`*.???
╔═════════ ????? ═════════╗
? ?? Knús í ykkar hús ?? ?
╚═════════ ????? ═════════╝

Guðrún Sigurgeirsdóttir

24.12.2010 kl. 17:41

Gleðileg jól!

Gleðileg jól og farsælt komandi ár, þökkum ykkur öllum gömlu árin. Njótið jóladaganna í friði og ró!

Guðrún Sigurgeirsdóttir og fjölskylda

24.12.2010 kl. 15:32

Jólakveðja úr Norðurgötu 42

Kæru ættingjar
Sendum ykkur innilegar jólaóskir og vonum að þið njótið hátíðarinnar hver með sínu snið.
Við höldum okkur við að fara í aftansöng í Akureyrarkirkju kl. 18.00 og síðan eigum við ánægjulegt kvöld hér heima borðum góðan mat og tökum upp pakkana og njótum kvöldsins í rólegheitum.

Marína Sig.

24.12.2010 kl. 0:08

Jólakveðja úr Glaðheimum

Góða kvöldið. Allir lesendur síðunnar okkar góðu fá hér með jólakveðjur úr Glaðheimunum. Skata var hér á borðum í kvöld annað árið í röð - sé mest eftir að hafa ekki "fattað" fyrr að hún væri svona góð. Ragna systir og fjölskylda komu og nutu með okkur. Jólaundirbúningur hefur allur verið á rólegu nótunum hér á bænum. Húsmóðirin hefur þjáðst síðustu 2 vikur af óhræsis magapest en er öll að koma til þessa svona síðustu 2 daga. Hef samt náð að syngja í öllum þeim messum og á öllum þeim tónleikum sem til stóð. Annars fór tengdapabbi í hjartaþræðingu í gærmorgun og var í áframhaldandi rannsóknum í dag. En er býsna hress en við vitum ekki hvort hann kemur heim á morgun. Það kemur allt í ljós. Hangikjötið dásamlega frá Ingjaldsstaðabændum var að koma upp úr pottinum og ilmurinn í íbúðinni er algjörlega dásamlegur - það er ekkert betra að ég held. Ég mæti svo í vinnuna í fyrramálið eins og alla aðra föstudaga en upp úr 10 má búast við að jólasveinn birtist hjá Rögnu systir og færi krökkunum okkar pakka og við borðum svo öll saman möndlugraut í framhaldi af því. Ég syng svo í messum bæði kl. 16:00 og 18:00 á morgun en eftir það eru það bara eintóm rólegheit og upplifelsi með einkaprinsi heimilisins.
Bestu jólakveðjur til ykkar allra.
Elma og fjölskylda

Elma

23.12.2010 kl. 23:56

Jólakveðja úr Glaðheimum

Góða kvöldið. Allir lesendur síðunnar okkar góðu fá hér með jólakveðjur úr Glaðheimunum. Skata var hér á borðum í kvöld annað árið í röð - sé mest eftir að hafa ekki "fattað" fyrr að hún væri svona góð. Ragna systir og fjölskylda komu og nutu með okkur. Jólaundirbúningur hefur allur verið á rólegu nótunum hér á bænum. Húsmóðirin hefur þjáðst síðustu 2 vikur af óhræsis magapest en er öll að koma til þessa svona síðustu 2 daga. Hef samt náð að syngja í öllum þeim messum og á öllum þeim tónleikum sem til stóð. Annars fór tengdapabbi í hjartaþræðingu í gærmorgun og var í áframhaldandi rannsóknum í dag. En er býsna hress en við vitum ekki hvort hann kemur heim á morgun. Það kemur allt í ljós. Hangikjötið dásamlega frá Ingjaldsstaðabændum var að koma upp úr pottinum og ilmurinn í íbúðinni er algjörlega dásamlegur - það er ekkert betra að ég held. Ég mæti svo í vinnuna í fyrramálið eins og alla aðra föstudaga en upp úr 10 má búast við að jólasveinn birtist hjá Rögnu systir og færi krökkunum okkar pakka og við borðum svo öll saman möndlugraut í framhaldi af því. Ég syng svo í messum bæði kl. 16:00 og 18:00 á morgun en eftir það eru það bara eintóm rólegheit og upplifelsi með einkaprinsi heimilisins.
Bestu jólakveðjur til ykkar allra.
Elma og fjölskylda

Elma

23.12.2010 kl. 21:58

Jól 2010

Sendum hér jólakveðju öllum lesendum Lundarbrekkusíðunnar. Fyrir þá sem vilja hafa hvít jól, frost ,snjó tungl og stjörnur ,þá er allt til staðar hér.Frostið fór um og yfir 20°C sl nótt , lækkaði í 10°ídag en aftur komið í 13-14°í kvöld. . Allt tilbúið til að halda jól, heimilishjálpin lauk við jólaþrifin í fyrradag. Mæðgur á Bjarnarstöðum, Friðrika og Hjördís , heimsóttu okkur í morgun og settu upp jólaskraut og líka jólatréð. Búin að sjóða hangikjötið, bæði feitt og magurt, heimareykt á beini, ilmur og bragð í besta lagi. En skatan , sem hér var keypt í fyrsta skipti í búskapnum er ósoðin enn, það bíður bara fram yfir jól , en verður gert, það urðu bara ýmsar ástæður til að það dróst. Ég fór til Bjarka Karlssonar bæklunarlæknis á Akureyri 20. des. Hann ætlar að gera tilraun með mig og ég býst ekki við kraftaverkum. Hér á að vera jólamessa kl 14 á jóladag og vonandi verður nú veður og færi til að það komist á. Vegurinn var hreinsaður mjög vel í gær og það er ekki snjó komuspá í svipinn.Gleðileg jól öll. Kærar kveðjur

Hjördís og Sigurgeir Lundarbrekku

22.12.2010 kl. 11:28

Jólakveðja 2010

Fallegt veður hér í dag en brunakuldi á morgun fellur það í minn hlut að skammta gamla fólkinu skötu verður um 45 mans í mat það verður fjör. Allt gott af mér og mínum litla fjölskyldan verður heima hjá sér á Reyðarfirði um jólin Árni að vinna frá kl 16.00 til 24.oo aðfangadagskvöld og frá kl 800.til 20.00 á jóladag svo við verðum 3 í matnum hjá mér á aðfangadagskvöld Anna og Jón verða hjá mér verður bara notalegt Sendi ykkur öllum ættingjar mínir og vinir bestu óskir um gleðileg jól og þakka samskrifin hér á síðunni á árinu og svo verðum við dugleg að láta í okkur heyra hér á nýju ári með jóla kveðju GLEÐILEG JÓL

Guðrún besta frænka

22.12.2010 kl. 9:11

Gleymum ekki jólaboðskapnum



Jólin 1891

Fullvel man ég fimmtíu ára sól,
fullvel meir en hálfrar aldrar jól.
Man það fyrst, er sviptur allri sút
sat ég barn með rauðan vasaklút.

Kertin brunnu bjart í lágum snúð,
bræður fjórir áttu ljósin prúð.
Mamma settist sjálf við okkar borð.
Sjáið, enn þá man ég hennar orð:

"Þessa hátíð gefur okkur guð,
guð, hann skapar allan lífsfögnuð,
án hans gæzku aldrei sprytti rós,
án hans náðar dæi sérhvert ljós.

Þessi ljós, sem gleðja ykkar geð,
guð hefur kveikt, svo dýrð hans gætuð séð.
Jólagleðin ljúfa lausnarans
leiðir okkur nú að jötu hans."

Síðan hóf hún heilög sagnamál,
himnesk birta skein í okkar sál.
Aldrei skyn né skilningskraftur minn
skildi betur jólaboðskapinn.

Matthías Jochumsson (1835-1920)

Guðrún Sigurgeirsdóttir

21.12.2010 kl. 8:49

Jólatónleikar, tunglmyrkvi !

Góðan daginn kæru ættingjar!

Hér eru bestu aðstæður til að fylgjast með tunglmyrkvanum og fróðlegt að sjá þetta gerast. Byrjaði um 6.30 og náði hámarki um 7.40.
Við göngukonurnar fórum á ljúfa og fallega jólatónleika kórs Áskirkju í gærkvöldi og hlýddum þar á fagran söng Elmu og félaga. Mjög fallegt og greinilega fagfólk í þessum kór.
Hér eru annars áfram rólegir dagar við jólaundirbúning og allir frískir. Njótið dagsins!!!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

20.12.2010 kl. 16:04

20. desember

í dag eru 36 ár frá snjóflóðunum miklu í Neskaupstað mér finnst eins og það hafi gerst í fyrra tíminn er svo fljótur að líða en ég verð alltaf döpur þennan dag og minnist alls þessa góða fólks og barna sem fórust þar þetta var ömurlegt annars gengur jólaundirbúningur vel og fallegt veður en alveg brunakuldi njótið síðustu daga fyrir jól kveðja

Guðrún besta frænka

19.12.2010 kl. 19:13

Jólafrí

Sælt veri fólkið!

Hér í Tunguheiðinni gengur jólaundirbúningur vel og allir eru afsappaðir og njóta þess að vera í fríi. Fengum okkur hressandi göngu um Laugaveg og Skólavörðustíg fjölskyldan í dag og var það vægast sagt ísköld ganga. 3ja gráðu frost og strekkingur. Ég vona að þið njótið þess að undirbúa jólin. því þau koma fyrr en varir og koma alveg þó ekki sé allt fægt og pússað. Njótið samveru!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

14.12.2010 kl. 19:39

MALLA.

Ég set1.tesk kardimommudropa og 1 tesk kanil og sveskjusultu innaní

Guðrún Jónsdóttir

13.12.2010 kl. 20:29

Jólaundirbúningur

Sæl kæru vinir og gaman að fylgjast með hvernig jólaundirbúningi er háttað. Hjá mér gengur allt vel. Laufabrauð, 3 tegundir af hlussukökum (hér eru aldrei bakaðar smákökur) og brún lagterta bíða þess að verða borið á borð og hverfa í áhugasama maga. Laufabrauðsdagur á Lundarbrekku afstaðinn og við systur breiddum út þær þynnst laufabrauðskökur sem ég hef nokkru sinni handleikið en fallegar og flottar voru þær þó ég segi sjálf frá. Friðrika skammtaði deigið það er hennar verk og svo minnumst við ömmu Friðriku og ömmu Marínu og Þuru og Mæju meðan við breiðum út og keppumst við að koma deiginu í nógu stóra köku svo diskurinn passi og ekki þurfi að ná í minni disk. En það gerði Þura iðulega þegar henni þótti deigið naumt skammtað.
Kristín ég vona að vel hafi gengið í prófum hjá þér.
Elma, Hanna og Guðrún munið að skipuleggja eina sameiginlega göngu hér fyrir norðan á nýju ári!
Guðrún Frænka setur þú kardimommur í hálfmánana?

Njótið aðventunnar og varist óþarfa stress. Kær kveðja í bæina Malla

Marína Sig

13.12.2010 kl. 10:49

Kveðja úr Álfaheiði

Góðan dag
Nú er jólatónleikatörn Léttsveitarinnar afstaðin og hægt að snúa sér að verkefnum heima fyrir. Allt gengur það nú vel en ég náði mér í einhverja árans magapest og var léleg í gær en er miklu betri í dag og mætt til vinnu. Styttist í jólafrí barnanna og jólasveinarnir að koma smá saman til byggða :)
Eftir vinnu í dag ætlum við að gera saman laufabrauðið eins og undanfarin ár við og Guðrún og fjölskylda ásamt Sigga bróður.
Eins og fram hefur komið fórum við í frábæra Esjugöngu á laugardag í blíðskapar veðri svo stefna göngukonur að því að gera sér glaðan dag á fimmtudag eftir vinnu og fara í Laugavegsgöngu, kíkja á menninguna og fá okkur snarl og drykk saman, hlakka til að fagna góðu gönguári með stelpunum.
Njótið aðventunnar
kveðja Hanna

Jóhanna Marína

12.12.2010 kl. 13:12

Kveðja úr Lundarbrekku.

Ég sendi ykkur nokkra punkta.11. desember , er dagur minninga. Það er fæðingardagur Gunnars Hinriks Yngvasonar og Ingigerðar sem fæddist þann dag 1951 hér heima á Lundarbrekku og var á sínum tíma barnsfæðing sem vakti mikið umtal og hneykslun.Hann ólst upp í Svíþjóð , á konu og þrjú börn, var félagsráðgjafi , en var orðinn þreyttur á því og ekur held ég leigubíl og býr í Stokkhólmi. Þá vil ég minnast hennar Bryndísar sem fæddist þennan dag 1964 og dó aðein rúmlega þritug frá manni og tveimur ungum sonum.Blessuð sé minning hennar.Blessuð sé líka minning Kristófers Kristjánssonar, föður Kristófers tengdasonar okkar, sem fæddur var 11. des. 1925 á Brekkuvelli á Barðaströnd og lést aðeins 63 ára 1989.
Ég er búin að fara til Akureyrar og hitta bæklunarlækni sem gaf mér tíma 20. des. til að sprauta einhverju "efalaust sterum"í eða við neðstu hryggjarliði. Það eru þrengingar að mænunni, sem hann fullyrti þó að myndu ekki valda lömun.Væri konan ung og spræk sagðist hann sem skurðlæknir hafa bara láti vaða með hnífinn í þetta, en það eru þrír möguleikar. Að fá mikinn bata. Að ekkert gerist og að það versni. En sprauturnar gætu ef vel tekst til tekið frá mér verkina sem gera mér allar hreyfingar svo erfiðar. Þess vegna best að byrja á þeim.Við fórum á Jólahlaðborð í Kiðagili í gærkvöldi. Það var góður matur. Leppalúði og Grýla á staðnum og fín söngatriði. Það var bara of fátt fólk. Heilu hóparnir hættu við. Sumir farnir til útlanda. Svo er samkeppni milli jólahlaðborða á svæðinu mikil, auk "Frostrósa" sem voru með tónleika á Akureyri og "aðventu" þetta og "aðventu" hitt alls staðar.Allir ætla að næla sér í pening, líka á guðræknis forsendum.Svona er þetta þótt allt hafi átt að breytast við hrunið.Laufabrauðsdagur hjá Sigrúnu og Jónas í gær, skruppum í kaffi og hittum fólk. Síðan á að vera laufabrauðsdagur hér hjá okkur á morgun, Malla og Dika koma og framkvæma gjörninginn,alltaf gaman að hafa laufabrauðsdag. Kærar kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

11.12.2010 kl. 19:25

11 desember

Langar að minnast hennar Bryndís Kristjánsdóttur sem hefði orðið 46 ára í dag en hún lést lang fyrir aldur fram þann 2. desember 1996, blessuð sé minning hennar. Ég er heppin og á góðar minningar um mikinn söng með henni sem barn á Lundarbrekku. Ég minnist líka tengdaföður míns í dag sem hefði orðið 85 ára þennan dag en hann lést 1989 63 ára að aldri úr krabbameini. Við Kiddi ásamt þeim Hönnu og Palla gengum í dag á Esjuna til styrktar Ljósinu og tókum þátt í "vonandi" heimsmeti Þorsteins Jakobssonar sem hefur ná því ótrúlega markmið á ganga á 365 tinda á árinu. Frábær dagur og notalegt kvöld framundan. Njótið Aðventunnar áfram.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

11.12.2010 kl. 17:41

Óvænt en skemmtileg heimsókn

í dag Ríkarður frændi minn á Sigurðarstöðum kom í heimsókn og mikið fannst mér vænt um það Sagðist vera gangandi jólakort þetta árið veður milt smá rigning annað slagið aðeins kaldara en verið hefur ekkert að því Jólaundirbúningur í fullum gangi hjá öllum en ég fer nú ósköp rólega í þeim efnum en allt verður klárt fyrir jól eigið góða daga kæra frændfólk og vinir kveðja

Guðrún besta frænka

7.12.2010 kl. 23:15

Aðventan

Góða kvöldið
Allt gott að frétta úr Glaðheimum, nóg að gera. Messur, aðventusamkomur, jólatónleikar og ýmislegt að sýsla. Piparkökuskreytingar voru í leikskólanum um síðustu helgi og ég snaraði mér í að baka piparkökur sem við mættum með í leikskólann og Atli tilkynnti svo hátt og skýrt að við ættum svo helling af brenndum kökum heima. Eru ekki börnin yndisleg :-) Ég og Atli fórum á tónleika með Léttsveit Reykjavíkur í kvöld þar sem Hanna er að syngja og skemmtum okkur mjög vel. Það er of langt síðan ég hef komist í fjallgöngu með þeim frænkum mínum en vonandi stendur það til bóta sem allra fyrst. Það er alveg sama hvað maður ákveður að gera lítið í desember að alltaf er ég komin á kaf í alls konar verkefni. Framundan eru tónleikar hjá Krúttakórnum sem Atli er í, þeir eru á fimmtudaginn. Á föstudagskvöld er árlegt jólaboð hér heima hjá okkur þar sem hittumst nokkrir vinir og gerum okkur glaðan dag. Höfum svona sameiginlegt hlaðborð þar sem allir mæta með eitthvað og síðustu ár hefur þetta verið alveg hreint frábærlega skemmtilegt. Á laugardagskvöld er svo jólahlaðborð með vinnunni minni og á sunnudag ætlum við að sjá barnaleiksýninguna Ævintýrið um Augastein og ég þarf einnig að mæta á eina kóræfingu þann dag. Þannig að helgin verður að öllum líkindum fljót að líða. Vona að þið njótið aðventunnar kæru ættingjar.
Bestu aðventukveðjur úr Glaðheimum.
Elma

Elma

5.12.2010 kl. 22:22

Láta vita af okkur :)

Af okkur er allt gott að frétta,fjölskyldan ennþá bara sallaróleg yfir þessum jólaundyrbúningi,jólagardínur og smá jólaljós komin upp og jónas gerði 2 smákökusortir síðustu helgi. En svo hefur tengdamamma verið svo dugleg að baka og fært okkur reglulega jólabrauð. Aldís er á fullu á skautaæfingum og svo æfir hún með barnakór Akureyrarkirkju og síðustu helgar hafa foreldrarnir verið duglegir að sækja messur og hlusta á heimasætuna syngja. En pabbinn hélt að hann væri búinn með kirkjusóknir þar til á gamalsaldri (sótti þær víst stíft að honum fannst á yngri árum) í dag var Aldís að sýngja í Laufási og við mættum þangað og áttum ljúfa stund þar. Síðustu dagar hafa farið mikið í prófalestur hjá mér en næsta vika er ansi strembin eða 4 próf í röð frá þriðjud-föstudags. En þann 10 des get ég farið að undyrbúa jólin. Best að klára eitt verkefni í einu :)
Af Aðalsteini og siggu er allt gott að frétta sigga unir sér vel í vinnu hjá Alþingi og Alli fékk inngöngu í Iðnskólann eftir áramótinn. Þau koma norður um jólin og er ein lítil dama hér á bæ alveg rosalega spennt að fá bróður sinn heim.
Læt þetta duga í bili hafið öll góða daga og njótið aðventunnar.
ps. Ætla nota tækifærið og óska Sigríði Svönu tengdadóttur minni til hamingju með 27 ára afmælið í dag.

kv. Kristín.

kristín Reykjalín

5.12.2010 kl. 9:15

Hálfmána bakstur í dag

og þá er jólabakstri lokið hjá mér þetta árið yndislegt veður svolítið kalt en það er allt í lagi jólaljósum fjölgar hér í borginni og allt að verða fallegt.Allt gott af mér og mínum vinna alveg fram að jólum og Árni verður að vinna á aðfangadagskvöld og allan jóladag en jólin líða og Anna og Nonni borða með mér jólamatinn á aðfangaagskvöld svo þetta er allt í góðum málum flottar finnst mér körfurnar frá Kiðagili vonandi seljast þær vel eigið góðan og skemmtilegan dag kveðja

Guðrún besta frænka

2.12.2010 kl. 16:08

Döðlunammi

Döðlunammi

500 gr döðlur
150 gr púðursykur
250 gr smjör
5 bollar rice crispies
________________________________________
Soðið í potti þar til döðlur eru mjúkar, rice crispies sett út í síðast.
Smurt út á plötu með pappír, látið kólna.
Brætt súkkulaði 250-300 gr smurt yfir og látið kólna.
Skorið í tígla.


Datt í hug að setja þetta hér inn svona í tilefni af undirbúningi jólanna, dásalega gott nammi og einfalt að búa til.

Annars allt gott hér á bæ!
Njótið Aðvetnunnar.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

1.12.2010 kl. 16:24

1. desember.

Heil og sæl öll.
Kominn desember , vetrartíð hér en ekki hefur snjóað núna og vegurinn hreinsaður í dag, frekar skrítið veður , bjart í lofti og hiti fór í 5° ,aðeins vindgustur af vestri en svo kyrrir og kólnar á milli. Við fórum til Akureyrar í gær, ég fór í sjónmælingu hjá augnlækni, átti að fá lesgleraugu og bjóst við að þau kostuðu einhverja tugi þúsunda. En fékk svo resept til að kaupa mér gleraugu í næsta apoteki sem kostuðu kr. 1400. Við fórum að kjósa til stjórnlagaþings á laugardaginn, heldur fannst mér uppskeran rýr fyrir landsbyggðina ég fékk ekki nema tvo held ég inn og enga af mínum konum. Sé alveg hvernig þetta verður ef landið verður eitt kjördæmi.

Hjördís Kristjánsdóttir.

27.11.2010 kl. 9:31

Aðventan að ganga í garð

fallegt og stillt veður og jólaljósum fjölgar hér ég ætla að halda áfram að baka smákökurnar í dag og svo fer ég að njóta aðventunnat nóg að gera í vinnunni en mikið er ég farin að hlakka til að febrúar líði og þá verð ég frjáls eins og fuglinn seja sumir Annars er allt gott héðan frá mér og mínum eigið góða og gleðilega daga gott fólk kveðja og kvitt

Guðrún besta frænka

27.11.2010 kl. 8:22

27. nóvember

Góðan daginn!
Hér er 9 stiga frost kl. 6.00 í morgun þegar við fórum að bera út Moggann og still og stjörnubjart veður. Margrét tengdamóðir mín er 80 ára í dag og ætlum við að halda uppá það með henni í dag og njóta samveru þegar líða tekur á daginn. Eva Margrét er að keppa með eldra árinu í handbolta bæði í dag og á morgun en kemst samt í afmælið í dag :-)..... á morgun ætlum við svo fjölsyldan að finna einhver jólaljós og koma upp. Hafið það gott.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

24.11.2010 kl. 12:01

Fallegur miðvikudagur

Sælt veri fólkið!
Allt gott að frétta úr Álfaheiðinni, allir frískir og nóg að starfa. Veðurblíða dag eftir dag og dásamleg birta og sólarlag kvöld eftir kvöld.
Ari minn orðinn algjör lestrarhestur og les og les sér til gamans, ágætt að skipta út fyrir mikið sjónvarps áhorf og tölvuleiki ;)
Um næstu helgi förum við með mínum vinnufélögum á hótel Hengil á jólahlaðborð og gistingu og má nú eiginlega segja að sú helgi sé orðin algjörlega fullbókuð í alla staði.
Allt á síðustu metrunum í undirbúningi fyrir jólatónleikana og fullt af fjöri allsstaðar!
Við frænkur og fylgdarlið gefum okkur samt tíma i göngur og ætlum að skella okkur í góða innanbæjar göngu seinni partin í dag, en það gefur manni nefnilega svo mikla orku í allt hitt sem þarf að gera.
Sendi ykkur öllum bestu óskir um góða daga og gott gengi
kveðjur og kvitt
Hanna

Jóhanna Marína

22.11.2010 kl. 13:38

Nóvember

Góðan daginn!
Lítið að frétta af mér og mínum. Hósti og hálssærindi að pirra mig þó svo ég sé ekki veik. Annars gengur þetta allt sinn vanagang. Eva Margrét fékk gullverðlaun á handboltamóti um helgina og var það skemmtilegt. Um næstu helgi er tengdamamma 80 ára og stendur til að halda veislu af því tilefni á Akranesi. Ég vona að þið hafið það sem best og nú er farið að styttast í Aðventuna og eins gott að fara að kaupa greni og búa til krans! Hafið góða daga!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

21.11.2010 kl. 10:16

Sunnudagur á vetri.

Hægviðri og léttskýjað, komið nokkurra stiga frost, en þar til í gærkvöldi var 1-3°hiti og snjórinn seig mikið.Kirkjuskóli í kirkjunni í gær, flest börn komu sem til voru og aðstandendur, enda búið að moka heimreiðina og hér í kringum hús svo aðgengi var gott. Nú er áreiðanlega glóandi hálka svo ég hætti mér ekki út fyrir hússins dyr. Útsýnið úr gluggunum er svo sem nógu fallegt, fannhvít jörð, gylltar skýjarendur á nær heiðríkum himni í suðaustrinu en sólin er ekki komin upp.

Hjördís Kristjánsdóttir.

18.11.2010 kl. 16:49

Fyrirsögnin átti að vera Menningarkvöld

Guðrún besta frænka

18.11.2010 kl. 16:48

Sælt veri fólkið hér er allt í rólegheitunum í kvöld ætlum við Anna tangdadóttir að fara á menningarkvöld hjá Norðfirðingafélaginu og hlusta á lög eftir Inga T Lárusson þemað er störf hans og ævi og lögin hans sungin verður örugglega gaman búin að baka kúmenkringlurnar fyrir jólin svo þetta er allt að smella í jólagírinn hafið það gott kvitt

Guðrún besta frænka

18.11.2010 kl. 9:40

Dimmt og hlýtt

Góðan dag
Í dag rignir í Kópavogi og þess vegna ennþá dimmra yfir. Særún mín fór í morgun í Vatnaskóg með fermingarbörnunum og kemur aftur á morgun. Ari fótboltagaur fer að keppa seinnipartin svo það er alltaf nóg að starfa. Frekar rólegt yfir í minni vinnu þennan morgun. Um komandi helgi er svo Dekur og djammdagur kórsins á laugardag en þá mæta konur og gleðjast saman syngja og selja afurðir sínar og bjóða öðrum að koma og selja sínar vörur, semsagt svona fjáröflunardagur kórsins sem er alltaf mjög gaman. Nú eru kóræfingar tvisvar í viku og allt að smella saman fyrir jólatónleika sem verða þrennir að þessu sinni 7,8 og 9 des. Eftir þá törn fer maður að huga að jólaundirbúningi heima fyrir.
Við kellur höldum líka áfram að ganga saman og fórum í Elliðaárdalinn í gær eftir vinnu og gengum rösklega í hálkunni. Stefnum svo á fjall í bítið á laugardag.
Bestu kveðjur og kvitt
Hanna

Jóhanna Marína

14.11.2010 kl. 14:30

Kveðja úr Danaveldi

Verð að viðurkenna að það er orðið mjög langt síðan ég hef litið hingað inn.
Frá Danmörku er allt gott að frétta... enginn er nú snjórinn en kuldinn og rigningin hefur ekki látið sig vanta. Fátt meira hressandi heldur en að byrja daginn á því að hjóla í vinnuna í rigningu, kulda og roki :) En maður mætir alla vega glaðvakandi í vinnuna.
Styttist óðum í jólin og heimkomu mína... verð að viðurkenna að ég er farin að bíða eftir því að komast í faðm fjölskyldu og vina.

Kær kveðja
Sibba

Sibba

14.11.2010 kl. 9:32

Góð helgi

Góðan daginn! Já þess helgi er búin að vera yndisleg, byrjaði með fimmtugsafmæli í Njarðvík á föstudaginn, svo fjallganga í gærmorgun og svo tiltekt hér heimavið, eldaði svo yndælis-lambasteik í gærkvöldi! Já við bræðradætur sem erum búsettar hér á þessu horni ætlum að hittast hjá Elmu í dag með börnin okkar og njóta samveru. Hlakka til því það er ekki leiðinlegur félagsskapur get ég sagt ykkur!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

14.11.2010 kl. 0:06

Kerti

Hér er kveikt á kertum í tilefni dagsins. Annars allt gott að frétta úr Glaðheimum - jólin greinilega farin að nálgast miðað við auglysingar verslananna á höfuðborgarsvæðinu. Á morgun er frænknahittingur hér í Glaðheimum - verður að öllum líkindum gaman :-) Kveðjur og kvitt Elma

Elma

13.11.2010 kl. 22:42

Góðar kveðjur

Gott kvöld allt gott að frétta hjá okkur.Allt gengur sinn vanagang í leik og starfi. Fótbolta og handboltaæfingar og HK fjáröflunarstörf sjá manni fyrir verkefnum utan venjulegs vinnutíma á sýslu kontornum Búin að vera heima við í dag og frekar löt bara. Eldaði samt gott læri í kvöld og bauð Sigga og Mikael að borða með okkur. Á morgun verður frænkuboð í Glaðheimunum og það verður án efa mikið fjör :)
Enginn jólagír kominn á þetta heimili nema byrjuð að syngja jólalögin með kórnum.
Blessuð sé minning Hjartar frænda.
Bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna M. Baldursdóttir

13.11.2010 kl. 7:08

13. nóvember dagur minningarinnar

Í dag minnist ég elskulega frænda míns sem fór langt um aldur fram hann hefði átt afmæli í dag.Þennan dag verð ég alltaf döpur og í kvöld kveiki ég á Stóruvalla kerti honum til heiðurs margar góðar minningar fara um minn haus alltaf á þessum degi Blessuð sé minning þín elsku Hjörtur frændi

Guðrún besta frænka

12.11.2010 kl. 19:58

Halló

ég ætla nú bara að mótmæla því að ég hafi verið löt að kvitta hér minnst einu sinni í viku undanfarið Allt gott héðan jólin nálgast og ég er að búa mig undir að fara að baka kúmenkringlurnar sem eru svo vinsælar hjá mínu fólki og vinum verð að vinna alveg fram á aðfangadag og einnig milli hátíða síðasti vinnudagur á þessu ári hjá mér 30 desember og þá eru bara 2 mánuðir í starfslok njótið lífsins brosið og verið glöð kvítt

Guðrún frænka

12.11.2010 kl. 15:28

"Lundar" ?

Það voru Lundarbrekkubændur kallaðir af nágrönnum í barnæsku minni. Mér datt í hug að það gæti verið samheiti okkar aðstandenda þessarar síðu. Þá mætti segja að Lundar væru latir núna að kvitta.
Til gamans má svo geta þess að fleiri bændur höfðu uppnefni af bæjum sínum."Björnungar", kenndir við Bjarnarstaði, "Kerjungar" Víðikersbændur,
" Kotar" í Svartárkoti, "Mýrarmenn" á Mýri," Hallar " á Halldórsstöðum og "Stórvellingar" á Stóruvöllum. Koma svo og kvitta.

Hjördís Kristjánsdóttir

9.11.2010 kl. 11:06

Birtutíminn styttist.

Það er sólskin í dag og 8°frost. Allt skjannahvítt, en það er seint sem birtir og strax farið að skyggja upp úr hádegi þrátt fyrir snjóinn. Hér í kirkjunni var írsk léttmessa á sunnudagskvöldið . Ljúf og notaleg stund. Prestur okkar, séra Bolli Pétur leiddi athöfnina, las ritningargreinar, flutti hugvekju. Fólk frá Akureyri sá um tónlistina , Hermann Arason með gítar, Karl með mandólín, Halla söng og þau öll og kirkjugestir fengu líka að taka þátt. 20 manns í kirkju , hefðu mátt vera fleiri, en prósentvís við fjölda sóknarfólks kannski ekki svo slæmt.Heimreiðin hér var mokuð og aðgengi að öllum húsum sl. fimmtudag og það hefur ekki spillst síðan. Við skruppum til Húsavíkur á föstudag og í Reykjadal í gær, þá fór ég í sjúkranudd eftir um 4 vikna uppihald. Er satt að segja eftir mig eftir það , en það skilar sér vonandi í bættri líðan þegar líður á vikuna. Geiri sinnir reykhúsinu þessa dagana , en það hefur ekki verið hagstætt veðurfar, hægviðri,svalt og blautt, en kjörveður er hlýindi og hæfilegur blástur. Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

6.11.2010 kl. 20:38

Snjór og fallegt veður

það er svolítið bjartara yfir þegar snjórinn er . Stóð í því í gær að útbúa kaffihlaðborð í vinnunni höfum það einu sinni í mánuði á eftir bingó spili gamla fólksins á föstudögum flott borð og allir ánægðir og hrósuðu okkur eldhús skvísunum eins og þau kalla okkur alveg upp í hárstert hvað þetta væri flott og gott og auðvitað urðum við voða montnar eftir þessi hrós. Mæðgurnar á Reyðarfirði fóru aftur heim á miðvikudag og svo við erum orðin ein gömlu skörin en okkur líður báðum vel og þá er allt í lagi gott að heyra að allt gengur vel hjá þér Dísa mín eftir augnaðgerðina nú segi ég kvitt og lifið heil

Guðrún besta frænka

6.11.2010 kl. 7:16

Líka vetur hér.....

Góðan dag!
Hér á þessu landshorni er líka kominn vetur og kættust börnin heldur betur hér í grendinni í gær og voru úti að renna sér lengi dags og Eva Margrét þar á meðal. Það birtir nú bara verulega yfir öllu og mér líkar þetta síður en svo illa þegar kominn er þessi árstími. Þykir þetta nú mun betar en rokið, rigningin og myrkrið þó svo við höfum nú ekki haft neitt mikið af því undanfarið. Við gönguskvísurnar ætlum að skella okkur á Reykjafellið núna á eftir svona til að hlaða batteríin fyrir laugardaginn og komandi viku. En þetta eru svo mikil forréttindi að geta gengið svona og notið útiverunnar og ekki síður félagsskapar hvor annarrar. Ég vona að þið eigið öll góðan nóvembermánuð hver á sínum stað og takk kærlega fyrir skrifin hér á síðuna.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

4.11.2010 kl. 9:27

Vetur genginn í garð.

Það urðu heldur harkaleg umskipti í veðurfarinu hér rétt fyrir mánaðarmótin ,eða um veturnætur samkvæmt gamla tímatalinu. Nú er snjóþekja yfir öllu og búið að snjóa meira og minna alla síðustu viku. Búið að moka Bárðardalinn með hefli báðum megin einu sinni og svo hafa mokstursbílar haldið í horfinu. Við erum búin með kjötvinnslu þetta árið, Óli og Dika komu í gærkvöldi og settu upp í sperðlana fyrir okkur , en við höfðum deigið tilbúið. Svo er Geiri búinn að ræsa fjórhjólið og er að fara með sperðlana og fáeina magála og hengja upp í reykhúsið og þá tekur við nærri mánaðar törn að halda reyk í kofanum. Óli kom á stórum traktor í gær og tróð slóð fyrir fjórhjólið neðan frá vegi og upp í reykhús, sunnan við læk. Lækurinn stíflaðist um tíma, gilið hálffylltist af vatni og krapi, en hefur líklega náð sér fram núna. Ég á að panta mér tíma í sjónmælingu á Akureyri í kringum 20. nóv. Ég er bara mjög góð í augunum , en vantar lesgleraugu, á engin sem passa almennilega. Segjum þetta gott núna Kveðjur .

Hjördís Kristjánsdóttir

2.11.2010 kl. 22:06

Allt gott að frétta

Sæl öll kæra frændfólk.
Allt gott af mínu fólki og dagarnir fljúga áfram. Jói fer á fimmtudagskvöld ásamt verk og listgreina kennurum úr Lundarskóla í náms og kynnisferð til Reykjavíkur og Garðabæjar. Ég fer svo á námskeið um raunfærnimat þann 15. og 16. nóv. til Reykjavíkur. Við vorum á ferð og flugi í október fórum meðal annars til Riga í Lettlandi í helgarferð. Það var mjög fróðlegt og skemmtilegt og best var samt að koma heim.
Hér vöknuðum við allt í einu eftir fyrsta vetrardag og það var kominn vetur eftir einstaklega hlýtt og gott haust.
Strákarnir allir á fullu í sínu námi og Hjörvar í vinnu með námi svo það er nóg að gera hjá honum.
Eigið góða daga. Malla

Marína Sigurgeirsd.

29.10.2010 kl. 16:18

Enn einn föstudagurinn runnin upp

og þær mæðgur frá Reyðarfirði komu í gær og verða fram á miðvikudag og er það gaman fallegt veður hér en spáin ljót fyrir norður og austurlandið hvers eiga þessir landsfjórðungar að gjalda ekkert sumar og haust og vetur bara gengin í garð. allt í góðu hjá mínu fólki og okkur gömlu bara að kvitta kærleikskveðjur og munum að brosa og vera glöð

Guðrún besta frænka

29.10.2010 kl. 14:31

Fallegur dagur

Góðan dag
Allt gott að frétta úr Kópavoginum, alveg að koma helgarfrí sem er ansi notalegt bara. Börnin mín eru í vetrarfríi og njóta þess að leika við vinina allan daginn. Veðrið mjög svo fallegt en eitthvað er spáin hryssingsleg fyrir norður og austurland alla vega. Við fjallafrænkur og svilkona stefnum á gott fjall í fyrramálið og hlakka ég til að takast á við það verkefni.
Vona að allir hafi það sem best.
Bestu kveðjur og góða helgi
Hanna

Jóhanna Marína

29.10.2010 kl. 12:45

Heima er best
Komin heim og byrjuð að dunda í heimilisverkum. Alhvít jörð og birtan sker í augu og svo ég er aftur komin með sólgleraugun. Kjötiðnaðarneminn í fjölskyldunni ók með mig hér austur í gærkvöldi til að fá að sjá hvernig hangikjöt er saltað með "gömlu aðferðinni" þær eru að vísu ekki allar eins, en það er ekki sett í pækil. Hann er áhugasamur að fá að fræðast um hvernig þetta var, en þessi kynslóð veit ekki hvernig lífið var áður en PLASTIÐ var fundið upp.Bestu kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir

26.10.2010 kl. 21:42

Bústaður

Góða kvöldið
Við systur komnar úr bústað í Miðhúsaskógi þar sem við erum búnar að vera í góðu yfirlæti síðan á fimmtudagskvöld en krakkarnir hennar voru í vetrarfríi og við notuðum tækifærið til að fara út úr bænum og hafa það svona ljómandi huggulegt í bústað. Nú er það bara vinnan og hversdagurinn ...
kveðja og kvitt Elma

Elma

26.10.2010 kl. 21:16

RJÚPAN

Svífur um haustið og senn kemur föl
í sveitinni bændurnir leggja í öl.
Lóan er horfin í heitari lönd
hamast nú brimið við klettótta strönd.

Rjúpan í hópum á heiðunum er
hún er víst farin að bíða eftir mér.
Ég hræðist ei frostið né hríðanna bál
hlakkar mín óspillta veiðimannssál.

Ég tók mína byssu, brauð mitt og ket
og bunka að skotum í vasana lét,
ég aflaði frétta um fjallanna slóð
og fimmtánda október tilbúinn stóð.

Ég keikur og brattur á Gagnheiði gekk
og geysilegt súrefni í lungun ég fékk.
Ég fann hvernig líkaminn lifnaði við
og léttur ég skokkaði klettanna rið.

Ég sá þarna rjúpu sem kúrði við klett
og komst í skotfæri sýndist mér létt.
Ég flýtti mér þangað og lagðist í laut
svo lyfti ég byssunni, miðaði og skaut!

Í eyrunum greindi ég ógnþrunginn hvell
og eftir það fékk ég á höfuðið skell.
Ég leið þarna útaf og man ekki meir
en munnurinn fullur af púðri og leir.

Ég rankaði við mér er rökkvaði um geim
og reyndi að skríða í áttina heim.
Þvíumlíkt aldrei ég upplifað hef
augu mín sokkin og stokkbólgið nef.

Byssan í móanum mölbrotin lá
en myrkrið og élið var brestandi á.
Ég rýndi um svæðið með blóðhlaupna brá
En bölvaða rjúpuna hvergi ég sá.

(Hákon Aðalsteinsson)

Guðrún Sigurgeirsdóttir

26.10.2010 kl. 9:09

Bjartur morgunn.

Stillt og gott veður hér á Reykjavíkursvæðinu í morgun. Kuldi og snjókoma a.m.k. öðru hvoru fyrir norðan og kominn vetur þar eftir alla blíðuna. Ég fór í gær í aðgerð með seinna augað, það gekk vel. Búin að kaupa flugfar á fimmtudag norður og hugsa gott til að fara að komast heim eftir þessa fjarveru Ekki hefði samt getað farið betur um mig, þjónusta eins og á hóteli, akstur og um hyggja sem ekki fæst fyrir neina peninga, hjartans þakkir fólkið mitt. Er bara í hvíld og afslöppun. Bestu kveðjur,

Hjördís Kristjánsdóttir

25.10.2010 kl. 19:21

25.oktober

Kvennafrí við á mínum vinnustað lögðum niður vinnu kl 14.oo og skunduðum í bæinn þótt skítaveður hafi verið ég kom heim kl 16.00 skjálfandi úr kulda og hundblaut og er rétt að ná í mig hita aftur núna en þetta var gaman og þátttakan mikil sá í sjónvarpinu áðan að Ása mætti á Akureyri flott kona hún Ása annars allt gott að frétta lifið heil Sé að frænkur mínar eru aðeins að ranka við sér með síðuna og það er vel kveðja

Guðrún besta frænka

25.10.2010 kl. 10:17

Kvennafrí....

Góðan dag og gleðilegan baráttudag kvenna. Hér á mínum mikla kvennavinnustað leggjum við niður störf 14:25 í dag og sumar skunda í bæinn. Spáin ekki alveg nógu góð því það á að hvessa þegar líður á daginn en það er nú strax ansi kalt núna þó ekki sé komið rok!
Um helgina var mjög fallegt veður sólskin en kalt, semsagt upplagt fjallgönguveður en ekki fórum við nú samt á fjall núna. Ari var að keppa í handbolta á laugardagsmorgun og við Særún vorum svo í vörutalningu í Krónunni á laugardagskvöld og fram á nótt en það er fjáröflun hjá þeim í handboltanum.
Endilega verið dugleg að kvitta fyrir heimsóknir á Lundarbrekkusíðuna kæra frændfólk.
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

24.10.2010 kl. 10:00

Október

Sæl öll!
Fallegur og bjartur morgunn hér í Kópavogi. Góðir dagar hér með mömmu en hún er núna búin að vera hjá okkur í viku og fer á morgun í aðgerð með seinna augað. Ég er í vetrarfríi í fram á þriðjudag. Lítið annars að frétta héðan, lífið gengur sinn vanagang.
Njótið augnabliksins!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

23.10.2010 kl. 11:55

Fyrsti vetrardagur.

Gleðilegan vetur og þakka fyrir sumarið. Það var reyndar mun algengara finnst mér að menn óskuðu gleðilegs smmars og þökkuðu fyrir veturinn. En ég held að sé jafnrík ástæða að óska góðrar og gleðilegrar framtíðar og þakka það sem liðið er, hver sem árstíðin er.Ég er búin að vera hér í Kópavogi í tæpa viku, kom hér sunnudagskvöldið 17. október. Kl. 12 á hádegi mánud. 18. okt var ég mætt til að láta fjarlægja ský af hægra auga, sem þýðir að skipt var um augastein.
Aðgerðin gekk mjög vel og sjónin á auganu er stórum betri. Hitt augað verður svo tekið eins nk. mánudag og gangi það jafn vel ætti ég að komast heim á fimmtudag- föstudag í næstu viku. Heimaslátrun hjá okkur var lokið sl miðvikudag og kannski næ ég að gera eitthvað þótt í smáu sé þegar ég kem heim. Annars fáum við margar hjálparhendur til að aðstoða okkur. Geiri fór í heyrnarmælingu í gær á Akureyri og kom heim með heyrnartæki. Hann viðurkenndi að hann heyrði betur og vona ég að þetta verði bara þáttaskil fyrir hann. Við sendum afmælisbörnum undanfarinna daga bestu kveðjur og hamingjuóskir.

Hjördís Kristjánsdóttir

23.10.2010 kl. 10:08

Já já góðan daginn

Mikið finnst mér sorglegt að sjá hvað facebook hefur náð sterkum böndum hjá ykkur öll tjáskipti fara þar fram en þessi góða síða okkar er eiginlega gleymd skömm ef svo er Takið ykkur nú saman í andlitinu og verið virkari hér gaman að fá fréttir af frændfólkinu annars staðar en á fésinu Fallegur dagur hér í dag og ég er að fara að hitta gönguhópinn minn og við ætlum að borða saman í hádeginu og skemmta okkur við sögur frá hinum hvað hefur á daga þeirra drifið síðan síðast alltaf gaman að hittast. bið ykkur svo vel að lifa njóta lífsins og vera glöð kveðja

Guðrún besta frænka

20.10.2010 kl. 22:36

Man of lítið

Man of lítið eftir ömmu Marínu en þó aðeins, man eftir henni í dyrunum á Lundarbrekku með hvíta svuntu þegar við komum í heimsókn og einnig í eltingarleik við okkur heima á Ingjaldsstöðum - en finnst gaman í seinni tíð að hlusta á sögur þeirra Guðrúnar og Hönnu í fjallgöngum okkar frá æskudögum þeirra á Lundarbrekku.
Elma

Elma

20.10.2010 kl. 11:15

Afmælisdagur ömmu

Gott að ylja sér við minningarnar þegar ég fór oft með ömmu í sumaklúbb og hjálpaði henni líka að baka. Skattholið mitt á ég enn og lítur það vel út miðar við aldur en ég fékk það í 10 ára afmælisgjöf frá afa og ömmu á Lundarbrekku og man svo vel þegar það stóð inni á gangi þegar ég vaknaði um morguninn og einnig er mér minnisstætt þegar amma Marína bjó til kakóið í stórum potti í sama afmæli, og var það síðasti dagurinn sem hún var heima.
Blessuð sé minning ömmu Marínu.

Jóhanna Marína

20.10.2010 kl. 7:03

Í dag minnist ég

elskulegrar frænku minnar hennar Marínu Baldursdóttur með virðingu og þökk Kalt í dag en falleft veur og grátt í Esjunni. Föndurdagurinn í dag og bara gaman bara að kvitta kveðja

Guðrún besta frænka

18.10.2010 kl. 9:30

Heima er best

Sælt veri fólkið, ekki hef ég nú staðið mig vel að skrifa hér inn nýlega en nóg hefur verið að gera hjá mer. Afmælisbörnum undanfarna daga óska ég hér með til hamingju með afmælin og óska þeim alls hins besta. Það sem af er október hefur verið ofhlaðið af verkefnum hjá mér og fyrstu dagar mánaðarins snérust mikið um kóræfingar fyrir utanlandsferð ásamt venjulegum vinnudegi hjá Sýsla. Föstudagurinn 8. október var ofhlaðinn verkefnum, "tuskudagur" í vinnunni með bleiku þema, en þá þrífa allir vel í kringum sig (það sem skúringarkonan tekur ekki). Söngur við jarðaför kórsystur minnar og svo aftur í vinnuna og gleði með vinnufélögunum eftir hreingerningarnar. Daginn eftir var það svo Krakow og átti ég þar góða daga með skemmtilegu fólki. Naut þess svo vel að vera heima núna um helgina og slaka á, fyrsta helgin í langan tíma sem engin sérstök dagskrá var. Særún mín fór til Vestmannaeyja í keppnisferð með HK handboltakrökkunum og kom heim í gær alveg búin á því, hafði verið sjóveik alla heimleiðina ásamt flestum öðrum svo hún fór beint uppí rúm, en var svo búin að ná heilsu seinnipartin og skellti sér í bíó með Evu frænku :) en hún ætlar sko aldrei aftur í þennan ógeðslega bát.
Veðrið alltaf jafn hlítt og gott hér þó rignt hafi dálítið um helgina þá er þetta dásamlegt á þessum árstíma. Framundan er venjulegt hversdagslíf og Í kórnum förum við að æfa jólalögin bráðlega og tíminn flýgur svo áfram. Best að hlusta sem minnst á sömu fréttirnar endalaust af efnahagsástandi þjóðarinnar og vera glaður og ganga á fjöll.
Hafið það sem allra best
kv. Hanna

Jóhanna Marína

16.10.2010 kl. 11:44

Laugar dagur

smá rigning hér en ekkert til að kvarta yfir Langur og strangur dagur í vinnunni í gær bingó og svo kaffihlaðborð á eftir sem við útbjuggum og var vel sótt og gaman en það voru ansi þreyttar tvær eldhúskonur sem fóru heim að loknúm degi ljúft að leggjast a koddan . annars bara allt gott sé að það hefur verið góður fallþungi á fé í haust Dísa mín og Geiri til hamingju með afmælisbarn dagsins var bara að kvitta lifið heil

Guðrún besta frænka

12.10.2010 kl. 20:35

Afmæli - frumsýning og fleira

Góða kvöldið
Ætla að byrja á því að þakka fyrir afmæliskveðjur til Atla. Fyrstu helginni í október eyddi ég í Húsafelli með æskuvinkonum mínum að norðan í alveg hreint dásamlegu veðri og ekki síðri félagsskap. Algjör dásemd og afslöppun. Það var svo nóg að gera hjá okkur um síðustu helgi. Ég var að syngja á tónleikum í Háskólabíói bæði fimmtudags- og föstudagskvöld, Porgy og Bess, rosalega gaman. Svo var kóræfing hjá mér á laugardagsmorguninn, þar á eftir 5 ára afmælisveisla Atla og hann var alsæll með alla gestina og pakkana :-) Hann skaust svo sjálfur í afmæli til félaga síns úr leikskólanum en þeir eiga sama afmælisdag. Við skötuhjúin fórum svo út að borða og þaðan á frumsýningu á Rigoletto í Íslensku óperunni með tilheyrandi frumsýningarpartýi. Mjög skemmtilegt. Sunnudagurinn fór í afslöppun og ferð í Laugardalinn með Rögnu systur og börnum þar sem veðrið lék við okkur. Haustið aðeins farið að minna á sig en ekki mikið svo sem miðað við árstíma. Kvitt. Elma

Elma

11.10.2010 kl. 9:41

Leiðrétting

Meðalvigtin okkar var 19,06
Aðeins héluvottur í morgun, sól og heiðríkja.

Hjördís Kristjánsdóttir

11.10.2010 kl. 6:51

Góðir dagar

Eins og mamma kom inná þá höfum við eytt síðustu dögum á Lundarbrekku í yndislegu haustveðri. Erum komin heim með vetrarforðann og líður afskaplega vel með það. Hér í Kópavogi er 12 gráðu hiti og logn og ég búin að rölta með Moggann í húsin í hverfinu í þessu yndislega veðri, endaði á stutterma bolnum 11. október. Sævar frændi kom með okkur suður í gær og er ferðinni heitið á landsleik Íslendinga og Portúgala á morgun með þeim Eiríki, Evu Margréti og Kristófer. Vona að þið eigið góða októberdaga framundan og bið að heilsa í bili.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

10.10.2010 kl. 17:22

Haustannir

Það er vika síðan ég skrifaði hér og búin að vera viðburðarík vika. Lömbium okkar var slátrað á Húsavík á þriðjud. meðalv. 19,6 kg ,gerð 10,36 sem er nú ekki venjulegt hjá okkur en eins og fylgir svona miklum þunga eru þau fullfeit. Guðrún Kiddi og Eva Margrét komu á miðvikudagskvöldið, fóru í morgun ættu að vera við það að koma heim núna.Búið að vera yndislegt að hafa þau og veðurblíðan engu lík. Eiríkur var heima , hann er í M. K. og vildi standa sína pligt , bæði í skólanum og að bera út Moggann með meiru. Malla og Jói fóru með beinu flugi frá Akureyri til Riga í Lettlandi á miðvikudagskvöld , ættu að koma í nótt. Við Geiri fórum svo í afmæli í Kiðagili í gærkvöldi. Lotta og Jón í Rauðafelli buðu Bárðdælingum og nokkrum fleirum til góðrar veislu þar í tilefni af 60 ára afmæli hennar. Enn skarta haustlitirnir sínu fegursta. Góðar kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

10.10.2010 kl. 10:46

Fallegur sunnudagur

bjart og fallegt í höfuðborginni í dag og allstaðar er verið að mótmæla niðurskurði nú eru það Austfirðingar í dag þetta er svo mikið brjálæði að það nær engri átt . Allt gott héðan Nonni og Anna í helgarferð til Köben bara gaman að því Hvernig er það gott fólk er fésið alveg búið að heltaka ykkur eruð þið búin að gleyma þessari frábæru síðu okkar hér farið nú að bretta upp ermar og tjá ykkur hér ég reyni að standa mig eins og nafna mín og frænka bað um og hún má nú líka vera duglegri kær kveðja

Guðrún besta frænka

7.10.2010 kl. 19:42

Bleikur dagur á morgun

á morgun er bleikur dagur allir klæðast einhverju bleiku til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini bara gott mál Aldeilis dýrðardaguir í dag og i gær fallegt haustveður og haustlitirnir skarta sínu fegursta hugurinn er hjá Þingeyingum, núna þvílík aðför að einum landshluta Steigrímur ætti að skammast´sín og vera þingmaður þeirra og mæta ekki fundinn þvíl14ik rola segi það bara búin að kvitta lifið heil

Guðrún besta frænka

3.10.2010 kl. 14:55

Góður sunnudagur

Mér varð á í messunni þegar ég sagði að ætti að slátra hjá okkur á Húsavík á morgun, það er ekki fyrri en á þriðjudag, flutt á morgun
Bj. st. fólk að hjálpa Geira að reka inn í rétt og fara gegnum hópinn .
Miklu sjaldnar að hafi verið svona gott veður um fyrstu helgi október, í fyrra var snjóföl þessa daga.

Hjördís Kristjánsdóttir.

1.10.2010 kl. 16:53

Engin afsökun.

Ég hef enga afsökun fyrir því hvað langt er síðn ég hefi kvittað, en verð nú að reyna að bæta fyrir það. Ég skrapp til Reykjavíkur, fór með flugi 22. september. Fór í forskoðun hjá augnlækni daginn eftir og þá var ákveðið að ég kæmi aftur 18. okt og tekin ský af báðum augum. (augasteinaskipti ) En ég lá í leti hjá Guðrúnu og fjölskyldu fram á sunnudaginn 26. sept en þá fór ég heim. Seinni smölun heimalanda var þá búin og búið að fara í aðrar göngur og skreppa í eftirleit á svæðið hér næst byggð, fundust 10 kindur sem þótti nokkuð gott. Undanfarna daga hafa sauðfjárbændur verið að taka frá líiffé og sláturfé , láta ónskoða og fara með fé til slátrunar. En við erum nú bara komin í hóp hobby bænda og þeim fáu lömbum sem við sendum á sláturhús verður fargað n.k. mánudag. Hér eru haustlitirnir ekki síðri en annars staðar og mikil veðurblíða undanfarið hjá okkur Berjatínslu ársins er nú lokið og síðustu hrútaberin komin í poka og safinn að síga úr þeim.
Ætla að sjóða 1-2 glös af saft á morgun.Njótið haustsins. Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

28.9.2010 kl. 19:28

Leiðinda veður búið að vera

hér síðustu daga en bjargar því að það hefur verið hlýtt Þá er alþingi buið að fella sinn dóm aðeins einn fyrrverandi ráðherra skal fyrir landsdóm þvílik samkoma sem þetta alþingi er enda segi ég við þá sem eru að horfa a útsendingar á daginn eruð þið að horfa á sirkusinn méf finnst þetta vera eins og sirkus . Á morgun er skemmtilegasti dagur vikunnar hjá mér sem sagt miðvikudagur Vona Dísa mín að væntanleg aðgerð hjá þér gangi vel og allt fari vel eigið góða daga brosið og verið jákvæð kveðja

Guðrún besta frænka

26.9.2010 kl. 13:32

Mamma í heimsókn

Sæl öll!
Mamma kom á miðvikudaginn til okkar en hún átti augnlæknatíma á fimmtudag og var það undirbúningur fyrir aðgerð á augum en sú aðgerð verður 18. október n.k. það var semsagt ákveðið að fjarlægja ský af báðum augum þ.e. augasteinaaðgerð. Hún er búin að stoppa hjá okkur síðan þá en ætlar heim í dag. Við erum búin að eiga góða daga saman. Fórum í bíltúr í gær í smá reddingar og enduðum á kaffihúsi, fengum líka góðan gest í kaffi, semsagt virkilega góður dagur. Ég fór með Evu Margréti í vörutalningu í Krónunni í gærkvöldi í fjáröflun fyrir handboltann hjá 5. flokki HK og vorum við þar til að ganga þrjú í nótt en allt gekk ljómandi vel og stóðu þessir krakkar sig alveg ljómandi vel. Varð aðeins að láta heyra frá mér,

Guðrún Sigurgeirsdóttir

22.9.2010 kl. 16:45

Miðvikudagur

og það er tómstunda dagurinn hjá mér var í postulínsmálun í morgun og er það alltaf gaman Yndislegt veður í dag bjart en svolítið kalt. haustið er víst komið enda að koma oktober bara farið að nálgast jólin hvað þetta er allt fljótt að líða 5 mánuðir í starfslok hjá mér og ég er farin að hlakka til að hætta að vinna og geta verið bara eins og ég vil óháð öllum skyldum í starfi líði ykkur alltaf sem best kvitt

Guðrún besta frænka

20.9.2010 kl. 9:43

Haustblíða

Sælt veri fólkið.
Hjá okkur er allt gott að frétta og nóg að gera hjá öllum. Eins og fram hefur komið fórum við á þessa frábæru tónleika á föstudagskvöldið,annars að öðru leiti eyddi ég helginni með börnunum mínum og heimilsstörfunum fyrir utan að ég skrapp og söng í brúðkaupsveislu á laugardagskvöld ásamt nokkrum kórsystrum. Palli fór ásamt Sigga bróður og fleirum í heljarinnar dagsferð í gær, þau gengu á Hlöðufell og fóru "gullna hringinn" það voru ánægðir karlar sem mættu í síðbúið sunnudagslæri í Álfaheiðinni. Mamma kom svo suður með rútunni í gær og ætlar að stoppa hjá mér í viku.
Framundan er mikið að gera í söng og öðru utan vinnu en Hausthátíðarkellur halda hátíð sína í sumarhúsi helgina 1-3 okt og helgina á eftir fer ég til Krákow með Léttsveitinni.
góðar kveðjur
Hanna

Jóhanna M. Baldursdóttir

18.9.2010 kl. 23:22

Haustið góða

Góða kvöldið
Notalegt náttfatakvöld í Glaðheimunum í haustblíðunni í Reykjavík. Fór með þeim frænkum mínum Hönnu og Guðrúnu ásamt mökum og Rögnu systur á Rósenberg í gærkvöldi að horfa og hlusta á Ljótu hálfvitana. Frábær skemmtun í alla staði. Er búin að vera í veikindafríi í hálfan mánuð úr vinnunni þar sem verið var að krukka aðeins í aðra hendina á mér. Er öll að koma til og mæti galvösk til vinnu á mánudaginn. Lífið gengur sinn vanagang hér í Glaðheimunum og vetrardagskráin að hefja göngu sína með kóræfingum bæði hjá mér og Atla og fleiri tómstundum fjölskyldunnar til viðbótar við venjulega vinnudaga. Fjölskyldan átti góða helgi fyrir norðan um daginn ( fyrstu helgi í september) við smölun og berjatínslu. Fengum í nesti rosalega góðan reyktan silung úr Kálfborgarárvatni. Fórum svo helgina á eftir í sumarbústað sem Félag íslenskra hljómlistarmanna á í Borgarfirði hvar við tíndum ógrynni af bláberjum - ég hef aldri á ævi minni séð annað eins magn af bláberjum. Mikið að gera hjá Þráni í vinnunni sem er hið besta mál á þessum tímum. Kvitt og kveðjur
Elma

18.9.2010 kl. 12:23

Haust

Góðan daginn öll!
Nú skal ég viðurkenna að haustið er komið! Hér er bjartur dagur og fallegur. Ég rölti milli sex og sjö með Moggann og ákvað að gefa Eiríki frí þennan laugardagsmorgunn, það var óvenju kyrrlátur laugardagsmorgunn hér í Kóapvogi, fáir bílar á ferð og engar eftirlegukindur nætruinnar á ferðinni. Við fórum á þessa feiki skemmtilegu loka-tónleika Ljótu hálvitanna í bili allavega á Cafe- Rósenberg í gærkvöldi og skemmtum okkur konunglega, Fengum borð á besta stað og sáum og heyðum allt mjög vel! Í kvöld er svo "ársfundur" systkina Kidda og maka og er hann haldinn að þessu sinni á Akranesi og er ferðinni heitið þangað á eftir.
Gaman að heyra frá ykkur mamma, Malla og Guðrún frænka, þið standið ykkur vel!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

18.9.2010 kl. 10:23

Fallegur laugardagur

en kalt heyrði í veðurfregnum áðan að það væru snjóél frá veðurstöðinni á Mýri brrr allt of snemmt að fá svoleiðis Vonandi gengur vel hjá þeim sem eru í göngunum núna er búin að viða að mér hjörtum og lifur og geymi í frost gott að eiga svona til að grípa til og svo narta ég í magálinn góða frá elsku frænda og Dísu eigið góðan laugardag kveðja

Guðrún besta frænka

18.9.2010 kl. 10:08

Týndi texta

Var búin að skrifa smáklausu sem fór sína leið
Hún Þura á afmæli í dag og við óskum henni til hamingju með það.
Þungbúið og skýjað, fríður flokkur gangnamanna lagði af stað í gær í 2. göngur á Austurafrétt Bárðdæla, væntanlegur til byggða á morgun. Geir að leita að hrútaberjum, enn hefur ekki frosið hér.

Hjördís Kristjánsdóttir

16.9.2010 kl. 19:46

Fallegur haustdagur í dag

Veðrið búið að vera yndislegt í dag en þurftum að skafa af bílrúðum í morgun geri eins og nafna mín bað um set hér inn smá status í von að allir sinni kallinu Nú er maður farin að fynna fyrir sláturtíðinni því matseðill gamla fólksins míns hefur verið í vikunn blóðmör og lifrapylsa og steikt lifur í dag og fékk misgóðar undir tektir ég sagði við eina gamla þið eruð alin á allt of góðu fæði þið sem hafið alist upp við svona mat hér áðurfyr en hún svaraði mér já það var þá mætti ég frekar biðja um fisk flott svar eigið góða daga verið góð hvert við annað og brosið kveðja

Guðrún besta frænka

16.9.2010 kl. 17:39

Haustið komið

Vikan alveg pökkuð hjá mér og minni fjölskyldu með fundum á öllum vígstöðvum ásamt vinnunni. En allir frískir og glaðir með sitt. Góðar kveðjur Malla

Marína Sig.

15.9.2010 kl. 17:29

Nokkur orð

Sæl öll!
Var hér bún að rita dágóðan texta í gær sem vildi svo ekki rata inn á heimasíðuna einhverra hluta vegna og ég týndi honum. En ég set hér nokkrar línur núna. Finnst við verða að vera pínu dugleg að skella inn "statusum" hér á síðuna eins og á Fésbókina... lítil fyrirhöfn og þarf ekki að taka svo langan tíma. Hér er allt í rólegheitum, ég hef nóg að gera í vinnunni og börni komin á fullt í skóla og tómstundum. Kiddi er að vinna í að ná aftur heilsunni og það kemur nú vonandi þó að okkur finnist það ekki ganga mjög hratt. En góðir hlutir gerast hægt stendur einhversstaðar! Maður er bara jákvæður og bjartsýnn og það hjálpar nú heilmikið. Ég er í þessum töluðu orðum að undirbúa mig fyrir síðstu Útivistar-ræktargönguna á þessu sumri en ferðinni er heitið að Tröllafossi í Varmá og í Haukafjöll. Hér er bara ágætis veður seinnipartinn í dag og sér meira að segja til sólar. Við frænkur ætlum svo að skella okkur á hausttónleika Ljótu hálvitanna á föstudagskvöldið ásamt okkar mönnum og eiga saman notalega kvöldstund og gera upp göngur sumarsins. Ég hlakka til!
Ég vona að það hafi það allir sem best og hlakka til að heyra frá ykkur hér og á fésbókinni líka. Frábært hjá þér mamma að vera komin þar og þú ert fljót að tileinka þér það sem þar er hægt!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

15.9.2010 kl. 15:12

Haustkálfur

Grenjandi rigning og rok brast á í gær og var allan daginn og fram á nótt. Gránaði samt ekki í fjallið okkar hér á móti og nú er bara n. gola og smásúld annað slagið. Veit ekki nema þetta hafi farið illa með kornið hjá þeim sem ekki voru búnir að ná því. Þoka og úrkoma hylur Dyngjufjöllin en ekki þykir mér ólíklegt að þau hafi sett upp hvítan fald, voru búin að því einu sinni í sumar.Hafið það gott.

Hjördís Kristjánsdóttir

12.9.2010 kl. 17:08

Haustblíða

Indian Summer, Indíánasumar hét það í gömlum skáldsögum þegar haustveðráttan var sumrinu langt um fremri. Var gjarnan notað í sögunum þegar fornir elskendur náðu saman á gamalsaldri. Hér er suðaustan átt , hæg að því er virðist hér heima og 12-14 °hiti , smárigningarúði. Geiri og Atli lögðu net í Kálfborgarárvatn í gær. Svo var logn og þoka í morgun og þeir fóru að taka upp netin en það var bara erfitt því þar efra var SA blástur og leiðinda alda á vatninu og það voru bæði þreyttir og svangir menn sem komu kl að ganga þrjú í hádegismatinn. Ekki fannst þeim veiðin hæfa erfiðinu en einhverntíma hefði þetta þótt ágætt, 20 í hlut af þokkalega vænum silungi. Svo fylgir svona vinnu aðgerðarkvíði svokallaður, sem læknast ekki fyrri en allt er komið í höfn. Sigga og Danni, vinir okkar úr Fellabæ komu í fyrradag og gistu þá er alltaf gleði og gaman. Á fimmtudag buðu Óli og Dika okkur í öræfaferð sem búið er að tala um í 2 ár. Fórum fyrst á Réttartorfu þar sem fjallskiladeild A-Bárðdæla og jeppaklúbburinn 4x4 eru með sameiginlega aðstöðu., stór og flottur skáli með svefnlofti og öllum þægindum Afgirt væði í kring þar sem búið er að planta framandi tegundum , eins og víði og rabbarbara. Torfan , þar sem var áður rofabarð móti suðri er nú grasigróin brekka og eyrin þar sem Grafarlandagrófin þ. e. lækurinn þvoði sífellt undan torfunni er nú bílastæði og vatninu hefur verið veitt frá.Eftir dágóða nestistöf fórum við upp á Hafurstaðaheiðina að sjá yfir Grafarlönd til Austurdala og uppgræðsluna sem þarna er unnið að ár hvert.Síðan til baka , suður Hafursstaðaeyrar ,Mathvammsbörð, að rústum Sandmúla. Farið lengst að Krossá og vissum reyndar að hún hafði brotist úr farvegi sínum fyrir einu eða tveimur árum en kom á óvart að Skjálfandafljót hafði rutt sér leið í sama farveg og rennur nú aðaláll þess með austubakkanum þar semáður var bara smálæna. Til baka fórum við efri leið um sandgræðslugirðingu í Stórakrika , yfir Suðurá á vaði og um Svartárkot. Við höfðum aldrei komið á Réttartorfu síðan byggt var þar svona veglega, en margar ferðir fórum við þarna í "den" Við þökkum enn og aftur fyrir okkur Bestu kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir

8.9.2010 kl. 20:05

Þá er komið að því að kvitta

Skrapp austur á Reyðarfjörð á föstudaginn og kom heim aftur í gærkvöld átti ljúfa daga .þar með litlu fjölskyldunni stóð í sultugerð fyrir Dísu það voru sultuð bláber rifsber hrútaber og rabarbari svo hún er byrg að sultu til vetrarins Fórum í Hallornsstað á sunnudaginn og tíndum 5 kg af hrútaberjum í æðislegu veðri ég kom svo heim með 2 og hálft kíló af hrútaberjum og var að sulta það hér hjá mér í dag yndislegt bara Særún ´anægð í skólanum og er að byrja í tónskólanum á blokkflautu og er ansi spennt Allt komið í fastar skorður hjá okkur öllum hér Nonni á sjóinn Anna Berglind í 50% vinnu og svo í háskólanum Árni byrjaður á sínum vöktum og ég á mínum stað, það er nú bara farið að örla á smá spenningi hjá mér að hætta að vinna sem verður 1, mars Vona að göngur og réttir hafi gengið vel og komin sláturfílingur í mannskapinn læt þetta duga í þetta sinn farið vel með ykkur og verið góð hvort við annað kveðja

Guðrún besta frænka

6.9.2010 kl. 9:41

Takk fyrir myndirnar og skemmtilega samveru með ykkur á göngu í sumar

Kæra frændfólk. Hitabylgja og haust hér norðan heiða. Einstök veðurblíða um helgina og gott útivistarveður. Við smöluðum á Lundarbrekku, ég tíndi bláber og við fórum í grasaheiði á sunnudagsmorgun. Ég er búin að útbúa rifsberjahlaup og sjóða Aðalbláberjasultu, frysta ber og forsjóðagrænmeti og frysta. Blómlegur búskapur það. Svo er lífið að falla í haustskorður en Ásgeir er þó enn í Tyrklandi og ekki væntanlegur fyrr en um næstu helgi. Fyrr verður ekki allt komið í fastar skorður. En við erum hress og glöð og óskum þess að þannig sé það hjá ykkur. Kveðja Malla

Marína Sig.

3.9.2010 kl. 11:34

Drungalegt veður í höfuðstaðnum

Góðan dag
Þá læt ég loks verða af því að kvitta fyrir innlit mitt á síðuna okkar góðu.
Allt er að komast í fasta hringrás í vinnu, skóla og íþróttastarfi hjá okkur, börnin byrjuð í "nýjum" skóla og allt gengur vel. Meiri breyting hjá Ara mínum þar sem hann fer ekki í skólabygginguna við hliðina á okkar heimili heldur labbar í Álfhólsskóla í Digranesi en það gengur vel hjá honum. Særún á fullu í skóla, handbolta og æskulýðs og fermingarfræðslu. Engar breytingar enn í vinnu hjá okkur Palla og þakkar maður bara fyrir hvern dag sem það heldur.
Gaman að sjá að búið er að setja Skál"m"ar myndir á síðuna og bera þær vel með sér veðurblíðuna sem við höfum haft hér í sumar og einnig hvað þetta er alltaf gaman hjá okkur. Fyrir þá sem ekki vita hvernig nafnið á félagsskapnum er tilkomið þá varð það til þegar við Guðrún og fjölskyldur fórum í skemmtilega útilegu í Þórsmörk sumarið 2009 og skáluðum í rauðvíni með grillsteikinni, því við bæði skálmum og skálum.
Á morgun ætlum við að heimsækja vini okkar í Reykjanesbæ og skoða Ljósanótt.
Njótið lífsins í leik og starfi
góða helgi
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

1.9.2010 kl. 10:02

Bláar berjabrekkur

1. september, sól og blíða en rigndi drjúgt í gær heldur til leiðinda fyrir þá sem voru að vinna úti, hvort sem var í girðingalagfæringum , skítmokstr eða berjamó. Veðurspáin er ljómandi góð fyrir næstu daga, en nú verður byrjað að smala hér á föstudag og áfram á laugardag og svo slátrun í næstu viku, þessi hefðbundna árstíðahringrás. Vel á minnst, ég var að leita í huganum að íslensku orði fyrir "rútína" sem er orðið mjög fast í málinu og það er auðvitað hringrás, örlítið lengra en engu óþjálla. Góðar kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

29.8.2010 kl. 9:14

Höfuðdagur

29. ágúst er höfuðdagur og það var gömul trú að þá breyttust hafstraumar og um leið veðurfar. Sumir vildu þó trúa enn frekar á Egidíus, sem er 1. september. "Taktu vel eftir því hvað hann gerir upp úr Egedíusmessuhelginni, það er óyggjandi að fyrri partur vetrarins minnir í það" Þessi setning var höfð eftir Jóhannesi á Sandhaugum, ég held að hann hafi verið maður Kristínar ljósmóður sem, lengi þjónaði hér og varð fjörgömul.
Það er að minnsta kosti skipt um veður, komin sunnan átt og hlýtt í morgun en var á mörkum þess að frjósa um miðnættið. Brúðkaup var hér í kirkjunni í gær með fjölmenni og skírn fyrir viku síðan. Gangnamenn fóru af stað í fyrradag og væntanlegir síðdegis í dag og þá verður réttað í Víðikersrétt.
En fjárfjöldi þar er nú svipur hjá sjón hjá því sem áður var, því nú er fátt fé af mjög afmörkuðu svæði sem smalað er þar til réttar.Engu að síður fylgir því gleði og tilhlökkum fjáreigenda og hefð að fara á móti safninu og reka síðasta spölinn með þeim til réttar. Svo er réttarkaffi í Víðikeri á eftir. En við erum nú hætt að taka þátt í þessu en lifum á minningunum. Hafið það sem best.

Hjördís Kristjánsdóttir

29.8.2010 kl. 8:06

Síðasta ágústhelgin

Góðan dag!
Hér í Kópavogi er milt veður í dag logn og 9 stiga hiti og alskýjað. Við frænkur þ.e. ég, Hanna og Elma ásamt Rúnu svilkonu minni fórum í bítið í gæmorgun í góða göngu á Akrafjall. En við byrjuðum á því að keyra að fjallinu þ.e. n.v. við það. Þar gengum við sem leið liggur upp Selbrekku sem er töluvert brött og svo áfram göngustíg alveg uppá Háhnúk sem er 565 m á hæð. Þaðan var glæsilegt úsýni til allra átta meira að segja Snæfellsjökullinn lét sjá á sér toppinn. Það var reyndar ansi köld golan á toppnum, en við dróum upp vetlinga til að geta sopið kaffið. Síðan héldum við af stað áfarm að Jókubungu sem er vestan við (nær Hvalfirði) Háahnúk og gengum utan í henni töluvert lengi og fórum síðna niður í Berjadalinn og þar vorum við í sól, logni og yndislegu veðri. Gífurlegt magn af krækiberjum varð á vegi okkar. Við gegnum síðan niður Berjadalinn meðfram Berjadalsánni og niður að bíl. Við Hanna fórum svo á Hamraborgarhátíð seinnipartinn og enduðum svo á því að grilla saman hamborgarar hér í gærkvöldi með fjölskyldum okkar. Fínn laugardagur. Í dag held ég að verði róleghieta sunnudagur við heimilisstörf og lærdóm. Njótið sunnudagsins og gaman væri að einhver nennti að skrifa hér nokkrar línur!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

27.8.2010 kl. 10:27

Þá er runninn upp föstudagur og fyrstu kennsluvikunni að ljúka hjá mér. Allt fór þetta vel afstað og gaman að hitta blessuð börnin aftur eftir sólríkt sumar hér sunnan heiða. Eiríkur og Eva Margrét líka komin vel af stað í sínum skólum. Á mánudaginn stendur svo til busavígsla í MK og busaball um kvöldið, verður örugglega gaman þá :-). Veðrið hefur leikið við okkur hér þessa viku og nýtur maður þess í botn. Við göngufólkið fórum á Sandfell við Hagavík á miðvikudagskvöldið og nutum þar kvöldkyrrðar, aðalbláberja og krækiberja. Útsýnið var glæsilegt og Þingvallavatnið skartaði sínu fegursta, spegilslétt í kvöldsólinni. Ég vona svo að þið farið að fá gott veður fyrir norðan, ég hef einvhernveginn á tilfinningunni að haust-rigningarnar fari að koma hér :-( en vona auðvitað að við fáum öll gott haust. Læt þetta duga í dag.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

25.8.2010 kl. 18:52

Pennaleti

Það er einhver deyfð og drungi sem fylgir því að sólin lætur ekki sjá sig dögum saman og regnið streymir úr loftinu Kominn hellingur af bláum berjum og Geiri byrjaði að tína 27. júlí og hlakkaði mikið til þegar aðalbláberin yrðu fullþroskuð og hann gæti notið þess að tína í sumarblíðu. Hann hefur samt harkað sig í berjamó og komið blautur og vatnsloppinn heim, síðast í dag.Berin líka byrjuð að springa fyrir allan vatnsþvottinn. Við héldum til í Kiðagili um síðustu helgi, en þá voru síðustu kaffihlaðborðin og markaðsdagar -en rigning spillti fyrir því eins og öðru. Svo á að fara í fyrstu göngur hér í Austurafrétt Bárðdæla á föstudagsmorgunn og fyrri smölun fyrstu helgi september. Haustið er sem sagt að detta á hvort sem við fáum góðan sumarauka í september eða ekki. Vonum að svo verði. Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

20.8.2010 kl. 19:56

Jæja þá er að kvitta

Menningarnótt framundan og eflaust mikið um að vera en ég ætla bara að hafa það huggulegt heima hjá mér Árni verður að vinna svo er alltaf svo mikið fólk að ég nenni ekki að láta berast með straumnum og sjá ekki neitt. Veðrið búið að vera með eindæmum gott en nú er ég farin að þrá rigningu og ég meina það fer austur á Reyðarfjörð 3 sept og vona ég að þá verði komin uppstytta bæði þar og hjá ykkur fyrir norðan svo hægt verði að bjarga einhverjum berjum Hanna frænka mín er nú búin að bjarga mér með rifsber og henni eru sendar ástarkveðjur fyrir annars allt gott sumarfrí búið hjá Jóni á mánudag þá fer hann út á sjó enda farið að halla að hausti búið að vera alveg yndislegt sumar fékk sól og blíðu allan sumarfrístímann fyrst og síðast hér í borginni og vikan á Hólum ekkert nema sól og blíða hér með búin að kvitta Lifið heil

Guðrún besta frænka

15.8.2010 kl. 21:40

Vinnuvika framundan

Þá er sumarfrísdraumurinn búinn og við tekur næsti draumur sem er skólastarf á ný. Eins og áður flýgur tíminn og okkar tveggja mánaða sumarfrí er liðið og við Jói mætum endurnærð og hress til okkar starfa í fyrramálið.
Nú er ég orðin brautarstjóri matvælabrautar sem er 17 % stjórnunarstaða með kennslunni. ég hlakka til að takast á við aukna ábyrgð sem fellst fyrst og fremst í umsjón með nemendum, faglegri ábyrgð á kennslu og eftirliti með kennslubúnaði og húsnæði matvælabrautar.
Þennan síðasta hluta sumarfrísins eyddum við á Suðurlandi með Sævari okkar á fótboltamóti á Selfossi og síðan dvöldum við áfram í sumarbústað í Akurgerði í Ölfusi þar sem við héldum upp á 12. ára afmæli Sævars og buðum til okkar vinum og frændfólki sem býr á suðvesturhorninu. Kæru vinir takk fyrir komuna og ánægjulega samveru.
Eins plataði ég þær göngusystur Guðrúnar tvær Elmu og Hönnu til að heimsækja mig og ganga á Ingólfsfjall. Eins og áður naut ég þessa félagskapar á göngu. Engin lognmolla þar sem þær mæta þessar gönguglöðu konur.
síðan við komum heim hefur verið þvegið, straujað og þrifið. Aðeins farið í berjamó og rifsberjum breytt í hlaup og soðin berjasulta.
Njótið hlýrra ágústdaga. Malla

Marína Sig.

13.8.2010 kl. 17:39

Tveggja daga sumarfrí með litlum fyrirvara.

Fórum á miðvikudaginn til Húsavíkur og notuðum ferðina í praktiska hluti fyrst, fórum svo í Kelduhverfi og dvöldum í Ásbyrgi og í Gljúfrastofu, hún er mögnuð,
fórum upp að Ási, bóndabæ , sem nú er starfsmannabústaður fyrir Þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum og einstakt útsýni yfir Ástjörn ( þar er sumardvalarstaður fyrir börn ) Keyrðum heimreiðar að bæjum þar sem hyldýpisgjár blasa við meðfram veginum báðum megin, sumar gjárnar gamlar, aðrar frá síðustu skjálftum í Gjástykki og á Kópaskeri. Horfðum yfir Skjálftavatnið, sem er nýjast vatna á svæðinu. Vorum svo heppin að vera boðin i kvöldmat hjá Vogahjónum, Maríu og Þórarni og þar var ekki í kot
vísað.Áttum pantaða gistingu og morgunverð í Skúlagarði og það var eins og að koma í heimahús. Dekrað við okkur.
Morguninn eftir sýndi María í Vogum mér "Heimöx" handverkshús sem konurnar á svæðinu reka og selja handverk sitt og e. t. v. annarra. Ótrúlega margt fallegt og skemmtilegt í þessu litla rými og verðið eftir því. Svo fórum við í Svalbarð í Þistilfirði og eyddum því sem eftir var af deginum hjá gömlum vinum, Dísu og Sigtryggi á Svalbarði. Komum heim kl 19.30 í gærkvöldi efti. 3 klst. akstur, fórum Öxarfjarðarheiði báðar leiðir , hnökróttur malarvegur þar. Hjartans þakkir til allra sem tóku svo vel á móti okkur og gerðu ferð okkar svo góða. Auk þess var glampandi sólskin fyrri daginn , en skýjað aðeins skúrir og blankalogn í gær.

Hjördís Kristjánsdóttir

10.8.2010 kl. 20:11

Sælt veri fólkið

aðeins að kvitta fyrir innlitið Allt gott frá mér og mínum Jón og Anna að koma heim á morgun úr sumarfríinu ég á eftir á 3 viku og ætla að taka eitthvað af því í september og skreppa austur á Reyðarfjörð og fara í ber og í Hallormsstað í hrútaber Það var nú ansi erfitt að fara að vinna aftur eftir frí en svo núna er allt komið í samt lag hvað það snertir allt að fara á fullt aftur eftir sumarið þetta er búið að vera gott sumar og skemmtilegt fékk 3 rigningardaga í öllu fríinu alveg frábært Ég óska Jónasi Baldurssyni og Kristínu Reykdal til hamingju með daginn kveðja til ykkar allra farið vel með ykkur

Guðrún besta frænka

9.8.2010 kl. 11:16

Þetta á svo vel við í dag!

Sumarkveðja

Ó, blessuð vertu sumarsól,
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.
Nú fossar, lækir, unnir, ár
sér una við þitt gyllta hár.
Nú fellur heitur haddur þinn
um hvíta jökulkinn.

Þú klæðir allt í gull og glans,
þú glæðir allar vonir manns,
og hvar sem tárin kvika á kinn,
þau kyssir geislinn þinn.
Þú fyllir dalinn fuglasöng,
nú finnast ekki dægrin löng,
og heim í sveitir sendirðu´ æ
úr suðri hlýjan blæ.

Þú frjóvgar, gleður, fæðir allt,
um fjöll og dali og klæðir allt,
og gangirðu undir, gjörist kalt,
þá grætur þig líka allt.
Ó, blessuð vertu, sumarsól,
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

9.8.2010 kl. 8:35

Síðustu dagar sumarfrísins!

Góðan daginn!
Hér er sama veðurblíðan dag eftir dag. Í gær fórum við Eva Margrét á Selfoss og horfðum á Sævar frænda keppa í fótbolta en hann var þar á móti alla helgina. Síðan fórum við í sumarbústað til þeirra Möllu og Jóa í Ölfusinum og áttum þar góðan dag á pallinum í sól og sumri. Eva Margrét og Sævar fóru ásamt Jóa í útreiðartúr hjá Eldhestum í rúman klukkutíma og var það mikið ævintýri fyrir þau. Verslunarmannahelginni eyddum við heima hjá okkur, fengum góða gesti í mat og nutum þess að vera í rólegheitum í bænum en það var greinilega fátt um manninn hér. Eva fór með Særúnu frænku sinni í Húsdýragarðinn o.fl. Nú er að byrja síðasta vika sumarfrísins hjá mér og hlakka ég til að fara að vinna aftur og hitta samstafsfólkið og ekki síður krakkana sem ég vona að hafi átt ánægjulegt sumarfrí. Ég á nú púlítið bágt með að þola þessa umræðu um að sumarið sé búið og komið haust, ekki það að haustið sér slæmur tími heldur er sumarið alveg út ágúst i mínum huga og jafnvel fram í september, svo kemur haust fram í nóvember... og þá skal ég viðurkenna að veturinn sé kominn. Vona að þið eigið góað daga.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

5.8.2010 kl. 22:52

Helgarfrí

Sumarið að verða búið og fjölskyldan hefur ekkert farið,nema 1 nótt með tjaldvagninn að hólum í hjaltadal.Ég var að vinna á Hlíð síðustu tvær helgar og mikið á virku dögum líka.Ég verð í fríi þessa helgi oog jónas byrjaði í tveggja vikna sumarfríi á Þriðjudaginn og byrjaði fríið á því að keyra suður með búslóðina Aðalsteins(okkar) og Sigríðar. Þau voru hætt við að flytjja suður en þá var hrýngt í Sigríði og henni boðin vinna hjá Alþíngi sem ekki var hægt að sleppa,og fengu þau svo mjög fína íbúð á leigu í mosfellsbæ. Aldís fór suður með pabba sínum en ég var eftir heima að vinna :( Þau náðu að gera alveg helling þennan sólahrýng sem þau stoppuðu í borginni,heimsóttu Lindu systir,svo Hönnu og palla svo var farið í 3 ára afmælið til jón Þórs.Svo var notað tækifærið fyrst að jónas var komin í frí og sandra og Baldur reiknuðu með að koma norður á fiskidaginn þá tók jónas hann Jón Þór með norður og er búið að vera æðislegt að hafa hann,og eigum örugglega eftir að endurtaka þetta aftur við næsta tækifæri :) verst hvað heimasætan er afbrigðisöm maður þarf að passa að gera allt jafnt fyrir þau,hún fylgist vel með að hann fái ekkert meira en hún :)

spurning hvort það verði skroppið á handverkshátíðina og svo á Dalvík um helgina.Svo ætlum við að skreppa með tjaldvagninn 1-2 nætur áður en hann verður settur í geymslu,nú styttist í skólann en ég byrja 19 Ágúst en Aldís ca viku seinna.

Hafið það sem allra best.
kv.kristín og co.

kristín Reykjalín

2.8.2010 kl. 16:29

Frídagur verslunarmanna.

Það er 2. ágúst í dag, afmælisdagur Mæju og Þuru á Bjarnarstöðum, það eru 95 ár í dag frá fæðingu þeirra. Blessuð sé minning þeirra. Lokið var heyskap hér í gær, 53 rúllur af Náströnd, bara eftir að keyra heim. Geir fór í berjamó og búinn að tína heilmikið af bláberjum, þau eru býsna stór en dálítið græn ennþá. , blána fljótt inni. Þjóðlegt kaffihlaðborð í Kiðagili í gær,, ég var þar æði lengi og þekkti fæst af því fólki sem kom, en það var eitthvað dálítið á annað hundrað manns. Hér hefur ekki rignt enn , en orðið skýjað og þungbúið og væri bara gott að fá vætu núna.

Hjördís Kristjánsdóttir.

30.7.2010 kl. 22:30

Komin heim

eftir viku dvöl á Hólum í Hjaltadal fyrst ættarmót þar í 3 daga ættin hans Árna síðan vorum við þar til í dag veðrið búið að leika við okkur allan tímann og yndisleg íbúð sem við vorum í fékk hana leigða af stéttarfélaginu mínu Erum búin að skoða Skagafjörðinn vítt og breitt og miklu fróð'ari um þetta landssvæði en áður og í dag á heimleiðinni skoðuðum við Vatnsdalinn falleg sveit þar Dísa og fjölskylda var með okkur allan tímann en Anna og Nonni fóru austur á mánudeginum eftir ættarmótið Svo á þriðjudaginn fer ég að vinna en á eftir 3 vikur í fríi sem ég geymi til haustsins gott að eiga smá frí í handraðanum Gott að heyskapur hefur gengið vel síðustu daga Læt þetta duga í bili kveðja

Guðrún besta frænka

28.7.2010 kl. 21:28

Sumarfrí, sól og blíða

Sæl kæru vinir og ættingjar.
Norðurgötu fjölskyldan hefur átt góða daga. Stóru strákarnir sinna vinnu og njóta sumarskemmtana þess á milli. við Jói höfum verið mest heima síðan viku af júlí en nú stendur til að fara í útilegu um helgina með tjald upp á gamla mátann. Við seldum tjaldvagninn (sem var búinn að sinna okkur vel) og ætlum að lifa einföldu lífi og prófa að gista í tjaldi. Sævar er mjög spenntur fyrir að fara í alvöru útilegu enda skáti. Vikuna 6-13. ágúst eigum við síðan frátekinn sumarbústað í Akurgerði í Ölfusi og förum þanngað þrjú Sævar og við hjón. Hjörvar byrjar þá helgi í skólanum í lotunámi í kjötiðn og gætir bús hér heima. Sævar er að fara á fótboltamót á Selfossi og þess vegna förum við aðra ferð á Suðurlandið í sumar. Bestu kvejur og njótið verslunarmannahelgar heima eða að heiman. Malla

Marína Sig.

28.7.2010 kl. 10:52

Júlí

Góðan dag!
Við erum komin heim eftir góða daga í Bárðardalnum, takk innilega fyrir okkur mamma og pabbi. Einnig erum við Kiddi búin að fara í gönguferð á Hornstrandir frá 14. - 20 júlí og var það ótrúleg upplifun, við sigldum frá Norðurfirði í Hornvík og gengum þaðan í Reykjarfjörð með tveggja nátta stoppi í Látravík og tveggja nátta stoppi í Bolungarvík. Heppin með veður í báðum ferðum þ.e. ekki kom dropi úr lofti og mestmegnis heiðskýrt. Eiríkur er að klára sinn síðasta vinnudag í dag í Vinnuskóla Kópavogs. Við vonum að allir eigi ánægulega Verslunarmannhelgi hvort sem menn eru heima eða að heiman.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

27.7.2010 kl. 16:39

Sumarið líður fljótt.

Kominn 27. júlí. Guðrún, Kiddi, Eiríkur og amma Magga fóru í morgun en Eva Margrétí gær með Ragnhildi vinkonu sinni inn í Steinkirkju, Svo nú er orðið hljótt í kringum okkur og ekki laust við söknuð, en þetta er búið að vera yndislegt . Þau komu sl fimmtudag ,nema Eiríkur varð þá eftir á Akureyri því Ásgeir var í fríi. Á laugardag fóru Malla og Rúna með yngstu börnin sín og okkur gömlu konurnar í dekurdag í Eyjafirði og á Akureyri. Hjartans þakkir fyrir það allt. Þá kom Eiríkur með okkur austur. Búin að vera þvík hita og sólskinstíð að maður man varla eftir öðru eins.
Man samt 27. júlí 1947. Þá var svona sólskinskafli afstaðinn og taðan hirt.Ég var send ein með folaldshryssur og tryppi suður í Grafarlönd (ofan Réttartorfu) til að skilja eftir í sumargöngu. Það gekk bara vel og ég gleymi aldrei þessum degi, ein í öræfakyrrðinni. Njótið sumarsins.

Hjördís Kristjánsdóttir

23.7.2010 kl. 8:51

Fljótt að líða sumarfríið.

Góðan dag, tekur ekki langan tíma fyrir mig að komast hér inn. Nú hef ég verið í frí allan júlí og búin að hafa það alveg ágætt. Palli hefur ekki verið nógu góður eftir æðahnútaaðgerð eða þ,e,a.s ekki farið víðreist og enn töluvert haltur og bólginn á ökla en það stendur nú allt til bóta. Ein vinkona mín sagði já þú hefur þá prófað það þetta sumarið Hanna mín að vera með þrjú börn og "eitt fatlað" :)) en ekki er nú gerandi grín að þessu. Semsagt fyrstu vikuna okkar í frí vorum við heima fórum svo norður og stoppuðum þar í viku en höfum svo verið heima við eftir það en höldum í sumarbústað á Kirkjubæjarklaustri seinni partin í dag. Þar höfum við aldrei verið áður í bústað og þar er mjög fallegt og margt að skoða einnig ætla þó nokkrir vinir okkar og ættingjar að heimsækja okkur. Eftir verslunarmannahelgina byrjar svo hversdagslífið aftur hjá mér með vinnu og tilheyrandi en Palli verður viku lengur í fríi. Ég fór með gamla blá í smá viðgerð/viðhald í morgun og þegar ég gekk til baka frá verkstæðinu þá var ég einmitt að hugsa hvað verðrið væri yndislegt þó engin væri sólin en nú sé ég að hún er líka að birtast í gegn um skýin þannig að þetta verður væntanlega hinn fallegasti dagur en samkvæmt spá átti nú held ég að rigna og við vorum eiginlega bara ánægð með það fyrir jörðina hér og líka allt í lagi með það ferðaveður svo famarlega sem það er ekki úthelli. Getur verið þreytandi að sitja lengi í bíl í steikjandi hita.
Jæja gott fólk vona að allir hafi það sem best og ég sendi góðar afmæliskveðjur til afmælisbarna síðastliðna daga
Sumarkveðja
Hanna

Jóhanna M. Baldursdóttir

22.7.2010 kl. 19:51

Bið??

Ég veit ekki hvað er í gangi hér með innkomu mína á þessa síðu. Það er búið að taka mig 12 mínútur að komast hér inn, styrkur merkis talinn góður og ég fer strax inn á allar aðrar síður. Mér sýnist gestafjöldi líka eðlilegur en ég nenni ekki að reyna að fara oft hér inn við þessar aðstæður. Ef fleiri hafa lent í þessu þá látið í ykkur heyra. Ég held að þetta hafi verið að smáversna sl mánuð. Hér er sólskin og hiti síðustu daga, eftir kvöldið í kvöld verður bara Náströnd eftir óhirt af gamla túninu okkar, en hún þolir vel að bíða , jafnvel fram í ágúst.

Hjördís Kristjánsdóttir

18.7.2010 kl. 21:35

Sendum Jónasi kærar afmæliskveðjur

heill þér á merkum tímamótum.

Marína sig og fjölskylda

18.7.2010 kl. 9:18

60 ára afmæli

Jónas Sigurðarson er 60 ára í dag.
Innilegar hamingjuóskir með áfangann og og þökkum ágætt hlöðuball í tilefni af afmælinu sl laugardagskvöld.Eigðu góðan dag hvort sem þú ert heima eða að heiman.
Geiri og Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

15.7.2010 kl. 10:12

Komin heim

eftir yndislega ferð austur á land og hitta fjölskyduna þar Fór í fjörðinn fagra sem heilsaði mér i öllum sínum skrúða sól og blíðu Fór að skoða Kárahnjúkavirkjun og fannst það merkilegt fyrirbæri hrikaleg stíflan þar og gljúfrið fór í heimsókn til frændfólks í Bárðardal og fór leið sem ég hef aldrei farið yfir heiðina frá Stöng í Mývatnssveit og fannst mér það gaman Elsku Dísa mín og >Geiri frændi takk fyrir yndislegar móttökur eins og alltaf vona að veðurfar fari að batna hjá ykkur komum heim til Reykjavíkur 22 30 í gærkvöld dálítið lúin en glöð Ömmustelpan var ánægð með alla útúr dúra hjá okkur á leiðinni fannst þetta spennandi verður hjá mér í 10 daga bara gaman kveðja til ykkar allra

Guðrún besta frænka

12.7.2010 kl. 17:03

Þá er kominn 12. júlí.

Ég var búin að skrifa heilmikið hér í morgun þegar kom á skjáinn að tenging hefði rofnað og allt hvarf. Það rignir öðru hvoru og allt rennblautt. Í síðustu viku fórum við og gistum 3 nætur í Fellabæ, yndislegt og alúðar þakkir fá þau hjón á Ullartanga 3. Malla Jói, Sævar og Hjörvar komu á fimmtudag , grilluðu og Malla gisti 2 nætur, en feðgar fóru heim á fimmtudagskvöld, en komu svo síðdegis á föstudag þeir Jói og Sævar og gistu þá nótt. Svo fórum við á hlöðuball Jónasar á laugardagskvöld og til messu kl 5 í gær hér í Lundarbrekkukirkju. Séra Bolli og Hörður Áskelsson báru uppi það helgihald , en fjölskylda Áskels Jónssonar frá Mýri fjölmennti og var hans minnst í messunni. Óli og Dika byrjuð að slá hér en ennþá rignir. Guðrún frænka, láttu mig vita hvaða dag á að koma hér við. Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir.

10.7.2010 kl. 14:02

Þá á að leggja land undir bíl

og fara austur á Reyðarfjörð á morgun stansa þar í 2-3 daga taka Særúnu með til baka og hafa hana þar til ættarmótið verður 23-25 júli förum suðurleiðina austur og norðurleiðina heim og ætla ég að stansa í 2-3 tíma hjá þér elsku Dísa mín svona til að koma aðeins í dalinn fagra Hér rignir í dag vonandi fer veður batnandi hjá ykkur þarna fyrir norðan þetta er nú orðið gott af leiðinda tíðarfari hjá ykkur Annas allt gott Nonni komin í frí og fer að hugsa ser til hreyf-ings Sendi kærar kveðjur til þeirra sem ég þekki á hlöðuballinu í kvöld skemmtið ykkur vel kær kveðja

Guðrún besta frænka

9.7.2010 kl. 7:47

Júlí

Góðan dag frændfólk!
Af mér og mínum eru litlar fréttir. Höfum verið heima síðan við komum að norðan um daginn, en í næstu viku er stefnan tekin á Hornstrandir í gönguferð. Ég hef aldrei komið á þessar slóðir. Keyrt í Norðurfjörð, siglt þaðan á Hornbjargsvita og gengið til baka í Reykjafjörð. Nú biður maður bara um að veðrið verði gott :-) en hingað til hefur ekki viðrar vel á þessum slóðum á sumrinu.
Ég óska ykkur góðrar helgar og skemmtunar á hlöðuballinu hjá Jónasi frænda á Lundarbrekku í tilefni af afmælinu hans þann 18. júlí, en við verðum því miður fjarri góðu gamni þá. En komum vonandi í sveitina eftir Hornstrandaferðina.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

8.7.2010 kl. 15:19

Komum heim

laust fyrir kl 11 í morgun, fórum kl 7. 40 og viðstöðulaust sem leiðin liggur niður norðan Mývatns , um heiðina hjá Stöng og Engidal. Áttum góða og skemmtilega daga, var m. a. boðið í bílferð til Vopnafjarðar.
Nú streymir vatnið úr loftinu svo kýr haldast varla við á beit, hvað þá annað. Vonum að nú styttist í sólríkari daga.

Hjördís Kristjánsdóttir

5.7.2010 kl. 21:51

komin heim

eftir átta daga ferðalag til höfuðborgarinnar og Vestmannaeyja. Við hjón og Sævar eyddum fjórum dögum á Stór reykjavíkursvæðinu, fórum varla í verslun en gengum á Esjuna í fylgd Guðrúnar systur og áttum saman frábæran fyrripart-dags til fjalla. Sævar minn naut þess að vera með frændsystkinum sínum í Kópavogi og saman fórum við í göngu og menningarreisu út í Viðey. Við nutum höfðinglegra matarboða hjá vinum og ættingjum og svo komst ég í eina miðvikudagsgöngu með þeim frænkum Guðrúnu, Hönnu og Elmu og mikið var það gaman og kæru frænkur takk fyrir skemmtilega samveru. Svo fórum við á Goslokahátíð til Eyja ásamt systkinum Jóa og vorum við 15 saman í tveimur sumarhúsum frá fimmtudegi til sunnudagskvölds. Þó veðrið léki ekki við okkur þegar við lögðum á stað frá Þorlákshöfn þá lægði og birti á föstudagsmorgun og við áttum indislega helgi í fallegum bæ með einstöku útsýni og náttúrufegurð. Gönguferðir sigling, tónleikar og fleira og fleira var sér til dundurs gert.
En svo er svo gott hvað gott er að koma heim.
Njótið sumarsins við leik og störf. Malla

Marína Sig.

4.7.2010 kl. 16:31

Sprettutíð.

Loks komst ég hér inn án þess að þurfa að bíða langa lengi. Það er engin síða eins þung að komast inn á hjá mér eins og okkar góða Lundarbrekkusíða, hvað sem veldur. Nú þýtur grasið upp, hlýtt en alltaf skúrir. Geiri er að slá kringum húsið búinn að slá garðinn og gangstíga milli húsa. Við verðum ekki heima næstu tvo þrjá daga en staðurinn verður ekki í eyði því nú hlýtur að þurfa að undirbúa næstu helgi .

Hjördís Kristjánsdóttir.

1.7.2010 kl. 14:29

Komin í sumarfrí

og það er ljúft Ætlum eitthvað að hreyfa okkur áður en ættarmótið verður því ég fer aftur að vinna 3 ágúst en á þá eftir talsvert frí til haustsins eða vetrarins Rigning í dag og er það gott fyrir gróðurinn vonandi er ekki sest að rigning hjá ykkur bændum sem eigið allt undir veðri núna þegar sláttur fer að byrja en gott að fá smá vætu Allt gott frá okkur öllum kanski sjáumst við eitthvað í sumar ætla að koma aðeins í dalinn fagra sleppi því ekki en hvenær er ekki ákveðið. búin að kvitta í dag lifið heil

Guðrún besta frænka

1.7.2010 kl. 13:56

Loksins rigning

Loksins kom rigning í morgun,en voðalega lítið og er hann næstum þurr núna.Jörðin er að skrælna en mikið vildi ég að hann héldist þurr fram yfir helgina þar sem mikið er um að vera í fótbolta um helgina og tjaldsvæðin full. Ég kennir í brjóst um foreldranna að vera að standa í þessu ef mígrignir. Sandra,Baldur og Jón Þór koma norður á morgun og erum við voða spennt að hitta þau það er allt of langt síðan við sáumst,en þau ætluðu með til Grímseyjar en þá veiktist sá stutti sem að gerist nú ansi oft vonandi fer það að lagast hjá greyinu. Ég byrja að vinna í Hlíð á mánudaginn og verð þar þangað til skólinn byrjar,Aldís ætlar á leikjanámskeið og Alli bróðir hennar og Sigga ætla að redda okkur líka með pössun. Svo reynum við að skreppa suður smá tíma í júlí kanski annars ekki mikið frí/ferðalög þetta árið.Fyrst að klára skólann :) svo koma tímar og koma ráð. Svo þið sem eruð á ferðinni þá erum við oftast heima og verið velkomin.

Hafið það öll sem best.

kristín Reykjalín

1.7.2010 kl. 9:02

1. júlí

Þar með er árið 2010 hálfnað hversu ótrúlegt sem það nú er.
Það er líka farið að rigna í hægri suðaustan átt. Fyrst lítið svo meira, farnar að koma samfelldar bunur úr þakrennunum, enda jörðin orðin þurr. Undanfarna daga hefur verið ekið möl ( leir ) í veginn vestan Skjálfandafljóts hér á móti og samfelldur rykmökkur undan malarbílunum (og öllum öðrum bílum)hátt í loft og vítt yfir beggja vegna vegar. Við höfum spurt okkur hvort þeir hefðu við að keyra í veginn. Einn vatnsbíll hefur sést öðru hvoru og það rauk undan honum líka. Ekki held ég að verði gaman að fara með Herjólfi til Vestmanneyja í dag , en ég óska öllum góðrar ferðar sem eru að fara á gosloka hátíð.
Bestu kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir

28.6.2010 kl. 10:02

3 dagar í frí

Góðan dag
Nú er ég alveg að detta í sumarfrí sem byrjar þann 1. júlí. Palli vinnur í dag og fer svo í æðahnúta lagfæringuna á morgun og í sumarfrí í framhaldi af því. Við tökum því rólega heima við fyrstu daga frísins og förum svo að huga að einhverju ferðalagi jafvel skreppum aðeins norður. Ari litli er enn haltur en mér finnst nú samt að hann sé aðeins betri. Það er svo skrítið með það að hann finnur hvergi til en ég fór með hann í síðustu viku í endurkomu á slysadeild og þar var aftur tekin mynd af fótleggnum og ekkert sást. Læknirinn sem við hittum vildi sjá til í 3-6 vikur ef hann mundi ekki lagast þá ættum við að hafa samband við okkar heimilislækni og hann mundi svo senda okkur áfram til barnabæklunarlæknis sem er líka sérsfræðingur í fæðingagöllum. En ef hann versnar ættum við að hafa samband fyrr og gætum þá alltaf fengið tilvísun á frekari röntgen td. af mjöðmum. Læknirinn talaði um að allavega ef þetta breytist ekki að vera búin að fara til bæklunarlæknis áður en skóli byrjar aftur. Við höfum látið hann alveg sleppa öllum fótboltaæfingum síðan Skagamótið var og skráðum hann af námskeiðum sem við áður vorum búin að bóka, þannig að stóra systir hefur haft nóga vinnu við að passa hann.
Veðrið hjá okkur er búið að vera alveg yndislegt í langan tíma og ég hef verið dugleg að fara í gönguferðir innan bæjar sem utan. Dauðlangar auðvitað að skella mér á Hornstrandirnar með fjallafrænku en læt það bíða þar til við getum farið bæði saman skötuhjúin, jafnvel næsta sumar.
Góður tími framundan með fjölskyldunni sem vert er að njóta vel.
Vona að þið öll hafið það sem best hvar sem þið alið manninn og bestu kveðjur frá mér og mínum
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

28.6.2010 kl. 8:27

Sumar 2010

Góðan dag!
Hérðan er bara gott að frétta njótum þess að vera heima núna þessa dagana, góðir gestir að norðan þessa vikuna og við njótum þess að vera saman. Birkiilmurinn og ilmur af nýslengnu grasi fyllti vitin í morgun þegar ég rölti með Morgunblaðið og sólin gægðist aðeins á mig á milli skýjanna, jörðin var rennblaut eftir rigningu næturinnar og allt var eitthvað svo hreint ot tært. Núna bíð ég þess að Eva og Sævar vakni en þau ætla að eyða deginum í Fjölskyldu og húsdýragarðinum, eru ekki vaxin uppúr því sem betur fer !
Vona svo að þið njótið sumarsins eins og ég!

Bjartar vonir vakna
Í vorsins ljúfa blæ
Bjarmar yfir björgum
Við bláan sæ
Fagur fuglasöngur
Nú fyllir loftin blá
Brjóstin ungu bifast
Af blíðri þrá

Guðrún Sigurgeirsdóttir

26.6.2010 kl. 17:18

Sumarsæla.

Eins og sjá má hér að neðan eru bæði Malla og Guðrún búnar að heimsækja okkur með fjölskyldum sínum, það vantaði Ásgeir , hann var að vinna og svo kom Hjördís úr Bjarnarstöðum , með foreldrum sínum í grillveislu , sem hér var sl laugardag.Við Geiri fórum svo að heiman 22. júní og Guðrún , Kiddi og Eva Margrét fóru rétt á undan okkur til Akureyrar. Við fórum í Skagafjörð og gistum, síðan i Gauksmýri þar sem gamlir Hólasveinar mæltu sér mót og gistu tvær nætur.Þá fór Geiri heim og Jóhannes með honum hingað í Lundarbrekku og þeir fóru og gistu eina nótt uppi við Kálfborgarárvatn, en ég varð efir á Akureyri hjá Möllu og hún kom svo með mig heim í dag. Búið að vera gott og skemmtilegt , þökkum kærlega öllum sem við hittum í ferðinni.

Hjördís Kristjánsdóttir.

25.6.2010 kl. 18:11

Jæja þá kvitta ég

fyrir innlitið Þær mæðgur á Reyðarfirði farnar heim allt gott kom út úr skoðuninni á Særúnu hún mældist ekki með glútenofnæmi eins og álitið var en hún svarar gras og frjóofnæmi eins og amman Rignig hér þessa stundina er hlytt og þetta er allt hið besta mál nú fer að líða að hlöðuballið hjá frænda mínum verði Ég fer í sumarfrí a miðvikudaginn og hlakka ég til ekki búið að ákveða neitt nema ættarmótið að Hólum í Hjaltadal hafið það sem best kæru vinir og ættfólk

Guðrún besta frænka

24.6.2010 kl. 17:15

Frábært frí fyrir norðan

Sæl öll!
Við erum komin heim eftir skemmtilegt frí á Lundarbrekku og Akureyri, áttum þar frábæra daga með fólkinu okkar. Grilluðum saman systur með mömmu og pabba og þeim afkomendum sem komust. Við settum út kýrnar í fyrsta sinn á sumrinu með þeim Bjarnarstaðahjónum og fannst sumum það ansi gaman að sjá þær sletta úr klaufunum. Við Malla fórum líkaí góðar göngur á Akreyri, m.a. Kjarnakóg, Fálkafell og Naustaborgir. Ég þakka innilega fyrir mig og mína allir!!!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

22.6.2010 kl. 17:02

Norður fyrir heimskautsbaug

Kæru vinir.

Fjölskyldan komin heim eftir vel heppnað fjögurra daga ættarmót í Grímsey.Lögðum af stað frá Dalvík um 9,30 á föstudagsmorgunn ferjan full af fólki,bílum og fellhýsum.Fengum sléttan sjó og fallegt veður á leiðinni svo það var engin sjóveikur,Ég var svo heppin að fá fría ferð frá bryggjunni í grímsey og að húsinu sem við vorum með en afa bróðir minn vildi endilega fá að taka mig með í hestakerrunni sinni sem hann var búinn að smíða og eins og oft áður þá gat ég skemmt fólki vel á minn kostnað :) Við fengum sól logn og 17- 20 stiga hita alla 4 daganna úti í eyju og það gerist ekki oft. Við löbbuðum hrýnginn um eyjuna sem tók rúma 2 tíma svo var farið í sund,sumir fóru á tónleika með Álftagerðisbræðrum og komu til baka brosandi allann hrínginn,svo fóru margir á hagyrðingakvöld sem var vel heppnað ég skemmti mér svo vel.Svo var farið á þremur bátum hríng um eyjuna og margir nýttu sér það.En það var mikið um að vera þessa helgi vegna sólstöðuhátíðar Svo voru kríu hreiður skoðuð sem var ansi spennandi hjá fólki á öllum aldri enda voða gaman að sjá unganna koma úr eggjunum. Ef einhver gleymdi að hafa spítu með sér út á túnin þá fékk hann bara gat á höfuðið Krían var ansi grimm, svo náðu flestir ættingjar að kíkja á okkur í húsið og áttum við ljúfar stundir með þeim.Þannig að fjölskyldan kom heim í gærkveldi sæl og ánægð og vel útitekin.Og ég fékk besta matinn minn sem eru Bjarg egg og jónas fékk nautstungu sem systir mömmu kom með ojjjj.

Kveðja

kristín Reykjalín

20.6.2010 kl. 19:22

Sumarblíða dag eftir dag.

Kæra frændfólk og afmælisbörn síðustu daga til hamingju með afmælin.
Við Jói njótum nú sumarfrís og sumarblíðu hér á Akureyri. Höfum verið að laga til í kringum okkur og njóta útiveru og garðræktar með. Höfum haft fólkið okkar á sveimi í kring um okkur og stundum skemmtilega gesti í mat. Sævar verið í fótboltaskóla í síðustu viku og fer svo á siglinganámskeið í næstu viku fyrir utan hefðbundnar fótboltaæfingar. Vorum með fjölskyldugrill á Lundarbrekku í gærkvöldi. Vorum 14 mætt en nokkrir bundnir í vinnu. Áttum indislegan dag og Bárðardalurinn skartaði sínu fegursta. Njótið sumarsins. Kveðja Malla

Marína Sig.

20.6.2010 kl. 11:50

Jæja jæja

Nú þykir mér fólk vera pennalatt en af mér er það að frétta að ég fór í kvennahlaupið í gær á svo von á þeim mæðgum frá Reyðarfirði í dag Særún er að fara í ransóknir á barnaspítalanum en vonandi kemur bara allt gott út úr því Anna og Nonni koma svo í mat í kvöld þar sem enginn afmælismatur var 17 júni því afmælisbarnið var að vinna svo það var allt geymt til dagsins í dag Yndælis veður milt og gott þó það sé ekki 20 stiga hiti allur gróður svo fallegur en frjókornin og svifrykið algjörlega að gera útaf við mig sjaldan verið verri en kær kveðja í dalinn fagra og farið þið nú ættingjar og vinir að láta heyra frá ykkur kveðja

Guðrún besta frænka

17.6.2010 kl. 9:12

Gleðilega þjóðhátið !

17. júní, sólskin og blæjalogn svo fáninn okkar liggur lóðbeint niður.
Árni Þormóðsson og allir aðrir sem eiga afmæli í dag. Til hamingju með þennan bjarta og fallega afmælisdag og óskum Íslendingum til hamingju með að eiga hann og vonum að nú sé framundan betri tíð með blóm í haga.

Hjördís Kristjánsdóttir

17.6.2010 kl. 8:24

17 júni gleðilega hátíð

Fallegt veður hér í höfuðborginni og eflaust verður mikið um að vera en ég ætla bara að vera heima hef alla í mat á sunnudaginn þar sem afmælisbarnið verður að vinna í dag .Styttist í sumarfrí og það eg góð tilfinning. eigið góðan þjóðhátíðardag kæru vinir og vandamenn

Guðrún besta frænka

15.6.2010 kl. 9:34

Sól - skýjað

Samkvæmt veðurskýrslum hjá okkur frænkunum í Kópavogi þá var semsagt greinilega sól 6:39 (þá var ég ekki búin að gá til veðurs) en skýjað 9:30 spurning hvernig verður um hádegið.
kv. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

15.6.2010 kl. 9:30

Styttist í kærkomið sumarfrí

Góðan dag gott fólk!
Eftir marga góða sólríka daga er farið að rigna hjá okkur þó sérstaklega á laugardaginn og hreinsaðist þá eitthvað gróður og húsþök og þess háttar af öskuryki. Í dag er skýjað en hlýtt.
Krakkarnir komnir í frí og Ari byrjaður á fótboltanámskeiði hálfan daginn en hann er ekki alveg nógu góður í fæti, hefur eitthvað meitt sig og er búinn að vera haltur í þó nokkra daga en við fórum með hann til læknis og ekkert fannst þannig að það er bara málið að slappa aðeins af en ekki alltaf auðvelt á þessum aldri. Þrátt fyrir þetta stefnum við að því að fara á fótboltamót á Akranesi um næstu helgi og vonum bara að hann verði orðinn hress, þar sem hann er búinn að bíða svo lengi eftir að komast á alvöru fótboltamót. Annað kvöld er stefnan hjá okkur að labba Leggjabrjót með Útivist, sjáum aðeins til á morgum hvernig veðurútlit verður. Við byrjum svo í frí um mánaðarmót og sjáum til hvað við gerum, líka bara gott að vera aðeins heima í fríi.
Njótið sumarsins
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

15.6.2010 kl. 6:39

Sá er ekki ríkur sem mikið á, heldur hinn sem lætur sér nægja. -Jón Vídalín

Góðan dag!
Súld og sól hér í dag..... skrítið en satt. Ég er búin að rölta með Moggann en hinir sofa, Eiríkur er byrjaður að vinna í Vinnuskólanum og er hann þar í sláttuhóp og líst vel á, en hann fær vinnu 6 tíma á dag 4 daga vikunnar. Annars er gott að vera komin í sumarfrí, ég nýt þess vel og er núna að klára hitt og þetta sem setið hefur á hakanum, stefnan svo tekin norður þegar líða fer á vikuna.
Njótið dagsins

Guðrún Sigurgeirsdóttir

14.6.2010 kl. 21:48

Ja hérna

Nú er Jónas frændi minn búin að auglýsa hlöðuball 10 júli á Lundarbrekku 2 allt getur nú skeð og ýmislegt fréttir maður á fésinu. Allir frændur mínir kvarta undan hitanum þarna fyrir norðan svo ef sólin skín ekki hvarta þeir undan því kunna ekki gott að meta af mínum dómi Annars allt gott að frétta héðan smá styttist í sumarfrí og verður það ljúft. Búin að kvitta í dag sé að það líða 2-4 dagar milli skrifa hjá mér og mér finnst það nú bara harla gott af svo pennalatri konu að vera lifið heil og njótið blíðunnar kveðja

Guðrún besta frænka

14.6.2010 kl. 16:33

Jæja

Ég skrifaði hér í fyrradag og aftur í dag og enginn á milli. Það er vestan kaldi og 18-20°hiti. Verið er að reka síðustu lambærnar úr Bjarnarstöðum , sem voru hér á túnum, suður eftir til sleppingar.
Geiri er farinn á fjórhjóli upp í heiði að skoða hvenær verður bílfært , það er alltaf ótrúlegt leysingarvatn sem kemur suður af Brunnfellinu. Góðar kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

12.6.2010 kl. 20:58

"Megi dagur hver fegurð þér færa"

Ekki má gleyma " konudeginum " , sem er fyrsti dagur Góu og svo hinn óþjóðlegi "Valentínusardagur"
sem hefur rutt burt Yngismeyjadegi og Yngismannadegi. En við höfum ekki fengið rigningu á þessum sólarhring, en hefðum alveg þegið það. Skruppum í bíltúr og vegarykið hér á malarvegunum er kæfandi. Bestu kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir

12.6.2010 kl. 19:28

Mæðradagur yngismeyjadagur yngissveinadagur bóndadagur og

nú bætist einn enn við ÖMMUDAGURINN á morgun allar ömmur knúsa ömmu og langömmubörnin sín svo á víst að vera AFA daur í október eins gott að muna þetta allt saman En hér hefur ringt í dag kærkomin bleyta á gróður og menn fallegt sumar sem af er hafið það gott og allar ömmur munum eftir morgundeginum kveðja

Guðrún besta frænka

10.6.2010 kl. 20:28

10. júní

Góða kvöldið!

Hér rigndi í gærkvöldi og morgun en ekki sosum nein ósköp og mætti gjarnan rigna meira en það verður nú sennilega bætt úr því um helgina. Annars á ég eftir að vinna einn dag og er þá komin í sumarfrí sem verður vel þegið. Eiríkur og Eva Margrét fengu sína vitnisburði í dag og eru því komin í sumarfrí og Eiríkur hefur lokið grunnskólanámi. Ég fór í mína vikulegu Útivistarræktar-göngu í gærkvöldi ásamt þeim frænkum mínum Hönnu og Elmu og gengum við á Stóru-Eldborg og Geitahlíð en það er stutt frá Kleifarvatni. Vildi nú bara láta aðeins í mér heyra hér en fagna einnig að mamma skuli hafa látið til leiðast og stofnað síðu á Fésbókinni.
Njótið daganna eins vel og þið getið.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

8.6.2010 kl. 20:31

Stór dagur hjá frænkum mínum

Óska ykkur Dika og Óli til hamingju með 30 ára brúðkaupsafmælið og Guðrún mín til hamingju með 30 ára fermingarafmælið Stína og Atli til hamingju með daginn og svo hugsa ég til frænku og Sigurðar blessuð sé minning þeirra 19 maí sl átti ég 55 ára fermingarafmæli þann dag sem ég fermdist var snjóslydda og leiðinda veður Gott veður hjá okkur í dag en á vist að fara að rigna þá losnum við við öskuskýin lifið heil

Guðrún besta frænka

8.6.2010 kl. 16:37

Rabbarbari.

Sæl verið þið öll
Ég er að sjóða fyrsta rabbarbaragraut sumarsins og það þykir alltaf hátíðamatur á mínu heimili. Ég hefi verið að hugsa um það stundum á undanförnum misserum að í allri umræðunni um heimaafurðir og beint frá býli hafi rabbarbari sjaldan verið nefndur. En nýlega heyrði ég viðtal við bóndakonu ( hún var nú ekki íslensk að uppruna ) sem er með rabbarbarabúskap í stórum stíl , sultar og selur, en upplýsti jafnframt að mestur sá rabbarbari sem notaður er á Íslandi er innfluttur.Því þótt rabbarbari sé ódýr afurð að sjá , krefst uppskeran mikils vinnuafls og ekki nema skammur tími af árinu sem hægt er að rækta hann og uppskera. Það er logn 20°hiti og heiðríkja og vegurinn undir ryklínu lengt af. Hafið góðar stundir

Hjördís Kristjánsdótir

7.6.2010 kl. 8:49

Gleymdi

að geta þess að ég lét tilleiðast fyrir
þrýsting frá mínu fólki að fara á fésbókina. Þetta getur sjálfsagt verið mikil dægrastytting, en ekki mun ég nú verða þar inni tímunum saman held ég

Hjördís Kristjánsdóttir

7.6.2010 kl. 8:42

Góðir dagar

Sæl verið þið öll. Þakka þeim sem hafa verið svo dugleg undanfarið við að skrifa á síðuna okkar.
"Sólskin um daga og döggfall um nætur", var talið hið ákjósanlegasta tíðarfar í gamla daga og það er einmitt veðurfarið sem við höfum haft undanfarið, enda loks allt orðið sumargrænt. Siggi Hreinn og fjölskylda, velkomin til Akureyrar , vonandi hafa flutningarnir gengið vel. Malla heimsótti okkur um helgina , en Jói og Sævar voru í fótboltaferðalagi fyrir sunnan. Malla fór með mig í sunnudagsbíltúr, fórum í Ingjaldsstaði og upp í Hótel Gýg í Mývatnssveit, þar sem Anna Sæunn er að vinna. Í gær var Bjarnarstaðaféð , sem hér hefur verið í vor, sótt, nema það sem flutt verður í afrétt, það verður hér áfram þar til lengra er liðið á vorið-sumarið.Annars fátt í fréttum Bestu kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir

6.6.2010 kl. 10:31

Veisluhöld á enda

kæru vinir af okkur er allt gott að frétta Aldís varð 7 ára 3 júní og hélt ég upp á afmælið 30 maí,um morguninn komu bekkjasystkini hennar og vinir og það var glatt í höllinni. Eftir hádegið þegar foreldrarnir voru passlega búin að koma húsinu í rétt horf,:) komu ættingjar í kaffi og áttum við yndislegan dag með þeim og ekki spilti veðrið fyrir. svo átti Aðalsteinn afmæli þann 4 og bauð hann okkur í kvöldmat og mætti ég með tertu til hans enda var ég komin í bakstursgírinn hehe.Svo í gær þann 5 þá var grillhátíð í kjarnaskógi á vegum Íslenskra Ættleiðingar og vorum við þar frá 11-14 í sól og blíðu. Börnin busluðu í læknum og nutu þess að vera til á meðan foreldrarnir spjölluðu saman.En svo þurftum við jónas að fara um 14.00 þar sem við áttum von á kína vinkonum Aldísar og foreldrum þeirra í afmæliskaffi sem sagt þriðja veislan í afmæli,en nú sést fyrir endan á þessum veisluhöldum þegar þessi sunnudagur verður búin en í dag liggur leiðin til Ólafsafjarðar þar sem systurdóttir mín er með stúdens og tvítugs afmælisveislu og er hún svo á leið til Noregs í háskóla í haust en fer eftir nokkra daga og ætlar að vinna úti í sumar og ná tungumálinu vel. Jónas fór í morgun að hjálpa Sigga Hreini að flytja fínt fyrir sigga að fá frænda sinn enda vanur maður á ferð í (flutningum) vonandi hafið þið það öll gott.

Bestu kveðjur kristín ( sem er skaðbrennd eftir kjarnaskóg í gær )

kristín Reykjalín

6.6.2010 kl. 10:31

Jæja þar kom að því

að hún Dísa skellti sér á facebook bara gaman en ég vil minna ykkur á að gleyma ekki þessari síðu okkar þótt allir séu á snjáldrinu þetta má ekki gleymast. Sjómannadagurinn í dag og sjómaðurinn minn er í höfn í dag en fer aftur á sjóinn á morgun gott veður og allir ánægðir Litla ömmustelpan kom óvænt í heimsókn til ömmu í gærmorgun kl 5.30 keyrðu að austan í fyrrinótt hún og Sjonni og fóru aftur heim í morgun skemmtileg heimsókn snögg en góð eigið góðan dag kveðja

Guðrún besta frænka

6.6.2010 kl. 10:14

Sjómannadagur

Ég óska sjómönnum og sjómannskonum um land allt til hamingju með daginn. Hér er allt í rólegheitum, síðasta skólavika barnanna á morgun, Eiríkur útskirfast úr grunnskóla á fimmtudaginn. Eva Margrét fær einnig sinn vitnisburð þann dag. Ég er að vinna þessa viku og er svo komin í sumarfrí eftir það. Við frænkur ég, Hanna og Elma ásamt Guðrúnu svilkonu minni gengum á Esjun n.n.t. Þverfellshorn í gær í blíðskaparveðri, gengum semsagt uppúr öskuskýinu. Fengum ágætt útsýni miðað við þessar aðstæður. Allar glaðar að hafa náð toppnum. Við fórum svo á útgáfutónleika Ljótu hálfvitanna í Íslensku óperunni í gærkvöldi og var það mjög gaman, það er snillingar þar á ferð. Vona svo að þið eigið góðan Sjómannadag og bið að heilsa í bili.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

4.6.2010 kl. 20:08

Það er komið sumar

Þetta er hending úr dægurlagatexta sem tengir mig alltaf við Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit. En nú er komið sumar hér á Akureyri eftir heldur grátt og kalt vor.
Langt er síðan ég hef ruðst hér fram á ritvöllinn en ekki er það nú samt vegna þess að ekkert hafi verið um að vera í kring um mig. Við Jói fórum til Gautaborgar í Svíþjóð dagana 25.-30 maí, ásamt samstarfsfólki mínu úr VMA. Hópurinn taldi 64 og var ferðin í alla staði vel heppnuð. Jói er síðan í kvöld í óvissuferð með sínu samstarfsfólki í Lundarskóla og óvissunni átti að linna í kvöldverði beint frá býli í Kiðagili í Bárðardal. Vonandi njóta þau fegurðar og góðra veitinga í dalnum góða. Ásgeir minn tók síðasta prófið þetta vorið í dag og Sævar á bara eftir einn dag í skólanum þetta vorið og svo tekur fótboltinn við af fullum krafti. Þeir feðgar eru á förum í fyrramáli í æfingarferð til Reykjavíkur, Jói reyndar sem fararstjóri en ég ætla að skreppa og eyða helginn á Lundarbrekku. Þeir stóru mínir verða heimavið að sinna sínum hugðarefnum. Ásgeir fer að vinna á Hótel Gíg 14. júní en í kvöld er hann að halda upp á próflok með því að standa vaktina á Strikinu í uppvaskinu. Gaman að heyra frá ykkur öllum hér á síðunni og velkomin til Akureyrar Siggi Hreinn og fjölskylda. Vona að sumarið verði okkur gott og að við getum notið landsins gæða á einn eða annan hátt. Kveðjur Malla

Marína Sig

1.6.2010 kl. 20:59

Júní byrjun

Heil og sæl öll. Þakka ykkur síðustu skrifin hér á síðunni, alltaf gaman að fylgjast með og fá fréttir af því sem þið eruð að gera Ég dáist að því Guðrún frænka hvað þið skólasystur frá Húsmæðraskólanum á Laugum eruð samstiga og duglegar enn í dag að koma saman og hittast. Hér þokast hægt og bítandi með gróðurinn , gamli Lundhóllinn orðinn fagurgrænn , en hann er líka alltaf allra túna grænastur. Geiri fór í dag á fjórhjóli hér upp í heiði að skoða sig um og sagði að snjórinn væri næstum allur farinn en ekki nálægt því að tímabært væri að sleppa fé. . Túnin eru mjög falleg , hvergi kalblettur og aðeins að byrja að grænka birkið hér í brekkunum og lengra komið í görðunum við húsin. Nú er tölvan eitthvað að kvarta svo það er best að slá botninn í þetta. Bestu kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir

31.5.2010 kl. 18:31

Maí-lok

Góðan dag!
Ég vil byrja á að þakka afmæliskveðjurnar til Evu Margétar og Eiríks. Þau bæði orðin árinu eldri þ.e. 12 og 16 ára. VIð höfum nú ekki enn haldið uppá afmælin en það stendur til bóta þegar líða fera á vikuna. Á föstudaginn útskrifaðist Kristófer (hans Kidda) stúdent úr MR og var hátíðleg athöfn í Háskólabíó en svo vorum við með veislu í litlum sal í Hátúni og var það mjög skemmtilegt.
Á morgun er svo kominn 1. júní en þetta er næst síðasta vinnuvikan hjá mér fyrir sumarfrí og verður það vel þegið. Eiríkur verður í bæjarvinnunni í sumar og svo auðvitað verður hann að bera út Morgunblaðið. Í haust fer hann svo í MK á viðskipta og hagfræðibraut. Gaman að fá smá fréttir hér inn og takk takk fyrir það. Jæja læt þetta duga í bili.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

30.5.2010 kl. 16:51

Komin heim

úr Reykjadalnum þar sem við skólasysturnar frá Laugum héldum upp á 50 ´ara skólaafmæli og vorum á Narfastöðum í góðu yfirlæti og frábærum móttökum hittum þar okkar gamla kennara Inga Tryggvason og voru fagnaðarfundir veður gott og við fórum í Mývatnssveitina og skoðuðum fuglasafnið þvílíkt flott safn þar og gaman að skoða kíktum aðeins á jarðböðin og borgir við Dimmuborgir síðan heim í veislumat og gleðskap endalaus gleði hjá okkur og helgin í alla staði vel hepnuð hugsuðum ekki um kosningar eða evrovision en vissum samt að Hera lenti í 19 sæti og Jón gnarr væri siguverari í Reykjavík í kosningum en við vorum ekkert spenntar fyrir þessu miklu meira gaman hjá okkur skoðuðum gamla skólann okkar undir dyggri stjórn Aðalbjargar Pálsdóttur og það var gaman hafið það sem best

Guðrún besta frænka

29.5.2010 kl. 8:46

Flutningar

Smá fréttir af héraði. Við erum að flytja til Akureyrar, ég fer um næstu helgi, en Bryndís og strákarnir verða hér til 9 júlí.

Siggi Hreinn

28.5.2010 kl. 9:40

Blíða áfram....

Góðan dag
Allt gott að frétta hjá okkur og nóg að gera hjá öllum í vorblíðunni. Særún er að klára síðasta prófið í dag og svo styttist í að skólinn klárist hjá krökkunum. Fulltrúar frá Skál(m) fóru í fjallgöngu með Útivistaræktinni á miðvikudagskvöld í dásamlegu veðri. Við fögnum komu nýrra fulltrúa í hópinn og það skal tekið fram að það er ekkert skilyrði að vera orðinn fertugur :)
Á morgun erum við boðin í stúdentsveislu en dóttir Halldóru systur Palla er að útskrifast úr MS. Palli fer síðan á Laugarvatn á morgun og fagnar 25 ára stúdentsafmæli í sólahring. Við erum búin að ákveða að skella okkur í göngu ef veður verður gott ásamt Guðrúnu og Kidda þann 16 júní Leggjabrjót með Útivist það er gengið um nóttina. Palli fer svo 29 júní í aðgerð að láta fjarlægja æðahnúta af fæti og verður þá ekki fjallgöngufær í júlí en við verðum í sumarfríi í júlí. Ekkert sérstakt skipulagt í fríinu nema við höfum sumarbústað í Geirlandi við Kirkjubæjarklaustur 23-30 júlí, þannig að þið eruð velkomin í heimsókn ef þið eruð á ferðinni.
Ari minn er alltaf í boltanum og er löngu farinn að telja niður fyrir "Skagamótið" sem verður helgina 18-20 júní.
Góða helgi
kveðja Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

27.5.2010 kl. 19:58

Allt gott í Glaðheimum

Góða kvöldið
Tíminn líður svo ótrúlega hratt að mér finnst ég alltaf vera nýbúin að tjá mig hér en svo er greinilega ekki. Ég hélt sem sagt upp á fertugsafmælið mitt þann 30. apríl síðastliðinn, það var mjög vel heppnað þó ég segi sjálf frá, á annað hundrað manns skemmtu sér mjög vel fram eftir nóttu. Guðrún Sigurgeirs, frænka mín og hennar maður voru einu fulltrúar föðurfjölskyldu minnar fyrir utan þann gamla sjálfan og voru ættinni til sóma :-) Ég og Atli litli fórum svo norður og vorum þar í 10 daga í sauðburði á Ingjaldsstöðum, komum við hjá Möllu og Jóa á leiðinni norður til að þakka afmæliskveðjur og fallega gjöf. Þráinn kom svo á eftir okkur norður og við fórum svo í fermingu hjá bróður hans á Húsavík á hvítasunnudag. Við komum svo suður aftur á annan í hvítasunnu og hér hefur bara verið blíða síðan og við notið þess að vera úti. Mamma á afmæli í dag og fór að venju með pabba í afmælisbíltúr, að þessu sinni fóru þau í Mývatnssveitina þar sem var slydda í dag. Ég fékk svo inngöngu í Skál(m) eftir fertugsafmælið og er búin að fara í eina fjallgöngu með þeim félagsskap en vonast til að þær verði mikið fleiri í sumar. Við keyptum svo trampolín og settum í garðinn í gær við mikinn fögnuð Atla litla sem er í dag bæði búinn að fá Fanneyju Birtu frænku í heimsókn og einnig kærustuna af leikskólanum. Sem sagt allt gott úr sólinni í Glaðheimum.
Elma

Elma

26.5.2010 kl. 9:11

Þvílíkt sumarveður eða hitt þó ............

Ég sé að þinn sunnlendingar dásamið veðurfarið í hástert núna, það er annað hér grátt í fjöllum og var grámi í flögum hér í morgun,og þvílíku kuldi sem er þessa daga.Sauðburður er nánast búinn en allt fé á gjöf ennþá bæði úti og inni,en svo gengur það ekki til lengdar, þá fara að verða afföll á fénaði. Þráum orðið hlýrra veðurfar.Minnsti Ólinn að staulast fram en þeir eru þrír Ólarnir hér núna.Svo er einn frændi hér þræll þessa dagana en það er Pétur Ívar Kristinsson (Pétursonar frá Fellshlíð) Hjördís hefur verið heima allan maí og hefur það verið alveg óskaplega gott að hafa hana heima.Geiri er alltaf við vinnu í Kiðagili og Anna er að vinna upp í Mývatnssveit á hótel Gýg. Ætla svo að fara að verða duglergri að skrifa hér inn.

Friðrika

22.5.2010 kl. 19:20

Þvílikt sumar veður hér síðustu daga

Sælt veri fólkið Sumarið er komið og sólin blessuð skín litla fjölskyldan á Reyðarfirði er hér í heimsókn núna það var verið að útskrifa dóttur Sigurjóns stúdent frá Verslunarskólaum í dag Særún fór í maga speglun í gær hún er komin með glúten ofnæmi og það er sko bara alls ekki gott að gefa henni að borða hún má ekki borða neitt sem hveiti er í ekki allar sósur en spelt skal það vera í því sem hún má borða ég fæ vist langan lista yfir þann mat sem hún má borða fljótlega þvílík uppá koma Um næstu helgi verð ég stödd í Reykjadalnum að halda upp á 50 ára útskriftar afmæli frá Húsmæðraskólanum að Laugum og er mæting mjög góð eins og alltaf höfum hist á 5 ´ára frest frá því við yfirgáfun skólann og alltaf yfir 20 sem mæta öll árin og eins verður núna vorum 28 en 3 eru dánar og 3 sem ekki geta mætt svona hefur það verið frá upphafi bara gaman Vona bara að Eyjafjallajökull setji ekki flugbann á Akureyri næsta föstudag annars allt gott frá mér og mínum eigið góða hvítasunnuhelgi gott fólk kveðja

Guðrún besta frænka

22.5.2010 kl. 7:01

LOGN

Get ekki orða bundist yfir þessu dásemlega veðri sem var hér í gær og er líka núna í morgunsárið. Við Eiríkur bárum út Morgunbalðið bæði laugardags og sunnudags og það er 11 stiga hiti og LOGN sem gerist bara ekki oft hér, það er reyndar alveg skýjað. En dásalegt að rölta með blaðið og hlusta á fuglana. Margir hverjir afar uppteknir við að sinna hreiðurgerð.
Við Kiddi fengum okkur kvöldgöngu til góðra vina hér í gærkvöldi og áttum þar ljúfa stund.
Eigið góðan dag í dag!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

21.5.2010 kl. 19:29

Hvítasunna

Sæl öll!
Ég var búin að skrifa hér pistil inn á fimmtudag en týndi honum út og mátti ekki ver að því að skrifa hann aftur en bæti úr því hér. Af okkur er allt gott að frétta en við eyddum síðustu helgi í sumarbústað í Munaðarnesi og var það mjög afslöppuð og yndisleg ferð. Núna eru krakkarnir í prófum en þeim lýkur í lok næstu viku. Veðrið í dag hefur verið yndiselgt og spáir nokkuð vel um land allt um helgina. Ég fer í mínar fjallgöngur á miðvikudagskvöldum og laugardagsmorgnum en það heldur mér í andlegu og líkamlegu formi (ef form skal kalla :-))
Í fyrramálið stefnum við frænkur á Vífilsfell en það er tilraun tvö hjá okkur við það en við fórum þangað um páskana en snérum við vegna hálku þegar stutt var eftir. Nú er allavega autt þar það er öruggt! Kiddi er á réttri leið en má ekki fara í neina sjúkraþjálfun fyrr en þrír mánuðir eru liðnir frá aðgerð og er það ekki fyrr en í byrjun í júní. Vonast ti lað heyra frá ykkur núna um hvítasunnuna kæra frændfólk.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

20.5.2010 kl. 17:34

Þetta er ekki hægt.

Sæl verið þið öll og þakka þér Kristín fyrir að hafa lofað okkur að heyra frá ykkur og þakka Jónasi og Aldísi heimsóknina og þakka fyrir afmælisgjöfina rausnarlegu frá Gósu ,börnum hennar og fjölskyldum. Ég man ekki hvort ég kom því á framfæri hér á síðunni , en geri það þá aftur . En það er vika síðan einhver hefur tjáð sig hér í gestabók og það fannst mér orðið fulllangt. Hér er indælis veður , en lítið um sólskin. Búið að rigna nokkuð í gær og dag og túnin að grænka, ekki komið nein aska hér en þungbúið í suðurloftinu suma daga og Dyngjufjöllin hverfa í eitthvert myrkur öðru hvoru sem gæti alveg orsakast af öskufalli.Geiri er búinn að fá heim nokkrar lambær til að gefa, bæði inni og nokkrar komnar út á tún. Svo skreppur hann í Bjarnarstaði á morgnana .Annars er ekki margt að segja, sauðburður stendur sem hæst og hver hefur nóg að gera heima hjá sér.Malla , Jói og Sævar komu hér um síðustu helgi oghjálpuðu okkur við ýmislegt sem þurfti að komast í verk, m. a. að umpotta rósirnar mínar og "skera niður" stofninn, það þurti að fækka þar eins og sums staðar annars staðar. Við vorum mjög ánægð með það sem gert var þá og þökkum þeim innilega fyrir . heimsóknina og hjálpina. Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

13.5.2010 kl. 16:51

restin datt út

eitthvað hefur þetta skólast til en læt þetta bara duga í bili.

kveðjur til ykkar allra. Kristín.

kristín Reykjalín

13.5.2010 kl. 16:47

Loksins vaknaði ritarinn

Sælt veri fólkið.

Loksins nennir maður að skrifa eitthvað hér inn,ég er voða löt við þetta þegar ég er í skólanum. Annað hvort er ég að læra, skrifa eða gera verkefni heima svo á meðan sitja önnur skrif á hakanum :(. Í gær kláraði ég síðasta prófið á þessari önn og á þá bara einn vetur eftir,þetta kemur allt hægt og bítandi. Ég verð í fríi þar til mánaðarmótin júní/júlí þar sem Endurhæfingalífeyrinn hjá mér er ekki búinn fyrr en 30 júní,ég tek 20 vaktir á Hlíð í sumar sem ég fæ metnar upp í námið,en ég þarf að vinna 80 vaktir til að útskrifast og vonandi klára ég þessar 60 næsta sumar. Jónas er að vinna í Becromal á vöktum en vonandi hætta þar um næstu mánaðarmót þar sem hann fékk að breyta um og fara á lagerinn og verður þá á dagvöktum,tarnirnar voru svo miklar á vöktunum og varla sest niður í 8 tíma og hann var ekki að þola það,þá meina ég skrokkurinn gigtin blossaði bara upp og stanslausir verkir og bólgur. En hann neyddist til að heimsækja Ýngvar Teits :) og þið sem þekkið til hans þá kom jónas með lyf við hinu og þessu heim eftir fyrstu heimsókn.

Systkini mömmu sem eru 6 hafa alltaf hist á 2 ára fresti,börn þeirra og barnabörn í skagafirði hjá systur mömmu og við höfum átt frábæra helgi saman. Núna er stefnan tekin á Grímsey 18 júní en afi er þaðan og ekki margir komið þangað né oft og var ákveðið að hittast þar og hlakka ég mjög til Baldur,Sandra,Jón Þór ,Alli og sigga ætla öll með. Aldís er voða spennt að fara því mamma bauð okkur systrum fyrir 2 árum til Grímseyjar og Aldís skemmti sér mjög vel þar, henni fannst skrítið að sjá þegar var verið að háfa Lunda svo voru egg um alla eyjuna og litlir ungar í hreiðrum bara við fæturnar á henni. Það situr samt í henni að þurfa fara með Æluskipinu (sæfara) hún veit ekkert hvað skipið heitir það er bara æluskipið haha. En það verður fengið sér sjóveikistöflur núna svo helgin verðir ekki alveg ónýt hjá mér því ég var veik í 2 daga.
Aldís og Jónas skruppu í Bárðadalinn í vikunni og tóku Sigga kristjáns og son hans með, það var farið í Bjarnastaði og mér skilst að börnin hafi skemmt sér vel og Aldís var víst dugleg að borða hjá Friðriku frænku sinni og alveg ófeimin að tjá sig þar. Svo var komið við hjá Dísu og Geira í Lundarbrekku.

Af Alla og Sigríði er allt gott að frétta,en þau stefna að flytja suður ef sigga fær vinnu, en hún útskrifaðist sem lögfræðingur í janúar. Hún er að vinna hér á Akureyri og þau búa saman í íbúðinni sem mamma hennar á. Aldís er mjög ánægð í skólanum og

kristín Reykjalín

13.5.2010 kl. 15:09

Uppstigningardagur.

Sælt veri fólkið.
Þakka ykkur fyrir síðustu skrif á síðuna, gott að heyra frá ykkur og fylgjast með ykkur.Það er þokuloft, svalt og hellirigndi í gær og það er nú bara af því góða meðan ekki er krap og kuldi. Nú er sauðburður í hámarki og fé þarf að fara að komast út, það er farið að
grænka túnið hér en munar miklu hvað allt er seinna á ferð með gróður í Víðikeri. Við skruppum þangað í gærkvöldi , Páll bóndi var sextugur í gær og ættingjar ,vinir og nágrannar heimsóttu hann.Meira að segja móðir hans, Kristbjörg fyrrum húsfreyja í Víðikeri, 92 ára lét sig ekki vanta.Ekki er annað hægt en hugsa til fólksins á öskufallssvæðunum sem berst nú við að halda lífi í skepnum sínum, vonandi fer nú þessum ósköpum að linna , þótt ekkert bendi til þess.Ég er að lesa ÁBÚENDATAL,til upplýsinga um bændur í Bárðdælahreppi 1792 -1946. Ætla mætti að þetta sé ekki skemmtilesning og það er reyndar öðru nær á köflum. Hér á Lundarbrekku deyr árið 1856, 64 ára gömul kona, Elín Jónsdóttir hjá dóttur sinni og tengdasyni.Lífshlaup þessarar konu er slíkt að jafnvel á þeim tíma hlýtur það að vera óvanalega hörmulegt.. Hún er fædd 1794 á Gautlöndum. Missir föður sinn 1811 og fór þá á 16. ári í Baldursheim. Giftist 6. okt 1817. Eignast a.m. k. 5 börn með þeim manni, tvö deyja ung.
Maður hennar drukknar í Skjálfandafljóti í febrúar 1824. Elín giftist aftur 1825. Hann dó 1826. Í sömu viku dó barrn þeirra og móðir hennar, en rúmum mánuði síðar dóttir hennar af fyrra hjónabandi. Enngiftist Elín 1827. Var hún þá 33 ára. Með þeim manni býr hún á 4 bæjum í Bárðardal uns sá maður deyr úr holdsveiki,hafðí þá "legið krepptur í 12 ár, Þar af blindur í 10 ".En svo er ég að lesa bókina um Vigdísi forseta og það er nú allt önnur Ella. Nóg að sinni Kærar kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir

10.5.2010 kl. 10:02

Komin í Kórfrí!

Góðan daginn gott fólk, þá ætti nú að fara að róast hjá mér, sl. tvær vikur hafa snúist um söngferð, æfingar og aftur æfingar og uppskeran var flottir tónleikar í Háskólabíói á laugardag. Takk fyrir komuna Guðrún "besta frænka". Föstudagsmorguninn kl. 6 gengu líka Léttsveitakonur ásamt fleira fólki upp á Úlfarsfell með FÍ og þar sungum við og héldum að við fengjum góða auglýsingu í Kastljósinu um kvöldið en Halldór Ásgrímsson sá líklega um að það gat ekki orðið! Jæja við nánast fylltum samt Háskólabíó og myndir úr fjallgöngunni og söngnum runnu á skjá í andyrri Háskólabíós fyrir og eftir tónleikana en það var ekki RÚV að þakka heldur einni kórkonu sem var dugleg að taka myndir í fjallgöngunni. Eins og venjulega var okkur kórkonum og tónlistarfólki boðið heim til kórstjóra eftir tónleika í mat og drykk og auðvitað héldum við áfram að syngja og syngja þar, þannig að laugardagurinn var orðinn mjög svo langur og strangur og verulega þreytt en glöð kona sem kom heim um miðnætti. Í gær ákvað ég svo að baka pönnukökur og fleira góðgæti og bjóða fjallafrænku og fjölskyldu í mæðradagssunnudagskaffi í góða veðrinu. Í gærkvöld skelltum við okkur svo með þeim í ferðalag inn í Fljótshlíð og gengum á Þórólfsfell og upplifðum drunur og gosmökk og eldglæringar í blíðskapar veðri og glimrandi útsýni, þannig að þessi annasama helgi endaði líka á fjallgöngu eins og í raun hún byrjaði. Rauninni frekar lélegt hjá mér að ganga bara á eitt fjall í góða vorveðrinu í gær, alla vega miðað við Guðrúnu sem skellti sér á þrjá toppa í gær!!! :)))
Litlu stelpur yngri voru nú stórhneikslaðar á okkur að vera að fara í svona ferð á sunnudagskvöldi........."bara fáránlegt að láta sér detta þetta í hug" þessar elskur voru auðvitað að passa Ara eins og oft áður en Eiríkur skellti sér með okkur. Við komun nefnilega dálítið seint heim en þær jafna sig á þessu og verða fljótar að bjóða fram krafta sína aftur til að passa amk. ef launin eru góð. Þrátt fyrir að við höfum farið að "skoða gosið" í gærkvöld þá væri nú allra best að því færi að ljúka því nógu er það nú búið að valda og raska. Mamma skemmti sér svo vel á tónleikunum hjá okkur á Dalvík og ætlaði að koma suður á laugardaginn og skella sér á tónleika því hún er líka aðdáandi Álftagerðisbræðra en svo var öllu flugi aflýst þannig að hún sat bara heima.
Jæja nú ætla ég að hætta þessu skrafi mínu hér.
Hafið það sem allra best
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

9.5.2010 kl. 6:17

Þvíkík tónlistarveisla

í gæ hjá Léttsveitinni og Álftagerðis bræðrum fullt Háskólabío og góðar undirtektirég skemmti mér svo vel og þar með lauk tónleikavorinu hjá mér hver veislan á fætur annari gat ekki verið betra Hanna frænka takk fyrir mig Sumarið er komið öll tré að springa út og farið að hlýna hugurinn er hjá bændunum á suðurlandinu sem ekki geta sett út lambfe´þetta er bara hræðilegt annars allt gott að frétta gleðilegan mæðradag allar mömmur farið vel með ykkur kveðja

Guðrún besta frænka

6.5.2010 kl. 22:57

Ég er alltaf

að láta heyra frá mér Dísa mín en ekki tel ég það efti mér að kvitta Gaman að frændi fer í fjárhús á sinn gamala heimavöll knús og kveðjur

Guðrún besta frænka

6.5.2010 kl. 20:49

Vorið er komið( a. m. k. í bili.)

Síðustu daga hefur verið mikil blíða og gömlu fannirnar að láta undan. Fljótið er að vaxa ídag og stefnir í vorflóð á næsta sólarhring, enda ,hiti síðustu sólarhringa 4-16°og byrjað að grænka hér í Hólnum.Nóg af gæsum, þröstum og álftum, en færra af lóu, stelk og maríuerlu þótt nokkrir fuglar hafi sést. Spóa hefi ég ekki séð ennþá. en það er nú ekkert að marka því ég er ekki mikið úti við. Það er ekki fjölmennið í kringum okkur , en Geiri fer á hverjum morgni í Bjarnarstaði og tekur fjárhúsavakt á meða verið er að mjólka. Fyrsta ærin okkar er borin og átti tvær gimbrar. Látið nú heyra í ykkur. Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

5.5.2010 kl. 8:44

Maí

Góðan og blessaðan daginn!
Í dag er hér þoka og súld en alveg ágætis veður engu að síður. Vor í lofti og fuglasöngur heilsaði mér í morgungöngunni minni með Moggann.
Hitastigið hefur hækkað töluvert en sennielga mun meira norðan heiða en sunnan. Eldgosið heldur sínu striki og virðist ekki vera í rénun. Hér í skólanum er verið að undirbúa heilmikla hátíð sem fram fer á laugardaginn en þá er haldið uppá 35 ára afmæli skólans. margt verður til sýnis og dagskrá í gangi bæði utandyra og innan. Ég er komin í göngu gírinn aftur eftir támeiðslin og reyni að finna mér fjall svona tvisvar í viku til að halda heilsu. Þetta er nefnilega fín leið til að halda andlegu jafnvægi og innri ró að ganga :-). Maímánuður er svo mánuður prófa hér í vinnunni og einnig eru krakkarnir mínir í prófum og Eiríkur að klára 10. bekkinn. Kristófer verður svo stúdent 28. maí. Eva Margrét og hennar lið í 6.flokki í handbolta unnu um síðustu helgi gull-verðlaun á síðasta móti tímabilsins og er semsagt enginn tapaður leikur á tímabilinu og er það góður árangur.
Vona að þið eigið góðan maí-mánuð og vonast til að fá fréttir af einvherjum hér í síðunni við fyrsta tækifæri.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

30.4.2010 kl. 11:27

Komin heim.

Ég kom heim í gær eftir að hafa dvalið eina viku í Reykjavík og notið þess að láta Guðrúnu mína og fjölskyldu hennar stjana við mig.
Elsku Rúna mín, Kiddi, Eiríkur og Eva Margrét. Hjartans þakkir fyrir samveruna og allt. Elsku Guðrún mín "besta"og Árni, Hanna mín, Palli og
Ari, takk fyrir síðast. Ef einhverjir fleiri sem ég hitti sjá þetta , sendi ég bestu kveðjur og þakkir fyrir síðast. Hér er kalt og þungbúið ennþá , en vonir um betra veður með maí. Ég fór á kvenfélagsfund í Kiðagili í gærkvöldi, borðuðum saman súpu og ýmislegt rætt eins og gengur. Svo er alls staðar að byrja sauðburður. Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir.

29.4.2010 kl. 20:04

Sannkölluð söngveisla

Var á tónleikum Karlakórs Reykjavíkur í gærkvöld og þvílík veisla það Vorylur í lofti og nú hlýtur vorið og sumarið að vera að koma Annars allt gott frá okkur Elsku Dísa mín á Lundarbrekku ástarþakkir fyrir síðast mikið var gaman að hitta þig eins og ævinlega kveðja til ykkar allra og farið vel með ykkur

Guðrún besta frænka

29.4.2010 kl. 13:18

Apríl á enda á morgun

Sæl öll!
Nú er kominn 29. apríl og ég held svei mér þá að það sé aðeins vor í lofti! Síðasta vika er búin að vera skemmtileg hjá okkur en mamma heimsótti okkur og var í eina viku. Við nutum þess að vera saman og þökkum við þér elsku mamma fyrir samveruna. Hún komst norður í gærkvöldi eftir nokkurra klukkutíma seinkun á flugi vegna gosösku í lofti. Eiríkur er búinn að vera með hita og magapest í nokkra daga en er að hressast. Um næstu helgi er svo handboltamót hjá HK og er Eva Margrét bæði að keppa þar og vinna á klukkunni. Annars er lítið af okkur að frétta og vona ég að þið verðið nú dugleg að kvitta fyrir komu ykkar á síðuna okkar!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

22.4.2010 kl. 7:02

Sumardagurinn fyrsti

rann upp bjartur og fallegur hér vonandi fáum við gott sumar Á sunnudaginn var fór ég að hlusta á Karlakórinn Þrestir í Hafnarfirði þvílík söngveisla þar og á miðvikudaginn næsta fer ég að hlusta á Karlakór Reykjavíkur hlakka mikið til og svo er ég búin að panta miða hjá Hönnu á tónleika léttsveitarinnar 8 maí svo það er nóg að gera í tónlistarlífinu. Allt gott frá mér og mínum vonandi eigið þið góða daga hugurinn er núna hjá fólkinu undir Eyjafjöllum sem horfir á jaðir sína spillast af öskufalli maður er bara með tárin í augunum að horfa á þessi ósköp GLEÐILEGT SUMAR allir ættingjar og vinir

Guðrún besta frænka

19.4.2010 kl. 10:55

Fallegt veður en kalt!

Góðan daginn
Já tíminn líður hratt og langt síðan ég hef lagt orð í belg hér. Allt gott að frétta af mér og mínum og allt gengur sinn vanagang. Mikil fundavika var í síðustu viku, húsfundur, fundur út af handboltaferð og fundur vegna fyrirhugaðrar sameiningar Hjalla og Digranesskóla. Særún er að fara n.k. miðvikudag til sunnudags á handboltamót á Húsavík og Ari á fótboltamót á skaganum á sunnudag sömu helgi, þannig að það er alltaf nóg að stússa í kringum íþróttirnar sem er bara gott og gaman. Á laugardaginn fórum við fjölskyldan ásamt nokkrum vinnufélögum Palla með fjölskyldur út í Viðey og áttum þar góða stund saman í blíðskapar veðri, um kvöldið var svo árshátíð í hans vinnu og var boðið í mat í heimahús hjá öðrum eiganda fyrirtækisins sem var mjög fínt og rólegt kvöld í góðra vina hópi og flottur matur. Það styttist líka í söngferðalag Léttsveitarinnar norður í Skagafjörð og Eyjafjörð en við förum 30. apríl og byrjum á því að fara í Hóla og þar verða tónleikar í Hólakirkju um kvöldið og svo gist á Bakkaflöt og Steinstöðum. Laugardaginn 1. maí höldum við svo til Dalvíkur og höldum tónleikar þar í Menningarhúsi bæjarins. Einhverntíman var ég búin að segja að Álftagerðisbræður mundu synjga þar með okkur en það verður víst ekki því við verðum á sama tíma og Sæluvika er að klárast og þeir verða þá uppteknir að syngja með karlakórnum Heimi. Þann 8. maí verða þeir hinsvegar með okkur í Háskólabíói á vortónleikum sveitarinnar og það eru 15 ára afmælistónleikar Léttsveitar Reykjavíkur.
Þetta er nú svona helsta sem er að frétta hjá mér og mínum, ég vona að þið eigið góða daga og þessum náttúruhamförum sem ganga yfir landið okkar fari að linna, þetta er komið nóg.
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

18.4.2010 kl. 18:03

Sunnudagur 18. apríl

Góðan dag!
Nú er sunnudagurinn að verða liðinn. Alltaf klárast helgarnar fljótt og vel. Malla og Friðrika komu báðar suður þessa helgina, en það gerist ekki oft að við systur allar séum hér á þessu svæði á sama tíma. Malla var á tveim námskeiðum en Friðrika var annars vegar í útskrift Jóhanns Ara úr lögregluskólanum á föstudaginn og í dag í fermingu hjá syni Sveinfríðar systur Óla bónda. Elsku Jóhann Ari til hamingju með að vera orðinn lögreglumaður!!!!! Við Kiddi skutluðum Friðriku á Selfoss til tengdaforeldranna í gær og sáum við þá vel gosstrókinn úr Eyjafjallajökli. Manni er mikið hugsað til fólksins sem býr á þessum slóðum og skepnanna einnig. Vona að guð gefi að þetta standi ekki mikið lengur! En hver veit náttúran er óútreiknanleg. Nú er veturinn að renna sitt skeið og sumardagurinn fyrsti á fimmtudaginn, vona að veðurguðirninr taki tillit til þess. Við Kiddi skelltum okkur í fjallföngu í morgun en við toppuðum Úlafsfell. Ég hlakka mikið til komandi viku og vona að þið gerið það líka. Njótið hennar!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

15.4.2010 kl. 15:00

Margt að gerast

Sæl verið þið öll.
Þótt lítið sé skrifað í gestabókina þessa dagana er það sannarlega ekki vegna þess að allt sé tíðindalaust, kannski frekar þess vegna.Ekki var fyrr búið að lýsa því yfir að gosinu á Fimmvörðuhálsi væri lokið, en stórt gos hófst í Eyjafjallajökli- og eldfjallafræðingur sem talað var við sagði frá því að nær samtímis hefði jarðskjálftahrina við Upptyppinga minnt á að þar væri kvika ekki fjarri yfirborði, einnig hefðu Grímsvötn lýst sig reiðubúin að taka þátt í leiknum og svo væri Hekla jafnan tilbúin í slaginn. Og skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis nýkomin og nóg um að tala þar.
En við fengum mikla og góða hláku og orðið mikið autt og allt greiðfært.Útskurðarnámsskeið var í Kiðagili frá mánudegi til miðvikudags og Geiri tók þátt í því og þeir gistu hér tvær nætur Sigurgeir og Jón, Hólmgeirssynir, okkur til ánægju.Friðrika fór með mér að jarðarför á Húsavík á þriðjudag.Þar var jarðsungin Bryndís Alfreðsdóttir frá Hlíð í Kinn. En móðuramma hennar og fósturmóðir Ásu , systur minnar var móðursystir mín, Kristín Halldórsdóttir.Í Hlíð reistu nýbýli 1931, Dagrún, einkadóttir Kristínar og manns hennar, Jakobs Kristjánssonar, og maður Dagrúnar, Alfreð Ásmundsson. Bryndís var elst 5 dætra þeirra og kveður fyrst. En með Dagrúnu flytja foreldrar hennar í Hlíð og einnig foreldrar hans og þarna ólst Ása upp og síðar tveir elstu synir hennar. Sannaðist þar,að þar sem nóg er hjartarúm, er líka nóg húsrúm.Blessuð sé minning þeirra allra.Ég læt þetta nægja núna Hafið það öll sem best.

Hjördís Kristjánsdóttir

10.4.2010 kl. 22:37

Langt síðan

Sæl öll
Tíminn líður alveg ótrúlega hratt og lífið gengur sinn vanagang í Glaðheimum. Við fjölskyldan fórum norður um páskana og áttum ljúfa daga á Ingjaldsstöðum. Fórum í fermingarveislu í dag og einnig í kvöldmat til tengdamömmu sem bauð fjölskyldunni til sín í tilefni af 65 ára afmæli hennar sem er á þriðjudaginn. Á morgun er það svo afmælisveisla hjá dætrum Rögnu systur. Svo enda ég helgina á kóræfingu annað kvöld. Þannig að það er nóg að gera og allir hressir.
Kv. Elma

Elma

9.4.2010 kl. 16:44

9. april fæðingardagur mömmu

elskuleg móðir mín hefði átt afmæli í dag og er hennar minnst með þakklæti og virðingu. Rigning og rok í Reykjavík eins og vorið sé alveg við hornið Þessi vika fljót að l
iða en ég verð að vinna alla helgina fermingarveislurnar standa sem hæst þessa dagana og nóg að stússast í kringum það Annars allt gott að frétta eigið góða helgi kveðja

Guðrún besta frænka

8.4.2010 kl. 11:54

Eldgos, fjallgöngur og fleira

Sæl veri þið!
Af mínu fólki er ágætt að frétta, lífið komið í fastar skorður eftir annars gott páskafrí. Ég hjálpaði til í einni fermingarveislu á Skírdag. Við Hanna fórum ásamt þeim Palla og Kidda eins og fram hefur komið í skemmtielga göngu uppá Morinsheiði að skoða eldgosið á Fimmvörðuhálsi á Föstudaginn langa og var hún ógleymanleg. Fengum ágætis veður (enda fylgst með spánni) og áttum þarna góðan dag. Ég set hér slóðina á bloggið hans Palla fyrir þá sem vilja skoða það. http://fiskholl.blog.is/blog/fiskholl/entry/1037772/?fb=1
Ég náði einnig að ganga á Esjuna og Vífilsfell í fríinu og fékk gott veður í báðum göngunum. Mogginn kom út flesta daga í fríinu utan tvo aukafrídaga þannig við Eiríkur fengum okkur morgungöngu flesta dagana. Tengdamamma fór í mjaðmaliðskipti rétt fyrir páska og er að jafna sig eftir það en sú aðgerð gekk vel og var þetta seinni mjaðmarliðurinn sem er skipt um hjá henni. Í gær ver hálsinn á Kidda myndaður enda komið á fimmtu viku frá aðgerð og fær hann að vita í lok þessarar viku eða byrjun æstu hvort þetta er ekki allt eðlilegt. Við hlökkum til vorsins og vonum að þið eigið góða tíma framundan.
Verið nú dugleg að kvitta hérna á síðuna, það er svo ótrúlega gaman að heyra frá ykkur öllum!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

7.4.2010 kl. 10:06

Einmánuður hálfnaður.

Sæl verið þið öll. Ég heyrði hann Pétur Halldórsson segja í morgunútvarpiu á rás 1 í morgun að ekki væri nú nema ein vika til sumars.. Hann er líklega eins og fleiri, farið að lengja eftir sumrinu. En Sumardagurinn fyrsti er ekki fyrri en 22. apríl í ár og því ennþá 1/2 mánuður þangað til. . Með fyrsta sumardegi byrjar Harpa, sem er sá 4. í röð gömlu mánaðanna. Þeir voru: Þorri, sem byrjar um eða eftir 20. janúar, Góa, Einmánuður, Harpa, Skerpla,Sólmánuður, Heyannir, Tvímánuður, Haustmánuður, Gormánuður, Ýlir og Mörsugur. Enn er allt hér skjannahvítt , en sæmilegt færi. Hiti yfir frostmarki og vonandi vor í vændum. Malla Jói og allir synir þeirra komu hér á páskadag og við borðuðum saman í hádeginu.Svo var messa kl 2 á Páskadag og sæmileg kirkjusókn, enda gott veður þá . En svo brast á með byl að kvöldi annars dags páska og var svo að draga úr veðrinu ígær en mátti segja að þá væri sýnishornaveður.Bestu kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir

4.4.2010 kl. 6:53

Páskadagsmorgunn 2010

Glepilega páskahátíð kæru ættingjar og vinir. Fallegt veður hér í borginni þennan morguninn. Allt gott frá okkur við erum bara heima í rólegheitum hjónin þar sem Árni er að ná sér eftir nýrnasteina aðgerð Nonni úti á sjó og litla fjölskyldan bara heima hjá sér fyrir austan og tengdadóttirin heima en kemur og fær´sér að borða hjá mér þegar hún vill. Fylgdist vel með ferðum þeirra frænkna minna þegar þær fóru að skoða gosið mér stóð ekki á sama að vita af þeim á þessum slóðum í fyrrakvöld og veðrið var að versna og farið var að smala fólki saman til niðurgöngu en svo sá ég að Guðrún skrifaði þegar hún kom heim og allt gekk vel nóg er nú samt.vesenið þarna Nú er vor í lofti og krókusarnir brosa svo fallega til mín í garðinum bjartir tímar framundan Eigið góða og yndislega páskahelgi kæru vinir Gleðilega hátíð

Guðrún besta frænka

3.4.2010 kl. 16:04

Laugardagur fyrir páska

Í minningu minni var verið að þvo og þrífa þennan dag á Lundarbrekku en nú er þetta mikil útivistar og ferðahelgi. Við lögðum öll ferðalög í dag á hilluna og erum heima í rólegheitum. eins og kemur fram hjá mömmu ætluðum við í Lundarbrekku en vegna ófærðar á Vikurskarði frestum við því til morguns.
Við fórum í gær í föstugöngu út í Laufás. Það er nýjung í Laufásprestakalli og var gengið frá Svalbarðskirkju, Grenivíkurkirkju og frá Végeirsstöðum í Fnjóskadal.
Allir hópar gengu í Laufás þar sem í boði var að kaupa fiskisúpu og kaffi og hlýða á Passísálmalestur í kirkjunni. Það var gott gönguveður og mér taldist til að 60-70 manns hefðu mæsts í Laufási. Við hjón nutum göngunnar og þess að hitta fólk og spjalla og svo að hlýða á Laufásprest lesa passísálma séra Hallgríms. Ég minnist þess ekki að hafa komið í Laufáskirkju áður.
Semsagt allt gott að frétta af okkur og vonandi fer að vora hér á Norðurlandi. Góðar hátíðarkveðjur Malla

Marína Sig.

2.4.2010 kl. 10:10

Föstudagurinn langi.

Góðan dag gott fólk.
Síðustu afmælisbörnum marsmánaðar óska ég til hamingju með dagana sína. Það er mikið um að vera, bæði í kringum eldgos, píslargöngur og aprílgabb á landinu okkar núna. Alltaf einhverjir sem láta gabba sig, veit samt ekki hvort einhverjir hafa lagt af stað og ætlað og taka boði Þingeyjarsveitar um frítt þyrluflug yfir gosstöðvarnar í gær. Hér er alltaf kalt þessa dagana og hefur gengið á með vonskuéljum marga daga,ekki mikill snjór , en til leiðinda. Við eigum von á Möllu og fjölskyldu á morgun og hugsum gott til þess. Hér á að messa kl 14 á páskadag og verður þá vonandi veður og færi gott. Mars er búinn að vera hundleiðinlegur veðurfarslega og ég vona að apríl fari að sýna okkur eitthvað vorlegra viðmót. Gleðilega páskahátið.

Hjördís Kristjánsdóttir.

1.4.2010 kl. 7:38

Skírdagur

Skírdagur er fimmtudagurinn næstur fyrir páska og er sá dagur er kristnir minnast þess þegar Jesús innsetti hina heilögu kvöldmáltíð og þó fætur lærisveinanna, eftir að hafa snætt páskalambið. Lýsingarorðið skír merkir hreinn og nafnið lýtur að hreinsun sálarinnar, enda var skírdagur, ásamt öskudeginum, öðrum fremur talinn dagur iðrunar og afturhvarfs. Skírdag ber alltaf upp á fimmtudag.
Hér í Kópavogi birtist Skírdagur bjartur og kaldur þe. 9 gráðu frost kl. 6.00 á mælinn okkar. Í dag förum við í fermingarveislu og var ég að hjálpa til í gær við undirbúning hennar. Annars er hér allt í rólegheitum, Kiddi er að ná aftur heilsunni og gengur úti daglega til að ná upp þreki. Við meira að segja gengum á Esjuna á þriðjudaginn í ískulda en björtu veðri, útsýnið var mjög gott. Við óskum ykkur öllum gleðilegra páska og vonum að þið eigið gott frí hvar sem þið eyðið því.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

26.3.2010 kl. 6:44

Styttist í páska.

Heil og sæl öll.
Ekki er hægt að hæla veðurfarinu hér síðasta timann. Sífelld norðan átt með einhverri úrkomu. éljagangi eða slyddu og sér ekki til sólar. Veghefill fór hér um dalinn í gær og skurkaði krapi út af vegunum en vegurinn orðinn slæmur , eintómar vatnsholur. Geiri var á útskurðarnámsskeiði frá föstudegi til sunnudags um síðustu helgi. Það var Jón Hólmgeirsson, frændi hans á Akureyri, sem var leiðbeinandinn og Sigurgeir bróðir Jóns var líka á námsskeiðinu. Þeir bræður gistu hér í 2 nætur, en ég fór til Akureyrar og gisti eina nótt hjá Möllu og svo vorum við í afmælisveislu hjá Svölu á laugardagskvöldið og heim komst ég þá með Óla og Friðriku. Við erum boðin í fermingarveislu á morgun á Akureyri og verður að sjá til hvernig það gengur.Ég er að dunda við að prjóna og færa gamlan fróðleik í tölvutækt form en skrokkurinn er leiðinlegur við mig, en það skrifast nú að einhverju leyti á aldur og fyrri störf , eins og stundum er sagt. Það ætti að geta breyst veðurfarið til þess betra um páska, ekki er búið að vera svo gott. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

24.3.2010 kl. 8:33

Afmæla-mars

Eins og alltaf frá því ég var barn er þetta mikil afmælavertíð og ég hef ekki náð að skrifa hér afmæliskveðjur við öll afmælisbörnin en stundum daginn eftir. Það er gaman að fylgjast með þessum afmælum hér á síðunni og rifja þannig upp á hverju ári afmælin í stórfjölskyldunni. Til hamingju öll afmælisbörn marsmánaðar.
Nú fer í hönd tími ferminga og strax á laugardag erum við boðin í eina veislu sem er í Blöndalsfjölskyldunni Jóa megin. Amma fermingarbarnsins er föðursystir Jóa og auðvitað látum við sjá okkur. Sævar er að fara í skátaútilegu frá laugardegi til sunnudags. Svo er á stefnuskránni að fara út í Hrísey og í Lundarbrekku en dagsetningar ekki ákveðnar. Vinafólk okkar Hafdís og Tóti eru líka væntanleg og við ætlum að eiga með þeim tíma.
Semsagt heilmikið framundan og vonandi fer að vora í dimmbilviku.
Veðurlýsing fyrir daginn í dag er rigning á eyrinni en krapasnjókoma á brekkunni, mokandi snjókoma í Hlíðarfjalli en þangað var Jói að fara í morgun með Lundarskóla. Eigið góðan dag. Malla

Marína sig.

23.3.2010 kl. 9:09

Mars langt kominn!

Sælt veri fólkið, eitthvað er nú langt síðan ég hef tjáð mig hér en það hefur verið í nógu að snúast hjá mér í vinnu og fyrir utan vinnu. Við héldum upp á afmæli Ara fyrirfram eða þann 14 mars var fjölskylduafmæli og svo bauð hann nokkrum fótboltastrákum á sjálfan afmælisdaginn. Um sl. helgi fór ég svo í Munaðarnes með Léttsveitinni í æfingabúðir og svo fórum við beint á fótboltamót í Fífuna með Ara þegar ég kom heim um hádegi á sunnudag. Eins og hjá frænda og frænku í Tunguheiðinni erum við alltaf í fjáröfluninni líka og allt tekur þetta tíma og orku. Páskabingó, páskaeggjasala, páskahappdrætti HK, svo eitthvað sé nefnt. Eitthvað er nú rólegra framundan svo það er aldrei að vita nema frænkur komist saman á fjall loks um næstu helgi.
Nóg að sinni frá mér, vona að þið hafið það sem best
kv. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

20.3.2010 kl. 7:13

Vorjafndægur

Á morgun 21. mars eru vorjafndægur. Þá er sólargangur nær jafnlangur um alla jörðina, dagur og nótt jafnlöng.
Í liðinni viku hefur verið í nógu að snúast hér á bæ. Eiríkur hefur verið að selja lakkrís til styrktar útskriftarferð og er áfram að selja kaffi og með því á páska-bingói í skólanum í dag en við bökuðum í gærkvöldi snúða til að selja þar. Eva Margrét er líka búin að vera í fjáröflun með sínum félögum í handboltanum og gengið bara vel. Um helgina er svo mót hjá henni sem haldið er hjá Fylki og er hún að keppa tvo leiki í dag og þrjá á morgun. Kiddi er alltaf að batna og finnur mun hvern dag.
Hér hefur verið yndislegt veður og er enn í dag en við Eiríkur erum búin að fara Mogga-labbitúrinn í morgun og er það bara skemmtilegt þegar maður heyrir fuglasöng og orðið er nánast bjart! Njótið helgarinnar hvar sem þið eruð kæru vinir!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

18.3.2010 kl. 20:15

Mars -miðjan

Nú er í tísku að tala um mars mánuð í mörgum samtenginum. Hæst ber Mottumars svo heyrði ég í kvöld mars tengda við hönnun og fleira og fleira. En þessi mánuður er þegar ríflega hálfnaður og bjart orðið á morgnana. Mér finnst alltaf þvílíkur munur þegar ég get farið að fara á fætur í björtu. Ekki spillir að hér eru auðar götur og gangstéttar svo auðvelt er að ganga á milli staða og ekki eru mars stórhríðar það sem af er mánuðinum.
Njótið helgarinnar sem framundan er. Kveðja Malla

Marína sig.

17.3.2010 kl. 7:31

Komin heim fá Austurlandinu

átti yndislega daga með litlu fjölskyldunni á Reyðarfirði fór að útför ekskulegrar frænku minnar yndislega falleg athöfn og þvílíkt gott veður o0g allur þessi frændgarður sem var þar ekkert smáræði Öll hennar börn og makar flest barnabörnin en vantaði þó nokkra og svo langömmubörnin svo vorum við mörg systkynabörnin hennar mætt og mikið spjallað á eftir og ég held að ég hafi ekki hitt eins marga ættingja mína á einum degi ens og núna Annars allt gott frá mér og mínum fengum yndislegt veður á leiðinni austur sól og heiðríkju og falla fjalla og jöklasýn marauð jörð hátt til fjalla og stórárnar bara þurr farvegur en í gær á leiðinni suður ausandi rigning og ekkert skyggni ekki veit ég hvað orðið hefur af skeiðará hún er gjörsamlega týnd læt þetta vera gott í bili kveðja

Guðrún besta frænka

15.3.2010 kl. 9:21

Fallegur dagur.

Heil og sæl öll.
Það logn og hálfskýjað og hiti um frosmark og fölið sem kom í fyrrinótt fór í gær.
Í dag er jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju Guðlaug Ingvarsdóttir húsfreyja á Bakka og seinna Litla Bakka í Neskaupstað. Ég fylgist með í huganum, en ég hefi haft tengsl og vináttu við þessa fjölskyldu í 60 ár.Guðlaug varð 95 ára 3. mars sl. og var þá orðin mjög veik. Guð blessi minningu hennar.
Ég er að fara síðdegis í sjúkranudd á Laugum hjá þjálfara sem ég hefi ekki áður hitt, en ég hefi ekki farið í neitt slíkt í 2 mánuði og vænti þess að það geri mér gott, ég er búin að vera á biðlista alllengi.
Kærar kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

14.3.2010 kl. 19:38

14. mars

14. mars er 73. dagur ársins samkvæmt okkar tímatali. Í dag hefur verið 5-6 gráðu hiti hér á höfuðborgarsvæðinu og rigning meira og minna í allan dag. Við Kiddi byrjuðum daginn á göngu hér í Kópavoginum en fórum svo í afmæli í Álfaheiðina til Ara en hann verður 7 ára á miðvikudaginn 17. mars. Annars gengru bara vel á þessum bæ, Kiddi er allur að koma til og ánægður með framfarirnar sem eru miklar á hverjum degi. Síðasta vika var annasöm hjá mér bæði í vinnu, félgasmálum og tómstundum barnanna en það er nú bara gaman. Eva keppti á einu handboltamóti í gær með 5. flokki en þær eru einu ári eldri en hún en það gekk nú ekki alveg nógu vel fannst henni.... en hún var mjög þreytt þegar hún fór að sofa í gærkvöldi og örlaði á smá geðvonsku sem ekki gerist oft !
Bestu kveðjur til ykkar allra!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

12.3.2010 kl. 7:58

Reyðarfjörður - Neskaupstaður

Nú ætlum við að leggja fjögur hjól undir landið og fara austur á firði Heimsækja litlu fjölskylduna og á mánudaginn förum við til Neskaupstaðar og fylgjum elsku frænku minni henni Laugu síðasta spölinn blessuð sé minning hennar komum heim aftur á þriðjudag njótið helgarinnar og lifið heil

Guðrún besta frænka

9.3.2010 kl. 9:17

Sólris.

Góðan dag gott fólk.
Þegar ég settist við tölvuna var klukkan rétt orðin 9 og þá var sólin að byrja að gægjast hér yfir austurbrúnina og sendi fyrstu geislana skáhallt inn um austurgluggann hjá mér á tölvuskjáinn svo ég mátti fara að draga fyrir. Hér er búin að vera mikil hláka í nótt og hefur verið síðustu sólarhringa, vatnsflaumur og krapaelgur undir snjónum og þyrfti nú að halda áfram eitthvað lengur svo ekki verði skaðvænlegt svell á túnunum. Allir vegir orðnir eins og á sumardegi. Við fórum sl. föstudagskvöld að sjá "Ólafíu " á Breiðumýri. Þarna er allt heimatibúið, leikverkið, tónlistin, leikarar og leikstjóri heimamenn og nemendur Laugaskóla. Ég hefði kosið að tónlistin væri ekki svona hávær, fyrir bragðið naut maður ekki söngtexta sem skyldi, en enginn þurfti að láta sér leiðast.
Gömlu bræðurnir , Geiri og Atli voru komnir með smá dorgarfiðring, en eins og er, er allt ófært upp að Kálfborgarárvatni, en fer óðum batnandi ef áfram verða hlýindi.
Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

7.3.2010 kl. 20:07

Sunnudagur að kvöldi kominn!

Sælt veri fólkið!
Í gær var hláka og allur snjór á bak og burt fyrir utan ruðninga sem vinnuvélar hafa rutt upp. En í morgun var aftur kominn vetur, allt alhvítt og búið að snjóa af og til í allan dag. Kidda heilsast vel og er hann aðeins farinn að kíkja út og ganga í smá stund úti. Annars er allt ágætt hér hjá okkur og þökkum við innilega fyrir allar góðu kveðjurnar og hlýju hugsanirnar síðsutu daga, þær eru ómetanlegar en hjálpa mikið þegar þörf er á.
Góða vinnuvinku!

Guðrún Sigurgerisdóttir

7.3.2010 kl. 16:32

Góðan daginn gott fólk

Rólegheita helgi hér hjá mér Árni að vinna og ég sit bara og prjóna og svo kom hún Elma frænka mín aldeilis færandi hendi áðan með geisladisk sem hún útvegaði mér Lögin hans Fikka sungið af kirkjukór Húsavíkur kirkju aldeilis frábær diskur og fallegur takk Elma mín Annars allt gott var bara að kvitta fyrir innlitið lifið heil

Guðrún besta frænka

4.3.2010 kl. 8:15

Góðar kveðjur í Tunguheiði og til afmælisbarna

svo og allra annarra sem hér koma inn og lesa.
Mikill vetur hér á Akureyri en allt gott hjá okkur. Bið ykkur að njóta sem best hvers dags því eins og Guðrún bendir réttilega á þá eldumst við öll og ekki eftir neinu að bíða með það.
Lífið er í dag. Kveðja Malla

Marína Sig

3.3.2010 kl. 9:10

Fréttir frá Tunguheiði

Sæl veri þið!
Já það er komin mars og sólin að hækka á lofti, hér er vetur eins og er enda ekki farið mikið fyrir honum hingað til á árinu. Við fundum heldur betur fyrir honum þegar við ætluðum að skella okkur í Bárðardalinn í afmæli mömmu og urðum að snúa við. Á mánudaginn var Kiddi "skorinn á háls" þ.e. spengdir saman þrír hálsliðir og sett títanínum plata of nokkrar skrúfur í hálsinn á honum, bein var tekið úr mjaðmakambi og sett í hálsinn. Altt gekk þetta vel og er hann að koma heim í dag en þarf að taka því rólega í 6-8 vikur. Að öðru leiti er allt við það sama hjá okkur. Mamma orðin áttræð, Dika 51 og Malla alveg að verða 49... ég skil þetta bara ekki því við erum allar svo ungar :-)
Vona að þið eigið góðan dag
Guðrún

Guðrún Sigurgeirsdóttir

1.3.2010 kl. 20:31

Komin á níræðisaldur.

Einn dag yfir áttrætt og nú vil ég senda ykkur öllum sem sjá þessi skrif og hafið sent mér kveðjur, gjafir , blóm,skeyti,eða hringt í mig
á þessum tímamótum og þeim sem komu í Kiðagil í fyrradag , hjartans þakkir og bið ykkur blessunar. Ég hrærð yfir hvað margir létu sig hafa það að koma í snjókomu og lélegu skyggni og hvað margir hafa hringt og sent mér heillaskeyti.
Í gær var batnandi veður og í dag heiðríkja og harðnandi frost , gæti fariðupp undir 20°C næstu nótt.. Kiddi fór svo í skurðaðgerð í morgun, vegna hálsskaða sem hann fékk í bílslysi fyrir 1-2 árum,aðgerðin tók um 6 klst. og honum líður eftir atvikum sæmilega, talið að þetta hafi gengið vel.En þau lögðu af stað hingað norður sl fimmtudag, Kiddi ,Guðrún og börn en lentu í gjörningaveðrinu sem þá geisaði undir Hafnarfjalli og um Borgarfjörð, sneru við og komust við illan leik á Akranes og gistu þar og svo heim í Kópavog daginn eftir.Við misstum því af því að vera saman um helgina öll fjölskyldan, en vonum að við bætum okkur það upp síðar.Ég hugsa gott til að fara að hvíla mig í kvöld, er svolítið orðin slæpt eftir atburði síðustu daga , en vona að nú séu rólegheit framundan. Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

28.2.2010 kl. 9:41

Til hamingju með daginn

kæru afmælisbörn.
Við áttum indislegan dag í Kiðagili í Bárðardal í gær og erum afar þakklát þeim sem lögðu á sig ferðalag í slæmu skygni til að fagna með okkur 80 ára afmæli.
ég sendi Guðrúnu nokkrar myndir úr afmælinu og sé hér að þær eru komnar inn á síðuna. Takk Guðrún fyrir það.
Þetta eru myndir af Lundarbrekku tengdu fólki sem ég hugsaði mér að mætti síðan nota hér á síðunni fyrir afmælismyndir:-). T.d. af Sigrúnu Hrings. sem er eitt afmælisbarna dagsins í dag.
Síðan hugsum við öll hér í Norðurgötu sterkt til Kidda og óskum honum góðs gengis á morgun. Biðjum þess að allt gangi vel og að við getum haft afmælismat á Lundarbrekku á fallegum vordegi þegar afkomendu geta sameinast þar með áttræða afmælisbarninu.
Njótið dagsins. Kveðja Malla

Marína Sig.

27.2.2010 kl. 12:30

Hann kom sko með hvelli

veturinn þegar hann kom hér á höfuðborgarsvæðinu þetta hefði mátt koma á þorranum en hvað um það það á að vera vetur þegar vetur er og gott sumar þegar sá tími er. Sendi alúðakveðjur í Kiðagil í dag til hennar Dísu minnar með innilegum kveðjum í tilefni 80 ára afmælisins hefði svo sannarlega viljað vera hjá ykkur og samfagna og svo óska ég Önnu Sæunni til hamingju með útskriftina eigið ljúfan dag Kveðja

Guðrún besta frænka

22.2.2010 kl. 19:37

Með virðingu og þökk

minnist ég ömmubróður míns Jóns Lunda Baldurssonar.
Sendi ykkur kærar kveðjur Elsku Guðrún Frænka í tilefni af minningardegi. Malla

Marína Sig.

22.2.2010 kl. 6:39

22.febrúar

Í dag hefði hann faðir minn elskulegur átt afmæli og minnumst við fjölskyldan hans með virðingu og þökk

Guðrún besta frænka

21.2.2010 kl. 9:23

Jæja þá erum við búin að þreyja Þorrannn

og þá er góan tekin við og það styttist í páska og vorið. Hér skín sólin í morgunsárið en heldur er kalt Annars er tíðinda lítið hjá mér hér gengur allt sinn vana gang Var bara að kvitta fyrir innlitið lifið heil

Guðrún besta frænka

20.2.2010 kl. 9:41

Þorraþræll

Það var síðasti dagur Þorra nefndur og hið alþekkta kvæði Kristjáns Fjallaskálds, " Nú er frost á Fróni", ber einmitt þetta nafn.
Og það er þrálát norðanátt í kortunum núna og sýnist eiga að endast fram í mars. Enda hver dagurinn öðrum líkur, mismikið frost , en strekkingur og éljagangur , sér ekki sól , en óneitanlega er daginn farið að lengja. Við fórum sl . þriðjudag, sem var Sprengidagur, á "Opið hús" fyrir eldri borgara ´, sem að þessu sinni var í Stórutjarnaskóla.Saltkjöt og baunir voru á boðstólum í Mötuneytinu á vægu verði og byrjuðum við á því ásamt mörgum fleiri. Sýning um ævi og verk "Bólu Hjálmars" í meðförum þriggja ungra leikara (þessi sýning hefur fengið verðlaun) var þarna sýnd nemendum og eldra fólkinu boðið að vera með.Okkur sem gaman þykir að fara í leikhús fannst þetta skemmtilegt, en svo var nú ekki um alla. Síðan var spiluð félagsvist og loks kaffi í lokin .Spilað var á 11 borðum svo þetta var óvenju fjölmennt og það spila aldrei allir. Búið að hreinsa aðalvegina í Bárðardal tvisvar í vikunni og stendur til að moka heimreiðina núna , því það á að vera Kirkjuskóli hér í dag. Lifið svo heil.

Hjördís Kristjánsdóttir

20.2.2010 kl. 6:49

Laugardagur

Góðan dag! Hér er frekar svalt í morgun en ágætt sosum að koma út. Ég er búin að rölta mér Melaheiðina á gúmmískóm af Kidda en ég var svo óheppin á mánudaginn að brjóta á mér hægri litlu-tá og kemst því ekki í neina skó ennþá og því síður í fjallgöngur :-) en þetta lagast það er öruggt. Vikan hefur verið frekar annasöm hér þó svo krakkarnir hafi verið í fríi þrjá fyrstu dagana og ég í fríi í gær.... alltaf skal þetta vetrarfrí hjá sveitarfélögunum stangast á.... alveg ótrúlegt skipulag þannig að blessað fríið verður allavega ekki fjölskyldufrí. Ég vona að þið njótið helgarinna!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

17.2.2010 kl. 16:35

Myndir - Baldur

Er búin að setja inn 5 nýjar myndir úr afmæli Gósu. En þær vilja ekki raðast eins og ég vil :-) þannig þið verðið að leita að þeim inní albúminu. Vona að ég finni út ´r þessu með röðunina.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

16.2.2010 kl. 21:35

tvisvar sama færslan

Einhverra hluta vegna kom síðasta færslan mín tvisvar inn - humm ??
Elma

16.2.2010 kl. 21:34

Sprengidagur

Góðan daginn
Sólin skín hér í Reykjavíkinni.
Við tókum forskot á sprengidaginn og elduðum saltkjöt úr sveitinni í gærkvöldi. Rosalega gott. Atli var að koma úr lítilli aðgerð, það var verið að gera við naflaslit þannig að við verðum heima það sem eftir lifir dagsins og á morgun. Ef vel gengur má hann fara í leikskólann á fimmtudaginn. Við erum bara að kúra og hann horfir á barnamyndir og ég er að lesa. Bið að heilsa ykkur.
Elma

16.2.2010 kl. 14:45

Sprengidagur

Góðan daginn
Sólin skín hér í Reykjavíkinni.
Við tókum forskot á sprengidaginn og elduðum saltkjöt úr sveitinni í gærkvöldi. Rosalega gott. Atli var að koma úr lítilli aðgerð, það var verið að gera við naflaslit þannig að við verðum heima það sem eftir lifir dagsins og á morgun. Ef vel gengur má hann fara í leikskólann á fimmtudaginn. Við erum bara að kúra og hann horfir á barnamyndir og ég er að lesa. Bið að heilsa ykkur.
Elma

15.2.2010 kl. 9:24

Bolludagurinn

Góðan daginn gott fólk.
Gott að lesa pistlana frá ykkur frænkum nú í morgunsárið. Síðasta vika var mjög góð, gott veður og Geiri er búinn að fara tvívegis á dorg upp á Kálfborgarárvatn, einu sinni í síðustu viku og einu sinni í vikunni þa ráður og fékk betri veiði en mörg undanfarin ár ( í fyrra var aldrei veður eða færi). Við skruppum til Húsavíkur sl miðvikudag, þá fór ég til tannlæknis og svo buðu Atli og Stína okkur á Þorrablótí Ljósvetningabúð og ég veit að þú Elma mín, hefðir skemmt þér vel en það var sagt að hefðu verið 300 manns við borðhaldið svo þetta voru þrengsli eins og í Bárðardal og meiri en ég man þarna áður.Eins og alltaf var ágætis dagskrá ,en við fórum svo heim eftir borðhald og það gerðu fleiri, enda ágætt að fækka í húsinu fyrir ballið. Dika og Óli voru komin heim fyrir kaffi í gær og búin að hóa sínu fólki sem var í afleysingum á Bjarnarstöðum af stað til síns heima en veðurspáin var mjög slæm. Allir komust farsællega, Jóhann Ari sem þurfti að keyra til Reykjavíkur var kominn þangað kl hálf ellefu í gærkvöldi.
Svo var gott að heyra í morgurn að tókst að bjarga konunni og drengnum af Langjökli, en ég var hissa, að farið væri á jökulinn í þessari veðurspá eftir það sem á undan er gengið í vetur. Svo dreif ég mig í að baka bollur í gær og það verður bollukaffi hjá mér í dag. Hér er búið að vera hvasst af nv. og norðri í gær og nótt en hefur nánast ekkert snjóað og mjólkurbíll á réttu róli í morgun, en hann kemur frá Akureyri og þarf að fara Víkurskarð. Segjum þetta gott núna. Verið þið öll blessuð og sæl.

Hjördís Kristjánsdóttir

14.2.2010 kl. 17:32

Sælt veri fólkið

Vetur genginn í garð við Eyjafjörð eftir margra viknarstillur og blíðviðri. Grillaði í gærkvöldi seint og bauð Bjarnarstaðahjónum í mat í tilefni af dekurhelgi hjá þeim hér á Akureyri. Vona að þau séu komin heil heim og afleysingafólk þeirra einnig til síns heima.
Annars er allt gott hjá okkur. Jói og Sævar eiga vetrarfrís daga í næstu viku og ég á föstudag svo nú er að sjá hvort veður bíður bara upp á innikúr og sjónvarpsgláp. Við skruppum út í Hrísey í dag og lentum í heldur leiðinlegu veðri á heimleiðinni en komumst heil heim. Góðar kveðjur Malla

13.2.2010 kl. 23:05

Komið kvöld í Kópavogi

Sælt veri fólkið!
Hér er góður dagur að kvöldi kominn. Við Hanna byrjuðum daginn á Mosfelli ásamt einni sem vinnur með mér. Ótrúlega mikið logn og aðeins rigning og 5 stiga hiti... semsgat flott gönguveður. Ég fór svo í fertugsafmæli til fyrrverandi vinnufélaga seinnipartinn og var gaman að hitta allt "Landspítala-gengið" en ég hætti að vinna þar árið 2000 eftir annars 14 ára starf þar meira og minna. Í gær voru foreldraviðtöl hér í Digranesskóla og fengu bæði börnin fínan vitnisburð og hefs nú síðasta önn Eiríks í greunnskóla. Á mánudaginn var var okkur foreldrum í 10. bekk ásamt börnum okkar boðið í morgunverð í Menntaskólann í Kópavogi en Eiríkur stefnir þangað að loknum grunnskóla. Á morgun reikna ég með að vera heimavið og taka jafnvel forskot á bolludaginn og hafa bollukaffi.
Vona að þið hafið það svo sem allra best!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

13.2.2010 kl. 18:07

Laugardagur til lukku

Góða kvöldið
Eins og lesendur síðunnar hafa séð dauðlangar mig norður á þorrablót - svo mjög að ég er búin að skrifa um það í tveimur síðustu færslum. En ég er sem sagt í Reykjavík og í ofninum eru kótilettur úr sveitinni. Það var mjög gaman að taka þátt í flutningi á Carmina Burana í fyrrakvöld og gærkvöldi og svo var partý á eftir, svaka stuð. Allt með kyrrum kjörum í Glaðheimum og allir kátir. kveðjur og kvitt. Elma

13.2.2010 kl. 8:15

Takk kærlega fyrir kveðjurnar í gær

Átti góðan dag var í vinnunni og þar var tekið forskot á bolludaginn settum inn í 104 rjónabollur handa gamla fólkinu sem var að spila bingó og restin og smá ábót verður svo með kaffinu í spilavistinni á mánudag allir sælir yfir því að fá rjómabollu Annars allt gott héðan bara búið að vera vorbliða unan farna daga en eitthvað er hann að spá breytingum Vona að fjallgangan hjá þeim frænkum mínum gangi vel í dag kveðja og hafið það sem best

Guðrún besta frænka

12.2.2010 kl. 11:08

Svona á veturinn að vera.

Sælt veri fólkið.
Skrepp orðið allt of sjaldan hér inn en þó oftar en ég kvitta fyrir. Búinn að vera mjög góður vetur hér síðan um áramót og vil helst hafa veðrið svona áfram en það eru víst einhver hríðarkorn í spánni ef til framtíðar er litið.Annars gengur lífið hér sinn vanagang við skepnuhirðingu leikstúss og ýmislegt fleira. Mjög fjölbreytt líf á þessum bæ aldrei tveir dagar eins.Njótið þess að vera til Kveðja F.S.

Friðrika

10.2.2010 kl. 22:12

Langar á þorrablót

Kvöldið
Datt í hug í ótrúlegri bjartsýni minni að skreppa norður á þorrablót í Kinn með mömmu og pabba, flugfarið fyrir okkur Þráin er aðeins 47.920 krónur - mér finnst það nú aðeins of mikið í lagt fyrir sólarhringsstopp á Norðurlandi.
Þannig að ég sleppi því þetta árið.
kv. Elma

10.2.2010 kl. 9:09

Lítið að frétta

Góðan dag
Smá kvitt fyrir innlitið á síðuna.
Allt gengur sinn vanagang hjá okkur við leik og störf. Særún er á Reykjum fram á föstudag og þar á eftir er svo vetrarfrí í skólanum á Bolludag og Sprengidag.
Við fórum á Þorrablót um síðustu helgi og það var mjög skemmtilegt, alltaf gaman að hitta gömlu góðu vinina frá Hornafirði. Einnig gengum við á Grímmannsfell sl. laugardag með Guðrúnu og Kidda eins og fram hefur komið, það var góð ferð í köldu og góðu veðri þó ansi mikið blési á okkur á toppnum. Markmiðið hjá mér er að reyna að komast í góða fjallgöngu helst um hverja helgi, því það er svo gott fyrir líkama og sál.
Hafið það sem allra best
bk. Hanna

Jóhanna Marína

9.2.2010 kl. 21:05

Carmina Burana

Góða kvöldið
Það er svo sem ekkert að frétta héðan úr Glaðheimum. Fórum bæði í skírn og barnaafmæli um helgina, við Atli fórum svo í leikhús og sáum Söngvaseið, rosa gaman. Fimmtudags- og föstudagskvöld er Óperukórinn í Reykjavík að flytja Carmina Burana með Sinfóníuhljómsveit Íslands og vikan litast talsvert af því, þar sem það eru einar 5 æfingar fyrir það þessa vikuna og svo var Kór Áskirkju að hefja æfingar í dag á verki eftir Dvorak sem við ætlum að flytja í dymbilviku. Dauðlangar norður á þorrablót en var að líta á flug og það kostar litlar 48 þúsund krónur fyrir okkur Þráin að fljúga norður - aðeins of mikið fyrir stopp í einn sólarhring finnst mér nú.
Elma

7.2.2010 kl. 10:15

Sunnudagur

Góðan dag!
Allt gott að frétta héðan, við Kiddi gengum á Grímmannsfell í gær með Hönnu og Palla og var það skemmtileg ganga í björtu en köldu veðri. Grímmansfell er 484 m hátt fell fyrir ofan Gljúfrasein í Mosfellsdal. Í gærkvöldi vorum við boðin í þorramat í heimahúsi og var það einnig skemmtilegt. Deginum í dag verðu sennilega mest varið heima við.
Eigið góða viku!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

6.2.2010 kl. 8:23

Takk fyrir góð og greið svör.

Ég áttaði mig ekki á því að myndin af Gósu með húfuna var ný. Hlakka til að sjá fleiri myndir. Hér er mikið logn og minnkandi frost . Hefði einhvern tíma þótt viðra til að hafa fé úti yfir daginn og " halda til beitar ".Annars fátt í fréttum.Sendum bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

5.2.2010 kl. 22:10

Takk Jónas

Sá að það var eina nýja myndin en hinar koma fljótlega vonandi kveðja

Guðrún besta frænka

5.2.2010 kl. 21:41

Sæl öll

Ég sendi myndir fljótlega úr afmæli mömmu ofl. Dísa og Guðrún besta frænka, það fór ein ný mynd í albúmið merkt pabba, hún er af mömmu á jólunum með nýju húfuna. Allt gott að frétta hjá okkur, ég að venjast nýju vinnunni og dömunum minum gengur vel í skólunum sínum. Kveðja Jónas.

Jónas Baldursson

5.2.2010 kl. 19:44

Heil og sæl það er ekki bara þú Dísa mín

sem fynnur ekki nýjar myndir í albúmi Bubba ég finn ekki heldur nýjar myndir þar ekki þær sem ég er búin að sjá á fésinu. Fór aðeins til Guðrúnar frænku í gærkvöld og átti ljúfa stund með hennar fjölskyldu annars allt gott héðan eigið góða helgi kveðja

Guðrún besta frænka

5.2.2010 kl. 12:58

Myndir

Góðan dag
ég er nú nánst aldrei með myndavél en Jónas og Nonni tóku nokkrar myndir þegar við fórum út að borða á afmæli mömmu og einnig var tekin mynd af okkur systkinunum og mömmu heima hjá henni, Jónas var búinn að setja einhverjar af þeim inn á fésbókina sína. Jónas getur áreiðanlega líka sent þær hér inn á síðuna!
Bestu kveðjur og góða helgi
Hanna

Jóhanna Marína

5.2.2010 kl. 9:13

Misskilningur.

Ég frétti að myndir úr afmæli Gósu væru komnar á facebook og hélt að þær hefðu verið settar hér inn líka, en það er greinilega misskilningur. Það væri nú ágætt að þær kæmu líka hér inn. Það er ekki skylda að vera á facebook, er það ?
Kveðja.

Hjördís Kristjánsdóttir

4.2.2010 kl. 16:54

Næ ekki að skoða nýju myndirnar

Ég næ ekki að skoða nýju myndirnar sem settar hafa verið inn á albúmið "Baldur " Þar fæ ég bara gömlu myndirnar.
Nýju myndirnar úr "frænkuboði" hef ég getað skoðað og þær eru fínar.Veit ekki hvort þetta er bara bundið við mína tölvu.
Kveðja.

Hjördís Kristjánsdóttir

4.2.2010 kl. 10:42

Fréttir úr Kópavoginum!

Sælt veri fólkið!
Allt gott að frétta hjá okkur, í gær var frí í skólanum hjá krökkunum og foreldraviðtöl og allt gengur vel hjá þeim, en Ari minn var að fá sinn fyrsta vitnisburð í skólanum :) Særún er að fara í skólabúðirnar á Reykjum í næstu viku og mikil spenna og undirbúningur í gangi hjá krökkunum.
Eins og þið mörg vitið fór ég ásamt Sigga bróður og Mikael norður að heimsækja mömmu og bræður mína og fjölskyldur í tilefni 70 ára afmælis mömmu og áttum við góða daga saman. Næstu helgi ætlum við Palli svo að skella okkur á Þorrablót Hornfirðinga á höfuðborgarsvæðinu. Semsagt alltaf nóg að gera hjá mér, mikið að gera alltaf í vinnunni, hleyp á milli þinglýsingadeildar og gjaldkera og reyni að sinna þeim störfum af bestu getu. Framundan er líka nóg að gera í kór og félagslífinu, árshátíð Léttsveitarinnar, æfingabúðir og söngferð í Skagafjörð í vor, alltaf nóg að hlakka til.
Vona að allir hafi það best og ég vil nota tækifærið hér, að þakka fyrir hönd mömmu fyrir afmæliskveðjur og gjafir :)
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

1.2.2010 kl. 21:25

Samhverfudagurinn er í dag (01022010).

Sælt veri fólkið.
Tek undir með Guðrúnu og bið fólk endilega að láta svo lítið að kvitta ef þið ratið hér inn. Allt gott af mér og mínum. Heimilislífið rólegt og nú er handbolta fárið liðið í bili og hefðbundinn fótbolti í sjónvarpinu mínu. Ótrúlega gaman að fylgjast með þessu mhandboltahetjum.
Veðrið stillt og kalt, ég kann alveg að meta svona veðurfar og finnst ágætt að fara út og ganga og anda að mér svalanum. Ekki er gott að heyra af þjónustu skerðingu á Fosshóli, vissi um Sparisjóðinn en ekki að búðinni yrði lokað.
Árshátíð Oddeyrarskóla var með glæsibrag síðastliðinn laugardag og áttum við þar skemmtilegan dag með börnunum og foreldrum. Foreldrafélagið seldi kaffi og allt gekk ljómandi vel.
Vonum að febrúar verði góður mánuður og bið ykkur að njóta hversdagslífsins. Malla

Marína Sig

1.2.2010 kl. 21:01

1. febrúar.

Sælt veri fólkið.
Þá er nú fyrsta vika Þorra liðin og janúar á enda.Búið vera hægviðrasamt fyrir utan mánudaginn 25. jan, þá var hér algjörlega snarvitlaust veður part úr degi, en 6-7°hiti og tók upp snjóinn svo hann er mest í giljum og lægðum. Annars kom svellhúð yfir allt og svo fínkornagrámi svo það er grátt yfir að líta.. Frost síðustu daga og engin afrekaskrá í gangi hjá okkur gamlingjunum. Fylgdumst með handboltastrákunum með báðum augum og söngvakeppninni með öðru auga og erum svo að prjóna og lesa. Nú er búið að loka versluninni á Fosshóli í næstu tvo mánuði, sagt að eigi að endurskipuleggja starfsemina., en þangað höfum við sótt okkur mjólkurvörur. Útibúi Sparisjóðsins sem þar var, var lokað og starfsemin flutt í Reykjadal um áramótin. Við notum heimabanka og debetkort í staðinn en fyrir bragðið förum við sjaldnar af bæ og hittum síður fólk. Keyptum hálfs mánaðar birgðir af mjólk og settum helminginn í frost, en þetta eru þó nokkur skref aftur á bak í þjónustu við dreifbýlið. Ég fór í bakmyndatöku á Húsavík fyrir viku og það er víst orðið ansi slitið , næst á ég að fara í segulóm myndatöku á Akureyri, en það er einhver bið eftir því. Sendum bestu kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir

31.1.2010 kl. 9:04

Sunnudagur 31. janúar

Góðan dag gott fólk!
Ég hvet ykkur enn og aftur sem kíkið reglulega hér inn að kvitta fyrir komuna. Það þarf alls ekki að skrifa neina ritgerð. Hjá mér er allt í rólegheitum þennan morguninn, en Eva Margrét var að keppa í handbolta bæði á föstudag og laugardag og gekk mjög vel þ.e. þær komu heim með gullið dömurnar. Eiríkur var að safna flöskum og dósum með bekkjarfélugunm sínum á föstudaginn en þau eru að safna sér sjóði fyrir útskriftarferðalag í vor. Það gekk líka vel hjá þeim. Í dag ætla ég svo að ganga eitthvað í góða veðrinu og horfa svo á landsleikinn í handbolta. Þeim hefur gengið ljómandi vel og hvort þeir ná 3. eða 4. sæti skiptir ekki öllu, þetta eru
"strákarnir okkar" !!! Ég vona svo að febrúar verði góður mánuður hjá okkur öllum og kveð að sinni.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

30.1.2010 kl. 17:25

Spennan í hámarki út af handboltanum

þó hún sé meiri hjá Guðrúnu frænku minni sem þarf líka að fylgjast með dóttur sinni gaman hvað gengur vel hjá þein en leiðinlegustu fréttir dagsins eru að kona og barn féllu niður um sprungu á Langjökli tvær þyrlur og björgunarsveitir komnar á staðinn Hvað er fólk að þvælast með börn upp á jöklum um há vetur Var bara að láta heyra frá mér aðeins Lifið heil

Guðrún besta frænka

26.1.2010 kl. 21:13

Afi Sigurður

hefði orðið 111 ára í dag 26. janúar en hann var fæddur 1899. Blessuð sé minning hans.
Hér snýst lífið um handbolta þessa bæði að fylgjast með EM og svo var Eva að keppa í handbolta um síðustu helgi og aftur um næstu helgi..... en bara gaman.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

24.1.2010 kl. 19:11

Helgi í faðmi fjölskyldu og vina

Eftir indislega helgi erum við komin í ró hér heim og sjónvarpskvöld framundan. Elsku pabbi og mamma takk fyrir okkur. Þorrablótið var mjög vel heppnað og svo áttum við verulega skemmtilegan dag, Molakaffi á Ingjaldsstöðum og veislukaffi með móðurfjölskyldu Jóa. Sendi kærar kveðjur og var nú af og til að hugsa í frænkuboðið í gærkvöldi meðan ég borðaði svið og hangikjöt með meðlæti. Góða vinnuviku. Malla

Marína

24.1.2010 kl. 16:34

Líka afbragðs þorrablót í Bárðardal.

Margt fólk, mikil sönggleði og fjör, dagskráinmeð ýmsum misföstum skotum á náungann, vonandi engum meiðandi,þorrablótsnefnd full af hugmyndum og hæfileikarík að vanda, en eins og stundum áður hefði komið sér vel að hafa alvöru leiksvið og hærra til lofts. En þrengslin hafa líka sína kosti. Og svo veðrið ! Logn og frostlaust, næstum hægt að sitja úti "snöggklæddur". Allt fór líka vel fram. Þökkum kærlega fyrir okkur. Malla og Jói komu eftir hádegið í gær og þau tóku til matinn í trogið sem við höfðum undirbúið. Þau fóru svo um hádegið í dag og þá beint í afmælisveislu. Hrafnhildur Baldvinsdóttir, móðursystir Jóa ,er 80 ára á morgun og var boðið til veislu af því tilefni í dag. Sendum bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir.

24.1.2010 kl. 10:21

Frábært frænkukvöld

takk fyrir yndislegt kvöld frænkur mínar ljúft var að horfa á strákana okkar vinna loksins og svo horfðum við á söngvakeppnina líka og borðuðum súpu og svo kaffi og gráðosta og brokkoli réttur á eftir gat ekki verið betra held ég Vonandi hefur líka verið frábært þorrablót í Bárðardalnum og allir skemmt sér vel. Lifið heil

Guðrún besta frænka

22.1.2010 kl. 19:25

Til hamingju með daginn bændur

þorrinn gengin í garð og þá er bara að þreyja þorrann og góuna Hlakka til annars kvölds að fá frænkur mínar í heimsókn og Friðika við frænkur í frænkuboði á Kleppsveginum sendum góðar kveðjur á þorrablót ykkar Bárðdælinga Góða skemmtun lifið heil

Guðrún besta frænka

21.1.2010 kl. 15:33

Þorri byrjar á morgun

Já eins og Guðrún frænka sagði hér að framan þá gekk hér yfir þvílíkt veður í gær með tilheyrandi skruggum og eldingum. Ég verð að játa að ég hef aldrei orðið vitni að öðrum eins hávaða og titringi, hélt satt að segja að það væri að koma jarðskjálfti, og svo tók þetta svo langan tíma. Við ætlum að hafa smá Bóndadags-boð hér annaðkvöld en svo er jú súpukvöldið góða hjá frænku á laugardagskvöldið og hlakka ég til að hitta þær frænkur mínar sem koma þangað. Ég segi svo góða skemmtun til ykkar sem verðið á þorrablóti í Bárðardal á laugardagskvöldið en ég hefði nú alveg viljað vera þar..... en kænki næst, hver veit??? Við frænkur munum örugglega skemmta okkur vel á Kleppsveginum.
Eigið góðan Þorra!!!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

20.1.2010 kl. 20:22

Þrumur og eldingar

gengu yfir orgina í kvöld það var eins o0g lest væri að fara yfir húsið þvílíkur hávaði. Rigning og aftur rigning en hlýtt Nú líður að frænku kvöldi með súpu og tilheyrandi hlakka til að sjá ykkur frænkur mínar á laugardagskvöldið Kveðja

Guðrún besta frænka

18.1.2010 kl. 9:12

Mánudagur

Góðan dag!
Kiddi þakkar fyrir kveðjurnar hér í gær á afmælisdaginn hans. Við áttu góða helgi, ég eyddi einu msólarhring með vinkonum mínum í Ölfusborgum og svo öðrum á Hótel Selfossi með Kidda og öðrum ökukennurum og mökum þeirra. Virkilega góð helgi. Tengdamamma kom svo í gær í kaffi og er hjá okkur enn. Hér er alveg flughált á götuum og verður að fara varlega hvort heldur sem er akandi, hjólandi eða gangandi. Vinnuvikan er hafin og ljúfur dagur framundan hjá mér sýnist mér. Ég vona að þið eigið góða viku framundan.

Kveðja, Guðrún

Guðrún Sigurgeirsdóttir

17.1.2010 kl. 12:37

Veturinn senn hálfnaður.

Hægviðri og frostlaust í gær , smákrepja fyrri partinn en úrkomulaust síðan . Lítilsháttar frost núna. Við fórum að jarðarför Guðnýjar Sæmundsdóttur á Rauðá sem gerð var frá Þorgeirskirkju í gær, en jarðsett á Ljósavatni. Erfidrykkja í Ljósvetningabúð.
Falleg og viðeigandi athöfn. Mikil tónlist og söngur, sem var í anda hinnar látnu , en um hana mátti segja eins og Davíð Stefánsson kvað:
"Hún fór að engu óð,
var öllum mönnum góð".

En nú lengir mig eftir því að síðustjórnendur komi afmælisbörnum dagsins á framfæri, ættu að vera hæg heimatök þar sem þeirra fjölskyldumeðlimir eiga hlut að máli. Er búin að frétta að þetta sé komið á fésbókina. Hm.Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

15.1.2010 kl. 16:18

Janúar hálfnaður

og komið helgarfrí hjá dagvinnufólki eins og mér. Satt er það daginn er farið að lengja og ég fann mun í gær þegar ég var að fara heim úr vinnunni að það var bjartara en fimmtudaginn í síðustu viku. Hér er stillt veður og ég hef verið að hengja út þvott í þessari viku.
Nú er bara vika í þorrablót í Bárðardal og bóndadagsfrænkuboð hjá Guðrúnu Frænku. Venjuleg dagskrá hjá okkur hér í Norðurgötu þessa helgi, þvottur þrif og matseld. Fótbolti hjá Sævari, próflestu hjá Ásgeiri og Hjörvar nýtur þess að eiga helgarfrí. Ef til vill drífum við Jói okkur á gönguskiði!
Njótið daganna Malla

Marína Sig

12.1.2010 kl. 20:17

Daginn farið að lengja

finn mest fyrir því seinnipart dags hvað birtan er lengur en héðan frá mér er allt gott Postulínsmálunin byrjar á morgun og hlakka ég til allt komið í fastar skorður eftir gott jóla og áramótafrí hlakka til að fá frænkur mínar í súpukvöld 23 janúar er búin að festa þetta sem árlegan viðburð ekki hittumst við oft þó við séum 3 hér eiginlega á sönu torfunni Ragna í 10 mín fjarlægð og Elma í 15-20 min fjarlægð en ég get nú líka sjálfri mér um kennt ég er óskaplega heimakær og þykir gott að vera heima eftir að ég kem heim úr vinnu sem sagt allt gott frá Kleppsveginum var aðeins að láta vita af méf Lifið heil

Guðrún besta frænka

11.1.2010 kl. 10:16

Myrkur og hlýindi

Góðan dag
Þá er önnur vinnuvika á nýju ári hafin. Um helgina kláruðum við að ganga frá jóladótinu í geymslu og buðum Keflavíkurfjölskyldunni í súpu og spilamensku og þau gistu svo hjá okkur þannig að úr þessu varð hin skemmtilegasta samvera.
Við frænkur skelltum okkur svo í eina góða göngu í gær, við löbbuðum á Keili en það hafði ég ekki gert áður. Það gekk vel og var gaman. Þannig að maður er endurnærður á sál og líkama eftir góða helgi. Kóræfingar hefjast svo atur á morgun eftir jólafrí svo allt er að komast aftur í hversdagsgírinn. Snórinn þessi litli sem var hér fór í hláku helgarinnar svo maður finnur meira fyrir myrkrinu núna og í morgun hélt ég bara að það gæti ekki verið kominn tími til að fara á fætur :)
Eigðið góða vinnuviku
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

10.1.2010 kl. 12:39

Hláka og 5 °C í plús

Nokkuð breytt út að líta þar sem hefur hlánað og hlýnað eftir mikinn kulda og snjóakafla síðan fyrir jól. Annars allt gott að frétta af okkur. Nokkuð strembið fyrir yngsta manninn að koma sér á stað eftir jólafríið en aðrir taka hversdagslífinu fagnandi. Ásgeir kominn á fullt í að undirbúa sig fyrir haustannarprófin sem eru nú frá 11.-22. jan.
Við Jói erum að fara í leikhús í kvöld og sjá 39 þrep. Anna Sæunn heimsótti okkur í gær og drakk eigið afmæliskaffi hjá okkur.Við áttum ánægjulegt jólafrí þar sem við vorum í jólaboði hjá Friðriku 27. des og síðan hittist Jóa fólk allt þann 29. des. þannig að við áttum góðar stundir meðal fjölskyldunnar.
Vonandi leggst nýja árið vel í alla og við sendum góðar óskir inn í árið. Malla

Marína Sig.

9.1.2010 kl. 21:09

Sjaldgæft að ekki komi hláka milli nýárs og Þorra.

Það er gömul trú að yfirleitt komi hláka á tímabilinu milli nýárs og Þorra, þ. e. á fyrstu 3 vikum nýs árs.
Og það gerðist núna, því í gær kippti úr frosti eftir hundleiðinlegan kuldakafla frá því fyrir jól. Allhvass sv. vindur með 4-5 °hita hefur verið síðasta sólarhring og munar verulega hvað snjór hefur sigið og þótt vegurinn okkar hér í Bárðardal sé mikið svellaður eru þó að koma auðar rendur á köntunum , a. m. k. hér kringum okkur. Við höfum verið að tína niður jólaskrautið og ganga frá því. Geiri ræsti bíla sína og svo prjónar hann sér til dægrastyttingar vettlinga og leista, en kuldinn eykur á eftirspurn hjá afkomendum og hann þarf líka að finna tilgang í því að framleiða. Allmargir fjallabílar óku suður Bárðardal í dag og stefndu að skála á Réttartorfu sem bílaklúbburinn 4x4 er með þar.Næsta laugardag eftir þrettánda eru þeir þar með brennu og gleðskap, sem sagt í kvöld. Hafinn er undirbúningur að þorrablóti, sem hér er alltaf að forfallalausu fyrsta laugardagskvöld þorra, sem nú ber upp á 23. janúar. Vonum að nýtt ár verði farsælla á flestum sviðum þjóðlífsins en það liðna Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

9.1.2010 kl. 12:36

Laugardagur

Fyrstu vinnuvikunni vonandi lokið var að koma úr vinnunni núna, þurfti að skreppa í gærkvöldi og aftur í morgun - það er eitthvað óstand á öllum vinnslukerfunum í vinnunni þessa vikuna, vona að það standi nú til bóta, alltaf vont þegar allt riðlast svona. Þannig að vikan var frekar strembin. En nú er það bara fertugsafmæli seinnipartinn sem bíður og að því loknu erum við skötuhjú að fara í leikhús að sjá Oliver í Þjóðleikhúsinu og kíkja kannski á kaffihús á eftir þar sem drengurinn fær að gista hjá ömmu sinni og er alveg hæstánægður með það. Vona að nýtt ár leggist vel í ykkur. Bestu kveðjur.
Elma

Elma

8.1.2010 kl. 17:00

Fyrstu vinnuviku janúarmánaðr lokið

Og það er gott, alltaf töluvert strembið að byrja að vinna eftir gott frí og börnin frekar óróleg þessa vikuna. Vikan byrjaði reyndar hjá okkur á því að kveikt var í skólanum mínum þannig að á þriðjudag þurfti að fella niður kennlsu á miðstigi vegna reykræstinga og hreingerninga. En tjónið sem hlaust af þessum eldsvoða hleypur á milljónum. Ótrúlegt að fólki skuli detta í hug að setja flugelda inn um glugga að gamni sínu.
Hér á bæ er allt rólegt, jólaskrautið komið á sinn stað þ.e. í geymsluna og allt að detta í fastar skorður. Ég áforma nokkuð margar góðar göngur á þessu nýja ári þó ég hafi nú ekki strengt nein svokölluð áramótaheit. Ég vona að þið eigið góða helgi og verið nú rosalega dugleg að senda myndir og skirfa smá hér inná síðuna.
Kveðjur til ykkar allra
Guðrún

Guðrún Sigurgeirsdóttir

5.1.2010 kl. 19:23

Verð með ykkur í anda á súpukvöldi

en er tilbúin Siggi minn Hreinn að bjóða þér í góða kjötsúpu ef ég veit með smá fyrirvara af ferðum ykkar og þá má jafnvel hóa saman fleiri frændsystkini. Við getum jú haft gott súpukvöld hér líka. Góðar kveðjur Malla

Marína Sig.

4.1.2010 kl. 21:28

Laugardagurinn 23 janúar

Kæru frænkur mínar þá er það ákveðið að súpukvöldið okkar verður 23 janúar og verið þið velkomnar Kveðja

Guðrún besta frænka

4.1.2010 kl. 11:29

Gleðilegt ár

Góðan daginn.
Óska öllum lesendum gleðilegs árs með þökk fyrir það gamla. Við erum búin að hafa það ósköp notalegt í jólafríinu og ég er reyndar enn í fríi þar sem leikskólinn er lokaður í dag og við Atli erum að dunda okkur heima. Svo tekur alvaran við á morgun. Ég þakka Guðrúnu "bestu frænku" kærlega fyrir súpuboðið en varðandi það þá er ég upptekin þann 16. en veit ekki betur en að ég sé laus þann 23.
Bestu kveðjur.
Elma

Elma Atladóttir

3.1.2010 kl. 15:53

Nýtt ár hafið

Sælt veri fólkið og gleðilegt ár og innilegar þakkir fyrir samskipti og samveru ársins 2009.
Við höfum átt góða daga um hátíðirnar og veðrið leikið við okkur, en heldur fannst mér nú mengunin mikil á gamlárskvöld. Á morgun tekur svo við vinnan aftur og börnin byrja aftur í skólanum á þriðjudag.
Takk kærlega fyrir súpuboðið "besta frænka" ég veit ekki til að neitt sé skipulagt hjá mér þessi kvöld þannig að ég mæti hvor dagsetningin sem verður fyrir valinu. Mamma fór heim í dag og var þá búin að stoppa í viku, við mæðgurnar skelltum okkur í bíó í gærkvöld og sáum Mamma Gógó og skemmtum okkur báðar mjög vel........þar fer Kristbjörg Kjeld á kostum. Ég var að sækja "litlu stelpur" yngri niður í Smáralind en þær voru að spóka sig þar saman eins og þær gera af og til svo setti ég smákökur og nammi á boðið og ætla að reyna að koma þessu sem fyrst út því annars fitna ég bara sjálf af þessu í janúar!
Hafið það öll sem allra best
kærar kveðjur
Hanna

Jóhanna M. Baldursdóttir

3.1.2010 kl. 15:23

Hér sé friður

Gleðilegt ár góða fólk og þakka fyrir allt hið liðna,,,,,

Sé að hér svífur kærleikurinn yfir vötnum ja eða kannski meira svona Kæruleikurinn

Víðir Lundi Hjartarson

2.1.2010 kl. 23:33

Ef Siggi kærir f yrir jafnréttisnefnd

um kynjamismun kæri ég fyrir ritstuld á gestabókinni hafðu það frændi minn

Besta frænka

2.1.2010 kl. 19:24

Fallegt og bjart veður í borginni í dag

Ég hef nú uppfyllt óskir stjórnenda þessarar síðu um að senda nýjar myndir inn Þær eru komnar í albúmið mitt hér á síðunni svo nú þarf ekki að notast við gamlar myndir ef þörf er á að nota í sambandi við afmæli og fl.Svo er ég frænkur mínar hér á stór Reykjavíkursvæðinu búin að athuga dag fyrir súpukvöld Hvort viljið þið koma í súpu 16. janúar eða 23 janúar vil ekki hafa af ykkur bóndadaginn eins og í fyrra ekki veitir húsbændunum af að hafa ykkur heima á sjálfan bóndadaginn Þið frænkur mínar fyrir norðan þið eruð auðvitað velkomnar líka ef þið eruð á ferðinni.Vona að ég fái svar hvaða dagur hentar ykkur best kveðja

Guðrún besta frænka

1.1.2010 kl. 22:51

Gleðilegt ár 2010

Kæru ættingjar nær og fjær. Sendum bestu nýársóskir og vonum að nýtt ár færi okkur gleði og bjartsýni, góða heilsu og gott árferði til lands og sjávar. Við áttum góð og gleðileg áramót í góðum félagsskap ættingja og vina. Við hjón heilsuðum nýju ári með því að draga fram gönguskíðin og fara upp í Hlíðarfjall og ganga góðan hring. Við þurftum sannarlega að þurrka rykið af skíðunum því mín að minnsta kosti höfðu ekki verið hreyfð í 4-5 ár. Reikna með að verða eitthvað stirð á morgun og dríf mig þá aftur á stað.
Sendum bestu kveðjur Malla og fjölskylda Akureyri

Marína Sig.

1.1.2010 kl. 11:27

Nýársdagur 2010

GLEÐILEGT NÝTT ÁR OG HJARTANS ÞAKKIR FYRIR LIÐIÐ ÁR.
Það fylgir því alltaf viss eftirvænting að skrifa nýtt ártal og þetta er fallegt ártal. Sex manns voru hér í kvöldmat í gærkvöldi, sem svo fækkaði hægt og bítandi. Eftir flugeldaskot og áramótaskaup voru þau Óli og Dika hér um stund en fóru um kl 1 eftir miðnætti og og í morgun vöknuðum við í 15°frosti og heiðríkju og erum bara í því að hafa það náðugt. Ég var að lesa völvuspá Vikunnar og þar bregður nú fyrir meiri bjartsýni en í fyrra og þótt ég trúi nú ekki mjög á svona spár þá er alltaf meira upplífgandi að lesa um að eitthvað gott sé í vændum frekar en hitt.. Vona að við verðum dugleg að hafa samskipti hér á síðunni árið 2010. Sendum bestu kveðjur.
Dísa og Geiri.

Hjördís Kristjánsdóttir

1.1.2010 kl. 0:59

Nú árið er liðið

og nýtt ár gengið í garð árið 2010 Gleðilegt ár elsku ættingjar og vinir. Allt mitt fólk hjá mér í kvöld og var það ljúft gott veður og mikið skotið upp af flugeldum og mengunin alveg voðaleg sést ekki á milli húsa enda logn. Vonandi verður nýja árið okkur öllum farsælt og gott bæði til sjávar og sveita , Þetta er nýjárskveðjan frá okkur hér á Kleppsveginum og séstakar kveðjur frá okkur til ykkar elsku Dísa mín og frændi á Lundarbrekku Lifið heil

Guðrún besta frænka

31.12.2009 kl. 16:24

Gleðilegt nýtt ár.

Óska ykkur ættingjum mínum og vinum sem hér komið gleðilegs nýs árs og farsældar á nýju ári. Þakka liðin ár.
Kveðja Jón Árni Árnason.

Jón Árni Árnason

31.12.2009 kl. 16:04

2009 búið.

Jæja þá er þetta ár að endalokum komið og vonandi tekur við skemmtilegra og léttara ár.Kæru ættingjar og vinir við óskum ykkur alls hins besta á nýju ári og þökkum fyrir alla samveru á síðasta ári, gangið svo hægt um gleðinnar dyr um áramótin, bestu kveðjur frá okkur á Bjarnarstöðum.

Friðrika Sigurgeirsdóttir

31.12.2009 kl. 7:13

Gamlársdagur

Góðan daginn á þessum síðasta degi ársins! Úti er frost og stjörubjartur himinn og tunglið fullt! Vona samt að það verði nú ekki "allt vitlaust" um áramótin vegna þess. Við ætlum að vera heima hjá okkur í kvöld eiga notalegt gamlárskvöld. Það lítur út fyrir að maður geti notið flugeldann vel því spáin er góð. Á mrogun tekur við nýtt ár 2010 sem ég vona að verði okkur öllum gott og gjöfult. Ég óska ykkur öllum gleðilegs árs og þakka innilega öll samskiptin hér á þessari síðu og vona að þau verði enn meiri á nýja árinu.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

30.12.2009 kl. 10:45

Áramót framundan

Þá er nú þetta umbrotaár 2009 senn á enda runnið. Hér er búið að vera leiðinda tíðarfar um jólin eins og reyndar stundum áður á árinu.
Messa féll niður sem átti að vera hér á jóladag, fyrir ófærð og illviðri, barnaball var daginn eftir í Kiðagili og tókst
sæmilega.Við ætluðum að jarðarför í gær en máttum hætta við því það kyngdi niður snjó í gærmorgun og varð eiginlega ófært á fólksbílum.Malla , Jói og synirnir allir komu á þriðja jóladag, frestaðist um einn dag, og það kvöld fórum við í matarboð í Bjarnarstaði. Þau gistu svo um nóttina og fóru eftir hádegi daginn eftir. Ég frétti að Siggi á Ingjaldsstöðum og Berglind hefðu sett upp hringana á 35 ára afmælinu hans 28. des. Innilegar hamingjuóskir sendum við hér með. Kærar kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir

28.12.2009 kl. 10:51

Nú snjóar á höfuðborgarsvæðinu

Sælt veri fólkið og gleðilega hátíð.
Við í Álfaheiðinni höfum haft það rólegt og gott yfir jólin og notið þess að vera í fríi saman. Í dag og dagana á milli hátíða erum við Palli að vinna en börnin dúlla sér heima en mamma gladdi okkur með því að koma til okkar í gærkvöld og sjáum við nú að hún kom með snjókomuna með sér :)
Í gærmorgun fórum við Palli ásamt Guðrúnu og Kidda í smá fjallgöngu, gengum á Æsustaðafjall í Skammadal í indælis veðri, algjört logn og kyrrð, það var virkilega gaman að loka fjallahringnum þetta góða gönguár hjá okkur svona. Við enduðum svo á því að koma við í Mosfellsbakaríi og fá okkur kakó og rúnstykki og grínuðumst með það að þetta væri árshátíð "gönguhópsins"
Í kvöld förum við svo fjölskyldan í árlegt boð í Reynihvamminn til Önnu vinkonu minnar en það hefur verið venja hjá okkur í nokkur ár að hittast þar ásamt Báru vinkonu okkar og hennar manni en þau eru búsett í Glaskow og koma alltaf heim um jól og dvelja í Eyjafirðinum um jólin en Reykjavík um áramótin áður en þau halda aftur út. Á gamlárskvöld verða svo Siggi og Mikael líka hjá okkur svo það verður mannmargt í heiðinni þessi áramótin.
Ég vona að allir hafið það sem best hvar sem þeir dvelja og það má alveg fara að hætta að snjóa hér og þar. Kærar afmæliskveðjur til afmælisbarna undanfarið sem ég hef gleymt að senda og enn og aftur Siggi frændi afmælisbarn dagsins skjóttu nú af og til inn góðu vísunum þínum á síðuna okkar
Hátíðakveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

26.12.2009 kl. 10:55

Jólakveðjur á annan dag jóla

Kæru ættingjar. Sendi ykkur hlýjar jólaóskir og vona að þið hafið notið hátíðarinnar hingað til. Hér hjá mínu fólki er allt gott og við erum í rólegheitum að njóta lesturs, hlusta á tónlist eða horfa á myndir og sjónvarp. Höfðum hugsað okkur að fara austur í Lundarbrekku í dag en því hefur verið frestað þar til Bárðardalurinn verður fólksbílafær. Hér á Akureyri hefur kyngt niður snjó síðustu tvo sólarhringa og bærinn verulega jólalegur og þungfær.
Við áttum ánægjulegan jóladag fórum í kaffiboð til Önnu Maritar en Nonni var að vinna. Sævar naut þess að hitta frændsystkini sín í Kjarnagötunni og fá að prófa nýju bílabrautina þeirra bræðra. Valgerður systir Jóa og hennar fjölskylda var svo í mat hjá okkur í gærkveldi þar sem við borðuðum hangiket úr Lundarbrekku og heitt hangikjöt sem Hjörvar fékk í jólagjöf frá sínum nýja vinnuveitanda, Allt saman afar ljúfengt og allt borðað upp í skít! :-) Ekki það að allir fengu nóg.
Eigið góða og gleðileg jól. Malla

Marína Sig

24.12.2009 kl. 14:19

JÓLAKVEÐJA

Kæru ættingjar og vinir.
Nú er Bárðardalurinn jólalegur (fyrir þá sem finnst snjórinn jólalegur) En fallegur var dalurinn áðan að keyra suður hann nokkuð bjart og stillt og sólarroðalitir á himni. Við Anna nutum útsýnisins í botn. Ég og mitt fólk óskum ykkur gleðilegra jóla og vonum að allir eigi góð og friðsæl jól. Bestu kveðjur frá öllum á Bjarnarstöðum.

Friðrika

24.12.2009 kl. 12:19

Jólakveðja frá Lundarbrekku

Ætlaði að koma þessu frá mér fyrr en alltaf eitthvað truflað mig. Snjókoma í éljum en logn. 8-10 sm. lag jafnfallinn snjór eftir nóttina og "þæfingur " á Bárðadalsvegi eftir merkingum vegagerðarinnar og mokstur ekki í gangi þar. Dika nýbúin að tefja hjá okkur, var að fara á móti Önnu Sæunni og Jóhanni Ara, en þau ætluðu að mætast, Anna ætlar að vera á Bjarnarstöðum í kvöld, Jóhann er að vinna og verður hjá sínum foreldrum. Diddi og Þura voru að spá í að skreppa frá Akureyri og kveikja á kertum í kirkjugarðinum. Þau hafa alltaf verið hér á jólum og finnst þau þurfa að komast í snertingu við staðinn. "Römm er sú taug"En við gömlu hjónin verðum hér tvö í kvöld í fyrsta skipti og líður vonandi vel. Óskum öllum lesendum síðunnar gleðilegra jóla og farsæls nýárs. Jólakveðjur frá Geira og Dísu.

Ó, JESÚBARN, þú kemur nú í nótt.,
og nálægð þína ég í hjarta finn.
Þú kemur enn, þú kemur undra hljótt,
í kotin jafnt og hallir fer þú inn.

Hjördís Kristjánsdóttir

24.12.2009 kl. 6:42

Stal þessari af Fésbókarsíðu Sigga frænda á Ingjaldsstöðum

Komið allt á kaf í mjöll,
sem klæðir laut og hóla.
Guð lofi að þið getið öll,
góðra notið jóla.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

24.12.2009 kl. 6:41

Jólaóskir úr Tunguheiði 4

Á Aðfangadagsmorgin kl. 6.40 er stjörnubjartur himinn, logn og 9 gráðu frost í Kópavoginum. Það gránaði örlítið í gærkvöldi en annars er auð jörð. Við fórum okkar árlegu Laugavegsgöngu í gærkvöldi sem var reyndar óvenju stutt sökum kulda en heyrum fallega tóna, sáum margt fallegt og fengum gott kaffi og heitt súkkulaði hjá Kaffitári í Bankastræti. Hér er allt í rólegheitum, jólatréð stendur skreytt með jólapökkunum undir. Tengdamamma kom í gær og verður hér hjá okkur um jólin. Ekki var nú borður skata hér á þessu heimili á Þorláksmessu og verður sennilega aldrei en það hangikjötið úr Lundarbrekku smakkaðist afsakplega vel eins og alltaf og rann ljúflega niður í gærkvöldi áður en við fórum á Laugaveginn. Í kvöld er svo hamborgarhryggur á borðum en á Jóladag erum við boðin í hangikjöt til Ragga og fjölskyldu en hann er bróðir Kidda.
Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs og vonum að þið eigið notalega jóladaga framundan. Takk kærlega fyrir öll innlitin og skrifin á síðuna okkar og vonandi verða þau enn fleiri á næsta ári.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

23.12.2009 kl. 22:01

Jólakveðja úr Glaðheimum

Góða kvöldið
Ég eldaði skötu í fyrsta skipti á ævinni í kvöld, smakkaði hana í fyrsta skipti í fyrra og það kom mér verulega á óvart hvað hún var góð - miðað við lyktina. Keypti skötu "fyrir byrjendur" í hverfisfiskbúðinni og bauð Rögnu systur og fjölskyldu í skötu (keypti líka saltfisk sem börnin borðuðu) en okkur fullorðna fólkinu fannst skatan góð. Við erum þegar búin að ákveða að gera þetta aftur að ári og fara þá jafnvel í örlítið kæstari skötu. Núna er hangikjötið úr Ingjaldsstöðum komið í pottinn og ég bíð spennt eftir að smakka. Svo er það sameiginlegur möndlugrautur okkar systra í hádeginu á morgun. Ég syng svo í 2 messum á morgun, bæði á Hrafnistu fyrir gamla fólkið kl. 16:00 og svo í Áskirkju kl. 18:00. Tengdaforeldrar mínir verða hjá okkur annað kvöld og tengdamamma sér um eldamennskuna á meðan ég syng. Mig langar að óska lesendum síðunnar og mínum elskulegu ættingjum gleðilegra jóla og vona að þið hafið það gott um hátíðarnar.
Jólakveðjur og knús
Elma

23.12.2009 kl. 7:54

Jólakveðja frá Kleppsvegi 142

Jæja þá læt ég heyra loksins frá mér Lífið gengur sinn vanagang á þessum bæ. Jólaundirbúningur á lokastigi. Litla fjölskylda á Reyðarfirði komin til að halda jólin ´hjá okkur. bara gaman. Frost en fallegt veður í morgunsárið Jón og Anna halda jólin á Egilsstöðum en verða komin um áramótin suður Við sendum ykkur öllum elsku ættingjar og vinir okkar bestu jólakveðjur og njótið hátíðarinnar lifið heil Jólakveðja

Guðrún besta frænka

22.12.2009 kl. 23:29

Jólastemning

Sæl
Dísa ég get því miður ekki eignað mér neitt á jóladiski Veiranna þar sem hann var tekinn upp áður en ég byrjaði þar - en diskurinn er fallegur - þetta er mjög vel syngjandi hópur sem er búinn að syngja lengi saman. Gaman að heyra að ykkur fannst þetta fallegt. Nú á bara eftir að skreyta tréð og skúra hér áður en jólin bresta á. Við systur erum saman með möndlugraut á aðfangadag og jafnvel er búist við að jólasveinninn mæti á svæðið. Bestu kveðjur úr Glaðheimum
Elma

21.12.2009 kl. 10:54

Jólastemning.

Vorum að baka síðustu "sortina" gömlu hjón , Geiri passar ofninn, það gerði hann ungur vestur á Hólum þegar hann var matarstjóri Hólasveina fyrir margt löngu. Það ungur nemur gamall temur og þetta urðu bara fallegar gyðingakökur þótt við segjum sjálf frá. Svo er Svanhildur Jakobsdóttir með einkar jólalegan þátt sinn "Stefnumót" einmitt í loftinu núna á Rás 1. Ellý og Vilhjálmur eru að enda þáttinn með laginu "Jólin alls staðar" en áðan fengum við að heyra "Veirurnar" syngja " Hin fyrstu jól", lag Ingibjargar Þorbergs uppáhaldsljóðasmið og söngkonu minnar ,, við ljóð Kristjáns frá Djúpalæk. Án undirleiks, yndislega tært og fallegt, Takk Elma. Gat meira að segja komið Geira til að leggja við hlustir og viðurkenna að þetta væri fallegt. Það er kalt og það er snjór , allir þeir sem biðja um hvít jól mættu svo sannarlega fá þennan snjó sem búið er að úthluta okkur á síðustu dögum.Það er nú einkum á heimreiðum og heima við hús sem eru skaflar en það er mikið til hreint á vegum vegna hvassviðris. Hér á að messa á jóladag kl 14 og það er eftir að sjá hvernig viðrar þá. Sendum bestu kveðjur.

HjördísKristjánsdóttir

21.12.2009 kl. 8:19

Vetrarsólstöður

Í dag eru vetrarsólstöður eða vetrarsólhvörf og sólin lægst á lofti. Nóttin er löng og dagurinn er stuttur. Á morgun hefst nýtt ár. Nýtt ár í þeim skilningi að daginn fer að lengja aftur, ekki mikið í fyrstu, en á morgun verður hann þó einu hænufeti lengri en í dag. Fyrsta skref hænunnar er aðeins 9 sekúndur, síðan 27 sekúndur, svo 44 sekúndur, og sífellt verða skrefn lengri. Áður en við vitum af fer vorilmur að finnast í lofti, fuglar að syngja, ástin blómstrar og vorið er komið!
Hér er allt í rólegheitum jólin nálgast og við hlökkum til þeirra. Úti er ískalt en lítur út fyrir rauð jól hér á suðvesturhorninu. Ég vona að þið eigið góða viku framundan og njótið hennar vel við lokaundirbúning jólanna.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

20.12.2009 kl. 22:12

Bráðum koma

Góða kvöldið
Glaðheimafjölskyldan hefur haft það mjög gott - Atli bæði spilað og sungið á sínum fyrstu tónleikum. Svo söng hann líka í messu með Krúttakórnum. Voða gaman að fylgjast með þessum litlu krökkum. Húsmóðirin búin að syngja á einum 6 tónleikum, með Veirunum, Kór Áskirkju og Óperukórnum í Reykjavík. Við fórum í Heiðmörk um síðustu helgi til að höggva okkur jólatré. Svo er drengurinn að uppgötva jólasveinana og allt sem þeim fylgir, mikill spenningur að kíkja í skóinn á morgnanna en hann er ófáanlegur að sofa í sama herbergi og skórinn er í :-) Svo vorum við með boð í gærkvöldi, fengum góða vini í heimsókn og við borðuðum saman og spjölluðum fram eftir nóttu. Svo söng ég í einni messu í dag. Annars erum við bara í rólegheitum. Það er svo rosalega kalt að við reynum að hafa Atla sem mest inni - lungun í honum þola ekki vel svona veður.
Bestu kveðjur.
Elma

Elma

18.12.2009 kl. 21:36

jólafrí

Heil og sæl. Rólegt föstudagskvöld þar sem ég geispa og gapi og nýt þess að vera komin í jólafrí. Var við mjög fjölmenna brautskráningu frá VMA í dag. Hátíðleg og skemmtileg athöfn. Hér erum við Jói og yngri bræður komin í jólafrí en Hjörvar verður að sinna sinni vinnu alla virka daga og ekki kvartar hann, feginn að hafa vinnuna.
Af okkur er allt gott að frétta ég skrapp á mánudag í Lundarbrekku og við Friðrika gerðum laufabrauð fyrir pabba og mömmu. Ég gisti og kom heim aftur á þriðjudag og mamma með mér og hún fór svo heim á miðvikudagskvöld.
Jólaundirbúningur er á góðu róli hjá mér búin að senda frá mér allan póst og jólakort farin að tínast í hús hér. Við Jói lesum þau öll jafnóðum og svo aftur á aðfangadagskvöld. Mér finnst alltaf gaman að fá jólakveðjur , myndir og fréttir af fólki.
Veður hefur verið stillt það sem af er desember en suma daga vorblíða en svo héla og hálka hina dagana. Í kvöld eru svo orðin breyting og farið að blása á norðan og slítur stöku él.
Við hér í Norðurgötu sendum góðar kveðjur og vonum að þið eigið góða daga við jólaundirbúning.

Marína Sigurgeirsd.

14.12.2009 kl. 15:14

Gleymdi að

segja til nafns... en þeira sem lesa þetta vita eflaust frá hverjum þetta var!
Guðrún

Guðrún Sigurgeirsdóttir

14.12.2009 kl. 15:13

Get ekki orða bundist

yfir veðurfarinu þessa dagana, hér er 9 stiga hiti og logn og ef ekki væri svona dimmt héldi maður að það væri komið vor. Yndislegt að bera út í morgun þ.e. veðrið, veit ekki hversu blaðið sem við berum út er yndislegt :-)
Annars lítið að segja síðan síðast, allt gengur sinn ganga, Eiríkur á eftir eitt próf á morgun þá er hans prófatörn búin núna. Mikið að gera hjá honum en hann var svo heppinn að fá vinnu í Rúmfatalagaernum og er þar á kassa a.m.k. fram að jólum. Njótið blíðunnar

13.12.2009 kl. 9:50

Þótt desember sé dimmur.....

Heil og sæl öll.
Það eru óttaleg þyngsli í nettengingunni hjá mér þessa dagana, sennilega ofurálag og ekkert sama hvenær á sólarhringnum reynt er að tengjast..
Í gærkvöldi vorum við á jólahlaðborði í Kiðagili og voru þar um 100 manns, m.a. fólk af Húsavík, Akureyri og úr Reykjavík. Kona sem er kennari við fjölbrautarskóla í Reykjavík sagði mér að það hefði eiginlega vakið meiri athygli í hennar umhverfi að hún væri að fara á jólahlaðborð í Bárðardal heldur en að hún hefði ætlað að fara til London. Þarna var hópur sem tók sér gistingu og ætlaði svo að fara skoðunarferð um Bárðardal í dag þegar birti, áður en haldið væri heim. Leppalúði og yngsti sonur Grýlu voru þarna að taka á móti fólkinu, en gamla Grýla forfallaðist. Kristjana Arngrímsdóttir söng við undirleik Jaan Alavere og geri vel eins og alltaf. En vegurinn var ein svellgljá og skaut aðkomufólki skelk í bringu og þegar sveitaryfirvöld voru búin að kanna hann og sjá með eigin augum var hann skrapaður með tönn og sandborinn. Það er nær logn og rigning og 7°hiti í gærkvöldi og milt en úrkomulaust í morgun. Hér er sem sagt snjór yfir öllu, en frá Fosshóli er auður vegur bæði til Akureyrar og Húsavíkur.
Á fimmtudagsmorgunn var mjólkurbíllinn með keðjur á öllum hjólum til að ná mjólkinni og a. m. k. á Bjarnarstöðum hefði ekki annað dugað til. Við skröltum þetta svona af gömlum vana. Það er á dagskrá að Malla komi í fyrramálið og þá ætlaði Dika að koma líka og þær ætluði í laufabrauðsgerð hjá okkur.
Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir.

12.12.2009 kl. 8:17

Desembermorgunn

Góðan og blessaðan daginn!

Eftir rok og rigningu gærdagsins er nánast logn hér í morgun. Við Eiríkur erum búin að fara þennan daglega rúnt með Morgunblaðið í hverfið og er bara fínt veður.
Hér voru bakaðir lakkrístoppar í gærkvöldi og súkkulaðibitakökur í morgun þannig að ég er nú alveg að komast í jólagírinn. Jólagjafkaup eru nánst búin og við njótum þess að vera til þessa dagana. Við fórum á jólatónleika Fíladelfinu í vikunni og var það mjög hátíðlegt þó ég sé nú svo gamaldags að mér finnst nú alltaf fallegra að heyra karlarödd syngja "Ó helga nótt" en Jóhanna Guðrún gerði það reyndar vel en það vantaði nú samt eitthvað :-). Óli Hjörtur og Elva eru í bænum og á ég von á þeim í dag og svo eru Anna Sæunn og Jói að koma suður í dag þannig ég sé líka framan í þau um helgina. Alltaf gaman að hitta ættingjana. Guðrún og Árni kíktu líka hér eitt kvöld í vikunni og var það virkilega gaman, maður á að gera meira af því að hittast yfir kaffibolla. Ég vona svo að þið njótið vel þessara daga sem eftir eri fram að jólum já og nú styttist í að daginn fari aftur að lengja...
Kveðjur til ykkar allra og kíkið við ef þið eigið leið um Kópavog
Guðrún

Guðrún Sigurgeirsdóttir

11.12.2009 kl. 12:52

Rok og rigning

Sælt veri fólkið!
Þá er það smá pistill frá mér. Tíminn líður svo hratt og alltaf nóg að gera í öllu. Fyrri jólatónleikarnir eru búnir og þeir seinni eru á morgun og í framhaldi jólasamvera kórfélaga heima hjá kórstjóra :)
Eitthvað er maður búinn að undirbúa jólin en það verður enn frekar þegar tónleikarnir eru yfirstaðnir. Annars er líka verið að kenna mér nýtt starf í vinnunni í ofanálag við allt annað þannig að sellurnar þurfa að virka vel á öllum vígstöðum. Þar sem halda á starfsfólki í lágmarki var ákveðið að hafa mig sem afleysingargjaldkera þegar álagið er mikið, en annars verð ég líka í mínu gamla starfi að sýsla með þinglýsingarpappíra. Við höfum lítið farið á mannamót tengd jólum en hann Ari minn vill helst bara alltaf vera með vinum sínum í fótbolta og valdi það frekar um sl. helgi þegar ég ætlaði að bjóða honum í jólaþorpið í Hafnarfirði :) Við Siggi fórum reyndar á aðventutónleika í Hjallakirkju hjá kirkjukórnum þar. Jólagjafakaup eru langt komin og aðeins búin að baka smákökur, en svo fór nú hrærivélin mín ekki í gang í gærkvöld þegar ég ætlaði að nota hana, þannig að ég þarf eitthvað að láta líta á hana en held ég sé nú svo heppin að hún er í ábyrgð enn. Næstu helgi förum við svo í tvöfalt fertugsafmæli í Keflavík.
Góða helgi og njótið aðventunnar
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

5.12.2009 kl. 22:48

Kem afmæliskveðjunni til skila

Sæl Dísa takk fyrir afmæliskveðjuna ég kem henni til skila.Þú ert örugglega búin að sjá nafnið á henni á afmælissíðuni en ef ekki þá er það Sigríður Svana Helgadóttir.

Vonandi er allt gott að frétta af ykkur biðjum að heilsa Geira.
kveðja kristín og co

5.12.2009 kl. 17:25

Til hamingju með afmælin

Elsku Hjördís okkar . Innilegar hamingjuóskir á 19 ára afmælinu. Sjáumst svo síðar.Afi og amma Lundarbrekku.

Kristín,til hamingju með tengdadótturina og hún fær hamingjuóskir með afmælið.
Það væri ekki verra að vita hvað hún heitir. Kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

5.12.2009 kl. 10:55

Aðventan

Sælt veri fólkið hjá okkur gengur lífið bara sinn vana gang ég var að klára síðasta prófið í gær,ekki var það slæmt :) bara frábært að vera komin í jólafrí.Jónas er byrjaður í nýju vinnunni (Áflþynnuverksmiðjunni)og ansi mikið sem þarf að taka inn í heilabúið fyrstu vikurnar. Hér er búið að baka 3 smákökusortir og er það meira en hefur oft verið gert fyrir jólin enda hefur aldrei farið neitt af þeim hjá okkur. Aldís er komin í jólafrí 18 og bíður spennt eftir fríinu og jólunum.,en ég held að hún sé spenntari fyrir morgundeginum .því þá fer fjölskyldan á frostrósa tónleika og allur söngur heillar dömuna og hún er búin að bíða spennt í 3 vikur. Eigið góða aðventu og njótið hennar með fjölskyldunni,vinum og ættingjum því það er það dýrmætasta sem við eigum. Langar að nefna að tengdadóttir mín er 26 ára í dag(kærasta Alla) og óskum við henni til hamingju með daginn.


kveðja Kristín Reykjalín.

5.12.2009 kl. 8:07

Hjördís "litla" 19 ára í dag

Til hamingju með daginn elsku Hjördís mín.... eitthvað er nú 123.is leiðinlegt í morgunsárið og kemst ég ekki inná hana til að setja afmælið inn en það vonandi lagast þegar líður á daginn. Eigið góðan dag

Guðrún Sigurgeirsdóttir

3.12.2009 kl. 9:13

Skammdegi

Góðan dag. Nú snjóaði í alvöru í fyrrinótt og fram eftir degi í gær svo við vorum innilokuð. Skólabíllinn sneri við í gærmorgun, starfslið skólabúða sömuleiðis og Víkurskarð lokaðist. Í morgun er svo búið að opna vegi, mokstursbíll búinn að vera á ferð, einnig mjólkurbíll, skólabíll og búið að moka heimreiðina hjá okkur í fyrsta skipti á vetrinum og telst það nokkuð gott og kominn desember.. En það er þokuloft og einhver hríðarmygla annað slagið, hiti um frostmark. Ég er búin að setja aðventuljós í glugga og aðventukrans á stofuborðið og aðventukerti á eldhúsborðið + fallegar einigreinar í stóra skál og ljósaseríu í á kommóðu frammi á gangi. Það var hún Lauga í Engidal sem færði mér eininn og ég sagðist hafa hitt á óskastund. Meiri skreytingar verða ekki hjá mér fyrri en jólin eru komin mjög nærri. Eigið góða og notalega aðventu.

Hjördís Kristjánsdóttir.

30.11.2009 kl. 20:48

Aðventubyrjun

Góða kvöldið!
Eins og fram hefur komið hér þá skrapp ég með Evu mína til Akureyrar á handboltamót um helgina, en þær HK stelpur í 6. flokki voru að keppa þar á stóru móti og kræktu sér í gullverðlaunin..ekki leiðinlegt það. Við komum frekar þreyttar heim í gærkvöldi en alltaf gott að sofna í rúminu sínu eftir ferðalög. Í dag hefur verið reynt að setja upp smá jóla-ljós hér á heimilinu og þrífa aðeins í leiðinni. Annars er ekkert jólastress í gangi hér, ekki verið keypt ein einasta jólagjöf ennþá og ekki bökuð ein smákaka enn en ég er alveg viss um að það koma jól þrátt fyrir það, nógur tími til stefnu.
Það er líka gaman að hafa þetta ekki alltaf nákvæmleg eins :-). Mikilvægast er að hafa fólkið sitt heilbrigt og hjá sér.

Eigið góða daga framundan og ekki láta neitt jólastress ná tökum á ykkur!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

30.11.2009 kl. 20:27

Guðrún Frænka ég hugsa til þín

Sæl öll kæru frændur og frænkur. Takk Guðrún Frænka ég hugsa að ég biðji Guðrúnu systur að nálgast þetta hjá þér. Anna Sæunn ætlar að vera jólapóstur fyrir okkur Guðrúnu en hún er í sinni síðustu skólalotu 11.-13. des. n.k.
Ég fór óvænt suður á námskeið 21. nóv. og átti þá skemmtilegt kvöld með frænkum mínum. Takk fyrir það.
aðventan er alltaf skemmtilegur tími nú var síðasti kennsludagur á haustönn í VMA í dag og við taka prófavikur. Þá er vinnan öðruvísi og álag minna. Við á matvælabraut lukum kennslu á önninni með því að elda jólamat fyrir alla starfsmenn skólans og matarins nutu rúmlega 120 manns í dag. Hangikjötið frá Norðlenska smakkaðist ljómandi og fólk var mjög ánægt með matarboðið frá skólanum.
Ég er aðeins farin að baka og svo eru stjörnurnar komnar í gluggana og hangikjötið í kistuna. Hvað er hægt að hafa það betra. Vona að þið öll eigið völ á að sjá störnuljós á aðventunni og njóta þess sem dagarnir hafa að bjóða. Kær kveðja Malla

Marína Sig

29.11.2009 kl. 15:57

1.sunnudagur í aðventu

nú nálgast blessuð jólin og ljós og skreytingar rjúka upp hér í kringum mig og það er gott mér finnst allt í lagi að fólk lýsi upp hjá sér svona snemma í þessu skamdegi og ástandinu í þjóðfélaginu Dísa mín gott var að heyra frá þér ég sakna þess alltaf ef ekki heyrist frá þér um tíma Ég skil frænda vel að vera eirðarlaus vanur að fara til gegninga alla daga en hann finnur sér eitthvað ég var að borga bókina Ættir Þingeyinga hann er búin að vera í talsverðu sambandi við mig hann Brynjar út af ættinni minni gott að það er búið ég er nú ekki mikið fyrir ættfræði en ætla að eignast þessa< bók. Særún Birta er að syngja á tónleikum á Eskifirði núna þar eru tónleikar með kirkjukórunum í Fjarðarbyggð og svo er englakórinn líka sem hún er í ásamt sinfoníuhljómsveit norðurlands örugglega fallegir tónleikar þau koma svo suður 19 des og verða yfir hátíðirnar og Nonni og Anna fara sama dag í Egilsstaði og verða þar yfir jólin en koma aftur milli jóla og nýjárs þetta er nú helst í fréttum hjá mér núna Lifið heil

Guðrún besta frænka

29.11.2009 kl. 10:47

Aðventan byrjar í dag.

Gleymdi fyrirsögninni og bæti hér fyrir það

Hjördís Kristjánsdóttir

29.11.2009 kl. 10:45

Heil og sæl. Guðrún mín, "besta frænka", það er gott að vita að einhver saknar manns, en tölvan hefur verið að stríða mér á aðra viku, það byrjaði með því að menn frá Rarik voru að gera árlega úttekt á kerfinu og tóku rafmagnið af tvo daga í röð, það var meira en okkar nýja háhraða nettenging þoldi, en þegar það komst í lag var tölvupósturinn úti en loks í fyrradag komst þetta í lag, ég var orðin dauðhrædd um að tölvan væri full af vírusum, en sem betur fer er það ekki þannig vona ég.Malla og Jói komu hér áðan , hún ætlar að úrbeina fyrir mig hangikjöt í dag og ég segi henni frá þessum pakka. Ég bakaði tvær smákökutegurndir í gær og nokkrar flatkökur í morgun svo ég er bara ánægð með mig. Ærnar okkar fóru í Bjarnarstaði í vetrarvist sl fimmtudag og Geiri kann nú ekki alveg á þetta líf ennþá . Hann verður að temja sér að fara samt út og finna sér eitthvað að fást við á hverjum degi. Guðrún og Eva Margrét eru á handboltamóti á Akureyri, fara heim í dag. Hafið það sem best.

Hjördís Kristjánsdóttir

28.11.2009 kl. 18:10

Skilaboð til Möllu

Mér þætti vænt um frænka ef þu ættir leið um höfuðborgina kanski svona óvænt að þú létir mig vita því pakki til þín verður tilbúinn upp úr 10 des hvað segirðu um það Annars allt gott héðan smáköku bakstur að verða búin hjá mér og nóg að gera í vinnunni Dísa mín á Lundarbrekku ósköp er langt síðan ég hef lesið nokkuð frá þér vonandi er allt í lagi hafið það gott kveðja

Guðrún besta frænka

22.11.2009 kl. 9:58

Þessi fallegi dagur

Veit ekki hvað vakti mig,
vil liggja um stund.
Togar í mig tær birtan,
lýsir upp mína lund.

Þessi fallegi dagur.
Þessi fallegi dagur.

Í morgun kom þetta lag upp í hugann á mér þegar ég leit út um gluggann, því her er svo sannarlega falegur dagur.. var ekki sagt? : morgunroðinn bætir? eða var það öfugt?
En hér er allvega fallegasta veður en kólnandi skilst mér á spánni. Á föstudagskvöldið hittumst við hér bræðradæturnar Elma, Ragna, Malla, ég, og Hanna en það vantaði Diku og Sibbu.... verðum einvhertíma að koma því við. En það var algjör tilviljun að Malla var með okkur í þetta sinn. Mikið er nú alltaf gaman að hittast og kynnast aðeins betur. Í gær var svo góður dagur hér, ég náði að fara með Möllu smá stund í Kringulna, hitta tvær gamlar góðar vinkonur og svo borðuðum mið ljúffengan lambahrygg ættaðan úr Lundarbrekku í kvöldmatinn. Kristófer stóri strákurinn okkar kom og eyddi með okkur síðdeginu og borðaði svo áður en hann fór í afmæli hjá vini sínum. Alltaf gaman að fá hann í heimsókn og gott hvað hann og Eiríkur eru góðir vinir. En þeir skruppu í gær og horfðu saman á einn Liverpool leik. Eva Margrét er búin að vera á fullu að skila af sér vörum vegna fjáröflunar í handboltanum um helgina og er því loks lokið. En hún skellti sér svo í gærkvöldi á jazzballett keppnina "dansbikarinn" hér í HK húsinu með vinkonum sínum og skemmti sér vel. Hér er nú ekki farið að hugsa neitt um jólin enn enda nógur tími. Ég er nú dálítið íhaldssöm með jólaljós og skraut og vil helst að Aðventan gangi í garð áður en kassarnir eru opnaðir. En skil vel þá sem vilja byrja fyrr. Held meira að seigja að krakkarnir hafi erft þetta því þau eru alls ekkert farin að bíða eftir jólaskrauti. Hér á bæ eru allir búnir að fara í svínaflensusprautu en einhver kvefskítur er nú í sumum á heimilinu.
Ég vona svo að þigð eigið góðan sunnudag og vikan framundan verði góð.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

20.11.2009 kl. 15:26

Blíða í höfuðborginni.

Sælt veri fólkið!
Eitthvað langt síðan ég lagði orð í belg en ekki svo mikið að frétta en alltaf nóg að gera.
Í dag er búið að vera svo fallegt veður í Kópavoginum þó tíminn sé stuttur sem bjart er, ég labbaði í vinnuna í morgun og var einmitt að hugsa með mér að það væri ekki eins og það væri langt liðið á nóvember.
Börnin eru bæði að keppa um helgina, Særún í handboltanum í dag og á morgun og Ari í fótbolta á sunnudag. Lokaspretturinn í æfingum fyrir jólatónleikana að hefjast en að þessu sinni syngur Kristján Jóhannsson með Léttsveitinni.
Aðventan bráðum að hefjast og smákökuilmurinn fer að berast út Álfaheiðinni von bráðar. Í Hjallaskóla er að klárast þemavika og við fórum í hádeginu og horfðum/hlustuðum á afrakstur nemenda sem voru í leiklist og söng og þar var Særún okkar rokksöngkona í hljómsveit og stóð sig vel.
Í kvöld ætla bræðradætur svo að hittast heima hjá Guðrúnu og eiga notalega kvöldstund saman svo þetta er allt saman ósköp gaman.
Vona að þið eigið öll góða helgi
kveðja
Hanna

Jóhanna Marína

16.11.2009 kl. 20:52

16. nóvember

í dag eru 17 ár síðan hún elskulega móðir mín kvaddi þennan heim og minnumst við fjölskyldan hennar með söknuði virðingu og þökk. Tíminn er svo fljótur að líða okkur finnst þetta svo stutt síðan en svona er þetta bara kveðja

Guðrún besta frænka

16.11.2009 kl. 20:15

Nóvember

Mánuðurinn sem ég held alltaf að sé svo rólegur og góður. En reynist ævinlega mjög annasamur í vinnunni. Námslok hjá nemendum, námskeið sem tengjast vinnunni og prófalota hjá okkur á matvælabraut í lok nóv. Þannig að ég er komin á þá skoðun að hann sé ekki lengur svo rólegur. En allt gott að frétta af mér og mínum. Engin flensa hrjáð okkur og allir á fullu. Við Jói höfum haft óvenju mikið að gera í félagslífinu svo það er eitthvað um að vera allar helgar. Veit ekki hvort þetta er aldurinn eða við bara yfirleitt svona félagslind. Veðrátta verið mjög góð hér undanfarið og það styttir skammdegið en nú er orðið mjög dimmt.
Ég minnist Hjartar frænda af alúð og virðingu og sendi öllum afmælisbörnum hlýjar kveðjur. Tveir frændur eiga afmæli á morgun. Góðar kveðjur Malla

Marína Sig.

14.11.2009 kl. 22:50

Allt gott af suðvesturlandinu

Mér finnst nú hafa verið heldur risjótt tíð hér hjá okkur rigning og blástur og inn á milli bjart Er farin að huga að smáköku bakstri ætla að vera á fyrra fallinu með hann vegna þess að það er svo mikið að gera í vinnunni á þessum tíma og þá baka ég á kvöldin Í gær hefði minn besti frændi átt afmæli og minnist ég hans með virðingu og þökk blessuð sé minnig hans Lifið heil

Guðrún besta frænka

14.11.2009 kl. 2:52

takk fyrir innlitið

Rakst alveg ovart inn a þessa siðu
og fann margt froðlegt að glugga
i i flensunni kveðja fra akranesi.

Hjörtur Gauti ketilsson

13.11.2009 kl. 21:23

Sæl verið þið öll. Það er kominn 13. nóvember og veðurfar síðustu viku hefur hér verið kyrrlátt og auð jörð , ekki einu sinni frost á hverri nóttu.Það kom loks "góða tíðin í nóvember". En það er nú eitthvað leiðinlegra framundan i spám veðurstofunnar.Það er verið að bjástra í sveitinni við að ljúka við hangikjötsreykingu, moka skít og lagfæra í húsum fyrir veturinn. Sumir farnir að rýja. Aðalfundur Bárðarborgar , sem er hlutafélag eigenda hússins sem var áður Barnaskóli Bárðdæla var í fyrrakvöld. Þar var ákveðið að framvegis héti húsið Kiðagil en það hefur ekki komist formlega á fyrri. Búið er á þessu ári að skipta um glugga að mestu leyti í húsinu , endurnýja og bæta við stólum , byggja geymslu úr gámum áfasta við húsið, búið að mála inni og úti er eru málningavinnu ólokið en er hafin.Fleira mætti tína til en plássið hér er e. t. v. ekki teygjanlegt í heila blaðagrein.
Í dag hefði Hjörtur , mágur minn orðið 71 árs hefði honum enst líf. Blessuð sé minning hans. Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

7.11.2009 kl. 22:11

Tíminn fljótur að líða

Sæl öll
Mér finnst ég alltaf vera að skrifa inn á síðuna en svo sé ég að það líður langur tími á milli - tíminn er sem sagt ótrúlega fljótur að líða og mér finnst alltaf vera föstudagur og mánudagur til skiptis. Við systur eyddum nokkrum dögum um daginn í sumarbústað í Miðhúsaskógi sem var yndislegt. Í dag fórum við Glaðheimafjölskyldan og Ragna og Fanney Birta í fjöruferð út að Gróttu í alveg dásamlegu veðri og skemmtum okkur vel. Ég fór í Óperuna um síðustu helgi að sjá Ástardrykkinn og er að fara aftur annað kvöld að sjá aðra söngvara í sömu sýningu. Ég byrjaði einnig í nýjum kór í síðustu viku sem heitir Veirurnar og er að fara á æfingu með þeim á Laugarvatni á morgun á æfingu. Sem sagt allt gott í Glaðheimum

Elma

7.11.2009 kl. 7:37

7. nóvember

7. nóvember er 311. dagur ársinssamkvæmt gregoríska tímatalinu og eru þá 54 dagar eru eftir af árinu.
1550 var Jón Arason, biskup á Hólum, og synir hans, Björn Jónsson, prestur á Melstað og Ari Jónsson, lögmaður, teknir af lífi í Skálholti eftir harðvítugar deilur á milli lútherskra manna og kaþólskra um völd í landinu. Enn er deilt í landinu....... og verður sennilega alltaf!

En hjá mér og mínum er bara gott ástand, engin svínaflensa enn og voandi náum við öll bólusetningu án þess að fá hana. Við Kiddi fóru í gær ásamt þeim Hönnu og Palla á tónleika með tveim norðlenskum hljómsveitum n.n.t. Ljótu hálvitunum og Hvanndalsbræðrum og það þarf ekkert að fjölyrða um þá tónleika... stórkostlegir og troðfullt hús!! Í dag ætla ég að byrja á að ganga aðeins með nokkrum góðum vinnufélgugum og kíkja svo í búiðir með Möggu (tengdamömmu). Endum svo sennilega í Reykjanesbæ í matarboði ef allt gengur eftir! Eigið góðan dag og helgi!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

3.11.2009 kl. 14:26

Fyrstu nóvemberdagar

Heil og sæl öll. Gott að heyra frá ykkur. Ég ætlaði til Akureyrar í dag í sjúkraþjálfunina , fara að byrja aftur eftir 5 vikna hlé. Fékk þá skilaboð í morgun frá þjálfaranum að hún væri veik og því féll tíminn niður. Ekki ólíklegt að þar sé flensan á ferð. Ég var í gærkvöldi á Friendtex fatakynningu á Bjarnarstöðum og hitti nokkrar hressar konur þar og sl laugardag fór ég á árlega samverustund kvenna innan Kvenfélagasambands S Þing í gamla Húsmæðraskólanum á Laugum. Það var líka skemmtilegt en áberandi fáar mættu samt úr dreifbýlinu okkar.Húsavíkurkonur stóðu sig með prýði og voru líka með veitingarnar að þessu sinni, en auk þess voru konur beðnar að koma með sýnishorn af sultum o. fl. úr eldhúsunum sínum og þar kenndi ýmissa grasa. Bestu þakkir fyrir þá samveru. Að endingu: Í gær 2. nóvember,er afmælisdagur Guðrúnar Kristjánsdóttur á Lundarbrekku. " Gunnu Kristjáns" Hún var fædd 1912. Í dag, 3. nóvember er afmælisdagur Guðrúnar Jónasdóttur á Lundarbrekku, "Rúnu á Lundarbrekku" Hún var fædd 1878. Þær slógu stundum saman í afmæliskaffi í gamla daga og var þá verið til skiptis "uppi í húsi " eða í gamla húsi .Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

2.11.2009 kl. 5:56

Frá suðri til norðurs með sópran í eftirdragi

er heiti á tónleikum sem ég fór á í gærkvöld í Íslensku óperunni þar sungu Diddú Óskar Pétursson og Jóhann Friðgeir alveg yndisleg stund og brandararnir fuku frá Óskari svo það var nú ekki leiðinlegt Fallegt veður hér í gær og allir nutu veðurblíðunnar frost en logn og heiðskírt Ný vinnuvika og nóg að gera kominn jóla fiðringur í gamla fólkið og undirbúningur í félagsmiðstöðinni kominn á fullt búið að setja niður jóla dagskrána hjá okkur jóla bingó jóla hlaðborð jóla súkkulaði og fl Annars allt gott eigið góða daga kæru vinir og ættingjar

Guðrún besta frænka

1.11.2009 kl. 19:16

Eftir rólega helgi

Allt gott að frétta af mér og mínum. Helgina hef ég notað í heimilisverk og slökun. Sævar var í útilegu frá laugardegi til sunnudags í Fálkafelli með skátahópnum sínum og Hjörvar að vinna. Vitlaust að gera hjá honum í Rúmfatalagernum en það var virðisaukaskattsfrí helgi og svo virðist sem jólafiðringur sé að byrja hjá fólki.
Veðrið verið indislegt og gott að nota tímann og vera úti. Góðar kveðjur inn í nýja vinnuviku. Malla

Marína Sig.

31.10.2009 kl. 10:38

Jæja þær mæðgur fóru heim

á þriðjudaginn gaman að hafa þær í þessa daga annars bara allt gott engin flensa hér enda við bæði sprautuð fyrir svinaflensunni risjótt veður hér en allt í lagi Var bara að láta vita aðeins frá mér lifið heil kæru ættingjar og vinir

Guðrún besta frænka

30.10.2009 kl. 21:41

Vetrarbyrjun

Þessi fyrsta vika vetrar hefur verið frekar hlý og ansi blaut hér á þessu svæði og spurning um hvort þetta sé það sem koma skal í vetur?? En hér á bæ höfum við alveg sloppið við A(H1H1)v flensuna og vonum við að svo verði áfram 7 9 13....
en nokkuð margir sem ég þekki hafa veikst töluvert mikið. Ég var í vetrarfríi á mánudag og þriðjudag en fór að vinna aftur á miðvikudag en þá fóru börnin mín í frí :-(
Okkur líður vel hér í nýju íbúðinni og lífið gengur sinn vanagang... sosum engar fréttir. Vona að þið eigið ánægulega helgi

Guðrún Sigurgeirsdóttir

29.10.2009 kl. 10:47

Haust

Farin að skammast mín fyrir hvað ég hef stundað síðuna illa undanfarið. Tíminn líður svo hratt þar sem nóg er að gera, í minningunni var vor fyrir nokkrum dögum en nú er allt í einu kominn vetur.Hjá okkur er allt í venjulegum skorðum, við að mestu tvö, þó kemur Geiri heim flest virk kvöld og sefur heima og Hjördís kemur alltaf heim aðra hverja helgi.Haustverk eru langt komin,reykhús í fullum gangi en eftir svolítið í að undirbúa fjárhús fyrir alvöru vetur.Sumarið fær frekar léleg eftirmæli heyskapur var langur og leiðinlegur vegna óþurrka, en vegna rúllutækninnar, þá er til nóg hey. Mjög gaman að geta mokað fínasta heyi fyrir kusurnar eftir sumarið.Horfum bara bjartsýn fram á veginn hér.

Friðrika

26.10.2009 kl. 10:49

Fall er fararheill

segir einn málshátturinn.
Ekki vorum við fyrr komin með háhraðatengina 3 G en allir urðu sambandslausir sem búið var að tengja við Sandskálamelinn, sem er ofan við Halldórsstaðaskóg. Náttúrlega helgi , en það má segja þeim til hróss hjá símanum að að eftir kvart nógu margra í gær hafa þeir verið búnir að finna bilunina og viðgerð lokið um kl 9 ímorgun. Við erum að dunda +í kjötvinnslu , á að salta hangikjötið í dag. Hitastig um frostmarkið lengst af sólarhringsins svo ekki þarf að óttast að þetta skemmist í meðförunum. Það er auð jörð, hálfskýjað og kyrrt , besta vetrarveður. Vona að heilsufar og atvinnumál verði á réttu róli . Kærar kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

26.10.2009 kl. 9:39

Þetta voru semsagt fréttir af mér og mínum!

Gleymdi nefnilega að hafa fyrirsögn.

Jóhanna Marína

26.10.2009 kl. 9:36

Góðan dag gott fólk!
Hjá okkur er allt gott að frétta og allir hraustir. Við Palli og Guðrún skelltum okkur í ferð í gær á Hvalfell, við slógumst í för með kunningja Palla, Gunnlaugi frá Stafafelli í Lóni en hann hefur undanfarnar helgar farið á fjöll og fell í nágrenni Reykjavíkur og fer á rútutrukk, keyrir sjálfur og sér um leiðsögn. Þetta var dálítið öðruvísi ferð heldur en þær fjallgöngur sem við höfum farið í, í sumar en hefur líka með það að gera að árstíminn er annar en veðrið og útsýnið var frábært og þetta var bara heilt ævintýri má segja frá kl 10-19, við gengum alls kringum14 km. og hæðin á fellinu rúmir 800m, ég var mikið þreytt en ánægð þegar ég kom heim en ég hef ekki mikið gert af því að ganga á fjöll í snjó og svo háir lofthræðsla mér, alltaf dálítið, en auðvitað var komið við hjá fossinum Glym á leiðinni niður af fellinu.
Allt er enn við það sama í minni vinnu þó búið sé að kynna fyrir okkur fyrirhugaða sameiningu embætta, eitthvað voru þeir of fljótir á sér þannig að mér skilst að þessu seinki eitthvað, allavega tekur þetta ekki gildi um áramót eins og talað var um í þessum kynningardrögum!
Í kórnum mínum erum við komnar á fullt að æfa jólalögin svo allt er bara voða gaman og nóg að gera allsstaðar, krakkarnir á fullu í handbolta og fótbolta og nóg að fjáröflunum og þannig í kringum það :-) Næsta laugardag er Ari minn í fyrsta skipti að keppa á formlegu fótboltamóti í Reykjanesbæ og hann hlakkar svo mikið til og telur niður á hverjum degi :-)
Krakkarnir verða í vetrarfríi næsta fimmtudag og föstudag og ég ætla að taka mér frí á föstudag og þá ætlum við að gera eitthvað skemmtilegt saman.
Vona að allir hafi það sem best , að menn sleppi við slæmar flensur og hafi vinnu.
Eigið góða vinnuviku
bk. Hanna

Jóhanna Marína

24.10.2009 kl. 11:20

Mæðgurnar komnart í heimsókn

og það er gaman fyrst vetrardagur í dag þá er sumarið vís búið Svínaflensan grasserar hér á fullu ég fékk sprautu á miðvikudaginn þar sem ég vinn innan um gamalt lasburða fólk og er sjálf með astmaeinkenni fékk ég sprautu strax sem sagt búið að sprauta okkur bæði hjónin Nonni búin að fá sprautu landhelgisgæslan þarf að vera laus við þetta fár og vera til staðar ef eitthvað kemur uppá ekki gott að hafa áhafnir skipana liggjandi í beikon pestinni annars allt gott frá mér og mínum lifið heil

Guðrún besta frænka

24.10.2009 kl. 9:46

Fyrsti vetrardagur

Þakka fyrir hamingjuóskir með að vera komin í betra netsamband. Þetta er gegnum GSM símann og þar sem slíkt samband er ekki alls staðar hér um slóðir eru ennþá bæir á svæðinu sem ekki hafa fengið háhraða tengingu og ekki fyrirséð hvenær það verður. Í nótt kom smáföl á auða jörð svo það er heldur hvítt út að líta og þoka niður á jafnsléttu.Óskum öllum góðs vetrar og að svínaflensan gangi yfir án mikilla veikinda.

Hjördís Kristjánsdóttir

23.10.2009 kl. 19:16

Skrif í gestabók

Ja ekki er ég nú sá duglegasti að skrifa hér. Fólk talar um að Snjáldurskinna (facebook) sé að taka yfirhöndina ég ætla nú að vona að svo sé ekki. Gaman að sjá að það sé loksins komin alvöru nettenging í BÁRÐARDALIN. Héðan af Egilsstöðum er allt gott að frétta, Bryndís hætt að vinna og hugsar nú bara um skólann og heimilið og ég reyni að vinna.

Siggi Hreinn

23.10.2009 kl. 19:00

Síðan lokuð

Sennilega verð ég nú að taka það á mig að síðan lokaðist um stundarsakir, ég einfaldlega gleymdi að borga. og biðst ég afsökunar á þessum mistökum mínum, en Guðrún bjargaði mér núna eins og oft áður með þessa síðu.

Siggi Hreinn

22.10.2009 kl. 16:57

Til hamingju Dísa

ekki leitt að f´á tenginguna á þessum degi kveðja

Guðrún besta frænka

22.10.2009 kl. 15:15

Var að fá alvörunettengigu

Varð að láta ykkur fylgjast með því, það er áreiðanlega ótrúlegur munur og svo er síðan komin inn núna líka. Kveðja.

Hjördís Kristjánsdóttir

22.10.2009 kl. 13:36

Ég biðst fyrirgefningar

fyrir hönd okkar umsjónamanna síðunnar en við gleymdum að greiða árgjaldið fyrr en of seint þannig að síðan var lokuð í nokkra klukkutíma í dag en nú er hún opin aftur. Takk fyrir ábendingarnar, þið sem senduð mér póst og sms.
Kv.Guðrún

Guðrún Sigurgeirsdóttir

21.10.2009 kl. 15:00

Allt rólegt

Mjög lítið að frétta hjá okkur allir hressir og hvorki svín né flensu pestar náð okkur.En við skulum ekki hrósa happi strax,skólagangan hjá mér gengur bara vel og yndislegt að vera farin að gera eitthvað, þessa viku er maður búin að halda tvo fyrirlestra og skila verkefni og svo er ég þessa viku í skyndihjálp frá 17-21.00 svo það er nóg að gera.Aldís blómstrar alveg í skólanum og gengur betur hjá henni en maður þorði að vona. Hjá Jónasi er alltaf nóg að gera þökk sé Íslendingum sem finnast bjór góður :) Vonandi eru allir hressir og kátir hjá ykkur og ykkar fólki.

Bestu kveðjur kristín

Kristín

21.10.2009 kl. 9:41

20. október.

Ég mundi eftir því í gær að það var 101 ár frá fæðingu ömmu Marínu, en það varð ekki af því að ég skrifaði þá. En þetta var dagurinn, þegar allt að 30 manns voru kallaðir í lummukaffi , stundum í gömlu borðstofu í kjallaranum í gamla húsi , en líka og kannski eins oft uppi í stofu í gamla húsi. Margt fólk, mörg börn, mikið fjör.Nú erum við tvö ein á staðnum og meira að segja oft enginn sem gistir " uppi í húsi", en þar á samt fólk heima. Gamla húsið autt og tómt svo sem mest má verða, en hefði það mál væri frá mörgu að segja. Lifið öll heil , já og endilega sendið nú inn nýjar myndir!

Hjördís Kristjánsdóttir

20.10.2009 kl. 20:33

Minnist Marínu frænku

með virðingu og þökk Blessuð sé minning hennar

Guðrúb besta frænka

20.10.2009 kl. 14:23

Amma Marína

Amma Marína hefði orðið 101 árs í dag og gaman að minnast hennar. Ég sé enn fyrir mér atvik sem gerðist sumarið 1976, þegar mamma var á sjúkrahúsi og pabbi og systur mínar voru við heyskap uppí brekku. Ég átti að passa pott með rabbabarasaft á eldavélinni en réði euðvitað ekki við hann ein... þegar mér fannst saftin orðin dálítið óróleg og á leiðnni uppúr pottinum hljóp ég útí gamla hús til ömmu og hún kom HLAUPANDI og náði að færa pottinn yfir á aðra hellu.
Blessuð sé minning hennar.

Guðrún Sigurgeirsdótir

19.10.2009 kl. 20:00

Engar fréttir eru góðar fréttir

harla lítið að frétta frá mér og mínum nema það að ég á von á þeim mæðgum frá Reyðarfirði í heimsókn á fimmtudaginn og er mikil tilhlökkun á báðum stöðum Sú litla hringdi í mig á dögunum og sagði Amma nú eru bara 6 dagar þar til ´eg kem til þín hvorta á ég að taka Kára eða Katrínu (dúkkur) með mér á ég að ráða því spurði ég þá svaraði hún já taktu þá Kára með þér sagði ég og svarið sem ég fékk var stutt og laggott ok amma bæ.mikið er búið að hlægja að þessu símtali. Veður hálf risjótt nóg að gera í vinnunni tók við stjórn eldhússins fram að mánaðarmótum þá er reiknað með að sú sem búin er að vera í veikindafríi komi aftur.hér eru ljosaskreytingar að koma upp í borginni borgarstjóri mælti svo fyrir til að hressa upp á borgarbúa í kreppunni og skamdegið að smá færast yfir mér fynnst það nú heldur snemmt. minnir mann á að það er orðið ískyggilega stutt til jóla en elsku vinir og vandamenn njótið lífsins og verið glöð kær kveðja

Guðrún besta frænka

18.10.2009 kl. 20:07

Fastir liðir á sunnudögum.

Kæra frændfólk. Mínir föstu póstar á sunnudögum er að skrifa smá hér inn og svo fáum við Jói okkur alltaf góðan göngutúr ef tími og veður leifa.
Margt erum við búin að brasa þessa helgi, búa til slátur og taka þátt í sláturverkum á Lundarbrekku. Keyra Bárðardalinn fram og til baka taka á móti gestum og fara í afmælisveislu til Jóhanns Ara. Takk öll fyrir ánægjulega helgi. Nú er hamarinn að byrja svo þetta verður ekki lengra að sinni. Góða vinnuviku. Kv. Malla

Marína Sig

18.10.2009 kl. 9:35

Svalur sunnudagsmorgunn

Góðan dag gott fólk.Það rigndi fram á nótt og gránaði. , en er að birta og og fölið að faraí 1-2°hita.Lokið heimaslátrun hjá okkur í gær, þeirri síðustu sem hægt verður að nefna því nafni.
Lokið fyrir hádegi því það voru margar hendur sem unnu létt verk. Geiri, gamli bóndinn, taldi sig ekki hafa gert mikið en svo voru nafni hans á Völlum, nafni hans á Bjarnarstöðum, Óli bóndi, Jói og Heimir, bróðir hans og Sævar skottaðist í sendiferðum. Malla sá náttúrlega um matinn, ég sá bara um að hún hefði nóg hráefni. Ingibjörg, sambýliskona Heimis var á Arnarstöðum og henni var boðið í matinn og Malla bauð mér með þegar hún sótti hana fyrir hádegið og þá kom ég í þetta fína nýuppgerða hús á Arnarstöðum.Nú er sólin farin að skína inn um gluggann hjá mér og útlit fyrir að þetta verði bara góður dagur. Ég er búin að ná tökum á tölvunni, Kddi minn þakka þér leiðbeiningarnar gegnum símann, þær komu að fullu gagni og svo kom hitt á eftir. Er búin að afþakka Magga sem ég var búin að biðja að koma.. Bíð nú bara eftir háhraðatengingunni sem er á næsta leiti. Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

17.10.2009 kl. 7:14

Takk fyrir afmæliskveðjurnar

Góðan daginn!

Afmælisdagar eru góðir fyrir mann - því fleiri sem maður á, því lengur lifir maður. - TAKK FYRIR ALLAR KVEÐJRUNAR Í DAG, ég er rík kona!!! á frábæra fjölskyldu og ótrúlega marga vini og félaga, það er bara eitt sem kemur upp í hugann það er þakklæti og taktu það til þín!!! Ég átti afsakplega góðan dag sem ég eyddi í vinnunni og eldaði svo súpu og bakaði brauð fyrir fjölskylduna í gærkvöldi. Ætla svo að ganga aðeins í rigningnni fyrir hádegi í dag en eftir hádegi er Eva Margrét að fara að keppa á handboltamóti hjá ÍR þannig miðjunni úr deginum verður eytt þar, hún keppir líka í fyrrmálið eina tvo leiki. Annars er lítið að frétta héðan og óska ég þess að þið eigið góða helgi og að allt gangi vel á Lundarbrekku við slátrun.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

14.10.2009 kl. 18:58

Basl með tölvuna.

Jæja sælt veri fólkið. Mér tókst að lauma mér bakdyramegin ínn í gestabókina, en síðustu daga hefur forsíðan verið mér lokuð , bara litahaf af næturhimni yfir Lundarbrekkukirkju. Ég veit ekki hvort þetta tengist eitthvað því að skipt var um vafra, en ég vona að viðgerðarmaðurinn minn líti inn fljótlega. Þar að auki er letrið stórt og allir flytivísarnir á skjánum útþandir. Annars allt bærilegt, komin hlýindi og snjórinn farinn. Ég eyði ekki meira púðri í þessar skriftir ef það kæmi í ljós að það skilaði sér ekki. Elsku Rúna mín, Kiddi og krakkar, takk fyrir yndislega samverudaga. Lifið öll heil

Hjördís Kristjánsdóttir

12.10.2009 kl. 12:43

Haustferð

Sælinú gott fólk!
Við fórum á miðvikudaginn í Lundarbrekku í okkar árlegu aðdráttarferð fyrir veturinn og komum heim í gær. Takk kærlega fyrir okkur elsku mamma og pabbi.

Eigið góða viku framundan!

Guðrún Sigurgeirsdótir

11.10.2009 kl. 21:46

Og þar féll múrinn!

og í dag stofnaði ég facebook-síðu með aðstoð frændsystkina minna Eiríks og Evu Margrétar sem komu hér við í morgun ásamt foreldrum á leið suður eftir haustvertíð á Lunddarbrekku. Forvitnin rak mig á síðuna en vonandi læt ég nú skynsemina ráða og er ekki öllum stundum á síðunni. En annars hef ég átt góða helgi og náð að fara yfir bunka af vinnubókum og verkefnum, steikja kleinur og sjóða rúllupyslur. Hér er búin að vera mikil rúllupylsuvertíð en þær eru einkar vinsælar á þessu heimili.
Jói bauð mér líka á konukvöld hjá Lions sem var haldið á Engimýri í Öxnadal í gærkvöldi. Fínn þríréttaður kvöldmatur og hugguleg heit.
Tek undir með Hönnu og skora á Sigga á Ingjaldsstöðum að lofa okkur að njót skáldskapar hér á síðunni.
Sendi góðar kvðejur inn í vinnuvikuna til ykkar allra. Malla

Marína Sig.

9.10.2009 kl. 10:49

Skáldskapur

Siggi frændi minn á Ingjaldsstöðum, varstu nokkuð búinn að gleyma hverju þú lofaðir þegar við hittumst á Fiskidaginn? :-)

Jóhanna Marína

9.10.2009 kl. 10:45

Góða helgi

Sælt veri fólkið!
Hér í Kópavoginum gengur allt sinn vanagang, enn ein vinnuvikan að klárast og ég hef náð að vera í vinnu alla dagana en Særún mín er orðin nokkuð góð af slæmu pestinni sem hún fékk og var að klára lyfið í morgun en ég fer svo með hana í hlustun til heimilislæknisins í dag, svo vonandi er þetta bara búið. Veðrið er nú ekki svo slæmt miðað við spána en við drifum allt inn af svölunum í gærkvöld og ég var ekki vör við neitt svo brjálað veður í nótt en kanski á það eftir að versna þegar líður á daginn.
Annars eitthvað lítið að frétta, búin að vera mikil dagskrá undanfarnar helgar en stefnir í rólega og notalega helgi núna.
Afmælisbörn undanfarna daga innilegar hamingjuóskir frá mér og mínum.
Eigðið góða helgi
kv. Hanna

Jóhanna Marína

7.10.2009 kl. 15:18

Fallegt en kalt í höfuðborginni í dag

Lífið hér gengur sinn vana gang fór í tómstundirnar í morgun og fékk í leiðinni flensu sprautu allir starfsmenn á mínum vinnustað skikkaðir til að láta sprauta sig, og er ég að drepast í handleggnum eftir stunguna sagið hjúkkunni að hún hefði stungið míg illa en hún glotti bara Allir sprækir hjá mér og mínum Nonni kom í land í morgun og stansar eitthvað heima Þær eru væntanlegar suður 22 mæðgur frá Reyðarfirði í tannlækna heimsókn sú litla ánægð í sínum skóla og allt gengur vel hjá henni.

Guðrún besta frænka

6.10.2009 kl. 21:34

Fyrsti í sköfu

Góða kvöldið.
Fyrsti morguninn sem ég þarf að skafa bílinn var í morgun, get ekki sagt að það hafi glatt mig neitt sérstaklega mikið. Það hefur verið mjög mikið að gera í vinnunni hjá mér undanfarið þar sem verið er að taka í notkun nýtt tölvukerfi og annríkinu er ekki lokið - en styttist vonandi í að vinnudagurinn fari niður í ca. 10 klst. Mér tókst þó að losa mig um helgina og eyddi henni í Varmahlíð með æskuvinkonum mínum sem var alveg frábært. Annars gengur allt sinn vanagang. Ekki hægt að segja að drengurinn sé besti eða rólegasti fiðlunemandinn í Suzukiskólanum en við höldum áfram að mæta og sjáum til hvað gerist.
Góða nótt. Elma

Elma

5.10.2009 kl. 22:00

Haustið í öllum sínum litbrigðum

Sæl öll og gott að heyra að Guðrún systir telur ekki þurfa að hafa áhyggjur af síðunni. Ég tek auðvitað ótakmarkað mark á henni. Af okkur er allt gott að frétta og bestu þakkir fyrir kveðjur til Hjörvars og ég sendi Önnu Berglindi bestu afmælisóskir.
Við Jói brugðum undir okkur betri fætinum og fórum í helgarferð á Hvolsvöll þar sem matartæknar og fjölskyldur voru að hittast. Þetta er hópur sem við Hjördís Stefánsdóttir kenndum mikið veturinn 2007-2008 og okkur var boðið að taka þátt í gleðinni sem við gerðum.
Það var gaman að koma á þennan landshluta og ferðast um með heimamönnum. Við fórum austur að Skógum og skoðuðum byggðasafnið í leiðsögn Þórðar. Heimsóttum Gunnar á Hlíðarrenda, gengum undir Seljalandsfoss og virtum fyrir okkur sumarbústaði útrásarvíkinga. Veðrið var mjög fallegt svo landið okkar góða skartaði sínu fegursta allt á milli jökla og Vestmannaeyja. Á Hvolsvelli var auk þessa svo kölluð hausthátíð þar sem heimamenn hittust og skemmtu sér, tónlist, leikir, markaður og svo bauð SS öllum upp á kjötsúpu.
Bestu kveðjur inn í vikuna. Malla

Marína Sig

3.10.2009 kl. 18:23

Laugardagur

Hér á bæ ósköp rólegur laugardagur. Ég skrapp á Úlfarsfellið í morgun og naut þar sólar og kulda í félagsskap nokkurru vinnufélaga. Gott útsýni og hægt að ganga þarn víða um þegar upp er komið. Heimilisstörfin hafa svo tekið lungað úr deginum. Ari og Særún eru hér í dag í "pössun" en Særún er ennþá slöpp. Ragnhildur vinkona Evu Margrétar gisti hér í nótt og hefur verið hér í dag líka. Ég held að vangaveltur um að fésbókin sé að yfirtaka síðuna okkar séu alveg óþarfar, þetta er ansi ólíkur vettvangur og kemur alls ekki í staðinn fyrir hvort annað, þannig verum bara dugleg að skrifa hér inn áfram og endilega að senda mér eða Sigga myndir til að við höldum nú áfram að þekkjast. Ég veit að það skoða mikið fleiri þessa síðu en skrifa hér þannig að hún er vel nýtt.
Njótið laugardagskvöldsins semframundan er.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

3.10.2009 kl. 9:29

Vetrartíð.

Þakka ykkur sem hafið brugðist við og skrifað inn á síðuna síðustu daga.Alltaf gott að fá smáinnlegg. Ég er ekki á facebook og ætla mér ekki að verða þar.Hefi ekki þörf fyrir að bæta á mig skriftum, en veit að þetta hentar mörgum. Þrátt fyrir spádóma draumspakra mann og að auki spádóm Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings um 3ja mánaða góða tíð á haustdögum, þá er hér snjóföl, éljagangur og 2°frost. September var kaldur og blautur þótt ekki festi snjó , bara ein góð vika,sem sagt hundleiðinlegur og ekki heilsar október hlýlega. Geiri notaði síðustu góðu dagana til að afla sér eldiviðar til að nota í reykkofanum í haust og er þá orðinn birgur af torfi og viði. Við fórum til Húsavíkur sl miðvikudag, ég átti tíma hjá augnlækni og fékk þann dónm að það væri smáský á hægra auga, sem mig hafði grunað, en ekki lægi neitt á að aðhafast með það ,augnbotnar góðir og enginn þrýstingur sem benti til gláku og víst er ég þakklát fyrir meðan sjón heyrn og vit er í sæmilegu lagi, þótt skrokkurinn sé eitthvað af sér genginn. Ég gríp í að prjóna og dunda mér í tölvunni, nú styttist í að við fáum háhraða nettengingu , búið að senda okkur bréf og hringja frá símanum . Það verða trúlega nokkur umskipti. Bið að heilsa öllum.

Hjördís Kristjánsdóttir

1.10.2009 kl. 18:34

Jæja ég er komin heim

eftir yndislega ferð til Svíþjóðar veðrið þar var sól og 15 stiga hiti alla daganna og trén græn og falleg varla að það sjáist að það sé komið haust rósirnar springa út enn og þetta var bara frábært Höfðinglegar móttökur hjá vinkonu minni og hennar manni dekrað við mann eins og prinsessu margar góðar skoðunar ferðir og mikið að sjá Fannst nú ansi kalt að koma heim í kuldann Var bara að láta frá mér heyra allt gott af mér og mínum lifið heil

Guðrún besta frænka

29.9.2009 kl. 14:43

Flensa

Góðan dag
Hjá okkur er komin einhver árans flensa ekki veit ég hvort hún heitir svína eða eitthvað annað en Særún mín er búin að vera með háan hita og kvef síðan á laugardag en er nú eitthvað heldur að skána í dag, enginn annar hefur enn lagst svo vonandi sleppum við bara. Á laugardaginn fór ég ásamt kórnum mínum í ferðalag á suðurnesin og við vorum með tónleika í Grindavíkurkirkju sem tókust mjög vel eins og reyndar öll ferðin en veðrið var nú frekar leiðinlegt rok, sjókoma, rigning og haglél í bland.
Næsta fimmtudagskvöld erum við svo að syngja á styrktartónleikum í Fella og Hólakirkju þannig að það er alltaf nóg um að vera. Næstu helgi er svokölluð hausthátíð en það er matarklúbbur 9 kvenna sem ég er í og að þessu sinni er hann haldinn hjá mér en fimm kvennsurnar búa á Hornafirði, ein í Glaskov og 3 á höfuðborgarsvæðinu, við hittumst alltaf svona í kringum hádegi og byrjum að undirbúa matargerð við semsagt eldum saman alls konar rétti og höfum fína kvöldstund saman. Stundum höfum við farið til útlanda saman en oftast verið fyrir austan.
Síðasta föstudagsmorgun byrjaði vinnudagurinn hjá okkur hér á starfsmannafundi þar sem kynnt voru drög að fækkun sýslumannsembætta úr 24 í 7 þannig að það er ljóst að mikil óvissa er framundan svo það er best að taka einn dag í einu og þakka fyrir meðan maður hefur vinnuna sína.
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

28.9.2009 kl. 11:37

Er Facebook að vinna síðuna okkar?

Gleðilega vinnuviku kæru ættingar. ég hef nú ekki verið mjög dugleg að láta í mér heyra hér undanfarið en ekki er það vegna þess að ég sé að tjá mig á öðrum vefmiðlum.
En ég kíki hér alltaf reglulega og hef gaman af að fylgjast með afmælum og skrifum í gestabók. Bið ykkur að vera dugleg að skrifa og senda nýjar myndir frá sumrinu inn á myndaalbúmin svo hægt sé að setja þær upp á afmælisdögum. Góðar kveðjur Malla

Marína Sig

27.9.2009 kl. 12:40

Ég tek undir...

með mömmu, auðvitað minnumst við þeirra með hlýhug og þökkum fyrir allt og allt. Og takk fyrir að minna okkur á þessa daga mamma. Hér er skárra veður í dag en í gær en ósköp haustlegt og fjúkandi laufblöð út um allt! Hér er verið að baka sunnudagsköku og reikna ég með að eiga rólegan dag. Við Kiddi fórum á Rósenberg í gærkvöldi á tónleika með Ljótu hálvitunum og vorum ekki svikin, stórskemmtilegir listamenn þar á ferð.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

27.9.2009 kl. 9:24

Eldri afmælisdagar.

Í dag, 27. september, eru 98 ár frá fæðingu Sigurðar Baldurssonar á Lundarbrekku.
Hann var fæddur 27. september 1911, dáinn 29. nóvember 1955.
Á morgun, 28. september eru liðin 93 ár frá fæðingu Jónasar Baldurssonar á Lundarbrekku. Hann var fæddur 28. september 1916, dáinn 21. janúar 1951.
Minnumst þeirra bræðra með þakklæti, hlýhug og þökk.
Hér er að lægja og birta eftir ruddaveður í gær með snjóéljum í vestanátt, sem var óskemmtilegt smölunarveður. Hjá okkur gekk þó allt vel. Malla og Jói og strákar þeirra eru hér öll síðan á föstudag og búið að gera heilmikið af ýmsu tagi. Svo fara þau heim í dag. Hafið það öll sem best

Hjördís Kristjánsdóttir.

26.9.2009 kl. 8:35

Tíminn flýgur áfram..

..og september að verða langt kominn. Hér á bæ er allt í rólegheitum, börnin áttu frí í gær föstudag vegan starfsdags nema Eiríkur þurfti að sækja valtíma í MK sem hann er í þar. Magga teingdamamma er hjá okkur núna í nokkra daga en hún er að far til læknis eftir helgina, er mjög slæm í mjöðm og læri. Ég ætla að skjótast núna í morgunsárið með þeim Hörpu og Hólmfríði vinkonum mínum í smá fjallgöngu í þessu annars frekar leiðinlega veðri, en við hressumst bara af því held ég. Ég vona svo að þið eigið notalega helgi.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

23.9.2009 kl. 21:31

Eyjólfur hresstist !!

Einhver stífla hefur verið í kerfinu, nú skoðaði ég aftur heimsóknafjöldann þegar ég hafði sent frá mér póstinn og þá voru heimsóknir allt í einu 26. og flettingar 99. Það þótti mér betra.

Hjördís Kr.

23.9.2009 kl. 21:23

Er síðan okkar að lognast út af ?

Sæl verið þið öll.
Ég hefi verið með gesti , Siggu og Danna frá Vaðbrekku , þau gistu 2 nætur og fóru heim í gærmorgun og við höfðum það gott og skemmtilegt og svo fór ég í húsmóðurgírinn í dag og bakaði , sem telst nú næstum til tíðinda nú orðið.
En þegar ég fór að skoða síðuna okkar núna brá mér í brún. Aðeins 1 gestur í dag og 4 flettingar. Þetta hefi ég aldrei áður séð. Yfirleitt minnst 8-9 gestir og í gær yfir 20. Vonandi lagast þetta á næstu dögum.
Nú á að smala síðari smölun hér á föstudag og laugardag og vonandi verður ekki alltof hvasst í sv áttinni sem nú er í kortunum hjá veðurstofunni. Frostkul var hér í fyrrinótt og grátt niður í miðjar hlíðar í gærmorgun en það hvarf í gær og slapp til með frost sl nótt. Haustlitir skarta sínu fegursta
Sendum bestu kveðjur og látið nú til ykkar heyra.

Hjördís Kristjánsdóttir

18.9.2009 kl. 19:11

Góðan dag ættingjar og vinir

hér er bara fallegt haustveður þótt það komi góðir regnskúrir allt tíðindalaust hjá mér Nonni farinn aftur á sjóinn og ég ætla að bregða mér til Svíþjóðar á fimmtudaginn næsta og vera í viku hjá vinkonu minni sem flutti út í fyrra verður bara ljúft Særún mín fór í sitt fyrsta samræmda próf í gær og annað í dag vonandi gekk henni vel elskunni. Annasrs bara allt gott var bara láta heyra smá frá mér hafið það gott og lifið heil

Guðrún besta frænka

15.9.2009 kl. 12:20

Haustvindar

Góðan dag kæru ættingjar og takk fyrir síðast frænkur mínar! Við áttum semsagt góða stund saman í frænkuboði sl. laugardag og mjög gaman að hittast einnig með börnin sem eru svo yndisleg að maður vissi ekki af þeim bara beint að leika sér allavega þessi yngstu eins og þau hefðu oft komið heim til mín :-)
Lífið gengur sinn vanagang hjá okkur við vinnu og skóla, við hjálpuðum Guðrúnu og Kidda við að flytja og þrífa og ég glotti með sjálfri mér þegar frænka sagði hér á síðunni að ýmislegt væri búið að bætast við frá því síðast var flutt eða fyrir 5 árum. Það verður eitthvað þegar ég tek mig loks upp og stækka við mig, ekki flutt síðan ég flutti frá Hornafirði fyrir 10 árum, og ekki verið litið á sumt frá því þá........ Særún mín er að fara í samræmd próf í íslensku og Stærðfræði á fimmtudag og föstudag og Ari er að hamast við að læra að lesa og skrifa.
Nóg að gera framundan hjá mér, ferð í Stykkishólm næsta laugardag með vinnunni minni og tónleikar Léttsveitarinnar í Grindavík 26. september, en þá ætlum við að endurtaka vorprógrammið sem bar yfirskriftina "Óskalög sjómanna". Lítið hefur farið fyrir haustverkum hjá mér fyrir utan að ég bjó til rifsberjahlaup og rabbabarasultu, en fór aðeins einu sinni með Ara mínum í berjamó en honum finnst nú ber ekki góð og raunar er enginn mikið fyrir ber á mínu heimili nema ég. Ég vildi svo gjarnan að ég væri komin til ykkar Dísa mín í aðalbláber og rjóma :-)
Segi þetta gott að sinni
Hafið það sem best
kv. Hanna

Jóhanna Marína

15.9.2009 kl. 9:33

Sumarauki

Heil og sæl öll.
Nú höfum við fengið sann kallaðan sumarauka og veitti ekki af , því tíðarfarið í ágúst var orðið svekkjandi vægast sagt. Geiri hefur farið flesta daga í berjamó og tínt bláber, aðalbláber og hrútaber og gefið á báða bóga, því ekki endist ég að sulta og safta þetta . En gaman , þegar gestir koma, sem reyndar hefur nú líka gerst, að eiga aðalbláber og rjóma, það eru nú flestir sem kunna að meta það.En í gær og dag hefur Geiri verið í kartöfluupptöku með Friðriku og verður ekki hætt í dag fyrri en búið er. Það var hvasst í gær og kaldi í dag á sunnan, suðvestan en hiti 14-16 °svo það er ekki hægt að kvarta. Hafið þaðsem best. Kærar kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

13.9.2009 kl. 11:28

Hlýjar frænkukveðjur

Sæl öll. Sendi hlýjar haustkveðjur hér inn á síðuna og finnst sérlega gaman að sjá að þið frænkur hafið verið að hittast í Álfaheiðinni og gaman að heyra að þið finnið til þess að gott er að styrkja ættartengslin.
Mín fjölskylda er hér heima um helgina en við ætlum að heimsækja tengdaföður minn í dag sem er nú orðinn 81 árs. Ásgeir ætlar ekki með í Hrísey hann ætlar á skólasetningu í MA í dag kl. 15.00 og dýrmætt hvað hann hlakkar til að byrja í skólanum.
Við Jói vorum í gær kokkar fyrir Hemmu og Níels foreldra Önnu Marita en þar var fjölskylduveisla í tilefni af að öll systkini Önnu Maritar voru stödd hér en þau búa í Noregi. Þarna voru saman komin 40 ætttingjar og var það virkilega gaman og gefandi að vera með í þessu.
Hér er nú sannkölluð haustblíða og ekki amalegt svona eftir hálf kalsalegan ágúst.
Sendum Guðrúnu og fjölskyldu sérstakar hamingjuóskir með fluttningana og svo þið öll hafið góða nýja viku. Malla

Marína Sig.

13.9.2009 kl. 7:07

Skemmtileg helgi

hún Særún Birta mín er í heimsókn þessa helgi Kom á föstudaginn og var hjá pabba sínum þar til í gær kvöld þá kom hún í gistingu til ömmu og afa og var bara ljúft að sjá hana og hafa. .Guð hvað ég er fegin að þið skuluð fá svona góðan sumarauka kæra frændfólk hér er rigningin og rokið tekið við en ég kvara ekki þetta er búið að vera gott sumar hjá okkur og bara gott að fá breytingu,,Annars allt gott frá mér og mínum allir hraustir höfum losnað við svínaflensuna en sjö níu þrettán grasserar vel í starfsfólkinu á mínum vinnustað. fallegir haustlitir gleðja augað þessa dagana lítið annað að segja núna Lifið heil kæru vinir

Guðrún besta fræka

12.9.2009 kl. 21:54

ÁLFAHEIÐI

Kvöldið.
Áttum ljúfan dag í Álfaheiðinni við bræðradæturnar á höfuðborgarsvæðinu, vorum mættar 4 (í aldurs- og virðingarröð Guðrún, Hanna, Elma, Ragna) vantaði sem sagt hinar 3 (Friðrika, Marína og Sibba) sem örugglega verða einhvern tímann með. Gaman hvað maður metur sína frábæru ættingja betur og leggur meira upp úr tengslunum eftir því sem árin líða.
kvitt. Elma

12.9.2009 kl. 11:13

Flutningar og fleira fróðlegt :-)

Við erum semsagt flutt fjölskyldan, ekki langt.... fórum bara í næstu götu. Síðustu dagar hafa verið undirlagðir af flutningum og þar sem komið er á fimmta ár frá síðustu flutningum þá hefur allt aukist að umfangi þ.e. búslóðin. Eins og ein fésbókarvinkona mín komst að orði, " enginn veit hvað étt hefur fyrr en flutt hefur". En hér í Tunguheiðinni líður okkur vel og höfum nægan tíma til að koma okkur fyrir. Allir eru mjög ánægðir og líður vel hér. Það er alltaf heitt á könnunni ef þið eigið leið hjá kæru vinir og frændfólk.
Í dag ætlum við að hittast bræðradæturnar sem búum hér á höfuðborgarsvæðinu þ.e. ég, Hanna, Elma og Ragna og hlakka ég til að kíkja uppúr kössunum smá stund. Njótið blíðunnar fyrir norðan og austan, hér ætla ég að njóta rigningarinnar! Góða helgi.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

7.9.2009 kl. 22:01

löng helgi frh.

Gleymdi sem sagt að kvitta.
Kveðjur til ykkar. Elma

7.9.2009 kl. 20:46

löng helgi frh.

Gleymdi sem sagt að kvitta.
Kveðjur til ykkar. Elma

7.9.2009 kl. 20:45

Löng helgi

Góða kvöldið.
Frábærir dagar á Ingjaldsstöðum að baki. Lengdum helgina og fórum norður eftir vinnu á miðvikudag og tíndum fullt af bláberjum sem nú eru í frystinum, smöluðum bæði laugardag og sunnudag í alveg hreint frábæru veðri og það var nú ekki amalegt á Fljótsheiðinni. Fengum svo að taka upp nokkrar kartöflur í poka. Prinsinn á heimilinu var alls ekki tilbúinn að fara til Reykjavíkur seinnipartinn í gær eftir að hafa fengið að fara og hefla aðeins með Sigga Skúla, fara í græna traktorinn með afa, á fjórhjóli að smala og svo mætti lengi telja. Sem sagt allt gott í Glaðheimum.

7.9.2009 kl. 15:10

Mikil vinnulota að baki

Bændur í Bárðardal hafa verið í mikilli vinnuskorpu undanfarið. Þurrir dagar hafa ekki verið margir í boði ,en frá því á miðvikudag í síðustu viku hefur verið þurrt og blíðviðri og sólskin stundum. Menn lögðu nótt við dag að ljúka heyskap, þ. e. að slá grænfóður, rúlla, pakka, flytja heim ( rúlluplast allt búið í verslunum á landinu)Síðan smala,rétta, taka frá sláturfé og komu þá margir þéttbýlisbúar til að taka þátt í því , sumir jafnvel af höfuðborgarsvæðinu.Svo koma fjárflutningabílar frá "Norðlenska"(matborðinu) og sækja sláturlönbin heim á bæina og bændur þurfa ekki lengur að "passa" á bílunum sjálfir , en fara svo og afhenda fé sitt í sláturhúsréttinni og fá vigtarnótur afhentar að slátrun lokinni.Það er viss stemning sem skapast þar um hver fái nú hæstu meðalvigtina , bestu flokkunina o.s.frv. Geiri fór í morgun, ég fór ekki, því í fyrra var tekin í notkun ný "lína" á sláturhúsinu og bændur þurfa ekki að leggja fram neina vinnu við afhendingu, ólíkt því sem verið hefur. Hann kom heim um kl tvö, vigtin mjög góð og flokkun líka , sá skuggi er á að nú hefur kaupandinn ekki lengur efni á að kaupa nema lökustu vöruna og fer þá aðstefna í kjötfjöll eins og áður fyrr, eða hvað. En í dag er ausandi rigning svo við prísum okkur sæl, hvað veðrið lélk við okkur um helgina.

Hjördís Kristjánsdóttir.

4.9.2009 kl. 22:01

Göngur og réttir

mikið vildi ég vera komin í réttirnar hjá ykkur kæra frændfólk Annars er allt komið í sínar föstu skorður hjá mér í vinnunni öll námskeið að hefjast á mánudag og ég fer í fyrsta postulíns málningar tíma vetrarins á Miðvikudag og hlakka óskaplega mikið til. Margt í boði í vetur s.s útskurður 3 hóðar postulínsmálun 3 hópar myndmennt 2 hópar fornsögur ,norrænar bókmenntir og margt margt fleira svo verður prjónakaffi einu sinni í viku þá kemur hópur og prjónar og fær sér kaffi og þar mætir alltaf hún Aðalbjörg Baldursdóttir eldhress að vanda.Þetta verður bara skemmtilegir dagar vikan alsett af einhverju skemmtilegu svo er leikhúsferð 1 sinni í mánuði með gamla fólkið Þetta er innslagið frá mer í þetta sinn hafið góðar heimtur skemmtileguir tími í vændum í sveitinni sláturtíð að koma og bara gaman kær kveðja

Guðrún besta frænka

4.9.2009 kl. 15:50

Smölunardagur.

Aðalsmölunardagur er hér á Austurkjálka Bárðardals á morgun , en langt er síðan sá siður var upptekinn að byrja að smala á föstudeginum héðan frá Lundarbrekku og Bjarnarstöðum og Rauðafelli.Farið er á hestum upp frá Jarlsstöðum, líka fjórhjólum og sexhjóli. Frá Lundarbrekku er svo farið heldur síðar af stað með mannsöfnuð sem smalar gangandi heiðina hér nær og loks fer bíll frá Bjarnarstöðum og göngufólk þar með til að koma til móts við það sem kemur að norðan og féð skiptir sér svo þannig að heimafé Lundarbrekku kemur hér niður norðan við bæ en féð sunnan af bæjum fer áfram í Bjarnarstaði. þetta styttir mjög smalatímann á morgun en þá er eftir að smala hér fyrst og fremst neðan við "brún" norðan og sunnan bæjar og heimaland Bjarnarstaða og Rauðafells.
Ég er ein heima og það er sólskin og besta veður , en þoka var sl. nótt og hefur ekki frosið ennþá . Það var gaman að heyra hvað Aldís var hneyksluð á meðferðinni á sauðnum Grana, kannski ekki nema von. Kærar kveðjur til ykkar allra.

Hjördís Kristjánsdóttir.

1.9.2009 kl. 10:34

September

Góðan daginn kæru ættingjar nær og fjær!
Þá er september byrjaður og haustið formlega hafið í mínum huga að minnsta kosti. Veðrið hér er alveg ljómandi í dag, logn, milt og skýjað. Eva Margrét liggur heima með einhverja pest sem ég held að sé nú ekki þessi margumtalaða svínaflensa því hún er hitalaus. En ég veit að hún hefur verið að stinga sér niður hér og þar hér í kring þessi svínaflensa. Við frænkur ég og Hanna fórum í þessa fínu fjallgöngu á sunnudaginn með Útivist. En þá gengum við á Skjaldbreið sem er 1066 m, við fengum ljómandi veður og útsýni og áttum þar góðan dag. Ég vona svo að vinnuvikan verði góð hjá okkur öllum og allar smalamennskur og fjárrag gangi vel hjá ykkur núna í september.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

29.8.2009 kl. 14:55

Góða helgi

Ansi var kuldalegt að horfa út í morgun bara hvít snjóföl niður í mitt hlíðarfjallið bbrrrrrr.upplagt að nota part af deginum til að baka þannig að hér úr ofninum eru búin að koma skinkuhorn og nokkrar Kryddkökur.PS. tek það fram að ég baka mjög sjaldan þess vegna er gott að skrifa þetta niður svo ég geti leitað í gamlar heimildir og séð hvað ég var einu sinni dugleg haha.Aldís er byrjuð á sinni skólagöngu og gengur bara vel hún kom bara sjálf heim úr skólanum í gær og sagði þegar heim var komið Mamma það er svo gaman í skólanum vildi að það væri skóli á laugardögum :) á ekki von á að heyra þessa setningu eftir nokkra mánuði :) Jónas byrjaði að vinna síðasta fimmtudag og ég byrjaði í vma í þarsíðustu viku bara ótrúlega gott þegar allt kemst aftur í gang. Berjaferðir erum við búin að fara í og gerði ég ekki sultu nema í 1 krukku (borðum lítið sultu)en frystum töluvert í litlum pokum.Einn laugardag fyrir ekki löngu síðan þá skruppum við og heimsóttum Dísu og Geira og áttum með þeim yndislegar stundir við lentum í kjöt og kjötsúpu hjá þeim og ber og rjóma á eftir,Langt síðan við höfðum séð Aldísi borða svona vel.svo var ætlunin að fara á kaffihlaðborð í Kiðargili en fjölsk var svo södd að við urðum að sleppa því.Dísa og Geiri takk fyrir okkur og hafið það sem allra best.PS.verð nú að segja ykkur pínu skondið sauðurinn hann Grani sem er upp á vegg hjá dísu í ganginum Aldís hafði mikinn áhuga á honum og horfði lengi á hann svo var opið inn í svefnherbergið og hún kíkti hinum megin við vegginn og ekkert þar svo hún sagði alveg hneyksluð við mig mamma er bara hausin upp á vegg :) hélt að honum hefði bara verið stungið í heilu lagi með hausinn í gegnum vegginn og hinn helmingurinn hlyti að vera í hinu herberginu haha

Hafið það sem allra best
kv kristín

Kristín

29.8.2009 kl. 10:23

Fallegur laugardagur

í Reykjavík í dag. Heldur er orðið haustlegt finnst mér trén farin að búa sig undir vetrardvalann farin að falla laufblöð en ekki þurfum við að kvarta hér á suðvestur horninu þetta er búið að vera yndælt sumar vonandi verður veturinn bara mildurAllt komið á sitt rétta ról hjá mér og mínum.Dísa hamast við að safta og sulta með smá aðstoð úr mömmu eldhúsi ég dauð öfunda hana að komast í ber sem hún gerir á milli skúra og stórrigningar fyrir austan Ég ætla að kíkja á bændamarkað frú Láru í dag þar er hægt að fá allt mögulegt beint frá býli ferskt grænmeti reyktan silung frá Hellu í Mývatnssveit Jökla bleikju frá Hala í Suðursveit og margt margt margt fleira Gaman að Útilegumanna hátíðin hjá ykkur tókst svona vel . Þetta var bara svona smá innlegg kær kveðja til ykkar allra

Guðrún besta frænka

28.8.2009 kl. 11:23

Fallegt veður í dag!

Heil og sæl!
Þá er allt að komast í hversdagslegt horf eftir sumarfrí, við byrjuð að vinna og börnin byrjuð í skólanum, Ari minn að hefja sína grunnskólagöngu og er mjög duglegur, hann er svo í gæslu eftir skóla þangað til ég kem heim úr vinnunni.
Síðan fer handboltinn að hefjast hjá þeim báðum og Ari heldur líka áfram í fótboltanum þannig að það er nóg að gera hjá öllum.
Ég sé það allra best núna hvað maður er heppin að búa við hliðina á skólanum og fótboltavellinum, engin gata að fara yfir til að fara í skólann og Ari getur yfirleitt komist í boltaleik ef hann mætir út á völl....
Annars er bara eitthvað lítið að segja, ég er frekar fegin að það er föstudagur í dag þar sem ég var að byrja að vinna á þriðjudaginn og er eitthvað hálf þreytt eftir þessa vinnuviku, maður var orðinn vanur svo góðu, bara heima í fríi að gera allt og ekki neitt :-)
eigið góða helgi
kv. Hanna

Jóhanna Marína

26.8.2009 kl. 9:40

Orð í belg

Góðan dag gott fólk.Ég hefi verið að fara tvisvar í viku í ágúst til sjúkraþjálfara á Akureyri, en nú var hringt að þjálfunarkonan mín væri veik svo ég opnaði tölvuna og fór að lesa gestabókina. Alltaf gaman og gott að fá fréttir af ykkur, ekki síst góðar fréttir.Við Geiri brugðum okkur í gær upp að Kálfborgarárvatni, ég hafði ekki komið þangað í tvö eða þrjú ár. Geiri tíndi aðeins fjallagrös en ég bara rölti að eins settist á þúfu og horfði á endur og gæsir á flugi og hlustaði á kvakið og gargið. Himbriminn hóf líka upp raust sína, en það er mál manna að hann sé veðurspáfugl og ýmist hlæji eða gráti eftir því hvort sól eða regn sé í vændum. Mér fannst hvorugt vera hjá honum í gær, enda er hér gott veður núna til alls, nema heyskapar, lítið um sólskin en hlýtt og rignir flesta sólarhringa. Um síðustu helgi var útilegumannahátíð í Kiðagili á laugardagskvöld og mér heyrist að hafi verið bara vel heppnað og býsna áhrifamikið en hefði mátt vera fleira fólk. Við fórum í kaffihlaðborðið, það síðasta á sumrinu á sunnudaginn og þá voru endurtekin söngatriðin úr Skugga Sveini og Fjalla Eyvindi frá kvöldinu áður, innan dyra , en kvölddagskráin var úti við eld og þá afgreiddur matur í tjaldi og framreiddur á steinhellum úr íslenskri náttúru.Nú styttist í göngur og smalamennskur og það gránaði í fjöll í síðustu viku svo haustið er farið að minna á sig. Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir.

25.8.2009 kl. 20:19

Nokkur orð úr Kópavoginum

Gott kvöld!
Já hér hefur heldur betur rignt í dag og er það vel. Börnin byrjuð í skólanum, Eiríkur í 10 bekk og Eva Margrét í 6. bekk. Ég byrjaði að kenna í dag en vinnan byrjaði formlega hjá mér eftir sumarfrí 17. ágúst. Alltaf gott að hitta vinnufélagna svo ég tali nú ekki um krakkana þau eru nú bara skemmtilegust. Maður má jú vera sæll að hafa vinnu, hvað þá skemmtielga vinnu :-). Hér eru allir hressir og engin flensa í gangi hjá okkur. Vegna þess að ég hef verið óvenju dugleg að ganga og njóta náttúrunnar þetta sumar þá ætla að enda þetta á einu gullkorni.

"Annað slagið skaltu horfa á eitthvað sem er ekki gert af manna höndum: fjall, stjörnu, bugðóttan læk. Þú munt öðlast visku og þolinmæði en öllu framar fullvissu um að þú ert ekki einn í þessum heimi.
-Sidney Lovett (úr bókinni "Lögmál andans" eftir Dan Millman)

Guðrún Sigurgeirsdóttir

25.8.2009 kl. 19:18

Jæja þá fór að rigna eiihvað að ráði hér í höfuðborginni annars allt tíðindalaust frá mér Særún Birta er ánægð með skólann sinn í nýju umhverfi svo vonandi lofar það góðu Dika og Óli væntanleg í heimsókn til þeirra í dag bara gaman af því endalaus gestagangur hjá þeim og ekki leiðist þeim það Árni búin í sinni fyrstu vinnuviku eftir sumarfrí svo nú er attl komið í réttar skorður Nonni farin út á sjó fyrsti túrinn hans eftir frí var að drga pramma frá Íslani til Noregs og gekk það vel er á heimleið aftur Anna að byrja í háskólanum aftur verður í 50% vinnu með skóla eins og í fyrravetur annars bara allt gott Lifið heil kæra frændfólk og vinir kvitt

Guðrún besta frænka

23.8.2009 kl. 18:39

Góða kvöldið.
Við hér í Glaðheimum erum búin að eiga þetta fína sumar en nú nálgast víst haustið. Sumarfríinu eyddum við á Vestfjörðum þar sem við fengum hús á leigu á Súðavík og ferðuðumst um og höfðum það gott. Svo vorum við líka á mínu ástkæra Norðurlandi. Atli var svo að byrja á nýrri deild í leikskólanum og kórstarfið að fara af stað fljótlega. Sem sagt allt gott. Kvitt.
Elma

Elma

20.8.2009 kl. 20:15

Enn einn fimmtudagurinn búinn

óskaplega eru vikurnar fljótar að líða Nú fanst mér haustlegt hér í morgun og í dag hvein og söng í trjánum og orðið kaldara en verið hefur enda styttist í haustið skólarnir byrjaðir og allt að fara í haust og vetrar rútínur allt að komadst á fulla ferð á mínum vinnustað námskeiðin að byrja og hlakka ég voða mikið til að komast á postulínsnámskeiðin í vetur .Annars allt gott frá mér og mínum Lifið heil kæra frændfólk og vinir kveðja

Guðrún besta frænka

19.8.2009 kl. 19:30

Engar fréttir eru góðar fréttir

Það er svo lítið að segja af mér og mínum annað en að við höfum það gott og erum búin að eiga gott sumar.
Nú fer lífið að færast í fastar skorður hjá okkur Jóa þar sem við erum bæði farin að vinna. Jói búinn að vinna í viku en ég byrjaði formlega í dag. Ásgeir vinnur eitthvað fram í sept. þar sem hann byrjar ekki í skólanum fyrr en 14. sept. Hjörvar er óráinn en verður áfram í Vogafjósi á meðan ekki er annað í boði. En hann er nú að byrja að langa til að koma heim.
11 ára drengurinn minn þakkar fyrir afmæliskveðjur á afmælisdaginn.
Bestu kveðjur Malla

Marína Sig.

17.8.2009 kl. 23:07

Lítið farið í tölvu í sumarfríinu.

Sælt veri fólkið og takk fyrir síðast þeir sem ég hitti í fríinu okkar fyrir norðan, loks ætla ég að skrifa smá og kvitta fyrir innlitið. Nú er síðasta vikan mín í sumarfríinu og ég og börnin erum búin að vera heima við síðan við komum að norðan fyrir viku síðan. Fyrsta daginn minn í sumarfríi eða þann 28. júlí skelltum við okkur í Þórsmörk með Guðrúnu, Kidda og Evu og gistum þar í tvær nætur og gengum dálítið, þetta er í fyrsta skipti sem ég kem þangað og þar er auðvitað dásamlega fallegt, við keyrðum svo norður sprengisand og komum við á Lundarbrekku en þar vorum við boðin í dýrindis kvöldmat og kíktum svo aðeins við á Hótel Kiðagili áður en við fórum til Akureyrar. Við vourm svo á Akureyri til 9. ágúst þá keyrðum við heim þessa venjulegu leið. Einn daginn fyrir norðar fórum við í Mývatnssveit, heimsóttum Dimmuborgir, fórum í jarðböðin og skoðuðum Vogafjósið og Fuglasafnið. Í síðustu viku fór Palli svo í fjögurra daga trússferð með ferðafélaginu Augnablik að Langasjó, en hann byrjaði svo að vinna í dag.
Í dag fórum við Ari og vinur hans í berjamó í Heiðmörk og það tók ekki langan tíma að fylla þær dollur sem við vorum með :o) Restina af fríinu mínu ætla ég svo að nota til að hafa það gott og gera eitthvað skemmtilegt og jafnvel bæta einhverjum fjöllum í safnið.
Hafið það sem best
kveðja
Hanna

Jóhanna Marína

15.8.2009 kl. 11:07

Gott að fá viðbrögð.

Það er náttúrlega að verða komið hádegi þegar ég lít hér inn svo þið eruð trúlega farin af stað Kristín mín, en ef þú sérð þetta , þá velkomin.

Hjördís Kristjánsdóttir

14.8.2009 kl. 20:28

Hef ekki kíkt hér lengi

enda lítið gerst hjá mér nema vinna og aftur vinna var alla síðustu helgi að vinna við veislur sem haldnar voru á vinnustaðnum mínum matsalurinn leigður út .Vildi að eitthvað af þessari rigningu sem hrjáir norðlendinga og austfirðinga væri komin hingað allt orðið svo þurrt hér eilífar ferðir í kirkjugarðinn til að vökva þessi litlu blóm sem ég setti þar niður Mikið vildi ég að eitthvað af þessum berjum væri komið til mín umm umm langar svo mikið í ber allt á kafi fyrir austan en enginn kemst í berjámó vegna rigningar þruma og eldinga ein og dóttir mín lýsir veðráttunni hjá þeim.sömu fréttir eru frá Norðfirði orðið ansi langur tími hjá ykkur öllum þessi leiðinda tíð vonandi fer þetta að batna svo hægt sé að ná inn heyjum Læt nú ekki líða eins lant á milli skrifa næst lifið heil kæra frændfólk og vinir knús til ykkar Dísa mín og Geiri minn elskulegi frændi kveðja

Guðrún besta frænka

14.8.2009 kl. 17:41

Á leið austur

sæl dísa

Við stefnum á útimarkaðinn á morgun ef Aldís verður hress en kvef og slappleiki í maga hefur verið að hrjá hana.
Og planið er að kíkja á ykkur Geira fyrir hádegi ef vel stendur á hjá ykkur.

kveðja kristín og co

Kristín.

14.8.2009 kl. 16:51

J Æ J A gott fólk

Hefur enginn neitt að segja nema 2-3 fastakonur. Taldi innlit á síðuna í gær, það voru 24 og 12 komin í dag en þeim hlýtur að fækka þegar ekki er neitt nýtt að sjá.Geiri stundar stíft berjamó, komið mikið af góðum bláberjum en hér verða ekki aðalbláber í ár, það gerðu næturfrostin í júlí. Alltaf rignir á hverjum degi og þrátt fyri alla nútíma tækni eru ekki allir bændur búnir að ná fyrri slætti .
Það hafðist á Bjarnarstöðum fyrir síðustu helgi, en kom þrisvar ofan í síðasta flekkinn, þ. e. a. s. þrisvar mátti hætta við og byrja upp á nýtt næsta dag.
Ég fór tvo daga í röð í sjúkraþjálfun á Akureyri í síðustu viku og gisti eina nótt hjá Áslaugu systur minni.
Ætla að halda áfram í næstu viku á mánud. og miðvikudag en ætla ekki að gista þá.
Á morgun er útimarkaðsdagur í Kiðagili og verður trúlega margt um manninn. Geirmundur með tónleika (ekki ball ) þar annað kvöld og svo hefðbundið kaffihlaðborð á sunnudag.Hvað eruð þið svo að gera sem kíkið in n , en kvittið ekki ?

Hjördís Kristjánsdóttir.

11.8.2009 kl. 21:09

Ljóð á ágústkvöldi

Upp rennur aftur nýr
ægifagur dagur skýr.
Ef samtaka við erum öll
forðumst læti og frekjuköll,
leggjumst öll á eitt,
óánægju dagsins getum breytt.

Eins og stóra bókin ber
að best er þeim sem hjálpa sér.
Það eina svarið er,
að ætla að breyta sér.

Vandi er að velja úr
vegum, áttum, regn og skúr.
En ef þið sýnið landsins lýð
ljóð ykkar og hugarsmíð,
hugsjónir, hetjudáð.
Þið hegðið ykkur eins og til var sáð.

Þið engan þurfið ofurmann.
Hann inni býr í brjóstsins rann.
Að einum brunni ber
að breyta verður sér.

Upp rennur annar dagur.
Ykkar eigin samviska.

- Vilhjálmur Vilhjálmsson, Manni

Guðrún Sigurgeirsdóttir

7.8.2009 kl. 21:49

Dálítil keyrsla

Við fórum til Akureyrar í gær , stoppuðum ca 2 klt, ég fór í sjúkraþjálfun , svo heim, Geiri beint í heyskap, það var verið að heyja túnin okkar af Bjarnarstaðafólki. Í dag fórum við til Húsavíkur að jarðarför og Geiri aftur í heyskap er heim kom , það var bara svo hvass vestanvindur að það tafði mikið fyrir en nú er búið að ljúka við að heyja hér á Lundarbrekku. Ennþá eftir skorpa á Bjarnarstöðum, það varð vindlaust dekk á dráttarvél og þurfti að fara að gera við, sést á morgun hvort tekst að ljúka því þá.Kristín mín þið eruð velkomin, við verðum trúlega heima fram á þriðjudag, alla vega ég , Geiri bregður sér í heyskap og berjamó einhverjar stundir .

Hjördís Kristjánsdóttir

7.8.2009 kl. 20:56

Á faraldsfæti

Jónas fór í sumarfrí 24 júlí og erum við búin að flækjast mikið síðan,fyrst fórum við á Mærudaga á húsavík og vorum í tjaldvagninum á tjaldstæðinu hittum fullt af fólki sem við þekkjum og var mjög gaman þessa helgi.Komum heim á sunnud og þurkuðum vagninn og lögðum af stað næsta dag með systur minni hennar fjölsk og mömmu og pabba enduðum í Húsafelli í 2 daga og með rigningu og vindi þessa daga en við skemmtum okkur bara vel og Aldís svo hamingjusöm að vera í útilegu með Tinnu og Bjarka.Síðustu helgi lögðu Jónas og fjölsk af stað á Snæfellsnesið í sól og blíðu tjölduðum á Stykkishólmi og löbbuðum um allt þar svo var haldið áfram næsta dag í sömu blíðunni, og keyrt niður á alla staði og skoða mikið er fallegt á Snæfellsnesi eins og allstaðar í góðu veðri.tjölduðum síðustu nóttina í Borganesi áður en við fórum til Reykjavíkur í afmælið til Jón Þórs ótrulegt að hann sé orðin 2 ára.Við fórum með Tjaldvagninn til Dalvíkur í gærkveldi Sandra og Baldur verða með hann um helgina og komu foreldrar Söndru líka þau ætla að prufa að vera á þessum fræga Fiskidegi,jónas fór með Hönnu og Palla áðan að prufa fiskisúpuna á Dalvík en svo förum við Jónas auðvitað á morgun þangað.Í dag fórum við á handverksýninguna á Hrafnagili og var þar margt sniðugt sem fólk er að gera og ég held að öll handavinna hafi aukist miða við síðustu 2 ár allavega.læt þetta nægja í bili.
ps.Dísa mín við kíkjum í heimsókn einhvern daginn.

kveðja kristín

Kristín

6.8.2009 kl. 12:00

Rigning

Hér rignir í dag og er það aldeilis gott fyrir gróðurinn. Í fjallgöngu sem ég fór í gærkvöldi á Húsfell hér fyrir ofan Hafnarfjörð varð einum göngumanni að orði að litirnir á gróðrinum væu að verða eins og í september/október, en allt land var orðið svo þurrt og skorpið og þá sölnar allt svo fljótt.
Annars höfum við það ágætt, ég er að reyna að taka til hér í skápum og sortera alls konar dót sem hefru beðið þess lengi :-). Eva Margrét fór á bókasafnið á þriðjudaginn og liggur og les núna öllum stundum í rigningunni og svei mér ef hún minnir mig bara ekki á mig á þessum aldri sem var alltaf að lesa. Alltaf gott að lesa eitthvað og næra hugann. Ég vona að þið hafið það gott og njótið komandi helgar hvar sem þið eruð. Ég veit að einhverjir ætla að eyða helginni á Fiskideginum á Dalvík og e.t.v einhverjir á Gay Pride í höfuðborginni o.s.frv. en umfarm allt farið varlega í umferðinni.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

4.8.2009 kl. 17:12

4. ágúst

Nú er maður kominn heim eftir viku ferðalag bæði inní Þórsmörk og svo norður Sprengisand niður í Bárðardal og var svo helginni eytt á Akureyri í góðu yfirlæti. Nóg að gera í þvotti og frágangi í dag. Allir ánægðir með ferðina og alltaf best að koma aftur heim. Í kvöld ætla ég að arka á Helgafellið hér ofan við Kaldársel og njóta útiveru. Annars vona ég að þið njótið sumarfrísins þið sem enn eruð í frí og þið hin njótið lífsins.
Skrifa meira síðar!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

3.8.2009 kl. 11:19

Afmæli í dag.

Sigurgeir Ólafsson á afmæli í dag og er 28 ára. Elsku Geiri okkar. Innilegar hamingjuóskir á afmælisdaginn. Afi og amma Lundarbrekku.
P. S . Met fjöldi í hlaðborði í Kiðagili í gær, hálft þriðja hundrað, þrátt fyrir þoku og úrkomu. Harmonikuleikur, Útilegumannasöngur,sýningar og þjóðlegt kaffihlaðborð, starfslið klæddist þjóðbúningum.
Við bættum svo við daginn, því að skreppa í grillveislu til Akureyrar í gærkvöldi til Möllu og Jóa þar sem meiri hluti fjölskyldunnar kom saman. Komum heim samt fyrir miðnætti.Bestu þakkir öll fyrir daginn í gær.

Hjördís Kristjánsdóttir

1.8.2009 kl. 11:37

Fámenni

á síðunni um þessar mundir enda allir sem vettlingi valda í sumarfríi. Takk fyrir komuna þið góðu gestir sem komuð ferðlúin af Sprengisandi í fyrrakvöld, Rúna, Kiddi, Eva Margrét, Hanna Palli , Særún og Ari. Fyrr á sama degi komu Víðir, Vera, Sibba og Sigga Lóa.Mikið var gaman að sjá ykkur öll og hafi bestu þakkir fyrir að heimsækja okkur.
Í gær komu svo óvænt í hádeginu Jóhann Pétursson, skólabróðir Geira frá Hólum og systir hans Agnes og töfðu og við fylgdum þeim í Kiðagil svo þau sæu sýningarnar þar. Í dag er þurrt og sér til sólar og nú á að freista þess snúa og rúlla það hey sem hér er laust, bara að ekki rigni nú !! Á morgun er þjóðlegt kaffihlaðborð í Kiðagili og þá er starfsliðið í þjóðbúningum líka. Við Dika vorum núna að taka sumt af þessum klæðnaði fram. máta og laga, slétta og snurfunsa. Þá er líka búið að baka eftir gömlum húsmæðraskólauppskriftum og tilvalið að koma, sjá og smakka.

Hjördís Kristjánsdóttir

29.7.2009 kl. 21:17

Langt er síðan ég leit hér við síðast.

en við gerðumst túristar á suðvesturhorninu í eina viku og vorum heppin með veður og svo hittum við frændfólk og vini eins og kemur fram hér að framan. Guðrún systir og þín fjölskylda fá bestu kveðjur og innilegar þakkir fyrir móttöku og samveru. Vera og fjölskylda okkar bestu kveðjur og þakkir fyrir skemmtilega samveru og góðar móttökur í Grímsnesi. já mér þykir vænt um að hitta frændfólkið mitt og fannst bara alveg kjörið að slá margarflugur í einu höggi þennan góða dag í Grímsnesinu og njóta gestrisni Veru, Sibbu og Víðis og njóta þess með Guðrúnu og Árna.
Svo langar mig að óska Dísu og fjölskyldu alls hins besta á Reyðarfirði.
Vona svo að veðrið fari að skána og hægt verði að heyja fram í Bárðardal og njóta Akureyri um verslunarmannahelgi. Kærar kveðjur Malla

Marína Sig

28.7.2009 kl. 10:16

gleymdist

á að vera óskaplega fallega stafkirkju

guðrún beta frænka

28.7.2009 kl. 10:14

Skemmtiferð til Eyja.

Fórum með Herjólfi með bilinn á sunnudagskvöld til Vestmannaeyja gistum eina nótt tókum daginn snemma og skoðuðum Heimaey sem tók okkur alveg 6 tíma að skoða öll gosummerkin minnisvarða um það staðinn þar sem Guðlaugur tók land er hann synti eftir sjóslys ótrúlegt að hann hafi haft þetta af þvílíkt hraustmenni uppgröftinn sem er verið að gera grafa upp hús sem fóru undir hraun +okum upp í Eldfell í botni gígsins er bílastæið og þar er krossmark göngustígar upp á fellið. fórum á Stórhöfða og þar var bara algjört logn sem ekki kemur oft fyrir á þeim stað litum aðeins í Herjólfadalinn sem var að taka á sig Þjóðhátíðarmynd ósköp ómerkilegur dalur
jafnsl+etta með smá fjallahring á 3 vegu þetta kalla ég ekki dalSkansinn með óskaplega stafkirkju og stórbrotið umhverfið í kring þar sem hraunið stöðvaðit algjörlega frá bær ferð í alla staði.Það er hægt að aka kingum alla eyjuna og svo margt og mikið að sjá kom mér algjörlega á óvart Gott í bili kveðja

Guðrún besta frænka

26.7.2009 kl. 11:05

Komin heim

Við komum heim um hádegið i gær eftir að hafa dvalið í Fellabæ hjá vinum okkar ,Siggu og Danna á Ullartanga 3 frá því á þriðjudagskvöld. Við vorum sannarlega ofdekruð og ekið með okkur vítt og breitt og veisluhöld í mat og drykk eins og reyndar alltaf er þegar við sækjum þau heim. Hjartans þakkir fyrir þetta allt. Viðkomustaðir : Mælivellir hjá Rannveigu og Jóni, tvisvar, Vaðbrekka,Skjöldólfsstaðir, hreindýrasetur, Sænautasel, fjárhúsið, Svartiskógur, súpa í hádegi, farið gegnum Fáskrúðsfjarðargöng, farið í Mjóafjörð að Brekku og Vilhjálmur Hjálmarsson sóttur heim. Þökkum ykkur öllum elskulegar móttökur. Siggi, Bryndís og litlu bræður Agnar og Kári. Sérstakar þakkir fyrir móttökurnar. Svo sendum við þeim sem áttu afmæli í síðustu viku kveðjur og hamingjuóskir.
Guðrún og Árni, þökkum heimsóknina , gaman að fá að sjá ykkur þótt stutt væri. Lifið svo öll heil.

Hjördís Kristjánsdóttir.

25.7.2009 kl. 14:05

Góðir dagar

Sælt veri fólkið!
Hér á bæ hefur vikan verið skemmtileg og fjölbreytt. Um síðustu helgi vorum við á ættarmóti í blíðskaparveðri í Fannahlíð undir Akrafjalli, en það var móðurættin hans Kidda. Á sunnudaginn komu svo Malla, Jói og Sævar og fórum við á Grease og skemmtum okkur virkilega vel. Vikunni hefur svo verið eytt með Möllu fjölskyldu meira og minna. Börnin farið í keilu, tvær sundferðir á Álftanes, kaffihúsaferð, fjallganga á Keili, heimsókn í sumarbústað til Veru og fjölsk. eldaður góður matur o.fl. o.fl. Nú eru þau farin norður aftur og við þökkum þeim fyrir frábæra daga hér. Við eigum svo von á Óla Hirti og fjölskyldu í kaffi og vinafólki í kvöldmat þannig að það er nóg að gera og bara skemmtilegt.
Njótið lífsins öll og ég ætla að taka mér orð meistara Þórbergs í munn núna og minna á að "Megnið af volæði veraldarinnar stafar af skorti á ímyndunarafli! en þetta er úr Bréfi til Láru sem ég hef verið að glugga í undanfarið.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

24.7.2009 kl. 18:46

Átti yndislega stund

austur í Grímsnesi í gær Fór til að hitta Veru Sibbu Víði og Siggu Lóu og er við komum þangað voru komnir gestir Malla og Jói Guðrún og Kiddi og fleiri bættust í hópinn Malla sagði að það væri fint að hafa svona frænku mót úr því að Sibba var á svæðinu og það var bara gaman Gleymdi að minnast á það að við skoðuðum flugmynjasafnið +a Akureyri á leiðinni suður og það var bara gaman Elsku Dísa og Geiri vona að þið hafið haft gagn og gaman á ykkar ferð austur á land kveðja og kvitt

Guðrún besta frænka

23.7.2009 kl. 8:34

Komin heim eftir yndislega daga

á Reyðarfirði hjá Dísu og fjölskyldu Fórum víða skoðuðum tækniminjasafnið á Seyðisfirði sem er bara frábært safn Árni skoðaði stríðsminjasafnið á Reyðarfirði fórum á Norðfjörð og þar hitti ég vinkonu mína og átti yndislega stund hjá henni fór og hitti Sigga Hrein og fjölskyldu einnig yndisleg stund hjá þeim, Á leiðinni suður kom ég við í Lundarbrekku og fékk heimsins besta hnagikjöt fæ ekki betra hangikjöt en þar takk fyrir okkur elsku Dísa og Geiri hefði viljað stoppa lengur en vorum á hraðferð suður því bíllinn átti að fara ´verkstæið kl 8 morguninn eftir en ég stppa lengur næst Dalurinn fagri tók vel á móti mér með sól og blíðu eins geði fjörðurinn fagri Norðfjörður þótt ekki hfi veið sól en það var fjallabjart og það er fyrir mestu þetta er helst í fréttum hjá mér í dag eigið góðan dag kæru ættingjar og vinir lifið heil

Guðrún besta frænka

18.7.2009 kl. 21:52

18. júlí, afmælisdagur Jónaar Sigurðssonar.

Jónas, til hamingju með árin 59.
Hér er búið að slá Hól, Kirkjulaut, Undirvöll og Sigtún, en þurrkurinn er daufur. Í þurru veðri ætti þó að takast að ná því í rúllur um helgina, eða e.t. v. klára á mánudag. En þau heyja þetta á Bjarnarstöðum , hér á ekki að heyja í okkar hlöðu í sumar, við eru að hætta skepnuhaldi. Geiri er nú samt þátttakandi í heyskap á þessum túnstykkjum, en þau eru tímafrek og þarf að nota handvekfæri við að gera þau snyrtileg. Verðum mjög fegin ef tækist að hreinsa þetta núna. Annars fátt að frétta, Malla og fjsk. verða fyrir sunnan næstu viku, nema Hjörvar,Guðrún og fjsk. um helgina á ættarmóti í Hvalfirði. Við höfum fengið aðeins gesti en ekkert farið ennþá sjálf, það bíður þess að heyið verði í höfn sem nú liggur flatt. Njótið sumarsins Kveðja. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

15.7.2009 kl. 10:45

Endemis veðurblíða 3 vikuna

liggur við að ég sé farin að þrá rigningu til að slá aðeins á þessi bansettu frjókorn sem eru hér rignir yfir eins og snjódrífa Erum aðeins farin að hugsa okkur til hreyfings kíkja á landið eins og vanalega hitta ættingja og vini því senn er fríið búið Ég ætla að geyma eina viku til haustsins En lifið heil kæru ættingjar og vinir

Guðrún besta frænka

15.7.2009 kl. 7:03

Sól í morgunsárið

Hér á Stór-Kópavogssvæðinu er sól og smá gola og 9 stiga hiti kl. 6.00. Ég á vona á góðum degi. Hér hefur lítið gerst síðan síðast nema verið gengnir nokkrir kílómetrar. Eiríkur er í Vinnuskólanum en hann fer nú að fara í frí þar og líka í Moggaútburðinum eftir næstu viku. Um helgina stendur til að fara á ættarmót í móðurætt Kidda en það er haldið í Hvalfirði.
Vona að þið njótið vel sumarsins hvar sem þið eruð.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

13.7.2009 kl. 14:20

Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri

var skoðað í gær og auðvitað kom ég aðeins við í Ullarsetrinu verulega gaman að sjá þetta allt saman Einmuna veðurblíða hér undanfarna daga helst til heitt fyrir mig sem þoli engan hita að ráði svo eru blessuð frjókornin af öspinni hreynt að drepa mig núna hér úti er eins og snjóskafl við stéttina ég er með frjókorna ofnæmi og þetta er bara árvisst hér hjá mér með allan þennan gróður í kringum mig Annars er bara róleg heit förum nú samt að hugsa okkur eitthvað til hreyfings Vona að heyskapur sé langt komin hjá ykkur kæra frændfólk og vonandi sé ég ykkur áður en langt líður Sumarkveðja

Guðrún besta frænka

13.7.2009 kl. 14:07

Að loknu Landsmóti UMFÍ og sól og blíðu hér í tvær vikur.

Kæra frændfólk, gaman að heyra hvað þið eruð að fást við á sólríkum sumardögum sem við höfum notið um mest allt land þennan síðasta tíma. Ég fylgist spennt með gönguferðum litlu stelpna á fimmtugsaldrinum og hlakka til að fá kanski boð í eina létta göngu í næstu viku en þá ætlum við Jói að vera nokkra daga á Reykjavíkursvæðinu. Höfum annars átt dýrðardag á N1 móti og síðan Landsmóti. við Jói fórum líka í okkar eigin eyðibýlagöngu á Fljótsheiðina á þriðjudaginn í síðustu viku. Gengum frá Arnarstöðum í Bárðardal upp til heiðar og áðum fyrst í Jarlsstaðaseli, síðan í Brenniási og þriðja eyðibýlðið var Hrappstaðasel. Gengum síðan aftur til baka niður í Arnarstaði og vorum alls 6 og hálfa klst. í ferðinni. við fengum indislegt veður og nutum dagsins vel. Pönnukökubaksturinn gekk vel og allir sérlega ánægðir með framkvæmd keppninnar svo ég var harla ánægð í lok dags. Síðan sinnti ég menningunni á laugardag með mömmu og á sunnudag með Áslaugi tengdaföður mínum og Ingibjörgu nýrri svilkonu minni. En bróðir hennar var hér á Akureyri að syngja með kammerkórnum Schola Cantorum og fór ég með þeim í messu og síðan henni á indislega tónleika. Njótum áfram sumarsins. Kveðjur Malla

Marína Sig.

11.7.2009 kl. 12:18

vantaði restina

Á þriðjudaginn komu hér góðir gestir Siggi Hreinn og Bryndis komu með 3 stráka og það var gaman Sól og bliða hér alla daga núna yndislegt Lifið heil kæru ættingjar og vinir kveðja

Guðrún besta frænka

11.7.2009 kl. 12:14

Rólegheit í sumarfríi

erum bara í rólegheitum ennþá fórum í fyrradag smá hring á Þingvelli og þá leit ég á Valhöll og átti nú ekki von á því að þð yrði í síðasta sinn sem ég leit hana augum, síðan fórum við á Laugarvatn og skoðuðum Laugavatnshellinn fræga og síðan stefnan tekin á Geysi og heim stranleiðina Selfoss Eyrarbakki og heim

Guðrún besta frænka

9.7.2009 kl. 12:17

Sumarið er tíminn..........

Góðan dag gott fólk, eitthvað er nú langt síðan ég hef skrifað hér inn en tíminn líður alltaf svo hratt. Nú er samtarfskona mín í minni deild í sumarfríi og vinnudagurinn nægir ekki fyrir þau verkefni sem ég þarf að sinna því ekki var nú mikið um sumarráðningar hér á niðurskurðartímun, en það er nú gott að hafa nóg að gera.
Við fórum austur á Hornafjörð um síðustu helgi og áttum góða daga þar og Ari litli er búinn að jafna sig eftir hlaupabóluna en hann þurfti að sleppa viku úr leikskólanum og þá var nú aldeilis gott að eiga stóru systu og Evu frænku að en þær hjálpuðu okkur að passa hann svo við gætum farið eitthvað í vinnuna.
Nú er veðurblíða dag eftir dag eins og víst um mest allt land en það hefur nú verið frekar sólarlítið en mjög hlítt og gott.
Í gærkvöld fórum við Palli ásamt Guðrúnu og Kidda með gönguhóp Útivistarræktarinnar í fjallgöngu á Stóra-Kóngsfell og Drottingu og var það skemmtilegt og veðrið lék við okkur og auðvitað pössuðu "litlu stelpur yngri" fyrir okkur :-)
Vona að þið eigið góða sumardaga hvað sem þið dveljið
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

8.7.2009 kl. 23:36

8. júlí að kvöldi kominn

Sólskin og hitii og Geir hefur veri að slá með bensínorfi í mogun ég fékk hrimilishjálp´i morgun og ki um 1 kom ræstinigskoma í kirkujna þetta eru verkin mín sem hægt ðg bítandi eru qð færas tá annarra hendur átta karmenn og organisti eru að æfa í kvold jarðarfararsöng í kirkjunnui,en kl11f hádegi á að v erða hér kistulagning Það Hermann á Jarlsstöðum sem hér verður kvaddur Horfur á blíðuveðri á morgunmVonin að nóttin verði góð og einnig dagurinn á morgur,

Hjördís Kristjándsdóttir

8.7.2009 kl. 7:39

8. júlí

Góðan dag!
Héðan er allt gott að frétta. Við eyddum helginni á Hornafirði, á humarhátíð og var það mjög gaman. Við gengum uppá Almannaskarðið, og vorum einnig boðin í humarsúpu til foreldra hans Palla. Virkilega skemmtileg helgi. Annars gengur lífið hér sinn vanagang, allir eru frískir og hressir. Eiríkur er í Vinnuskólanum og er að bera út Moggann. Við Kiddi skelltum okkur á Keili á mánudaginn í ágætis veðri en svo gekk ég á Esjuna um kvöldið með Lilju mágkonu minni ásamt hóp sem hún er í og heitir "Sigurvegararnir". Það var frekar þeytt kona sem fór að sofa það kvöldið en ánægð!!
Vona að þið njótið þessa góða dags og elsku pabbi eigðu góðan afmælisdag!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

5.7.2009 kl. 22:30

Sumarblíða

Einstök sumarblíða hefur verið hér um helgina og sennilega ekki algengt að haldin séu fótboltamót þar sem stuttbuxur og stuttermabolir gilda alla dagana. Sævar tók þátt í þessu móti sem var N1 mót hér á Akureyri sem er fótbolti fyrir 11-12 ára stráka þ.e. 5. flokkur karla. KA sér um þetta mót og er þetta eitt stærsta fótboltamótið sem haldið er fyrir yngriflokka. síðan fórum við í veiðiferð upp að Kálfborgarárvatni . Fórum ekki fyrr en um sex í gærkvöldi og vorum komin heim í Lundarbrekku um hádegi í dag með góða veiði. Sævar fékk að njóta þess að veiða á stöng úr bátnum og veiddi 8 góða silunga.
Í veðurblíðunni er Bárðardalurinn og heiðin í sínum fínasta skarti.
Framundan er svo Landsmót UMFÍ og þar verður Jói að vinna við kastgreinar og ég fæ að taka þátt í að dæma pönnukökubakstur á föstudaginn. Ef eitthvað er að marka veðurspána þá verður áframhaldandi blíða.
Njótum þessara björtu sumardaga. Kveðja Malla

Marína Sig

4.7.2009 kl. 12:05

Sendi honum litla frænda mínum

innilegar hamingju óskir með daginn Vona að hann eigi yndislegan dag Ég sé að það er engin heima til að skella inn mynd af stráksa en ég sendi kveðjuna bara hér í staðin það ætti að skila sér alveg Til hamingju með drenginn Óli frændi og Elva kveðja

Guðrún Jónsdóttir

3.7.2009 kl. 14:03

Langömmu og langafadrengur á afmæli í dag.

Elsku Ólafur Skagfjörð. Við sendum þér hjartans hamingjuóskir með þriggja ára afmælið.Ég kom heim í gærkvöldi eftir að hafa verið á Akureyri frá því á mánudag. Var að byrja í sjúkraþjálfun en svo verður frí hjá öllum .þjálfurum í júlímánuði og ég reikna með að halda áfram í ágúst.. Geiri búinn að setja sláttuvél á gaml a Nalla og farinn að slá , en það er ekki heyskapur heldur hreinsun kringum hús og kirkju. Alltaf blíðuveður , rigndi aðeins í nótt og þokusúld á Húsavík í morgun en við erum búin að skreppa þangað í dag. og koma við í hádeginu á Ingjaldsstöðum , þar er hafinn alvöru heyskapur. Óskum ykkur að þið njótið sumarblíðunnar í ríkum mæli. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

3.7.2009 kl. 11:22

Undur fagurt veður í dag

og hlýtt eftir því Allir komnir út í sólina og njóta góða veðursins Vonandi verður ekki mikil rigning á þeim er eru á humarhátið Nonni á leið austur frá vestfjörðum búin að skoða heilmikið og hafa verið heppin með veður Ég ætla að halda smá kveðjuparty fyrir Særúnu á sunnudaginn þá ætlar hún að bjóða skólasystrum sínum og kveðja þær á að vera svona fyrirfram afmælisveisla Annars allt gott frá okkur Lifið heil kæru ættingjar og vinir Kveðja kvitt

Guðrún besta frænka

1.7.2009 kl. 21:24

Dásamlegt líf

Hæ og hó.
Hér er veðrið alltaf svo yndislegt að maður vill helst ekkert þurfa að vera inni. Á laugardaginn fór fjölskyldan í Glaðheimum í bíltúr á Reykjanesið og svo að veiða í Vífilsstaðavatni. Við systur fórum svo í langan göngutúr í Heiðmörk með alla krakkana á sunnudagsmorguninn og í sund eftir það. Svo fórum við fjölskyldan út á Gróttu seinnpartinn. Á mánudaginn var ég að reyna að gera eitthvað í ljótasta garðinum í Glaðheimum og fór svo út að hjóla þegar Atli var sofnaður. Í gær eftir vinnu var það göngutúr kringum Vífilsstaðavatn og í dag var það aftur sund með krakkana. Eigum eftir að plana hvað það verður á morgun en Gróttan er líkleg. Bara sjö vinnudagar eftir fram að fríi og ég hlakka svo til. Kvitt og kveðjur. Elma

Elma

29.6.2009 kl. 21:32

Mánudagur að kvöldi kominn

Héðan úr Kóapvoginum er allt gott að frétta, við erum nýkomin úr kvöldgöngu í Gróttu og áttum við þar ánægjustundir með kríunni :-). En kvöldsólin er fallg núna og aðeins 18 stiga hiti í blankalogni. Helginni eyddi ég í fjallgöngur en ég gekk tvisvar á Esjuna n.t.t. á Þverfelsshorn. Á laugardaginn með Hönnu og Palla og svo á sunnudaginn gengum við Kiddi. Þetta var virkilega gaman í bæði skiptin og kom á óvart hve auðvelt þetta var, og fórum alla leið á toppinn í bæði skiptin. Á laugardaginn var reyndar þoka þannig að útsýnið var lítið sem ekkert en það var mikið betra á sunnudaginn. Ég vona að þið njótið vikunnar hvort sem er í fríi eða vinnu.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

28.6.2009 kl. 9:35

Jæja þá er nú komið sumarfrí

hjá mér og veðrið búið að vera yndælt síðustu daga Allt mitt fólk í fríi Nonni og Anna skoða vestfirðina í guðdómlegu veðri fóru með tjald og viðlegubúnað og eru bara á tjáldsvæðum og líkar vel svona á maður nú að ferðast Dísa er eins og er með sitt fólk í bústað í Hraunborgum og fer heim eftir næstu helgi þá er hún alflutt á Reyðarfjörð við gömlu erum ekkert farin að skipuleggja okkar frí Árni klárar síðustu vakt í nótt fyrir sumarfrí svo verður bara að ráðast hvað verður Hér er allt á fullu við endurbætur á blokkinni og verður hún voða fín eftir það var komin tími á þessar framkvæmdir Gott veður í dag og mikill fuglasöngur í garðinum núna Hafið það ætíð sem berst kæra frændfólk og vinir Lifið heil kveðja og kvitt

Guðrún besta frænka

26.6.2009 kl. 22:59

Myndir og fleira gott

Sæl veri þið!
Já það er satt að veðrið leikur við okkur þessa dagana. Við erum búin að vera í Bárðardalnum við leik og störf síðustu viku og áttum þar virkilega góða og skemmtilega tíma, takk fyrir okkur mamma og pabbi. Ég setti örfáar myndir inná albúmið "Sigurgeir" áðan og skora jafnframt á ykkur að vera aðeins duglegri að senda myndir á okkur Sigga til að við getum bætt þeim á síðuna.
Ég vona svo að þið eigið góða helgi og njótið veðursins.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

26.6.2009 kl. 20:30

Góðviðri

Í gær rigndi, en í dag sólskin og hlýindi. Við brugðum okkur til Akureyrar og þar var reyndar mun svalara en hér og þoka inn að Hrísey og þokuslæða á Höfðanum í Höfðahverfinu. Ég var að byrja í sjúkranuddi og sjúkraþjálfun í dag. Ætla svo að vera á Akureyri næstu viku, fæ að gista hjá Möllu og fer í sjúkranudd og þjálfun hjá góðri konu sem starfar hjá Eflingu. Vona að ég hafi gott af því.Geiri verður heima suma daga en ekki alla. Næsta helgi veðsett hjá honum ef veður verður gott. Annars bara allt gott. Kveðja.

Hjördís Kristjánsdóttir

25.6.2009 kl. 11:49

Sumarblíða dag eftir dag

Héðan er allt gott að frétta,Aldís á eftir eina viku í leikskólanum og telur niður, þegar hún vaknaði í morgun þá sagði hún jæja mamma núna eru eftir 7 :) held að henni eigi eftir að leiðast í fríinu fram að skóla.Jónas vinnur frá 6 - 18.15 og vinnur næsta laugardag það minkar ekkert bjórdrykkjan hjá íslendingunum í kreppunni bara eykst.Ég labba eitthvað á hverjum morgni enda mjaðmirnar orðnar stirðar(ekki góðar fyrir) hitti séra Arnald fram í sveit í morgunn hann sér um hestanámskeið fyrir börn en okkur hjónunum hefur gengið ílla að fá dömuna í einhver námskeið eða bara að gera eitthvað en hestarnir heilla pínu svo ég ætla bara með hana á námskeið það verður ekkert val.Held að það sé best svoleiðis þetta er líka bara alltaf vika í einu svo getur maður hætt eða haldið bara áfram,Það verður spennandi fyrir mig að vera með Aldísi á námskeiðinu því ég hef alltaf verið hálf smeik við hesta eftir að hestar sem voru lausir heima eltu mig þegar ég var um 12 ára þá var ég með poka og þeir heldu að ég væri að gefa þeim brauð :) ég náði að skjóta mér inn á frystihúsið heima en ég varð svo brjálaðislega hrædd og systir mömmu sem var með mér að við hlupum hraðari en hesturinn :) og höfum hvorki fyrr né síðar hlaupið svona hratt haha. Við fjölskyldan fórum í afmælisveisluna til Óla og Friðriku síðasta laugardag Anna og Katrín komu með okkur ,við áttum saman yndislega kvöldstund þar ásamt ættingjum og vinum þeirra hjóna og þökkum bara kærlega fyrir okkur.

Vonandi eru allir hressir,bestu kveðjur frá okkur kristín og co.

Hafðu stjórn á hugsun þinni,
Í hjartanu dýpsta gleðin býr.
Ef þú hefur sól í sinni,
Sérhver skuggi burtu flýr.

Kristín

24.6.2009 kl. 19:28

Tek undir með Hönnu skora á þá frændur að deila með okkur skemmtilegum kveðskap.

En ég eins og Hanna var fjarri góðu gamni á laugardagskvöld vegna þess að við Jói vorum löngu búin að skipuleggja ferð á Vatnsnes í Húnavatnssýslu, panta gistingu og tengja okkur við ferðafélaga á margfrægt Fjöruhlaðborð í Hamarsbúð sem Húsfreyjurnar á Vatnesi sjá um um Jónsmessu ár hvert.
Við eyddum því helginni í V-Hún og heimsóttum einnig hafíssetur á Blönduósi. Við áttum frábæra helgi og það er virkilega gaman að fara á svona Fjöruhlaðborð. ótrúlegt en satt þar hittumst við frænkur ég og Elma en hún var þarna ásamt Þráni, Atla og tengdaforeldrum.
Við Jói héldum svo áfram við að taka þátt í sólstöðuhátíðum og fórum í gönguferð í Aldeyna ásamt rúmlega tuttugu öðrum. Við systur vorum allar í grillveislu á Lundarbrekku í gærkvöldi og fórum svo í þessa miðnæturgöngu. Virkilega vel heppnað og Sævar og Eva Margrét sem efuðumst um að þetta yrði gaman voru alsæl með þessa upplifum.
Bestu kveðjur Malla

Marína Sig.

24.6.2009 kl. 10:16

Fréttir úr Kópavoginum!

Góðan dag gott fólk, ekki miklar fréttir hjá okkur en ég var í fríi í síðustu viku og það var ósköp notalegt að vera ekki með neitt visst skipulagt. Ara mínum gengur vel á sundnámskeiðinu og nú klárast það á næsta föstudag. Við gerðum ýmislegt okkur til gamans í fríinu fórum í hjólatúr, gönguferðir og húsdýragarðinn og við mæðgur fórum svona stelpuferð í bæinn, röltum Skólavörðustíginn og Laugaveginn og létum eins og ferðamenn :)
Á föstudagskvöldið fékk Særún að skreppa norður yfir helgina með Sigga en ég skellti mér í þvílíkri blíðu niður í Laugardal og söng í Kvennamessu við Þvottalaugarnar en þar er alltaf kvennamessa þann 19. júní. Ég fékk fréttir úr skemmtilegri afmælisveislu í Kiðagili og mér skilst að þeir frændur Sigurgeir Ólafsson og Sigurður Atlason hafi aldeilis slegið í gegn með kveðskap, það væri nú gaman ef þeir lofuðu okkur að njóta hér á síðunni............
eigið góða daga
og bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

23.6.2009 kl. 21:34

Takk fyrir Dísa mín

ég var nú bara farin að halda að eitthvað væri að heyrðist ekki neitt úr dalnum fagra En þetta er bara yndislegt að hafa svona líf og fjör Og gaman að allt er orðið svona líka fínt hjá þér Það er verið að taka blokkina hjá okkur í gegn núna Múrviðgerðir þakviðgerðir og svo auðvitað verður allt málað í restina knús og kossar á alla kveðja kvitt

Guðrún besta frænka

23.6.2009 kl. 10:13

Góðan dag.

Ja hérna, já. Fólk er bara hálfdasað og afslappað eftir alla viðburði nýliðinna daga. Guðrún Kiddi, krakkarnir og Magga .mamma hans Kidda komu hér á fimmtudagskvöld og eru hér enn. Kiddi búinn , með aðstoð Guðrúnar og krakkanna að taka húsið okkar í gegn að utan , hreinsa, fúaverja allt tréverk, gera við múrskemmdir og mála utan svo allt er sem nýtt. Hér voru svo ýmsar uppákomur í Kiðagili. 13. júní var ferming hér í kirkjunni og fjölmenn fermingarveisla í Kiðagili á eftir.
Sl föstudagskvöld var K. K. ( sá eini sanni) með tónleika þar og við Guðrún Kiddi og Magga fórum þangað. Á laugardagskvöld tvöfaldafimmtugsafmælið, opið hús fyrir alla sem koma vildi, um 80-90 manns mættu, mikill og góður matur, mælt mál, laust og ljóðað, tónlist frumflutt og frumsamin, myndasýning ,söngur, sitt lítið af hvoru, mjög skemmtilegt. Á sunnudag fyrsta kaffihlaðborðið, um kvöldið menningarvaka í kirkjunni hér .
Þetta svona það helsta. Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

23.6.2009 kl. 6:36

Ja hérna

ósköp eru allir hljóðir í dalnum fagra Engar fréttir þótt það sé búin að vera ferming haldið upp á 2 sinnum 50 ára afmæli KK búin að skemmta ykkur ásamt fleiri atburðum og engin deilir allri þessari skemmtun með okkur sem fjær eru,Hér er rigning í dag en logn og milt veður Allt gott frá mér og mínum Við hjónin förum í frí um helgina Látið nú heyra frá ykkur gott fólk kveðja og kvitt

Guðrún besta frænka

17.6.2009 kl. 22:34

Elskulega frændfólk

Árni þakkar kveðjurnar og ég þakka kveðjur til mín áttum yndislegt kvöld með þeim Önnu og Nonna komu í kvöldmatinn og ég var með humar í forrétt rustbeef í aðalrétt með öllu tilheyrandi og súkkulaðiköku með rjóma í eftirrétt Alltaf gott að fá þau í heimsókn. Nú styttist í sumarfrí við förum bæði hjónin í frí þann 29 júni en ekki er búið að plana neinar ferðir en ég eins og ævinlega verð að komast í Bárðardalinn ekki spurning er ómöguleg ef ég kemmst ekki þangað Frétti af Dísu og fjölskyldu í dag voru í heimsókn hjá Sigga Hreini og allt gott af þeim öllum að frétta Eigið góða daga kæra frændfólk og vinir Lifið heil

Guðrún besta frænka

17.6.2009 kl. 11:09

Gleðilega þjóðhátíð

Kæru ættingjar. Mig langar til að hvísla að ykkur, þið sem stödd verið á Norðurlandi á laugardaginn kemur 20. júni að Bjarnarstaðahjón Óli og Dika ætla þá að halda upp á fimmtugsafmælin sín og hafa opið hús í Kiðagili í Bárðardal. Veislan fer fram á laugardagskvöld. ég veit að þau langar að sjá framan í ættingjana en engum er boðið en allir sem áhuga á að fagna með þeim eru velkomnir.
Ég var ekki beðin að auglýsa þennan viðburð en þar sem ég hef fengið nokkrar fyrirspurnir ákvað ég að hvísla þessu að ykkur hér á þessum vef.
Njótið Þjóðhátíðar og hafið það ætíð sem best. Malla

Marína Sig.

17.6.2009 kl. 7:31

Gleðilega hátíð!!

Gleðilega hátíð kæru ættingjar!
17 júní í runninn upp og veðrið hér á höfuðborgarsvæðinu alls ekki svo slæmt svona í morgunsárið. Ég er búin að bera Morgunblaðið í hverfið mitt en gaf syninum frí vegna þess að hann er að vinna í allan dag með Vinnuskólanum við hátíðahöld hér á Rútstúni í Kópavogi. Það var birkiilmur í lofti eftir rigningu gærdagsins og næturinnar. Við Kiddi fórum ásamt Palla (Hönnu) í fræðslugöngu á vegum Orkuveitunnar í gærkvöldi og genginn var hluti af fræðslustíg við Nesjavelli. Fróðleik um söguna, náttúruna, jarðfræðina og beislun orkunnar var fléttað inní gönguna. Ég held við höfum verið milli 40 og 50 sem lögðum af stað en einhverjir heltust úr lesinni þegar líða tók á. Veðrið var frekar leiðinleg og þegar upp á útsýnispall var komin var bálhvasst og rigning. En við kláruðum þessa skemmtilegu göngu og fengum að vita í lokin að við hefðum gengið 6,4 km. Mjög skemmtielgt og öruggt að ég fer í fleiri svona göngur hjá þeim í sumar. Af fjölskyldunni er allt gott að frétta, Eiríkur byrjaður að vinna í Vinnuskólanum og svo ber hann alltaf út Moggann. Eva Margrét er í sumarfríi og er nú mest að dunda með vinkonunum og eru sundferðir þar afar vinsælar.
Eigið góðan þjóðhátiðardag.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

16.6.2009 kl. 10:49

Fallegur dagur

Yndislegt veðrið þegar ég lít út um gluggann þá sé ég að leikskólinn Aldísar er að verða vel skreyttur litlum fánum og borðum,það er vorhátið þar í dag andlitsmálun,skemmtiatriði svo er foreldrum boðið í grillaðar pylsur.það er búið að vera mikið um að vera hjá okkur í júní.gestir hjá okkur, tvisvar hitt fólk í kjarnaskógi og grillað,hátíðir í leikskólanum,útskriftaveisla og fleira.það hefur verið mjög gott að ég sé bara heimavinnandi það er búið að vera óvenju mikið um að vera á leikskólanum um miðjan dag.:) Aldís er farin að telja niður þangað til hún hættir í leikskólanum sem er 3 júlí. Jónas fer í sumarfrí 24 júlí og þá ætlum við að skreppa vestfirðina með systrum mínum og foreldrum pabbi verður leiðsögumaður þar sem hann hefur farið nokkrum sinnum þessa leið en við hin alveg græn.Svo verða vonandi teknar helgarferðir með tjaldvagninn í sumar,annars ekkert annað planað.Hafið það öll gott í sumar.

Bestu kveðjur Kristín

kristín Aðalsteinsdóttir

13.6.2009 kl. 21:52

Góða kvöldið.
Við hjónaleysin fórum í 35 ára afmælispartý hjá einni af svilkonum mínum í gærkvöldi og þar eignaðist ég nýja "systur" ( ha,ha) kom í ljós þegar verið var að kynna gestina og talið barst að því að ég væri úr Þingeyjarsýslu að þarna var ljósfærð falleg kona sem sagðist vera úr Bárðardalnum og við að sjálfsögðu tókum tal saman hið snarasta og við gátum strax eignað okkur sameiginlega ættingja "öllu megin" frá. Konan heitir Gunnhildur,dóttir Hildar Káradóttur Tryggvasonar úr Víðikeri. Úr þessu urðu hinar skemmtilegustu samræður aðallega um þau Hjartarbörn og Lundarekku einnig og samband okkar varð svo náið í partýinu að við vorum kallaðar systur það sem eftir var kvöldins. Þannig að þetta varð að sjálfsögðu hið skemmtilegast partý sem stóð til 5 í morgun (man ekki einu sinni hvenær ég kom síðast svona seint heim) Ég var svo mætt upp úr 10 í morgun til að sækja einkasoninn til Rögnu systur og við lékum okkur við og með börnunum okkar til hádegis. Þá ákvað ég að vekja bóndann og við fjölskyldan fórum í fjöruferð út í Gróttu hvar við lentum í þvílíkri hellidembu en veðrið var samt svo yndislegt að við skemmtum okkur alveg konunglega í rigningunni. Sundferð var svo næst á dagskrá í nýju sundlaugina á Álftanesi ásamt þokkalegum hluta af tengdafjölskyldunni. Svo eru það bara rólegheit í kvöld. Á morgun er ferðinni svo heitið austur í Sólheima í Grímsnesi hvar undirrituð mun syngja í messu í safnaðarferð Áskirkjusafnaðar ásamt nokkrum öðrum kórfélögum kórins. En ég ætla að taka drengina mína með og gera úr þessu fjölskylduferð í uppsveitirnar.
Knús á alla, Elma

Elma

13.6.2009 kl. 21:40

Góða kvöldið.
Við hjónaleysin fórum í 35 ára afmælispartý hjá einni af svilkonum mínum í gærkvöldi og þar eignaðist ég nýja "systur" ( ha,ha) kom í ljós þegar verið var að kynna gestina og talið barst að því að ég væri úr Þingeyjarsýslu að þarna var ljósfærð falleg kona sem sagðist vera úr Bárðardalnum og við að sjálfsögðu tókum tal saman hið snarasta og við gátum strax eignað okkur sameiginlega ættingja "öllu megin" frá. Konan heitir Gunnhildur,dóttir Hildar Káradóttur Tryggvasonar úr Víðikeri. Úr þessu urðu hinar skemmtilegustu samræður aðallega um þau Hjartarbörn og Lundarekku einnig og samband okkar varð svo náið í partýinu að við vorum kallaðar systur það sem eftir var kvöldins. Þannig að þetta varð að sjálfsögðu hið skemmtilegast partý sem stóð til 5 í morgun (man ekki einu sinni hvenær ég kom síðast svona seint heim) Ég var svo mætt upp úr 10 í morgun til að sækja einkasoninn til Rögnu systur og við lékum okkur við og með börnunum okkar til hádegis. Þá ákvað ég að vekja bóndann og við fjölskyldan fórum í fjöruferð út í Gróttu hvar við lentum í þvílíkri hellidembu en veðrið var samt svo yndislegt að við skemmtum okkur alveg konunglega í rigningunni. Sundferð var svo næst á dagskrá í nýju sundlaugina á Álftanesi ásamt þokkalegum hluta af tengdafjölskyldunni. Svo eru það bara rólegheit í kvöld. Á morgun er ferðinni svo heitið austur í Sólheima í Grímsnesi hvar undirrituð mun syngja í messu í safnaðarferð Áskirkjusafnaðar ásamt nokkrum öðrum kórfélögum kórins. En ég ætla að taka drengina mína með og gera úr þessu fjölskylduferð í uppsveitirnar.
Knús á alla, Elma

Elma

11.6.2009 kl. 18:17

Komin í sumarfrí

Góðan dag! Jæja þá er ég komin í sumarfrí og krakkarnir í gær. Var að vinna í dag og endaði dagurinn með heilmikilum ratleik um borg og bý. Í kvöld er svo grillveisla heima hjá einni samstarfskonunni. Veðrið hefur verið alveg ágætt þessa síðustu daga og nýtur maður þess vel. Um síðustu helgi skruppum við í Grindavík á "sjóarann síkáta" og var það vel skipulögð og skemmtileg hátíð. Einnig gengum við á Þorbjörn og fengum bæði gott veður og sáum vel yfir. Læt þetta duga í bili og óska ykkur góðrar helgar.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

10.6.2009 kl. 20:05

einmuna veðurblíða í borginni í dag Dísa og hennar fjölskylda fóru austur á Reyðarfjörð í gær og koma suður aftur 26 júní og þá fer hún að vinna uppsagnarfrestinn og síðan eru þau alfarin austur mikil eftirsjá af þeirri litlu en vonandi gengur allt vel hjá þeim Við gömlu förum í sumarfrí 29. júni og verðum allan júli og fram í ágúst ég ætla að geyma nokkra daga af mínu fríi þar til í haust Jón er komin í sumarfrí frá og með morgundeginum skipið í stopp og ætla þau að ferðast eitthvað um landið ætla á Vestfirðina og eitthvað meira Annars allt gott frá okkur Dísa mín ég vona að heilsan sé öll að koma hjá þér og margir kossar til frænda Lifið heil kæru ættingjar og vinir kvitt

Guðrún besta frænka

10.6.2009 kl. 17:06

Smá skot úr sveitinni

Gott að fá fréttir úr þéttbýlinu , skólum að ljúka og börnin standa sig með prýði. Hér er langur sólskinsdagur , en verði svona bjart í lofti í nótt verður allt hvíthélað í fyrramálið. Kirkjukórsæfing fyrirhuguð í kirkjunni hér í kvöld, en hér verður fermt næsta laugardag, en það hefur ekki verið ferming í kirkjunni hér síðan 2005. Óvenju græn og laus við kal túnin hér á Lundarbrekku á þessu vori, en því miður er því öfugt farið á bæjunum hér á Fljótsheiðinni, snjórinn bara nýlega farinn þar og horfur allt annað en góðar með sprettu og ekki enn vitað hvað er kalið. Allir alvöru bændur að leggja nótt við dag að bera á tilbúinn áburð,keyra út skít og vinna flög .
Sama gildir um þá sem ætla að taka á móti ferðamönnum, allir keppast við sem eitthvað geta.
Svo er verið að sinna fénu, ennþá margt heima á túnum em sums staðar búið að sleppa meiri hlutanum , en hjá okkur öllu, en það er ekki margt og óvíða betri aðstæður en að láta það fara af túnunum út í Land. Læt þetta gott heita núna. Kveðja. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

10.6.2009 kl. 12:45

Kveðja frá sýslumannskontornum!

Góðan dag!
Þá er það kvitt frá mér í dag, allt gengur sinn vanagang hjá mér og mínum, Særún komin í sumarfrí en skólaslit voru í gær og vitnisburður hennar var glæsilegur, nú fer að styttast í 12 ára afmæli hennar þannig að við undirbúum veisluhöld. Það má segja að helgin verði þétt setin hjá okkur því við förum í útskrift hjá Hillu systur Palla á laugardag en hún er að útskrifast úr HR og Særún heldur sína afmælisveislu á sunnudaginn. Það verður óvenju fjölmennt í afmælinu hennar því afi og amma á Hornafirði verða í bænum og líka Nonni bróðir og fjölskylda, bara gaman, því oft hefur verið fámennt í hennar afmæli, allir farnir út og suður í sumarfrí :-) Ari er alltaf í boltanum og er svo að fara líka á sundnámskeið. Ég verð í sumarfríi í næstu viku og ætla að vera heima með börnunum og vinkona mín að norðan verður í bænum þannig að við gerum eitthvað skemmtilegt saman. Ég fer svo ekki í lengra sumarfríið mitt fyrr en í lok júlí og verð í fríi þangað til skólinn byrjar. Sumarfríinu eyðum við svo á landinu okkar fagra, vonandi nokkrar fjallgöngur og góðar heimsóknir, ég er nú frekar lítið fyrir útilegur en aldrei að vita hvað verður. ;-S
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

7.6.2009 kl. 21:44

Júní dagar

Sælt veri fólkið. Þá er fyrsta helgi júnímánaðar að líða og sjómannadagurinn að kvöldi kominn. Ég og mín fjölskylda höfum flest búskaparár okkar Jóa haldið sjómannadaginn hátíðlegan í Hrísey með fjölskyldu Jóa og nú gistum við tvær nætur og við hjón kíktum meira að segja á ball þar sem við erum orðin laus og liðug og Sævar getur verið heima sofandi án þess að við séum til staðar ef einhverjir aðrir eru tiltækir. Við áttum semsagt góða helgi og nú eru strákarnir búnir í skólanum og Ásgeir byrjar að vinna á morgun. Hjörvar lætur vel af sér í vinnunni sinni í Vogafjósi. Jói á eftir að vinna þessa vikuren svo er hann kominn í sumarfrí. Við ætlum að njóta sumardaga á heimaslóð og Sævar verður sem fyrr í fótboltanum hjá Þór.

Óska ykkur góðrar vinnuviku. Malla

Marína Sig

6.6.2009 kl. 22:22

Fréttir úr Glaðheimum

Góða kvöldið.
Síðustu 2 helgar hefur Glaðheimafjölskyldan verið í sveitasælunni á Ingjaldsstöðum og Atli hefði nú alveg verið til í að vera lengur þar og við líka en vinnan kallar og sem betur fer hefur maður enn vinnu. Við skötuhjú fengum næturpössun fyrir drenginn í gær og fórum út að borða og hittum vini okkar á pöbb og þar voru ýmis mál rædd. Veðrið leikur við okkur höfuðborgarbúa þessa dagana og dagurinn í dag var alveg yndislegur. Þráinn var að vinna í allan dag og við Atli fórum í Blómaval og keyptum sumarblómin og erum búin að setja blóm á svalirnar og tröppurnar, voða fínt. Svo lékum við okkur aðeins í garðinum hérna heima en röltum svo í Húsdýragarðinn til að skoða litlu selina og litlu grísina og vorum lengi þar að leika okkur. Grilluðum svo þetta fína norðlenska kjöt í kvöld og horfðum á landsleikinn í fótbolta í sjónvarpinu.
Kvitt og kveðjur úr Glaðheimum.
Elma

Elma

6.6.2009 kl. 22:14

Fréttir úr Glaðheimum

Góða kvöldið.
Síðustu 2 helgar hefur Glaðheimafjölskyldan verið í sveitasælunni á Ingjaldsstöðum og Atli hefði nú alveg verið til í að vera lengur þar og við líka en vinnan kallar og sem betur fer hefur maður enn vinnu. Við skötuhjú fengum næturpössun fyrir drenginn í gær og fórum út að borða og hittum vini okkar á pöbb og þar voru ýmis mál rædd. Veðrið leikur við okkur höfuðborgarbúa þessa dagana og dagurinn í dag var alveg yndislegur. Þráinn var að vinna í allan dag og við Atli fórum í Blómaval og keyptum sumarblómin og erum búin að setja blóm á svalirnar og tröppurnar, voða fínt. Svo lékum við okkur aðeins í garðinum hérna heima en röltum svo í Húsdýragarðinn til að skoða litlu selina og litlu grísina og vorum lengi þar að leika okkur. Grilluðum svo þetta fína norðlenska kjöt í kvöld og horfðum á landsleikinn í fótbolta í sjónvarpinu.
Kvitt og kveðjur úr Glaðheimum.
Elma

Elma

6.6.2009 kl. 9:09

Góður laugardagsmorgunn

Hér rigndi lka í nótt og er þokuloft og smá sallandarigning ennþá öðru hverju. Það var einmitt það sem okkur vantaði og nú hefur gróðurinn tekið við sér, bæði angan og litur Hrein unun að draga að sér rakt morgunloftið
tala nú ekki um "þetta þingeyska" sem jafnvel er farið að tala um að selja í krukkum. Nú spretta líka hvannarblöðin ,en það nýjasta er að í þeim sé frábært efni til styrktar ónæmiskerfinu og má bera Sigmund Guðbjarnarson fyrir því. Það er margt sem leynist í íslenskum jurtum , ekki síst í vorinu og gróandanum. Kærar kveðjur. Dísa

Hjördís Kristjánsdóttir.

6.6.2009 kl. 8:03

Mildur og fallegur laugardagsmorgunn

og er að létta til hér hefur rignt aðeins í nótt Ylmurinn af birkinu er bara ómæt stæðilegur.Sjómannadagshelgin og sjómaðurinn minn verður við bryggju um helgina og nýtur dagsins vonandi.Allt gott af mér og mínum njótið helgarinna kæru ættingjar og vinir kveðja

Guðrún besta frænka

4.6.2009 kl. 10:54

Júní mættur á dagatalinu!

og hér er dásamlegt veður í dag. Héldum uppá afmæli barnanni í gær og var það skemmtilegt þó ekki kæmust nú allir, en það var bæði fámennt og góðmennt! Ég þakka innilega fyrir allar afmæliskveðjurnar til krakkanna. Nú er farið að styttast í sumarfrí hjá þeim og líka mér, en ég á eina heila vinnuviku eftir í frí. Það er heilmikið um að vera hér í skólanum þessa síðsutu daga og alltaf jafn skemmtielgt að brjóta umm þessa hefðbundnu kennslu. Ég á ekki von á að það verði farið langt þessa helgi en ég óska sjómönnum til hamingju með Sjómannadaginn á sunnudaginn.
Góða helgi.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

2.6.2009 kl. 11:53

Skemmtileg hvítasunnuhelgi

Hjá okkur er búið að vera líf og fjör um helgina,eins og Hanna sagði hér á undan þá komu Baldur,Sandra og Jón Þór norður seint á fimmtudag.Og ýmislegt gert fórum öll í sund á laugardeginum svo þurftum við Jónas að skreppa í fermingarveislu til Ólafsfjarðar á sunnudag systir mömmu var að ferma stelpuna sína (síðasta barn)og bróðir mömmu að ferma sín síðustu en það eru tvíburastrákar og voru veislurnar haldnar saman.Og yndislegt að hitta ættingja og vini þennan dag,í gær heldum við svo upp á afmælið Aldísar en fyrir hádegi komu vinkonur hennar og Jónas stóð við grillið (eins og alltaf :) svo komu ættingjar og vinir eftir hádegið og gaman að sjá að systkini Jónasar hittust öll saman en það gerist mjög sjaldan.Sem sagt frábær helgi búin með yndislegu veðri alla daga sól og blíða og fá að hafa barnabarnið í 4 daga bara frábært.Í dag er svo tími hjá Jóni Þór (hjartalækni)gaman að heyra hvað hann segir og hvort lyfjunum fækki eitthvað.

Eigið góða daga og vonandi allir hressir.

Kveðja kristín.

kristín Aðalsteinsdóttir

2.6.2009 kl. 11:31

Mætt til vinnu eftir notalega helgi!

Góðan dag gott fólk, við Ari skelltum okkur norður um helgina með Sigga og Mikael og áttum góða helgi á Akureyri í blíðskapar veðri, skruppum aðeins í sveitina og Ari naut sín í fótbolta með frændsystkinum sínum. Áður en við lögðum í hann í gær mættum við svo í 6. ára afmæli Aldísar frænku. Við vorum svo heppin að Baldur, Sandra og Jón Þór voru líka fyrir norðan þannig að þetta var eiginlega svona ættarmót. Palli og Særún fóru í sveitaferð en árlega bjóða foreldrar bekkjarsystur Særúnar í sveitina áður en skóla líkur en þau eiga sumarhús rétt hjá Flúðum og þangað fóru þau á laugardag en Særún var svo óheppin að slasa sig á fæti, tognaði illa og er mikið bólgin þannig að hún er heima með vafinn fót.
Takk kærlega fyrir okkur og samveruna um helgina kæru ættingjar.
Hafið góða vinnuviku
Hanna

Jóhanna Marína

31.5.2009 kl. 6:45

Jæja gott fólk

gleðilega hvítasunnu af mér og mínum er það helst að frétta að Dísa og co fóru austur á Reyðarfjörð í gær með alla búslóðina ætlar að prufa að búa á Reyðarfirði allavega eitt ár Sigurjón er þar á vegum fyrirtækisins í vinnu nóg að gera þar ég er alveg komin í eldhúsið á mínum vinnustað hætt í heimaþjónustunni og er bara í eldhúsinu var orðin þreytt á að hlaupa á milli staða og grípa inn í í eldhúsinu líka þetta er bara gott Dísa flytur svo alveg í ágúst en verður hér hjá mér meðan hún vinnur uppsagnarfrestinn á DAS þetta var helst í fréttunum hja mér eigið góða helgi og lifið heil kveðja

Guðrún besta frænka

28.5.2009 kl. 20:30

Kærar þakkir

Eva Margrét þakkar kærlega fyrir kveðjurnar á afmælisdaginn. Hér stendur til að halda uppá afmælið með nokkrum vinkonum úr bekknum annað kvöld. Annars er lítið að frétta héðan, Þau eru enn í prófum börnin en Eiríkur klárar á morgun en Eva Margrét á þriðjudaginn.
Góða helgi

Guðrún Sigurgeirsdóttir

27.5.2009 kl. 10:30

Hamingjuóskir

Afmælisbörn dagsins og gærdagsins fá hamingjuóskir frá mér og elsku Hjörvar frændi til hamingju með stúdentsprófið þitt, hugsa sér eins og mér finnst stutt síðan þú fæddist :-)
Allt gott að frétta hjá okkur, Særún búin í sínum vorprófum og nánast býr í sundlauginni eftir skóla og veðrið leikur við okkur.
Vona að allir hafi það sem best
kveðja
Hanna

Jóhanna Marína

25.5.2009 kl. 20:19

Bestu þakkir fyrir hlýjar kveðjur til Hjörvars

og okkar stoltu foreldranna. Laugardagurinn var góður hjá okkur og við mjög ánægð og stolt með að Hjörvar hefur nú lokið framhaldsskóla. Hann fer nú í vikulokin upp í Mývatnssveit að vinna í Vogafjósi í sumar. Önnur framtíðaráform eru óljós. En sem sagt dagurinn var góður og takk fyrir góðar kveðjur.

Marína Sig.

24.5.2009 kl. 13:11

Hamingjuóskir

Innilegar hamingjuóskir með útskriftina þína Hjörvar,og óskum foreldrum hans til hamingju með strákinn.

kristín Aðalsteinsdóttir

24.5.2009 kl. 11:00

Hamingjuóskir til Hjörvars frænda míns og foreldra hans

Yngisleg leikhúsferð í gærkvöld við mæðgur fórum með Særúnu að sjá Söngvaseið aldeilis flott sýning og allir krakkarnir í leikritinu stóðu sig svo vel Get nú trúað því að hann frændi minn sé orðinn þreyttur en vonandi fer þessum suðburði að ljúka Dísa mín vonandi fer batinn að koma að meiri krafti til þín Nú er fjölskyldan í Alfheimunum að pakka sama og flytja á Reyðarfjörð verður hér hjá mér um tíma í sumar áður en endanlegur flutningur er búinn leijga ´´ibúðina frá 1 júni svo mamma verður að hýsa fólkið um tíma Annars allt gott héðan kveðja

Guðrún besta frænka

24.5.2009 kl. 9:08

Morgunn í maí

Sæl verið þið öll.
Nú hefur aftur heldur hlýnað og í gær síðdegis og fram á nótt rigndi talsvert svo nú grænkar þótt hitinn haldi sig innan 10°í þungbúnu veðri. Við Geiri fengum far með Friðriku og Hjördísi til Akureyrar um hádegisbil í gær. Stúdentar voru útskrifaðir frá Verkmenntaskólanum kl 10-12 í gær og þar á meðal var Hjörvar okkar og fjölskyldan hélt svolitla veislu af því tilefni í sal V.M. A. kl.13. Þetta var skemmtilegt , um 40 manns úr fjölskyldu, venslamanna og vinahópi , hamborgarar að hætti Hjörvars og kjötsúpa handa þeim sem ekki aðhyllast hamborgaramenninguna,ís, ávextir og dýrindis terta + kaffi og valadrykkir.Allir ánægðir og heim komum við um kl 16. Ásmundur var á vaktinni hjá okkur á meðan, en fór svo heim og kemur ekki meira nema eitthvað sérstakt komi til.
Engin ær hefur borið í 4 sólarhringa og fimm hanga ennþá óbornar en geta varla gert það mikið lengur. Ég bíð eftir úrskurði frá læknum hvað þeir vilja gera fyrir mig næst, en ég finn ekki mikla breytingu við töflur sem ég hefi verið að taka sl 3 vikur. Geiri er eftir öllum vonum, en er auðvitað þreyttur, búinn að gista í fjárhúsum hverja nótt í vel hálfan mánuð. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

23.5.2009 kl. 7:50

Vinna til kl16.30 leikhúsið´kl 20.00

Byrja á því að smyrja brauð og gera klart fyrir kaffi í dag í sambandi við hangavinnusýningu gamla fólksins og svo frágangur á eftir siðan ætlum við mæðgur að fara með Særúnu að sjá Söngvaseið í kvöld svo þetta verður bara góður dagur Smá rigning en milt og gott veður hafið góðan dag kæra frændfólk kveðja

Guðrún besta frænka

22.5.2009 kl. 11:53

Föstudagur

Góðan dag!
Hér skín nú sólin eins og er og er bara ágætt veður. Við fjölskyldan fórum í þessa líka fínu fjallgöngu í gær, en við fórum á annan tind Akrafjalls sem heitir Háihnjúkur og er 555 metrar á hæð. Samferðafólk okkar voru Lilja (systir Kidda) og hennar maður Skúli og dóttir þeirra Kristrún. Við vorum einstaklega heppin með veður og upp á toppnum var logn og sól og yndislegt veður. Gangan sjálf tók okkur 1 klst og 25 mín. en börnin voru reyndar 15 mínútum á undan okkur fullorðna fólkina á toppinn og blésu ekki úr nös :-). Við hin vorum meira í að njóta útsýnis og hækkuðum okkur aðeins hægar. Þetta var svo toppað með grillveislu hjá þeim á Skaganum eftir allt saman og sumri fóru meira að segja í pottinn. Í dag er starfsdagur hér í vinnunni og er ég að nýta hann í einkunnagjöf og ýmislegt sem tengist skólalokum. Vona að þið eigið góða helgi framundan og munið að njóta nærveru hvers annars.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

21.5.2009 kl. 16:26

Uppstigningardagur,

Fermingardagurinn minn en ég fermdist 19 maí á uppstigningardegi í dag var ég á fimleikasýningu hjá Særúnu Birtu og var sýningin hin glæsilegsta Verð að vinna alla helgina það er handavinnu sýning gamla fólksins hjá mér stórglæsileg sýning í vændum með kaffi og fíniríi Gott veður búið að vera hér í viku allir njóta veðurblíðunnar var bara að kvitta Kveðja

Guðrún besta frænka

20.5.2009 kl. 23:14

Bergný Klara

Nafnið þitt er skráð hjá pabba þínum í ættartalinu sjá tengilinn Jónas og Jakobína.
Þar er eftirfarandi skráð:
C.1.1. Kristján Sigurðsson, f. 22. júlí 1942. Byrjaði búskap á

Lundarbrekku , en flutti þaðan 1970-72 og hefur víða verið síðan.

K. 1. Ragnhild Hansen f. 19. apríl 1943.. ( Skilin )



C 1.1.1 Sigurður Kristjánsson f. 30. desember 1961 K 1. Sigríður Helga

Einarsdóttir f. 6. desember 1967 (Skilin)

C.1.1.1.1. Kristján Sigurðarson, f. 18. september 1987


C.1.1.1.2. Jón Haukur Sigurðsson f. 1. nóvember 1989

C.1.1.1.2.1. Bregný Klara Katrínardóttir f. 9. maí 2007 (Móðir: Katrín Ösp)

Siggi Hreinn

19.5.2009 kl. 15:16

Ég og tölvur eru ekki vinir í dag!

Góðan dag gott fólk, þá ætla ég nú loks að kvitta í góðu gestabókina okkar. Í dag er leiðinda dagur hér í vinnunni það var verið að uppfæra tölvukerfið hér í gærkvöld/nótt og allt í volli í morgun og ekkert gengur sem maður ætlar að gera og hefur getað gengið að í langan tíma þannig að það verður mikið gott þegar þessi vinnudagur klárast. Um síðustu helgi voru öll venjuleg helgarheimilisstörf lögð niður sökum veðurblíðu og á laugardagsmorguninn fórum við ásamt foreldurm og krökkum í leikskólanum í Heiðmörk og glilluðum pylsur og lékum okkur, síðan borðuðum við með fjölskyldunni í Skálaheiði um kvöldið og fylgdumst með söngvakeppninni. Á sunnudaginn drifum við okkur í fjallgöngu og fórum á Helgafell í Mosfellssveit en það er þá þriðja Helgafellið sem fjölskyldan arkar þetta árið :-)
Veðrið er búið að vera með eindæmum gott hér síðan á föstudag og alltaf er nú allt miklu skemmtilegra þá.
Vona að allir hafi það sem best og frændfólk og vinir sem eiga leið um Kópavog eru líka ávalt velkomin í Álfaheiðina, ekki amalegt að sötra svaladrykk á svölunum þessa dagana :-)
P.S. Malla þetta orð systkini er eitt af fáum :-) orðum sem ég skrifa stundum vitlaust eins og sjá má neðar í gestabókinni en stafsetning var nú mitt uppáhaldsfag í denn.....
kveðjur úr sumarsólarblíðunni
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

19.5.2009 kl. 9:46

Þið vitið auðvitað öll að systkini er skrifað svona

en ekki eins og ég skrifaði það áðan. Kv.

Marína Sig

19.5.2009 kl. 9:43

Gaman að sjá hve margir hafa skrifað hér í gær.

Og vonandi njótið þið sólar og hlýjinda á suðvesturhorninu meðan við höfum svalann andvarann og hressandi heimskautaloftið yfir okkur. Ég hjólaði í vinnuna í morgun í köldu stilltu veðri engin hitasvækja eða súrefnisskortur. Við nutum helgarinnar á Lundarbrekku, þar bíður gróðurinn í startholunum eftir því að hlýni en það var glaðasólskyni og fallegt veður á laugardaginn svo hitinn í eldhúsinu varð óbærilegur og flugurnar spruttu fram og nutu hitans og matarilmsins. Norðan svalinn tók svo við á sunnudag og er enn ríkjandi. En kyrrðin var ótrúleg og það heyrðist varla niður í fljótinu, aðeins gæsagarg og lóubí rufu þögnina og svo þrastarsöngur. Lóðin mín í Norðugötu kemur vel undan vetri og þar eru rifs- og sólberjarunnar orðnir allaufgaðir og stutt í fyrsta lóðarslátt. Pallurinn min er líka tilbúinn að taka á móti gestum og þar má alveg slá upp lummu-vöfflu- eða hvítvínspartí á góðum sumardögum ef gesti ber að garði. Semsagt kæru ættingjar og vinir hafið endilega samband ef þið eigið leið hjá og hver veit nema ég verði stödd heima og geti skellt á einu frænku eða frændsystkynaboði með litlum fyrirvara. Nú og ef norðansvalinn leifir ekki setu á sólpallinum bíð ég bara til stofu.
Njótið dagsins. Kærar kveðjur

Marína Sig.

18.5.2009 kl. 23:14

Velkomnar í félagsskapinn hér

Katrín Ösp og Bergný Klara til hamingju með nýliðið tveggja ára afmæli.Þau sem hafa lyklavöldin á síðunni, Siggi og Guðrún ættu hæglega að geta komið þér Bergný Klara inn í ættartöluna, er ekki Jón Haukur Sigurðsson pabbi þinn ? En þau þurfa að komast inn á barnland eftir meiri upplýsingum og þá þarf annað þeirra að fá aðgangsorðið í tölvupósti, netföngin þeirra eru hér lengst niðri til hægri Með kveðju frá meintum aldursforsets skriftaglaða fólksins hér

Hjördís Kristjándótir

18.5.2009 kl. 22:27

Sæll og blessuð

hæhæ ættmenni mín, við mamma höfum rosalega gaman af því að skoða þessa mögnuðu síðu og gaman að sjá hvað þetta er stór og skemtileg ætt sem maður er í.
við mundum sendilega vilja að það væri bætt nafninu mínu hjá pabba nafni í ættartalin ;) en við vildum bara kvitta fyrir innlitið og láta vita af okkur ;) kv Bergný Klara

Katrín Ösp og Bergný Klara

http://bergnyklara.barnaland.is/

18.5.2009 kl. 21:15

Hvílík veðurblíða

Sæl öll. Það er sjaldan sem mér finnst veðrið vera svona gott í Reykjavíkinni eins og það hefur verið síðustu daga. Við áttum yndislega helgi, fórum að veiða í Vífilsstaðavatni á laugardaginn og Atli litli veiddi silung og var alveg að springa úr monti og sagði öllum sem vildu heyra að pabbi hefði veitt pínulítinn fisk en hann stóran. Grilluðum svo og horfðum svo á Eurovision í rólegheitum hérna heima ásamt einum vini okkar. Í gær hófum við svo daginn í sundi, fórum þaðan í Húsdýragarðinn. Drengurinn var ekki búinn að fá nóg af útiverunni þannig að við fórum út á róló seinnipartinn og hann sofnaði svo alveg dauðuppgefinn í gærkvöldi. Svo var náttúrulega ólíft í vinnunni í dag vegna hita og súrefnisskorts eins og alltaf þegar hlýna fer og sólin skín. Húsnæðið ótrúlega illa hannað. Þannig að stefnan var tekin á róló eftir vinnu, þar hittumst við systur og Fanney Birta og Atli léku sér í blíðunni. Svo er stefnan tekin norður á miðvikudaginn. Vonandi verður farið að hlýna þá, var úti á svölum á stuttbuxunum að tala við mömmu í símann sem sagði að það væri 3ja stiga hiti hjá henni. Brrr...
kvitti kvitt Elma

Elma

18.5.2009 kl. 20:21

Þetta er fallegur dagur söng Bubbi Morthens

og hann er búin að vera fallegur í dag.Helgin yndisleg með smá veru úti en svo er nú mál með vexti að ég er með svo mikið frjóofnæmi að ég get ekki verið lengi úti í einu er með þvílikann skóg i kringum mig Aspirnar komnar með þvílíka blómanga sem eiga örugglega eftir að hálf drepa mig í fyrra var garðurinn hvítur af frjói og það var ekki skemmtilegt en er með lyf við þessu sem mér finnst ekki gera nóg gagn.En annars bara gott Var í heilmiklu sambandi í gær við Sigrúnu Ketilsdóttur á snjáldurskinnu Hún þurfti að vita heil ósköp um mig og endaði með því havað ég væri lík Marínu frænku á myndinni sem ég er með þar Ekki sko leiðum að kíkjast get ég sagt ykkur Gott að sauðburður gengur vel og veður fari að hlýna hjá ykkur Kveðja og kvitt

Guðrún besta frænka

18.5.2009 kl. 15:25

Þriðja tilraun

á jafnmörgum dögum eð tjá sig hér í gestabók. Í gær hafði símasambandið rofnað á meðan ég var að skrifa og allt datt út og í fyrradag varð ég fyrir einhverri truflun og
allt fór sömuleiðis. En hér hefur ekki verið neitt stutterma bola veður. norðan gola kalt og þurrt frá um 0-6°hiti og í gærkvöldi og í dag svolítil úrkoma , ekki samt grátt nema í fjöll.Þau komu Malla , Jói og eldri strákarnir á föstudagskvöld og fóru í gær nema Hjörvar sem var hér þar til áðan. Hann skutlaði mér í morgun í Fosshól og Malla kom og fór með mig til Húsavíkur þar sem hengt var á mig einskonar "senditæki" sem skoðar hjartsláttinn í sólarhring.
Svo fóru þau heim um tvöleytið. Það var heilmargt búið að gera m. a. hreinsa til í garðinum og "höggva skóg." Ásmundur var hér tvo daga í síðustu viku og kom aftur í morgun, er að gera við girðingar. Ekki nema 6 ær óbornar og styttist í að láta einhverjar lambær út. Sendum kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir

18.5.2009 kl. 8:47

Sól sól skín á mig

Góðan dag!
Þessi helgi á enda og stutt vinnuvika hafin. Við gerðum heilmargt þessa helgina, tókum til í kringum okkur og fórum nokkar ferðir í Sorpu :-), fellihýsinu var tjaldað og undirbúið fyrir sumarið. Einnig vorum við með Eurovision-partí með Hönnu, Palla og krökkunum og áttum saman mjög skemmtilegt kvöld. Allir hafa fengið smá lit um helgina og eru farnir að verða útiteknir. Hjá mér persónulega fjölgaði freknunum heilmikið og gott var fá smá sól í kroppinn :-).

Guðrún Sigurgeirsdóttir

17.5.2009 kl. 12:50

Yndislegt veður hér í dag

og allir úti að njóta blíðunnar Það ætla ég líka að gera Alveg stóð hún sig frábærlega hún Jóhanna Guðrún í gærkvöld ekki átti ég von ´því að við lentum í 2 sæti enda stendur mikið til hér í dag en ég nenni ekki að fara niður á Austurvöll það verða alveg nógu margir til að fagna henni og föuneyti. Vonandi gengur sauðburður vel hjá ykkur kæra frændfólk og veðrið leiki við ykkur Sumar kveðja

Guðrún besta frænka

15.5.2009 kl. 19:36

Föstudagur og aftur komin helgi

Við tengdamæðgurnar fórum eftir vinnu í dag í Kringluna ég þurfti að sækja nýju gleraugun mín og við skelltum okkur á kaffihús og fengum okkur laxasalad og settumst út í sólina þvílík bongoblíða í Reykjavík í dag þetta var ljúf stund.Eigið góða helgi kæra frændfólk og vinir

Guðrún besta frænka

13.5.2009 kl. 8:36

Vorblíða

hér í morgun. Síðustu tvo daga hefur veið full kvasst til að gott sé að vera úti. Gróðurinn er fljótur að tka við sér og græn slíkja að færast yfir lóðir og runna.
Vinnuvikan að verða hálfnuð og stutt í næstu helgi sem við Jói ætlum að eyða á Lundarbrekku en Sævar okkar stefnir á að fara í æfingarferð með 5.fl. Þórs suður á höfuðborgarsvæðið. Þetta verður fyrsta ferðin hans án foreldranna en einhverntíman verður allt fyrst.
Hjörvar hefur nú lokið framhaldsskóla og brautskráist sem stúdent 23. maí n.k. Þessa dagana er hann að njóta þess að vera búinn og veit ekki alveg hvernig hann á að vera. Ásgeir fer aftur í fyrsta prófið í MA þann 22. maí og er í prófum til 5. júní. Báðir hafa þeir fengið vilyrði um sumarvinnu svo við erum nú harla ánægð með það.
Bestu kveðjur Malla

Marína Sig

12.5.2009 kl. 20:06

Skipt um veðurfar

Sæl og blessuð öll saman.
Það er skammt öfganna á milli í veðrinu hér. Norðan blindbylur fyrir fáum dögum, suðvestan vindar og í dag sólskin og hiti fór í 13° hita og snjórinn bókstaflega gufar upp fyrir augunum á manni. Bæjarlækurinn orðinn að mórauðri elfu og Skjálfandafljót að belgjast út með kvöldinu. Sauðburður fer að nálgast að verða hálfnaður en gott hefði nú verið að vera ögn yngri og frískari.En við því verður nú ekki gert . Annars tosast þetta áfram og hlýindin bæta nú ástandið mikið. Sendum bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

11.5.2009 kl. 13:56

Góð helgi búin

Góðan dag kæru vinir fjölskyldan hér átti bara góða helgi,Tengdó horfði með okkur á sjónvarpið á föstudagskvöldið,fjölskyldan fór í sund á laugardagsmorguninn eftir hádegið fór Aldís í afmæli og við gömlu hjúin notuðum tækifærið og fórum út að labba.
Í gær fór Jónas með blóm til mömmu sinnar og bauð henni með til Ólafsfjarðar að heimsækja mömmu og pabba og held ég að hún hafi bara haft gaman af því,svo eldaði húsbóndinn kjúklingarétt um kvöldið og Alli og tengdó voru í mat.Það var ekki að spyrja rétturinn var æææðððislegur hjá Jónasi mínum.

kveðja kristín.

kristín Aðalsteinsdóttir

10.5.2009 kl. 12:00

Róleg helgi!

Góðan dag, allt gott að frétta hjá okkur.
Maður er bara búinn að vera latur þessa helgi enda var síðasta helgi mjög annasöm og reyndar vinnuvikan sem á eftir koma þannig að afslöppunin var kærkomin. Palli og börnin byrjuðu daginn á því að ná í bakkelsi úr bakaríinu í tilefni mæðradagsins :)
Ekkert er nú á dagsskránni í dag nema að ég ætla að skella mér á tónleika kl. 16 í Kópavogskirkju en þar syngur Karlakór Kópavogs ásamt Snorra Wium sem ég hef mikið uppáhald á :)
Veðrið er ágætt, hefur rignt í nótt en þurrt og skýjað eins og er, ég vona að veðrið fari að lagast norðan heiða og einnig sendum við strauma og styrk um batnandi heilsu til þín Dísa mín frá okkur í Álfaheiðinni.
kvitt og kveðjur
Hanna

Jóhanna M. Bald.

10.5.2009 kl. 10:59

Mæðradagurinn

til hamingju með daginn allar mæður Rigning í Reykjavík en milt og hlýtt gott fyrir gróðurinn Vonandi stenst spáin fyrir ykkur á norðurlandinu og það fari að hlýna ég er bara að hugsa til ykkar sem standið í sauðburði og þurfið að koma lambám út alltaf hugsa ég um sveitina á þessum tíma yndislegur tímiGott í bili Kveðja og kvitt

Guðrún besta frænka

9.5.2009 kl. 7:39

Birrrrrrr skíta kuldi

en sólin er að reyna að skína á okkur hér Elsku Dísa gott að þú skulir vera komin heim vonandi líður þér vel og tekur því rólega við hlustun á diskum og útvarpi og tekur kanski aðeins í prjónana Allt gott héðan ég var bara að kvitta Kveðja

Guðrún besta frænka

8.5.2009 kl. 20:21

Langt síðan ég hef skrifað hér

engu um að kenna öðru en almennu andleysi og fréttaleysi. Við höfum það gott hér í Norðurgötunni með okkar vorannríki sem byggist á annarlokum , námsmati og þrifum og frágangi í skólunum okkar Jóa.
Ætluðum að skreppa austur í Lundarbrekku seinni partinn en því var aflýst vegna veðurs. Vonandi er stutt í betri tíð með blóm í haga.
Bestu óskir inn í helgina. Malla

Marína Sig.

8.5.2009 kl. 7:35

Hríðarbylur

var að skella yfir núna í morgun, 0,2 °í mínus, snjór á jörð og rennir í skafla, en líklega er autt á vegi a. m. k. þegar kemur norður undir Fosshól. Úrkomulaust að mestu í nótt, en það var sjókoma í gær með köflum og alhvítt frá því í fyrrinótt.Vonandi stenst veðurspáin fyrir mánud., þriðjud. og miðvikud. en þá á að
hlýna verulega. Fædd 3 lömb hjá 2 ám. Annars allt í þokkalegu standi. Ég er ekki til neinna stórræða og reyndar er það ekki neitt nýtt , en líður nokkuð vel ef ég er nógu sérhlífin.Það er þó betra að hafa mig í eldhúsi og í húsinu yfirleitt heldur en ekki. Elsku nöfnur, Rúna mín og "besta frænka" þakka ykkur hlýjar kveðjur, einnig þér Kristín mín.Með kærum kveðjum. Dísa

Hjördís Kristjánsdóttir.

7.5.2009 kl. 22:50

Best að kvitta

Sæl öll
Ég sé að það er best að kvitta fyrir komuna hingað :-) Segi það sama og þær Guðrúnarnar frænkur mínar að hér í Glaðheimum gengur allt sinn vanagang, skítakuldi samt. Við eyddum síðustu helgi í sumarbústað í Úthlíð þar sem við fengum öll möguleg sýnishorn af veðri sem til eru á Íslandi held ég. En áttum mjög notalega helgi. Það var vorhátíð á leikskólanum hans Atla í dag, opið hús fyrir foreldra milli 15 og 16 og svo hoppukastalar og grillaðar pylsur á eftir. Svo komu tvær æskuvinkonur mínar í kvöldmat til mín og við erum búnar að eiga notalega kvöldstund. Kvitt og góða nótt. Elma

Elma Atladóttir

7.5.2009 kl. 18:32

Ég var nú ekki.......

að beina orðum mínum til þín eða annarra sem skrifa hér reglulega, Guðrún mín... enda stendur þú þig best í kvittinu hér.
En ég hefði gjarnan vilja að fleiri kvittuðu hér því það eru svo margir að skoða síðuna daglega :-).
Kveðja úr Kópavoginu

Guðrún Sigurgeirsdóttir

7.5.2009 kl. 16:30

Ég mótmæli því Guðrún næst besta frænka

að það sé ritstífla ég hef verið ansi dugleg að kvitta hér undanfarið Af mér og mínum er allt gott að frétta en það vantar sumarið á þetta sker Vona að þú náir þér fljótlega elsku Dísa mín Kveðja

Guðrún besta frænka

7.5.2009 kl. 14:03

Fimmtudagsspjallið!

Ákvað að setja hér inn nokkrar línur.. þar sem einhver ritstýfla virðist vera hér hjá okkur. En það er nú ekki alltaf hægt að vera í stuði til að skrifa eitthvað gáfulegt og svo geta menn haft mismunandi skoðanir á því hvað er gáfulegt. Lífið hjá mér og mínum gengur sinn vana gang og við bíðum eins og sennilega fleiri eftir að það hlýni. Þó við vöknum nú ekki í snjó á hvernum morgni eins og þið í Bárðardalnum þá finnst okkur vanta nokkrar gráður uppá að hitastigið sér ásættanlegt. Sólin skein hér í gær og fór ég í tvo langa göngutúra og náði að sólbrenna en var jökulkalt, með vetlinga og húfu! Ég vona mamma að batinn komi rólega hjá þér en einhversstaðar stendur að "góðir hlutir gerist hægt" og við trúum því. Krakkarnir mínir eru ekk byrjuð í neinum prófum en þau fara að skella á uppúr miðjum maí.
Vona að þið eigið góða helgi framundan.... og endilega kvittið í gestabókina þegar þið kíkið á síðuna.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

5.5.2009 kl. 17:07

Hjartans þakkir fyrir hlýju kveðjurnar og straumana

Ég kom heim í dag eftir að hafa verið á Sjúkrahúsinu á Húsavík frá því sl fimmtudag. Það er verið að koma einhverju skikki á hjartsláttinn hjá mér sem ég hafði ekki hugmynd um sjálf að væri í meira lagi "óreglulegur" Þetta er á réttri leið en eftir að fylgjast með og skoða aftur. Fer nú að leggja mig . Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

4.5.2009 kl. 11:19

Mánudagur

Góðan dag!
Helginni var eytt norðan heiða eða á handboltamóti á Akureyri og verið á Hótel Möllu&Jóa og þökkum við kærlega fyrir okkur. Eva Margrét og hennar liðsfélagar urðu Íslandsmeistarar í B liðum í 6. flokki. Virkilega skemmtilegt!
Af mömmu er það að frétta að hún er á sjúkrahúsinu á Húsavík og er verið að finna út úr hennar veikindum og stilla inn lyf við þeim. Hún á von á að fara heim núna í vikunni ef allt fer eins og á horfir og vonum við að það gangi eftir. Elsku mamma við sendum þér batakveðjur og vonum að þér líði sem best og fáir bót á þessu.
Eigið góða HEILA vinnuviku!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

2.5.2009 kl. 15:01

Sendi hlýja strauma

til þín Dísa mín og von um skjótann bata Einnig hugsa ég hlýtt til gamla frænda á Lundarbrekku hann á skilið að fá styrktarkveðjur frá okkur öllum

Guðrún besta frænka

2.5.2009 kl. 12:44

Batakveðjur

Elsku Dísa leiðinlegt að heyra um veikindi þín,við sendum þér bara góða kveðjur um skjótan bata.

Kv. Kristín og fjölsk.

kristín Aðalsteinsdóttir

2.5.2009 kl. 1:07

Og eitthvað aðeins meir........

Sælt veri fókið, það hefur nú mikið til verið sama fólkið sem kvittar hér fyrir innlit á síðuna og duglegastar eru "besta frænka" og Dísa og Guðrún ekki það að það sé samkeppni í gangi, en alltaf gaman að sjá þegar menn kvitta og segja fréttir af sér og sínum..........
Særún mín er fyrir norðan í hanboltakeppnisferð og Eva Margrét líka og einni fóru Guðrún og Kiddi. Ég talaði við mömmu í kvöld og hún sagði mér að Dísa á Lundarbrekku væri lasin og komin á sjúkrahúsið á Húsavík ég sendi henni styrk og óskir um skjótan bata.
Annars bara söngur þessa helgi hjá mér......
Eigið góða helgi
Góða nótt
bk. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

1.5.2009 kl. 23:38

Hér kemur eitthvað

Héðan er allt gott að frétta húsmóðirin útskrifaðist af Kristnesi í gær og fljótlega tekur bara við sjúkraþjálfun á Bjargi eitthvað fram á sumarið.Ég fór strax og hitti kennslustjórann minn í vma og ræddum við um skólann fyrir haustið,ég ákvað að vera pínu skynsöm(einu sinni) og vera fram að áramótum í 12 einingum en fullur skóli eru 18-19 einingar.Vonandi gengur þetta upp Ég fór í kvöld að hitta allar stelpurnar sem voru með mér í hjúkrun síðasta haust við hittumst heima hjá einni rosalega var gaman að sjá þær aftur og fá að knúsa þær :) þar sem ég hafði ekki séð neina af þeim síðan í Desember ekki einu sinni rekist á þær úti í búð.Jæja Guðrún besta frænka er ég ekki búin að standa mig vel :) núna er ég að fara leggja mig hafið það öll sem allra best.

Kveðja kristín

kristín Aðalsteinsdóttir

1.5.2009 kl. 15:45

Jæja ekki fer nú mikið fyrir skrifum hér

núna Allir lagstir í dvala eða hvað. Sumarveður hjá mér núna ekta gróðrarveður rignig og hlýtt enda trén á fullu við að springa út. Var bara að láta vita af mér aðeins Langar til að frétta af ykkur frændfólk og vinir lifið heil

Guðrún besta frænka

29.4.2009 kl. 9:45

Haustlegt í Kópavoginum í dag!

Góðan dag kæru lesendur og gleðilegt sumar allir, þar sem ég hef ekki skrifað hér inn síðan sumarið kom á dagatalinu. Það hefur verið mikið að gera hjá mér það sem af er sumri :) eða þannig en um síðustu helgi fór ég með kórnum mínum í æfingabúðir í Reykholt og þar héldum við líka tónleika í Reykholtskirkju, þetta var í alla staði mjög vel lukkuð ferð og góða blanda af vinnu og skemmtun. Næsta sunnudag eru svo vortónleikar sveitarinnar þannig að við verðum komnar snemma í sumarfrí. Særún mín er að fara ásamt HK stelpunum í keppnisferð til Akureyrar um næstu helgi og þar sem þetta lendir á sömu helgi og tónleikarnir get ég ekki farið með en hefði nú verið til í að vera fararstjóri þar sem farið er norður en það verður bara næst.
Ari er búinn að fara í heimsókn í Hjallaskóla með leikskólanum og bíður spenntur eftir að byrja í skóla í haust, hann hættir í leikskólanum 17 júlí og þá verðum við í fríi þar til skólinn byrjar. Í dag er hálfgerður föstudagur hjá mér þar sem ég þarf að taka mér frí á morgun vegna skipulagsdags í leikskólanum og frídagur á sjálfan föstudaginn. Það verður gott þegar hann verður kominn í skóla og systkynin verða þá í fríi sömu daga.
Vona að þið hafið það öll sem best
kv. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

29.4.2009 kl. 7:47

Miðviludagur

Bjartur og fagur en heldur mikið rok. Allt farið að grænka og trén að springa út yndislegt að sjá þetta Nú er ég að fara í skemmtilega tómstundastarfið mitt nýt þess í botn. Eigið góðan dag kæra frændfókl Kveðja kvitt

Guðrún besta frænka

26.4.2009 kl. 20:21

Jæja kosningar afstaðnar

og ég er bara ánægð með niðurstöðurnar Var að koma heim frá vinnu við fermingarveislu var a í 8 tíma þar Aldrei í lifinu séð annað eins af mat og heill grillaður grís var borinn ínn í eldhús og kláraðist næstum eins og allur þessi matur líka Annars allt gótt héðan lifið heil kvitt

Guðrún besta frænka

25.4.2009 kl. 21:49

Kosningar

Góða kvöldið.
Glaðheimafólkið og Ragna systir mættu snemma á kjörstað og svo fórum við systur inn í Hafnarfjörð að aðstoða systurdóttur mömmu við fermingarundirbúning og vorum þar eiginlega í allan dag við undirbúning. Hlakka bara til að fara í veisluna á morgun. Fórum svo í Glaðheimana og grilluðum þetta indælis "rollukjöt" að norðan sem var alveg hreint ótrúlega gott. Þær mæðgur Fanney og Ragna farnar heim (eldri börnin í útlöndum hjá pabba sínum), prinsinn sofnaður og húsbóndinn farinn í kosningapartý ... ég og rauðvínsglasið fyrir framan sjónvarpið. Góða skemmtun í nótt, vonandi kusu allir rétt. Veit að Siggi Hreinn gerði það :-)
kv. Elma

Elma

24.4.2009 kl. 20:32

Jæja þá eru það kosningar

rétt eina ferðina Ætli ég reyni ekki að fara ´a kjörstað annars verð ég að vinna við fermingarveislu og byrja annað kvöld við að stilla upp salnum og svo fermingarveislan sjálf á sunnudag Salurinn á vinnustaðnum mínum er leigður út og ef talan fer yfir 70 manns fylgir kona með mér skilst að þetta verði 80-90 manna matarveisla í hádeginu Við skiptumst á að vera í veislunum annar allt gott h´ðan allt snýst hér um kosningar Vinstri grænir komu í kaffitímanum í dag að reyna að kristna gamla fólkið ekki veit ég hver árangurinn var, Munið nú að kjósa rétt Kveðja kvitt

Guðrún besta frænka

23.4.2009 kl. 18:54

Fallega hugsað

Kristín mín ,ég skilaði þessu til Geira og hann sagðist ekki geta lagt það á sig að sjá þessa helv. bölv. vitleysu aftur :) En- góða skemmtun í kvöld.

Dísa

23.4.2009 kl. 16:27

Gleðilegt sumar.

Takk fyrir skemmtileg skrif hér í vetur,vonandi byrjaði sumarið bara vel hjá ykkur öllum.Húsbóndinn á bænum er í sundi með dömuna og svo eigum við von á mömmu,pabba og Systur minni í mat í kvöld.En ég er að fara með þeim í leikhús á (Fúlar á móti) í kvöld :) Dísa ég gæti reddað miða fyrir Geira ef hann endilega vill sjá þetta aftur :)

Bestu kveðjur kristín

kristín Aðalsteinsdóttir

23.4.2009 kl. 12:00

Gleðilegt sumar

Óska ykkur öllum sem hér komið gleðilegs sumars og þakka skemmtileg skrif hér í vetur.

Jón Árni

23.4.2009 kl. 8:52

Gleðilegt sumar

Sæl öll kæru ættingjar og aðrir lesendur síðunnar og gleðilegt sumar. Bjart og fallegt veður í Reykjavík, ekki eins og rokið og rigningin í gær. Atli litli með einhverja hitavellu og hósta, þannig að við verðum inni við í dag. Ég var eins og ég nefndi í síðustu færslu á Eskifirði um síðustu helgi og það var alveg rosalega gaman, tónleikarnir gengu mjög vel og við fengum mjög góðar móttökur á ferðaþjónustunni á Mjóeyri. Mæli með þeim stað ef menn vantar gistingu á Eskifirði. Svo smelltum við okkur á tónleika Karlakórs Reykjavíkur í gærkvöldi í boði eins vinar míns sem þar syngur og þeir voru alveg í fantaformi karlarnir. Annars bara allt við það sama. Kvitt. Elma

Elma

23.4.2009 kl. 7:26

Sumardagurinn fyrsti

Gleðilegt sumar segi ég líka við ykkur öll. Langur og leiðinlegur vetur að baki, bæði í veðurfari hér um slóðir og svo í mannlífinu og pólitíkinni . Vonum að sumarið færi öllum betri og bjartari tíð. Þakka ykkur öllum fyrir veturinn, bæði þeim sem hafa tjáð sig hér á síðunn og öðrum. Ég á von á fyrstu sumargestunum um kl 10 árdegis.Það er áralöng venja að þeir koma hér á sumardaginn fyrsta og fara í fjárhús hjá Geira , Siggi Atla, Vaggi í Hriflu og Tolli í Landamótsseli. Fraus hér að nafninu til, en sólin kom upp skýlausum himni kl 6.52 eða svo. Lítur út fyrir gott veður í dag. Með sumarkveðju

Hjördís Kristjánsdóttir

23.4.2009 kl. 7:15

Sumardagurinn fyrsti

GLEÐILEGT SUMAR allir ættingjar og vinir og takk fyrir öll skemmtilegu skrifin hér í vetur og auðvitað höldum við áfram þeim samskiptum. h'er var héla á jörð í morgun kl 6 Bjart og gott veður eins og er en eitthvað var hann að spá úrkomu hér í dag Hafið það gott í dag Kveðja kvitt

Guðrún besta frænka

23.4.2009 kl. 7:11

GLEÐILEGT SUMAR OG TAKK FYRIR VETURINN

Bjartur og kaldur morgunn hér í Kópavogi á Sumardaginn fyrsta. Það fraus allavega saman hér!! Fljúgandi hálka á götum og gangstéttum, en við Eiríkur er komin heil heim eftir að hafa borið út Moggann í hverfinu okkar. Ég vil nota tækifærið og þakka ykkur öllum fyrir ykkar framlag hér á síðunni í vetur og vona að þið eigið gott sumar framundan.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

22.4.2009 kl. 19:27

Snillingurinn hann Agnar

Mikið var hann flottur hann Agnar litli frændi minn í sjónvarpinu áðan svo ófeiminn og flottur Hér er búið að vera risjótt veður í dag en er að birta til og fuglarnir mínir syngja hátt og snjallt í trjánum og trén byrjuð að laufga sig Ég held bara að það sé að koma sumar Lifið heil kvitt

Guðrún besta frænka

20.4.2009 kl. 22:32

Yndislegri Karlakóra veislu lokið

Fór í gær á tónleika hjá Karlakórnum Þrestir alveg himneskir tónleikar og svo var ég að kóma frá tónleikum Karlakórs Reykjavíkur og ekki voru þeir síðri Diddú söng með Þröstunum en Bergþór Pálsson Með Karlakór Reykjavíkur maður lifir á þessum tónleikum langt fram á sumar svo yndislegir voru þeir Risjótt veður í borginni í dag rok og rigning en nú er komið logn og uppstytta Nonni stendur í ströngu á sjónum eltir skútu og er á leið með hana til hafnar gott að þeir náðust þessir eitulyfja smiglarar þetta er orðið uggvænlegt ástand hér á landi þessi eiturlyf Hafið það gott kveðja kvitt

Guðrún besta frænka

19.4.2009 kl. 13:45

Vorið að nálgast?

Nú er kominn þrastasöngur í garðinn hjá mér og ég heyrði í stelknum í gær en lóan hefur enn ekki látið sjá sig hjá okkur en ég hef frétt af henni í kringum okkur. 'Alftirnar komnar og ógrynni af gæs.Hægviðrið og hiti 5-6°mest yfir daginn er nú ekki stórvirk bræðing á snjóinn en það eru komnir auðir dílar handa fuglunum að tylla sér á.Kvenfélagið bauð okkur félögum og við máttum bjóða sjálfar með okkur að sjá "Fúlar á móti" á Akureyri á föstudagskvöldið síðasta. 'Eg bauð Geira , en hann hafði nú lítið gaman af, ég sagði honum að þetta væri reynsluheimur kvenna og hann er greinilega ennþá ekki orðinn vel að sér í honum "gamall maðurinn" Hitt er svo annað mál að mér sýnast einkennin sem eiga að tilheyra konum á breytingaskeiði geti vel dúkkað upp á fleiri aldursskeiðum og jafnvel hjá körlum líka. Uss-uss.Ég skemmti mér vel.Sá Kristínu og Jónas og fullt af fólki sem við þekktum sem vænta mátti. Ása systir heimsótti mig á föstudaginn og fékk far til baka með leikhúsbíl og við höfðum skemmtilegan dag.Geiri komst hins vegar á dorg á Kálfborgarárvatni fyrr í vikunni og það var hámarkssæla fyrir hann, unaðslegt veður og aðeins veiði til að sjóða silung og silungssúpu., sem er alveg það sem tilheyrir.Óli bóndi er að skána, fór í prestshlutverkið í Kvennaskólaævintýrinu á föstudagskvöldið og svo er aftur sýning í kvöld og ætlunin að sýna eftir viku, hvað svo sem verður meira.Hafið það gott í bráð og lengd.

Hjördís Kristjánsdóttir

19.4.2009 kl. 10:54

Nú skal sko taka á menningunni

í dag fer ég til Hafnarfjarðar í Víðistaðakirkju að hlusta á karlakórinn Þresti þeirra vortónleikar eru í dag og svo annað kvöld mánudag þá er það Karlakór Reykjavíkur í Langholtskirkju Vinur okkar Árna er styrktarfélagi þessara tveggja kóra og hann býður mér alltaf með sér á vortónleikana bara gaman sko Annars er allt tíðindalaust héðan lifið heil kveðja kvitt

Guðrún besta frænka

19.4.2009 kl. 10:40

Sunnudagsmorgunn

Ég segi góðan dag! Hér er dálítið hvasst og rigningarslettingur... eða segir maður það ekki? Helgin hefur verið róleg hér, fengum góða gesti í gær frá Akureyri og nutum þess að spjalla, borða saman og horfa á söngkeppni framhaldsskólanna. Menn voru nú ekki alveg sáttir við úrslitin en það er ábyggilegt að menn hafa misjafnan smekk.
Eva Margrét er farin til vinkonu sinnar núna og stendur til hjá þeim að fara á enn einn handboltaleikinn í dag en handboltinn er hennar áhugamál af lífi og sál. Það er gaman að fá að kynnast þessum íþróttum öllum gegnum börnin sín en hér hefur fótboltinn verið alls ráðandi þangað til hún fór að æfa handbolta fyrir tæpum tveimur árum.
Ég vona svo að þið eigið góðan sunnudag og ég hlakka til vinnuvikunnar sem er sú síðasta á þessum vetri því að á fimmtudaginn er Sumardagurinn fyrsti!!!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

18.4.2009 kl. 10:20

Leikhúsferð

Góðan dag gott fólk,hjá okkur er allt gott að frétta fyrir utan smá hálsbólgu og slappleika hjá heimasætunni og valdi hún veðrið til þess að vera lasin :( í gærkveldi skruppum við hjónin í leikhús að sjá (fúlar á móti) en vinnufélagar jónasar fóru.Ég reyndi að fara með jákvæðu hugarfari þar sem einmitt þessar konur þó aðalega Björk,og Helga braga hafa alltaf farið pínu í sparitaugarnar hjá mér en ég skemmti mér bara mjög vel þær fara alveg á kostum.Svo var svo gaman að hitta fullt af fólki sem maður þekkir bæði ólafsfirðingar og svo hittum við Dísu og Geira og fleiri bárðdælinga sem við spjölluðum við. dagurinn í dag verður þannig að við hjónin förum út til skyptis að labba enda veðurblíða hér norðan heiða.

Góða helgi kristín.

kristín Aðalsteinsdóttir

18.4.2009 kl. 8:00

Þá er komin helgi

og ætla ég að njóta hennar vel. Fer í dag með gönguklúbbnum mínum í göngu og svo förum við eitthvað að fá okkur kaffi á eftir alltaf jafn skemmtilegt.Skýjað veður en yndælt hlýtt og gott til útivistar Annars allt gott af þessum bæ Eigið góða helgi Kveðja kvitt

Guðrún besta frænka

16.4.2009 kl. 11:26

Fallegur dagur í Kópavogi

Góðan dag gott fólk, þá er maður nú aftur kominn í vinnugírinn eftir gott páskafrí. Við áttum gott frí fórum í Stykkishólm og heimsóttum Moniku vinkonu mína og fjölskyldu en það var ansi kalt á nesinu en fallegt veður við fórum í gönguferðir og nutum gestrisni þeirra og auðvitað borðuðum þvílíkt góðan mat eins og tilheyrir. Við komum heim á laugardagskvöld og fengum svo Jón Stefán og fjölskyldu í morgunkaffi á páskadagsmorgun áður en þau lögðu í hann norður.
Nú styttist í söngferðalag og vortónleika hjá Léttsveitinni þannig að nú bætist við æfingar og mikið fjör framundan. Við förum í söngferðalag í Reykholt um kosningahelgina og svo verða einir vortónleikar í Háskólabíói 3. maí.
Læt þetta nægja að sinni
hafið það sem best
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

15.4.2009 kl. 22:14

Páskar og fleira

Góða kvöldið. Best að kvitta fyrir innlitið og tjá sig eitthvað. Við Glaðheimafjölskyldan áttum yndislegt páskafrí á Ingjaldsstöðum og gistum svo eina nótt á Húsavík hjá bróður hans Þráins og fjölskyldu og fórum á alveg frábærlega skemmtilega tónleika á laugardagskvöldið með Ljótu hálfvitunum á Hótel Húsavík. Vorum annars bara í rólegheitum á Ingjaldsstöðum og fórum í messu í Þorgeirskirkju á páskadag. Atli litli naut sín í botn úti í snjónum og í fjárhúsunum þar sem hann "hjálpaði" Sigga frænda sínum að gefa og sópa, fékk að fara nokkrar ferðir á snjósleðanum og á fjórhjól og skemmti sér alveg hreint konunglega og við þurftum að draga hann grátandi inn í bílinn í gær þegar við vorum að leggja af stað til Reykjavíkur af því að afi og Siggi voru að moka undan kálfunum í hlöðunni og það fannst honum mjög spennandi og var mættur með skófluna sína til aðstoðar. Annars er það bara vinnan framundan. Ég verð reyndar á Eskifirði um næstu helgi að aðstoða Kára Þormar vin minn og Kór Fjarðabyggðar ásamt nokkrum fleirum héðan úr Reykjavík við flutning á Carmina Burana. Það verður gaman að syngja aftur í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði.
Bestu kveðjur úr góða veðrinu í Reykjavík. Vona að vorið fari að láta á sér kræla á Norðurlandinu.
Elma

Elma

14.4.2009 kl. 15:40

Sæl verið þið öll

Þá erum við komin í símasamband og netsamband aftur eftir nærri viku fjarveru. Þrátt fyrir að við erum bæði með gsm síma þá er það dálítið skrítið að heimasíminn gefi ekki frá sér hljóð svo lengi en það kom ekki að sök. Rúna, Kiddi ,Eiríkur og Eva Margrét. Hjartans þakkir fyrir heimsóknina og samveruna þessa daga, það var yndislegt að hafa ykkur.Við fórum í hádegismat á Bjarnarstöðum á páskadag ,þá voru systkinin öll heima, auk þeirra Elva og litlu bræðurnir, Þórlaugur og Óli Skagfjörð, Svala, og svo stóru bræðurnir Jóhann Ari og Ásgeir. Geiri , sá eldri var lasinn og fór heim á undan mér , en er nú farinn að frískast.Óli bóndi á Bjarnarstöðum er ennþá veikur .Það eru að verða 10 dagar sem hann hefur verið veikur en fékk loks fúkkalyf í gær en bati ekki kominn ennþá. Hjördís var heima allt páskafríið en fór í gær, en Anna Sæunn kom aftur þegar hún fór og verður í dag og á morgun. Vonandi fer þá ástandið að skána. Okkar páskamessa var í gærkvöldi hér í Lundarbrekkukirkju kl 20. Fyrsta messa hér hjá séra Bolla Pétri og var ekki langdregin og gaman var nú að heyra svona fallega tónað. Konan hans , Sunna Dóra Möller kom með honum og þau eru bæði einkar viðfeldin. Veðurfar hefur ekki breyst við páskana , helst að það er þó ofan við frostmarkið á hitamælinum í dag , svo blindað að allt liggur saman , himinn og jörð , eins og lengst af í vetur. Vona að að allir hafi átt góða páska Með bestu kveðjum.

Hjördís Kristjánsdóttir

13.4.2009 kl. 20:08

Orlandofarar komnir heim

Sæl öll kæra frændfólk og vonandi hafið þið átt góða fjölskyldudagaum páska og bænadaga Mín fjölskylda að Hjörvari undanskyldum lögðum land undir fót og fórum ásamt Jóni Stefáni og fjölskyldu til Orlandó á Flórída þann 31. mars s.l. og komum til baka á páskadagsmorgun. Þetta var ævintýraferð. Ekkert okkar hafði farið vestur yfir haf áður og allt nýtt og framandi. Við bjuggum á góðu íbúðahóteli með öll þægindi og nutum afþreyingar sem svo mjög er þekkt á þessu svæði. Fórum í þrjá Disney-garða og tvo aðra garða, sáum Arabasýningu þar sem sýndar eru listir á hestum. Heimsóttum verslunarmiðstöðvar, fórum á góða veitingastaði og sv.fr. og sv. fr. Sem sagt vel heppnað í alla staði. Veðurfarið er ansi ólíkt því sem við búum við en þarna vorum við í um 30°C hita dag eftir dag. Bestu kveðjur til ykkar allra og vonandi verur vinnuvikan góð og bráðum vor í lofti á okkar góða landi. Kveðja Malla

Marína Sig

13.4.2009 kl. 12:23

Annar í páskum

runnin upp og gott frí á enda Fallegt veður í höfuðborginni alla páskana Gönguferðir súkkulaðiát og góður matur . Nú verður bara þverskorin ýsa í matinn á morgun og einhverskonar fiskur næstu viku.Alveg á hreynu, Allt mitt fólk væntanlegt til síns heima á morgun Leitt að heyra um sambandsleysið hjá ykkur Dísa mín vonandi kemst það fljótlega í lag Eigið góðann dag kæra frændfólk og vinir Lifið hei, kvitt

Guðrún´besta frænka

12.4.2009 kl. 7:03

Gleðilega páska

Sæl öll og gleðilega páska á Páskadagsmorgun. Við fjölskyldan komum heim í gærkvöldi eftir vel heppnaða norðurferð. En mamma og pabbi eru bæði símasambands og netlaus núna þessa hátíðsidaga og þess vegna "heyrist" lítið í þeim hér. En það kemst nú vonandi í lag strax eftir páska. Þau hafa bæði gsm síma þannig að þau eru nú ekki alveg sambandslaus. En við fórum norður á þriðjudaginn og komum í gær eins og áður sagði. Það er bara mikill vetur í Þineyjarsýslu og mikill snjór. Það mætti nú alveg fara að vora hér á klakanum. Ég á von á Orlandaförunum í morgunverð núna á Páskadagsmorgun en það er Malla og hennar fjölskylda. En þau eru á leið heim. Ég óska yfir gleðilegra páskadaga og vona að þið njótið samvista hvert við annað. Takk fyrir okkur elsku mamma og pabbi!!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

11.4.2009 kl. 13:15

Laugardagur

fjölskyldan búin að hafa það gott síðustu tvo daga slappað af en teknar samt klukkutíma göngu á dag bara hressandi.Emma tengdó var hjá okkur í hangikjöti í gærkveldi,svo er ég með kaffi í dag fyrir mömmu,pabba Lindu systur og hennar fjölskyldu en þau komu norður um páskanna meðal annars til að vera á skíðum.Það verðu gaman þegar heimasætan verður tilbúin að koma á skíði,skauta eða renna á sleða en núna er hún hamingjusömust ef hún hefur penna og blað,útivera eitthvað sem má alveg sleppa :(

Eigið öll góða páskahelgi.
Bestu kveðjur Kristín og fjölskylda.

kristín Aðalsteinsdóttir

10.4.2009 kl. 9:07

Föstudagurinn langi

runninn upp bjartur og fagur hér í höfuðborginni Sólin að koma og algjört logn. Húdsbóndinn á þessum bæ farin út á göngu við Gróttu Allt í rólegheitunum ég nýt þess í botn að vera í svona löngu fríi og sit við að bródera harðangursdúkinn minn hann er svo stór að ég hugsa að ég verði ekki búinn með hann fyrr en næsta ár en það er allt í lagi Ég óska ykkur öllum kæra frændfólk og vinir gleðilegra páska og njótið þeirra kveðja kvitt

Guðrún besta frænka

9.4.2009 kl. 7:59

Kærkomið páskafrí.

Komin í páskafrí og ætla að hafa það virkilega gott Allt mitt fólk komið austur á land og við gömlu bara ein heima. Fallegt veður í Reykjavík í dag. Greinilega komið vor öll tré hér hjá mér komin með bólgin brum ekki langt í sumarið þá er það nokkuð? Óska ykkur öllum frædfólk og vinir gleðilegra páska og njótið þeirra Kveðja og kvitt

Guðrún besta frænka

7.4.2009 kl. 10:49

Vorljóð

Það er eins og vorblærinn veki
hvert vinalegt og göfugt starf
og hvetji með krafti sínum
þann kraft sem til framkvæmda þarf.

Fljótt gleymist frostið og myrkrið
og fönnin sem þakkti jörð
Er sjáum við sólarbjarma
sveipast um tinda og skörð.

Eins er í okkar sinni
oft geta leynst þar ský
sem bros eða hlýlegt handtak
hugbirtu gefa á ný.

Maður er mannsins gaman
merki þess finnum hér
Af gleði og syngjum og sjáum
að sumarið framundan er.

Helga Guðmundsdóttir

Guðrún Sigurgeirsdóttir

6.4.2009 kl. 11:00

styttist í langþráð frí.......

Góðan dag, nú er aldeilis yndislegt vorveður í Kópavoginum í dag og alveg að koma páskafrí. Ég er búin að vera að drepast úr kvefpest undanfarna daga en er nú heldur að skána. Við fórum í fermingu í gær, fyrst í kirkjuna okkar Hjallakirkju og svo í aldeilis fína kaffiveislu en bróðursonur Palla var að fermast. Við stefnum að því að skreppa í Stykkishóm í páskafríinu og heimsækja vinafólk okkar þar.
kvitt og góðar kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

5.4.2009 kl. 20:35

Texti

Svona geta þeir skolast til í meðförum mann þessir textar en ég tók tekxtann beint af diskinum "REIÐMENN VINDANNA" sem Helgi Björnsson gaf út í fyrra og hann er svona þar og Helgi syngur hann svona en Hann hefur sennilega breytt honum.

Vorkveðjur

Guðrún Sigurgeirsdóttir

5.4.2009 kl. 18:53

Smáleiðrétting

Ég fékk þetta lag á heilann þegar Guðrún var búin að minna á það og fór að grufla því væru svona mörg ess í upphafinu. Fletti upp í textaheftinu og þetta heitir : "Nú kemur vorið " og textinn byrjar líka þannig.

Hjördís Kr.

5.4.2009 kl. 16:32

Austfirskir staksteinar II ,diskur með

danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar geymir þetta fallega lag í flutningi Skriðubólskórsins.
Sammála því að þetta er einstaklega skemmtilegt og kemur manni í sumarskap hvernig sem viðrar.

Hjördís Kristjánsdóttir

5.4.2009 kl. 10:27

Senn kemur vorið

Góðan dag!
Að gamni set ég hér inn fallegan texta eftir Sigurð Ó Pálsson sem mér finnst mjög fallegur og ekki er lagið síðra en það er eftir Birnte Dav en því miður get ég ekki látið það fylgja með :-.



Senn kemur vorið sunnan að
og sólin bræðir ís.
Við sendna strönd í fjarðarbotni
lítil alda rís.

Og hvíslar langt er síðan
að ég lagði af stað til þín,
nú loks ég finn að kominn er ég,
alveg heim til mín.

Úr draumi frá í vetur
enn ég þekki þessa strönd.
Nei þannig fengu ei heillað suðræn ævintýralönd.

Ó strönd míns lands,
mig dreymdi að ég deyja ætti hér.
Minn draumur rætist
því nú hníg ég ein að brjósti þér.


Við erum búin að fara í þrjár veislur þessa helgi, eina með ökukennunrum, 15 ára afmæli á Akraensi og svo fimmtugsafmæli hér í Kópavogi. Í dag ætla ég að elda mat í einni fermingarveilsu og eiga svo notalegt kvöld með fjölskyldunni. Vona að þið njótið sunnudagsins.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

4.4.2009 kl. 9:20

Laugardagur og yndislegt veður í Reykjavík

sólin skín og fuglarnir syngja sem mest þeir meiga.Ætla að nýta góða veðrið og fá mér göngutúr Styttist í páskafrí sem verður kærkomið frí Ætla njóta þess í botn.Þetta var bara svona smá kvitt hjá mér núna Lifið heil

Guðrún besta frænka

3.4.2009 kl. 22:18

Èg vil þakka fyrir fróðlegan og góðan lestur og alúðar kveðjur til þeirra sem mig þekkja

Sigrún Ketilsdóttir

nix

3.4.2009 kl. 0:27

Best að kvitta

Sæl öll
Langt síðan ég hef kvittað enda ekkert merkilegt að mér finnst að gerast. En af því að Dísa var að tala um Bolla Pétur, þá var ég búin að segja við mömmu að það yrði fínt að fá hann sem prest. Kannast aðeins við hann sem prest héðan úr Reykjavíkinni og finnst hann alveg yndislegur. Allt gott úr Glaðheimum, Atli prinsinn á heimilinu orðinn bráðhress og leikur við hvurn sinn fingur. Ég var að koma frá því að syngja á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem meðlimur í Kór Áskirkju. Flutt var Sköpunin eftir Haydn. Gekk vel og allir glaðir. Lífið gengur sinn vanagang, vinna hjá mér en minna um vinnu hjá húsbóndanum. En allir hressir og kátir og það er fyrir mestu. Siggi bróðir ætlar að heiðra okkur með nærveru sinni um helgina og við systur hlökkum til að hitta hann. Vonandi er nú vorið í nánd á Norðurlandinu. Okkur langar norður um páskana en erum ekki á góðum bíl til langferða í vetrarveðri, þannig að við bíðum eftir góðri veðurspá og minnkandi snjó. Góða nótt.
Elma

Elma

2.4.2009 kl. 21:41

Örlítið vorveður hér um slóðir núna

vonandi fer þetta allt að koma betri tíð og blóm í haga Hvað ert þú að afsaka Dísa mín þú ert nú jafn dugleg og ég að kvitta Kveðja til ykkar allra

Guðrún besta frænka

2.4.2009 kl. 21:31

Bið ykkur afsökunar

sem eruð duglegastar að kvitta hér , Guðrúnir tvær, og svo þig Kristín mín, en það er ekki hægt að ætlast til að þú hafir orku til mikilla skrifta, en mikið var samt gott að frétta af þér og vita þig komna í hendurnar á þessu góða fólki á Kristnesi, en það er von að Aldís litla þurfi á mömmu að halda og vonandi gefst þér kraftur bæði fyrir hana og þjálfunina, víst er það púl.Það hefur farið fyrir mér eins og prestinum sem skammaði þær fáu hræður sem mættu í kirkjunni fyrir lélega kirkjusókn, eina fólkið sem átti það ekki skilið. og þér Rúna mín þakka ég fyrir notaleg heilræða innlegg alltaf öðru hvoru, við þurfum líka á þeim að halda. óska ykkur góðrar helgar framundan.

Hjördís Kristjánsdóttir.

2.4.2009 kl. 16:45

Púl og aftur púl

Sælt veri fólkið,hér hjá okkur er allt gott að frétta ég byrjaði á Kristnesi á mánudaginn og er alveg búin þegar heim er komið.En ég fer heim á hverjum degi Aldís er nógu óörugg eftir sjúkradvölina mína að ég gat ekki gert henni það að gista viku í einu.Það er yndislegt að vera þarna starfsfólkið og þeir sem eru í þjálfun eru bara eins og ein stór fjölskylda.Jæja best að hætta núna Emma tengdó er komin í heimsókn.

Kveðja kristín.

kristín Aðalsteinsdóttir

2.4.2009 kl. 14:19

Dagurinn í dag...

Dagurinn í dag er dagurinn þinn,
þú getur gert við hann hvað sem þú vilt. Gærdaginn áttir þú.
Honum getur þú ekki breytt.
Um morgundaginn veist þú ekki neitt. En daginn í dag átt þú.
Gefðu honum allt sem þú megnar....

Þessi orð eru sönn því máttu treysta, en þetta ber vott um það að ég hef nákvæmlega ekkert að segja, og engar fréttir eru bara góðar fréttir. Og það er ekki af því að ég hangi á fésbókinni sem ég skrifa ekki alltaf hér inn en held ég sé nú samt dugleg við það! Það er kominn fimmtudagur og meira að segja 2. apríl í dag og vorið vonandi á næsta leiti. Helgin er mikið til plönuð frá föstudegi fram á sunnudag hjá mér þannig mér ætti alls ekki að leiðast :-) og vona að þið eigið notalega helgi!!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

1.4.2009 kl. 20:04

Í dag var tómstundadagur hjá mér

fór í morgun að mála á postulín og svo voru snúninga eftir hádegi í banka og fleira Vor andvari var hér í morgun þrestirnir sungu af hjartans list og krókusarnir í garðinum brostu sínu blíðasta enda hlýrra en undan farna daga, Særún Birta liggur í slæmri flensu er búin að vera með 39.7 stiga hita í 3 daga en eitthvað er nú hitinn farinn að lækka núna Annars allt gott frá mér lifið heil öll sömul kvitt

Guðrún besta frænka

1.4.2009 kl. 10:43

1. apríl

Heil og sæl öll.
Það er nú ekki ætlunin að láta ykkur hlaupa apríl núna á síðunni, þótt 1. apríl sé almennt notaður sem gabbdagur. 1. apríl felur líka í sér væntingar um að styttist í vorið. Við sluppum við mikla snjókomu um síðustu helgi þegar allt fór á bóla kaf í snjó víða hér norðan og austan lands.En svo er búið að bæta okkur það dálítið upp með drýginda lognmollu snjókomu og allt liggur saman, himinn og jörð.Í morgun er þó frostlaust, svona 1/2 stig hiti. og kramur snjór.Sl föstudagskvöld fórum við í Breiðumýrarleikhúsið og sáum Kvennaskólaævintýrið og það var góð skemmtun. Malla , Jói og yngri strákarnir, einnig Jón Stefán og fjölskylda fóru af landi burt í gærkvöldi. Eiga að hafa lent í á Orlando flugvelli um kl1-2 í nótt og ætlunin að dvelja í Florida fram að páskum.
Nýi presturinn, séra Bolli Pétur heimsótti okkur fyrir viku , var að hitta sóknarnefnd og skoða kirkjuna. Hann er ungur og hress og verður vonandi lánsamur í störfum hér.
Búið að rýja með góðra manna hjálp.Svo eru daglegir snúningar við fé og ég að ljúka við í morgun að skipta um mold á síðustu pottarósunum mínum en Sigrún byrjaði í síðustu viku, en núna er hún í vinnunni uppi í Kröflu. Gleymið ykkur nú ekki alveg á fésbókinni, stingið niður penna hér líka. Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

31.3.2009 kl. 21:05

Mars að verða búinn

Gott kvöld
Nú er orðið langt síðan ég hef látið nokkuð hér á prent. Allskyns óværur hafa verið í tölvunni á þessu heimili og ekki verið neitt gaman að reyna að gera eitthvað í henni, en hún er allavega í lagi í bili.Þið öll sem hafið átt afmæli í mars fáið hér síðbúnar afmæliskveðjur og bestu óskir um gott og gjöfult líf framundan.Þessi mars hefur verið afskaplega þreytandi veðurfarslega séð hér um slóðir en allt dagleg líf samt gengið nokkuð eðlilega.Vonandi kemur svo blessað vorið fljótlega,alltaf hlakka ég til sauðburðarins hvað sem ég verð gömul, þarf ekki að bíða nema mánuð enn eftir honum. Óli er kominn í páskafrí í leiklistinni, og búið að rýja féð.Mörvinna fram undan hjá mér næstu daga.Þetta er nú það helsta af okkur að segja að sinni.

Friðrika

30.3.2009 kl. 9:35

Mánudagur

Góðan dag
eitthvað er nú langt síðan ég kvittaði fyrir mig en einhvernvegin hefur maður ekki mikið að segja. Nú er liðin ein allra rólegasta helgi hjá mér í langan tíma og gerði ég ekki neitt nema það allra nauðsynlegasta, bara slappaði af, horfiði á sjónvarp og borðaði góðan mat. Mamma fór norður á fimmtudag og meðan hún var notuðum við tímann vel, hittum ættingjana, fórum í búðir, kaffihús og bíó svo eitthvað sé nefnt.
Nú styttist í páskafrí hjá skólafólki og svo gott fimm daga frí hjá okkur sem vinnum alla virka daga.
Eigið góða vinnuviku
kveðja Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

29.3.2009 kl. 10:25

Sunnudagur

Góðan dag!
Í gær skirfaði ég langan pistil hér inn en hann hefur einhverra hluta vegna ekki vistast. En við höfum það gott hér, í dag er mokandi snjókoma og alhvít jörð, bara vetur! enda vissi ég að vori væri ekki alveg komið þó sumir væru bjartsýnir á það. Við erum að fara í tvær fermingarveislur í dag þannig dagurinn er vel skipulagður hjá okkur. Ég var á námskeiði í Skálholti frá mánudagi til þriðjudags með öðrum kennurum og var umfjöllunarefnið geðorðin tíu og var það virkilega áhugavert og ekki spillti staðurinn fyrir. Ég vona að þið eigið góðan sunnudag og góða vinnuviku framundan.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

29.3.2009 kl. 10:23

Góðan og blessaðan daginn.

Sendum afmælisbarni dagins , Hirti Smára Sigurðarsyni bestu hamingjuóskir á 12 ára afmælinu og vonum að hann eigi góðan dag.Kærar kveðjur til fjölskyldunnar frá Geira og Dísu.

Hjördís Kristjánsdóttir

26.3.2009 kl. 17:59

Dísa mín.

Það gleður okkur mjög að þið hafið haft gaman af þessum diski héldum kamski að þið ættuð hann fyrir Árni ragst á þetta einhverstaðar og hugsaði til ykkar .Okkar er ánægjan að hafa geta glatt ykkur á þessum leiðinda dögum Annars allt gott frá okkur Lifið heil Kvitt

Guðrún besta frænka

26.3.2009 kl. 11:20

Í dag

er fimmtudagurinn 26. mars.
Aftur komið frost og alhvít jörð en ekki hefur snjóað neitt að ráði.Guðrún mín "besta frænka".
Þökkum sendinguna , hljómdiskinn með Einari frá Hermundarfelli og Garðari í Lautum. Þetta var sannarlega skemmtileg og kærkomin gjöf.Við sátum hér inni í stofu og vorum að hlusta á hann, ásamt "Nafna á Völlum" sem kom í gær að hjálpa upp á nafna sinn við að koma reykhúsi í stand og koma silungsveiði sl sumars í reykhúsið.. En það var hlaupið yfir þann kapitula sl haust, þegar Geiri fór i mjaðmaaðgerðina.Garðar í Lautum var tengdafaðir Sigurgeirs á Völlum og þessi hljómdiskur geymir ótrúlega margar minningaperlur, lögin tengjast svo mörgum fleiri hljóðfæraleikurum og atvikum sem rifjast upp.Aftur ,bestu þakkir.

Hjördís Kristjánsdóttir

25.3.2009 kl. 20:20

Jæja ein vikan enn hálfnuð og

þessi mánuður senn á enda og fer að nálgast páskafrí,Við gamla settið verðum ein heima um páskana Börn tengdabörn og barnabarn verða á Austurlandinu um páskana Hér var ljúft veður í dag bjart en kalt en krókusarnir í garðinum láta það ekker á sig fá blómstra og blómstra vor í aðsigi það er gott til þess að hugsa Farið vel með ykkur kæra frændfólk og lifið heil. Kvitt

Guðrún besta frænka

24.3.2009 kl. 21:56

Afmælis og samúðarkveðjur

Kæru Hólmfríður og Siggi sendi einlægar samúðarkveðjur.
Afmælisbörn gærdagsins Sibba og Pall þið fáið afur síðbúnar afmæliskveðjur.
Malla

Marína Sig

23.3.2009 kl. 15:49

Dísa min.

Þakka ykkur Geira fyrir kveðjuna

ég skal koma kveðju til hinna ættingjana.

siggi kr

sigurður kristjáns

23.3.2009 kl. 12:47

Auðbjörg Pétursdóttir.

Auðbjörg Pétursdóttir var fædd 11. apríl 1933. Hún er nýlega látin á Dvalarheimilinu Nausti á Þórshöfn. Minningarathöfn um hana fer fram í Þórshafnarkirkju í dag og hún verður jarðsungin í Hvammstangakirkju á morgun.
Auðbjörg er móðir Hólmfríðar Stefánsdóttur og tengdamóðir Sigurðar Kristjánssonar. Hún bjó með Kristjáni Sigurðssyni á tímabili. Auðbjörg var dugleg og afskaplega ósérhlífin kona sem öllum vildi vel, en lífið fór ekki alltaf mjúkum höndum um. Við minnumst hennar með þakklæti og virðingu fyrir það sem hún var og stóð fyrir, íslenska konan ein af mörgum sem ekki fór mikið fyrir í lifanda lífi, en skilur eftir sig stórt skarð þeger hún er farin. Við Geiri vottum ykkur Hólmfríður og Siggi, og öllum öðrum aðstandendum einlæga hluttekningu.

Hjördís Kristjánsdóttir

22.3.2009 kl. 21:32

Sunnudagssíðdegi

skírði ég pistil sem ég var búin að setja inn í dag og lofa veðrið, fyrsti þrösturinn lét sjá sig , álftir komnar en ekki mjög margar ennþá, búið að rýja með tilheyrandi heimsókn og hjálparhöndum þeirra Möllu, Jóa og fjölskyldu, hjartans þakkir öll, Siggi Atla var rúningsmaðurinn og fær líka kæra þökk,segja frá því að við fórum í Kiðagil í gærkvöldi að sjá "Upprisu Holdsins" sem "Vanir menn "sýna eftir Hörð Þór Benónýsson og skemmtum okkur vel. En það komu gestir í miðjum skriftum mínum og ég týndi öllu sem ég hafði skrifað og þess vegna er þetta bara ágrip sem fylgir þessari kvittun núna, svo þið vitið að við eru lífs og og allt það. Bestu kveðjur

Hjördís Kristjánsdóttir.

22.3.2009 kl. 19:41

Sunnudagur að kveldi kominn

Búið að vera allskonar veður í dag sól rigning og snjóél Eg hef haldið mig heima í dag og prjónað lopavesti og málað á postulín og svo er að gera sig klára inn í nýja vinnuviku á morgun Annars allt gott Lifið heil Kvitt

Guðrún besta frænka

21.3.2009 kl. 8:03

Laugardagur til lukku

Sæl öll!
Hjá mér hefur þessi síðasta vika verið mjög annasöm en skemmtileg! Við vorum veð þemaviku í skólanum og er það alltaf heilmikil aukavinna. Mamma var hjá okkur í nokkra daga um síðustu helgi og var það virkilega gaman. Krakkarnir hafa mikið að gera í skólnum og líka og íþróttunum. Þessa helgi ætla ég að nota til að þrífa og slappa vel af. Við Eiríkur erum búin að fara okkar venjulega Mogga-hring og það er ágætlega hlýtt en smá súld. Ég vona að þið njótið helgarinnar.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

20.3.2009 kl. 13:58

Góða helgi

Góðan dag
þá er nú kominn föstudagur enn eina ferðina, Það er farið að róast hjá mér heima fyrir, búið að halda uppá afmæli Ara og ekkert handboltamót eða annað skipulagt um þessa helgi, þannig að allt lítur út fyrir rólega og notalega helgi heima fyrir. Mamma kom suður í gær og ætlar að vera hjá mér og stoppa í viku, ætlar til augnlæknis og heimsækja fólkið sitt.
Ég fór með Særúnu mína til læknis í morgun en hún hefur af og til verið að kvarta í hné, svo við ákváðum að láta líta á þetta og læknirinn togaði hana og teygði og skrifaði svo upp á beiðni í röntgenmyndatöku, en þetta er einmitt sami fótur og hún brotnaði á, reyndar á ökla árið 2006, svo við förum í myndatöku við fyrsta tækifæri og vonum að allt komi vel út, hann kenndi henni líka nokkrar æfingar sem er gott fyrir hana að gera. Þetta er nú svona það helsta sem er að frétta hjá mér.
Vonandi eigið þið öll góða helgi
kv. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

20.3.2009 kl. 10:28

Gaman að heyra frá nýjum skrifurum

Velkomin hér í spallið Siggi Krístjáns og Ingigerður.
Það er nokkuð langt síðan ég hef skrifað hér inn en ekki er þar um að kenna Fésbókinn a tarana, einfaldlega fer tíminn alltaf á undan mér. gott að sjá að hér inni eru menn að hressast þeir sem hafa verið lasnir og að það er gott hljóð í þér Sigg K. með heilsufar og vinnu. Það er þetta tvennt sem skiptir svo miklu máli.
Af mínu fólki er allt gott við erum frísk og allir önnumkafnir í sínum skóla. Við ætlum í Lundarbrekku seinnipartinn og þar á að rýja á morgun. Njótið helgarinnar kæra frænfólk. Malla

Marína Sig.

19.3.2009 kl. 21:17

Betra seint en aldrei.

góða kvöldið kæra frændfólk!

Ég hef nú ekki gert mikið að þvi að tjá mig hér á þessari siðu, en ég ætla að gera það núna, hjá mér er allt gott að frétta allir frískir og við góða heilsu, við Hólmfriður erum bæði með vinnu, það er nú ekkert sjálfgefið í dag að það sé,svo vil ég þakka fyrir kveðjur sem við höfum fengið frá okkar frændfólki á afmælum okkar, ekki meira að sinni.

Góð kveðja til allra frá okkur.
Siggi Kristjáns.

sigurður kristjansson

19.3.2009 kl. 1:49

Atli litli

Atli litli er allur að koma til, enginn leikskóli þessa vikuna bara foreldrarnir til skiptis sem félagsskapur. Móðirin er þessa stundina uppi í Hvalfirði á vinnufundi en stóð veikindavaktina mánudag og þriðjudag.
Góða nótt og kvitt
Elma

Elma

18.3.2009 kl. 19:05

Æ ég er frgin að heyra frá þér elsku Dísa mín

Ég hélt bara að eitthvað væri að því þú hafðir ekki skrifað svo lengi En gott að heyra að allt er í lagi og þú hafðir gott af ferðinni og allt gengur svona vel með frænda vonandi fer nú að vora nægur er fuglasöngurinn í trjánum hjá mer svo það hlýtur að fara að vora Lifið heil öllsömul Kvitt

Guðrún besta frænka

18.3.2009 kl. 13:11

Vinnuvikan að verða hálfnuð...

og hér í skólanum er þemavika og mikið um að vera. Tími til að kíkja í tölvuna hefur verið frekar lítill síðustu daga vegna anna. Takk fyrir heimsókina elsku mamma, mikið var þetta skemmtilegt að fá þig í heimsókn, en tíminn líður alltaf svo hratt þegar er gaman.
Ég vona líka að heilsan fari að koma hjá þér Atli litli og allt sá áfram á uppleið hjá þér Kristín mín. Hef ekk tíma fyrir fleiri orð núna.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

18.3.2009 kl. 11:21

Gott að koma heim.

Sæl verið þið öll.
Ég brá mér í vetrarorlof og heimsótti Guðrúnu og fjölskyldu í Kópavoginum um síðustu helgi og kom heim í gærkvöldi.Ég var bæði löt og eigingjörn og hvíldi mig og lét dekra við mig, gerði sem minnst af því að fara í búðir og heimsóknir. Hitti þó fólk sem mér fannst ég hafa vanrækt vináttu við og fór heim með betri samvisku fyrir vikið og búin að hlaða á tankinn eins og alltaf gerist við að skipta um umhverfi.
Geiri var einn á meðan og það gekk vel.Það var samt vont veður bæði fyrir sunnan og hér um helgina og kyngdi hér niður snjó, þurfti jafnvel að opna daglega veginn En í gær var komin þíða og góður vegur.
og hlákubloti í dag og hægt að keyra á fjórhjóli allsstaðar Geir átti læknatíma á Húsavík eftir hádegið , svona tékk og fékk góða skoðun , mæting aftur eftir ár. Hann kom svo beint þaðan til Akureyrar og eftir að Malla hafði gefið okkur kvöldmat fórum við heim. Vona að heilsufarið fari batnandi hjá litla Atla og öllum öðrum sem ekki eru heilsuhraustir.Hafið það sem best.

Hjördís Kristjánsdóttir.

17.3.2009 kl. 13:50

Heima

Góðan daginn.
Engin vinna hjá mér enn í þessari viku, nema að litlu leyti í gegnum tölvuna, þar sem prinsinn á heimilinu er með sína árlegu lungnabólgu og við mæðgin því hér heima við í gær og dag. Byrjuðum reyndar gærdaginn á Barnaspítalanum en höfum svo verið heima síðan og aðallega verið að horfa á Póstinn Pál. Svo þarf ég að fara á fund upp í Hvalfjörð miðvikudag og fimmtudag og þá verða þeir feðgar hér heima. Héðan er annars ekkert að frétta. Helgin var tíðindalítil, fór reyndar á tvenna tónleika og í heimsókn til Laufeyjar móðursystur í Hafnarfjörðinn. Vona að allir hafi það gott. Bestu kveður. Elma

Elma

17.3.2009 kl. 12:18

Hugsa sér að það séu 6 ár síðan....

Góðan daginn!
Já það er með ólíkindum hvað tíminn líður hratt að litli strákurinn minn skuli vera 6 ára í dag, eins og það er stutt síðan hann fæddist..........
Hjá okkur er búið að vera svo mikið að gera síðustu daga, Palli var að flytja í vinnunni á föstudag fram á kvöld og síðan að koma öllu í stand á laugardag og Særún var að keppa í handbolta bæði á laugardag og sunnudag, en HK stelpurnar stóðu sig allra best á mótinu og fengu bikar :)síðan er síðasta mótið á Akureyri 1-3 maí og þá ætla þær að verða íslandsmeistarar í sinni deild :)
Á milli þess sem ég fylgdist með handboltanum um helgina var ég að baka fyrir afmæli og þrífa heimilið, á sunnudagskvöldið var Ari minn síðan svo óheppinn að klemma sig á löngutöng og það var ekki gott, mikill grátur og hræðsla, en puttinn er óbrotinn en nöglin ljót, ég leyfði honum því að vera heima í gær en svo fór afmælisdrengurinn kátur í leikskólann í morgun. Ari ætlar að bjóða 10 leikskólavinum sínum heim kl. 16:30 í dag og síðan koma ættingjar og vinir í veislu eftir það, þannig að það er mikið fjör framundan.
Hafið það sem allra best
kveðja Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

16.3.2009 kl. 13:39

Mánudagur

Sælt veri fólkið.

Á þessum bæ er allt gott að frétta,við mæðgur erum bara heima að dúlla okkur,heimasætan vildi vera stutt á leikskólanum í dag og auðvitað ræður hún því :) svo við erum búnar að fara í mömmuleik og teikna páskaegg.svo er húsmóðirin á leið í ræktina kl 16.00 og þá ætlar Alli bróðir að passa,Þegar við vorum að lita þá segir Aldís við mig mamma hvort viltu vera maður eða kona,ég sagði blessaða barninu að ég vissi ekki hvernig það væri að vera maður hefði aldrei prufað það.Hún hélt að það væri betra að vera maður því konurnar þyrftu að skypta á öllum börnunum sínum sem þær fæða.Já það eru ýmsar pælingar í gangi hjá smáfólkinu.

Hafið það sem allra best
kveðja kristín.

kristín Aðalsteinsdóttir

15.3.2009 kl. 20:04

Sunnudagur

Heil og sæl!
Höfum átt hér ljúfa helgi en Eva er búin að vera að keppa í handbolta og hennar lið vann og er mikil sæla með það og hún er líka þreytt eftir viðburðaríka daga.
Vona að þið eigið notalega vinnuviku framundan kæra frændfólk

Guðrún Sigurgiersdóttir

15.3.2009 kl. 8:39

Halló halló góðan daginn

hvar eruð þið gott fólk eruð þið kanski fennt á bóla kaf ekkert heyrist frá ykkur Mér líkar þetta ekki Þið megið ekki gleyma okkar góða Lundarbrekkuvef fyrir snjáldurskinnuna það er ekki hægt Látið nú heyra frá ykkur gott fólk Hér er yndælisveður í dag (gluggaveður) vindurog hálf skýjað efur sett smá föl í nótt en ekkert á við ósköpin fyrir norðan austan og á vestfjörðum Nonni stendur vörð við vestfirðina ásamt skipsfélögum sínum þetta er ekki gott ástand þar Annars allt gott frá mér og mínum Lifið heil

Guðrún besta frænka

12.3.2009 kl. 20:08

Ja hérna en skemmtilegt

Ingigerður kominn inn til okkar ´ég sendi henni bestu kveðjur, Þá er ein vikan enn að verða búin og á laugardaginn hittumst við Norðfirðsku kellurnar í gönguklúbbnum og fáum okkur göngutúr og eitthvað gott á eftir yfir spjalli. Nonni úti á sjó er fyrir vestan eru til taks ef eitthvað gerist þar út af snjóflóðum Annars allt gott fra þessum bæ Lifið heil og kvitt

Guðrún besta frænka

12.3.2009 kl. 19:10

Tölvupostur kemur her. Ingegerd.Fries@hotmail.com

Ingigerdur

12.3.2009 kl. 19:02

Mikil nylunda! Jeg hef internet. Ther er velkomid ad skrifa mer. Clas sonur okkar og Niklas sonur hans eru ad hjalpa mer. Their komu i sumar i Bardardal og gistu i Kidagili.

Ingigerdur

9.3.2009 kl. 16:58

Veðurtept í Mývatnssveit og einu ári eldri en í gær

Sendi bestu þakkir fyrir afmæliskveðjur og nýt dagsins vel, komin heim eftir helgardvöl í Mývatnssveit. Við Jói höfum oft talað um að fara yfir helgi í Mývatnssveit og létum loks verða af því núna um helgina. Veðrið var ekkert til að hrópa húrra fyrir en við létum það ekki hafa áhrif á okkur og nutum laugardagsins vel, fórum á Fuglasafnið og jarðböðin og röltum um Reykjahlíðarþorpið. Sævar okkar fékk að bjóða frændum sínum Daða og Frey með til að hafa viðeigandi félagsskap. Þeir upplifðu nú allir í fyrsta skipti á ævinni að vera veðurtepptir og komast ekki heim og fá svo skólafrí í dag en það var nú held ég það merkilegasta af öllu saman í þeirra augum. Þeir voru eins og englar og léku sér í allan gærdag einnig spiluðum við aðeins og svo lágum við og lásum. Það er hlutur sem ég leifi mér aldrei um hábjartan dag nema í svona tilfellum.
Á heimleiðinni í morgun stoppuðum við á Ingjaldsstöðum og fengum okkur gott morgunkaffi hjá Stínu.
Kristín mín gaman að heyra að þú ert að verða tröppufær, endilega farið að láta sjá ykkur. Bara að hringja á undan svo þið farið ekki fýluferð. Bestu þakkir aftur fyrir góðar kveðjur. Malla

Marína Sig

7.3.2009 kl. 7:51

Laugardagsmorgunn

Heiðríkja og 18°frost.Heil og sæl öll. Ég tek undir það að ,að gott er að heyra frá þér Kristín mín og nú er það beina brautin eins og þú segir. Þetta kemur með hækkandi sól og mikið er gott að þú kemst í Kristnes.
Við drifum okkur til Húsavíkur í gær og það gekk allt að óskum en kaldranalegur var nú Skjálfandaflóinn þegar við vorum að fara heim, haugabrim og kólgubakki til hafsins. Við áttum alveg eins von á því að hér hefði hvesst af vestri og fyllt í slóðir hér heima við húsin, en það hafði ekki hreyft korn og við gátum keyrt heim að dyrum og vorum fegin því. Notalegt í morgun að vera búin að fara þetta og þurfa ekki að flýta sér neitt, en taka það bara rólega.Kveðjur til ykkar allra.

Hjördís Kristjánsdóttir

6.3.2009 kl. 19:32

Jæja jæja enn og aftur kominn föstudagur

Fallegur dagur í dag í höfuðborginni bjart og sólríkt fuglasöngur mikill í trjánum hér í garðinum Eg er viss um að það boðar að vorið sé að nálgast. Allt gott frá þessum bæ Kveðja og kvitt

Guðrún besta frænka

6.3.2009 kl. 11:17

og svo kemur enn og aftur helgi

Góðan dag gott fólk, tíminn líður svo hratt..........ég hef ekki skrifað hér inn í marga daga og ekki staðið við að kvitta fyrir mig þegar ég lít inn. Það er ósköp lítið að frétta af mér allt gengur sinn vanagang. Ég skellti mér norður um sl. helgi og átti góðan tíma með fólkinu mínu, nú er hversdagsleikinn tekinn við aftur, vinna, versla í matinn, fara með drenginn í íþróttir og allt það sem þið þekkið í amstri dagsins. Mikill afmælismánuður er runninn upp og ég er farin að huga að því hvernig ég fari best að því að koma 10 leikskólagaurum fyrir í afmæliskaffi þann 17 mars en það er þá fyrsta barnaafmælið eftir að hjónarúmið var flutt fram :) vona bara að veðrið verði gott svo drengirnir geti verið úti á velli í fótbolta.
eigið góða helgi
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

5.3.2009 kl. 19:05

Æ hvað það var gott að heyra frá þér Kristín mín

Vonandi heldurðu áfram á beinu brautinni og gott verður fyrir þíg að fara í æfingar Þú verður orðin eldhress þegar vorið kemur og grundirnar gróa Knús á Aldísi og kveðja til frænda og baráttu kveðjur

Guðrún besta frænka

5.3.2009 kl. 10:44

Beina brautin

Kæru vinir
Ég vildi bara koma með smá fréttir af mér,þar sem ég veit að flest ykkar hafa fylgst með mér í gegnum veikinda ferlið og vil ég þakka fyrir allar fallegar hugsanir,hringingar og fleira.Vonandi er ég komin á beinu brautina núna því þó ég hafi nú ekki verið fræg fyrir það að hugsa bara um sjálfan mig,enn þá er nóg komið núna.Ég fór í ómskoðun í gær og allt leit vel út og jón Þór minkaði hjartalyfin um helming.Svo fer ég á Kristnes 16 Mars og hlakkar mig svo til að fara fá þjálfun maður er öll orðin ómöguleg af hreyfingaleysi þó ég labbi nokkrar ferðir í bílakjallaranum þá vantar æfingar með.

Bestu kveðjur til ykkar og eigið góðan dag.

Kveðja Kristín R.

kristín Aðalsteinsdóttir

3.3.2009 kl. 19:26

Örugglega á öskudagur 18 bræður

risjótt tíð hér ýmist bjart eða rigning snjóél og ég veit ekki hvað Frístundadagur á morgun þetta er alveg ótrúlegt finnst eins og ég hafi verið í miðvikudagsfríi fyrir 2-3 dögum Kveðja´til allra og kvitt

Guðrún besta frænka

3.3.2009 kl. 9:35

Á Öskudagurinn átján bræður?

Ekki er það nú bókstaflega en skemmtilegt er veðufarið ekki þessa fyrstu viku Góu. Geiri fékk einhverja hitapest og hætti við að sækja mig til Akueyrar á sunnudagskvöld eins og fyrirhugað var. Í staðinn fór Jói með mig alla leið og gaf þá fénu um leið. Í gær var Geiri orðinn það hress að hann lagði mikla orku og tíma í að gera slóð með fjórhjólið til fjárhúsa og heim aftur.Síðdegis var búið að vera suðvestan strekkingur og fylla allar slóðir og nú gildir bara gamla lagið. fæturnir og broddstafurnn góði gamli, en það verður nú sætt færi að ná vélsleðanum út við tækifæri.
En ég átti sannkallaða dekurdaga og skemmti mér vel hjá "Fúlum á móti" þessi texti þeirra leynir nú vel á sér og vel með hann farið, ég skemmti mér ósvikið. Svo hitti ég skemmtilegt fólk , en komst ekki yfir miklar heimsóknir, en ég vil þakka innilega vel fyrir mig. Kærar kveðjur . Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

1.3.2009 kl. 22:15

Sunnudagur að kvöldi kominn

Var bara á þessum dagelga rúnti á netinu og kíkti hér inn. Höfum átt góða helgi hér heima og á Úlfljótsvarni hjá þeim Bjarnarstaðahjónum. Engar fréttir af þessum bæ. Góða nótt!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

1.3.2009 kl. 16:01

Höfum átt góða helgi

það hefur verið vetrarf´rí í Grunnskólum Akureyrar og Jói og Sævar´voru í fríi fimmtudag og föstudag. Sævar er búinn að vera að keppa á Goðamóti um helgina og Jói staðið vaktina með honum. Mamma kom hér á fimmtudag í nokkurskonar vetrarfrí og ég notið þess að eyða helginni í hennar félagsskap. Við fórum í leikhús , búðir og heimsóknir auk þess að njóta þess að sitja og spjalla í rólegheitum. Jói fór svo austur með mömmu í dag þar sem pabbi var ekki nógu frískur en annars ætlaði hann að koma og ná í hana. Vonum að hann hristi af sér þessa pest.
Sendi öllum afmælisbörnum gærdagsins kærar afmæliskveðjur. Malla

Marína Sig.

27.2.2009 kl. 18:56

Enn og aftur kominn föstudagur

alveg er það með eindæmum hvað hver vika er fljót að líða æðir bara áfram. Leiðinda veður hefur verið hér í dag rigning birta og aftur rigning ,smá föl í morgun Annasrs allt gott og kvitt

Guðrún besta frænka

26.2.2009 kl. 8:30

Afmæliskveðja.

Ragna Atla. Við sendum bestu kveðjur og hamingjuóskir með afmælið sem er í dag.
Ég er að fara til Akureyrar og stefni á að koma heim á sunnudag.

Hjördís Kristjánsdóttir

24.2.2009 kl. 21:04

Saltkjötið var gott

Hæ og hó.
Langt síðan ég hef kvittað fyrir komu mína hér enda gjörsamlega ekkert að frétta af mínu heimili. Engar fréttir eru góðar fréttir ekki satt. Síðustu vikur hafa liðið ótrúlega hratt, mér finnst alltaf vera mánudagar og föstudagar til skiptis. Ég hélt boð fyrir allt starfsfólkið sem vinnur undir minni stjórn, til að þakka vel unnin störf, laugardagskvöldið 14. febrúar og hér borðuðu 14 manns það kvöld og áttu hér notalega kvöldstund. Síðasta föstudagskvöld hittumst við svo nokkrar frænkur í móðurættinni hér í Glaðheimum og borðuðum saman kvöldmat og áttum góða kvöldstund. Feðgar fóru þann seinnipart á forsýningu á Kardemommubænum og skemmtu sér vel. Á sunnudaginn fór ég í 3 messur, eina fjölskyldumessu með soninn og svo söng ég á tveimur elliheimilum, Skjóli og Hrafnistu. Fórum svo í bollukaffi til tengdó. Í kvöld elduðum við systur svo alveg hreint ljómandi gott saltkjöt a la pabbi sem við vorum svo heppnar að fá ferð fyrir til Reykjavíkur um daginn. Að sjálfsögðu er ekkert að marka nema að saltkjötið komi úr tunnunni frá pabba. Nóg að gera í vinnunni hjá mér og rúmlega það en ekki eins mikið við að vera hjá múrarameistaranum á heimilinu, en vonandi stendur það til bóta. Litli prinsinn mætir í náttfötum í leikskólann á morgun og þar verður náttfataball. Bestu kveðjur til ykkar allra.
Elma

Elma

24.2.2009 kl. 19:46

Bolludagur sprengidagur og öskudagur

Þá er maður búin að borða bollur bæði fiskibollur og rjómabollur og svo í kvöld voru það salt kjöt og baunir með öllu sínu og svo fara furðuverur á stjá á morgun og syngja og leika sér skemmtilegt þetta Svo er aftur kominn frístunda dagur hjá mér vikan er ekki lengi að líða Í morgun tók ég fyrst eftir því að það var bara orðið bjart kl 9 og daginn lengir óðfluga þetta er bara yndislegt.Spáin ekkert skemmtileg fyrir næstu sólarhringa mætti alveg fara að batna Jæja ekki meira að segja í dag Kvitt kveðja

Guðrún besta frænka

23.2.2009 kl. 11:12

Föstuinngangur?

Var það ekki heitið á þessum þremur dögum, Bolludegi, Sprengidegi og Öskudegi?
Mig rámar í gamlan húsgang sem fólk hafði stundum yfir í bernsku minni.
Þriðjudaginn í föstuinngang
það er mér í minni .
Þá á hver að þjóta í fang
á þjónustunni sinni.
Og þið sem sáuð í gærkvöldi í ríkissjónvarpinu brot úr leikritinu "Næturganga" eftir Svövu Jakobsdóttur getið svo ímyndað ykkur ólík viðbrögð þjónustanna, þegar þjónustumennirnir áttu að hlaupa í fangið á þeim. En ótengt þessu. Það er þokuloft hríðarmugga og 7°frost, ekkert vor í lofti. Við ráðgerum að borða sprengidagsbaunir og saltkjöt á morgun á "Opnu húsi " 60 ára og eldri á Breiðumýri , ef veður og annað leyfir. Í Kiðagili var boðið upp á annars konar matseðil með tónleikum og fíneríi í tilefni Konudags sl laugardagskvöld og mæting þar samkvæmt vonum. En við létum það framhjá okkur fara, ég eldaði ærkjöt að hætti hússins og smakkaðist ekki síður í munni gamals bónda en framandlegir réttir með frönskuskotnum nöfnum. Vissulega þó gott hvað með öðru. Ég á tíma nk. fimmtudag hjá Guðna Arinbjarnar. sem er bæklunarlæknir og sérfræðingur í axlarvandamálum, en hann ætlar að sprauta í axlirnar á mér.
Ég ætla þá að stoppa á Akureyri fram á helgina hjá Möllu og fjölskyldu og búið að plana leikhúsferð og búðarráp og fleira gaman. Vonum við að það gangi eftir.Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

23.2.2009 kl. 10:46

Mánudagur

Það rignir á höfðuborgarsvæðinu í dag. Við eyddum helginni í Svínadal (einum af mörgum á landinu) en þessi tilheyrir Borgarfirði vestri. En við vorum þar í sumarhúsi fjölskyldan ásamt Söndru og Ragnhildi vinkonum Evu Margrétar. Þetta var virkileg skemmtileg helgi þó veðrið hefði sosum getað verið betra. Við eyddum miklik tíma í spil, leiki og pottferðir vorum líka úti en svo var horft svolítið á sjónvarpið. Gettu betur er einn af uppáhaldsþáttum fjölskyldunnar og var beðið eftir honum með miklum spenningi en ég verð að segja að það er kominn tími til að lífga upp á þennan sívinsæla dagskrárlið RÚV. Hvernig væri að taka Útsvar að einhverju leyti til fyrirmyndar? Með fullri virðingu fyrir nýja spyrlinum þá vantar mikið upp á. Hún samkjaftar ekki og kom með innantóm skot og "brandara" hér og þar sem þeir áttu alls ekki við. Já þetta var frekar vandræðalegt. Keppnin var sjálf vandræðaleg og staðan 9 - 20 og eitthvað í langan tíma. MItt hjarta sló fyrir minni manninn, eins og oft áður.
Vona að næsti laugardagur verið meira spennandi og að spyrillinn taki sig á.
Eiríkur og Eva Margrét eru í vetrarfrí í dag og á morgun og svo starfsdagur á miðvikudag. Þessi vika er létt hjá þeim.
Ég vona að þið eigið góða viku framundan.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

23.2.2009 kl. 9:58

Tvisvar í bíó sömu helgina..........

Góðan dag þá er það kvittið frá mér eftir helgina, ég gerði nú bara alveg helling um helgina og er hæstánægð með mig. Á föstudagskvöld fórum við mæðgur í bíó á ´"brúðkaupsstríðið" á laugardag var ég dugleg að þrífa og skellti mér svo í kringluna með Særúnu og ég keypti afmælisgjöf fyrir Lóu vinkonu mína sem verður fertug á morgun. Á laugardagskvöld þjófstartaði ég og eldaði saltkjöt og baunir og bauð stóra bróður í mat. Í tilefni dagsins í gær bauð svo Palli minn mér í bíó að sjá
rómance frá Barcelona :o) ekta fyrir mig, ekki alveg eins viss með hann hehe en það var jú konudagurinn.
Jæja ég er svo loks búin að ákveða með norðurferð og búin að bóka flug norður á fimmtudag, en Særún er í vetrarfrí í dag og næstu tvo daga líka og síðan gerðu þeir mér þann óleik að setja á frí á leikskólanum á föstudag (skil ekki alveg afhverju þetta er ekki samræmt) þannig að ég tek frí fyrir Sæu en hef nú eiginlega aldrei gert það, svo mér er sagt að hafa ekki móral yfir því.
Ef einhver af þeim sem líta hér inn á síðuna hafa reynt að hringja í okkur (heimasímann) um helgina þá er hann bilaður en von er á viðgerð í dag.
eigið góða daga
kv. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

22.2.2009 kl. 19:25

Húsmóðir um helgina og naut þess einnig

að vera boðin í mat heima hjá mér. En eiginmaðurinn bauð mér formlega í veislumat í tilefni af konudegi og eldaði lambaorður með dýrindis meðlæti á laugardagskvöld.
Ég naut þess til hins ítrasta en annars hef ég eitt helginni í að vera húsmóðir, þvottur , þrif og bakstur og svo þetta venjulega matseld ef undan er skilið laugardagskvöldið.
Sævar var í skátaútilegu frá föstudagskvöldi til hádegis á sunnudag, hann kom alsæll og þreyttur heim.
Gott að heyra Jónas að allt gekk vel með ferðalög Kristínar. góðar óskir til ykkar með framhaldið.
Svo er bara að taka brosandi á móti vinnuvikunni á morgun og njóta þess sem hver dagur bíður uppá. Malla

Marína Sig

21.2.2009 kl. 19:48

Greinilega farið að kólna bæði á landinu og í skrifum hér

Ég þori ekki öðru en kvitta þegar ég kem hér við vil ekki láta standa á mér að kvitta svo ekki frjósi af mímum völdum. Jæja fór og hitti gönguhópinn minn í dag alltaf gaman að hittast Særún Birta fór í leikhúsið í dag aðsjá Kardimommubæinn og skemmti sér vel og hlær enn. Annars allt gott að frétta Nonni kom í land ídag og stoppar í heila 18 daga held ég . Látið nú heyra frá ykkur kæra frændfólk þó kólni aðeins á landinu ekki láta frjósa hér Kveðja

Guðrún besta frænka

20.2.2009 kl. 19:42

Enn og aftur kominn föstudagur

ósköp eru vikurnar fljótar að líða við segjum í vinnunni núna að vikan sé bara mánudagur og föstudagur dagarnir á milli eru svo fljótir að líða að þetta er búið áður en maður veit af Þoka í Reykjavík núna Austurlandið kemur aðeins upp í hugann þegar þokan lætur sjá sig Allt gott af öllum hér Kvitt í dag Kveðja

Guðrún besta frænka

20.2.2009 kl. 11:26

Þakka þér fyrir

Jónas, það er gott að fá að fylgjast aðeins með. Baráttukveðjur eina ferðina enn.

Hjördís Kristjánsdóttir

20.2.2009 kl. 11:03

Jæja

Það fer ekki fram hjá neinum hvað ég heiti!

Jónas Baldursson

20.2.2009 kl. 10:54

Góðan daginn

Kristín fór suður á Landspítala á þriðjudag til að láta tappa af sér vökva sem var við hjartað. Það gekk vel og hún kemur norður í dag án vökvans.

Bestu kveðjur.

Jónas B.




Jónas

Jónas Baldursson

18.2.2009 kl. 21:59

Þíða í skriftunum

og búin að vera þíða í veðrinu í tvo sólarhringa og safast ögn af leysingarvatni sem getur orðið að svelli þegar frýs, sem líklega verður nú næsta sólarhringinn. En það fór hefill hér um dalinn í dag og skrapaði svell á veginum og kom líka hér heim, þótti heimreiðin okkar glæfraleg svo nú erum við vel sett. Sendum Kristínu kveðju, er hún búin að fara suður aftur? Biðjum að allt gangi nú í bataáttina. Þröstur "spörri", ég er búin að fara á myndasíðuna þína svona smáskreppiferðir og hefi haft gaman af. Missti mig svolítið í að skoða vinnuferðirnar þínar, Kuvait, Dubay, Rúmenía og svo Ikea á ótrúlegustu stöðum. Og rollur á veginum skírðir þú "Heimþrá."Skemmtilegt.Sendi ykkur öllum bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

18.2.2009 kl. 19:12

Komin heim úr tómstundunum

Steikti rauðmaga í kvöldmatinn og er nú farin að horfa á sjónvarpið enda ein heima Bóndinn að vinna þessa viku Búin að kvitta í dag kveðja

Guðrún besta frænka

18.2.2009 kl. 18:08

Miðvikudagur í Kópavogi

Hér er rigning, slydda, sjókoma og úrkomulaust allt á sama klukkutímanum. Ég persónulega hefði verið til í að hafa snjóinn aðeins lengur :-) veit að það eru nú ekki allir sammála mér. Hér á bæ eru börnin að fara í vetrarfrí og ætlum við að nóta þess eins og hægt er. Svo ætla ég að óska þér góðs bata Kristín mín áfram og vona að þetta fari nú loksins að þokast í rétta átt hjá þér. Ég bið góðan guð að vera með þér og þínum áfram.

Guðrún Sigureirsdóttir

17.2.2009 kl. 18:51

Altaf gott að eiga frí á miðvikudögum

Miðvikudagarnir eru notaðir í tómstunda starf þá fer ég í postulínsmálun kl 9 til 12 og svo fer ég í handavinnustofuna á vinnustaðnum eftir hádegi og er til kl 15 oo þá er kominn timi til að fara heim Þetta er algjörlega minn dagur og er notaður svona Rigning og rok í Reykjavík núna Kveðja

Guðrún besta frænka

17.2.2009 kl. 9:07

Elsku Katrín frænka mín til hamingju með 6 ára afmælið þitt, eigðu góðan dag og bestu kveðjur til mömmu, pabba, Daða og Freys
Hanna frænka

Jóhanna Marína Baldursdóttir

16.2.2009 kl. 20:16

kærar afmæliskveðjur

til ykkar allra sem átt hafa afmæli síðastliðna viku. Tíminn hefur flogið hjá og ég ekki farið inn á síðuna í nokkra dag.
Allt gott hjá okkur, fórum á þorrablót í Hreísey um helgina í boði tengdaföður míns. Hann var búinn að heita því að bjóða börnum og tengdabörnum á fyrsta þorrablót í nýju fjölnota húsi í Hrísey og stóð við það. Myndarlegt boð og mjög skemmtilegt hús og gott blót. Annars fór helgin í hefðbundin heimilisverk . Afrekaskráin hjá mér inniheldur oft ekki annað en þvott, þrif, matseld og stundum aðeins bakstur.
Gaman að skoða myndasíðu Þrastar.
Verið nú dugleg að tjá ykkur. Kærar kveðjur Malla

Marína

16.2.2009 kl. 10:09

Yndislegt veður í dag.....

Góðan dag gott fólk, ég þori ekki annað en kvitta fyrir mig vegna umræu um frystingu.......við áttum góða helgi fórum á þorrablót brottfluttra Hornfirðinga á laugardagskvöld í félagsheimili Seltjarnarness það var mjög skemmtilegt, Ólafía Hrönn var veislustjóri og fór á kostum, en hún átti heima á Hornafirði þegar hún var yngri og þekkir mikið til þar, þannig að hún fléttaði skemmtilega inn í veislustjórnina skemmtilegar sögur af þekktum heimamönnum fyrir austan, síðan var þorrablótsnefndin með "abbaþema" þekktu lögin með breyttum textum sem kom mjög vel út. Skemmtunininni lauk svo með balli með Ingó og veðurguðunum og dansgólfið var fullt allan tímann. Í gær gerði ég nánast ekki neitt nema hvíla mig, nema kanski helst að nefna að við mæðgurnar fórum tröppugönguna okkar eftir kvöldmatinn.
Ég er að hugsa um að skreppa norður í lok mánaðarins og heimsækja fólkið mitt, á eftir endanlega að ákveða dagsetningu og bóka flug.
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

15.2.2009 kl. 18:54

Helgin á enda.....

Hér var verið að enda við að borða kvöldmatinn. En helgin hefur verið mjög róleg, Særún og Ari gistu hér í nótt og gekk allt mjög vel að sjálfsögðu. Við erum búin að fara í dag í kaffi til Ragga og Rúnu (bróðir Kidda). En að öðru leiti höfum við verið heima. Á morgun hefst svo enn ein vinnuvikan. Ég var mjög ánægð þegar ég sá að Sommer er að byrja aftur í kvöld í ríkissjónvarpinu en það er eitthvað við þessa dönsku þætti sem heldur manni við efnið. Hlakka til að horfa á hann. Tek undir með mömmu, verið nú dugleg að kvitta hér. Það þarf ekki að skrifa ritgerð :-)
Óska ykkur ánægjulegrar vinnuviku.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

15.2.2009 kl. 17:53

Gleymun ekki að vökva,

bæði blómin okkar og Lundarbrekkusíðuna. 24 búnir að líta inn í dag, sumir kannski oftar en einu sinni en enginn kvittað nema við G.J. Við Geiri fórum í gærkvöldi á Þorrablót í Ljósvetningabúð í boði Stínu og Atla. Dagskráin með þvílíkum ágætum að erfitt verður að toppa það, allt nefndarfólk + tilkvatt aðstoðarlið af svæðinu búið slíkum söng og leikhæfileikum og skáldskapargáfu að með ólíkindum er.Við fórum heim eftir borðhald en fórum svo í Þorgeirskirkju í dag í fjölskyldumessu, síðustu athöfn séra Gylfa. Kominn smábloti í dag en stendur sjálfsagt ekki lengi.

Hjördís Kristjánsdóttir

15.2.2009 kl. 12:04

Gleyndi að taka fram að

svo komu Álftagerðisbræður á eftir ekki má nú gleyma þeim elskum sjálfsagðir í tiltektinni

Guðrún besta frænka

15.2.2009 kl. 11:04

Hvað er skemmtilegra en að taka til og skúra

undir lögunum hans Vilhjálms Vilhjálmssonar af geisladiski af minningar tónleikunum hans Maður er bara orðin ungur aftur Auð jörð í Reykjavík núna þugbúið og smá rigning Jæja gott fólk ekki láta frjósa aftur í ritunum nu er hláka Kveðja

Guðrún besta frænka

12.2.2009 kl. 21:54

Elskulega frændfólk

Ég þakka innilega kveðjurnar í dag Dagurinn var ósköp vanalegur hjá mér vinna og kom heim kl 4 fór þá að útbúa mat fjölskyldan í mat nema Nonni hann er úti á sjó en hann hringdi nú í hana mömmu sína Ekki nema eðlilegt að það frjósi í bréfaskrifum annað eins frost og er í Bárðardalnum núna brrr manni verður bara kalt og er hreint að deyja úr kulda hér ef mælirinn sýnir 5-6 stiga frost ég held að við ættum ekkert að vera að tala um kulda hér sunnan heiða miðað við Norðurlandið en enn og aftur elskurnar takk fyrir mig í dag Kveðja

Guðrún besta frænka

12.2.2009 kl. 21:33

Enn frosið fyrir skriftir.

Það hlýtur nú að hafa náð botninum í dag þessi frostakafli.
Hjá okkur voru milli 22° og 23° það sem við sáum kaldast í morgun, en veðurfræðingurinn með sjónvarpsspána í kvöld staðfesti 29°í Svartárkoti á sama tíma og það er orðið langt síðan svo mikið frost hefur mælst hér. En það eru ekki nema rúmlega 8°núna svo Geiri harkaði af sér og ræsti bíl og þeir Ríkarður drifu sig á kirkjukóraæfingu í Þorgeirskirkju. Ég er því ein að dóla og var búin að sitja nógu lengi með prjónana . Fréttir eru engar og það er líka sagt að engar fréttir séu góðar fréttir, en á landsvísu eru samt nógar vondar fréttir og margt sem er alveg út úr kortinu og erfitt að trúa eigin augum og eyrum af því sem fjölmiðlarnir segja okkur nú á hverjum degi. Þótt margt gamalt fólk tryði hverju orði sem stóð á prenti þegar ég var barn og við yngri vissum fljótlega að var alls ekki þannig, þá held ég því miður að þótt ekki sé nema brot af því sannleikur sem fjölmiðlar bera á borð fyrir okkur núna þá er það miklu meira en nóg. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

12.2.2009 kl. 20:54

Enn frosið fyrir skriftir.

Hjördís Kristjánsdóttir

10.2.2009 kl. 7:13

Óska tengdasyninum

til hamingju með 50 ára afmælisdaginn og 2 ára brúðkaupsdaginn

Guðrún besta frænka

9.2.2009 kl. 21:24

Já Guðrún " besta frænka"

Það kom það sama út og þú segir, snjáldur er andlit og skinna vísar í að handritin voru skrifuð á skinn. En þáttinn getur þú hlustað á á netinu í 2 vikur eða meira . þá ferðu inn á ruv. is
og rás 1, dagskrá. Þá færðu upp vikuna nýliðnu og getur merkt á laugardag. þá sérðu þennan þátt og klikkar á hann og getur heyrt þetta eins og það leggur sig. En þetta með snjáldrið var nú í mínum uppvexti finnst mér meira tengjast dýrum en mönnum,t.d. talað um músarsnjáldur og í Dýrafræðinni sem ég lærði í barnaskóla var líka dýrategund sen hét snjáldurmús. Einkum vegna þessa finnst mér þetta leiðinlegra nafn.

Hjördís Kristjánsdóttir.

9.2.2009 kl. 19:59

Dísa gaman væri að vita hvað kom út úr

þessum þætti Orð skulu standa hvaða merkingu gaf hann upp um orðið snjáldurskinna Ég hef heyri snjáldur sama og andlit enda oft heyrt þurrkaðu þér um snjáldrið væni sb þurkaðu þér í framan os skinna samanber skinn sem ritað var á hér áður fyrr og finnst mér það nú betra en fésbók En Hvað með það héðan allt gott Særún Birta að fara í hálskirtlatöku í fyrramálið og verður heima í 2 vikur á eftir fær heim með sér verkefni fyrir skólann. Annars allt gott búið að vera alveg dýrðarveður í nokra daga Kveðja

Guðrún besta frænka

9.2.2009 kl. 10:47

Þá er enn ein helgin búin

Góðan dag, þá er nú byrjuð enn ein vinnuvikan og góð helgi liðin. Ég stóð við það að kaupa mér súran pung og Palli fékk líka hákarl á föstudagskvöld, síðan fórum við í þorrahlaðborð til Jóns Inga og fjölskyldu í Keflavík á laugardagskvöld, þannig að loksins er maður nú búinn að borða helling af þorramat, í gær fórum við svo með börnin á skíði, við byrjuðum á að fara í Bláfjöll en þá var lokuð brekkan sem Særún ætlaði sér að fara í svo við bara brunuðum líka í Skálafell og veðrið var svo yndislegt, Særún fór nokkrar ferðir og Ari fékk líka leigð skíði og var duglegur að renna sér en þetta var í fyrsta skipti sem hann fór á skíði, þetta var bara rosalega gaman og mjög hressandi að vera svona úti að leika sér í blíðunni. Við elduðum svo kjöt og kjötsúpu þegar við komum heim og buðum Sigga og Mikael til okkar í mat.
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

9.2.2009 kl. 8:54

Heil og sæl öll.

Og bestu þakkir fyrir síðast ,þið sem voruð í afmælisveislu Óla Hjartar á laugardagskvöldið á Bjarnarstöðum.Ég var að velta þessari "facebook "fyrir mér. Ég kíkti í anddyrið á fyrirbærinu. Sá að það þurfti aðgangsorð og svoleiðis, enda kannski von ef það tíðkast að setja inn óprenthæft efni. Svo ég var ekkert að banka upp á, líklega ekki nógu forvitin manneskja að eðlisfari um þá hluti sem á þessari síðu er rætt, þ.e .að ,að því er mér heyrist að miklum hluta ýmis einkamál. Greinilega er þó aðgangurinn opinn ef menn vilja og því varla hægt að búast við að það sem þarna fer inn verði leyndarmál. Ég segi eins og Dika að mér finnst að "skáldin "okkar geti sett inn á ættarsíðuna eitthvað grófhreinsað og skemmtilegt.
Svo er það þýðingin á nafninu "facebook". Í þættinum "Orð skulu standa" á rás 1 núna á laugardaginn voru þátttakendur spurðir um merkingu orða að vanda. Eitt þessara orða var "snjáldurskinna". Ekki einu sinni Davíð Þór hafði hugmynd um hvað þetta gæti merkt. Hefði ég ekki verið búin að sjá þetta orð í notkun hér á síðumm hefði mér verið eins farið og líklega helst stungið upp á að þetta væri hert og þurrkað tófuskinn.
Hins vegar finnst mér "fésbók "ágætt. Fés merkir andlit og bók er bara bein þýðing á bók. Nafnið stutt, þjált og liðugt, bara eins og ærbók. En þetta eru bara mínar hugrenningar. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

8.2.2009 kl. 22:12

Helgin búin.

Góða kvöldið hér, ég sá að enginn hafði þorað að skrifa eftir að Siggi Atla vændi Sigga Hrein um ritsruldur, en mér fannst þetta býsna gott hjá Sigga Hreini, menn verða nú að bjarga sér sjálfir.Skora á ykkur strákar sem eruð alltaf að senda vísur ykkar á milli að leifa okkur hinum að njóta góðs af.Að vísu veit ég að ekki er allt prenthæft en þá er bara að vinsa úr.Hér var haldið upp á 30 ára afmæli Óla Hjartar í gærkveldið og fór það allt vel fram. Anna og Jói komu norður öllum að óvörum og var ósköp gaman að sjá þau eins og reyndar alla aðra sem komu hér og áttu með okkur notalega kvöldstund. Svo erum við gömlu orðin ein eftir í kvöld og ósköp rólegt í kring um okkur.Njótið næstu viku.

Friðrika Sigurg.

6.2.2009 kl. 19:53

ritstuldur

jæja núna nafni minn
nær lætur þér stefni
á facebook síður ferðu inn
og flytur þaðan efni.

kv sigatla

sigurður atlason

6.2.2009 kl. 11:57

Mikið er gott að það er föstudagur

Góðan dag gott fólk, af mér og mínum er allt gott að frétta, ósköp mikil rólegheit yfir öllu. Ég tók því rólega um síðustu helgi vegna þess að það hljóp í bakið á gömlu konunni þegar ég var að lyfta mjólkurpokanum upp í körfuna í Bónus síðasta föstudag og ekki nóg með það þegar ég var búin að stildra út í bíl og koma pokunum inn þá fór drossían ekki í gang, svo ég læsti bara, staulaðist í vinnuna og tók ibúfen og kláraði daginn, síðan lagaðist þetta nú smásaman og ég er bara orðin nokkuð góð. Kvefpest hefur svo verið að hrjá börnin og Ari minn er enn með ansi ljótann hósta, sérstaklega á nóttunni, en þetta er víst tími pestanna, og líka búið að vera svo mikið frost.
Ég má til með að segja ykkur þó sérstaklega frænkum mínum sem ég hitti í góða frænkuboðinu á bóndadaginn að ég er ekki enn búin að fá mér súran pung svo við hjónaleysin höfum ekki enn átt rómantíska stund með hákarl og hrútspung og langt liðið á þorrann, ég held ég verði nú að bæta úr þessu um helgina.
eigið góða helgi
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

6.2.2009 kl. 10:35

Hef fallegt útsýni hér í vinnunni

En við mér blasir Esjan í allri sinni dýrð, snjóhvít og sólin skín á snæviþaktar hlíðar hennar. Krummi gerir sig heimakominn hér við skrifstogugluggann minn og heldur örugglega að ég ætlai að gefa honum eitthvað. En 6. bekkur er að baka gamaldags lummur og ilmurinn því indæll. Börnunum finnast lummur góðar en mörg hver þekkja þær ekki.
Ég er ánægð að það er kominn enn einn föstudagurinn en hér er "hippaþema" í dag og svo teiti í kvöld hjá aðstoðarskólastjóranum en ég reikna nú ekki með að mæta þar. Eiríkur ætlar að taka þátt í leikja og spilamaraþoni í dag frá kl. 18.00 til 18.00 á morgun en þau eru að safna fyrir nýjum tækjum í félagsmiðstöðina Hólinn í Digraensskóla. Flott framtak og eins gott að vera til staðar ef eitthvað vantar.
Góða helgi kæru ættingjar og vinir.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

5.2.2009 kl. 19:24

Sælt veri fólkið

Héðan er bara allt gott að frétta af minni fjölskyldu Jón er kominn á sjóinn og verður úti í 20 daga svo 18 daga í landi það á að reyna að halda skipunum úti við gæslustörf með þessum hætti alltaf annað skipið úti og hitt í landi gott á meðnan svo er Særún Birta á að fara í hálskirtlatöku þann 10 febrúar og verður frá skóla í tvær vikur . Hér er búinn að vera brunakuldi 9 stiga frost í morgun og dag ansi kalt fannst mér að ganga milli staða í dag.Ansi fynnst mér Jónas frændi minn vera orðinn gamall á myndinni sem nú prýðir forsíðu vefsins mér hefur alltaf fundist hann svo unglegur og ekkert eldast en það er greinilega ekki rétt hjá mér og finnst mér hann líkjast Kristjáni bróður sínum á þessari mynd hef aldrei séð að þeir væru líkir Það er gott að þið eruð búinn að fá prest þetta hlítur að vera góður prestur hef heyrt vel af honum látið hér sunnan heiða . Annasr allt gott og gott í bili Kveðja til ykkar allra

Guðrún besta frænka

5.2.2009 kl. 10:15

Ég var búin að skirfa hér....

langan pistilí gær en þá fraus allt hér í orðsins yllstu merkingu :-) og ég týndi öllu saman. En ég geri aðra tilraun hér. En hér var 10 gráðu frost í morgun og stjörnubjartur himinn kl. 6.00 þegar við mæðgin bárum út Morgunblaðið, en núna hefur skýjum fjölgað á himni en sést í heiðrýkju hér og þar.
Ríkisstjórnin já.... hún hefur mörg verkefni og óska ég henni alls hins besta en veit að hún er ekki öfundsverð og tekur ekki við góðu búi. En sjáum til. Það hefur verið mikið að gera hjá mér í minni vinnu, alls konar mál komið upp sem verið er að leysa og vonandi ganga þau upp. Það mætti alveg vera meira að gera hjá Kidda en það vonandi eykst með hækkandi sól. Eva Margrét var að klára prófin í gær og vonandi hefur það allt gengið vel. Ég óska ykkur til hamingju með nýja prestinn hann Bolla en hann var prestur hér í Seljakirkju og hef ég ekkert heyrt nema gott um hann og þá aðallega í gegnum nemendur mína.
Ég vona að seinni hluti vinnuvikunnar gangi vel hjá ykkur og þið eigið góða helgi. Já og ég hvet alla til að tjá sig hér á síðunni og endilega að koma að hér svona kveðskap. hann er svo skemmtilegur.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

5.2.2009 kl. 8:57

Já nú er frost á Fróni

og sennilega frosið fyrir skrif hér nema hjá okkur mæðgum.
Var að lesa hér um nýjan prest í Laufásprestakalli og vona að þar sé vel valið.
Skemmtilegt innlegg hjá Sigga af fésbókinni en tek undir með honum að umræddir hagyrðingar mættu láta eitthvað flakka beint hér inn.
Hef óljósan grun um að skrifendur þessarar síðu séu sem sagt líka að tjá sig á fésið en komist síðan ekki yfrir að kíkja á ættarsíðuna. Eða hafa menn ekkert að segja eftir að komin er ný rískisstjórn. Góðar óskir inn ´´i daginn. Malla

Marína sig

5.2.2009 kl. 7:59

Ritstífla?

Góðan og blessaðan daginn.
Mér finnst nú ekki að ég eigi að þurfa að kvitta í annað hvert skipti en það er eitthvað dauft yfir skriftunum núna. Við fórum á opið hús fyrir aldraða í Stórutjarnaskóla sl þriðjudag og það var góð mæting ég vil hrósa Aðaldælingum fyrir góða mætingu þar. En við vorum nú bara að fara í fyrsta skipti á vetrinum þangað og erum búin að fara einu sinni í Breiðumýri fyrir jól svo við eigum ekkert hrós skilið, enda orðin öldruð og þetta er langt , milli 80-90 km báðar leiðir. En þetta var tilbreyting og skemmtun. Í hádeginu í gær heyrði ég í útvarpi að valnefnd úr sóknarnefndum Laufásprestakalls hefði valið okkur prest úr hópi sex umsækjenda. Séra Bolli Pétur Bollason hefði verið valinn og við bjóðum hann velkominn. En við höfum ekki séð hann og vitum lítið um hann nema að hann er sonur séra Bolla Gústafssonar og uppalinn í Laufási, en kemur úr fjölmennu prestakalli í Reykjavík þar sem hann hefur getið sér gott orð. Nú er Þorrinn senn hálfnaður og má segja eins og Kristján Jónsson kvað "Nú er frost á Fróni", það er 12- 14°frost og fer í 9°yfir hádaginn. Læt þetta nægja núna. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

1.2.2009 kl. 21:50

1. febrúar, nýr mánuður ný ríkisstjórn, nýir tímar?

Hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Ég get nú glaðst yfir því í dag að tími Jóhönnu Sigurðardóttur sé loksins kominn og það eru þá verkefnin sem blasa við henni og hennar ráðuneyti. En víst er að ekki er hún þekkt fyrir að skara elda að eigin köku og gleyma fyrir hvað og hverja hún stendur.
Anna Marit kom hér við í kvöld eftir að hafa heimsótt Kristínu og nú eru betri fréttir af henni. Vökvinn horfinn sem var við hjartað og heimferð á allra næstu dögum. Við óskum Krístínu góðrar heimferðar og vonum að smá saman verði bataskrefin stærri og öruggari.
Hér hefur verið kalt og falleg vetrarveður í dag og fátt á afrekaskránni minni en þó fórum við Jói á sýningu á ullarmyndum Friðriku systur í Norðurport í dag. Norðurport er norðlenskt Kolaport sem opnaði í gær í gömlu sjóbúðinni við Laufásgötu. Þar ægir saman allskonar vörum og drasli og svo er kaffistofa þar sem sýning Friðriku er. Kæra systir til hamingju með sýninguna þín.
Þarna situr kona og spáir í bolla fyrir 1000 kr. Áttaði mig ekki á henni fyrr en við vorum að fara og þá var hún upptekin svo ég verð að freista þess að láta spá fyrir mér síðar.
Árshátíð Oddeyrarskóla var í gær og þar tók Sævar minn þátt eins og allir aðrir nemendur skólans. Ljómandi skemmtun.
Í gærkvöldi hittumst við fjölskylda mín og Nonna og borðuðum saman þorramat. Hemma og Níels voru einnig með okkur en Níels er áhuga maður um vel verkaðan og bragðmikinn mat. Við áttum saman indælt kvöld og ilmur af hákarli og harðfiski liggur enn í loftinu hér í Norðurgötu.
Bestu kveðjur og óskir um góða vinnuviku. Malla

Marína Sig.

1.2.2009 kl. 10:58

1. febrúar.

Þá er janúar búinn og hefur okkur hér oft þótt hann leiðinlegasti mánuður ársins og var þessi ekki undantekning hvað veður áhrærði. Þótt ekki hafi snjóað nein ósköp og ekki miklir stormar hefur myrkrið og kuldinn verið mjög uppáþrengjandi utandyra en ekki þurfum við að kvarta að nóg er ljós og ylur inni, ekki er kreppan komin svo langt og fer vonandi ekki. Svo er ný ríkisstjórn væntanleg í dag og mun ekki af veita að biðja guð að hjálpa henni að finna færar leiðir til að stýra þjóðarskútunni.Mér detta í hug sögur af skipstjórum sem voru að reyna að komast til Íslands með matbjörg gegnum hafísinn sem umkringdi landið oft og tíðum á 19. öldinni og í landi var fólkið oft búið að bíða lengi eftir skipakomum. Ef þið hafið ekki séð Bændablaðið þá vek ég athygli ykkar á því að í tveimur síðustu blöðum er fjallað um Bárðardal og Bárðdælinga, en Bændablaðið er eitt af þeim blöðum sem liggja í sjoppum og á bensínstöðvum og hægt er að taka frítt.Gaman að sjá loks myndirnar úr frænkuboðinu og skemmtilegt að stofna til kynna og tenglsla með þessum hætti.
Það er fannhvít breiða og sólskin með 9°frosti hér í morgun, vetrarfegurð í hámarki.
Jónas og Kristín hvernig gengur svo hjá ykkur ? Við höfum ekki gleymt ykkur þótt þið séuð komin á heimaslóðir. Það er bara fyrsta vers að baki og vonandi þokast þetta hægum skrefum upp á við með hækkandi sól. Áfram baráttukveðjur. Verið öll blessuð og sæl. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

31.1.2009 kl. 19:22

Jæja gott fólk allar myndirnar

komnar loksins í frænkuboðsreitinn hérna Þökk sé Sigga frænda hann gat tekið þetta af snjáldurskinnunni minni og sett ínn njótið velkveðja besta frænka

Guðrún besta frænka

30.1.2009 kl. 22:48

Það var mikið að það kæmu myndir

en það vantar inn fleiri hópmyndirnar þær þurfa að koma líka vona að næst besta frænka fái allar myndirnar sendar Allt gott héðan snjór og fallegt veður í Reykjavík í dag

Guðrún besta frænka

29.1.2009 kl. 9:33

allt í rólegheitum og lítið að frétta

Góðan dag kæra frændfólk, það er eitthvað svo langt síðan ég skrifaði hér, en það er einhvernveginn ekki mikið að frétta. Já það er töluverður snjór yfir öllu og það góða við það er að það birtir dálítið, annars finnst mér janúar hafa liðið fljótt svo það styttist bara í vorið. Ari litli er mjög spenntur því hann er að fara að keppa í fyrsta sinn á handboltamóti um helgina og svo fær hann "snúlla" heim um helgina en það er stór bangsi sem börnin á leikskólanum skiptast á að fá heim með sér eina helgi og hann er búinn að bíða lengi lengi, en það komu læknanemar á leikskólann að lækna snúlla í gær því hann er búinn að vera veikur þannig að þegar við fáum hann heim þá verður hann með meðal með sér sem hann fékk í gær og á að taka í viku :o) þannig að það verður nóg að gera hjá okkur um helgina. Í famhaldi af þessari heimsókn læknanemanna verður svo hægt að fara með bangsann sinn til læknis á barnaspítalann á laugardaginn og þá verður maður að vera búinn að ákveða hvað er að bangsanum og hann fær meðferð í samræmi við það en tekið fram að það verður ekki saumað í rifna bangsa heldur bara settur plástur og þessháttar :o) Jæja það er frekar rólegt í vinnunni svo maður verður bara værukær og fær sér síðan of marga kaffibolla
eigið góðan dag
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

29.1.2009 kl. 9:07

Snjór í höfuðborginni

Góðan daginn!
Hér er LOGN og snjór og fallegasta veður núna í morgun. Ég hef enn ekki fengið sendar neinar myndir úr frænkuboðinu á föstudaginn var og bíð bara spennt! En ég var ekki með neina myndavél sjálf. Hjá okkur er allt í rólegheitum, Eiríkur er reyndar kvefaður og slappur og er því heima í dag. Eva Margrét er í prófum alla þessa viku. Ég vona að þið eigið góðan dag.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

26.1.2009 kl. 19:26

Ég á enga hópmynd úr frænkuboði

þess vegna hef ég ekkert sent beið eftir að myndirnar sem Dísa tók af okkur öllum myndu skreyta forsíðuna. Svooo myndarlegur kvennaskari það. Njótið kvöldsins Malla

Marína Sig

26.1.2009 kl. 11:52

Skemmtilegt frænkuboð

Eins og fram hefur komið heppnaðist frænkuboðið vel og vel þess virði að gera þetta að hefð og reyna að haga því þannig að sem flestar já og flestir geti notið. Takk fyrir mig Guðrún. Ég set inn myndir um leið og ég fæ þær sendar.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

25.1.2009 kl. 19:14

Góð tillaga frá þér Malla

og ég bara panta að hafa bómdadags súpuna meðan ég eitthvað get gert Hvað segið þið um það frænkur ? Aðra frænku fundi skiptist þið hinar á að hafa Kveðja

Guðrún besta frænka

25.1.2009 kl. 17:52

Þorrablót.

Þá er þorrablótið okkar að baki og tókst í alla staði mjög vel.
Um 240 manns voru á staðnum og hvert heimili í Bárðardal hefur rétt til þátttöku og kemur með sinn mat í trogi eða öðru eða öðru íláti og velur sér mat við hæfi. Til dæmis hefi ég aldrei súrmat í troginu þvi hann borðum við alla daga ársins í morgunmat og með honum skyr eða hafragraut með mjólk út á og ég fæ ekkert út úr því að borða hann einan sér eða skola honum niður með öli eða einhverju sterkara. Við Geiri erum bæði þannig. Í mínu trogi er hangikjöt, bæði feitt og magurt og auðvitað kofareykt heima. Magáll , harðfiskur , smjör, mikið af því, svið, rúgbrauð flatbrauð, laufabrauð, hákarl, kartöflu og rófustappa og svo úrval af drykkjum óáfengum og áfengum. Söngtextar á borðunum, mikill fjöldasöngur, að þessu sinn var stjórnandi hans formaður þorrablótsnefndar Ingólfur Víðir bóndi á Úlfsbæ og brilleraði alveg við undirleik Kidda Halldórs frá Húsavík á gítar.Dagskráin unnin ýmist á myndbönd eð leikin beint með skensum og skotun á sveitungana. Þorrablótsnefnd bauð nýjum sveitarstjóra , Tryggva Harðarsyni úr Hafnarfirði og frú hans og bað þá um að fá að taka með sér tvo aðra gamla félaga ásamt konum þeirra. Voru það Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði og bæjarstjórinn í Garðabæ, ættaður úr Hafnarfirði.
Ekki höfum við frétt hvernig bárðdælskir þorrablótssiðir lögðust í Gaflarana. Nú finnst mér líklegt að plássið sé þrotið . Sendum öllum bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

25.1.2009 kl. 17:04

Kæra frændfólk

sunnan og norðan heiða, bestu þakkir fyrir ánægjulega fjölskyldusamveru fyrst hjá Guðrúnu Frænku og síðan á þorrablóti í Bárðardal á laugardagskvöld. Allt mjög vel heppnað eða eins og ég sagði við frænkur mína í frænkuboði Alveg við hafsbrún hugsjónanna.
Með hefðirnar lýst mér vel á og þá er spurning hvort ekki verður að koma á bóndadagssúpu á höfuðborgarsvæðinu og svo sumarsúpukvöldi hér á Norðurlandi t.d. í Kiðagili á eftir Lummukaffi þar sem allir eru velkomnir hvort sem þeir eru frændur eða frænkur. Ég á nú alltaf svo gott með að koma með hugmyndir svo verður bara að láta á það reyna hvernig tekst til með framkvæmdina. En frænkuboð og Lummukaffi hafa hvoru tveggja tekist mjög vel, eða eruð þið ekki sammála? Hlakka til að sjá myndirnar úr frænkuboðinu á síðunni. Þ.e. þær sem Dísa tók af hópnum. Bestu kveðjur Malla

Marína Sig.

25.1.2009 kl. 9:15

Jæja þá er þorrinn gengin í garð

með öllum sínum þorrablótum súrum og reyktum og kæstum mat En frænkuboðið hér á Kleppsveginum tókst vel og var mjög gaman Súpan smakkaðist vel að ég held Myndir komnar á snjáldurskinnuna og koma vonandi fljótt hér inn a þessa síðu Malla hefur vonandi náð að blóta þorra í Bárðardalnum Er búin að heyra frá Sibbu henni fynnst að þessi samfundur ætti að varða hefð og vonandi næði hún einhverntíma að vera með Þetta með hefðina kem ég hér á framfæri.Þetta er reglulega gaman að hittast svona og rækta frændsemina Annars allt gott Kveðja

Guðrún besta frænka

23.1.2009 kl. 22:16

Mánuður síðan ég skrifaði síðast

svo það er kannski rétt að kvitta hér. Engar fréttir svosem af mér og mínum nema góðar. Hér halda allir vinnu þó kannski hafi staðið tæpt á tímabili. En allt horfir bara vel fyrir okkur. Vona að frænkur mínar sem eru þessa stundina í mat hjá móður minni hafi það gott og skemmti sér. Ég verð bara hitta þær síðar þegar karlar eru velkomnir líka. Svo vona ég að ég verði boðinn í súpu til móður eftir mánuð. Í baunasúpuna það er að segja. En hafið það sem best og góða skemmtun á þorrablóti í Bárðardalnum annaðkvöld.

Jón Árni Árnason

23.1.2009 kl. 17:53

Enn og aftur...

Haha, tek líka eftir því að færslan sem ég skrifaði áðan kom ekki öll inn... þið fáið þá bara resta síðar! ;)

Anna Sæunn

23.1.2009 kl. 17:49

Af hverju les maður aldrei fyrirsagnirnar yfir?????

Jæja ég kom boðskapnum til skila... það er bara ekki hægt að eyða endalausum tíma í prófarkarlestur gestabókarskrifa! :Þ

Anna Sæunn aftur

23.1.2009 kl. 17:48

Jæja það koma að því! :)

Jæja það er að verða heldur langt síðan ég hef tekið þátt í umræðum hér og held það sé kominn tími til að fara að láta heyra í sér! :) Annars er ég nú að fara á frænkukvöld núna á eftir en ég ætla samt að koma með helstu fréttir hérna til að láta svona aðeins vita af mér.
Nú eru næstum 2 vikur síðan við Jói fluttum til Hauks (afa Jóa) í Kópavoginum og Jói er kominn vel af stað í skólanum. Hann var t.d. á svakalegri boot camp æfingu í alla nótt, voru þau meðal annars látin vaða í Elliðaánum og hlaupa upp á Úlfarsfell, svo ég fékk uppgefinn mann heim til mín kl 9 í morgun! :) Hann er búinn að vera sofnadi í allan dag svo ég skrapp í Kringluna áðan og vakti hann þegar ég kom heim með bóndadagsblómum, ekki amalega eiginkona ha? ;)
Ég hef aftur á móti ekki beinlínis haft mikið að gera, þar sem ég er búin að vera bæði skóla og atvinnulaus, en samt tekst manni nú alltaf einhvern veginn að hafa nóg að gera, sækja um vinnur, redda skólamálum, fara í ræktina, út að hlaupa, sinna Kiðagilsmálum, hitta vini og ættinga ásamt fleiru. Þessar tvær vikur eru satt að segja búnar að vera alger óvissa því ég var búin að sækja um nám í Einkaþjálfun sem hefst núna í lok janúar og inntökuferlið er svolítið strangt núna svo ég fékk ekkert að vita fyrr en í gær, en ég er sem sagt komin inn! :) Svo það er allavega gott að hafa það á hreinu, fór í dag og keypti bækur og svona. Ég er líka búin að vera að auglýsa grimmt í neglur hjá mér til að hafa smá vasapening og það er að komast af stað smá bissness í því, eins og ég segi, maður bjargar sér bara einhvernveginn, ef vinnan kemur ekki til manns, fer maður til vinnunnar!! :Þ Annars var ég nú búin að sækja um á nokkrum stöðum svona upp á grínið og átti nú ekki beint vona á bjáluðum viðbrögðum, en fékk óvænt símtal núna áðan og var beðin að koma í atvinnuviðtal á mánudaginn svo það má segja að þetta sé allt að fara af stað bara, stundum þarf maður greinilega bara að vera þolinmóður! ;)
Annars líka Jóa rosalega vel í skólanum, hann blómstrar alveg, þrátt fyrir að ég sé kannski ekki hamingjusamasta unnustan þessa dagana með starfsvettvanginn sem virðist nú fara að flokkast með þeim heldur áhættumeiri, miðað við atburði síðustu daga, en við skulum bara vona að það rætist úr þessu ástandi á næstu mánuðum, það eru blikur á lofti! :) Annars heyrði ég ansi gott orð um daginn um þetta ástand okkar hérna, þ.e. mér er hálf illa við að kalla þetta beinlínis kreppu því skilgreiningin á orðinu kreppu segir meðal annars til um að allave

Anna Sæunn Ólafsdóttir

www.annasaeunn.bloggar.is

23.1.2009 kl. 15:55

Bóndadagsskrif.

Ja ekki veit ég hvað úr þessu verður einhverjar villur á ferð en prófa að pára hér eitthvað. Ekki á nú bóndinn á þessum bæ neitt betri dag en venjulega ég mundi nú ekki eftir að það væri bóndadagurinn fyrr en mjaltir voru vel á veg komnar í morgun, en bauð honum þá að hann gæti lagt sig þegar inn væri komið og ég skyldi færa honum morgunmatinn í rúmið þá.Hann sagðist nú frekar vilja borða sitjandi við eldhúsborðið eins og vanalega,( enda aldei fengið morgunmatinn í rúmið eftir að okkar sambúð byrjaði). Gamli Óli og Óli H eru út í Kiðagili að undirbúa þorrablót en við Óli Skag erum hér heima við undibúnig líka sjóðum hangikjöt og höldum að við séum að laga til.Mikið væri nú gaman að vera með ykkur þarna í frænkuboðiu í kvöld en bið bara að heilsa ykkur öllum og vona að þið skemmtið ykkur vel.Gott að sjá hér að allt gengur eðlilega hjá Kristíu og að þau séu komin norður.Einn orðinn leiður á þessum skrifum hjá ömmu sinni vill að hún geri eitthvað þarfara. Bestu kveðjur og gangið hægt um gleðinnar dyr um helgina.

Friðrika Sigurgeirsdóttir

23.1.2009 kl. 9:42

Til hamingju með bóndadaginn

og Jónas og Krístín nú er erfiðasti hjallinn að baki og hækkandi sól framundan eins og í náttúrunni. Sendum hlýjar baráttukveðjur og biðjum þess að ykkur sé gefinn kjarkur og æðruleysi til að takast á við framhaldið.
Svo er það helgarverkefnin hjá mér. Ég fer suður milli 11 og 12 í dag og er á námskeiði til kl 16. 30. Mín kæra systir Guðrún er alltaf einkabílstjórinn minn og sækir mig þá og við náttúrlega undirbúum okkur fyrir frænkuboðið sem ég hlakka mikið til. Mér lýst vel á matseðilinn hann er góður undirbúningur fyrir þorrablótið sem við hjón ætlum á í Bárðardal annað kvöld um leið og ég kem aftur norður.
Allir mínir karlar verða sem sagt að bjarga sér á bóndadaginn og fá enga sér þjónustu. En Jói er þó svo heppinn að vera að fara á þorrablót með Lionsklúbbnum sínum í kvöld svo ég hef ekki eins slæma samvisku:-) og strákarnir fá kofareykt Lundarbrekkuhangikjöt í kvöldmat sem er nú eiginlega fastur matseðill hér á bóndadaginn. Þeir feðgar allir eru einstakir hangikjötsunnendur. Svo vel er nú séð fyrir þessu öllu.
Njótum þess að sól fer að hækka á lofti þó við vitum ekkert um hana í þessari slabb og slyddutíð. Góðar bóndadagskveðjur. Malla

Marína Sig.

23.1.2009 kl. 9:10

Til hamingju með daginn bændur!

Hér er alveg þokkalegt veður í dag en var leiðinlegt í gærkvöldi og fram á nótt. Mikil hálka á gangstéttum.
Hlakka til að hitta ykkur í kvöld þið sem komist í frænkuboðið hjá Bestu frænku.
Góða helgi

Guðrún Sigurgeirsdóttir

22.1.2009 kl. 20:49

Jæja þá er grunnurinn kominn

að súpunni annað kvöld og er nú hægt að upplýsa þá sem langar til að vita hvaða súpa verður Ítölsk grænmetissúpa með steina bökuðu brauði og snittubrauði með tvenskonar pesto, Kaffi og ostar og vínber á eftir Þetta er nú matseðillinn bóndadaginn 23 janúar 2009 Kveðja

Guðrún besta frænka

22.1.2009 kl. 10:12

Það er einhver bilun í sambandinu í morgun. Fyrsta tilraun hjá mé fó ekki og hausinn vantaði á næsti

hvernig sem þetta verður.

Hjördís Kr.

22.1.2009 kl. 10:07

Var einmitt að bíða eftir að frétta hvort þið væruð komin norður . Biðjum þess að allt gangi nú áfram vel og sendum ykkur Kristínu, Jónasi, Aldísi og öllu hinu fólkinu ykkar áfram hlýjar hugsanir og baráttukveðjur.
Engar sérstakar fréttir hér. Snjór yfir og snjóar eitthvað flesta sólarhringa. en ekki mikið magn.Verið að undirbúa þorrablót í Kiðagili n.k. laugardagskvöld. Veðurspá var ekki góð en hefur heldur skánað. Bestu kveðjur til lesenda síðunnar . Dísa.

Gott að fá þessar fréttir.

21.1.2009 kl. 22:47

Yndislegar fréttir Jónas

vonandi gengur allt vel áfram við hér á Kleppsveginum sendum ykkur baráttukveðjur og knús á litlu prinsessuna Kveðja

Guðrún Jónsdóttir

21.1.2009 kl. 22:22

Aftur smá fréttir

Sæl öll
Jæja þá erum við hjónakornin komin norður til Akureyrar.
Kristín verður á sjúkrahúsinu fram á laugardag til ðryggis.
Allt gengur samkvæmt áætlun, en mikil uppbyggingarvinna framundan næstu mánuði.
kveðja Jónas.

Jónas Baldursson

19.1.2009 kl. 18:26

Halló halló frænkur mínar

þá nálgast nú stóra stundin og ætla ég að biðja ykkur að koma hér á Kleppsveg 142 kl 19.00 vona að ég komist nógu´tímanlega heim til að taka vel á móti ykkur Hittumst hressar og kátar Kveðja

Guðrún besta frænka

19.1.2009 kl. 14:47

Fín helgi

Sæl öll!
Helgin var ljúf og róleg. Gengum áleiðis á Esjutopp á sunnudaginn en ungu dömurnar í ferðinni voru ekki skóaðar til að fara seinni hlutann. Það verður gert fljótlega.. en við erum búin að panta Palla til að fylgja okkur alla leið. Fórum einnig í Nauthólsvík og gengum þar með ströndinni. Vorum nánast úti frá 10.30-17.30 og leið manni virkilega vel í gærkvöldi að hafa notið svo mikillar útiveru. Við elduðum okkur góðan mat á laugardagskvöldið í tilefni af afmæli Kidda og áttum gott kvöld fjölskyldan. Ég tók út sólbaðssvefnmyndirnar frá Reykhólum :-) Siggi og við munum senda þér eina góða af KK fyrir næsta afmæli :-). Og endilega þið sem eigið afmæli sendið nýlegar myndir af ykkur á mig eða Sigga ef ekki eigið þið á hættu að fá einhverja eldgamla mynd af ykkur á forsíðuna eða bara mynda af einhverjum öðrum. Eigið góða vinnuviku. Hlakka til að fara í súpuboðið á Bóndadaginn!!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

19.1.2009 kl. 11:29

Gott að hafa alltaf eitthvað að hlakka til........

Góðan dag og afmælisbörn um helginga innilegar hamingjuóskir, ég hef ekki farið inn á síðuna síðan á fimmtudag en ég var í fríi í vinnu á föstudag en ég lét draga úr mér endajaxl á föstudagsmorguninn og tók því rólega eftir það, síðan var ég tölvulaus heima á föstudag en þið vitið að það er alltaf eitthvað tæki á mínu heimili í viðgerð..........
Já ég er líka farin að hlakka til að hitta frænkur mínar á föstudagskvöld en tvær þeirra hef ég allavega ekki hitt í mörg ár, hverjar skyldu það nú vera :o)
helgin var mjög róleg hjá mér, gerði lítið nema lesa og slappa af í gær en var með gesti í mat á laugardagskvöld, einnig heimsótti ég Kristínu tvisvar og allt er á réttu róli hjá henni og hún útskrifast líkalega á morgun eða hinn.
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

18.1.2009 kl. 23:25

Helgin

Kvöldið. Allt gott úr Glaðheimum. Sunnudagaskóli og ferð í Húsdýragarðinn í góða veðrinu stendur upp úr í dag. Ragna og börn komu í vöfflukaffi í gær og viðGlaðheimafjölskyldan fórum í kvöldverðarboð í gærkvöldi og í kaffboð í dag. Ljúf helgi, hlakka til að hitta frænkur mínar í frænkuboði næstkomandi föstudagskvöld.
kv. Elma

Elma

17.1.2009 kl. 20:58

Takk fyrir afmæliskveðjurnar

Kæru gestir á síðunni!
Ég þakka kærlega fyrir kveðjurnar til mín í dag á 47 ára afmælinu. Alltaf jafn ungur.... Siggi Hreinn það mætti nú alvega endurnýja þessa 14 ára gömlu mynd af mér :-)

Bestu kveðjur
Kiddi

Kristófer Kristófersson

17.1.2009 kl. 8:11

Þökkum góðu fréttirnar Jónas.

Bestu kveðjur og óskir um góðan bata framvegis. Hér gengur lífið sinn vanagang.Í fyrra gaf Óskar Pétursson út geisladisk sem heitir "Aldrei einn á ferð". Þar syngur hann samnefnt lag, höf Rogers/ Hammerstein. Texti .höf. óþekktur. Hér sýnist mér komin þýðing á þeim enska sem þú settir inn Rúna mín.
Aldrei einn á ferð.
Meðan veðrið er stætt
berðu höfuðið hátt
og hræðstu ei skugga á leið.
Bak við dimmasta él
glitrar lævirkjans ljóð
upp við ljóshvolfin björt og heið
þó steypist í gegn
þér stormur og regn
og þó byrðin sé þung sem þú berð
þá stattu fast og vit fyrir víst
þú ert aldrei einn á ferð.

Hvað góð þessi þýðing er legg ég ekki dóm á , en þetta hlýtur að vera sami textinn.Sendi ykkur þetta með ósk um góða helgi . Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

16.1.2009 kl. 17:31

Yndislegar fréttir Jónas

og kær kveðja til Kristínar með ósk um áframhaldandi góðan bata Kveðja

Guðrún besta frænka

16.1.2009 kl. 16:38

Smá fréttir

Sælt veri fólkið.
Við þökkum hlý orð og hugsanir til okkar á síðustu dögum. Allt gengur nú betur Kristín farin að arka eftir göngunum oft á dag. Reiknum með að fara norður á mánudag eða þriðjudag .
Kveðja Jónas og Kristín

Jónas Baldursson

16.1.2009 kl. 15:51

Orð i tíma töluð frænka

við göngum aldrei ein Allt gott fra þessum bæ Er farin að hlakka til samfundarins næsta föstudag get varla beðið Lifið heil og brosið við hvot öðru þá verður lífið skemmtilegt Og baráttu kveðjur til ykkar Kristín mín og Jónas Kveðja

Guðrún besta frænka

16.1.2009 kl. 14:14

Föstudagur

Sæl veri þið!

Hér á bæ er lífið með rólegasta móti, allir á sínum stöðum á daginn og svo heima á kvöldin eða þannig :-). Ég er búin að fara í bíó og sjá Sólskinsdrenginn og mín skoðun er eignilega sú að það ættu allir að reyna að sjá myndina hún er vel þess virði og eiginlega alveg stórkostleg. Það hefur ekki nein flensa stungið sér niður hjá okkur enn 7 9 13 og gerir vonandi ekki. En hér í skólanum hafa verið töluverð veikindi.
Ég vona að allt gangi vel áfram hjá ykkur Kristín og Jónas og að batinn komi í rólegheitum Kristín mín, tíminn vinnur með manni í bataferlinu.
Ég ætal enda þennan pistil á einu góðu ljóði reyndar á ensku en stendur samt fyrir sínu:

When you walk through a storm
hold your head up high
And don't be afraid of the dark.
At the end of a storm is a golden sky
And the sweet silver song of a lark.
Walk on through the wind,
Walk on through the rain,
Tho' your dreams be tossed and blown.
Walk on, walk on with hope in your heart
And you'll never walk alone,
You'll never, ever walk alone.
Walk on, walk on with hope in your heart
And you'll never walk alone,
You'll never, ever walk alone

Guðrún Sigurgeirsdóttir

15.1.2009 kl. 9:14

Dagurinn í dag er góður dagur

njóttum þess sem hann hefur upp á að bjóða og reynum að vinna eins vel og okkur er mögulegt úr þeim verkefnum sem hann færir okkur. Er að hugsa til Kristínar og ykkar allra sem eigið ef til vill ekkert góðan dag en jákvæð hugsun getur gert kraftaverk. Svo er gott að hafa eitthvað að hlakka til eins og ég hlakka til súpuboðs, þorrablóts í Bárðardal daginn eftir (eins gott að þorrastórhríðarnar sleppi þeirri helgi) og svo sýnist mér Siggi vera að blása til Lummukaffis n.k. sumar. Bestu kveðjur inn í daginn. Malla

Marína Sig.

14.1.2009 kl. 20:51

Já það held ég nú

bara allar búnar að kvitta og þá get ég verið róleg virðist ætla að vera góð mæting og svo stelpur höfum við það gaman og skemmtum okkur vel Kær kveðja

Guðrún besta frænka

14.1.2009 kl. 19:56

Já og ég mæti í súpuna, ég á jafnvel eftir að

halda frænkusúpuboð á Norðurlandi þegar líður á vetur og þorrablót hafa verið haldin til sjávar og sveita. En nú stefnum við á að sækja bæði þorrablót í Hrísey og í Bárðardal. Annars er allt gott að frétta af mínu fólki og mikið er gott að Kristín er á réttri leið. Kærleikskveðjur til ykkar allra. Malla

14.1.2009 kl. 11:09

Bóndadagur

Ég mæti í súpuna, man ekki hvort ég var búin að tilkynna mig. Annars bara allt gott hjá mér. Snjór, frost og nokkuð bjart veður. Venus hefur verið ótrúelga bjartur síðustu daga og vakið athygli okkar og er eins og hann sé rétt fyrir utan stofugluggann hjá okkur um kvöldmatarleitið þessi síðustu kvöld.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

13.1.2009 kl. 22:22

Búin að ákveða hvaða súpa verður 23 janúar

en ekki gefin upp að svo stöddu Mér sýnist mæting ætla að verða góð allavega 7 stykki vona að Anna Sæunn komi líka er búin að senda henni boð.Yndislegt að heyra að Kristín er á batavegi en þetta tekur sinn tíma eftir svona stóra aðgerð Snjóar í Reykjavík í dag Kveðja

Guðrún frænka

13.1.2009 kl. 11:41

Mikið er gott að fá þessar góðu fréttir af Kristínu

Sendum þeim kveðjur og samgleðjumst. Það verður áreiðanlega gaman í frænkuboðinu spennandi að vita hvaða súpa verður fyrir valinu. Talandi um að ganga á Esjuna þá gekk ég á Esjuna í hópi góðra skólasystkina í Handavinnudeild Kennaraskólans , ég held að áliðnum vetri 1955. Það var kennarinn okkar í listasögu Björn Th. Björnsson sá merkilegi og einstaki karakter, blessuð sé minning hans, sem var ótrúleg ötull að fara með okkur nemendur sína á merkisstaði. M. a. Þingvöll, Keldur á Rangárvöllum , Viðey o.fl. o. fl. Oftast með litlum fyrirvara. Og einhvern daginn að áliðnum þessum vetri var okkur tilkynnt að nú gengjum við á Esjuna. Við vorum ekki í sérstakri gönguþjálfun, en alla daga gengum við í skólann , korter hvora leið, tvisvar til þrisvar í viku gengum við Laugaveginn frá Hlemmi niður á Torg , sendar af skólanum að safna efni í prufur í búðunum o.s. frv. stundum splæstum við í Strætó heim, upp í Hlíðar, en eins oft gengum við til baka. Við gengum niður úr skósólunum og létum svo sóla þá upp á nýtt.
Það var skemmtileg þessi ferð á Esjuna, við fórum í bíl upp á Kjalarnes, gengum einhverja auðvelda leið þarna upp og það fór ekki allur hópurinn sömu leið niður.Við vorum með nesti og dagurinn tekinn í þetta. Svo sannarlega minnisvert og gaman. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

13.1.2009 kl. 10:35

og ég mæti líka í frænkuboð

Góðan dag
ég átti góða stund hjá Kristínu og Jónasi í gærkvöld og hún er öll að hressast, er í eins manns svítu og Jónas fékk líka að vera hjá henni í nótt, ég spurði hvort hann ætlaði þá að dotta í hægindastólnum, en Kristín sagði nei nei hann fær rúm, en Jónas var ekki viss um hvort hann mundi þora að leggjast upp í rúm því þá mundi kanski einhver hjúkka koma og troða þvaglegg í hann................Kristín sagðist hafa verið orðin svo heimavön á gjörgæslunni að hún var farin að segja starfsstúlkunum hvar þær hefðu lagt þetta og hitt ef þær fundu ekki eitthvað, og að large af hönskunum væri í neðstu hillunni :o) hún er aðeins farin að stíga framúr og borða fljótandi þannig að þetta er allt á réttu róli og heldur vonandi bara áfram á sömu braut.
Hún bað mig að skila kærri kveðju til allra með þakklæti fyrir allar hlýju hugsanirnar.
Hafið það sem allra best
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

12.1.2009 kl. 20:49

Súpa og fleira

Sæl öll
Það gerist eitthvað svo lítið að manni finnst maður ekki hafa neitt að skrifa um. Við fjölskyldan áttum notalega helgi í yndislegu veðri, fórum í sund og kaffiboð. Buðum vinum í mat og nutum þess að gera sem minnst. Þráinn er farinn austur í Haukadal að vinna og verður þar þessa vikuna. Svo er bara brjálað að gera í vinnunni eins og alltaf. Við Ingjaldsstaðasystur mætum galvaskar í súpuna á bóndadaginn :-) Við biðjum svo fyrir bestu batakveðjur til Kristínar héðan úr Glaðheimunum.
kv. Elma

Elma

12.1.2009 kl. 19:59

Nei ó nei Malla mín ég klikka ekki

Það styttist í hittinginn hjá okkur og ég er með heilann á fullri ferð að ákveða hvaða súpu skal bjóða upp á En það væri gott ef ég fengi einhverja punkta hversu margar frænkurnar verða í súpuna svo ég hafi smá viðmiðun um magnið sem elda skal og auglýsi ég hér með eftir þátttöku ykkar hér og nú. Allt gott héðan þó minna fari um fjallgöngur á þessu heimili en allir frískir og kátir Kveðja

Guðrún besta frænka

12.1.2009 kl. 19:02

Við hlýjar kveðjum sendum

til Kristína og Jónasar með von og vissu um góðan bata það tekur bara tíma að vinna sig upp eftir svona aðgerð. Einnig til ykkar kæru vinir sem senduð Jóa kveðjur og gjafir á fimmtugs afmælisdaginn. Við áttum góða og rólega helgi. Á föstudag bauð ég honum í dekur og síðan út að borða. Við fórum út í Hrísey um hádegi á laugardag og nutum rólegheitanna þar á æskustöðvum hans. Enn og aftur kærar þakkir til ykkar allra frá Jóa.
Ég reikna síðan með að hitta frænkuklúbbinn á bóndadaginn og hlakka mikið til, dettur ekki í hug að Guðrún Frænka klikki á súpuboðinu! Kveðja Malla

Marína Sig

12.1.2009 kl. 15:15

Nú styttist í súpuna hjá bestu frænku

Góðan dag gott fólk, það er einhver ritstífla hérna inni þannig að ég ætla að losa um hana.
Ég var að fatta að það fer bara að koma að frænkuboði, eða er það ekki rétt munað hjá mér að besta frænka bíður í súpu á bóndadaginn? Tíminn líður alltaf svo hratt að maður má hafa sig allan við.
Eitt af markmiðum mínum sem ég setti mér um áramótin var að ég ætla að ganga á Esjuna árið 2009 þannig að ég er strax byrjuð að æfa mig og búin að vera dugleg að fara í gönguferðir á kvöldin og við mæðgur fórum tröppurnar eitt kvöldið en þær ná eiginlega frá vinnunni minni og heim (ekki allir sem þurfa bar að fara tröppur ef þeir labba í vinnuna) Síðan fórum við fjölskyldan í fjallgöngu á laugardaginn, í fallega veðrinu löbbuðum við á Helgafell og Ari hafði það af á toppinn, duglegur strákur, ég held ég verði að safna nokkrum minni fjöllum áður en ég legg í Esjuna en Ari er staðráðinn í að fara á Esjuna áður en hann byrjar í skóla.
Ég sagði ykkur á föstudag að Kristín var útskrifuð af gjörgæslu en síðan þurfti hún að fara aftur á gjörgæslu út af hjartsláttaróreglu og var á gjörgæslunni um helgina svo ég fór ekkert til hennar, en Linda systir hennar hefur farið til hennar ásamt Jónasi sem er hjá henni alla daga. Nú er þetta allt saman á réttri leið hægt og rólega en tekur bara tíma að stilla þetta allt saman rétt og nú er hún komin aftur á deild 12 e núna á stofu 3. Ég er búin að fá grænt ljós á að ég megi kíkja til hennar í kvöld.
Hjartans þakkir fyrir allar hlýjar hugsanir og bænir henni og okkur öllum til handa, ég veit að það hefur haft mikið að segja og verður svo áfram,við höldum öll bjartsýn áfram með hækkandi sól
bestu kveðjur
Hanna

9.1.2009 kl. 14:53

Höldum áfram

að hugsa sterkt til Kristínar, Aldísar litlu , Jónasar og fólksins þeirra alls með ósk um góðan bata. Sendum bestu kveðjur og samgleðjumst með að aðgerðin er að baki og b iðjum fyrir því að nú hefjist bataferill sem tekur sinn tíma en þolinmæðin þrautir vinnur allar.
Búið er að taka niður jólaskreytingarnar hér, Sigrún, heimilishjálpin mín kom í gær og hætti ekki fyrri en allt var komið niður og kom svo á eftir mér út í kirkju og lagði síðustu hönd á að ganga frá jólatrénu þar, sem búið er að vera á mínum snærum í áratugi. Nú er búið að auglýsa Laufásprestakall laust til umsóknar og nýr prestur á að taka við því 1. mars og Lundarbrekkukirkja er nú ein af kirkjunum sem tilheyrir því. Hér er búið að taka upp svell undanfarna daga en spáð snjókomu eða éljum og frosti framundan. Við fórum i matarboð til Möllu og Jóa á Akureyri á miðvikudagskvöld í blíðskaparveðri og heimsóttum svo Diku í gærkvöldi en hún var þá ein heima. Óli byrjaður í leikæfingum í Reykjadal. Það er ekki harkalegt tíðarfar það sem af er janúar hvort sem að Þorrinn sýnir okkur eitthvað verra. Brestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

9.1.2009 kl. 12:36

Kveðja frá Hönnu

Kæra frændfólk
Kristín var útskrifuð af gjörgæslu í morgun og er komin á deild 12 e stofa 11.
Við höldum áfram að senda henni styrk með bænum okkar.
Ég ætla að fara aðeins til hennar í kvöld.
kveðja Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

8.1.2009 kl. 19:13

Hugsum sterkt til Kristínar og Jónasar

Kæra frændfólk ég sendi hér út áskorun um að við sameinumst öll í hvatningar hugsunum og góðum bænum til Kristínar og Jónasar og þeirra nánustu. Þau ganga nú í gegnum mjög erfiðan tíma og ég reyndi það sjálf fyrir tveimur árum hvað góðar hugsanir, hlýjar kveðjur og bænir hjálpa mikið.
Kristín og Jónas hugur okkar er hjá ykkur við sendum kraft, trú, von og kærleika.
Góður Guð blessi og styðji ykkur. Malla og fjölskylda

Marína Sig.

7.1.2009 kl. 22:44

Baráttukveðjur til Kristínar og Jónasar

Guð veri með ykkur öllum og litla prinsessa Aldís allar bænir mínar eru líka hjá þér elskan ég veit að þú verður dugleg og góð stúlka hjá ömmu og afa Guð blessi ykkur öll þess óskar Guðrún frænka ´Kleppsvegi Reykjavík

Guðrún besta frænka

7.1.2009 kl. 22:04

Meira í dag....

Þá er komið að kveðjustund. Jólatréð komið ofan í kassa og líka skrautið. Þessu fylgir alltaf ákveðin söknuður eða tregi, en það er jú bara 11 mánuðir þangað til það verður tekið aftur upp. Ég kveið oft þessum degi sem barn þ.e. deginum sem skrautið var tekið niður og jólaljósin slökkt, en það var reyndar ekki alltaf tekið niður stax eftir þrettándann en samt svona fljótlega. En ég styð þetta framtak að leyfa hvítu ljósunum að loga áfram í svartasta skammdeginu.
Enn eru til örfár smákökur og laufabrauðskökur sem verða maulaðar á dimmum kvöldum við kertaljós í janúar.

Ég ætla að enda á að senda þér Kristín mín baráttu og batakveðjur og bið algóðan Guð að hjálpa þér í gegnum batann eftir þessa stóru aðgerð sem þú fórst í í morgun. Guð veri hjá þér og þínum.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

7.1.2009 kl. 15:13

Lífið heldur áfram.....

og nú eru allir komnir í skóla eða vinnu eftir annars rólegt jólafrí. Alltaf gott að hitta vinnufélagana og börnin í skólanum eftir frí. Veðráttan hér hefur nú verið frekar vorleg hér, 4-7 stiga hiti, þoka, súld eða rigning til skiptis. Ég ætla að fara að koma jólaskrautinu niður og koma heimilinu líka í fastar skorður. Ég hvet ykkur til að kíkja á myndbandið um Hrútagil og minnast þessa góða sumars sem við fengum og áttum saman einstakan dag á Lundarbrekku. Og þið sem ekki komust þá getið þið lifað ykkur inní daginn með okkur þarna. Vona að janúar verði ykkur öllum góður sem og allt árið 2009.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

6.1.2009 kl. 21:57

Góð saga hjá þér Nonni

enda hafði Villi gaman að að segja okkur allskonar sögur En hvernig er þetta með ykkur kæra frændfólk það heyrist bara ekkert frá ykkur eruð þið öll alveg föst á SNJÁLDURSKINNUNNI (facebook.com) Ég er hreynt að ærast hér í flugeldaskotum rétt eins og ég væri komin á Gasa svæðið skil núna hvernig því blessaða fólki líður þvílík hörmung sem er þar Guð veri með því fólki. Allt gott héðan kveðja

Guðrún besta frænka

6.1.2009 kl. 21:47

Saga af Jónasi afabróður mínum.

Ég man að einhverntíma fyrir löngu síðan fór ég með mömmu og Kristjáni Sig. í Mjóafjörð. Fórum við í Brekku og hittum Vilhjálm. Hann sagði okkur sögu af Jónasi. En þannig var að þeir voru samferða með skipi frá Akureyri og austur um. Hann á leið heim í Mjóafjörð en mig Jónas á leið til Reykjavíkur ef ég man rétt. Einhverju síðar fékk Villi bréf frá Jónasi þar sem Jónas segir Villa að hann hafir verið heppinn að fara frá borði á Norðfirði þar sem hann, Jónas, hafi fengið einhverja flensu á leiðinni. Uppköst og slappleika. Og hann sloppið við að snitast af því þar sem hann fór frá borði það snemma. Það fylgdi líka að veðrið hafi verið verra á kaflanum að austan og suður. Villa fannst þetta mjög sniðugt þar sem hann var viss um að Jónas hafi verið sjóveikur en ekki viljað viðurkenna það og kennt flensu um.

Jón Árni

4.1.2009 kl. 15:39

Meiriháttar bókajól

eru hjá okkur að þessu sinni eins og sennilega mörgum öðrum eftir því sem bókasala var fyrir jólin. Þær endast okkur langt fram á þorra.Fyrir jólin fékk ég bókina Þræði, minningabók um Hrafnkel A Jónsson, sem ég var áskrifandi að. Þar er ýmislegt fróðlegt og áhugavert, en mér vannst ekki tími til að ljúka henni áður en jólabækurnar komu úr pökku num. Rétt áður las ég Gullastokk gamlingjans , sem höfundur var svo vinsamlegur að senda mér vegna þess að ég hafði varðveitt gömul bréf frá honum í meira en 50 ár og gat sent honum þau, en þessi bréf skrifaði hann vini og skólabróður, Jónasi heitnum Baldurssyni hér á Lundar brekku á árunum 1936-42.
Við fengum bókina Ég skal vera Grýla, bókina um Margréti Pálu og mér finnst hún mögnuð lesning. Dáist alltaf að fólki sem þorir og getur verið það sjálft, hvað svo sem öðrum kann að finnast. Fyrir utan að mér þykir Hjallastefnan afar merkileg og áhugaverð og svo hvað mannkindin er alltaf söm við sig að þyrla upp moldviðri í fljótheitum. Nú, nú, svo fékk ég bókina um Sigurbjörn biskup eftir Sigurð A Magnússon. Átti aðra fyrir og sumt kom mér kunnuglega fyrir, en þessi bók er mikil sagnfræði og kemur víða við og enn dáist ég að manninum sem er hann sjálfur og hvikar ekki hvað sem á dynur.
Ég gaf Geira bókina um forsetann, hann er að lesa hana og segist þar fá skýringar og upplýsingar um margt sem honum var ekki áður ljóst , en ég er ekki farin að lesa hana. Hann fékk Útkall en ég hefi heldur ekki lesið hana. Fleiri bækur fengum við, svo sem Svefnvindadrauma Jóns Bjarman, míns gamla fósturbróður, með kápumynd eftir Hönnu, konu hans sem harmonerar sérlega vel við innihaldið og mér þótti vænt um.
Malla og fjölsk. heimsótti okkur og gisti 2 nætur milli jóla og nýárs.Þá fórum við í matarboð öll í Bjarnarstaði og hittumst þar um 20 manns. 29. des fórum við í jólakaffi á Ingjaldsstöðum
Á gamlaárskvöld voru Óli, Dika, Hjördís , Geiri, Anna Sæunn og Jóhann Ari hér, en Svala sem ætlaði að koma líka veiktist daginn áður eða þar áður og fór á sjúkrahús.Botnlanginn var tekinn en svo þurfti hún að fá sýklalyf og kom ekki heim fyrri en 2. janúar. Í gær sagði Geiri að hún væri öll að koma til og vona ég að það standi. En þau fóru áður en Skaupið byrjaði, Geiri, Anna og Jói. Atli ,Stína og Siggi komu í mat til okkar í fyrrakvöld í lognkyrru blíðskaparveðri, en í gærmorgun snjóaði og snjóstorka yfir öllu í morgun en nú er kominn 3°hiti og s. st. kaldi og snjórinn að hjaðna. Biðjum öllum blessunar á nýju ári Bestu kv

Hjördís Kristjánsdóttir

4.1.2009 kl. 10:42

Var að ljúka við að lesa bókina

Gullastokkur gamlingjans og hafði gaman að Skemmtilegar frásagnir hjá Vilhjálmi Fullt af góðu fólki sem ég kannast við og margt þekkti ég persónulega. Vilhjálmur er fróður maður og gaman að sækja hann heim. Enn er vorveður hjá okkur með smá rigningarúða og þorrinn nálgast kanski kemur hann með hvelli hver veit. nóg í bili Kveðja

Guðrún besta frænka

3.1.2009 kl. 9:59

Góðan daginn gott fólk

og gleðilegt nýtt ár hér á mínu heimili fóru áramótin vel fram við vorum í marg rétta veislu hjá Dísu í Álfheimunum og horfðum á skaupið og svo flugelda á miðnætti Særún skemmti sér vel yfir þessu öllu saman Hér í dag er rigning og bara vorveður í lofti. Nú er bara hversdagsleikinn tekinn við og allt að komast í fastar skorður í vinnunni Gamla fólkið fegið að sjá okkur vera komið aftur finnst þetta heldur langt frí og þ´ví finnst allt vera orðið skítugt þó að það sjái ekki á neinu hjá þvi Vantar bara einhvern til að tala við hefur mikla þörf fyrir að tala við okkur meðan við erum hjá þeim, ég skil það vel.Annars bara allt gott með kærri kveðju

Guðrún besta frænka

2.1.2009 kl. 14:08

kveðja

Takk takk elskurnar fyrir fallegar hugsanir og kveðjur til mín/okkar.Jú jú ég fer bara jákvæð í þessa aðgerð enda er það 50% af batanum.
PS.Malla við keyptum okkur fallega kongabláa kaffikönnu þú kíkir í kaffi við tækifæri :)

Bestu kveðjur. Kristín R.

Kristín Aðalsteinsdóttir

2.1.2009 kl. 12:18

Janúar 2009

Verð aðeins að segja örfá orð hér í tilefni af nýju ártali. Við eyddum gamlárskvöldi og nýársnótt á Akranesi og var það mjög ljúft og gott. Lífið fer að komast hér í fastar skorður á mánudaginn, best að njóta síðustu jólafrísdaganna í botn. Ég óska þér Kristín mín alls hins besta í aðgerðinni sem þú ert að fara í og vona að allt gangi vel og þú verðir fljót að ná þér aftur og komast heim til skottunnar þinnar.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

2.1.2009 kl. 11:23

Baráttukveðjur

Kristín Jónas og börn. Óskum ykkur gleðilegs nýárs og að allt gangi vel næsta tímann , bæði heima og heiman. Sendum Baldri ,Söndru og Jóni Þór kveðjur og óskir um farsælt nýtt ár.Fengum frá þeim jólakort bæði í fyrra og núna , en mér tókst ekki að finna óyggjandi heimilisfang, þannig að frá okkur fór aldrei kort þótt það væri ætlunin. Kærar kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

1.1.2009 kl. 20:37

Biðst forláts á öllum ásláttarvillunum

á t.d. að vera líknarráð. framhaldskveðja Malla

Marína Sig

1.1.2009 kl. 20:34

Ef heilsan er góð má vinna sig upp úr öllu hinu.

Kæru ættingjar, fjölskyldan í Norðurgötu sendir hugheilar nýársóskir til ykkar allra og þakkir fyrir ánægjulegar stundir á líðandi ári. Ég tek undir ljóð Matthíasar sem mamma skrifar hér á undan og vona að blessuð nýárssólin flytji líf og líknarrár.
Fjölskylda mín hefur átt góða daga og notið jólafrís aðeins Hjörvar þurfti að fara til vinnu 29. og 30. des. Við vorum ein hér á aðfangadagskvöld en fórum svo í jólakaffi í Hrísey á jóladag. Eins og áður kemur fram fórum við á annan dag jóla í Lundarbrekku og komum til baka síðdegis 28. Síðan þá hafa frændur Daði, Freyr og Sævar notið þess að gista hver hjá öðrum og sameinast í miklum flugeldaáhuga. Hef er fyrir að halda áramótin með Valgerði systur Jóa og gerðum við það nú í 10 skipti. Einkadóttir þeirra var farin í 3-ja mánaðar ferðalag með vinkonu sinni til Ameríku svo þau voru ein. Sævari mínum þótti ekki mjög gaman að sitja uppi með tvö sett af gamlingjum og hefur mælst eindregið til þess að við höldum áramótin framvegis með fjölskyldunni í Kjarnagötu 12 svo það séu einhverji til að sprengja með. Það dugði honum ekki að hafa bæði Ásgeir og pabba sinn sem nú sem fyrr tóku virkan þátt í gleðinni með honum. Hér á Akureyri voru góð áramót og mun rólegra yfir en undanfarin ár. Ég naut þess að vera úti og fylgjast með en síðustu ár hefur verið svo mikið flugeldafár að vart hefur verið verandi utandyra frá 23.30-00.30 á nýársdnótt. En nóg um þetta.
Kæra Kristín það verður gott fyrir þig að eiga smá forða fyrir næsta tímann og við óskum þér góðrar ferða og biðjum þess að aðgerðin gangi vel og þú komist fljótt og vel á stað aftur. Óskum ykkur öllum góðrar heilsu á nýju ári og munið að hugsa vel um hana. Nýárskveðjur frá Möllu og fjölskyldu

Marína Sig.

1.1.2009 kl. 20:00

1. janúar 2009

Hvað boðar nýárs blessuð sól?
Hún boðar náttúrunnar jól,
hún flytur líf og líknarráð,
hún ljómar heit af Drottins náð.

Í almáttugri hendi hans
er hagur þessa kalda lands,
vor vagga, braut, vor byggð og gröf,
þótt búum við hin ystu höf.

Þannig orti trúarskáldið og presturinn Matthías Jochumsson í sálmabókina 1886 og sýnist enn í fullu gildi.Gleðilegt nýtt ár góðir vinir.
Ég stóðst ekki að opna gestabókina á þessum fyrsta degi ársins og máta mig við að skrifa ártalið 2009, fyrst enginn hafði gert það í dag. Geymi svo meira mál til síðari tíma. Erum sæmilega hress og veðrið gott og kyrrlátt. Áramótakveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

31.12.2008 kl. 13:45

2008 senn að ljúka

Kæru ættingjar og vinir.

Hér erum við fjölskyldan búin að eiga góð jól,á aðfangadag vorum við hjónin og börnin tvö,svo á jóladag lá leið okkar til Ólafsfjarðar í matarboð til mömmu og pabba um kvöldið og ekki fórum við svöng heim það kvöldið frekar en önnur skypti þegar við förum þangað úúppsss.Þann 27 var jólaball sem Íslnsk ættleiðing sér um og var það í glerákirkju og við hjónin fórum þangað með heimasætuna og áttum góðar stundir þar með vinum okkar.Svo kom Linda systir og hennar fjölskylda norður milli jól og nýjárs og eins og Linda sagði þá var ótrúlegt að hugsa að Desember væri þegar þau keyrðu norður í fallegu veðri og auðu.Við buðum mömmu,pabba og systkinum mínum og börnum í mat þann 28 og það var yndislegt að hafa alla saman vantaði bara Baldur,Söndru og Barnabarnið (jón Þór) þann gullmola sér maður allt of sjaldan,Í gær fórum við svo aftur til Ólafsfjarðar þegar Jónas var búinn að vinna og þetta skypti var matarboð hjá Sigrúnu systir.Í kvöld ætlar svo Emma tengdó að borða hjá okkur og á morgun en matur hjá Önnu og Nonna.Ég verð fegin þegar þessir átdagar verða búnir,spurning að nota aðgerðina fyrst verið er að svæfa mig og fá magaminnkun í leiðinni ha ha.En bara óskum ykkur öllum gleðilegt nýtt ár og megi 2009 verða okkur öllum gæfuríkt og heilsugott.Eigið góð áramót og passið ykkur á flugeldunum.

Kveðja kristín,Jónas og börn.

Kristín Aðalsteinsdóttir

31.12.2008 kl. 12:38

Í Guðs friði:

Nú árið er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka,
nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,
það gjörvallt er runnið á eilífðar braut,
en minning þess víst skal þó vaka.
Þau gamlaárskvöld sem ég man fyrst í barnæsku minni eru órjúfanlega tengd þýðri og eilítið upphafinni rödd Vilhjálms Þ Gíslasonar útvarpsstjóra er hann flutti annál ársins, nákvæman, fullan af tölum og staðreyndum og einnig minnst harmrænna atburða , stórslysa á sjó og landi og í lofti, líka minnst alls sem gleðjast mátti yfir og ævinlega voru lokaorð hans : Í Guðs friði. Síðan söng , líklega útvarpskórinn : "Nú árið er liðið" og svo var klukknahringing , árið hringt út og inn. Síðan kom útvarpsstjóri og sagði: " Árið .... er liðið . Árið .... er gengið í garð.
Þakka ykkur öllum ánægjuleg samskipti hér á síðunni og annars staðar á árinu sem er að kveðja. Guð gefi okkur öllum gott og farsælt nýtt ár.
Geiri og Dísa á Lundarbrekku.

Hjördís Kristjánsdóttir.

31.12.2008 kl. 12:32

Áramótakveðja

Innilega til hamingju með afmælin ykkar Siggi K Siggi A og Arnar Freyr, letin hefur verið svo mikil í mér yfir hátíðina að ég hef ekki einu sinni farið hér inn, annars höfum við hér átt ósköp venjubundin og góð jól. Reynt að gera sem allra minnst en komumst samt ekki hjá því að sinna okkar skepnum eins og alla aðra daga ársins. Sendum ykkur ættingjar og vinir okkar bestu óskir um skemmtileg áramót og gott og gjöfult komandi ár með bestu þökk fyrir öll samskipti hér á síðunni og annars staðar.Alltaf er nú svolítið ögrandi að leggja út í hlutina þegar ekkert er vitað hvað framundan er, þannig er nú um þessi áramót hér á landi og vonandi margt spennandi og gefandi framundan þrátt fyrir áföll síðasta árs. Njótið lífsins og munið að hvert andartak, það kemur aldei aftur. Bestu kveðjur Friðrika.

Friðrika Sigurg.

31.12.2008 kl. 8:11

Nú árið er að líða

og þetta hefur verið ansi v-iðburðar ríkt ár satt best að segja.Öll skrif hér á vefnum okkar hafa verið skemmtileg og færi ég ykkur bestu þakkir fyrir alla þá skemmtun.Jólin voru friðsöm og góð' hér á mínu heimili Við vorum 4´í jólamatnum hjá mér Árni náði að borða með okkur en svo var hann rokinn í vinnuna var á vaktinni þessi jól en við hin höfðum bað gott og margar bækur komu upp úr pökkum þessi jól Litla fjölskyldan í Álfheimum hélt sín fyrstu jól ég hef alltaf haft alla um jól og áramót en nú er ég búin að koma áramótunum yfir á næstu kynslóð og verðum við gamla settið hjá Dísu í kvöld en Jón og Anna halda boð hjá sér með vinum sínum, Hér er fallegt veður svona í morgunsárið og vonandi helst það svo það verði hægt að horfa á fallega flugelda í kvöld. Svona í lokin sendi ég ykkur kæru ættingjar og vinir hugheilar kveðjur með ósk um farsælt nýtt ár og mikil og skemmtileg skrif á nýju ári Farið varlega í kvöld þið sem handleikið flugelda og blys slysin gera ekki boð á undan sér í guðsfriði þess óskar besta frænka

Guðrún frænka

30.12.2008 kl. 15:06

restin

hafi verið viðburðaríkt hjá mér, fyrir utan allt bankahrun og fjármálakreppu þá fór ég nú í þrjár utanlandsferðir eina með vinnufélögunum og tvær með kórnum (meiri útrásarvíkingurinn) og hélt svo upp á fertugsafmælið mitt sælla minninga, svo eitthvað sé talið en svo var auðvitað margt annað skemmtilegt brallað nema kanski ekki mjög skemmtilegt að fara keyrandi yfir kjöl í 25 stiga hita eins og mamma skrifaði svo skemmtilega í jólakortið, hún skrifaði nefnilega óvenju mikið í kortið þetta árið og það hefur sennilega verið vegna þess að við ferðuðumst svo mikið innanlands með henni í sumar, bara gaman.
Kæru ættingjar og allir hinir, Gleðilegt ár og bestu þakkir fyrir árið sem er að líða, hittumst heil á nýju ári
bestu kveðjur
Jóhanna Marína

Jóhanna Marína Baldursdóttir

30.12.2008 kl. 14:44

Gott að eiga góða að.......

Góðan dag þennan næst síðasta dag ársins 2008, já mikið voru þetta eitthvað falleg orð hjá þér Guðrún mín, ég mun nú sakna þess að geta ekki hitt ykkur á nýársnótt en svona er nú það maður getur ekki alltaf haft alla í kringum sig........
Ég get sagt ykkur það í fréttum að við Palli sjáum húsbóndanum í Skálaheiðinni fyrir vinnu í dag þar sem hann er að ditta að okkar gamla góða bíl, ég rölti út í matartímanum mínum áðan og ætlaði að kíkja á verkstæðið þá var bifvélavirkinn sennilega á rúntinum á mínum bíl :o) svo þegar ég rölti til baka eftir smá hring þá var hann mættur en ég ákvað að vera ekki að trufla hann þar sem ég sá að hann var að mér sýndist líka að þrífa bílinn (ekki vanþörf á) svo ég bíð bara spennt að sjá drossíuna þegar hún verður tilbúin, ekki amalegt að hafa svona viðgerðarmann.
Best væri nú ef ég gæti líka sett dvd tækið okkar líka til hans í viðgerð en við semsagt keyptum okkur nýjan spilara í apríl sl. í Elko (efast um að ég versli framar við þá) en á aðfangadagskvöld hætti hann að spila nema útvalda diska svo ég fór með hann í búðina í gær og stóð 40 mínútur eins og illa gerður hlutur meðan stúlkugreiið fór inn með tækið og sagðist aðeins ætla að tala við viðgerðamannin, þegar ég svo var búin að bíða eins og ég sagði þessar 40 mínútur þá spurði ég aðra stúlku hvort hún væri til í að athuga með þessa sem var að afgreiða mig! ég hefði nú ekki ætlast til að það yrði gert við tækið meðan ég biði og ég væri í matartímanum mínum og gæti ekki beðið lengur, loks fór hún inn og kom svo og tók niður nafn mitt kt. og síma og sagði að það væri verið að líta á tækið, ég sá aldrei aftur þessa sem tók tækið og fór út með ekkert í höndunum um að ég hafi skilið það eftir, svo var hringt í mig þegar ég var búin að vinna og sagt að það þyrfti að senda tækið á verkstæði og finna hvað væri að, ég spurði hvort það væri nokkur möguleiki á að fá lánstæki yfir áramót en það var ekki, ég hef semsagt ekki enn getað horft á myndirnar sem ég fékk í jólagjöf sem voru óvenju margar þessi jólin, ég nenni ekki að horfa á í tölvunni eins og krakkarnir :o)
Já þið fáið alltaf einhverjar sögur um biluð tæki frá mér, ég læt ykkur örugglega vita þegar svo þvottavélin gefur endanlega upp öndina.
Við erum ekki enn búin að ákveða hvað við eldum annað kvöld, ætli sé ekki best að hafa bara soðinn fisk eftir öll þessi boð og veislumat, ? hvað verður fyrir valinu í búðinni seinnipartin í dag.
Jæja það er ekki hægt að segja annað en þetta ár sem senn er á enda ha

Jóhanna Marína Baldursdóttir

30.12.2008 kl. 13:33

Næst síðasti dagur ársins

Senn líður að áramótum og það er nú þannig núna að ég held ág komi ekki til með að sakna þessa árs sem er að líða. Ég horfir bara bjartsýn fram á við og vona að við náum að koma þjóðarskútunni aftur á flot, þó ég viðurkenni að ég veit bara alls ekki hvað nýja árið mun bera í skauti sér.
Við höfum átt frekar róleg jól og reiknum með að eyða áramótunum á Akranesi, en það var ákveðið í gær.
Við skelltum okkur í sund í morgun og var það hressandi en síðan höfum svo haft það frekar náðugt, Eiríkur situr og límir saman módel og Eva Margrét fór til Særúnar frænku sinnar. Húsbóndinn er reyndar í vinnu þessa dagana. Í fríinu er ég búin að lesa Myrká eftir Arnald Indriðason og er að fara að byrja á Auðninni eftir Yrsu Sigurðardóttur. Ég óska ykkur gleðilegs nýs árs og þakka ykkur öllum fyrir heimsóknirnar á síðuna okkar á árinu. Ég vona að þær verði enn fleir á nýju ári.
Megi nýja árið taka brosandi á móti okkur, fullt af nýjum tækifærum, gleði, birtu og friði.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

29.12.2008 kl. 23:04

Jól og vinna

Góða kvöldið og gleðilega rest. Vona að þið séuð búin að hafa það gott. Þá er vinnan tekin við af kærkominni afslöppun. Einhver gröfusnillingurinn tók sig til og sleit ljósleiðara í morgun þannig að það var allt í uppnámi í vinnunni í dag. Ekkert netsamband og allir svo háðir netinu að nánast ekkert var hægt að gera, þannig að allt sem beið bíður enn, gaman að því. Við erum búin að hafa það óskaplega gott um jólin hér í Glaðheimunum.Jjólin hér byrja nú yfirleitt á því að húsmóðirin syngur í messu og svo erum við heima og höfum það huggulegt, á jóladag er svo jólaboð hjá tengdó bæði kaffi og kvöldmatur. Við tókum með okkur útiföt og fengum okkur langan göngutúr á milli. Ég held ég hafi svo sett met á annan í jólum þegar ég fór í fjórar messur. Fór fyrst kl. 11 upp í Áskirkju að hlusta á Berglindi Rögnudóttur syngja en hún er þar í barnakór. Svo fór ég og söng sjálf á þremur elliheimilum, Skjóli, Dalbraut og á alzheimerdeild á Hrafnistu sem mér fannst alveg hræðilega sorglegt (en það er önnur saga). Um kvöldið kom svo Ragna systir í mat með krakkana. Helgin var svo notuð í gönguferðir um Laugardalinn, heimsókn í Húsdýragarðinn og huggulegheit. Það verður ekkert af norðurferð, þar sem ég get ekki losað mig úr blessaðri vinnunni, hvorki 31. des, né 2. janúar og svo kom Ágúst bróðir hans Þráins í bæinn með alla sína fölskyldu en hann býr á Húsavík. Hefði nú verið dálítið lummulegt af okkur að skella okkur þá norður. Þannig að sú ferð bíður betri tíma. Við förum þess í stað í áramótaboð á gamlárskvöld til eins bróður hans Þráins þar sem flest hans systkini og fjölskyldur mæta, í kringum 30 manns. Ég er strax komin með hausverk af tilhugsuninni um hávaðann sem verður þar :-)
Kveðjur. Elma

Elma

29.12.2008 kl. 13:01

Gleðilega jólarest

Kæru ættingjar síðbúnar jólaóskir til ykkar allra, já ég er vön þessu með jólarestina, finnst að ég hafi heyrt þetta frá því að ég man eftir mér.
Við erum búin að hafa það mjög gott, vorum fimm saman heima í Álfaheiði á aðfangadagskvöld þ.a. við fjölskyldan og Siggi bróðir, á jóladag vorum við síðan heima í miklum rólegheitum en skruppum svo til Keflavíkur á annan í jólum í smá afmæliskaffi en Jón Ingi bróðir Palla á afmæli þá. á laugardagskvöld buðum við Skálaheiðarfjölskyldunni í mat til okkar og áttum skemmtilegt kvöld og spiluðum Íslandsspilið langt fram eftir. Í gærkvöld vorum við svo boðin í árlegt boð í Reynihvammi 9 en þar býr vinkona okkar frá Hornafirði ásamt fjölskyldu og býður okkur alltaf milli jóla og nýárs ásmant vinafólki okkar sem býr í Glaskow, en þau koma alltaf til Íslands um jól og dvelja í Eyjafirði, en koma svo við í Höfuðborginni áður en þau halda heim aftur, þannig að þetta er búið að vera endalaust góður matur og huggulegheit. Vinnan tekin við í dag en er nú frekar rólegt hjá mér en röð út að dyrum í vegabréfum og ökuskírteinum en það var verið að flytja það allt hingað fyrir allt höfuðborgarsvæðið og sýnist mér á þessu að eitthvað þurfi nú að skipuleggja þetta betur eins og svo margt annað, væntanlega einhverjir byrjunarörðuleikar.
Jæja gott fólk, takk fyrir jólakort, kveðjur og gjafir
hafið það sem best
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

29.12.2008 kl. 10:08

Hjörís-Kjörís-munar um einn staf !

Verð bara að gera leiðréttingu á nafninu mínu, þetta eru líklega elliglöp.

Hjördís Kristjánsdóttir.

28.12.2008 kl. 18:23

Að aflíðandi jólum.

Kæru lesendur. Gleðileg aflíðandi jól? Er hægt að taka svona til orða? Jólarestin hefur alltaf farið illa í mig og ég séð fyrir mér langan slóða af einhverju óuppgerðu ófrágengnu og umfram allt af einhverjum leifum. Fyrir mér er rest ="leifar".En hér höfum við lifað enn ein góð og gleðileg jól. Við vorum ein á aðfangadagskvöld eins og verið hefur milli 15-20 ár. Þá höfum við léttan mat, jólagraut, með rúsínum, kanelsykri,saftblöndu úr hrútaberjasaft, út á og smjörkúlu í , ásamt laufabrauði og öli .Kalt kofareykt hangikjöt , feitt og magurt með smjöri, laufabrauði og öli í eftirrétt. Punktur.
Á jóladag byrjar svo óhófið í mat og drykk.
Hér var messa kl 4 á jóladag og sæmilega sótt en leiðinda vestan hvassviðri , hlákustormur meira og minna öll jólin.Allt autt og svell minnka óðum. Malla Jói og synir gistu hér 2 sl nætur ,Hjörvar að vísu bara sl nótt. Fórum öll í matarboð á Bjarnarstöðum í gærkvöldi, þar voru 20 manns. Öll systkinin heima og þeim tilheyrandi mismargt fólk. Í gærdag var barnaball í Kiðagili og í gærkvöldi jólaball og talsvert af fólki í bæði skiptin , en við létum þau framhjá okkur fara.Anna Marit og Gósa komu hér í dag með börn þeirra Önnu og Nonna en hann var að vinna.
Svo fór allt þetta fólk eftir kaffið og við aftur tvö . Þetta er búið að ver yndislegt Bestu kveðjur Dísa.

Hjörís Kristjánsdóttir.

28.12.2008 kl. 9:49

Jæja kæru ættingjar og vinir

þá er ein jólahátíðin enn gengin og allir hressir og kátir eftir mikla kjötmáltíðir mikið verður nú gortt að fá sér fik að borða Anna Berlind og Jón Árni voru hjá mér um jólin Litla fjölskylda í Álfheimunum hélt´sín fyrstu jól og þetta er í fyrsta skipti sem Dísa er ekki í foreldrahúsum á aðfangadagskvöld Allir eru að keppast við að lesa því mikið af bókum bárust í jólapökkunum Ég fékk bókina um Önnu á Hesteyri og hafði gaman af því ég þekki ti kerlu svo nú er ég að lesa gullastokk gamlingjans sem ég fékk líka og þar kannast ég við fullt af fólki Skrifa minn síðasta pistil á síðuna á þessu ári á gamlársdag Hafið það ætíð sem best Kveðja besta frænka

Guðrún frænka

26.12.2008 kl. 16:20

Gleðilega jólarest......

kæru ættingar og vinir! Hér hafa verið frekar róleg jól þetta árið. Góður matur, góðar gjafir og samvera hafa einkennt þau eins og svo oft áður, Við fórum í langan og góðan göngutúr í Heiðmörk áðan með góðu fólki. Áttum þar notalega stund með heitt kakó, kökur og mandarínur, veðrir var guðdómlegt og Heiðmörkin skartaði sínu fegursta. Á morgun er barnaafmæli og boð, nóg að gera :-).
Góða helgi

Guðrún Sigurgeirsóttir

24.12.2008 kl. 16:54

Gleðileg jól

Sendum kærar jólakveðjur til allra sem líta hér inn og vonum að þið finnið gleðileg jól. Við Jói og Hjörvar héldum fyrri sið og heimsóttum Akureyrarkirkjugarð fyrir hádegi og stöldruðum við við leiði föðurbræðra okkar. Rok og rigning þannig að kertin bíða betri tíma. Áttum síðan góða stund hjá Gósu í nýju íbúðinni í Kjarnagötu 16. Hún beið okkar með hlaðið borð af veitingum. Indisleg stund og ég fann þarna notalegan frið fylltan minningum liðinna ára. Elsku frændfólk vona að þið finnið þennan jólafrið og njótið hátíðanna hvert með ykkar lagi. Þakka innilega fyrir samskiptin hér á síðunni. Jólakveðjur frá Möllu Jóa og sonum.

Marína Sig

24.12.2008 kl. 12:45

Jólakveðja

Kæru ættingjar vininr og aðrir sem líta á þessa síðu, okkar bestu óskir um gleðileg jól og gott og gjöfult komandi ár. Siggi Hreinn sérstakar þakkir til þín fyrir þetta framtak að koma þessarri síðu á laggirnar, í gegnum hana hef ég getað fylgst miklu betur með hvað frændfólkið er að brasa, mér til fróðleiks og gleði. Hér er nú allt að verða tilbúið til jólahalds erum að bíða eftir að Anna og Geiri komi heim en þau koma enn í foreldrahús um jólin. Hjördís mín er hér hálförg og óþolinmóð við að setja upp seríu í einn glugga (kannast nokkur í þessarri ætt við svoleiðis takta?) Njótið hátíðarinnar. Kærar kveðjur frá okkur öllum á Bjarnarstöðum.

Friðrika Sigurgeirsdóttir

24.12.2008 kl. 9:06

Skata og EKKI skata

Þar sem að við Bryndís ákváðum að vera fyir austan um jól og áramót, þá nýtti ég mér mitt "HÚSBÓNDAVALD" á þorláksmessu og hafði HANGIKÉT í matinn, en síðustu ja svona nokkur jól hefur alltaf verið skötuveisla hjá mömmu Bryndísar mér til lítillar ánægju þannig að þetta var kærkomið að sleppa við skötustækjuna og fá í staðin ILMANDI HANGIKJÖTS LYKT.
Kveðja Siggi Hreinn

Siggi Hreinn

24.12.2008 kl. 8:34

Jæja þá er aðfangadagur runninn upp, og allt að verða klárt fyrir jólin. Ekki nema 10 stiga hiti úti núna sem mér finnst nú ekki vera jólalegt.
Ekki nennti ég nú að skrifa mörg jólakort núna frekar en áður, en samt fer kortunum fjölgandi með hverju árinu. þannig að þeir sem fengu ekki kort í ár hér kemur jólakveðja til ykkar.
Kæru ættingjar og vinir okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár þökkum liðið.
Kveðja Siggi Hreinn og fjölskylda.

Siggi Hreinn

23.12.2008 kl. 23:48

Alveg að koma Aðfangadagur!

Skruppum í "góða veðrinu" og gengum Laugaveginn og Skólavörðustíginn í regngöllunum og veitti ekki af þeim klæðnaði. Skötu"fýla" í lofit ansi víða. En ótrúlega margir á ferð í bænum. Enduðum við tjörnina hjá öndunum og óskuðum þeim gleðilegra jóla. Börnin farin að sofa og ég er á þeirri leið sömuleiðis. Óska ykkur enn og aftur gleðilegrar hátíðar og farsældar og friðs á nýju ári.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

23.12.2008 kl. 23:30

Skatan var ekki sem verst

Sæl öll. Þá er maður kominn heim úr skötuveislunni og skatan kom mér á óvart, hún var ekki nærri eins vond og lyktin gaf til kynna :-) Hangikjötið góða frá pabba komið í pottinn og lyktin er dásamleg. Takk pabbi og mamma fyrir kjötið. Njótið jólanna.
Jólakveðjur. Elma

Elma

23.12.2008 kl. 9:41

Jólahangikjötið

Elsku Dika og Óli, við Siggi þökkum ykkur kærlega fyrir jólahangikjötið
Hafið það öll sem best
bk. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

23.12.2008 kl. 9:34

Gleðilega hátíð

Góðan dag gott fólk núna styttist í hátíð ljóss og friðar, snjórinn farinn hjá okkur og gott að hafa öll jólaljósin í myrkrinu, hjá okkur gengur allt vel og ég kláraði jólaþrif í gær og klippti svo jólaklippingu á bróður og son í gærkvöld, ætla svo að sjóða hangikjötið þegar ég kem heim úr vinnu í dag.
Kæru ættingjar og vinir ég sendi ykkur mínar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár og bestu þakkir fyrir samskiptin á þessari góðu síðu okkar og samverustundir á árinu 2008
Hittumst heil á nýju ári, bestu hátíðaróskir
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

23.12.2008 kl. 0:04

Jólakveðja.

Mig langar að senda ykkur ættingjar og vinir bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Hér á mínum bæ er jólastressið sko ekki að plaga okkur. Komnar seríur í 3 glugga en það er nú allt og sumt. Komumst bæði í jólafrí eftir daginn í dag svo morgundagurinn verður tekinn með trompi í að skreyta og þrífa. Það verður allt klárt fyrir jól. Og ef ekki þá koma jólin samt. Engin skata þennan Þorlák, enda á boðstólum alla laugardaga á sjónum svo það er nú lítil tilbreyting í því fyrir mig að fá hana á Þorlák. En fyrir þá sem aldrei hafa smakkað hana þá lyktar hún verr en hún bragðast. Vona að þið hafið það öll sem best yfir hátíðarnar.
Kv. Nonni

Jón Árni Árnason

22.12.2008 kl. 23:22

Jólin, jólin

Góða kvöldið.
Þá er búið að skreyta jólatréð og þrífa til málamynda (engin hreingerning á þessu heimili) Atvinnulausi múrarinn sér svo um að skúra og klára á morgun meðan ég er í vinnunni. Svo er skötuveisla hjá bróður hans Þráins þar sem öll tengdafjölskyldan kemur saman og fær sér skötu. Þetta er nú í fyrsta sinn sem við gerum það svona saman. Ég hef reyndar aldrei smakkað skötu og fundist nóg að finna lyktina hingað til en hugsa að ég verði nú að smakka á morgun. Það er frekar seinlegt að komast á milli staða hér í borginni þessa dagana, það er svo gríðarleg umferð og ég er fegin að vera búin að koma frá mér öllum pökkum til að þurfa ekki að vera að versla núna. Annars áttum við systur afar ánægjulegt föstudagskvöld á Laugaveginum, röltum þar um í mokandi hríð og það var alveg yndislegt, svo jólalegt og fallegt og allir svo glaðir. Jólakveðjur úr Glaðheimum til allra gesta síðunnar okkar.
Elma.

Elma

22.12.2008 kl. 23:09

Jólakveðja.

Nú sendum við ykkur öllum gestum Lundarbrekkusíðu bestu jólakveðjur og þakklæti fyrir samskiptin á árinu. Það er að verða jólalegt í kringum okkur , búið að setja upp stærðar grenitré hér úti fyrir með um 120 ljósum, heimilis hjálpin mín, Sigrún lagði lokahönd á jólaþrifin í dag og Hjördís mín á Bjarnarstöðum kom í kvöld og "prílaði " fyrir okkur við skreytingar, það sem við þorðum ekki og gátum ekki..
'Eg lauk við að setja á kökur í morgun sem ég setti í frost til að eiga um hátíðarnar , en ætla að skreyta jólatréð á morgun. Það var seinlegt að komast inn á síðuna í kvöld svo það er orðið það framorðiðað ég skrifa ekki meira að sinni. Eigið öll góð og gleðileg jól og gott og farsælt nýtt ár. ´ærar kveðjur frá Dísu og Geira.
P. S. Kristín mín, gangi þér vel í aðgerðinni, ætli nokkur öfundi
þig , þótt þú fáir hjálparhendur fyrir jólin núna , en það er alltaf gott að eiga góða að. Hugsa til þín. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

22.12.2008 kl. 13:49

Jólaþrif og skreytingar

Núna er maður bara að dunda að laga til og skreyta,af sem áður var þegar maður var að vinna alla daga fram að jólum.Ég gæti bara vanist því að vera í skóla ( hí hí) og ekki slæmt að eiga svona góða mömmu og tengdamömmu eins og ég þær skiptast á að koma með tertur,lagkökur,soðibrauð og smákökur til mín.og þær væru alveg til í að þrífa hjá mér ef ég bara leyfði þeim það.Enga öfundsýki stelpur stundum er lífið ósanngjarnt :) jæja en hér bíða allir voða spenntir eftir jólunum og allt að verða klárt,heimasætan komin í jólafrí til 5 janúar. En þá ætlar mamma að koma og sjá um börn og bú í ca viku 10 daga meðan ég fer suður í Hjartalokuaðgerðina.Ég hef pínu áhyggjur af prinessuni þar sem ég hef sjaldan farið frá henni enda verður hún voða óörugg ef maður fer eitthvað burt,kanski ekki skrítið þar sem þá rifjast upp gamlir tímar þegar hún var tekin frá fósturforeldrum sem henni þótti svo vænt um og sett í fangið á ókunnugu hjónum.En ég er róleg með hana hjá mömmu þó allir aðrir séu yndislegir þá ná þær dömur vel saman.

Við óskum ykkur öllum Gleðilegra jóla og farsælt komandi ár og hafið það sem allra best um jólahátíðarnar.
Jólakveðja Kristín,Jónas og börn.

Kristín Aðalsteinsdóttir

22.12.2008 kl. 13:49

Jólaþrif og skreytingar

Núna er maður bara að dunda að laga til og skreyta,af sem áður var þegar maður var að vinna alla daga fram að jólum.Ég gæti bara vanist því að vera í skóla ( hí hí) og ekki slæmt að eiga svona góða mömmu og tengdamömmu eins og ég þær skiptast á að koma með tertur,lagkökur,soðibrauð og smákökur til mín.og þær væru alveg til í að þrífa hjá mér ef ég bara leyfði þeim það.Enga öfundsýki stelpur stundum er lífið ósanngjarnt :) jæja en hér bíða allir voða spenntir eftir jólunum og allt að verða klárt,heimasætan komin í jólafrí til 5 janúar. En þá ætlar mamma að koma og sjá um börn og bú í ca viku 10 daga meðan ég fer suður í Hjartalokuaðgerðina.Ég hef pínu áhyggjur af prinessuni þar sem ég hef sjaldan farið frá henni enda verður hún voða óörugg ef maður fer eitthvað burt,kanski ekki skrítið þar sem þá rifjast upp gamlir tímar þegar hún var tekin frá fósturforeldrum sem henni þótti svo vænt um og sett í fangið á ókunnugu hjónum.En ég er róleg með hana hjá mömmu þó allir aðrir séu yndislegir þá ná þær dömur vel saman.

Við óskum ykkur öllum Gleðilegra jóla og farsælt komandi ár og hafið það sem allra best um jólahátíðarnar.
Jólakveðja Kristín,Jónas og börn.

Kristín Aðalsteinsdóttir

22.12.2008 kl. 8:03

Jólakveðja

Góðan dag!
Hér býr maður sig undir rokið og rigninguna samhliða jólaundirbúningnum. Við erum við komin í jólafrí þ.e. ég og börnin. Við fórum á Skagann í gær með jólapakka og komum með Hildi Ýr Eiríksdóttur með okkur en hún fékk að gista hér í nótt hjá frænku sinni en fer heim í dag. Við ætlum að að halda áfram við jólaundirbúininginn í dag og á morgun, þrífa, pakka inn, skreyta, sjóða kofareykt hangilæri og og njóta þess að vera saman.

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og gleði og friðs á nýju ári.
Guðrún og fjölskylda

Guðrún Sigurgeirsdóttir

21.12.2008 kl. 10:49

Jólakveðja frá Kleppsvegi 142

Elskulega frændfólk Dísa Geiri Dika Óli og fjölsk, Malla Jói og synir Guðrún Kiddi og börn Hanna Palli og börn Jónas Kristín og börn Elma og fjölsk Ragna og börn Siggi Hreinn Bryndís og börn og þið öll hin Okkar innilegustu jóla og nýárskveðjur þökkum liðin ár og skemmtileg samskifti hér á Lundarbrekku vefnum Eigið yndislega 10og friðsæla hátíð Jólakveðja Guðrún besta frænka Árni og fjölskylda

Guðrún besta frænka

17.12.2008 kl. 11:38

eldavélin ekki biluð.....

Góðan dag gott fólk, í framhaldi að síðustu skrifum mínum hér þá ber þess að geta að gamla eldavélin var ekki ónýt heldur þurfti að skipta um eitthvað rafmagnsdæmi í dósinni, eitthvað hafði brunnið yfir en við vorum svo heppin að góður vinur okkar lagaði þetta fyrir okkur í gærkvöld svo við getum farið að elda aftur. ´
Í gær skárum við svo út í laufabrauðið okkar saman í Skálaheiðinni og áttum þar notalega stund en Guðrún ætlar svo að steikja það í góða vinnueldhúsinu sínu í skólanum og mér líður nú betur að vita að hann elsku Eiríkur ætlar að aðstoða hana.
Jólaundirbúningurinn er á síðustu metrunum, fer með kassann norður í póst í dag og meira að segja búin að versla jólamatinn og tilheyrandi.
Vinnan mín þessa dagana snýst um að tala í símann við þreytt og pirrað bankastarfsfólk og verið að reyna að finna út úr þessu og hinu og redda þessu og hinu sem hefur verið látið viðgangast og verið að kenna um og finna sökudólga og allt það og allt þarf að gerast helst í gær, en maður verður jú að vinna vinnuna sína og segja svo bara já sömuleiði gleðilega hátíð :o)
Ég ætlaði bara ekki að komast í laufabrauðsgerðina fyrir lögfræðideild NBI en ég held nú samt að ég vildi ekki skipta um deild og fara í innheimtudeildina hér því það er ekki spennandi þessa dagana, en nóg um það
Ég ætla að nota tækifærið hér núna þar sem ég fór ekki inná síðuna í gær að óska þér Þórdís frænka mín til hamingju með stórafmælið í gær og vona að þið eigið öll notalega daga
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

16.12.2008 kl. 19:55

Nei Dísa pabbi sagði mér

að nafnið væri eftir bænum Lundarbrekku og skildi aldrei þessa vitleysu í foreldrum sínum sér lega föður sínum sem hélt því til streytu að hann héti þessu nafni. Þess vegna vildi hann ekki að Jón minn yrði skirður Lundi því hann vildi ekki viðhalda þessari endemis vitleysu eins og faðir hanns eins og hann sagði Kveja Besta frænka

Guðrún Jónsd,

16.12.2008 kl. 17:40

Enn um Lunda.

Þarna lá nefnilega misskilningurinn sem fór í taugarnar á Jóni Lunda. Guðrún Besta, þú leiðréttir mig ef þetta er ekki rétt. Þetta Lunda nafn átti aldrei að vísa í fuglinn lunda, heldur bæjarnafnið Lundarbrekku og Lundinn sem það nafn er dregið af. En ókunnugum hætti til að snúa þessu við. Vildi bara vekja athygli á þessu. Kv. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

16.12.2008 kl. 10:39

endirinn

verið er að búa til viðmiðaramma fyrir matreiðslunámið á Íslandi sem er sambærilegur rammi og notaður er í öðrum löndum. Ferðina ætla ég svo að nota til að hitta Guðrúnu systur og við skiptumst á jólapósti og eigum vonandi saman góða aðventustund. Munið að njóta skammdegistöfranna og þess sem þessi árstími bíður upp á. Góða kveðjur Malla

Marína

16.12.2008 kl. 10:15

Skammdegistöfrar

Sæl öll kæra frændfólk. Hef ekki litið hér inn í rúma viku og ekkert smá verk að lesa sig í gegnum öll skirfin, gaman að þessu. Kristín til hamingju með nýja nafnið og Víðir Lundi vertu stoltur af nafninu þínu. Mér finnst ekki Lundi slæmt nafn bara af sömu ætt og Örn og Þröstur. Jón Árni þú átt alveg möguleika á að taka þér nafnið Lundi, veit ekki alveg hvernig best væri að raða saman Jón Á. Lundi eða Jón Lundi Á. Árnason.
En að afrekum helgarinnar,
á sunnudaginn fórum við Jói með Sævar okkar að heimsækja jólasveinana í Dimmuborgir. Veðrið var kalt, stillt og bjart, sólin skreið yfir landið og síðan tók tunglið við að lýs upp veröldina. Þarna tókust á ljós og skuggar sem ekki er hægt að lýsa öðruvísi en sem skammdegistöfrum. Við fórum síðan í Vogafjós í heitt súkkulaði og enduðum í Fuglasafni Sigurgeirs Stefánssona í Neslöndum. Baldvin bróðir Jóa og Rikka og Elvar sonur þeirra sem er ári eldri en Sævar voru með okkur. Við áttum saman indislegan dag. Helgin var helguð menningarviðburðum hjá okkur því við byrjuðum hana á að fara á Frostrósartónleikana hér í íþróttahöllinni, þeir voru ólýsanleg upplifun en ég hlakka til að fara á tónleika í menningarhúsinu Hof eftir að það verður opnað, íþróttahöllin býr ekki yfir hljómburði sem þarf á svona tónleikum. á laugardag fórum við í leikhús með Sævari og sáum Lápur, Skrápur og jólaskapið. Við Jói hlógum okkur máttlaus og Sævar furðaði sig á því hvað okkur fannst þetta allt skemmtilegt. Ég setti allan jólapóst í póst í gær og tvær smákökutegundir hafa verið settar í bauka svo allt mjakast þetta nú hjá mér. Við ætlum svo bara að halda áfram og fara á tónleika í Akureyrarkirkju í kvöld. Það eru styrktartónleikar fyrir minningarsjóðinn Ljósberann sem stofnaður var til minningar um Séra Þórhall Höskuldsson sókanrprest. Björg Þórhallsdóttir og Óskar Pétursson syngja ásamt kórum kirkjunnar. Ég held að þarna verði jólaskapið alls ráðandi. Sit annars við tölvuna í vinnunni að gera upp önnina og ganga frá á skrifstofu brautarstjóra á matvælabraut, en ég hef setið í þeim stól þessa önn og leyst Hjördísi Stefánsdótttur af. Hún tekur við honum aftur í byrjun janúar og ég flyt mig þá aftur í minn kennarastól og uni því glöð þó ég hafi kunnað vel við mig í brautarstjórastólnum. Á morgun er svokallaður sýnidagurprófa hér í VMA en þá geta nemendur hitt kennara sína og fengið að skoða prófaúrlausnir og mat á þeim. Á fimmtudag þarf ég að sitja vinnufund í Iðunni í Reykjavík þar sem ég er í nefnd sem er að b

Marína Sig.

16.12.2008 kl. 0:11

Jólin, jólin

Sæl öll.
Þá eru jólakortin búin, var að klára það síðasta og Guðrún "besta frænka" ég setti bara á facebook að ég hefði verið að drekka rauðvín en ekki hér inn :-) Við systur fórum í Hafnarfjörðinn á föstudaginn eftir vinnu til að gera laufabrauð með móðurfjölskyldunni sem er orðið að hefð hjá okkur og mjög gaman á hverju ári, við systur reyndar kaupum nú bara tilbúnar kökur til að skera og steikja en gaman að hitta ættingjana og eiga notalega stund saman og ræða málin. Ég söng á einum tónleikum á laugardaginn með Óperukórnum í Reykjavík og söng einnig einsöng þar sem tókst mjög vel. Svo var verið að vígja nýjan steindan glugga í Áskirkju á sunnudaginn þar sem kórinn söng við hátíðarmessu og einnig í kaffisamsæti á eftir. Svo er það bara blessuð vinnan í þessari viku og smá jólaundirbúningur. Ég baka nú bara með "Bónus" vini mínum, kemur tilbúið í dunkum þaðan. Sparar tíma og eru alveg ljómandi góðar smákökur.
Góða nótt.
Elma

Elma

15.12.2008 kl. 10:27

Smá útrás, biluð rafmagnstæki.......

Góðan dag kæra frændfólk, jæja þá er nú tónleikalotu Léttsveitarinnar lokið þennan desember og þvílíkt brjálað veður sem var það kvöld að varla var stætt, en við vorum boðnar heim til nöfnu minnar kórstjóra eftir tónleikana og svo þegar við vorum að tía okkur heim um kl. 23 þá var veðrið dottið niður. Á föstudaginn var ég svo í fríi og kom mörgu í verk, núna er ég semsagt búin að skrifa jólakortin og setja þau flest í póst og síðan bjó ég til hálfmánadeig á laugardagskvöld sem er ómissandi tegund um jólin hjá okkur hjónaleysunum, svo bakaði ég þá í gærmorgun og allt gekk vel, síðan þegar ég ætlaði að fara að elda kvöldmatinn þá bara kviknaði ekki á blessaðri eldavélinni né ofninum þannig að hálfmanarnir hafa alveg gert útaf við vélina og Ari minn hefur miklar áhyggjur af því að það verði enginn jólamatur eldaður hjá okkur.
Þetta með þessi rafmagnstæki í kreppunni er nú ekki gaman en ég hef einmitt verið að tala um uppá síðkastið að þvottavélin er á síðustu metrunum þar sem stundum verður að hjálpa henni að klára kerfið og svo þetta með eldavélina í gær, síðan var ég að blása á mér hárið í morgun og þá kom eitthvað skrítið hljóð svo að það verður sennilega næsta tæki sem brennur yfir........það er nú svo skrítið að maður hefur einmitt oft heyrt fólk tala um að ef eitt tæki fer þá er eins og fleiri bili í framhaldi en stóru tækin hjá mér eru öll jafngömul Særúnu nema auðvitað eldavélin sennilega jafngömul íbúðinni (22 ára) nema hún hafi verið sett gömul inn :o)
Myndavélin sem við keyptum fyrir fjórum árum bilaði líka og ég fór með hana í viðgerð á föstudag og það gæti verið að það væri einhver galli ,mér finnst hann koma svlítið seint í ljós en allavega ef svo er þá hlítur því að verða reddað.
Jæja nóg um biluð tæki.
Við Guðrún og fjölskyldur ætlum svo að gera saman laufabrauð eftir vinnu á morgun og Siggi bróðir verður með okkur, við ætlum að eiga notalega stund saman og rifja upp gömlu laufabrauðsdagana þegar við vorum börn en eitthvað verður þetta nú minna í sniðum hjá okkur en engu að síður verður gert laufabrauð og ég hlakka bara til.
Jæja ég vona að þið hafið það öll sem allra best í jólaundirbúningnum og segi hér með að ég mun ekki taka upp ættarnafn hvorki brekkan né eitthað annað mér finnst Jóhanna Marína bara gott
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

14.12.2008 kl. 17:52

Jólastemning.

Komið þið sæl öll.
Það var laufabrauðsgerð á Bjarnarstöðum um helgina handa Friðriku og hennar fjölskyldu. En þar sem börn hennar voru ekki beint í handraða til að taka þátt í þessu skruppum við Geiri og skárum laufabrauð milli matar og kaffis . Óli Hjörtur var á staðnum með sína fjölskyldu, Geiri alveg á kafi að útbúa jólahlaðborð í Kiðagili, Anna Sæunn enn í New York og ekki væntanleg til landsins fyrri en 21. des, og Hjördís að vinna inni í Nettó á Akureyri. Samt voru nú breiddar út 143 kökur og skornar og að auki 100 kökur
úr "Ömmubakstri". Steikingin var látin bíða dagsins í dag því annað þurfti að gera með kvöldið. Bjst. hjón og við fórum þá á áður umtalað jólahlaðborð í Kiðagili.Það var "annar í hlaðborði", á föstudagskvöldið voru þar um 50 manns í hlaðborði, en í gærkvöldi losaði það 100. Leppalúði og Grýla voru á þönum að taka á móti gestunum og vísa þeim til sætis og Leppalúði stjórnaði borðhaldi og hjúin ekki neitt tepruleg. Þrjár konur úr Þingeyjarsveit skemmtu okkur með söng og hljóðfæraslætti, þær Dagný á Öxará, Kristín María á Ljósavatni og Gróa Hreinsdóttir tónlistarkennari í Hafralækjarskóla og undirleikari hjá Karlakórnum Hreim. Þær sungu allt frá Grýlu og jólasveinakvæðum til hugnæmra jólasálma , eins og "Ó Jesúbarn þú kemur nú í nótt." Matur bæði mikill og góður og jafnvel gamli bóndinn hér sem sjaldan fær ætan bita á veitingastöðum hafði ekki "smakkað á neinu sem honum þótti vont" Fólk úr héraði, m.a. ca. 40 manna hópur frá félagi kúabænda í Þingeyjarsýslu, sumarbústaðaeigendur af svæðinu, Fólk af Akureyri og og svo náttúrlega heimamenn.
Söngæfing í Þorgeirskirkju í kvöld. Kveð ykkur að sinni. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

13.12.2008 kl. 10:41

Nei sko

Daginn ágæta fólk og annað fólk.Verð nu bara aðeins að ver með núna í umræðunni,,,Verð bara að segja það sem ég heiti nú einusinni Lundi að mér finnst það allgott og skemmtilegt nafn og ber það stoltur,enda oft kallaður Lundi.
Annars er gott að nota bara tækifærið og senda bara jólakveðjur hér þar sem ekki skrifar maður svona jólakort.

Sendum vinum og ættingjum hér góðar jólakveðjur með von um góð og gleðileg Jól og einnig von um gleðilegt og farsælt komandi ár mað þökkum um allt hið liðna

Víðir Lundi
Sigríður Lóa

Víðir Lundi Hjartarson

Gambri4x4.tk

13.12.2008 kl. 0:07

Eitthvað var ég nú búinn að heyra af þessu með nafnið...

Það er að ég hafi átt að heita Jón Lundi. Það hefði nú ekki verið slæmt að vera meiri nafni afa míns. Við vorum nú svo miklir félagar að mér hefði nú ekki leiðst það. Leit mikið upp til hans þegar ég var púki.En ætli honum hafi þá ekki leiðst það að vera alltaf kallaður Lundi fyrst honum var svona illa við það?
Annars er allt gott að frétta af mér og mínum. Kem yfirleitt alltaf við hér á daglegum bloggrúnti mínum og fylgist með. Hafið það sem best. Góðar stundir.
Jón (næstum því Lundi) Árni.

Jón Árni Árnason

12.12.2008 kl. 19:58

Jæja nú held´ég að ég leggi aðeins til málanna

Þaðer rétt hjá þér Dísa pabbi var ekki hrifin af Lunda nafninu Þegar kom að því að ég nefndi það við pabba að Jón héti nafninu hanns Sagði hann við mig að hann væri stoltur af því bara ef ég léti hann -ekki heita Jón Lunda ef ég ætlaði mér það skyldi ég finna annað nafn á piltinn, Svo ég lagði til að hann réði seinna nafninu og honum og honum þætti það heiður ef hann mætti þá nefna það við okkur að hann héti þá Jón Árni í höfuðið á þeim tengdafeðgum Árni var nú ekki alveg til í það en lét undan þrýstingnum og hefur ekki séð eftir því, Pabbi sagðist aldrei hafa skilið í honum Hirti frænda sínum að skíra þessum tveim bæjarnöfnum skildi aldrei þessa vitleysu í föður sínum En svo er annað ég fékk aldeilis óvænt og skemmtilegt símtal í gærkvöld Hann Ríkarður frændi minn hringdi í mig og sagðist ætla að hafa það eins og þær stöllur Ída og Marína að hringja jólakveðjuna enda miklu persónulegra en tölvupóstur eða jólakort Við áttum yndælt samtal dá góða stund afar skemmtilegt. Annars allt gott frá mér og mínum kveðja Besta frænka

Guðrún besta frænka

12.12.2008 kl. 16:01

Sammála síðasta ræðumanni

mér þykir bara verst að þótt fólk tali fjálglega ( meina þingmenn) í stjórnarandstöðu verður súpan fljót að breytast á bragðið hjá hinum sömu þegar þeir eru komnir í stjórn. Ingibjörg Sólrún er samt farin að tala um hátekjuskatt og vonandi harkar hún sig í að láta það verða eitthvað sem munar um!! Annars, góða helgi. og Hanna, gamli frændi þinn er ekki par hrifinn af "Brekkan " nafninu. Langafi þinn og langamma skírðu líka Jón Lunda og ég held að hann hafi ekkert verið þakklátur fyrir.
En á 19. og 20. öldinni urðu til ótrúlegustu ættarnöfn hjá Íslendingum í Danmörku og Vesturheimi. Dæmi: Briem sama og Brjánslækur, Vídalín fyrir Víðidalstunga, Bardal eða Bárdal fyrir Bárðardalur. Thorarenssen fyrir Þórarinsson, Thorsteinsson fyrir Þorsteinsson og Brekkan fyrir Brekku í Mjóafirði. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

12.12.2008 kl. 13:57

Hækkanir.... hækkanir og enn meiri hækkanir

Þó ég fái mér sérrí með jólakortunum þá er mér nákvæmlega sama um tóbaks- og áfengisgjöld og gjöld á alla munaðarvöru. En mælirinn er fullur hvað varðar eldsneytishækkun, hún kemur sér illa fyrir heimilin í landinu. Sama má segja um bifreiðagjöldin. Þetta er röng hækkun, á röngum tíma og bitnar á röngu fólki!!
HVAR ER HÁTEKJUSKATTURINN??????
Það er ljóst að við, almenningur, eigum að greiða upp skuldir útrásarvíkinganna ! Verði þeim að góðu en eitt er víst ég ætla ekki að gleyma þeim né fyrirgefa.... ekkert gullfiskaminni hér.
Góða helgi elskurnar mínar

Guðrún Sigurgeirsdóttir

11.12.2008 kl. 20:28

Reykjalín

Sæl Dísa.

Jú jú það er rétt ég er í þeirri ætt, sem mér skilst að sé mjög stór. Biðjum að heilsa Geira vonandi er heilsan góð hjá ykkur.
PS.mikið öfunda ég Geira þegar hann fer í Flatkökurnar hjá þér :)

Bestu kveðjur Kristín og co

Kristín Reykjalín

11.12.2008 kl. 20:08

Hvurslags er þetta með ykkur

frænkur mínar Elma og Guðrún Getið þið ekki skrifað jólakortin án þess að vera að sulla í rauðvíni og sérry Það væri nær að fá sér sopa þear allar skriftir eru búnar og slaka á eftir það allt saman En rokið er komið og mér er alltaf illa við mikið hvassviðri Allt gott á þessum bæ. Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsd,

11.12.2008 kl. 17:37

Bekkjarkvöld, skólplögn, ælupest og sérrí!

Ég held hér áfram með fjölbreytileg umræðuefni. En hér hefur Eva Margrét legið í ælupest í einn sólarhring en er að hressast og við mæðgur ætlum að skella okkur á bekkjarkvöld hjá 5. H í Digranesskóla núna kl. sex. Annars er það að frétta héðan að garðurinn er sundurgrafinn vegna þess að skólplögnin hér hrundi og erum við með allt hér í mold og möl. Alltaf verið að brjóta og mikill hávaði fylgir þessu. En þetta tekur enda, svo verður sennilega vinna í sumar við að laga garðinn. Annars afrekaði ég það að kaupa mér sérríflösku áðan til að geta farið að skirfa á jólakortin :-) en ég bjó mér þessa hefð til sjálf fyrir mörgun árum. En sem betur fer endist sérrið í fleiri tilefni en kortaskrifin þó ég skrifi mörg jólakort. Að minnasta kosti finnst börnunum mínum ég þekkja rosalega marga þegar ég er að lesa jólakortin á Aðfangadagskvöld :-). Ég vona að þið eigið notalega helgi, það ætla ég allavega að eiga, vona bara að ælupestin láti okkur hin í friði.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

11.12.2008 kl. 13:43

Jólakort, kórsöngur, ættarnöfn

segið þið svo að ekki sé fjölbreytt umræða hér á síðunni.
Ég sendi frá mér 30 jólakort í morgun og bakaði líka flatkökur extra þykkar handa Geira til að geta smurt með kofareyktu hangikjöti þega á lægi. Hann sér um kórsönginn, þeir æfa saman í Þorgeirskirkju , Háls Þorgeirskirkju og Lundarbrekkukirkjukórar fyrir jólamessurnar. Aðventustund var sameiginleg sl. laugardag í Þorgeirskirkju og þá söng þessi sameiginlegi kór. Til hamingju með Reykjalíns nafnið
Kristín. Þú hlýtur að eiga að ættföður Jóhannes Reykjalín.
Ég fór inn á Google leitarvél og sló inn þessu nafni og þar kemur upp Kussungsstaðaætt.
Hefur þú skoðað þetta. Má ekki vera að því að skrifa meira. Kv Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

9.12.2008 kl. 22:29

Jólakortin

Sæl öll. Þar sem helgin fór nú ekki í jólakortaskrif eins og til stóð hef ég verið að dunda við það í kvöld. Mér finnst svo gaman að skrifa jólakort, tala nú ekki um þegar ég hreiðra um mig á aðfangadagskvöld með kaffi og konfekt og les jólakortin mín - þá eru jólin komin. Þráinn er að vinna þessa viku einhvers staðar í nágrenni við Geysi í Haukadal og drengurinn skilur ekkert í því af hverju hann kemur ekki heim úr vinnunni og af hverju hann þurfi að vinna svona mikið. En þar sem þetta er nú síðasta verkefnið hans sem við vitum um í bili alla vega, þá var nú ekki hægt að sleppa því. Þeir taka sér bara gott jólafrí feðgarnir. Annars hefur sú hugmynd komið upp að fara norður um áramótin - en það mun nú allt fara eftir veðri og vindum eins og þar stendur. Góða nótt.
Elma

Elma

9.12.2008 kl. 11:56

Elsku mágkona ekkert samviskubit

Verð nú að gleðja Hönnu með því að það eru ca 2 vikur síðan systir mín frétti af þessu auka nafni hjá mér,en ég segi við mágkonu mína það sama og ég sagði við systur mína ef ég næ einhverntímann að útskrifast sem sjúkraliði þá verð heljarinnar skírnaveisla í leiðinni.

Eigið góðan dag.
kveðja Kristín Reykjalín.

Kristín Aðalsteinsdóttir

9.12.2008 kl. 9:18

læra texta .......læra texta

Góðan dag
Ég verð nú að byrja á að segja ykkur kæru ættingjar að ég er mjög ánægð með að Kristín mágkona mín gaf skýringu hér á eftirnafninu en ég hélt nefnilega að ég væri endanlega orðin vitlaus þegar ég sá þetta "Reykjalín" aftur ,ég bara hef ekki heyrt af þessu ,þannig að þið sjáið nú hvað við tölum mikið saman :o) en gott að þetta voru ekki ofsjónir hjá mér.
Jæja á föstudagskvöldið fórum við í jólahlaðborð með mínu samstarfsfólki og mökum á hótel Sögu og það var mjög fínt, á laugardagsmorguninn var svo jólaball leikskólans en drengurinn minn var ekkert líkur sér mjög illt í hausnum og skreið svo bara upp í rúm strax og við komum heim og svaf eiginlega allan laugardaginn, hann ældi síðan á sunnudag og hristi þetta svo af sér. Hann er að æfa helgileik með krökkunum á leikskólanum og mikið spenntur að við komum að sjá þau í Hjallakirkju á föstudagsmorguninn.
Fyrri tónleikarnir í mínum kór eru svo í kvöld svo ég er búin að vera að reyna að læra texta á milli verka síðustu daga, held þetta sé að koma, kemur í ljós í kvöld.
Hvað jólaundirbúning varðar þá var ég að monta mig af því þegar ég skrifaði síðast að ég gæti bara lagst í tónleika og kafffihús í desember en einhvernveginn legst manni nú alltaf eitthvað til og tíminn líður hratt, ég er t.d. ekki farin að huga að jólakortum og það hefur nú held ég aldrei verið svona seint hjá mér, ég hef nú frestað öllu fram yfir söng og verð svo í fríi á föstudag, svokallað bökunarfrí (gömul hefð hér) og það er ýmislegt sem ég ætla að gera þann daginn að minnsta kosti þegar ég hugsa til hans, spurning hvað verður, allavega fer ég í kirkjuna á helgileikinn og jafnvel skrifa einhver jólakort :o)
Mér finnst svo dimmt úti enda auðvitað skammdegi en skrítið þar sem það er aðeins snjór yfir hvað það birtið lítið.
Særún var að byrja í prófum í dag og fer allavega í 6 próf núna fyrir jólin hún er líka á fullu í handbolta og fer svo í kirkjustar "TTT" tíu til tólf ára og þau ætla að hafa helgileik í barnasamveru kl. 16 á aðfangadag þannig að það er nóg að starfa hjá öllum sem er bara hið besta mál.
Læt þetta duga að sinni
hafið það sem best
Jóhanna Brekkan :o)

Jóhanna Marína Baldursdóttir

9.12.2008 kl. 9:16

Tæknin, tæknin að hrella mig.

Var búin að skrifa pistil og tíunda afrek mín en svo datt allt út og verður ekki endurtekið.
Er að hella mér í póstinn. Hafið það sem best öll. Kveðja. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

8.12.2008 kl. 14:49

Smá pása frá próflestri

Þessa daga gerir maður lítið annað en að lesa undir próf og varla að maður hittir fólk nema tengdó en bara frábært að eftir að hún flutti nær þá sjáumst við eða heyrumst næstum á hverjum degi.Á laugardaginn skruppum við aðeins til Ólafsfjarðar að kíkja á ættingjanna og koma nokkrum jólakortum í hús,þar í bæ eru jólin bara alveg að hrýngja inn það var líka svona í fyrra jólin eru svo snemma á ferð í bænum :) alveg sama í hvaða hús maður stingur nefinu inn allir með svo jólalegt hjá sér og bíða bara spenntir eftir jólunum eins og börnin. Í minni ætt er nafnið Reykjalín og ég fékk mér þetta nafn í sumar,svo sagði ég mömmu og pabba að Alli minn væri komin með þetta nafn líka,þá sagði Jónas kanski ég finni mér eitthvað nafn,pabbi sagði að hann gæti haft það Lundarbrekka.Þá sagði Aldís eða (Jónas skorradalur)guð má vita hvar barnið náði í þetta nafn ha ha.En eftir þessa ólafsfjarðarferð þá komst húsbóndinn í jólastuð og byrjaði á því eldsnemma á sunnudagsmorgunn að géra ca 160 fiskibollur svo voru kókostoppar gerðir og fyrst hann var komin í gírinn þá gerði hann Engiferkökur líka.Yndislegur maður sem ég á. jú jú ég gerði líka eitthvað fékk að vaska upp :) og lærði á milli. Læt þetta gott í bili vonandi nennir einhver að lesa þetta bull frá mér.

Bestu kveðjur Kristín og fjölsk.

Kristín Reykjalín

7.12.2008 kl. 11:58

Jólasmáköku bakstri lokið

og þá tekur við venjulegur jóla undirbúningur Yndislegt Malla að lýsa upp hjá litla englinum þínum guð blessi mynningu hennar Ó hvað ég vildi vera komin í laufabrauðið hjá ykkur . Annars allt gott héðan Bestu kveðjur til allra Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

7.12.2008 kl. 11:06

Forspá mín um allar frystingar á síðasta ársfjórðungi 2008

Góðan og glaðan sunnudag. Ég er að átta mig á því að ég hef verið með ómeðvitaða forspá í haust þegar ég frysti fyrstu kennsluvikuna mín. Því hvað er ekki búið að frysta margt síðan, lánin, íbúðamarkaðinn, og fleira og fleira.
Ég hef nú notað þennan sunnudagsmorgun til að ljúka við að prenta og útbúa mitt árlega jólakort og í fyrsta sinn með myndum af fjölskyldunni. En auðvitað sá ég ekki eina ásláttarvilluna fyrr en ég var búin að prenta 2/3 af kortunum svo hún verður látin vaða með í ár en ég get nýtt mér þennan miðil og leiðrétt hana hér þegar nær líður jólum.
Við hjón, áttum ánægjulegt kvöld með Lionsmönnum og eiginkonum þeirra, í gærkvöldi á Leifsstöðum í Eyjafjarðarsveit. Þar hélt Lionsklúbbur Akureyrar sinn jólafund og borðaði jólamat. Svo ætlum við að skreppa austur í Lundarbrekku og ég að verða eftir þar til á morgun og við Friðrika að útbúa laufabrauð með mömmu og pabba.
Við Jói setjum alltaf ljóskross á litla leiðið okkar í Lundarbrekkukirkjugarði og nú er þetta í þrettánda sinn sem við lýsum upp leiðið hennar Áslaugar Rögnu, svona flýgur tíminn.
Bestu aðventukveðjur Malla

Marína Sig

6.12.2008 kl. 10:50

Dauðþreytt eftir strangan vinnudag

í gær Byrjaði að vinna kl 8 og var í mínu starfi til kl 5 Þá tók við jólahlaðborð hjá gamla fólkinu á mínum vinnustað og stóð til kl 21.30 þá tók við uppvask og frágangur og var komin heim kl 2400 Særún Birta var hér í nótt og við erum búnar að baka helling af litlum kúmenkringlum í morgun Læt þetta duga í bili Kveðja besta frænka

Guðrún besta frænka

4.12.2008 kl. 11:20

ORÐ DAGSINS

Sá sem tapar peningum tapar litlu, sá sem tapar heilsunni tapar miklu, en sá sem tapar hugrekkinu tapar öllu. -

Guðrún Sigurgeirsdóttir

3.12.2008 kl. 14:59

Frysta í viku vinnufrið
svo verði ei jólaskortur.
Botninn sem hér bætist við,
er hann bærilega ortur?

Þetta minnir nú kannski í vísu Þórðar Flóventssonar sem hann hafði ekki yfir nema einu sinni og þvældist fyrir mörgum að læra..
Lukkan dýra leiði hal
lífs um íravegi, já hún er með miðrími , en vill ekki einhver botna betur þennan frystijólaskorts fyrripart?
Kveðja. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

3.12.2008 kl. 11:00

Enda enginn skortur á jólum...

...frekar en frysta heila vinnuvikan hjá Möllu í haust sem spannst úr mikil og fyndin umræða.. sem ég held að sumir hafi ekki skilið til fulls .-) og átti auðvitað að vera FYRSTA heila vinnuvikan. Annars allt gott hjá mér, þoli illa innsláttarvillur en er svoooo fljótfær að þær slæðast ansi oft með.
Guðrún

Guðrún Sigurgeirsdóttir

3.12.2008 kl. 1:17

Jólaskortaskrif

Sá þegar ég var búin að skrifa pistilinn að ég hafði skrifað jólaskortaskrif en það var nú alls ekki ætlunin, enda undirrituð mjög viðkvæm fyrir bæði stafsetningar- og innsláttarvillum.

Kv. Elma

elma

3.12.2008 kl. 1:15

Útgáfutónleikar og fleira

Góða kvöldið.
Var að koma heim af mjög vel heppnuðum útgáfutónleikum Kórs Áskirkju. Kórinn fagnaði útkomu jólageisladisks að nafni Það aldin út er sprungið og við troðfylltum kirkjuna sem tekur u.þ.b 300 manns og seldum vel af geisladiskum. Þetta var ákaflega vel heppnað og gaman að taka þátt í þessu verkefni, þó svo að ég sem gjaldkeri hafi lagt íbúðina mína að veði, þó svo að sumir kórfélagar mínir haldi að það sé grín er alls ekki svo. En á endanum uppsker maður eins og maður sáir og síðast þegar kórinn gaf út disk var íbúðin mín líka trygging fyrir útgáfunni og þann disk erum við að endurútgefa núna vegna mikillar sölu. Þannig að ég ítreka að ef ykkur vantar jólagjafar fyrir tónlistarunnendur og þó sérstaklega kannski unnendur kórtónlistar þá eru geisladiskar til sölu hjá undirritaðri. Annars er bara allt gott að frétta úr Glaðheimum. Aðrir tónleikar í þessari viku en svo eru það bara púrtvín og jólaskortaskrif um helgina og huggulegheit. Bið að heilsa ykkur kæru ættingjar.
Elma.

Elma

1.12.2008 kl. 11:30

datt restin út

þetta átti að vera:
lagst í tónleika og kakó og smákökur í desember ég á svo duglega stelpu sem sér um þetta allt :o).
Eigið notalega aðventu
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

1.12.2008 kl. 11:20

Gleðilega hátíð

Góðan dag gott fólk þá ætla ég að bæta úr pennaleti minni upp á síðkastið og setja inn smá pistil.
Nú er mikið að gera í undirbúningi fyrir jólatónleika í kórnum mínum en þeir verða 9 og 11 desember .
Ég og krakkarnir fórum á laugardaginn á Hálsatorg og vorum viðstödd þegar kveikt var á jólatrénu og þar mættu jólasveinar og Samkór Kópavogs söng nokkur jólalög og síðan var heljarlangt atriði úr "dýrunum í hálsaskógi" Ara mínum til mikillar skemmtunar, en agalega var kalt ég var heillengi að ná í mig hita sérstaklega voru tærnar orðnar dofnar.
Eins og Guðrún nefndi buðum við svo þeim í vísir af jólahlaðborði á laugardagskvöldið og það var virkilega notalegt kvöld og það er enn jólailmur í húsinu. Í gærmorgun fór ég svo í messu í Bústaðakirkju en þar var léttsveitin að frumflytja lag eins og svo margir aðrir kvennakórar í gær en það er lag sem Jón Ásgeirsson samdi fyrir Gígjuna samtök kvennakóra á Íslandi, þetta var yndisleg stund og tókst vel hjá okkur, en við erum búnar að hjakka í þessu lagi lengi og fundist það frekar leiðinlegt og þungt en textinn er eftir Snorra Hjartarson og heitir það "Ég heyrði þau nálgast" en það er eins og svo oft þegar stundin er komin þá smellur þetta, ég hef einmitt verið að hafa áhyggjur af því undanfarið að ég hef svo lítið lagst yfir textana sem eru núna á jólatónleikunum en við erum með óvenju mikið að nýjum jólalögum og syngjum aldrei með textamöppur ,en svo er það oftast þannig að þetta kemur á síðustu metrunum og verður örugglega þannig líka núna.
Ég var svo endurnærð þegar ég kom úr kirkjunni að ég þreif hjá mér gluggana í borðkróknum en skellti mér ekki í bakstur því ég á svo duglega stelpu sem hefur gaman að því að baka og hún er búin að baka aðeins smákökur sem eru nú langt komnar, svo við kanski hjálpumst að um næstu helgi og gerum meira.
Nú er vinavika hér í vinnunni hjá mér og eiga allri einhvern leynivin, þetta er ótrúlega gaman og gott fyrir sálartetrið í skammdeginu ég fékk sko ferðatösku í morgun (mjög litla) og í henni voru nammimolar :o), þetta verður alla þessa viku og svo förum við á Hótel Sögu á jólahlaðborð og skemmtun á föstudagskvöldið semsagt starfsfólkið hér og makar þannig að það er alltaf nóg um að vera og mikið gaman. Ég hef aldrei verið svona snemma í því að kaupa jólagjafir (sennilega kreppan sem gerir það) og Særún mín var komin í svo mikið jólaskap í gær að hún bara pakkaði inn nokkrum pökkum það er í góðu lagi það er þá bara tilbúið, þið sjáið það að ég get bara lagst

Jóhanna Marína Baldursdóttir

1.12.2008 kl. 9:09

Fullveldið 90 ára

Góðan daginn og gleðilega hátíð.
Í mínu barnsminni stóð 1.desember fyllilega jafnfætis 17. júní sem minningardagur um merkan áfanga í þjóðarsögunni. Hann var meiri alvörudagur, tengdist meira hafís, eldgosum og veikindum eins og árið 1918, sem hófst með frostavetri, síðan var Kötlugos og loks spænska veikin síðast á árinu. Síðan eru 90 ár og við skulum fagna þessum merka áfanga, ekki með óhljóðum og ólátum , heldur með órofa samstöðu og alvöruþunga sem hæfir tilefninu.
Þakka ykkur sem tókuð áskorun og skrifuðuð í gestabók, Kristín þú verður vonandi fastapenni hjá okkur,ég veit að þú átt ekki erfitt með að skrifa, Gósa hefur sagt mér að þið hafið stundum skrifast á meðan þið Jónas voruð búsett í Ólafsfirði. Til hamingju með að hafa lokið þessum prófaáfanga núna og nú vonum við að allt gangi samkvæmt björtustu áætlunum með hjartalokuaðgerðina og þú getir komið tvíefld í skólann í
haust. Hér er kalt og hefur snjóað nokkuð upp á síðkastið , búið að moka veginn í gær og heimreiðina í fyrradag en hefur snjóað og skafið síðan en ekki verulega til baga.Ætlum til Húsavíkur á morgun ef veður leyfir. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

30.11.2008 kl. 8:58

Sunnudagsmorgunn

og fyrsti sunnudagur Aðventunnar í dag. Ég var að skoða blöðin og netmiðlana eins og svo oft á sunnudagsmorgnum. Og er frekar hissa á forsætisráðherra vorum fyrir þessi ummæli um ábyrgðina. Að sjálfsögðu ber enginn ábyrgð ekkert frekar en neinn annar!!! Vitið þið það að ég tók eiginlega engan þátt í þessu svokallaða "góðæri" eða GRÓÐÆRI eins og einhver sagði en ég skammast mín samt fyrir að hafa verið blind á þetta allt. Hvað þarf til að stjórnendur viðurkenni ábyrgð sína? Auðvitað liggur ábyrgðin líka hjá þeim fyrst og fremst. Þá er það Rúv, byrjað á að skera niður morgunleikfimi og svo er svæðisstöðvunum lokað í "útvarpi allra landsmanna". Þetta er enn eitt frábæra útspilið í þessari endemis vitleysu hjá Páli Magnússyni og les svo fréttirnar sjálfur á margföldum launum okkar. Páll ætti að losa sig við jeppann og halda áfram með morgunleikfimina sem ég veit að margir nýta sér og getur ekki kostað mikið. Svæðisútvarpið á fullan rétt á sér því þar eru sagðir hlutir sem skipta máli á því landsvæði sem um ræðir.
Jæja búin að blása núna... en við fjölskyldan fórum í þetta fína jólahlaðborð til Hönnu og Palla í gærkvöldi og takk kærlega fyrir okkur. Áttum saman notalega stund. Ég er búin að setja upp eitthvað af jólaljósum og gera Aðventukrans. Ætla jafnvel að búa til smákökudeig á eftir eða að fara að kaupa jólagjafir áður en krónana verður sett á flot.
Eigið gðan sunnudag og notalega Aðventu framundan.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

29.11.2008 kl. 21:30

Jólaljós í gluggum

Gott fólk, ég er alveg sammála Dísu um að fleiri skrifi hér inn, svo ég verð að reyna skrifa eitthvað þó ekki væri nema fyrir hann Jónas minn, þar sem hann, penni og blað eiga bara ekki saman :). Af okkur fjölskyldunni er bara allt gott að frétta, síðasti skóladagurinn var hjá mér í gær og kláraði ég 4 próf í síðustu viku (úúffff ) svo núna á ég bara 3 próf eftir. Ég fer ekkert í skólann eftir áramótin þar sem ég reikna með að fara í hjartalokuaðgerð í janúar og eftir hana einhverja mánaða bataferli. Vonandi byrja ég bara eldhress aftur næsta haust. Jónas er búinn að setja jólaseríur í 3 glugga í dag og voðalega er notalegt að hafa þessi ljós, Aldís var svo stollt af sér áðan því hún labbaði alein til ömmu sinnar og gaf henni jólaséríu, það er bara í næsta hús en stórt skref fyrir heimasætuna þar sem hún er nú frekar lítil í sér og er ekki að ana út í neitt að óþörfu.Hér á bæ eru engar jólakökur komnar í bauka en Jónas er nú búinn að kaupa í kókostoppanna sína sem hann gerir alltaf og eru mjög vinsælir. Systur mínar segja alltaf " hvernig fer hann að því að gera svona flotta toppa á þá, þeir verða víst bara flatir eins og lummur hjá þeim. Á mánudaginn 1 Desember er Aldís að syngja með leikskólanum í kirkjutröppum Akureyrarkirkju hún söng fyrir mig í morgunn þegar hún vaknaði lagið snert hörpu mín... og hún sver sig alveg í pabba sinn að geta og hafa gott eyra fyrir söng. Í dag var kveikt á jólatrénu í miðbænum og fórum við fjölskyldan í bæinn,fyrst voru nokkur jólalög sungin og meðan maður stóð þarna og hlustaði í snjókomu og 5 stiga frosti þá voru tásur og puttar pínu kaldi svo það var notað tækifærið og skellt sér á kaffihús eftir söngin. Þar sem aðventan er að ganga í garð þá látið þið nú jólastressið ekki ná tökum á ykkur bara njóta aðventunnar,jólaljósanna og alls þess fallega og skemmtilega sem hún hefur upp á að bjóða. Ekki gleyma að hlúa að því sem næst manni er fjölskyldu og vinum það er jú það dýrmætasta sem maður á "ekki satt " læt þetta bull gott í bili. Eigið góða daga, biðjum að heilsa öllum.

Kristín Reykjalín.

Kristín Reykjalín

29.11.2008 kl. 20:24

Það aldin út er sprungið

Sæl öll.
Síðasta vika var erfið í vinnunni, þar sem uppsagnir og ýmsar breytingar þurftu að ganga í gegn fyrir mánaðamótin. - Ekki gaman að standa í svoleiðis málum. En að öðru og skemmtilegra. Nú er jóladiskur Kórs Áskirkju - Það aldin út er sprungið - kominn í hús og aðventukvöld þar á annað kvöld, kórfélagar munu mæta snemma og pakka diskunum til að geta vonandi selt nokkra á aðventukvöldinu. Svo erum við með útgáfutónleika á þriðudagskvöldið í Áskirkju kl. 20 - fyrir þá sem langar að koma. Aðgangur ókeypis. Þannig að ef ykkar langar í nýjan jóladisk með fallegri kórtónlist án undirleiks þá má hafa samband við undirritaða. Í gær skellti ég mér svo í augnaðgerð, svona leiseraðgerð og sé núna betur en ég hef gert síðustu 30 ár og búin að henda gleraugunum - þetta er algjör snilld. Hér er algjör skítakuldi.
Bestu kveðjur úr Glaðheimunum.
Elma

Elma

29.11.2008 kl. 19:13

Þá er nú best að bæta fyrir sig.

Það er búið að vera alveg kolbrjálað að gera hjá mér í vinnunni Þetta blessað gamla fólk er svo mikil jólabörn Allt skal vera orðið hreint og fínt þegar aðventan gengur í garð og svo hafa jólasmákökurnar hjá mér tekið sinn tíma Rúsínukökur og hálfmánar komnir i sína bauka og litlu kúmenkringlurnar verða bakaðar í næstu viku, Þetta verður nú allur baksturinn hjá mér slepp alveg við tertu bakstur fólk hjá mér vill ekki tertur það er svo mikið af góðum mat þessa daga að tertur eru óþarfar Annars gengur lífið bara vel hér á þessun bæ allir hraustir og þá er allt í lagi Læt þetta duga í bili Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

29.11.2008 kl. 8:56

Ritstífla?

Góðan dag gott fólk. Kominn 29. nóvember og síðan þann 23. hafa ekki aðrir tjáð sig en við mæðgur hér í gestabók. þó eru skráðir gestir t. d. í gær 30.
Það er nú með þessa síðu okkar að hún er eins og hver önnur jurt sem þarfnast umhirðu og vökvunar , verður þurr og skrælnar ef við sinnum henni ekki og kannski einhæf ef alltaf er sama fólkið að skrifa eingöngu. En ég er búin að sjá það á Barnalandi að það á að skíra litla Sigurðarsoninn , yngsta afkomanda Lundarbrekkuleggs, í dag í Akureyrarkirkju. Við Geiri sendum því allri fjölskyldu hans hjartanlegar hamingjuóskir með litla drenginn og nafnið hans og biðjum honum blessunar. Bestu kveðjur . Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

26.11.2008 kl. 14:11

Hér er líka hversdagslífið í föstum skorðum

..eins og hjá ykkur öllum hinum vonandi. Já þetta eru einstakar heimildir allt saman þessar dagbækur. Ég hef t.d. flett upp mínum fæðingardegi í dagbók mömmu og þar stendur að ég hafi fæðs "rauð og grett" minnir mig :-) yndislegt. Ekki hef ég nú haldið dagbók en ýmsar heimilidir geymir maður á þessum vef-og bloggsíðum. Þetta eru breyttir tímar.
Hér fer jólaljósunum fjölgandi í gluggum og verslunum en ég finn fyrir mikið afslappaðrar samfélagi heldur en síðustu ár. Minni umferð og minni læti held ég. Það er ekki gott að þurfa svona rækilega niðursveiflu til að Landinn átti sig á hvað skiptir máli í lífinu.
Á mánudagskvöldið fórum við hjón á borgarfund í Háskólabíó og þar var gríðarleg stemming og mikil samheldni.
Ég veit ekki annað en að við Íslendingar höldum uppá 90 ára Lýðveldisafmæli næstkomandi mánudag 1. desember og þá reikna ég með að mæta á Austurvöll kl. 15.00. Vona bara að allt fari friðsamlega fram og það mæti allir sem vetlingi geta valdið. Því er einhvertíma er ástæða þá er það nú. Ég vonast svo til að fara að komast í eitthvert jólaskap svo mitt heimili verði líka með jólaljósum í gluggum :-) en Aðventan byrjar víst á sunnudaginn og þá hefst notalegur tími.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

26.11.2008 kl. 11:03

Hversdagslífið,

já það er nú líklega það mikilvægasta.
Þessi gamla dagbók Marínu ömmu er eitt af því sem Bubbi heitinn mágur minn færði mér í kassa úr gamla húsi, þegar hann flutti úr Lundarbrekku 1985.
Hélt víst að ég væri líklegust til að varðveita og gera eitthvað úr.
Til að bregðast ekki því trausti datt mér í hug að láta ykkur njóta þessara minninga saman hér á síðunni. Það er rétt hjá þér Malla að amma færði mér glerkrukku með niðursoðnum ávöxtum , en það er til marks um að niðursoðnir ávextir fengust að vísu hér í verslunum á þessum tíma , en voru svo rándýrir að þeir voru algjör munaðarvara. Trégrindina , hún var úr tekki, átti ég til skamms tíma og tvö ferköntuð lítil glerföt , sem ég notaði gjarnan undir niðurskorið grænmeti, tómata og gúrkur. En þau voru sitt hvorum megin í grindinni. En það er örstutt síðan grindin liðaðist í sundur og þá henti ég henni , hafði ekki skápapláss, og annað glerfatið litla er nýlega brotið , hitt á ég og ætti kannski að setja í geymslu. Þetta sama vor , 1967, fórum við Geiri í bændaferð alla leið í Öræfin ,Guðrún mín var í umsjá ömmu á Bjarnarstöðum á meðan" og brosti aldrei" Siggi Hreinn fæddist og af því að ég á dagbækur um hvern einasta dag frá þessum tíma má vel vera að ég eigi eftir að setja eitthvað á blað . Við ætlum að skreppa í aðdráttarferð e. h. og í kvöld í Þorgeirskirkju að hlusta á Karlakórinn Hreim. Allt autt og þurrt en stórhríðarspá strax í nótt og á morgun og ærnar komnar í dag á formlega innistöðu.Bestu kveðjur . Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

25.11.2008 kl. 20:50

Góðar hversdagskveðjur og njótið hversdagslífsins.

Endirinn datt af pistlinum mínum kanski verið orðinn full langur hjá mér. Kveðja MS

Marína

25.11.2008 kl. 20:46

Norðurgötupóstur

Gott kvöld kæra frændfólk. Mig langar að deila því með ykkur hve gaman ég hafði af því að lesa dagbók ömmu Marínu frá bændaferð 1967. Ég var 6 ára þegar þessi ferð var farin og man óljóst eftir hughrifum sem ég greindi þegar verið var að undirbúa ferðina. Amma og afi voru ekki að fara í ferðalög á hverju ári og hvað þá til annarra landa svo undirbúningur og spenningur var mikill. Ég man eftir dragtinni sem amma lét sauma á sig og einnig eftir bláu þunnu poplínkápunni sem hún keypti sér í tilefni ferðar. Ekki minnist ég þess að afi fataði sig en hann var pottþétt með hatt og í frakka eins og ég man hann svo vel í forstofudyrum að bíða eftir að farið væri af stað. Einnig man ég heimkomu þeirra og ýmsa hluti sem höfðu verið keyptir og þar á meðal á ég lítið eldfastfat sem mamma og pabbi fengu að gjöf og var í grind og með glæru loki. Grindina á ég ekki og lokið er löngu brotið en formið er enn í notkun og hentar vel í örbylgjuofninn. Eins man ég eftir niðurlögðum ávöxtum í glærri krukku finnst samt ótrúlegt að þau hafi ferðast með fleiri slíkar krukkur milli landa. Þegar ég las dagbókina sé ég ömmu fyrir mér eins og heimskonu sem naut þess að ferðast í flugvél og búa á góðum hótelum þar sem hún fór í sturtu og hafði fataskipti fyrir kvöldverð þar sem karlmenn þjónuðu til borðs. Það er gott fyrir okkur að lesa þetta og greina andrúm þessa tíma. Af hversdagslegum hlutum hér í Norðurgötu er helst það að frétta að allir eru vel frískir. Jólahangikjötið komið í hús úr Lundarbrekku og búið að sjóða smá bita til að prófa og er árgangurinn 2008 alveg einstaklega góður. Við sendum pabba góðar þakkir og kveðjur fyrir það. Sunnudagurinn varð gestadagur og margt spjallað , á laugardag komum við úr Lundarbrekku um miðjan dag og fórum í myndarlegt afmæliskaffi Daða í Kjarnagötu. Takk fyrir okkur. Svo er vinnan alsráðandi þessa virku daga. Nú standa yfir námsmatsdagar á matvælabraut og ég hugsa ekki um annað á meðan. Sævar fer í skátaútilegu í Valhöll, skáli í Vaðlaheiði, um næstu helgi, Ásgeir fer á árshátíð í MA á föstudag, en ég var búin að taka að mér að elda jólamat fyrir kvenfélag Akureyrarkirkju á laugardag en vegna dræmrar þátttöku getur verið að það falli niður, kemur í ljós á morgun. Ég yrði nú voða fegin ef ég ætti frí og gæti farið að huga að gluggaþvotti og jólaljósum. Látum þetta vera gott í bili. Það er engin hætta á að ég fari að yrkja en gaman hef ég af því þegar menn koma hér inn og láta ljós sitt skína í bundnu máli. Góðar hversdags

Marína Sig

24.11.2008 kl. 17:18

Nýtt

Mig langar að vekja athygli ykkar á nýjum flipa hér til hægri "Ferðasaga"
Þetta er semsagt ferðasaga ömmu Marínu og afa Sigurðar til Noregs og Danmerkur 1967. Gefið ykkur góðan tíma til að lesa þetta. Mjög fróðlegt!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

23.11.2008 kl. 19:21

Heil og sæl

Aldrei hefur kveðskapur verið mín sterka hlið, þannig að ég læt annað frændfólk sjá um þá hlið :)
Annars snjóaði aðeins í Danmörku um helgina, en þó aðallega á Sjálandi, þannig að það er verulega farið að kólna hér fyrir sunnan ykkur.
Jæja bið að heilsa heim til Íslands.

Sibba

23.11.2008 kl. 14:53

til hamingju með afmælið !!!

Til hamingju með afmælið Krístín.kv mikki og siggi

mikki og siggi

22.11.2008 kl. 21:28

vísa

Lítil vísa gleður geð
hjá (gömlu) systur minni
viltu ekki vera með
í vísnagerð hér inni.

sigatla

Sigurður Atlason

22.11.2008 kl. 20:48

Sæl. Mikið var ég glöð að sjá að litli bróðir rak hér inni nefið með skáldskap sinn. - sem allt of fáir vita af. Ég dundaði mikið við að setja saman vísur á unglingsárum en hef ekki lagt rækt við það lengi - kannski maður taki upp á því aftur.
Síðustu helgi eyddum við hjónaleysin á Hótel Rangá, okkur áskotnaðist gjafabréf um síðustu jól sem var í þann veginn að renna út og ákváðum að skella okkur þangað. Við áttum þar vægast sagt yndislega helgi. Vikan gekk sinn vanagang í vinnunni, verð þó að segja að vinnan hefur oft verið auðveldari en akkúrat þessar vikurnar - en það er önnur saga. Í öllu krepputalinu höfum við nú þegar fjárfest nú þegar í næstum öllum jólagjöfunum þar sem allir sega að hlutirnir eigi bara eftir að hækka og hækka næstu vikurnar. Reyndar er húsbóndinn að fara að vinna "út á landi" eins og sagt er og ég nenni ömögulega á tromma með drenginn í búðir eftir vinnu á daginn til að kaupa jólagjafir. Þannig að nú er bara að kveikja á kertum og pakka inn jólagjöfum. kv. Elma

Elma

22.11.2008 kl. 16:04

Ekki er ég nú skáld mælt

en það er gaman að þessu hjá ykkur Er á kafi við þrif því allt situr á hakanum hjá manni þegar verið er að þrífa alla vikuna hjá öðrum, Ætla að fara að huga að jólasmákökunum og klára það fyrir næstu helgi Guðrún næst besta frænka rak nefið aðeins inn hjá mér í dag var á leið í bæinn, kom með myndir frá Diku sem ég pantaði hjá henni alveg frábærar frænka takk fyrir mig. Annars allt gott héðan heyrumst síðar Kveðja Besta frænka

Guðrún besta frænka

22.11.2008 kl. 15:37

Fyrirsögnin datt af þessu og ég

man ekki einu sinni hver hún var, einhver hvatning ti ykkar að halda áfram svona

Hjördís Kristjánsd.

22.11.2008 kl. 15:31

bæði rímið og að fleiri taki til máls.

Þetta kom hjá mér í morgun , gamlar minningar.

Krakki í kreppu.

Á öldinni síðustu, áratug fjórða
var ekki mikið um föng.
Krakkinn varð allt sem að bauðst sko að borða
og berjast við það dægrin löng
að kuldinn ekki í hann klónum læsti
og kæmust sjúkdómar að.
Óttinn var stöðugur um hver er næsti
ef enn gengur dauðinn í hlað.

Barn klætt í ullar brók hálf síða
svo er bolur eða ermalöng
skyrta og kot og klukkan víða
og klofhárra sokka þröng.
Fætur samt kaldir og kláði á tánum
kuldabólgan svo sár.
En fatnaður mestallur fenginn af ánum
um fjölmörg harðindaár.

Malla, Jói og Hjörvar komu í gærkvöldi og gistu hér í nótt og mikið búið að taka til hendinni til heimilisþrifa og aukins undirbúnings fyrir vetur. Svo eru þau farin núna. Bestu kveðjur Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

21.11.2008 kl. 15:53

Góða helgi

Sælt veri fólkið, til gaman ætla ég að láta eina vísu hér inn en það er eini kveðskapurinn sem komið hefur frá mér og það eru mörg ár síðan, ég var unglingur þá, en ekki fylgir sögunni um hvern var samið :o) mikið vatn runnið til sjávar síðan.

þó árin líði alltof fljótt
áttu mig enn á fæti
komdu aftur komdu fljótt
ég held að það mig kæti

góða helgi öll
kv. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

20.11.2008 kl. 9:51

Gaman að fá vísnainnlegg

þakka ykkur fyrir frændsystkin.
Ég var að lesa Bændablaðið og í framhaldi af þjóðmálaumræðunni ,segir Hreiðar Karlsson þar að loks sé fundin skýring á hörðum viðbrögðum þegar Árni Matt hafði rætt við breskan kollega sinn.

Árni fékk Breta til reiði reitt,
þá reyndi hann að vera char-ming.
Sagði þó Árni ekki neitt
annað en "hello dar-ling ".

Og þar er lila þessi um alkunnan prest og fjáraflamann.

Mikið er hve margir lof ´ann
menn sem aldrei hafa´séð ´ann
skrýddan kápu Krists að ofan
klæddan skollabuxum neðan.

og svo þessi útgáfa sem varð til þegar maður nokkur sem ekki var fljótur að nema ljóð barðist við að læra vísuna og hún varð svona:
Mikið er hve margir lof ´ann
að ofan.
Menn sem aldrei hafa séð ´ann
að neðan.
Kveðja . Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

19.11.2008 kl. 21:55

Höfundur ókunnur

Flott Siggi hjá þér, áttu ekki fleiri? það skal tekið farm að "þjóðnýtingin" er EKKI eftir mig, gleymdist alveg að setja í mig skáldagenið :-), hef ekki hugmynd um hver orti. Góða nótt

Guðrún Sigurgeirsdóttir

19.11.2008 kl. 21:15

Þegar tekur vetur völd
vinum sendum hlýju
ef að veröld virkar köld
vekjum glóð að nýju.

sigatla

sigurður atlason

19.11.2008 kl. 17:45

Bara til gamans

Þjóðnýting



Á lítilli eyju við heimsskautahjara
býr heimakær, vansvefta, auðtrúa þjóð.
Hún leit upp til ráðsmanna loðinna svara
sem loforðum öfugt í kok hennar tróð.

Þeir níddust á trausti og trúgirni okkar
- táldrógu sannlega helvítis til.
Og allt sem þeir gerðu, þeir gordrullusokkar
gerðu þeir flottræflum sínum í vil.

En frelsið er háðara boðum og bönnum
en bláeygðir frjálshugar ímynda sér.
Þjóð mín var notuð af nýríkum mönnum
og nauðgað af útrásarvíkingaher.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

19.11.2008 kl. 16:16

það er rétt hjá þér

næst besta frænka Fólki finnst allt svo dimmt skamdegið ekki verið svartara en núna síðustu daga aldrei birt almenni lega og ekki veitir af að létta lundina smávegis með jólaljósunum og kertaljósunum Allt gott af mér og mínum Kveðja Besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

19.11.2008 kl. 15:53

Miðvikudagur

Hér rignir í dag, var bara nokkuð hlýtt í morgun en hefur verið að kólna þegar líður á daginn. Mér finnst fólk vera mjög snemma í því þetta árið að setja upp jólaljós, e.t.v. er fólk að létta sér lífið í þessum annars leiðinlegu tímum sem við lifum núna þ.e. fjámálakreppa og ríkistjórnarkreppa einnig eða ég leyfi mér að halda því fram. Hér gengur lífið sinn vanagang, börnin bæði heima aldrei þessu vant og bara rólegheit. Vildi bara leggja orð í belg!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

17.11.2008 kl. 17:38

Mikil gróska í skrifunum.....

Ma mað ma mað ma maður má bara ekki bregða sér af bæ (svo ég taki mér orð Ragnars Reykáss í munn) þá fæðist þessi líka yndislegi drengur í ættina, enn og aftur til hamingju Siggi og Bryndís. Svo bara losnar um ritstýflu hjá fólkinu og ég er bara búin að sitja og lesa og lesa eftir ég kom heim í dag, áfram svona. Já og Guðrún besta búin að skipuleggja frænkuboð........ flott framtak. Ég átti rólega helgi vestur í Dölum með fjölskyldunni og annari fjölskyldu. Fór á bæi og var viðstödd rúning og fékk hrossabjúgu að borða o.fl. o.fl. svo var líka slakað á í heita pottinum og spjallað, spilað og mikið helgið.
Eigið góða vinnuviku.....

Guðrún Sigurgeirsdóttir

16.11.2008 kl. 9:56

16. nóvember, dagur íslenskrar tungu

vekur upp góðar minningar gamals íslenskukennara, sem alltaf fór að fyrirmælum sem reyndar eru enn í gildi og helgaði íslenskukennslu dagsins Jónasi Hallgrímssyni og íslenskri tungu í dag er 201 ár frá fæðingu Jónasar. Ég er líka í morgun búin að hlusta á mörg ljóð lesin á gömlu "gufunni" eftir Jónas og um Jónas. En að öllu hversdagslegri hlutum. Hér gengur allt sinn vanagang, snjór yfir öllu og ekki bætt verulega á síðustu tvo sólarhringa svo slóðin eftir fjórhjólið hans Geira stendur og hann getur hiklaust farið sínar tvær ferðir á dag í fjárhús og reykhús. Það er alveg jarðlaust fyrir fé, klakabrynja undir snjóstorkunni því það flóðrigndi fyrst, snjóaði svo og frysti. Sigrún er heima núna líkl . næstu viku og skrapp til mín á föstudag og byrjaði svolítið á extra tiltekt fyrir jólin , svo boðaði Þura komu sína og óralangt síðan þau hafa komið svo við frestuðum fram á þriðjudag meiri tiltektum. Dika er líka alltaf önnum kafin,litlu bræður , Þórlaugur og Óli Skagfj. eru hjá þeim núna um helgina,foreldrarnir fóru suður.
Það væri nú einfalt gætu þau Óli og Dika verið heima.En í dag er handverskvennafundur á Fosshóli og Dika situr þar í stjórn og tilneydd að mæta og ég hefi grun um að Óli hafi verið beðinn að vera í steypuvinnu í Svartárkoti, þar er verið að gera fjárhús úr hlöðu. Vegna þess var frestað för í leit í afréttina , sem átti að fara kl 5 í morgun en verður í staðinn næstkomandi nótt og morgundag og Óli bóndi er veðsettur í þá ferð. en af því að leikskólakennari er búsett í gamla húsinu á Bjst. mun verða hægt að koma Óla litla Skagfjörð í fóstur þar meðan Dika er á fundi og Þórlaugur verður bara að vera með henni á fundinum. Kvenfélagsfundur var hér á föstudag og býsna hugur í konum þótt ekki séu þær margar. Ákveðið að fara í leikhús á Akureyri eftir áramót og bjóða körlum upp á að koma með. Ekki fastákveðið hvað á að sjá. Ákveðið að baka vínartertur og gefa í fjölskylduhjálpina á Akureyri fyrir jólin og vonast eftir að það skapi fordæmi fyrir fleiri félög að gera eitthvað fyrir nauðstaddar fjölskyldur, margt smátt gerir eitt stórt. Gaman að sjá að þið ætlið aðhafa frænkuboð á Bóndadaginn, en þá verða nú færri þorrablótsgestir hjá mér , vissi það nú reyndar áður og svo veit maður nú ekkert hvort maður yfirleitt fer á þorrablót.
Það er nú eitt af því sem tíminn verður að leiða í ljós. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

15.11.2008 kl. 19:03

Notalegt súpukvöld skal það verða

Þar sem ég er búin að fá það staðfest að Malla verður á námskeiði til kl 1700 föstudaginn 23 janúar 2009 ákvað ég að það yrði notalegt súpukvöld hér hjá mér föstudagskvöldið og þið kæru frænkur skrifið þetta hjá ykkur svo þið lofið ykkur ekki annað þetta kvöld .Læt vita nánar um þetta allt þegar nær dregur Með frænkuboðskveðju Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

15.11.2008 kl. 17:48

Til hamingju með soninn,

og litla bróður ,Siggi, Bryndís, Agnar ,Sylvía
Ósk og Hjörtur Smári. Sendum bestu kveðjur. Gott að allt gekk vel

Geiri og Dísa.

15.11.2008 kl. 16:47

Elsku Agnar Bryndís og Siggi

Innilegar hamingju óskir með drenginn Gott að allt gekk vel Heilsist ykkur öllum vel Agnar nú er gaman hjá þér og vertu duglegur að hjálpa mömmu Kveðja < Guðrún besta frænka

Guðrún besta frænka

15.11.2008 kl. 15:47

Fæddur drengur hjá Sigga Hreini og Bryndísi

Til hamingju Siggi Hreinn, Bryndís og börnin öll. Kl 02.12 s.l nótt fæddist drengur sem var 15 merkur og 50 cm. Fæðingin gekk hratt og vel og heilsast þeim mæðginum vel og Bryndís ætlaði sér helst heim í dag. Þó ekki í kaffi til mín eins og um var talað en það bíður bara betri tíma. Sendi fjölskyldunni allri bestu kveðjur og hamingjuóskir. Malla

Marína Sig

15.11.2008 kl. 10:41

Þá er það ákveðið kæra Guðrún Frænka

Frænkuboð hjá þér föstudag fyrsta í þorra á Bóndadaginn. Innilegar þakkir fyrir góð viðbrögð, þá er eitthvað til að hlakka til eftir áramótin. Ég á annars mjög auðvelt með að hlakka til einhvers. Alla vinnuvikuna hlakka ég til helgarinnar og einnig margs sem ég er að takast á við í vinnunni. Svo á ég svo auðvelt með að vera fegin og glöð að hafa vinnu og vera frísk að þó sumir dagar séu erfiðari en aðrir sé ég eitthvert tilhlökkunarefni í þeim. Eftir því sem ég verð eldri er ég fundvísari á gleðiefnin og þakklátari fyrir það sem ég hef. Ég hef enn þennan eiginleika að hlakka til jólanna! Í gær hitti ég Bryndísi Hafþórs (hans Sigga Hreins) svo ég noti tilvísanir Hönnu og nú bíður hún eftir að fjölgi í fjölskyldunni og einnig lofaði hún mér að þau kæmu í heimsókn til mín um helgina svo nú bíð ég spennt hvort hún heimsækir mig eða fæðingardeildina. Af okkur er síðan allt gott að frétta og alltaf jafn gaman að fara hér inn og lesa þegar margir hafa skrifað. Njótið helgarinnar og hlakkið til mánudagsins. Kveðja Malla

Marína Sig.

14.11.2008 kl. 15:16

ATH

Gott fólk, ég missit úr dag af því að ég var lasin í gær en kveðjurnar gilda jafnt þó minningarkveðjur komi degi of seint
hafið það sem best
kv. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

14.11.2008 kl. 14:03

ég er líka alltaf til í boð........

Góðan dag ég mun mæta í frænkuboð og ég segi nú eins og Elma ég veit ekki hvað er langt síðan ég hef séð Guðrúnu Jóns. og Þórdísi hef ég ekki séð síðan við vorum krakkar. Árna er ég aftur á móti alltaf að hitta! :o)
Ég gleymdi einmitt að segja ykkur að mér algjörlega að óvörum rakst ég á Jóa (hennar Möllu) í Bónus Smiðjuvegi á laugardagsmorguninn sl. og ég hafði einmitt á orði að ég hefði hugsað áður en ég fór út heima það vona ég að ég hitti engan sem ég þekki því ég leit eitthvað svo óvenjuilla út bæði svo kvefuð og ekkert búin að sturta mig, en maður á auðvitað ekki að segja svona, það var nefnilega voða gaman að hitta þig Jói minn, ég segi Jóa hennar Möllu því þetta er svona á Hornafirði að ef ég hringi og kynni mig þá kannast yfirleitt enginn við mig nema ég segi Hanna hans Palla, svona er þetta nú misjafnt eftir landshlutum hvernig fólk talar það voru líka alltaf allir að veltast eitthvað og ég skildi þetta bara ekki, þá var það eins og ég mundi segja kanski þvælast eða skreppa............
allt gott að frétta úr Álfaheiðinni, Særún að fara að keppa í handbolta um helgina og við að fara á jólahlaðborð annaðkvöld með vinnunni hans Palla, mér fannst þetta nú eitthvað snemmt en svo held ég að það sé bara ágætt að það er búið, það er oft svo mikið um að vera þegar kominn er desember í kringum skóla og leikskóla.
Jæja elskurnar ég sendi ykkur öllum óskir um góða helgi og einnig hlyjar minningarkveðjur á afmælisdegi Hjartar frænda, blessuð sé minning hans.
kveðja Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

13.11.2008 kl. 18:08

Frænkuboð

Ég mæti örugglega, mig er farið að dauðlanga til að hitta Guðrúnu bestu frænku sem ég man óljóst eftir úr æsku en ekki meira en það. Ekki það að mig langi ekki að hitta ykkur hinar :-)

kv. Elma

Elma

13.11.2008 kl. 17:30

Malla til er ég að halda frænkuboðið

í janúar þið verðið bara að sjá um að safna liðinu saman og ég skal sjá um restina hvað segið þið um það Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

13.11.2008 kl. 10:11

Vikurnar fljúga áfram

Sæl verið þið öll. Nú eru annaskil í Oddeyraskóla og Sævar minn í fríi í dag. Þess vegna sit ég við tölvuna heima og sinni undirbúningi fyrir kennslu, þá nota ég stundum tækifærið og kíki við á síðunni okkar og les pistlana frá frændfólkinu. Eins og Guðrún sagði lögðum við Jói og Sævar land undir fót og eyddum helginni á Reykjavíkursvæðinu, ég á námskeiði á föstudag og laugardag og svo fórum við á sýningu Ladda í Borgarleikhúsinu. Mér fannst það góð tilbreyting og skemmtilegur baksýnisspegill á grínið og glensið sem hefur þróast og breyst eins og annað á síðustu áratugum. Við nutum þessa að hitta Guðrúnu og fjölskyldu á föstudagskvöld og vera boðin þar í veislumat, eins náðum við Jói að skreppa á laugardagskvöldið til systur hans í Grindavík og njóta kvöldsins með þeim hjónum þar. Ég renndi aðeins í Ikea og Kringluna en annars var þetta ekki verslunarferð. Sævar settist strax á föstudag að hjá Guðrúnu og fór ekkert annað nema í leikhúsið. Kærar þakkir Guðrún mín fyrir hann og okkur. Hefði viljað hafa meiri tíma en það kemur vonandi að því. Mig langar nefnilega í frænkuboð og svona til að undirstinga ykkur þá verð ég næst á námskeiði 23. jan. á föstudagskvöldi.
Minnist Hjartar á þessum degi og sendi hlýjar minningarkveðjur til ykkar allra. Malla

Marína Sig

13.11.2008 kl. 6:45

13.nóvember 2008

Ídag hefði minn besti frændi orðið 70 ára ef honum hefði enst aldur til Í dag minnist ég hanns með virðingu og þökk og kveiki í þriðja sinn á kerti í kvöld, Allt gott af mér og mínum rigning í Reykjavík núna Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

12.11.2008 kl. 21:46

Rólegt kvöld....

hér á bæ.... Fundur í húsinu áðan vegna þess að skólplögnin er farin, skemmtilegt..... en það er jú enginn með kransæðastíflu, verður maður ekki að vera svolítil Pollýanna. Fór líka í bankann minn í dag að tékka á sparnaðinum, hefði sennilega bara betur sleppt því eða hvað? þetta eru bara tölur á blaði sagði þjónustufulltrúinn, bíða lengur..... sennielga núll þegar líður frá, en enn segi ég allir frískir og börni heilbrigð. Hér er kalt og pínulítið grá jörð, fullt tungl og svona vetrarlegt.
Þakka ykkur fyrir helgina Malla, Jói og Sævar! Þetta líður alltaf svo hratt.
Verið svo dugleg að skrifa he´r inn, svo maður geti nú fylgst með ykkur :-)

Guðrún Sigurgeirsdóttir

11.11.2008 kl. 21:49

Glaðheimafréttir

Sæl öll. Búin að vera löt að tjá mig hérna upp á síðkastið. Það hefur verið mikið að gera í vinnunni við að spá og spekúlera og reikna út hvernig ég get skorið niður rekstrarkostnað deildarinnar sem ég stýri með sem fæstum uppsögnum á fólkinu mínu. Ekki það skemmtilegasta sem ég hef fengist við um dagana. En maður er bara þakklátur fyrir að hafa vinnu í dag þó maður þurfi að taka erfiðar ákvarðanir. Þannig að ég hef svo sem ekki haft neitt skemmtilegt að segja að mér finnst. Eins og Hanna sagði áttum við frænkurnar mjög notalega stund hjá Rögnu systir í síðustu viku. Helgin fór svo í algjör rólegheit. Steikti þetta dásemdar norðlenska læri á föstudagskvöldið, kveikti á kertum um allt hús, setti ljúfa tónlist á og fékk 2 vini mína í mat sem gerðu lærinu mjög góð skil. Á laugardaginn fórum við fjölskyldan í langa gönguferð um miðbæinn og komum við og gáfum bra bra á tjörninni brauð við mikinn fögnuð sonarins. Um kvöldið bauð Ragna okkur í mat og þar sem veðrið var svo yndislegt ákváðum við að rölta til hennar í rökkrinu. Á sunnudögum förum við yfirleitt í sunnudagaskólann í Áskirkju og eigum þar notalega stund, sem við gerðum einnig síðasta sunnudag. Þráinn skellti sér svo í að baka pönnukökur og ég smellti mér í að baka smákökur, tók reyktan silung a la pabbi úr Kálfborgarárvatni úr frysti og smurði fullt af brauði og við buðum slatta af tengdafólkinu og Rögnu og co í sunnudagskaffi og silungurinn fékk fyrstu einkunn og Þráinn er býsna lipur í pönnukökunum, plús að það brann ekki nema ein plata af smákökum :-) Svo tók mánudagurinn bara við með vinnuveseninu. En ég er sammála Möllu að nóvember er oft hinn notalegasti mánuður og hér stefnum við bara að því að hann verði það þrátt fyrir ýmis áföll sem dynja á vinum, kunningjum og ættingum sem hafa fengið uppsagnir í vinnunni. Baráttukveðjur. Elma

Elma Atladóttir

10.11.2008 kl. 10:51

Og enn kominn mánudagur

Góðan dag gott fólk, þá er enn ein helgin liðin. Ég er búin að vera með einhverja kvefpest og reyndar börnin líka, en enginn fengið hita enn þannig að börnin fara í skólann og ég druslast í vinnuna enda er svo brjálað að gera hér í vinnunni hjá mér að ég sé varla framúr verkefnunum, enda sagði einhversstaðar þó ekki sé skemmtilegt að segja "eins dauði er annars brauð"
Við hittumst frænkurnar ég, Guðrún, Elma og Ragna heima hjá Rögnu sl. miðvikudagskvöld og áttum virkilega notalega kvöldstund og krufum þjóðmálin eins gaman og það er nú þessa dagana, en síðan er ég búin að vera að kafna úr kvefi þannig að ég vona að ég hafi ekki smitað frænkur mínar. Á laugardaginn skrapp ég svo á árlegan dekur og djammdag léttsveitarinnar sem er svona stór saumaklúbbur með smáréttahlaðborð að hætti léttsveitarkvenna og ýmislegt til sölu aðalega það sem konur hafa búið til, þannig að þetta er svona stærsti fjáröflunardagurinn í kórnum þannig að það færist úr einum vasa í annan :o)
Í gær var svo notalegur sunnudagur heima og Jón Ingi bróðir Palla og fjölskylda komu í heimsókn til okkar og borðuðu kvöldmat með okkur.
Þá segi ég þetta gott i bili
Hafið það sem best
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

10.11.2008 kl. 9:24

Mánudagur

Sæl kæru ættingjar og tengdafólk.Það er frekar fámennt og þögult á síðunni okkar upp á síðkastið og kannske ekki að undra eins og mikil óvissa ríkir í þjóðfélaginu, vinnumissir , tekjumissir og stjórnvöld eins og áttavilltur og höfuðlaus her.. Hannes Hafstein, fyrsti ráðherrann okkar kvað eitt sinn og ekki að tilefnislausu
Þótt hann rigni
þótt ég digni
þótt hann lygni aldrei meir.
Fram skal stauta, blauta brautu
buga þraut uns fjörið deyr.
Svona kveðskap notaði fólk hér áður til að halda sér á floti og kannski notadrýgra en að öskra og kasta eggjum. En allt þarf sinn tíma og vonandi er eitthvað verið að vinna gagnlegt á bak við tjöldin , þótt hægt gangi.
Hættið ekki að skrifa , það er bara af því góða að tjá sig svolítið. Kveðja Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

7.11.2008 kl. 14:22

Bros.......... föstudagsþankar

Bros eru smáleg, satt er það,
En sé þeim stráð á lífsins veg
er ótrúlegt hverju þau fá áorkað.

Mér datt þetta heilræði í hug eftir þessa viku óvissu, þagnar og atvinnumissis margra. Ég er búin að vera reið alveg bálreið..... og svo breyttist þetta allt í sorg og skilningsleysi á þessu öllu. Þvílík spilling...... hvernig er eða var þetta hægt.... SKIL EKKI.
Jæja ég er heppin er kennari og þar með starfsmaður Reykjavíkurborgar og held vinnunni. En ég spyr hvernig verður þetta eiginleg á komandi mánuðum?
Vona að þið eigið góða helgi kæra frændfólk. og að í næstu viku fáum við einhver svör :-)
Knús og bros til ykkar allra

Guðrún Sigureirsdóttir

6.11.2008 kl. 17:47

Veðurblíða

Hér er yndislegt haustveður í dag, blæjalogn , hálfskýjað og hiti um frostmark. Við fórum í vikulega aðdráttarferð í verslun okkar "í heimabyggð"á Fosshóli í morgun, þar er að vísu ekkert "Bónus " verð, mjólkurlítrinn 120 kr núna eftir síðustu hækkun, var 110 í allt sumar, en vonandi njóta kúabændur einhvers af þessu. Við brugðum okkur líka yfir heiðina í Reykjadalinn , þar sem er önnur þjónustumiðstöð í Þingeyjarsveit, Kjarni.. Þar er vélaverkstæði og hægt að fá nýja peru í annað framljósið á bílnum, sem orðinn var eieygður. Og svo þurfti ég að senda frá mér pakka og notaði mér þá pósthúsið okkar þarna, sem á að leggja niður um áramót. Að endingu notuðum við okkur þjónustu Sparisjóðsins okkar sem nú er að verða landsþekktur af gagnstæðum orsökum við aðrar fjármálastofnanir landsins.landsins. Það er ótrúlega mikill snjór hér í sveitum Þingeyjarsýslu, nema Bárðardal. Fé er hér á auðum túnum á beit , en annars staðar stendur það við heyrúllur í snjósköflum. Geiri er ánægður með sig, er búinn að endurheimta fjórhjólið og farinn að nota það í snattið. Nafni hans á Völlum var hér í gær og þeir gátu lokað öllum gáttum á hlöðu og fjárhúsum sem hauststormarnir höfðu úr lagi fært. Dika kom hér við á heimleið úr sinni vinnu á Stóruvöllum og Færði hangikjötslimi og bita í klæðnað úr gömlum sokkabuxum og grisju , það er til varnar sótinu.
Gamli "Nalli" stendur tilbúinn með kerru til að keyra það í reykhúsið á morgun. Bjst. hjón voru að heimta 5 kindur ofan úr svokölluðum Bruna, anga úr Ódáðahrauni , suðaustur af Svartárkoti. Þetta voru 2 ær og 3 lömb sem mikið er búið að leita að. Þetta heita Móflárhnausar þar sem fé kemur helst niður úr Brunanum og þar fannst þetta.
Enn vantar þó úr afrétt líklega tvær ær úr Víðikeri og eia til tvær úr Svartárkoti og eitthvað af lömbum.Svo var verið í leit á Vesturafrétt í dag líka , hefi ekki frétt af því. Síðustu daga hefur alltaf verið að smáfinnast fé beggja vegna fljóts. Nú er mál að hætta. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

2.11.2008 kl. 16:15

notalegur nóvember

Sæl öll kæra frændfólk. Mér finnst oft nóvember notalegur mánuður þar sem skapast næði til að sinna ýmsu sem setið hefur á hakanum allt haustið og oflangt í jólin til að fara að vesenast eitthvað út af þeim. Hér í Norðurgötunni hefur að minnsta kosti ekki verið svona róleg helgi í langan tíma. Við tókum þátt í því að flytja með Gósu í gær en nú er hún komin í Kjarnagötu 16 í Búsetaíbúð. Jónas og Kristín eru í Kjarnagötu 14 og Nonni og Anna í 12 svo nú er stutt fyrir Gósu að líta inn hjá sonunum. Til hamingju Gósa með nýju íbúðina. Í dag vorum við boðin í afmæliskaffi hjá Óla Hirti en Þórlaugur verður 11 ára á miðvikudaginn. Flott kaffi og notaleg stund með frændfólkiinu okkar Jóa því fjölskyldur okkar tengjast svo víða. Hér ringdi í morgun og skiðasnjórinn sem kominn var er á hraðferð burtu ég sakan hans reyndar ekki en það gera aðrir. Hjörvar hefur enn vinnu og var að vinna í gær en hér var víða sagt upp fólki fyrir helgi og mikill samdráttur víða í augsýn á mínum vinnustað búa menn sig hins vegar undir að nemendum fjölgi ef eitthvað er vegna atvinnuástandsins. Bestu kveðjur úr notalegheitum í Norðurgötu 42 Malla

Marína Sig

2.11.2008 kl. 11:22

Nóvember

Góðan dag!
Hér er komin rigning og leiðindaveður. Allur snjór farinn. Helgin róleg en Eva Margrét er búin að vera lasin síðan á þriðjudag og er enn með nokkrar kommur í morgun. En hún og Eiríkur eru búin að vera í vetrarfríi en skólinn byrjar aftur á morgun. Vona að hún geti farið í skólann þá. Ég er búin að vera að lesa blöðin og vefmiðlana og hlusta á útvarpið í morgun og reyna að skilja þetta bága efnahagsástand þjóðarinnar. En það vantar eiginlega eitthvað jákvætt í fréttirnar, jú takk Færingar fyrir ykkar höfðingsskap.
Njótið sunnudagsins

Guðrún Sigurgeirsdóttir

29.10.2008 kl. 19:46

Frídagurinn minn

Þar sem ég vinn ekki á miðvikudögum vegna þess að ég er búin að minnka við mig vinnu niður í 80% á ég einn frídag í viku. Þá fer ég kl 9 í postulínsmálun og svo kl 13 hittumst við gamlir starfsfégagar þær sem eru hættar og þær sem hafa minnkasð við síg vinnu í handavinnustofu félagsmiðstöðvarinnar og höfum saumaklúbb saumum út prjónum eða sumar að sauma bútasaum Þetta er gert til að hittast og hald hópinn. Þetta kallar umsjónarmaður félags starfsins dag aldraða til að stríða okkur .en okkur er engin stríðni í því hlægjum bara Yndislegt veður í dag Kveðja Besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

29.10.2008 kl. 19:06

Hver er sinnar gæfu smiður

Sæl verið þið öll. Datt í hug að deila með ykkur inntaki úr fyrirlestri sem ég sat í dag í vinnunni minni. Sigrún Sveinbjörnsdóttir sálfræðingur kom þar og fjallaði um að láta vitið hafa forsjá yfir tilfinningumum og ræddi þar sálfræðikenningar þar sem sýnt er fram á að við sköpum okkar gæfu sjálf með því að stjórna hugsunum okkar og temja okkur jákvæðni og gleði og vitræna tilfinningastjórnun. Sigrún er einstaklega skemmtilegur fyrirlesari og ég hrífs alltaf með henni. Þetta eru alltaf góð umhugsunarefni gott að íhuga að láta ekki núverandi efnahagsástand hafa meiri áhrif á líðan sína en ástæða er til. Góðar kveðjur Malla

Marína Sig

28.10.2008 kl. 9:28

Veturinn kominn

líka á almanakinu. Margt er samt breytt frá því ég man fyrst .
Haustið 1937 þegar ég var 7 ára man ég eftir mér á hnjánum í legubekk við vesturglugga í stofunni á Bjarnarstöðum að fylgjast með ferðalagi bræðranna í Víðikeri. Snjókoma var og botnlaus ófærð og hvorki hægt að koma við hestum eða skíðum. Tryggvi Guðnason í Víðikeri hafði lengi verið kviðslitinn en ekki farið í uppskurð en notað umbúðir til að halda því í skorðum. En nú var hann alvarlega veikur og þeir synir hans og fleiri skiptust á að draga sleða sem búið hafði verið um sjúklinginn á til móts við lækni og einhver önnur ferða úrræði. En Tryggvi andaðist hér á leiðinni milli Bjarnarstaða og Lundarbrekku og ferðinni þar sjálfkrafa hætt.
Þetta var 29. október 1937. Á morgun er 71 ár frá þessum atburði.
Í morgun hefi ég horft á sinn mokstursbílinn hvorum megi fljóts þjóta fram og aftur og í kjölfari hafa farið skólabíll og 2-3 bílar starfsfólks í leikskóla og mörbræðslu og svo önnur umferð etir atvikum. Snjór er ekki neitt aftakamikill en veður síðast í gær svo vont , hvassviðri og talsverð snjókoma að kalla mátti stórhríð í Víðikeri síðdegis.Fé alls staðar komið á hús. Óli og Dika voru hér um tíma í gær að hjálpa okkur við kjötvinnslu og enduðu á því að hýsa hrútana áður en þau fóru heim. Þá bjargar Geiri sér sjálfur með hirðinguna á þessum kindum og nú er ekki nema vika þar til hann má fara upp á fjórhjól (eða vélsleða) og það verður allur munur. Vonum að veturinn verði okkur góður. Lifið öll heil. Kveðja. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

27.10.2008 kl. 8:56

enn einn mánudagurinn

Góðan dag og gleðilega vetur.
Þá er þessi helgi að baki og alveg að koma nóvember, alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Eins og fram hefur komið fór ég á Sálubótartónleika ásamt Særúnu minni og Guðrúnu og Evu og það var mjög gaman, algjört ættarmót eins og Jónsi sagði þegar hann mætti á svæðið og margt fólk sem maður þekkir en sér sjaldan, hann sagði svo skemmtilega líka "góðir tónleikagestir og aðrir þingeyingar"
Jæja nóg um það ,við fórum líka í leikhús í gærkvöld með samstarfsfólki Palla og sáum "fólkið í blokkinni" það var líka alveg ágætt en samt fannst mér vanta einhvern kraft en mjög góðir einstaklingar inn á milli og maður hló líka svolítið þannig að þetta var líka góð sálubót eins og hitt. Já Eva kom heim með Særúnu eftir tónleikana og fór ekki heim fyrr en í gærkvöld eftir að þær höfðu passað Ara fyrir okkur, ekki ónýtt að hafa svona góðar barnfóstrur. Ég sagði nú sísvona að þær frænkur færu nú fljótlega að gefa út geisladisk, því frá því að þær vöknuðu í gærmorgun og fram eftir degi voru þær að syngja flott lög og taka upp í tölvunni og það var endalaust endurtekið því þær voru ekki nógu ágnægðar þannig að ég held að það sé vönduð vinna þar á ferð.........
Eigið góða vinnuviku
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

27.10.2008 kl. 8:01

Síðasti vetarfrís-dagurinn....

Góðan dag!
Helgin var róleg hér á þessu heimili, Eva Margrét flutti að heiman tímabundið en hún var hjá Særúnu frænku sinni frá laugardegi fram á sunnudagskvöld. Við mæðgur fórum ásamt Hönnu og Særúnu á Sálubórartónleika á laugardaginn en þeir tónleikar voru sannkölluð sálubót. Alveg yndislegir tónleikar, takk fyrir þá. Þar hitti maður ýmsa sem maður hefur ekki séð lengi og var virkilega gaman. Hér er 3ja stiga frost og snjór og stjörnubjartur himinn eins og er.
Eigið góða vinnuviku.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

25.10.2008 kl. 17:59

Já kæra frændfólk

Vonandi verður veturinn góður en samkvæmt veðurspá líst mér ekki á veðrið hjá ykkur kæra frændfólk fyrir norðan. Hér er kalt og vindur smá föl á jörðu Þvílíkur kraftur í þér Siggi Hreinn stendur bara í bakstri þú mættir alveg koma hér og baka, Annars allt gott af mér og mínum Kveðja besta frænka

Guðrún frænka

25.10.2008 kl. 16:56

Gleðilegan vetur

Gleðilegan vetur og takk fyrir sumarið.
Héðan að austan er allt gott að frétta ekki snjókorn hér, aðeins grátt í fjarðarheiðinni. Steikti lummur og bakaði jólakökur svona í tilefni fyrsta vetrardags.
Kveðja
Siggi Hreinn

Siggi Hreinn

25.10.2008 kl. 10:35

Fyrsti vetrardagur

Gleðilegan vetur , ekki held ég nú að veiti af að hnykkja á því , en Íslendingum hefur nú verið meira innrætt að segja gleðilegt sumar. Þakka öll samskiptin hér á síðunni á liðnu sumri og vona að við verðum dugleg í vetur að halda uppi samskiptunum. Gott að heyra að Sálubót komst farsællega. Ég var búin að vera að hugsa til þeirra á ferðalaginu. Óli bóndi á Bjarnarstöðum fór til Akureyrar í gærmorgun og kom að þessu óhappi á Víkurskarði og heim fór hann um Dalsmynni í leiðindaveðri lengst af leiðarinnar. En hér hefur ekki snjóað síðustu tvo daga, enn er graslitur á jörð milli stóru skaflanna sem komu í rokinu í fyrradag, þegar Kári gamli sópaði svo rækilega hjá okkur. Vestan strekkingur sl nótt og eitt og eitt hríðarkorn á stangli. Geiri gengur fullum fetum í fjárhúsin þegar ekki þarf að kafa snjó og er núna farinn til að gefa , því hann þorir ekki að láta út í þeirri veðurspá sem enn er. En hann var með ærnar úti í gær og þær fylltu vömbina í kafgrasi skammt frá fjárhúsunum og þurftu enga gjöf í gærkvöldi.
Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

25.10.2008 kl. 2:11

Sálubót

Góða kvöldið.
Þá$ er Sigurður, bróðir minn mættur á svæðið, færðin að norðan sæmileg, gekk hægt en örugglega,helstu tafir vegna umferðaróhapps á Víkurskarði. Fjölskyldumorgunmatur í Glaðheimum í fyrramálið til heiðurs tenórnum í Sálubót. Við Reykjavíkurbúar af Lundarbrekkulegg munum fjölmenna í Fella- og Hólakirkju á morgun laugardag. Góða nótt. Elma

Elma

24.10.2008 kl. 13:28

Föstudagur

Hér snjóar í dag og ég komin í vetrarfrí....... en þá á auðvitað að gera allt! :-) Við Hanna skelltum okkur í lifrarpylsugerð seinnipartinn í gær og gekk það eins og í sögu. Við gerðum úr 10 lifrum og höfðum á orði að þær yrðu sennilega 20 næst. Í dag er ég svo að reyna að vera húsmóðir, baka, sjóða lifrarpylsu, þrífa og hjálpa Eiríki með ritgerð allt í senn :-), útkoman verður væntanlega eftir því :-). Ætla á einn fund í fyrramálið og svo vonandi á Sálubótartónleika kl. 14.00.
Eigið notalega helgi

Guðrún Sigurgeirsdóttir

22.10.2008 kl. 13:40

Jú ég bakaði lummur......

....ekki samt grautarlummur og steikti þær nú bara uppúr olíu en lummur samt!!! og ég fór í N1 og keypti mér nokkur Stóruvallakerti og kveikti á kerti bæði þann 19. og 20. október. Tók mig til og las allar minningagreinarnar hér á síðunni að kvöldi þess 19. og líka greinina hennar Sibbu inná síðunni hennar. Falleg grein, mæli með að þið lesið hana ef þið hafið ekki þegar gert það. Það er alltaf gott að geta yljað sér við góðar minningar svo ég tali nú ekki um þegar ekkert jákvætt er í fréttunum.
Njótið augnabliksins!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

22.10.2008 kl. 11:03

Ég bakaði lummur

en tók forskot á sæluna eins og sagt er, bakaði þær á laugardag, því þá var einn aukamaður í kaffi, en þá var hér heimaslátrun, en það gekk svo rösklega, að mannskapurinn var bara í hádegismat og í kaffinu voru allir farnir nema "Nafni" á Völlum sem fór með Geira í ýmsar nauðsynlegar lagfæringar fyrir veturinn seinni partinn og fjárhúsin m. a. nú tilbúin að hýsa í þau. Um kl 5 síðdegis á sunnudag, 19. okt. kveiktum við á Stóruvallakerti og það logaði á því hér á tröppunum ti kl 7 morguninn eftir. Við ætluðum að fara með tvö Stóruvallakerti út í kirkjugarð síðdegis þann 20. okt. en þá var orðið svo hvasst og hríðarfjúk að við urðum að hætta við og kveiktum á kertum hér inni til að minnast 100 áranna frá fæðingu Marínu ömmu.Margt er orðið breytt á þessum 100 árum. Á þessum árstíma , í kringum afmæli Marínu stóð yfirleitt sláturtíð sem hæst og fram eftir hennar búskaparárum var slátrið alltaf soðið í stórum potti á hlóðum, "úti í kofa", en það var reykingakofi jafnframt og var áfastur við gamla fjósið sem síðar varð "Kalt" . Það var ekki fyrri en búið var að byggja "uppi í húsi" 1950 og kominn þar stór kolakyntur þvottapottur, hálft olíufat, eða svo, sem Marína fór að fara með eitthvað af slátrinu sínu þangað og fá að sjóða það þar.
Ég fékk líka stundum að sjóða þar slátur á mínum fyrstu búskaparárum. Slátrið var svo sett í stórar trétunnur og geymt í súr og entinst stundum fram að næstu sláturtíð. Mörg var máltíðin þar sem slátur var notað. Á haustin ef rifnuðu keppir var búið til "mutl", sláturstappa, borðuð heit með sykri , kartöflum og rófum, algjört sælgæti segir Geiri. Og oft var steikt slátur . Tekinn keppur af súrum blóðmör, sneiddur niður og sneiðarnar steiktar í tólg sem búið var að steikja í kleinur. Borðað með sykri út á, kartöflum og rófum. Líka algjört sælgæti í munnum svangra krakka.. Segjum þetta gott núna Lifið öll heil . Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

22.10.2008 kl. 10:20

ekki ég heldur..........

Góðan daginn gott fólk, nei ég bakaði ekki lummur og skömm að því að ég hef ekki bakað lummur síðan í sumar á Lundarbrekkutröppunum en það er nú algjör vitleysa því mínu fólki finnst þær mjög góðar.
Að kvöldi 20. okt kveikti ég á Stóruvallakerti og Siggi bróðir var hjá mér og við rifjuðum upp minnigar tengdar ömmu frá bernsku okkar.
Jæja nú kingir niður sjó hér og það var auðvelt að fá yngsta fjölskyldumeðliminn framúr í morgun og hann fór beint út að glugga og var svooooo glaður og spenntur að fara í leikskólann.
Allt gengur sinn vanagang hjá okkur og allir eru hressir
bestu kveðjur til allra og eigið góðan dag
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

21.10.2008 kl. 21:59

Engar bakaði ég lummurnar

en lét friðarkertið loga tvö kvöld í röð og leifði minningunum að renna í gegn og hugsaði um vatnskákó og barnakökur og skoðaði uppskrif af þeim. 'i uppskriftabók ömmu og mömmu heita þær Sírópskökur Dagrúnar Kristjánsdóttur og amma bakaði þær gjarnan og átti til að hafa með kaffi og kakói, ég bakaði þær stundum með henni og seinna notaði ég þessa uppskrift mikið í heimilisfræðikennslu og sem fyrr voru þær góðar barnakökur. Svona eru minningar stundum tengdar bragði eða bragð að minningunum. Minningar mínar um ömmu eru líka tengdar handavinnu og að sitja heilu kvöldin og spila,stelpuspil og rommí. En aftur til dagsins í dag, hér er snjóhrafl, farið að salta götur og borgarblær á krapavaðlinum. Mín fjölskylda er frísk og hress, Sævar stefnir á skátaútilegu um helgina en hann fór að sækja skátafundi í haust. Hjörvar vinnur sem fyrr með skólanum og brást við öllu krepputalinu í fjölmiðlum með því að ráða sig líka í vinnu hjá Einskip í uppskipanir og útskipanir. Ég vona samt að hann nái að klára skólann fyrir þessum vinnu áhuga. Góðar kveðjur Malla

Marína Sig

20.10.2008 kl. 8:58

Mig langar að benda ykkur öllum á minningargreinarnar hér á síðunni. Það er gaman að lesa þær þegar maður er að rifja upp minningar. Einnig allan annan fróðleik sem er undir "Um Lundarbrekku"

Eigið góðan dag

Guðrún Sigurgeirsdóttir

20.10.2008 kl. 6:24

Aldarminning

Í dag hefði hún Marína föðursystir mín orðið 100 ára Margar góðar minningar á ég frá því ég var barn og allt að fullorðinsára frá dvöl minni í sveitinni hjá ömmu og afa Marínu og Sigurði og Jónasi frænda.Þetta eru dýrmætar minningar sem gaman er að ifja upp annað slagið,Einnig minnist ég´líka þeirra Bubba og Hjartar á þessum degi Minning þeirra lifir. Aftur verður kveikt á kerti í kvöld Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

19.10.2008 kl. 10:42

Minningin lifir.

Mánudaginn 19. október 1998 dó Hjörtur mágur minn af slysförum. Hann hefði orðið sextugur 13. nóvember það ár hefði hann lifað.Minningin um hann er alltaf sterk og nálæg mér og enn í dag finnst okkur stundum að þeir bræður, "miðskúffurnar" eins og mamma þeirra kallaði þá séu okkur nálægir og leggi okkur lið þegar á þarf að halda. Friður sé með þeim. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

19.10.2008 kl. 10:13

Í minninganna straumi

Með söknuði og hlýj minnist ég Hjartar föðurbróður nú þegar 10 ár eru liðin síðan hann var kvaddur burt svo snöggt og allt of snemma. Ég eins og Guðrún frænka gleymi seint þessum degi, ég á líka einstakar minningar frá dögunum á undan vegna þess að Hjörtur var ásamt minni fjölskyldu á Lundarbrekku þessa helgi að sinna haustverkum. Hann var svo yfirvegaður og mikil ró og friður í kringum hann sem mér gleymist ekki heldur. Blessuð sé minnig hans ég læt einnig ljósið loga í kvöld. Kveðja Malla

Marína Sig.

19.10.2008 kl. 6:36

19.oktober.

Aldrei gleymi ég símtalinu srm ég fékk í hádeginu 19. oktober 1998 Þá var mér tilkynnt lát míns elsku besta frænda Hjartar Það var mikil sorg í mínu hjarta og erfitt að klára vinnudaginn þann dag. Ég sakna vinar og frænda allra góðu símtalanna og samverustunda .Og kæra frændfólk í kvöld kveiki ég á kerti í hanns minningu Kveðja Besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

17.10.2008 kl. 21:22

Það kemur lummulykt

þegar tólgarkertin frá Stóruvöllum brenna svo þau eru einkar viðeigandi þegar við minnumst ömmu Marínu. Legg svo til að þetta verði Lummudagur afkomendanna og hver baki Lummur með sínum hætti, Allt gott hjá mér og mínum Jói fer á morgun í heimaslátrun í Lundarbrekku en ég ætla að vera heima og hugsa um börn og bú. Bestu óskir inn í helgina. Malla

Marína Sig.

17.10.2008 kl. 6:54

Stóruvallkerti

fást í Nettó og á bensínstöðvum allavega N 1 held ég, ekki það skipti máli í þessu tilefelli. En þau kerti loga mikið lengur og betur en vaxkertin.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

17.10.2008 kl. 6:52

Takk takk

Innilegar þakkir fyrir allar góður kveðjurnar í gær á afmælisdaginn minn bæði sms, tölvupóst, hringingar og allar kveðjurnar hér í gestabókinni og á forsíðunni. Fermingarmyndin af mér sómir sér vel þarna :-), hef aldrei haft uppá hald á henni, en þegar aldurinn hækkar verður maður ánægðari með barnamyndirnar.
Allt gott hér, mikið að gera um komandi helgi en það er bara fínt. Góða helgi

Guðrún Sigurgeirsdóttir

17.10.2008 kl. 6:14

Það er sjálfsagt að kveikja á kerti fyrir frænku

en sá galli er á gjöf Njarðar að ég á ekki Stóruvalla kerti og kveiki því á friðarkerti frá kirkjunni Kveðja Guðrú besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

16.10.2008 kl. 21:56

20 október

Góða kvöldið.
Þar sem þann 20 okt. eru liðin 100 ár frá því að hún amma Marína fæddist, langar mig að leggja það til að um kvöldið ef veður leyfir að við kveikjum öll á útikertum til að minnast hennar, hvar sem við erum stödd á landinu(.Helst Stóruvallakertum, því ég er núna að vinna við að framleiða þau ). Það verður nú að nota tækifærið og auglýsa.Annars er bara allt í haustskorðum hér verið að vinna í skít og kjöti að vísu ekki alveg á sama stað. Fékk mér hjólatúr í dag og skrapp út í Selvík hef ekki komið þangað í nokkur ár alltaf jafn gaman að koma að tóftunum þar.Njótið svo haustsins.

Friðrika.

16.10.2008 kl. 17:34

Til hamingju með daginn frænka.

Jón Árni

16.10.2008 kl. 15:57

Innilegar hamingjuóskir með daginn

elsku Rúna frænka og hafðu það sem best
heyrumst
kv.Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

16.10.2008 kl. 9:28

Afmæli

Elsku Rúna okkar . Til hamingju með 42 ára afmælið. Ekki hefur Siggi munað eftir því og þú ekki kunnað við að setja það inn.
Kannski rætist úr því fyrir kvöldið. Heyri svo í þér seinni partinn. Hjartans kveðjur frá mömmu og pabba.

Hjördís Kristjánsdóttir

16.10.2008 kl. 6:20

Óska henni Guðrúnu frænku minni til hamingju með daginn

Eigðu góðan dag elsku frænka Kveðja Til ykkar allra besta frænka og Árni

Guðrún Jónsdóttir

13.10.2008 kl. 14:56

Netsamband rofnaði

hjá mér á föstud. eða laugardag og kom aftur í morgun. Eitthvað með símtenginguna að gera, en ég játa að mér fannst þetta heilmikil vöntun. Svona getur maður orðið háður fréttaflutningi og þá ekki síst héðan af síðunni. Kristín mín, takk fyrir þitt framlag, það er einmitt gott að fá svona fréttapistla og fá að fylgjast með. Geiri er farinn að "skálma" staflaus hér innan húss á sléttu gólfi en passar sig að vera með hækjurnar úti og í stiganum. Þetta gengur bara mjög vel. Þrátt fyrir lágt hitastig og nokkra úrkomu síðustu sólarhringa er hér ennþá auð jörð og það þykir okkur mikill plús á þessum árstíma. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsd.

13.10.2008 kl. 12:58

Yndisleg helgi liðin

Góðan dag gott fólk.
Við Palli minn fórum líka á minningartónleikana um Vilhjálm og það var alveg dásamlegt ,síðan vorum við svo heppin að vera boðin í dýrindis kvöldverð í Skálaheiðinni og þar borðuðum við steinasteik í fyrsta sinn og það var auðvitað kindakjöt úr sveitinni og kartöflur frá Bjarnastöðum, með alskonar gómsætu meðlæti og þetta var æðislegt kvöld, góður matur og drykkur, spjall og hlátur.........það er svo gott og gaman að vera svona saman, takk takk kærlega fyrir okkur aftur Guðrún og fjsk.
Í gær var svo algjör letidagur varla að maður greiddi sér, eina sem ég afrekaði var að þvo þvott og búa til pizzu en það er líka allt í lagi, svo mætti maður úthvíldur í vinnu í dag.
eigið góðan dag
bk. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

11.10.2008 kl. 23:35

Minningar tónleikar

Var að koma heim af minningar tónleikum um Vilhjálm Vilhjálmsson Þv'ílíkt yndisleg skemmtun, Troðfull Laugardalshöllin, skemtilegir söngvarar sem sungu lögin hans og sonur hans kom fram í fyrsta sinn opinberlega söng lítill drengur sem pabbi hans orti til hanns Algjörlega ógleynanlegt Annars allt gott að frétta héðan Kveðja Besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

11.10.2008 kl. 12:21

Fréttir af mér og mínum

Góðan dag, kæru ættingjar og vinir þar sem við hjónin fylgjumst reglulega með þessari frábæru síðu, þá er nú bara nauðsynlegt að láta heyra frá sér annars lagið :) og þar sem ég hef nú gaman að skrifa bréf þá kom það í minn hlut að taka af skarið.Enda vitnar tengdamamma oft í það þegar ég og jónas bjuggum á Ólafsfirði þá hafi verið svo gaman að fá bréf frá mér,enda skrifuðumst við oft á
og er það örugglega ekki algengt hjá fólki( að tengdadóttir skrifi tengdó og öfugt)En úr einu í annað af okkur er allt gott að frétta húsmóðirin settist á skólabekk í haust og er markmiðið að klára sjúkraliðann,þetta er búið að vera töluvert strembið síðan ég byrjaði en kanski ekkert skrítið þegar heilasellurnar hafa sem flestar fengið að sofa í frið og ró í ca 26 ár og eru svo allt í einu rifnar upp á rass......nu og látnar þræla allan daginn.en þetta nám er mjög skemmtilegt ég þurfti að taka mér pásu í tæpa viku um síðustu mánaðarmót og fór í hjartaþræðingu sem gekk vel og var hún undirbúningur fyrir Hjartaloku aðgerð sem ég þarf að fara í vetur.Aldís byrjaði á nýjum leikskóla í Ágúst og er hún að blómstra vel þar og hefur kynnst mikið af krökkum í nýja hverfinu sem við búum í núna(Naustahverfi)Jónas er alltaf að vinna hjá Vífilfelli. Við reynum við að láta þetta brjálæði í þjóðfélaginu hafa sem minnstu áhrif á okkur en auðvitað finnur maður smá breytingar á sér þegar maður heyrir þessar fréttir í útvarpi og Sjónvarpi alla daga ekkert nema neikvæðar fréttir,en við þurfum ekki að kvarta það eru örugglega margir sem eiga erfitt núna og það sem hefur líka áhrif á mann ef öðrum líður ílla. En maður verður að vera bjartsýn og vona að það fari að birta til í þessu þjóðfélagi varla versnar það meir.
Takk fyrir mig og eigið góðan dag í dag og alla daga.
PS. Dísa vonandi er Sigurgeir að verða góður.

Bestu kveðjur Kristín og fjölsk.

Kristín Aðalsteinsdóttir

11.10.2008 kl. 7:43

Morgunstund gefur gull í mund

Góðan dag, ég er búin að eiga hér notalega stund með sjálfri mér í morgun, lesa blöðin og fá mér kaffi eftir að hafa rölt með Morgunblaðið um hverfið mitt í logni og góðu veðri. En í morgun var BARA Morgunblaðið því 24 stundir eru hættar að koma út. Hagræðing í rekstri! En af mér og mínum er það að frétta að Eiríkur fór til Hollands á fimmtudagsmorguninn ásamt þrem öðrum 14 ára vinum sínum að heimsækja þann fimmta sem býr þar með fjölskyldu sinni n.n.t í Rotterdam. Þeir eiga þar virkilega góða daga og eru að fara á landsleikinn Ísland/Holland í dag. En koma heim á mánudaginn. Við hin ætlum nú bara að eiga rólega helgi, e.t.v. að nýta daginn í dag úti við þar sem spáir þokkalega. Mig langar að raka saman laufi og týna rusl hér í kringum okkur því veðrið undanfarið hefur verið þannig að það er allt hálf sóðalegt utandyra. Annars vil ég svo þakka ykkur öllum fyrir skirfin hér, mér finnst alveg frábært að geta lesið þetta og hef mikla ánægu af, þessi síða er að verða ein að mínum uppáhalds!
Annars vona ég bara kæru ættingar og vinir að þið eigið góða helgi og njótið samvista við hvert annað og látið efnahagsástandið ekki þyngja á sálarlífinu.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

10.10.2008 kl. 20:01

Í anda ömmu Marínu og séra Auðar Eir

Smá trúar boðskapur til að lesa sig inn í helgina. Amma Marína var trúuð, söng og blístraði sálma og kenndi mér bænir hún signdi sig við altarið í kirkjunni þegar hún var að þrífa hana og Gunna settist við orgelið og spilaði fallegan sálm. Svona minningar á ég frá því að dingla með þeim í kirkjuþrifum.. Svo fóru þær saman inn í Gamla hús og amma hitaði verulega góðan kaffisopa sem ég fékk líka að njóta. Síðan signi ég mig þegar ég þríf kirkjuna því stundum gríp ég í það og svo drekk ég alltaf kaffi og kann að meta það.
Trúin og bænin geta gert kraftaverk og er gott innlegg á alþjóðlegum geðheilbrigðisdegi því svo sannarlega þurfum við á því að halda. Svo finnst mér gott að lesa það sem mamma skrifar það er gott muna að þetta eru ekki náttúruhamfarir. Kærleikskveðjur Malla

Góði Guð, er ég bið,
viltu gefa rósemd og frið.
Tak burt óró, sem kringum mig er,
allan efa og kvíða frá mér.
Láttu kærleik þinn vinna sitt verk,
svo að vonin og trúin sé sterk.
Gerðu börn þín að biðjandi hjörð
og að blessun alls mannkyns á jörð.

Herra, hjálpa þú mér,
svo ég helgi lífið mitt þér.
Bæði tíminn og allt sem ég á
eru auðæfi komin þér frá.
Veit mér kærleik, svo af þessum auð
gefi ég allslausum, hungruðum brauð.
Send mér, himneski faðir, þinn frið,
er við fætur þér krýp ég og bið.

Guð, ég þakka vil þér,
að í þinni hendi ég er.
Þökk, að ætíð þú leggur mér lið,
er í lausnarans nafni ég bið.
Gef mér fúsleik, svo fagnandi ég
dag hvern feti þinn hjálpræðisveg,
uns þú opnar mér himinsins hlið
og mitt hjarta á um eilífð þinn frið.
Þýðing Lilja S. Kristjánsdóttir.

Marína Sig.

9.10.2008 kl. 21:45

Pennaleti

hefur þjakað mig að undanförnu en nú er best að draga af sér slenið. Okkur líður ágætlega þrátt fyrir allar fjármálahamfarir, höfum lifað tímana tvenna og aldrei átt svo miklar eignir að við höfum þurft að hafa stórar áhyggjur af þeim og þótt lífeyrisgreiðslur kunni að skerðast þannig að viðmið verði tvö ár til baka í tímanum , þá er það ekki neyð í neinum skilningi. Verra fyrir þá sem tóku stór lán til að fjárfesta í hlutabréfum, en um það hefi ég lesið en veit ekki meira um það. Sl mánudag fórum við til Húsavíkur að vera viðstödd seinni slátrun á lömbum okkar og þá settist Geiri undir stýri á gamla subaru okkar og keyrði sjálfur fram og til baka og varð "frelsinu feginn". Aftur fórum við í dag og sóttum okkur slátur, en það höfum við gert allan okkar búskap og það kom ekki neinni kreppu við. En slátursala í haust hjá "Norðlenska" hefur verið meiri en mörg undangengin ár og það kemur nú til af margumtalaðri kreppu. Vona bara að fólk kunni þá að búa til slátrið og borði það þegar búið er að kaupa það, samanber ábendingar þínar Malla mín, um að það sé ekki hagkvæmt að kaupa það sem aldrei er notað. Í beinu framhaldi af því vil ég nefna það sem ég hefi haldið fram langa ævi að það er vafasamt að kaupa í gríð og erg á útsölum, bara af því að það er útsala, nema að mann vanti það sem keypt er. Þar gildir nefnilega líka þetta með innkaupalistann." Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott" Það má vel vera að það eigi eftir að sanna sig í þessum sviftingum sem við hrærumst í núna , kannske fáum við heilbrigðara kerfi eftir öll ósköpin. En eins og margir málsmetandi menn hafa sagt undanfarna daga. Passið vel upp á börnin og passið hvert annað og látið ekki hugfallast. Þetta er ekki eldgos og þetta er ekki vatnsflóð eða snjóflóð og öll él birtir upp um síðir. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

9.10.2008 kl. 21:41

Jæja gott fólk allt er þegar þrennt er

þriðji bankinn fallinn, En ekki þýðir að gráta Björn bónda bara safna kjarki og vera bjartsýn og glöð.Þið frænkur mínar með allt sviða talið svið eru góð og gott að vita af þeim núna á síðustu og verstu tímun enda með ódýrasta matnum sem við fáum ég tala nú ekki um hjörtun og lifrina herramanns matur En munið verið góð hvort við annað og brosið þá fer allt vel Kveðja G uðrún besta frænka

Guðrún frænka

9.10.2008 kl. 13:03

ánægð með rúmið í stofunni

Góðan dag kæru ættingjar ég ætla að kvitta fyrir innlitið í dag og segja ykkur að mér hefur alltaf þótt svið góð en elda þau samt alltof sjaldan, fer að verða duglegri við það en ég er líka svo heppin að Palli og Særún eru hrifin af þessum gamla góða íslenska mat eins og slátur, lifur og hjörtu. Ari minn er ekki eins duglegur að borða þennan mat, ég segi bara að hann eigi eftir að læra það, því ég man þegar ég var krakki þegar var lifur í matinn þá mátti ég borða sósu og kartöflur því ég gat ekki hugsað mér að borða lifrina en finnst hún mjög góð í dag (en nauðsynlegt að hafa rabbabarasultu með) Ég missti því miður af viðtalinu við Möllu en hlít að geta hlustað á það á netinu við tækifæri.
Í kvöld erum við kórsystur að halda skemmtikvöld fyrir Bimbu vinkonu okkar og fyrrverandi kórsystur en hún verður sextug á næstu dögum og er langt leidd af parkinson en hefur verið algjör gleðibomba í gegnum árin í okkar kór, við ætlum semsagt að hafa kaffi og söngsamsæti í fóstbræðraheimilinu þar sem við æfum, og hver og ein kemur með kræsingar á hlaðborð og svo verður auðvitað sungið og prógammið samanstendur af uppáhaldslögum Bimbu og búið að semja fallegan texta um hana við lagið Bella Bima...... ég dríf mig semsagt heim eftir vinnu og skelli í nokkrar pönnsur sem ég legg til á hlaðborðið.
Þið sem sáuð heimildarmyndina "Kórinn" munið örugglega eftir henni Bimbu en þar lék hún stórt hlutverk.
Jæja gott fólk læt þetta nægja að sinni , eigið góðan dag
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

9.10.2008 kl. 11:27

Nýr bankastjóri

Gleðiefni á erfiðum tímum að kona setjist í stól bankastjóra Nýja Landsbankans. Við getum sennilega verið viss um að vera laus við áhættusamt fjármálabrask. Ég tel að konur ættu að stjórna fleiri fjármálafyrirtækjum þær eru hagsýnari en hitt kynið og ekki eins miklir valda og græðgispúkar.
Vonandi bjartari tímar framundan hjá landanum.
Varð að leggja orð í belg þar sem ég get ekki þagað!!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

9.10.2008 kl. 8:14

Ekki kaupa mat sem þú síðan hendir

Sæl öll kæra frændfólk og takk fyrir góðar hvatningarkveðjur sem ég fékk í gær eftir að fá að tjá mig í morgunútvarpi Rásar 2 um hagsýni í heimilishaldi en inntak mitt er einmitt að kaupa ekki mat sem þú og þín fjölskylda borðar svo ekki. Síðan legg ég til að við ræktum með okkur nýtni og nægjusemi og séum glöð með það sem við höfum og notum þessa síðu okkur til gleði og uppörvunar eins og við höfum gert. Mér finnst alltaf gafn gaman að lesa það sem hér er skrifað og yfirleitt fylgir því bros og góð tilfinning að eiga góða að til að skiptast á skoðunum og fá útrás fyrir tilfinningar. Hins vegar þykja mér svið góð.
Takk fyrir hlýjar afmæliskveðjur til sona minn og góðar óskir inn í daginn. Malla

Marína Sig

8.10.2008 kl. 21:45

Takk

Sæl öll.
Við þökkum fyrir góðar afmæliskveðjur til Atla. Hér var afmælisveisla seinnipartinn með ríflega 30 gestum. Það á náttúrulega að banna að maki manns eigi 8 systkini sem öll eiga alveg hreint hrúgu af börnum :-) Afmælisdrengurinn er steinsofnaður, hann var alveg búinn eftir allan hamaganginn. Verð að segja í framhaldi af þessu með sparnaðinn og sviðin sem Guðrún er að sjóða að ég þyrfti nú að vera orðin ansi svöng til að sjóða mér svið held ég. En ég keypti lambalifur í Bónus og ætla að elda hana annað kvöld eftir einhverri dýrindis uppskrift úr nýjasta Gestgjafanum. Það er eins með mig eins og Friðriku að ég held ró minni í kreppunni og segi öllum að nú komi sér vel að eiga enga peninga eins og ég hafi alltaf sagt og nota þá bara jafnóðum. Maður þarf þá ekki að hafa áhyggjur af að hlutabréf og verðbréf tapist á meðan. Bestu kveður í bili.
Elma

Elma

8.10.2008 kl. 21:12

Þögnin rofin

Sælt veri fólkið.
Jæja ekki hef ég nú verið dugleg hér á síðunni, sennilega talsvert ólík Rúnu systur en ég get nefnilega þagað lengi og sjálfsagt stundum um of ég er líka búin að læra það að ef maður er að hafa opinberar skoðanir á hlutunum þá lendir maður oft í ýmsu sem gott væri að vera laus við, en svo er það hin hliðin að einhver verður alltaf að gera hlutina.Hér reynum við að þoka áfram haustverkum og ég vinn líka talsvert út á Stóruvöllum í mörnum, svo það er alltaf nóg við að vera.Svo er nú sá árstími sem ég verð svo kvöldsvæf að ég er ekki viðræðuhæf eftir kvöldmat, en get svo ekki sofið eftir miðja nótt eins og ég hef fengið að heyra.Og allir sem afmæli hafa átt undanfarinn tíma og ég ekki sent kveðjur,sendi ég hér á einu bretti innilegar hamingjuóskir í tilefni afmælanna.Við hér höldum alveg okkar ró yfir ástandi landsmála og sinnum okkar skepnum eftir bestu getu.

Friðrika

8.10.2008 kl. 20:00

Henda kveðju

Er ekki gott að hendi kveðju her svona endrum og eins,,,
Ekki mikið að Frétta af víkinni þessa dagana,,,,,,

Menn segja að það sé gott að vera fátækur á Íslandi í dag:)

Víðir Lundi Hjartarson

http://picasaweb.google.com/gambri4x4/DanmRk2008#

8.10.2008 kl. 17:02

Tek undir með Elmu, gott viðtal og svo sannarlega orð í tíma töluð.
Er að sjóða svið!!!
Sparnaðarkveðja úr Kópavogi

Guðrún Sigurgeirsdóttir

8.10.2008 kl. 16:04

Takk Elma

Takk Elma mín fyrir hólið. gott að fá svona viðbrögð. Kv. Malla

Marína Sig.

8.10.2008 kl. 12:22

Malla flotta

Var að hlusta á Möllu frænku á netinu þar sem hún fór á kostum í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun.
Elma

Elma

6.10.2008 kl. 21:42

Að halda ró sinni

Sæl kæra frændfólk og bestu þakkir fyrir Hjörvars hönd með góðar kveðjur á afmælisdaginn. Það gengur sannarleg mikið á og á eflaust eftir að reyna á margan manninn en ég sé nú ekki önnur ráð fyrir okkur meðaljónana en að halda ró okkar og halda áfram að sinna heimili og vinnu. Sannarlega þarf að ræða við börnin og unga fólkið um það sem er að gerast en auðvitað hlaut að koma að niðursveiflu á eftir þessum óskiljanlega uppgangi peningamarkaða sem hefur þó að mestu farið framhjá venjulegu fólki. En auðvitað finnum við öll fyrir verbólgu og falli krónunnar. Ég man svo langt að ég man margar gengisfellingar en aldrei krónu í frjálsu falli sem nú. Góða fólk verum samt bjartsýn og höldum áfram og horfum fram á veginn. Kveðja Malla

Marína Sig.

6.10.2008 kl. 21:17

Til umhugsunar í "bankakreppu"

Ég bað um að verða sterkur og Guð gaf mér erfiðleika til að gera mig sterkan.
Ég bað um að verða vitur og Guð gaf mér verkefni til að leysa.
Ég bað um velsæld og Guð gaf mér hug og hönd til að vinna.
Ég bað um hugrekki og Guð lét mig mæta hættum til að leysa.
Ég bað um ást og Guð gaf mér fólk í erfiðleikum sem ég gat hjálpað.
Ég bað um greiða og Guð gaf mér tækifæri.
Ég fékk ekkert af því sem mig langaði í!
Ég fékk allt sem ég þurfti!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

6.10.2008 kl. 17:43

Jæja gott fólk nú er aldeilis ástand

á landinu Allt að fara til fjandans Vonandi greiðist fljótt og vel úr þessu ástandi en svart er ´það. Annars er allt gott af mér og mínum Nonni kominn aftur í land voru kallðir heim það er verið að spara Bæði skipin bundin við bryggju landhelgin óvarin en við vonum að allt fari á besta veg og við verðum að vera bjartsýn Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún besta frænka

2.10.2008 kl. 21:51

Snjór

Þá er orðið alhvítt hér í höfuðborginni líka og ég sem veit ekki einu sinni hvernig dekk eru undir bílnum sem ég er á. Ekki mjög gáfulegt myndi nú faðir minn segja. Mér áskotnaðist sem sagt nýlega fyrirtækisbíll og þar sem vetur var mér ekki einu sinni í huga þá, hef ég ekki einu sinni litið á dekkin. Kemur í ljós í fyrramálið þegar ég nenni út :-) Annars er bara veturinn að fara af stað, óvenju lítið kóra- og söngstand á mér í bili alla vega. En Kór Áskirkju hefur samt hafið æfingar og við erum þar að auki að gefa út geisladisk með jólatónlist og þar sem ég er gjaldkeri þar á bæ fylgir því talsvert umstang. Gott að heyra að Geiri frændi er brattur. Annars er bara allt gott í Glaðheimum.
kv.Elma

Elma

1.10.2008 kl. 10:51

Fyrsti snjórinn

Sælt veri fólkið. Það eru nú meira en hvít korn í lofti hér. Allhvöss norðan átt með ofankomu frá því í gærkvöldi og snjóhula á jörð í morgun . Ekki þó nein ófærð en hálka og svo slabb ef eitthvað mildar yfir daginn. mér sýnist á blogginu hjá Einari Sveinbjörnssyni í morgun að þetta verði meira en "eins dags hvellur" en veðurstofan spáir mildara veðri um helgina og við verðum að trúa því.September búinn að vera mjög góður og því ættu menn að vera betur undirbúnir en oft áður. Við reiknum ekki með að fara út fyrir hússins dyr fyrri en þá síðdegis að við fáum okkur bíltúr að gá að lömbum sem eru úti á Náströnd, en það höfum við gert sl viku. Í dag eru 3 vikur frá því Geiri var í aðgerðinni og það saxast á "biðtímann " og honum líður orðið betur en líklega allt síðasta ár. Sendum bestu kveðjur. Dísa og Geiri.

Hjördís Kristjánsdóttir

1.10.2008 kl. 9:50

Sælt veri fólkið. 1. Október og veðurblíðir haustdagar að baki en hvít korn í loftinu í morgun og kuldastrekkingur. September floginn hjá og afmælisvika ársins framundan hjá mér. Nú er samt tími afmælisveislna liðinn og Hjörvar 19 ára og Ásgeir 17 og alveg að klára ökunámið. haustið hefur verið annasamt hjá mér eins og oft áður en allir eru hressi og glaðir og gengur vel. Ég ætla að búa til slátur um næstu helgi og geri þá fyrir Áslaug tengdaföður minn um leið, hann kaupir enn 10 slátur og heldur í að nýta allan innmatinn. Sannarlega ódýr og góð fæða fyrir þá sem kunna að nota og meta. hvet ykkur til sláturgerðar og nota hjörtu, lifur og slátur sem árstíðabundinn haustmat með nýju góðu grænmeti. Kveðja Malla

Marína Sig.

30.9.2008 kl. 15:44

ætla samt ekki að búa til slátur í vinnunni :o)

Jóhanna Marína Baldursdóttir

30.9.2008 kl. 15:27

Haustblíða

Sælt veri fólkið, já nú er sko fallegt haustveður en það var ansi kalt í morgun.
Af okkur er allt gott að frétta, allt gengur sinn vanagang og maður bara orðinn frekar ánægður með að vinna hjá ríkinu eins og staðan er í þjóðfélaginu núna, nú er það bara málið, þröngt mega sáttir sitja, ganga í vinnuna og búa til slátur..............
Hafið það sem allra best
kv. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

29.9.2008 kl. 14:51

Get bara alls ekki þagað.....

Aldeyjarfoss er ein af okkar fegurstu perlum og það er okkar skylda að vernda þennan sameiginlega fjársjóð.
Fyrir þá sem hafa áhuga er slóðin:

www.skjalfandafljot.is

Guðrún Sigurgeirsdóttir

29.9.2008 kl. 8:52

Hef aldrei getað þagað lengi....

Héðan er bara allt gott að frétta, veðrið skaplegt í augnablikinu. Fallegur haustmorgunn, rigndi töluvert í nótt. Nemendurnir glaðir í morgun og liggur vel á þeim eftir helgina. Við tökum stefnuna norður um næstu helgi þó svo veðurspáin sé nú frekar leiðinleg norðan heiða þegar líður á vikuna.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

28.9.2008 kl. 21:11

Satt er það

það eru allir mjög hljóðir núna .Best að bæta fyrir trassaskapinn héðan er allt gott að frétta nema allir ornir þreyttir á látlausum rigningardögum hér en spáin lofar góðu í það minnsta 2-3 daga þá á aftur að fara að rigna. Orðið ansi haustlegt trén fella laufin dálítið skart þessa dagana enda að koma oktober Nonni farinn út á sjó eftir langt frí, Við ætlum Anna Berglind ég og Dísa að fara á minningar tónleika Vilhjálms Vilhjálmssonar þann 11 oktober það verður örugglega gaman Gott að heyra að allt gengur vel hjá Geira frænda Kær kveðja til ykkar Dísa Læt þetta vera gott í bili Kveðja Guðrún besta frænka.

Guðrún Jónsd,

28.9.2008 kl. 15:17

Menn þegja þunnu hljóði

þessa dagana, ekki mikið um kvittanir. Siggi Hreinn , er ekki allt gott að frétta frá ykkur á Egilsstöðum, ekki heyrt neitt frá ykkur lengi. Hér var seinni smölun um helgina. Malla, Jói og allir strákarnir komu, búið að gera heilmikið. Fé vænt hjá okkur og góðar heimtur á þessu fáa fé. Nú erum við aftur ein í kotinu og Geiri farinn að fara smá gönguferðir , gott á meðan allt er autt og þurrt ,hvað lengi sem það helst. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

26.9.2008 kl. 9:12

Orð dagsins

,,Ég vissi ekki að allir þessir dagar sem liðu hjá væru lífið..."


Guðrún

25.9.2008 kl. 17:28

Hausthugleiðing

Jæja sæl veri þið!
Eitthvað lítið að frétta af mér og mínum, lífið gengur sinn vanagang hér, krónan að verða einskis virði og lánin hækka bara hér eins og annarsstaðar :-).
Í dag kvöddum við í Ölduselsskóla í hinsta sinn samkennara okkar sem lést langt um aldur fram. Falleg athöfn! og við sitjum eftir með afsakplega góðar minningar um einstaka konu og félaga. Blessuð sé minning hennar.
En á morgun er svo önnur jarðarför en það er systir teingdamömmu sem var orðin öldruð og lasin og hvíldinni fegin reikna ég með. En í vikunni kvöddum við HK ingar einnig konu í blóma lífsins sem var bæði mamma og þjálfari hér. Þannig þessi vika hefur svolítið litast af jarðarförum og hugleiðingum um hve lífið okkar er óútreiknanlegt.
Notið tækifærið og njótið augnabliksins.
Eigið góða helgi!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

23.9.2008 kl. 10:18

Kominn 23. sept.

Sé að ég hefi ekkert skrifað í heila viku. Það er bara gott að frétta frá okkur.Búið að vera leiðinlega hvasst með köflum en alltaf jafn þurrt , koma smáýrur stöku sinnum. Geiri fer á hverjum degi " út að ganga" á hækjunum, fer út á Hól eða inn í kirkjugarðinn og alveg vestur að vegg til að sjá yfir fé okkar sem er í girðingu hér heima og þarf alltaf eftirlit ef kind kynni að fara afvelta. Friðrika var búin að tína mesta magnið af rifsberjarunnum okkar , en í gær sá Geiri, þegar laufið var fokið að eftir voru þó nokkrir eldrauðir klasar með nærri ofþroskuðum rifsberjum nokkuð sem við höfum aldrei séð áður. En nú hefur ekki ennþá komið frostnótt sem er mjög fátítt þegar komin eru haustjafndægur. Geiri fór svo út þegar loks dró úr vindi síðdegis í gær og tíndi a. m. k. 1-11/2 l sem ég er að sía safann úr og geri líklega saft. Honum finnst hann vera þróttlaus , en öll hreyfing gerir honum gott. Á morgun á að taka heftin úr skurðinum á Húsavík. Sl. sunnudag var safnað liði og ´gerð aukasmölun í skóginum hér norðan við.Það tókst vel og komu 24 kindur. Það munar um það, en seinni smölun er ekki fyrri en næsta laugardag. Gangnamenn Austur Bárðdæla, sem voru á leið í aðrar göngur á Austur afrétt eldsnemma sl. laugardagsmorgun , fundu Spánverja á sjötugsaldri, sem kominn var í algjört þrot, lá hálfmeðvitundarlaus og gegnkaldur sunnan við Krossá.Þeir skildu að hann hafði verið á bíl og álitu að hann hefði yfirgefið hann vegna þess að hann hefði fest hann eða hann orðið olíulaus. Þegar betur náðist að tala við manninn eftir að sjúkrabíll sótti hann í Svartárkot og hann kominn á sjúkrahús á Húsavík, þá kom í ljós að hann hafði yfirgefið bílinn til að fara í útsýnisgöngu og villst svo hrapallega að hann fann aldrei bílinn og var búinn að vera á gangi 4-5 daga og líklega lifað af krækiberjum.. Bíllinn fannst á Austasta dragi suðaustur af Hraunárdal kyrfilega læstur og hefi ég ekki frétt hvort búið er að sækja hann. Í áburðarferð í sumar fundu þeir bændur og aðrir félagar tryppi sem tapast hafði úr Eyjafirði. Í fyrstu göngum fundu þeir sárfættan og illa á sig kominn hund, sem gangnamenn á Vesturafrétt hötðu týnt í göngum daginn áður.
Nú er spurt hvað þeir finni næst. Sumir nefna ísbjörn!!. Nei, allt er þegar þrennt er segir gamalt máltæki. Hafið það öll sem best . Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

19.9.2008 kl. 19:01

Búinn að vera skemmtilegur dagur í dag

Starfsdagur hjá heimaþjónustunni og stjórnstöðinni í dag Vorum í Árbæjarsafni í allan dag Dagurinn byrjaði með leikjum fórum í síðasta leik og urðum að bjarga okkur úr sjáfarháska fengum spýtur sem við urðum að bjarga okkur á og máttum ekki falla af spýtunum því þá sökk skipið enda spýtan alltaf færð fram vorun 2 til þrjú á sömu spýtunni en við höfðum það af að komast að landi allskonar sprell í gangi síðan var farið í Orkuveituhúsið og snæddur hádegismatur síðan aftur niður í Árbæjarsafn og þá voru fyrirlestrar vídeo í sambandi við vinnuna og slúttað neð ofsa finni veislu hvítvíni rauðví ni og bjór og snakki Yndislegur dagur Síðan ætla ég að bjóða hann Geira frænda minn velkominn heim og vona að allt gangi rosalega vel hjá honum í framhaldinu rigning og strekkingsvindur í dag Gott í bili Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

18.9.2008 kl. 8:29

Forsíða VMA

Sæl aftur til gaman fyrir ættingjana vil ég benda á heimasíu VMA þessa viku, þar er mynd þar sem finna má Hjördísi Ólafs og hennar vin Harald. Fyrir tveim vikum síðan skreytti ég þessa sömu síðu ásamt nemendum mínum en var alls ekki nógu hugmyndarík að benda á það þá. Kveðja Malla

Marína Sig.

18.9.2008 kl. 8:21

Þura til hamingju með daginn

Þá er fyrsta hauslægðin gengin yfir og von á fleirum. Ótrúleg sjón að sjá öll trén sem hér brotnuðu eða skemmdust í fyrrinótt. Göturnar í gömlu hverfunum rauðar af reiniberjum svo sum staðar mátti renna sér á þeim rétt eins og sagt er að megi fara fótskriðu niður berjabrekkurnar víða um land í haust. Nú förum við Anna Marit í stafgöngu öll miðvikudagskvöld. Við göngum heiman frá henni upp í Naustaborgi og í gegn um þær inn í Kjarnaskóg þar sem við förum stærri hringinn og aftur til baka. Þetta eru rétt um 10 km. og í gærkvöldi töluðum við um að við værum farnar að finna að þolið hefði aukist. Þessi leið er mjög falleg og hressandi fyrir sál og líkama. Ég ætla síðan á morgun föstudag að fara haustferð með samstarfsfólkinu mínu í VMA, í Mývatnssveit, Ég er alltaf svo veik fyrir að fara í ferðalög þanngað ekki síst á haustin. Á laugardag er styrktarganga fyrir Gísla Sverrisson og hans fjölskyldu vegna alvarlegs slyss sem hann varð fyrir 2. sept. sl. Gilli og Lilja voru nágrannar mínir og góðir félagar á árunum í Reynihlíð og þegar ég var í gamla Hótel og veitingaskólanum. Við Guðrún Freysteins. ætlum saman í þessa göngu. Það á að ganga, hjóla eða hlaupa frá Gúmívinnslunni og upp að Skíðastöðum í Hlíðarfjalli. Á sunnudag á síðan að smala brekkurnar norðan við Lundarbrekku og Jói er þar í liði og auðvitað fer ég með hvort sem ég verð innan eða utan dyra þann dag. Þetta er nú smá fréttabrot frá mér í morgunsárið en erindið inn á síðuna var að senda henni Þuru minn hjartanlegarkveðjur í tilefni dagsins. Malla

Marína Sig

17.9.2008 kl. 11:31

Komin heim í blíðuna......

Góðan dag
Þá er ég komin heim eftir vel heppnaða ferð til Færeyja en við rétt náðum að lenda í gær áður en veðrið versnaði. Þetta var hreint út sagt frábær ferð og það er svo fallegt í Færeyjum og yndislegt fólk, við héldum tvenna tónleika aðra á sunnudag í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn en seinni á mánudagskvöld á Tóftum og þess á milli vorum við í skoðunarferðum, móttökum og mat. Á föstudagskvöld munaði litlu að við gætum lent í Færeyjum en vél frá Noregi þurfti að snúa frá vegna þess hve lágskýað var í Færeyjum en okkar flugstjóri sá smá gat og skellti sér niður og það var mjög mjög hörð lending. Á laugardeginum rigdi svo aðeins í Færeyjum en sólskin og blíða á sunnudag og mánudag.
Veðrið hér í nótt var svo snarvitlaust að staurinn með körfuboltakörfunni í Álfaheiði lagðist á hliðina en síðan er allt í lagi með veðrið núna en allstaðar laufklessur eftir nóttina. Næstu helgi þarf ég svo að skella mér til Hornafjarðar en þar verður haldin árleg hausthátíð en það er konugrúbba sem ég hef verið í til margar ára þannig að það er ekki slegið slöku við í ferðalögum þessa dagana, svo held ég að það fari nú að róast svo maður geti farið að stoppa eitthvað heima og hvíla sig.
Bestu kveðjur til allra
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

16.9.2008 kl. 22:40

Lant er síðan ég hef lagt orð í belg

Sæl öll kæra frændfólk. Ég hef verið löt við að skrifa hér síðustu vikur, það koma alltaf svona tímar þar sem mér finnst ég ekki komast yfir allt sem ég vil gera það má nefnilega alltaf deila um hvað ég þarf að gera. Í kvöld er ég búin að fara á eina fatakynningu og kaupa mér eina utanyfirflík, var að hugsa um að kaupa mér góða regnkápu en Guðrún mín kæra systir þú þarft kanski meira á henni að halda en ég ef haustrigningar eru að ganga í garð. Annars minnir mig að undanfarin haust hafi mig stundum vantað regnkápu. Þessi sem fæst nún hjá Friendtex er eins og dúkkulísurnar mína áttu í gamla daga. Svo hef ég setið og svarað fyrirspurnum um nýtingu og skynsamleg innkaup sem ég fékk frá Brynhildi Pétursdóttur og mun verða í næsta neytendablaði. Ég er semsagt sérlegur ráðgjafi hennar um nýtingu matvæla og finnst nokkur upphefð að. Auðvitað hafa haustverk verið á dagskrá svo sem smalamennska og berjaferðir. Læt þetta duga í bili. Bestu kveðjur Malla

Marína Sig.

16.9.2008 kl. 20:00

Þessi færsla var frá mér....

.... mér lá þessi lifandi skelfing á að koma henni í loftið!! ha ha ha. Ég get bara sagt ykkur það að ef lægðasúpa síðasta hausts er að fara endurtaka sig þá erum við hætt að bera út Moggann "med det samme"

Guðrún Sigurgeirsdóttir

16.9.2008 kl. 19:58

Er ballið byrjað ???? Ég spyr,,,,,

Viðvörun: Búast má við sunnanstormi í kvöld og nótt og mikilli rigning S- og V-lands. Spá: Vaxandi sunnanátt, 18-25 m/s seint í kvöld og nótt og mikil rigning S- og V-lands, en úrkomuminna NA-til. Snýst í suðvestan 13-18 með skúrum á morgun, fyrst V-til, en heldur hægari og léttir til A-lands. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á NA-landi.

16.9.2008 kl. 17:34

Geiri er kominn heim.

Geiri kom heim um hádegið í dag og er vel hress. Hann er svo sterkur í öxlum og handleggjum að hann fer létt með að bera sig um á hækjunum og er mjög sjálfbjarga. Svo er hann dauðfeginn að komast heim í
sínar vanaskorður, fá sterkt kaffi, nýmjólk og skyr o. s. frv. Þetta verður vonandi bara upp á við héðan í frá. Bestu kveðjur . Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

15.9.2008 kl. 20:03

Yndislegt að heyra að

aðgerðin tókst vel hjá frænda . Auðvitað verður hann hlýðinn og fer varlega Vona bara að allt gangi vel áfram, Hér er spáð kolvitlausu veðri aðra nótt eins gott að hirða allt inn af svölunum Sit hér ein heima og hamast við að sauma harðangur og klaustursdúk ætlaði mér 2 ár með hann sem mér synist ætla að standast hjá m´er Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

14.9.2008 kl. 21:23

Jæja, ég er komin heim

eftir að hafa verið að heiman síðan þriðjudaginn 9. september. Við Geiri fórum þá til Akureyrar og hann var lagður inn á sjúkrahúsið kl 19 um kvöldið. Hann var svo heppinn að vera fyrstur í aðgerð morguninn eftir kl 8 þann 10. sept. Allt hefur gengið mjög vel hingað til. Hann hljóp yfir að nota göngugrind, fór beint á hækjurnar og telur sig býsna sjálfbjarga á þeim. Á morgun mun skýrast hvenær hann verður útskrifaður af sjúkrahúsinu en það mun ekki dragast um marga daga hér frá.
Vona bara að hann þykist ekki of öruggur með sig og það verði honum að slysi. Bestu kveðjur og þakkir til allra sem hringt hafa, sent hafa kveðjur eða heimsótt hann á sjúkrahúsið.Ég læt ykkur fylgjast með áfram. kv. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

12.9.2008 kl. 21:49

Aðgerðin gekk vel....

Pabbi var skorinn á þriðjudagsmorguninn og skipt um mjaðmakúlu. Það gekk allt vel og hann er hress eftir atvikum. Ég ákvað að setja þetta inn þar sem ég er að fá spurnignar frá ýmsum varðandi þetta. En þetta semsagt gengur allt samkvæmt áætlun.
Bestu kveðjur úr Kóavogi

Guðrún Sigurgeirsdóttir

11.9.2008 kl. 16:19

Langt síðan

Sá að ég hef ekki tjáð mig hér síðan 10. júlí. Eins og flestir vita sem þekkja mig er það nú óvanalega löng þögn hjá mér :-)Það hefur nú þokkalega margt á daga okkar drifið síðan þá. Held ég byrji á að þakka þeim fyrir síðast sem voru í Hrútagilsgöngunni, ég og mín fjölskylda skemmtum okkur mjög vel þennan dag. Við vorum í hálfan mánuð á hótel mömmu á Ingjaldsstöðum í góðu yfirlæti. Tónleikarnir á Akureyri þann 8. ágúst gengu mjög vel og gaman var að sjá ættingjana fjölmenna. Hálfum mánuði eyddi svo fjölskyldan á Tenerife þar sem yngsti fjölskyldumeðlimurinn naut sín í botn. Ekki hef ég nú enn náð heilli vinnuviku síðan í júlí, því ég byrjaði í miðri viku eftir sumarfrí. Vikuna á eftir varð Atli veikur og ég var ekki nema 2 heila daga í vinnu þá vikuna. Á þriðjudaginn fór hann svo í nef- og hálskirtlatöku og má ekki fara á leikskólann í viku. Þannig að við sitjum heima við og horfum á sjónvarpið, lesum og höfum það huggulegt. Aðgerðin gekk vel og vonandi verður þetta til þess að heilsan verði betri í vetur en undanfarna vetur. Við fórum norður um síðustu helgi í smalamennskur og það var mjög gaman, veðrið yndislegt og ég náði aðeins að skjótast í berjamó. Þetta er nú svona það helsta úr Glaðheimunum.

Elma Atladóttir

10.9.2008 kl. 10:50

Sveitabrúðkaup

Við fórum á gamanmyndina Sveitabrúðkaup á sunnudagskvöldið en ég hló mikið það get ég sagt ykkur. Ingibjörg og Barði hafa ákveðið að giftast eftir þriggja ára sambúð. Þau ákveða að gifta sig í lítilli sveitakirkju klukkutíma keyrslu frá Reykjavík. Ingibjörg, Barði og brúðkaupsgestirnir - nánustu ættingjar og vinir halda af stað í tveimur litlum rútum öll spariklædd og tilvonandi brúðhjón í brúðargallanum. Brúðargjafir, kampavín og brúðarterta í farnangursgeymslunni. En þetta fer ekki alveg eins og þau hefðu viljað óska sér, upp koma hin ótrúlegustu mál á leiðinni. Leikarahópurinn var frábær sem eru flest held ég frá Vesturport og við upptökur á myndinn var notuð svokölluð spunaaðfer. Herdís Þorvaldsdóttir stal senunni hvað eftir annað sem amma eins gestsins hún fer á kostum.
Frábær skemmtun og ótrúlegat hvað íslendingar eru vel að sér í landafræði á Íslandi ? og rata meira á Mallorca en Melrakkasléttu eins og Kristín Helga Gunnarsdóttir sagði í gær við viðtöku á bókmenntavaerðlaununum.
En þessu kvöldi var vel varið.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

8.9.2008 kl. 21:00

Þín dýrmæt eign....... fallegt og innihaldsríkt ljóð eftir mömmu.

Þín dýrmæt eign er sá dagur sem er að líða
dvel ei um of í framtíðar skýjaborgum
eða í fortíðar gleði og gömlum sorgum.
Hann gengur á meðan hjá og vill ekki bíða.
Finndu hve ríkur þú ert af ástvinum þínum,
auðlegðin stóra í hópi vina þinna.
Látt´ekki fánýti frá þessu öllu þig ginna
Farðu ekki að leita að gleymsku og óráðssýnum.
Sekúndurnar sáldrast um greipar þínar,
sérðu ekki að hér ævin frá þér að renna?
Láttu þær ylja þér á meðan þær burtu brenna.
Þá birtir , þú finnur að innra með þér hlýnar.

Hjördís Kristjánsdóttir 1984

Guðrún Sigurgeirsdóttir

8.9.2008 kl. 13:00

Haustvindar

Góðan daginn
Já nú um helgina fann maður fyrir því að haustið er komið með tilheyrandi rigningu og roki. Nú snýst allt um kórferðina mína til Færeyja á föstudaginn næsta, kóræfingar þrjú kvöld í vikunni og nóg að gera. Kanski þig vanti fingurbjörg frá Færeyjum "besta frænka" :o)
Annars er allt gott að frétta hjá okkur, ég er búin að færa mikið til á heimilinu undan farið við misjafnar undirtektir heimilisfólksins :o) en semsagt yngsti fjölskyldumeðlimurinn er kominn með stráka herbergi alsæll og hjónarúmið stúkað af með skáp í horni stofunnar, hvað gerir maður ekki á krepputímum. Maður er nú ekkert í herberginu nema til að sofa, en það er svo mikið dót sem fylgir krökkunum að það er gott að geta verið sér með sitt dót í herbergi og boðið vinum sínum til sín. Heimasætan fékk nýtt rúm og Ari fékk kojurnar og sefur í efri kojunni en bangsarnir í neðri kojunni. Alltaf sama vandamálið samt með skápapláss og spurning hvort það mætti ekki taka meira og fara með til rauða krossins, ég er einmitt oft að hugsa þegar mamma hefur sagt mér þegar hún var lítil og það var nú ekki mikið til að fötum og var bara þvegið að kvöldi og þurkað yfir nótt að þetta mundi alveg vera hægt með son minn því hann heldur mest upp á eitthvað eitt dress sem ég þvæ oft á kvöldin og þurka á ofni yfir nótt ( á ekki þurkara) hvað maður er að eyða plássi í eitthvað sem hann vill ekki fara í.............jæja nóg um þetta.
Ég eldaði lifrapylsu (uppáhaldsmat Særúnar) og þá fannst mér ennþá meira haust komið.
Við drifum okkur svo í bíó í gærkvöld ásamt Guðrúnu og Kidda og sáum sveitabrúðkaupið og gátum hlegið mikið og þá er tilganginum náð, ansi vitlaust á köflum, en þó dálítill boðskapur.
Já ljóðið "eitt bros" er líka í miklu uppáhaldi hjá mér og einu sinni fyrir löngu gaf einmitt Guðrún mér það skrautskrifað í ramma og ég á það enn.
Læt þessa skýrslu nægja í bili frá mér og vona að þið hafið það öll sem allra best og ég mun hugsa mikið og vel til "gamla dæda" og vona að aðgerðin gangi vel.
Bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

7.9.2008 kl. 21:20

'eg safna nefnilega fingurbjörum á orðið 69 fingurbjargir frá ýmsum löndum

svo sem Egiptalandi nNova skotsia Kina margar frá Spáni Jamacia og fleiri löndum Kveðja Besta frænka

Guðrún frænka

7.9.2008 kl. 21:16

Flott ljóð

hjá þér frænka ég á fingurbjörg með áletrunni eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt sem vinkona mín gaf mér ´

Guðrún Jónsd,

7.9.2008 kl. 9:09

Sunnudagsmorgunn og komið haust

Sunnudagur og komið haust, allavega þegar litið er út um gluggann hér í morgun. Vindur, rigning og þungbúið veður. Gott að kúra með kaffibollann. Ég er nefnilega ein að þeim sem þarf kaffi til að vakan. Ekkert eins notalegt og lesa blöðin á sunnudagsmorgni með kaffið sér við hlið og heyra vindinn syngja í trjáunm úti. Og þurfa ekki út..... allavega ekki strax.
Njótið sunnudagsins

Guðrún Sigurgeirsdóttir

4.9.2008 kl. 15:28

Sæl öll.

Það er helst í fréttum að mjaðmaaðgerðinni á Geira var flýtt um 2 vikur, hann fer í aðgerðina á miðvikudag 10. sept og á að mæta í viðtöl og rannsóknir á F. S. A. í fyrramálið kl 9 og verður trúlega í því fram að hádegi, kemur þá heim og mætir aftur kl 7 þriðjudagskvöldið 9. sept og verður þá lagður inn. Hér á að smala heimalönd á morgun og laugardag, flytja sláturlömb á sunnudag, slátra á mánudag svo hann getur verið heima og með í ráðum þessa daga en það verða eflaust margar hjálparhendur við að framkvæma hlutina. Ennþá hefur ekki komið næturfrost , en nú er að birta til og þá er ekkert öruggt í þeim efnum. Óhemju mikið af berjum er um allar jarðir hér og þau verða auðvitað aldrei tínd nema smábrot. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

3.9.2008 kl. 7:56

Malla mín

í matreiðslubók sem ég á er uppskrift af heila bollum og steiktum heila en heilastöppu er hvergi að finna er búin að skoða allar mínar bækur en finn ekki heilastöppu aðeins innslag í heilaviðræður kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

2.9.2008 kl. 21:09

Kvitt frá DK

Heil og sæl

Já Marína... er búin að vera leita að uppskriftum af heilastöppu... en þær virðast ekki liggja á glámbekk... Ætla samt að halda áfram leitinni.

Góðar stundir... kveðja úr DK

Sibba

2.9.2008 kl. 16:22

Best að kvitta!

Er ekki best að standa við stóru orðin og vera duglegri við að kvitta fyrir komu minni hér á þessa síðu. Einnig gaman að rekast á blogg hjá frænkum sem maður hefur ekki séð í 20 ár eða meira og eru flúnar til danmerkur og bandaríkjahrepps. Hafið það sem best.

Jón Árni.

2.9.2008 kl. 11:48

Þetta líkar mér....

alltaf að bætast í kvitt-hópinn!
Nú ætla ég að "misnota aðstöðuna" og auglýsa hér nýtt bílaverkstæði að Dalvegi 16 D hér í Kópavogi, síminn er 861-3790, persónuleg og góð þjónusta.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

2.9.2008 kl. 6:38

Fréttir frá Ameríku

Hæ hó kæra frændfólk! :)

Ætla ekki að hafa þetta langt hér heldur einungis benda á ameríkubloggið mitt: www. annasaeunn.bloggar.is sem verður vonandi haldið vel við meðan ég er hér úti, bara ef þið viljið fylgjast með, er nýbúin að uppfæra fyrstu daga hér í kanalandi! Endilega ekki feimin við að kíkja og kommenta!

Bestu kveðjur til smala heima á fróni!

Anna Sæunn

Anna Sæunn

annasaeunn.bloggar.is

1.9.2008 kl. 21:43

Fleiri að tjá sig...

endilega kvittið, kvittið kvittið. Gaman að heyra frá þér Sibba og kíkja á bloggið þitt. Það er nefnilega gaman að lesa blogg sem hafa húmor og halda manni við efnið. Ekki það að maður hafi mikinn tíma til að lesa blogg en það kemur fyrir. Veðrið var fínt hér í dag og við fengum líka að vita að hitamet var selgið hér í sumar, þ.e. síðan mælingar hófust.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

31.8.2008 kl. 22:14

Malla viltu senda mér netfangið þitt á mitt netfang sem er hér fyrir neðan Kv Guðrún frænka

Guðrún Jónsdóttir

gudrun-jonsdottir@hotmail.com

31.8.2008 kl. 21:59

Mig vantar einmitt nýjar

uppskriftir af heilastöppu og fleiru sem gott væri að fá frá Danmörku núna í byrjun annar. Annars vorum við Guðrún á góðu námskeiði í Kaupmannahöfn s.l. vor en engi n uppskrift af neinu úr heila hvað þá frystum. En bloggið mitt frá á föstudag ber þess merki að ég var í vinnunni og var trufluð hvað eftir annað á meðan ég var að slá það inn. Það úir og grúir af stafsetningarvillum. Bestu kveðjur frá Akureyri eftir vel heppnaða Akureyrarvöku og berjaferð í Bárðardal. Malla

Marína Sig

31.8.2008 kl. 19:54

...

Bara ég aftur...

Var að skoða hvað fólk hefur verið að skrifa og þá tók ég eftir því að Marína er sennilega með nýjan matseðil í VMA þessa önnina þar sem ein vika hefur verið helguð í að frysta heila. Spurning um hvernig heila sé að ræða... ;)

Gleymdi einnig að nefna það að veðrið var loksins gott um helgina en hátt í 30 stiga hiti var í gær. En undanfarið hefur verið gríðarleg rigning og annað slagið þrumur og eldingar.

Læt þetta duga að sinni...
Med venlig hilsen

Sibba

31.8.2008 kl. 19:47

Fréttir úr Danaveldi

Heil og sæl

Jæja ætli sé ekki kominn tími til að kvitta í gestabókina.
En hér eins og víðast hvar annars staðar er haustið á næsta leiti. Sem hefur í för með sér að vinnan og handboltinn eru að fara á fullt. Búið að vera mjög rólegt í vinnunni hjá mér undanfarin mánuð. En e-h eru Íslendingar að taka við sér að kaupa aftur vörur frá Danmörku.
Já og handboltinn... nú fara æfingar aftur að hefjast en ég ætla nú að stunda hann e-h í vetur.
Þannig að af mér er allt gott að frétta og ég bið kærlega að heilsa öllum ættingjum nær og fjær.

Sibba

31.8.2008 kl. 19:45

Jæja sú gula lét aðeins

sjá sig hér á höfuðborgarsvæðinu í dag og spáir bara góðu eitthvað fram í vikuna, Allt í góðu hjá mér og mínum var bara að kvitta Kv Guðrún besta frænka

Guðrún besta frænka

29.8.2008 kl. 13:49

Rok og rigning

Alveg yndislegt veður, fjúkandi trambólín, ruslatunnur, grill, sólhúsgögn o. fl. Týpísk fyrsta haustlægðin og blessaðir unglingarnir pirraðir í kjölfarið... löng vika, full stundaskrá og fyrsta haustlægðin. Ekki nema von þau séu pirruð blessuð börnin. Ekki laust við að ég sé fegin að það sé kominn föstudagur...eftir hádegi og vinnuvikunni alveg að ljúka. En þetta er samt svo gaman og gott að vera hraustur og geta unnið og ekki síst innanum þessi ótrúlega litríku og skemmtilegu krakka þó þau séu pirruð og þreytt.
Góða helgi öll

Guðrún Sigurgeirsdóttir

29.8.2008 kl. 12:01

Frysta heila kennsluvikan

að baki hjá mér hér í VMA. þessa fyrstu daga annarinnar er mikill erill og fátt annað en það að láta hjólin fara að snúast og koma öllu og öllum af stað kemst að. Ég horfði þó á móttöku handboltastrákann og hreifst með enda fékk ég það ósvikið með nafni að vera hrifnæm og eiga auðvelt með að tárast og allt það. Af minni fjölskyldu er allt gott að frétta hjörvar byrjaður sinn síðasta vetur hér í VMA og á lítið eftir svo hann vinnur áfram hjá byggingarverktakanum ,sem hann var hjá í sumar, þrjá morgna í viku og nær þannig að ná sér í aðeins aura til að kaupa bensín á bílínn sem hann keypti núna í ágúst. Ásgeir er að fara á síðustu helgarvaktina á Strikinu og svo byrjar MA 11. sept. Sævar er byrjaður í 5. bekk, situr inn við höpnersbryggju alla daga og fylgist með hvölunum sem verið hafa á Pollinum síðustu viku. Ég og hann ætlum svo að tka þátt í akureyrarvöku á laugardag og byrja á að fara í draugagöngu í kvöld. Jói er í göngum og nýtur sín vonandi vel. Ég ætla síðan í berjamó á sunnudag og er búin að bjóða Gósu og Önnu marit með mér. Óska ykkur öllum góðrar helgar. Malla

Marína Sig.

28.8.2008 kl. 19:11

Hanna mín kveðjuna fékk ég með góðum

skilum og þakka þér fyrir hana Alltaf gaman að fá kveðjur frá ættingjum sem maður hittir aldrei. Annars allt gott að frétta spáin heldur ljót hér hj´+a okkur er búin að fergja allt á svölunum hjá mér kv BESTA FRÆNKA

Guðrún Jónsdóttir

28.8.2008 kl. 11:26

Brjálað að gera

Góðan daginn gott fólk, já það er rétt maður má vera duglegri að kvitta hér, því ég held að ég fari daglega inn á þessa síðu, allavega þegar ég er í vinnunni þá er þetta í morgunrútínunni í tölvunni........ætli einhver eigi afmæli og eihverjar fréttir af ættingjunum.
Ég fór ekki í bæinn í gær að hylla strákana okkar en um leið og ég kom heim úr vinnunni kveikti ég á sjónvarpinu og sat þar límd þar til ég fór á kóræfingu kl. 20.
Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér í vinnunni, bæði veikindi á starfsfólki og sumarfólkið að hætta. Síðan er kórstarfið byrjað aftur, óvenjusnemma þetta haustið vegna þess að við erum að fara til Færeyja þann 12. september. Við hjónaleysin fórum svo í fimmtugsafmæli á þriðjudagskvöldið það var maki eins eigenda fyrirtækisins sem Palli vinnur hjá sem hélt heldur betur stóra veislu í félagsheimili seltjarnarnes og annað fimmtugsafmæli er ég svo að fara í annað kvöld en það er ein kórvinkona mín sem býður til veislu. Þannig að það er alltaf nóg um að vera.
Á menningarnótt hitti ég Stjönu (Kristjönu Kristjánsdóttur) og vildi fá skýslu frá Hrútagilslaummudeginum og var miður sín yfir að hafa ekki mætt en stelpurnar hennar vildu komast einn dag til Akureyrar um verslunarmannahelgina og þetta var eini dagurinn sem hún hafði til þess, en sagðist vera staðráðin í að mæta næst :o)
Á hlaupum mínum í morgun hér milli hæða í sýslumannsembættinu hitti ég svo Árna Þormóðs. og bað auðvitað að heilsa frænku, maður hittir svo marga í þessu starfi en hefur oft á tíðum því miður of lítinn tíma til að spjalla.
Jæja þá ætla ég að láta þetta nægja að sinni.
Bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

28.8.2008 kl. 8:59

Takk fyrir síðast

Jón Árni og Anna Berglind. Auðvitað kom gestabókin í leitirnar strax og þið voruð farin og ég skrifaði nöfn ykkar og dagsetningu svo heimildir geymdust.. Víst væri skemmtilegra að sjá fjölbreyttari
gestalista í þessari gestabók.
Hér á að fara af staðí göngur í fyrramálið, þriggja daga göngur á Austurafrétt Bárðdæla, Jói tengdasonur fer fyrir okkur. Á laugardagsmorgun er svo farið af stað í tveggja daga göngur á svæði austan við hitt, það er "hraunið " og fleira sem ég þori ekki að nafngreina. Þá er gist í byggð milli daga. Annars eru sauðfjárbændur ekki bjartsýnir á framtíðina þessa dagana og það er því miður ekki bara "venjulegt væl" eða eitthvað í þá áttina eins og ein ágæt blaðakona lét sig hafa að skrifa nýlega.Kveð ykkur að sinni. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

28.8.2008 kl. 7:00

mér finnst þú mættir vera duglegri að kvitta sonur sæll fyrst þu kíkir hér daglega

vonandi breytist það til batnaðar hjá þér Kv Guðrún

Guðrún Jónsdóttir

28.8.2008 kl. 0:52

Er ekki best að ég fari að tilmælum þeirra frænku minnar og móur og kvitti fyrir komu minni hingað. Best að ég geri það hér og nú. Ekki fannst gestabókin á Lundarbrekku 1 þegar ég kom þar við á dögunum svo þetta dugar í bili. Annars kíki ég hér við daglega þegar ég er í netsambandi. Lifið heil.

Jón Árni Árnason

27.8.2008 kl. 20:48

Aldeilis flottar móttökur sem

silfur drengirnir okkar fengu .þegar þeir komu heim enda áttu þeir það fyllilega skilið.Þá er nú blessuð rigningin mætt hér á höfuðborgarsvæðinu vonandi ekki til langframa , Sammála nöfnu minni það mættu nú fleiri fara að tjá sig hér á síðunni Kveðja Guðrun, besta frænka

Guðrún besta frænka

27.8.2008 kl. 13:37

Það er eins og ég geti ekki skrifað eina..

einustu færslu hér inn án þess að inn slæðist auka orð eða einhverjar villur, vona nú að þið getið skilið þetta fyrir það. Sennilega er þetta einhverskonar fljótfærni þ.e. brussugangurinn yfirfærist á lyklaborðið.

Guðrún Sigurgeirsd.

27.8.2008 kl. 13:31

Það væri nú gaman að fá fleiri.....

.......til að kvitta hér í gestabókina. Við erum alltaf að kvitta þessar sömu aftur og aftur og allt í góðu með það en allir hinir geta líka kvittað. Það þarf ekkert að skrifa ritgerð :-). Nú skora ég á ykkur að kvitta í gestabókina þegar þið kíkið hér inn á síðuna.
Það rignir hér á stór-Kópavogssvæðinu í dag eina og hefur gert meira og minna síðan 22. ágúst. Allt komið á fullt hjá öllum. Eiríkur að fara að keppa í Íslandsmótinu á eftir og á víst að leggja Fjölni að velli skilst mér.

Guðrún Sigurgeirsd.

25.8.2008 kl. 18:25

Sammála síðustu gestabókarskrifum

og finnst vel við hæfi að þeir fái Fálkaorður og riddarakrossa og vonandi að engum þeirra sé það á móti skapi þótt til séu einhverjir sem sem láta sér fátt um finnast þegar orðuveitingar eru annars vegar.En sannarlega hafa þeir meira til unnið en ýmsir sem heiðraðir hafa verið áður. Til hamingju Ísland!

Hjördís Kristjánsd.

24.8.2008 kl. 17:34

Já þeir stóðu sig vel strákarnir okkar þótt þeir hafi ekki náð gullinu Þetta er stór íþróttaviðburðu

Íslandi ég segi nú bara eins og forsetafrúin Ísland er stórasta land í heimi. Gaman þegar þeir koma heim á miðvikudaginn þá verður nú aldeilis kátt í höllinni.Allt gott héðan kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún besta frænka

24.8.2008 kl. 10:39

Til hamingju með silfurverðlaunin ÍSLAND!

Við meigum vera stolt af strákunum okkar þó þeir hafi ekki alveg átt sinn besta leik í úrslitaleiknum. Nú er bara að taka höfðinglega á móti þeim á miðvikudaginn.
Af mér og mínum er það að frétta að lífið er að komast í sínar skorður, vinna, skóli og allt það. Ég byrja að kenna á morgun samkvæmt stundaskrá og börnin byrja bæði í skólanum á morgun samkvæmt sinni stundaskrá.
Mér sýninst reyndar að sumum fjölskyldumeðlimum veiti ekki af rólegum degi og jafnvel að leggja sig.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

22.8.2008 kl. 19:17

Sko strákana okkar þetta gátu þeir alveg hreynt

frábær frammi staða og nú verður Íslenska þjóðin að leggjast á bæn fyrir sunnudaginn og senda sterka strauma til Kína Áfram 'island kv Guðrú besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

21.8.2008 kl. 19:43

Jæja nú hefur borist svo mikið

af rifsberjum til mín að ég hef staðið við að búa til hlaup úr þessu öllu saman og eru 24 krukkur af rifsberjahlaupi á borðinu hjá mér núna Þetta telst ekki mikið á mínu heimili því rifsberja hlaup verður að vera með flest öllu hjá mér sérstaklega steiktu kjöti og svo ofaná brau með osti.það hefur nú oft verið meira. Annars allt gott að frétta héðan Særún Birta að byrja í skólanum á morgun. Svo frétti ég að hann sonur minn hafi heimsótt Lundarbrekku og þótti mér mjög vænt um það.Nóg í bili Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

19.8.2008 kl. 10:22

Gott að heyra

Hanna mín að sultugerðin gekk vel. Ég ætlaði líka að segja þér að enn stendur rósavöndurinn frá ykkur mæðgum hér úti á tröppunni í vasanum sem ég lét hann í 2. ágúst og er varla nokkuð farinn að láta á sjá. Það hefur aldrei hvesst og hitastigið hefur verið hæfilegt. Annars erum við farin að þrá rigningu, hér er allt að skrælna. Það kom flatt upp á mig í gærmorgun að Geiri fór að tala um hvort við ættum ekki að fara í bíltúr , það liti út fyrir svo gott veður, ekki víst að það yrði eins gott næstu daga. Við byrjuðum á að fara til Húsavíkur og erinda aðeins þar, síðan fórum við í safnið á Mánárbakka og dvaldistþar við að skoða ótrúlegt safn gamalla muna, m. a. leirtau ,eldhúsáhöld , eldspýtnastokka og svo ný verk í bland. Svo var ekki hægt að fá betra útsýni á leiðinni fyrir Tjörnes og um Kelduhverfi í "gamla kaupfélagið" við Ásbyrgi sem er fastur viðkomustaður á þessari leið. Við nestuðum okkur þar með harðfiski og smjöri og snæddum sitjandi á þúfum inni í skógi innst í Byrginu. Birkiilminn, bergmyndanir hamranna , hljóðin í umhverfinu reyndi ég að fanga til að geyma í minningunni.Skruppum á útsýnisstað austan ár og í Gljúfrastofu, þar var margt að sjá. Enduðum í heimsókn hjá hjónum í Vogum í Kelduhverfi sem við hittum af tilviljun í kaffihlaðborði í Kiðagili fyrir 1/ 2 mánuði rúmlega og leiddi til þess að við gátum ekki farið heim fyrri en seint og um síðir.
Sú heimsókn var kapituli út af fyrir sig . Kærar þakkir María og Þórarinn. Nú fer að styttast í göngur og smalamennskur, skólasetningar og allt sem haustinu fylgir, það er bæði kvíði og tilhlökkun sem andblær haustsins ber með sér. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

18.8.2008 kl. 22:55

Hei þér hanna frænka mín víst ertu dugleg stelpa

alveg væri ég til í rifsberja hlaup ef ég ætti svona duglegan strák sem týndi fyrir mig rifber það er aðalsultan ´a mínu hemili fyrir utan bláberja sultuna Ég vissi það frænka að þú gætir þetta hafði enga vantrú á þér vá fyrir þér Malla mín mexikosúpan sló í gegn ástarþakkir fyrir þitt framlag á nú nægar byrgðir af uppskriftum takk og aftur takk Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

18.8.2008 kl. 10:30

Litla stelpan dugleg

Góðan daginn ég má til með að lofa ykkur að fylgjast með áfram fyrst ég var að byrja á þessu með sultuna............. ég dreif semsagt í því að fara í garð nágranna minna og ná mér í rabbabara og búa til sultu í gær, ég skil nú samt ekki hvað konan var að tala um mikinn rabbabara hjá sér mér þótti þetta nú heldur aumingjalegt, en það er nú ekki að marka maður er vanur svo miklum breiðum, já mikið rétt Malla mín það var nú ekki stór potturinn sem ég sauð í ,en ég fékk þó í 3 stórar krukkur og það nægir okkur. Ég bjó líka til rifsberjahlaup og það varð nú svo mikið að það eru meir en ársbirgðir því sonur minn og vinir hans eru óstöðvandi í að tína af runnanum í garðinum. Ég endaði svo góðan dag á að steikja lambalæri og bjóða stóra bróður í mat. Ég segi nú eins og Guðrún að ég hef nú einmitt líka fengið orði fyrir það í gegnum tíðina að vera afar dugleg að fara í berjamó eða þannig (man að pabbi gerði oft grín að mér) en ég er ekki frá því að þetta breytist aðeins þegar maður er kominn á fimmtugsaldurinn :o) því það er ekki frá því að mig langi til að bregða mér í berjamó og tína allavega svona einu sinni í skyrið eða svo, ekki að ég ætli að fara að sulta eitthvað meira því það er ekki svo mikið borðað af sultu hjá mér að það borgar sig ekki að leggja vinnu í það sem maður hendir svo.
jæja gott í bili
eigið góðan dag
bk. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

17.8.2008 kl. 21:09

Viðburðadagatal

Á okkar mælikvarða hafa ekki verið viðburðasnauðir dagar undanfarið. Föstudaginn 15. ág. fórum við kl 7 að morgni af stað til Akureyrar til að slást í för með F.K.E. félögum ( félag kennara á eftirlaunum) í dagsferð um Norðurland. en fólkið kom í hópferðabíl sunnan yfir Kjöl daginn áður og gisti á Edduhóteli í heimavist M. A. á Akureyri Þar bættumst við í hópinn ásamt 5 Akureyringum þennan morgun. Ekið var á Árskógssand, farið í Hrísey þar sem tafið var milli ferða, farið í land kl 11 árdegis, ekið á Dalvík, 20 mín stans Ólafsfjörð 30 mín stans, Lágheiði og til Hofsóss , þar var lengri viðdvöl, en síðan ekið í Hóla, þar var afmarkaður tími til að skoða kirkjuna, en síðan ekið í náttstað aðalhópsins sem var í Foss hóteli í húsnæði Fjölbrautarskólans á Sauðárkróki. Þar var matur kl 18,30, en síðan vorum við norðanfólk sóttt frá Varmahlíð og send með rútunni frá Reykjavík um kvöldið til Akureyrar. Komum þar kl 23,30 og vorum búin að tryggja okkur gistingu hjá Möllu og Jóa og fór vel um okkur. Komum heim um hádegi á laugardag vel sátt við ferðina. Í dag var svo síðasta kaffihlaðborð sumarsins í Kiðagili og ákveðið að sleppa því ekki. Fyrr í sumar hafði fólk af svæðinu hittst og ákveðið að efna til útimarkaðar í tengslum við þetta hlaðborð. Tjaldbúð var uppsett og ýmislegt á boðstólum. Fjáröflunarnefnd kvenfélagsins var með kökubasar, ýmsir aðilar með heimagerðar matvörur, reyktan silung , hangikjöt, sultur saft, grasöl, álegg, ber,einnig trémunir renndir og af fleiri gerðum, fatamarkaður frá a. m. k. tveimur aðilum, o. fl. var þarna á boðstólum. Veðrið lék við okkur og aðsóknin sló öll met, 301, það ég síðast vissi.
Það er líklegt að á morgun verði letidagur hjá mér, hvað sem Geiri gerir. Sendum ykkur öllum bestu kveðjur. Dísa og Geiri.

Hjördís Kristjánsd.

16.8.2008 kl. 12:56

Afmæliskaffi og berjatími

Sælt veri fólkið. Hjá mér er nú þriðji í afmæli hjá herra Sævari en hann er með boð fyrir nokkra stráka nú í hádeginu og allt datt í dúnalogn eða þannig þegar þeir fóru að horfa á Íslendinga og Dani spila handbolt. Vonum að það fari vel en ég hef varla taugar til að horfa enda fæ ég lýsingun beint frá þeim félögum hér inn í næsta herbergi. Svo er komið að berjatíman um þegar ég hef klárað afmælisveislur. flest ár fer ég út í Hrísey að tína aðalbláber og við ætlum að skreppa á morgun, svo á ég rifsberjarunna sem svignar orðið undan berjaklösunum einnig reyni ég alltaf að ná mér í hrútaber ýmisst í Hörgárdal, Fnjóskadal eða Bárðardal. Ég sýð svo sultu og hlaup af þessum berju en rabarbarasultu var ég búin að sjóða í júní, ég er með einn rabarbarahnaus í garðinum og hann dugar fyrir því sem heimilið þarf, dálítið ólíkt eða þegar soðin var hver stóri potturinn við annan á Lundarbrekku á okkar bernskuárum Hanna mín. hafið það sem allra best. Malla

Marína Sig

14.8.2008 kl. 8:35

Rabbarbarinnog berin.

Góðan og blessaðan daginn.
Það er gaman að sjá þessa fallegu berjamynd á forsíðunni og gott að þið "litlu stelpur" Hanna og Rúna farið nú allt í einu á "fimmtugsaldrinum :-)"að verða sjálfstæðar að nýta þessar góðu afurðir landsins okkar.Enda fer nú ekki að verða treystandi á mig til frambúðar. Geiri tekur upp rabbarbarann og brytjar hann. ég þvæ hann því hann segist vita af langri sambúð okkar hjóna að sér sé aldrei treyst til að þvo nokkurn hlut nógu vel og það er sannleikskorn í því. Svo vigtar hann í pottinn , ber hann upp og setur á helluna. Þegar suðan er kominn upp og hefur mallað smá stund og rabbarbarinn orðinn vel meyr rennir hann maukinu fyrir mig gegnum hakkavélina á Kitcen Aid vélinni minni og svo er þá auðvelt fyrir mig að sjóða sultuna við hægan hita og láta ekki brenna við í gömlum stórum álpotti, stálpottar eru mestu viðbrunagildrur fyrir sultu , hvað sem spekingarnir segja. Svona gengur þetta nú fyrir sig . Bóndi búinn að þvo bílinn í blíðuveðri og kominn inn í morgunmatinn . Sæl að sinni. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

13.8.2008 kl. 14:36

Frá rabbabara til berja......

Þar sem ég er nú "fræg" innan fjölskyldunnar fyrir áhuga minn á að týna ber og fara í berjamó yfirleitt :-) þá skelli ég að gamni inn hér uppskrift af bláberjalíkjör.

Bláberjalíkjör:
1 kg bláber eða aðalbláber
1 kg sykur
1 l vodki
Þessu er öllu blandað saman í stóra krukku. Velta þarf krukkunni á hverjum degi í 6 vikur,( geyma krukkuna á köldum stað.) Að þeim tíma liðnum má svo setja líkjörinn á flöskur.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

13.8.2008 kl. 14:08

Góðan dag
jæja þá er ég nú loksins komin í gang í vinnunni ég var ekki alveg í sambandi fyrsta daginn. Já Guðrún "besta frænka" takk fyrir að láta mig vita af rabbabaranum en þetta er auðvitað þvílík vitleysa auðvitað geri ég sultu sjálf :o) en akkúrat sama dag og ég skrifaði þessa sultubeiðni bauð nágrannakona mín mér rabbabara og síðan eru börnin alltaf að tína rifsber þannig að ég þarf nú aldeilis að fara að vera myndarleg í eldhúsinu.
Særún er líka í handboltaskóla þessa vikuna (sama og Eva) og Ari aftur byrjaður á fótboltaæfingum og alltaf sama yndislega blíðan og allir hraustir, ekki hægt að biðju um það betra.
bestu kveðjur
Hanna frænka

Jóhanna Marína Baldursdóttir

12.8.2008 kl. 22:26

Eftir langt og gott frí fer að styttast í

að ég þurfi að mæta í vinnu. Eins og Hanna og fleir þarf ég að nota lykilorð að aðgangi að tölvukerfi pósti og INNu ,sem er tölfuforrit um nemendaskrá framhaldsskólanna, ég er nú farin að hafa vit á að skrifa þau hjá mér áður en ég fer í sumarfrí gleymi öllu svona á nokkrum dögum. Ég þakka öllum innileg fyrir afmælisóskir til Sævars. Við héldum upp á afmælið í sumarbústað Í Keldudal í Skagafirði. Sævar og frændur hans Daði og Freyr voru á fótboltamóti á Sauðárkróki um liðna helgi og framlengdum við dvölina og eyddum afmælisdeginum þar m.a. fórum við í Glaumbæ og skoðuðum byggðasafnið og drukku afmæliskaffi að þjóðlegum sið, heitt súkkulaði og kökur í Áskaffi í Glaumbæ.
Sævar og Daði fóru svo í kvöld í langþráða heimsókn í Bjarnarstaði til Friðriku en þeir ráðgera á hverju ári að vera hjá henni vinnumenn en verður minna úr vegna anna í fótboltanum hjá þeim. Bestu kveðju Malla

Marína Sig.

12.8.2008 kl. 9:55

Ágúst

Góðan dag!
Ég er eins og margir aðrir farin að huga að vinnunni og búin að vera þar svona með annan fótinn í þrjá daga þó ég eigi ekki að mæta formlega til vinnu fyrr en á föstudaginn 15. ágúst. En það standa yfir miklar framkvæmdir við Ölduselsskóla þessi síðustu tvö ár og er ekki enn lokið og mikil vinna framundan svo kennsla geti hafist á tilsettum tíma.
En sumarið hefur verið sólríkt og gott og höfum við verið dugleg að ferðast innanlands. Við erum núna búin að vera einar 26 nætur í fellihýsinu okkar og geri aðrir betur :-). Frá því ég skrifaði síðast höfum við farið norður í Miðfjörð og á Arnarvatnsheiði að norðan en það höfðum við ekki áður farið og var það virkilega gaman og þar finnst manni að maður komi á ósnortið land þó auðvitað sé þar töluverð umferð veiðimanna á sumrin. Efti það fórum við í Lundarbrekku og til Akureyrar og varð þetta ferðalag 9 dagar í heildina. Ég vildi bara gjarnan að eldsneytisverðið væri lægra.
Eva Margrét skellti sér á handboltanámskeið þessa vikuna og það er mikið að gera hjá Eiríki þessa daga líka í fótboltanum en hann er á fingum tvisvar á dag og svo eru tveir leikir í þessari viku líka í Íslandsmótinu. Þessar tvær vikur sem liðnar eru af ágúst hef ég ekki haft við að drepa geitunga sem koma inn til okkar, ekki sást einn einasti í vor en nú eru þeir sko komnir á stjá. Ég vona svo að þið njótið vel seinni hluta ágústmánaðar og veðrið verði gott.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

11.8.2008 kl. 16:49

Allt tekur enda

mætt í vinnu aftur eftir sumarfrí.Hanna frænka það er hægt að fá ekta rauðann vínrabarbara í Blómavali uss þú átt auðvitað að sjóða sultuna sjálf hún er alltaf best hjá manni sjálfum, finnst manni. Annars allt gott að frétta sama blíðan hér þó það sé ekki mikil sól en loggn og hlýtt Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsd,

11.8.2008 kl. 11:37

Hversdagslífið aftur

Góðan dag gott fólk, já nú er maður mættur aftur til vinnu og þarf að fara að hressa upp á minnið hvað ýmislegt varðar td. allskonar lykilorð og leyniorð, þvílíkt og annað eins hvað maður getur gleymt og enn svona ungur :o)
Talandi um rabbabarasultu Dísa, þá var ég búin að ætla mér að taka nokkra leggi þegar ég kom í Lundarbrekku og búa mér til aðeins sultu, en gleymdi því auðvitað í allri gleðinni, þannig að ég gæti kanski samið við þig um að fá kanski eins og eina krukku af rabbabarasultu við tækifæri? Ég man alltaf þegar pabbi var í heimsókn hjá Guðrúnu og Kidda þegar þau bjuggu á Vífilstöðum þá var Guðrún af einhverjum ástæðum með keypta sultu og pabbi var að sjálfsögðu alveg stórhneikslaður :o) svo hann var nú ekki lengi að segja frá þessu og upp frá því held ég að Guðrún frænka mín hafi alltaf átt nóg af rabbabarasultu úr sveitinni (ég segi nú bara svona)
Nóg raus frá mér að sinni
Bestu kveðjur til allra
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

11.8.2008 kl. 9:46

Kominn tími til að rjúfa þagnarmúrinn

Gott fólk.Nú fer að styttast í sumarfríum hjá fólki og þá fara nú væntanlega einhverjir að tjá sig, en enginn hefur hér sagt múkk síðan 6. ágúst að þú Hanna mín gerðir góð skil. Á sunnudaginn um verslunarmannahelgi var "þjóðlegt " kaffihlaðborð í Kiðagili og losuðu gestir 200 og var það mjög ánægjulegt. Starfslið kæddi sig upp í upphluti, peysuföt og karlar í íslenska hátíðabúninginn og og á borðum vað úrval af gamaldags meðlæti, lummur, pönnukökur ,kleinur , flatbrauð og kökur eftir gömlum uppskriftum.Haukur Harðarson lék ýmist á harmóniku eða píanó. Við fengum gesti sem voru einn sólarhring, Einar og Ásdísi frá Syðra Skörðugili, sem við kynntumst í bændaferð´til Rúmeníu fyrir 8 árum og höfum alltaf mikla skemmtun í þeirra félagsskap. Fórum vel heppnaða ferð í Mývatnssveit, upp yfir heiði og komum í Stöng og Baldursheim , þökkum einstakar móttökur á báðum stöðum. Búin að sjóða ársforða og vel það af rabbarbarasultu, Geiri byrjaður að tína sér ber en ennþá eru þau dálítið græn og gott að geyma þau í eldhúsglugganum svo þau "bláni" betur.Við fórum í gærkvöldi í guðsþjónustu í Þorgeirskirkju sm séra Gylfi boðaði til fyrir gömlu sóknirnar, Lundarbrekku, Ljósavatns og Háls. Til sýnis í kirkjunni eru höklar ú kirkjum prófastsdæmisins, bæði gamlir en líka nýrri, m.a, hökull úr Húsavíkurkirkju eftir Sigrúnu Jónsdóttur, mikill dýrgripur og annar eftir hana, batik hökull ég held úr Snartarstaðakirkju og höklar eftir Unni Ólafsdóttur sem notar íslenska steina í sína Hökla. Einnig mjög gamlir höklar, einn fóðraður með striga.Séra Solveig Lára var með séra Gylfa og styrkti mjög "safnaðarsönginn" hann sá um forspil og undirleik við söng kirkjugesta svo og önnur prestsverk að ógleymdu eftirspili. Á eftir kynnti hann höklana fyrir okkur og síðan var boðið upp á kaffi og kex og spjall í safnaðarheimilinu. Allt of fáir komu og nýttu sér þessa friðsælu og góðu athöfn. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

6.8.2008 kl. 23:31

Fríið að klárast

Jæja gott fólk þá ætla ég nú loksins að láta heyra frá mér og vil ég byrja á að þakka öllum sem voru í hrútagilsgöngunni kærlega fyrir síðast þetta var alveg einstakur dagur í alla staði, allt tókst vel og frábær mæting. Við erum búin að gera margt í okkar sumarfríi byrjuðum á að vera viku í Stóruskógum í sumarbústað ásamt mömmu og þá skoðuðum við marga merka staði í Borgarfirðinum og skruppum líka á Stykkishólm. Eftir Borgarfjarðardvölina skruppum við heim í nokkra daga en fórum svo í Flúðir og heimsóttum Jón Stefán og fjölskyldu en fórum svo norður kjöl daginn sem hitabylgjan stóð sem hæst. Jæja við höfðum líka nóg fyrir stafni á Akureyri í endalausu blíðviðri, og eftir hrútagilslummudag á Lundarbrekku heimsóttum við Hótel Kiðagil og skoðuðum útilegumannasýningu og myndasýningu Friðriku og versluðum eina mynd sem heitir fjölskyldan og akkúrat 4 persónur :o) frábærar sýningar og svo endaði Palli á því að taka mynd af mér með útilegumanninum niðri á vegi.
Í kvöld komum við svo heim etir frekar langt ferðalag frá Akureyri en við tókum smá útúrkróka sem við höfum oft ætlað að gera, og því ekki loksins að gera það þegar maður er í sumarfríi.
Nú getur maður haft það gott heima í nokkra daga áður en vinnan hefst aftur á mánudaginn.
Takk kærlega allir fyrir síðast og móttökurnar í fríinu okkar hittumst hress síðar, hafið það sem allra best
kv. Hanna Marína

jhannab@yahoo.com

5.8.2008 kl. 18:52

Jæja það stóð ekki á þeium frænkum mínum að svara kalli mínu

Elsku Guðrún og Malla ástarþakkir fyrir snör svör ykkar Vonandi get ég launað ykkur greiðann síðar. Annars allt gott að frétta litla fjölskylan sem er úti á Spáni væntanleg heim á fimmtudag og þá verður sú stutta 8 ára ofboðslega líður tíminn fljótt. Kær kveðja Guðrún

Guðrún Jónsdóttir

4.8.2008 kl. 17:43

En yndislegt að allt tókst vel

en hvernig er það voru þær elsku frænka og Gunna ekki vanar að fara árlega í göngu, Fyrst þetta tókst svona vel legg ég til að þetta verði árlegt halda við gamla siðnum En Nú beyni ég spjótum mínum til þeirra systra nöfnu minnar og Möllu Svoleiðis er að ég þarf að halda súpukvöld á föstudaginn og þar sem vinkona mín sem hefur séð fyrir uppskriftum er úti á landi bið ég ykkur sem guð mér til hjálpar og bið ykkur um góða og kraftmikla súpu uppskrift ég veit að þið lumið á ýmsu elsku frænkur mínar Ef þið vilduð vera svo góðar við aldna frænku ykka r bið ég ykkur að senda mér þær á netfangið mitt hér að neðan bestu kveðjur Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

gudrun-jonsdottir@hotmail.com

4.8.2008 kl. 16:46

framhald

smurðu brauði, kexi, ostum, ávöxtum og salötum að ógleymdum lummunum senú var hafist handa við að steikja.Gasgrillið mitt sem er hér á tröppunum er búið aukahellu og reyndist kjöraðstaða við steikinguna.
Það kom í ljós á eftir að tvær Marínur höfðu skiptst á að baka allar lummurnar, þær Malla og Hanna og þeim fannst það viðeigandi.Á eftir skiptu börnin sér, þau yngri fóru í "drulluköku bú" Þuru, þau eldri í könnunarleiðangur suður fyrir læk. Jónas sótti harmónikuna í lokin og sungið var á Hólnum, ekki leiðinlegt.Ari litli vissi ekki áður hvað voru lummur og hvað Landrover, veit það núna. Við mæðgur höfðum á tilfinningunni að amma Marína og allt hitt Lundarbrekkufólkið sem farið er, hefði fylgst með okkur í dag og séð til þess að að dagurinn gekk svo ljúflega fram. Þakkir og kveðjur nær og fjær. Dísa og Geiri.

Hjördís Kristjánsd.

4.8.2008 kl. 13:45

Orð í belg

Fyrst um Hrútagilsgöngu. " Við hafsbrún hugsjóna" var einkennis lýsing þeirra systkina, Jónasar heitins Baldurssonar og Marínu Baldursdóttur þegar framkvæmd lengi fyrirhuguð tókst eins vel og mögulega hafði verið hægt að hugsa sér og jafnvel fram yfir það. Svo mátti segja um laugardaginn 2. ágúst hér á Lundarbrekku.Þoka var á Akureyri um morguninn en strax og fór að halla austur af Víkurskarði var komið í sólskinið og það sólskin með um 20°hita var hér allan daginn.
Malla , Jói og Sævar mættu kl 10 um morguninn. Guðrún, Eva Margrét og Eiríkur um kl 11.Um og upp ú kl 12 á hádegi fjölgaði mjög fólki og hefði einhverntíma verið sagt að nú væri orðið messufært.. Í þessum skrifuðu orðum rennur upp fyrir mér að það eina sem á vantaði var að fáni væri dreginn að húni eins og yfirleitt var gert þegar fólk hafði safnast hér saman og börn voru hér að leik á Hólnum.
Þeggar allir voru komnir tóku þau sér stöðu á pallinum við gamla hús, Malla og Siggi Hreinn og Malla ávarpaði fólkið og kynnti hvað gert yrði. Byrjað var á að ganga í kirkjugarðinn,nýsleginn og rakaðan, og verð ég að segja að Geiri var stoltur af því að hafa þó einu sinni enn getað slegið hann svo haltur sem hann er. En Ríkarður aðstoðaði hann við að raka og keyra heyið burt.Sævar og eflaust fleiri af litlu guttunum eru miklir Landrover áhugamenn . Sævar hafði komið því til Jónasar Sig. hvort hann færi ekki á Landrovernum sínum gamla langa suður á Bakka þangað sem lagt var af stað í gönguna.
Og Jónas kom með Landroverinn og Sævar fékk að sitja í framsætinu og svo fór Landroverinn í broddi fylkingar bíla suður að hliðinu sunnan við túnin, þar sem leiðin lá upp í Hrútagil. Undirrituð sat heima í skjóli aldurs og því verða væntanlegar myndir að segja framhald ferðar.Ekki gengu allir aðrir í Hrútagil, Geiri var heima og Atli og Stína fóru áleiðis en gengu ekki á brattann. Óli bóndi var að keyra heim rúllur og mætti í kaffið. Jón Þór svaf vært úti í bíl og Sandra vaktaði hann og kom með hann inn mjög kátan og hressan þegar hann vaknaði. Allir komu aftur sólbakaðir og glaðir en bæði Guðrún og Jói höfðu fengið geitungabit á göngunni. Sigrún sótti heim til sín "Svanhildarkrem", soðið af Svanhildi Hermannsdóttur fyrrum skólastjóra okkar en krem þetta hefur lengi verið til sölu í Goðafossmarkaði og talið gefast vel við moskitoflugnabiti. Áhrifin létu ekki á sér standa, sviði og roði hvarf úr stungunum. Ótrúlegt en satt.Svo var eldhúsbekkurinn minn hlaðinn drykkjum og ílátum ,eldhúsborðið smurðu brau

Hjördís Kristjánsdóttir

3.8.2008 kl. 23:45

Var að hlusta....

á viðtalið við Möllu á netinu því ég missti af því og set hér inn slóðina fyrir þá sem hafa áhuga á að hlusta.


http://dagskra.ruv.is/streaming/clip/?file=4410599

Guðrún Sigurgeirsdóttir

3.8.2008 kl. 23:06

Hrútagil 2008

Kæra frændfólk!
Mig langar að þakka ykkur fyrir frábæran dag í gær, það klikkaði ekkert, veðrið var eins og best var á kosið, Bárðardalurinn skartaði sínu fegursta og fjallasýnin hefði ekki getað verið betri, sáum meira að segja suður á Vatnajökul. Heima á Lundarbrekku voru svo bakaðar heimsins bestu lummur (takk Malla fyrir þær) ekki gleyma að skrá hjá þér uppskriftina eða allavega magnið :-). Einnig var troðið hlaðborð af kræsingum frá okkur öllum. Svo var lagið tekið á Hólnum við harmonikkuundirleik Jónasar Sig. Alveg yndislegur dagur sem ég hefði alls ekki viljað missa af. Ég þakka ykkur öllum innilega fyrir mig og þið sem ekki komust þá koma fljótlega myndir inn.
Takk takk enn og aftur!!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

2.8.2008 kl. 8:13

Kæru ættingjar sem mætið í

Hrútagilsgöngu og lummur í dag ég sendi ykkur innilegar kveðjur með ósk um yndislegan dag. Veðurguðirnir ætla að verða hliðhollir ykkur Hugurinn verður hja ykkur í dag. Sendi lummu bökurum kærar kveðjur og eina karlbakaranum spes kveðjur Siggi stattu þig strákur og vona að allt gangi stór slysalaust enginn brenni sig hvorki af sól eða lummufeiti, Sem sagt hugljúfar kveðjur til ykka allra Guðrún besta frænka

Guðrún besta frænka

31.7.2008 kl. 8:14

Hitabylgja

hefur gengið yfir landið síðustu daga og mörg met féllu í gær.
Ég vaktaði ekki hitamælinn svo vel í gær að ég geti fullyrt um mesta hita, veit að hann stóð lengi í 26° en held að hitinn hafi jafnvel um stund skotist yfir 27°.
Þetta er of heitt fyrir mig og gjarnan mætti nú fara að rigna í þessum landshluta.Fyrri slætti er yfirleitt lokið og ég fullyrði að svona sólríkan júlí hefi ég ekki lifað síðan 1939, emn þá var hitinn ekki svona mikill. Malla mín ,þakka þér fyrir þinn hlut í Dr. Ruv, mér líkaði þetta spjall ykkar Brynhildar vel og fannst það eiga fullt erindi við samtímann. Annað mál hvað margir hafa hlustað og farið að hugsa sinn gang. Nú er eftir að sjá hverjir mæta í Hrútagilsgöngu . Sjáumst sem flest. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

28.7.2008 kl. 14:13

Dr. Rúv á morgun kl. 15.30

Sælt verið fólkið, vonandi eru allir göngugarpar komnir í stuð því nú er Hrútagilsganga á n.k. laugardag. ég er búin að ganga formlega prufugöngu og var um 20 mín. að ganga frá veginum sunnan við túnið. Vona svo að veðrið leiki við okkur. Síðan langar mig að auglýsa mig aðeins en ég fór í smá útvarpsviðtal í morgun þar sem umræðuefnið er innkaup og nýting matvæla . Þessi þáttur er á dagskrá á rás 1 kl. 15. 30 á morgun og heitir Dr. Rúv. Sjáumst hress á laugardag. Kveðja Malla

Marína Sig

26.7.2008 kl. 9:24

Heyannir.

Góðan og blessaðan daginn.
Hér er enn einn sólskinsdagurinn upprunninn, en síðan 19. júlí hefur verið hér einstök blíða, 14-20°hiti og sólskin, stundum hafgola en en samfelldir þurrkar og bændur hamast í heyskap.Í dag stefnir í að hér verði rúllað á Náströnd, langa túninu meðfram fljótinu norðan bæjar, en Baldur heitinn mágur minn gaf því þetta nafn , þegar búið var að sá í flagið og vestan hvassviðri kom og bæði fræ og mold fauk upp í brekku.
En með tímanum varð þetta okkar besta tún að heygæðum.
Þar sem við gömlu hjón erum nú mjög að draga saman seglin báru þeir á þetta saman tengdafeðgar, Óli á Bjarnarstöðum og Geiri sl vor og nú hefur það æxlast þannig að þeir eru í samvinnu við heyvinnuna og það verður allt rúllað og Geiri fær sinn hlut rúllaðan . En fyrr í vikunni voru þau hér til skiptis Malla og Jói og þá var hirt laust inn í hlöðu héðan úr Hólnum og af Undirvelli sem er næstliggjandi neðan Hóls.Það má því segja að okkar heyskap sé lokið í kvöld ef fer sem horfir. Bara eftir að snyrta kringum Kirkjulaut með orfi , hún slegin í gærkvöldi
en það tilheyrir frekar lóðahreinsun en heyskap. Eftir veðurspá ætti að verða svipað veður fram yfir helgi og þá ættu þau á Bjarnarstöðum að geta lokið fyrri slætti. Malla ,Jói og strákarir að einhverju leyti, eru á Arnarstöðum hér í Bárðardal núna um helgina þar sem systkini Jóa og pabbi þeirra eru að koma saman. Guðrún rétt búin að láta vita af sér á Laugabakka í Miðfirði þar sem þau höfðu komið sér fyrir með fellihýsi sitt í fyrrakvöld og höfðu farið þaðan í gær upp á Arnarvatnsheiði. Þetta er nú það helsta. Bestu kveðjur Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

25.7.2008 kl. 20:02

Þvílíkur dýrðardagur

í höfuðborginni í dag Ég var hreynt að deyja úr hita enda þoli ekki mikinn hita Þórdís og fjölsk fóru til Spánar í gær algjör óþarfi þar sem var ekta spánarveður hér í dag, Hvernig er þetta með ykkur gott fólk er ekkert að gerast hjá ykkur enginn skrifað lengi ég elti bara sjálfa mig Annars allt gott að frétta Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

22.7.2008 kl. 10:23

Elsku frændi til hamingju með daginn

þá er bara eitt ár í löggildingu hjá þér Kveðja til Rögnu hafið goðann dag kveðja Litla frænka

Guðrún Jónsdóttir

22.7.2008 kl. 10:18

Kristján Sigurðsson

á afmæli í dag.
Til hamingju með daginn.
Dísa og Geiri

Hjördís Kristjánsdóttir

20.7.2008 kl. 22:11

Allir á ferð og flugi

eins og vera ber um há sumarleifistímanum, af sem áður var þegar þetta var hábjargræðistíminn og unnið var að heyskap allan sólarhringinn eins og bændur þurfa jú enn á meðan við hin ferðumst vítt og breytt.
Mín fjölskylda var í Hrísey um helgina og ótrúlegt en satt sól og blíða laugardag og sunnudag og Eyjafjörður skartaði sínu fegursta. Hrísey var sannköluð Perla Eyjafjarðar með dásamlegum fjallahringnum. Frá mánudegi til föstudags dvöldum við Jói á Tókastöðum á Héraði og ferðuðumst um Fljótsdal, Jökuldal, Kárahnjúkavirkjun skoðuð frá öllum hliðum og svo lá leiðin niður á Reyðarfjörð og Eskifjörð. Fengum öll sýnishorn af íslenskuveðri eins og vera ber. Með okkur í för voru Sævar okkar og svo fengum við félagskap fyrir hann þá frændur okkar Daða og Frey og Anna, Nonni og Katrín heimsóttu okkur og dvöldu frá miðvikudagskvöldi til föstudags, virkilega skemmtilegt. Endalausir ferðamöguleikar út frá Egilsstöðum. Ég ætla í Lundarbrekku á morgun, ef veður leifir kanna ég ef til vill hvort ég ramba á Hrútagilið!! Bestu sumarkveðjur. Malla

Marína Sig.

19.7.2008 kl. 20:38

Var að koma úr skemmtilegum

leiðangri Fórum Búrfellshringinn skoðuðum Búrfellsstöð, Fórum í Þrastaskóg fengum okkur að borða fórum síðan Nesjavalla hringinn heim í sól og þvíkíkri blíðu Gott að sinni Besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

19.7.2008 kl. 14:06

Þessi villa er leiðrétt

sem var að hrjá síðuna í gær.
Nú getið þið tjáð ykkur aftur gott fólk. Kv. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

19.7.2008 kl. 13:57

Er að gá hvort ég kemst inn

Dísa

17.7.2008 kl. 21:13

Hundadagar

byrjuðu 13. júlí og enda ekki fyrri en 23. ágúst.. Það var gömul trú að veðurfar væri breytingalítið alla hundadagana og sé eitthvað að marka þá trú verða ekki góðir þurrkarnir í sumar . Í dag hefur þó hangið þurrt. Annars er þetta nafn tengt Jörundi Hundadagakóngi, þetta er tímabilið sem hann var við völd. Elsku Guðrún og Árni, bestu þakkir fyrir síðast og gott að vita ykkur komin heil heim.
Þröstur, takk fyrir að vekja athygli á myndunum af ykkar ágæta mannamóti, sérstaklega hafði ég gaman af að skoða myndirnar í möppu 3 frá þér.
Held að það hafi nú ekki náð nema ca þriðjungs sem ég þekkti af fólki, enda ekki við öðru að búast.
Geiri er kominn af stað með bensínorfið að byrja að snyrta í kringum okkur, það verður nú líklega tímafrekasti heyskapur hans á þessu sumri, a.m.k. vona ég að heyið hér í Hólnum veltist ekki í margar vikur , en það hefur komið fyrir í verstu óþurrkasumrum. Tíminn líður hratt og mér finnst vera farið að saxast á sumarið. Hafið það öll sem best. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

16.7.2008 kl. 20:47

Jæja komin heim eftir gott sumarfrí

Fórum úr Lundarbrekku í morgun og vorum komin heim á Kleppsveginn kl 16.30 allt gekk vel Elsku Dísa og Geiri ástarþakkir fyrir yndislega 1 og hálfan dag hjá ykkur alltaf yndislegt að koma til ykkar .Alltaf er nú gott að koma heim aftur. Siggi Hreinn þakka fyrir síðast gaman að hitta þig Knúsaðu Agnar frá mér úr því að ég fékk ekki að hitta hann Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

15.7.2008 kl. 14:39

Garðvinna o.fl.

Góðan og blessaðan daginn! Í dag erum við heima við að stússa í garðinu,. slá, þrífa pallinn, grillið, reyta arfa o.fl. o. fl. Komum heim á laugardaginn úr vel heppnaðri ferð á Vestfirði þá syðri. Vorum einstaklega heppin með veður allan tímann og áttum þar góða daga. Fengum mjög bjart og fallegt veður á Látrabjargi, Rauðasandi, Látravík, Breiðuvík og Örlygshöfn. Vatnsfjörðurinn skartaði sínu fegursta og lognið þar í kvöldsólinni er alveg yndislegt. Áttum líka góða daga á Patró og Tálkanfirði en á laugardaginn fór á súlda og þá fórum við beina leið heim.
Eiríkur er í vinnuskólanum og Eva að leika við vinkonurnar, en við mæðgur ætlum að skella okkur í bíó í kvöld á Mama mía.
Hér er komin sól núna eftir tvo rigningardaga.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

15.7.2008 kl. 0:14

Nýjar myndir á www.123.is/stafn1

Sæl verið þið frændur og frænkur...
Vildi bara láta vita af nýjum myndum á Stafnssíðunni frá fjölskyldu-hittingnum um síðustu helgi í Stafni. Þar mættu 80 manns af um það bil (ef okkur Snorra telst rétt til) 110 afkomendum Helga og Jófríðar.
Kær kveðja.

Þröstur Kolbeins

10.7.2008 kl. 21:48

Best að tjá sig "örlítið"

Sæl öll.
Ég fer inn á þessa síðu á hverjum degi en hef ekki verið dugleg að tjá mig undanfarið (ótrúlegt en satt :-) ) Kórerðin til NY var alveg hreint bráðskemmtileg og tónleikarnir gengu mjög vel. Áheyrendur stukku á fætur og hrópuðu og klöppuðu eiginlega áður en síðasti tónninn dó út, svo var haldin alveg hreint hin ágætasta veisla fyrir okkur á eftir. Eftir að heim var komið tók vinnan við og þar hefur ýmislegt gengið á, mikil og erfið veikindi samstarfsfólks og barna þess ofan á öll sumarfríin, ásamt uppsögn eins starfsmanns þannig að það er meira en nóg að gera og það hlýtur að venjast að mæta klukkan 6 á morgnanna :-) þó það sé ekki minn óskatími og það verður nú vonandi ekki til langframa. En veðrið er alla vega alveg dásamlegt á þeim tíma dagsins og þvílíkur munur að ferðast á götunum þegar allir "hálfvitarnir" í umferðinni eru sofandi :-) Í morgun urðu nákvæmlega 3 bílar á vegi mínum á leið minni í vinnuna sem maður á nú ekki að venjast hér í höfuðborginni. Veðrið leikur við okkur hér og ég vonast til að komast í sumarfrí á þeim tíma sem ég hafði ákveðið. Hef síðasta tímann á milli tarna í vinnunni verið að æfa fyrir tónleika sem ég og Jóhanna Ósk, mezzósópran og vinkona mín ætlum að halda ásamt Sólveigu Önnu Jónsdóttur, píanóleikara og Mývetningi með meiru á Listasumri á Akureyri þann 8. ágúst næstkomandi í hádeginu í Ketilhúsinu. Þar ætlum við að ferðast milli nokkurra ópera á 45 mínútum. Ég söng í einu brúðkaupi um síðustu helgi og svo ætlar einn vinnufélagi minn að gifta sig eftir rúma viku, þann 19. og þar ætla ég að góla svolítið og svo detta inn nokkrar jarðarfarir á milli. Þetta eru nú helstu fréttir af mér þennan síðasta tíma. Sonurinn blómstrar þessa dagana í góða veðrinu, vill helst alltaf vera úti og best ef hann getur verið uppi á einhverju. Það heldur manni ungum (vonandi) að vera á harðahlaupum á eftir honum frá því að vinnunni lýkur og fram að svefntíma. Nú bíður hann spennur eftir að komast í sveitina til afa og ömmu þar sem litla lambið er (ég held að Siggi verði að smala ánni hans með lambinu áður en við komum). Hlakka til að sjá ykkur um verslunarmannahelgina.
Bestu kveðjur úr kvöldsólinni í Glaðheimum. Elma

Elma Atladóttir

9.7.2008 kl. 14:31

Já Guðrún"besta frænka".

Mér sýnist þetta ætla að passa vel, ég veit ekki um neina gesti eða annað tilstand í næstu viku, verið þið bara velkomin. Kveðja. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

9.7.2008 kl. 9:50

Dísa mín elskulega

Við förum austur á morgun og reiknum með að vera hjá þér á mánudagskvöld læt vita ef breytist, Átti nú ekki von á öðru en verða velkomin en mér fynnst bara vera búið að vera svo mikill gestagangur hjá þér Tala við þig áður en ég kem Kveðja Guðrún

Guðrún Jónsdóttir

9.7.2008 kl. 9:42

Þokan er þaulsætin

rofar til um miðjan daginn og varla það úti við ströndina en fleiri klukkutímar inn til landsins. Bændur hér í okkar nágrenni hófu slátt í gær, á Halldórsstöðum, Bjarnarstöðum og Rauðafelli. Við fengum óvæntan gest í gærkvöldi, Trausta Pálsson frá Laufskálum í Hjaltadal, sem er skólabróðir Geira frá Hólum, en er nú búinn að missa konu sína Öldu Konráðsdóttur eftir erfið veikindi. Hann gisti hér í nótt og við fórum með hann suður að Svartárkoti í gærkvöldi og þá var loftið svo tært og fjallasýnin eins og best getur orðið. Við mættum svo þokunni hér við heimreiðina í bakaleið.
Geiri er farinn núna til Húsavíkurmeð bensínorf sem ekki er orðið ársgamalt, en var dæmt með ónýtan blöndung(?)Það var keypt í Húsasmiðjunni á Húsavík og annaðhvort verður gert við það eða hann fær nýtt, Guðrún mín Jónsdóttir, auðvitað komið þið eins og venjulega og fáið hina "fullkomnu þjónustu" samanber þegar húsmóðirin var farin að heiman og vísaði á matinn á borðinu. Við erum boðin í tvær afmælisveislur n.k. laugardag, aðra um miðjan dag , hina að kvöldinu, veit ekki ennþá hvernig við höfum það. Þú lætur mig bara vita um ykkar ferðaáætlanir og við sjáum hvað verður. Kveðjur til ykkrar allra sem lesið gestabókina. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

8.7.2008 kl. 10:10

Elsku frændi

Okkar innilegustu hamingju óskir með daginn Sjáumst vonandi fljótlega Kveðja Guðrún og Árni

Guðrún Jónsdóttir

8.7.2008 kl. 9:37

Afmæliskveðjur

sendum við pabba (Geira) og innilegarhamingjuóskir. Malla og fjölskylda.

Marína Sig.

7.7.2008 kl. 12:50

Þakkir.

Bestu þakkir fyrir hlýjar afmæliskveðjur.
Ég eyddi deginum á Ströndum,í góðra vina hópi.
Fórum í öll galdrasöfn og kuklhús enda hopaði þokan undan Ægishjálminum sem einn ferðafélaginn bar á enninu.
Bestu kveðjur.
Ragna G.

Ragnhildur G

6.7.2008 kl. 21:05

Nice days in Barðardalur

Last time I was in Barðardal was in 1965. After three days with perfect hospitality it feels like it was not that long. This shows the value of people maintaining contact, in this case it is mainly my mother Ingegerður and Disa who not so often but regularly write (normal) letters to each others. Myself and my family (described by Disa below) felt us welcome whereever we were and whoever we met in Barðardal. Not to forget the visit in Svartárkot at Elin and her husband (it was very foggy, visibility 20 meters), and when we were in Bjartnastaðir at Oli and Fredrika. And of course at Lundarbrekka on dinner with Geiri and Disa, and the very nice four-night stay at Kiðagil with the professional staff. One thing which impressed on me was the "experienced lady's meeting" at Kiðagil on Wednesday evening. Without knowing exactly what you did, it gave evidence of a strength which you don't find in the city. Didi drove us to interesting places and really tried to improve the wet weather (without success). Disa hasn't wrote about the nice day we spent with Marina and Jói in the Mývatn area, ending with a nice and warm bath close to Krafla. Now it is Sunday evening and on Monday morning we go back to Sweden. But at least some of us will come back, in not so many years.

Clas Fries

6.7.2008 kl. 17:49

Heil og sæl öll sömul.

Jæja þá er öllum framkvæmdum lokið hjá mér og allt komið í sama farveginn aftur, Árni búin að skoða vestfirðina í 5 daga og kom heim í gær Svo er stefnan sett á Austurlandið seinni part næstu viku og ekki gleymi ég norðurlandinu þeas ef Dísa vill og kærir sig nokkuð um fleiri gesti mér sínist á öllu að það sé búið að vera æði gestkvæmt hjá henni í sumar Gott í bili Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

5.7.2008 kl. 11:08

Sumarblíða í dag

Heil og sæl.
Eftir einstaklega leiðinlegt veðurfar í júní skein loks sól í gærmorgun en hellirigndi seinni partinn. Aftur sólskin og 18°hiti núna, hvað sem verður síðdegis.29. júní kom Clas Fries, sonur Ingigerðar með fjölskyldu sína og gisti hér í Kiðagili í 4 nætur. Ég var búin að annast bókun fyrir þau og þau ætluðu sannarlega að skoða Bárðardal og nærliggjandi staði. Þau fóru fyrsta daginn í hvalaskoðun á Húsavík, það var á mörkunun að væri fært og þau fengu sig fullsödd af 1 1/2 -2 klst. siglingu í kulda og hvassviðri , en náðu að sjá 2 hvali. Fóru svo í Grenjaðarstað og voru ánægð með það.Komu svo hér í kvöldmat , Malla og Jói komu og hún eldaði fyrir okkur lambalæri og útbjó skyrtertu með bláberjayfirbreiðslu í eftirrétt. Fimm manns voru í ferðalaginu, Clas sem er skógfræðingur, Elísabet kona hans sem er byggingaverkfræðingur, Stefan 20 ára er allmikið fatlaður og á efitt um gang, Nicklas 17, nemi og Magnús 11 ára. Elsti sonur þeirra Johan var ekki með en hann var hér 5 daga hjá okkur fyrir 4 árum með ömmu sinni ,var þá 18 ára, er nú í námi í líffræði. Svo var spilað af fingrum fram með dagskrá handa þeim, og þrátt fyrir þoku og útsýnisleysi. rigningu og kulda vona ég að þau eigi tiltölulega góðar minningar um þennan hluta Íslandsheimsóknar sinnar.
Geiri er búinn að slá gangbraut út að kirkju með bensínorfi og raka í röst, en honum finnst hann heldur úthaldslítill og mjöðmin plagar hann, þarf að ganga við staf , en stafur kemur ekki að notum við slátt og rakstur með handverkfærum.Sæl að sinni. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

2.7.2008 kl. 6:21

Nú er fjör hér á Kleppsveginum

verið að skipta um alla ofna og lagnir í íbúðinni hjá mér Allt á rúi og stúi húsgögnin öll a miðju gólfi og allt í drasli Mér fynnst eins og ég sé að flytja inn öllu kássað á mitt gólf Vonandi klárast þetta um helgi svo allt komist á sinn stað og þetta verði heimili aftur Annars allt gott að frétta Kveðja Guðrún

Guðrún Jónsdóttir

30.6.2008 kl. 15:30

Erfitt að láta nýja ættingjann tolla á mynd :-)

en það er víst eitthvað bilað hjá 123.is þannig að myndin náði ekki inn. En ég set hana inn um leið og færi gefs. Annars allt gott hjá mér og mínum, engar fréttir og lífið gengur sinn vanagang.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

29.6.2008 kl. 17:01

Hvernig væri að birta mynd

af nýjasta meðlim Lundarbrekkuleggsins á Lundarbrekkusíðunni. Auglýsi hér með eftir henni og hvet fólk sem tök hefur á að skreppa í Kiðagil (gamli Barnaskólinn) og skoða sýningu Friðriku og útilegumenn í Ódáðahrauni. Allt gott hjá mér er búin að heimta Jóa og Sævar heim eftir góða ferð á Shellmót til Vestmannaeyja. Kveðja Malla

Marína Sig.

29.6.2008 kl. 10:10

Góðan dag gott fólk.

Ég er komin heim eftir að hafa verið eina viku á faraldsfæti.
Við Geiri drifum okkur af stað á sunnudaginn fyrir viku og ókum síðdegis austur í Fellabæ að heimsækja okkar kæru vini, Sigríði og Aðalstein. Fórum styttstu leið,yfir Fljótsheiðina um Engidal, Stöng, norðan Mývatns, tókum síðdegiskaffi í "Gamla bænum í Reykjahlíð", komum í kvöldmat í Fellabænum. Gestgjafar okkar höfðu verið vikuna á undan að að taka til, þrífa og smúla með háþrýstidælu fjárhúsin á Vaðbrekku sem voru full af fé fram yfir sauðburð en eru "hreindýrasláturhús" yfir skotveiðivertíðina. Einnig þurfti að gefa laxaseiðum sem eru í eldiskví frammi á dalnum. Svo þeim veitti ekki af að taka sér einhverja hvíld. Ekki veit ég samt hvort það var mikil hvíld í því sem á eftir kom , en alla vega öðruvísi Kl 10 á mánudagsmorgunn var lagt í skoðunarferð , ekið fram Fljótsdal og sem leið liggur inn að Kárahnjúkum. Vitað var að akstur er leyfður yfir stífluna milli kl 12 og 1 í hádeginu og tekið mið af því . Tekin hádegishressing í nýjum veitingaskála , sem þó var tæplega búinn að opna,þarna við stífluna, farið inn með lóninu að austan og líka ekið nokkuð suðvestur vestan ár, þar sem opnast sýn suður og vestur yfir öræfin. Einnig fengum við skoðunarferð um núverandi vinnusvæði.Í bakaleið sáum við hreindýr á tveimur stöðum. Niðri í Fljótsdal fórum við í Végarð , þar er Landsvirkjun með kynningu, boðið upp á kaffi, myndasýningu og skoðunarferð inn í sal stöðvarhússins, ekið með fólk 2 km inn í fjallið, og sýnt inn í vélasali stöðvarinnar.
Þessar ferðir annast ung kona.
Eftir þetta var farið í "Klausturkaffi" á Skriðuklaustri, þar eru hlaðborð alla daga, bæði í hádegi og síðdegi og við höfðum góða lyst á heitu súkkulaði og meðlæti. Endapunktur ferðarinnar var að skoða fornleifauppgröftinn í gömlu klausturrústunum þar sem verið var í óðaönn að grafa. Daginn eftir fórum við í Egilsstaði og upp í Vaðbrekku og þaðan heim um kvöldið.Á miðvikudag fór ég svo til Akureyrar og átti dekurdaga hjá Möllu, en kom heim í gær.
Komum við í Kiðagili þar sem Friðrika og Óli voru að setja upp sýningu á ullarmyndunum hennar. Svo verð ég að bæta því við með leyfi Friðriku að "útilegumaðurinn", sem situr á vörðu við afleggjarann að Kiðagili er frá grunni hennar verk, endurnýtt rúlluplast, gömul föt , hagvirkni og hugmyndaflug.
Mynd af honum er í föstudagsblaði Moggans 27. júní. Hann tilheyrir semsagt Lundarbrekkuleggnum!
Nóg komið að sinni Hafið það öll sem best. Kveðja. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

28.6.2008 kl. 8:40

Jæja Friðrika frænka mín

var að lesa um þig í Mogganum í morgun. Þvílik listakona . Hlakka til að sja myndirnar þínar og það sem þú ert að gera ,Rjúpna myndin sem er á bak við þig í blaðinu er hreint listaverk Til hamingju frænka Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

26.6.2008 kl. 23:03

Afmæliskveðjur og fl.

Ég ætla að óska afmælisbörnum síðustu daga til hamingju með afmælin, hef ekki fylgst með hér daglega síðasta tímann og kominn tími á að ég kvitti fyrir mig hér inni.Þessa dagana erum við hér tvö heima hjónakornin en Anna kemur heim til að sofa flestar nætur en hún er að vinna í Kiðagili. Síðustu helgi var hér vísir að ættarmóti en þá kom móðurfólk Óla hér saman alls um 30 manns. Helgina þar á unda tókum við okkur frí og fórum suður í Borgarfjörð en það voru 30 ár í vor síðan við útskrifuðumst frá Hvanneyri og komum við skólsystkinin saman að því tilefni.Annars er allt hér í sínum vanaskorðum, nema að nú eru við komin í gemsasamband, svo nú er ég að læra að senda sms og ýmislegt þessum gemsa tengt.Fínasta gluggaveður verið síðustu daga en ansi kalt að vera úti, aðeins komið skúrir svo það er sprettutíð.

Friðrika

26.6.2008 kl. 19:34

Ekkert lát á blíðunni hér

ég er satt best a'ð segja farin að þrá rigningu áður en öll sumarblómin mín hreinlega deyja úr þurrki ósköp eru allir hljóðir þessa dagana ekkert að ske a síðunni Kveðja Guðrún.

Guðrún Jónsdóttir

23.6.2008 kl. 18:15

Sól og Steikjandi hiti og andvari

í höfuðborginni í dag Fórum í smá ferð í gær byrjuðum í Árbæjarsafni og skoðuðum það og fórum svo í bíltúr suður í Voga og Vatnsleysuströn Bara góður dagur Kv Guðrún

Guðrún Jónsdóttir

23.6.2008 kl. 15:03

Blíða árfam

Góðan dag kæra frændfólk, já ekki er nú hægt að kvarta undan veðrinu þessa dagana, aldeilis fallegt veður dag eftir dag.
Við skelltum okkur í útilegu um helgina, eins mikið útilegufólk og við erum nú, en við eltum Guðrúnu og fjölskyldu í Fljótshlíðina og tjölduðum á tjaldstæði hjá Kaffi Langbrók og það var bara ljómandi gaman og allir höfðu gott af að bregða sér út fyrir borgina og sletta úr klaufunum, rétt áður en við tókum upp tjaldið og lögðum í hann í gær komu svo þessar líka miklu þrumur að þeir sem yngri eru urðu hálf skelkaðir en því betur upplifðum við nú ekki jarðskjálfta þó svo að við værum á ferðinni á jarðskjálftasvæðinu. Særún sagði nefnilega á fimmtudaginn sl. þegar við vorum að ræða hvort við ættum að skella okkur í útilegu um helgina og hvert þá helst við ættum að fara að henni væri sama, bara ekki þar sem væri ísbjörn :o) og þá sagði ég viltu þá heldur fara á jarðskjálftasvæði? :o)
Þær frænkur Særún og Eva voru svo ekki búnar að fá nóg eftir helgina og gistu í tjaldi fyrir utan húsið okkar í nótt. Særún hringdi svo í mig þegar þær voru búnar að morgna sig og ganga frá og spurði hvort þær mættu þrífa og ég sagði já endilega þið megið ryksuga og henni fannst það ekki nóg af því að þær væru tvær svo þær ætluðu líka að þurka af, þannig að ég bíð spennt eftir að koma heim að sjá hvað allt verður glerfínt.
nóg pistill að sinni
hafið það sem best
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

20.6.2008 kl. 9:14

Til hamingju höfuðborgarsvæði með veðrið

Sæl öll kæra frændfólk. Það fer ekki fram hjá okkur að veðrið er gott í Reykjavík og nágrenni en morgunútvarpið á Rás 2 hefur verið í Elliðarárdalnum með borgarstjóra að veiða lax og njóta sumarblíðu. Hér er norðansvali og grátt í hlíðum Hlíðarfjalls og fegurðin kaldari en þar. Engu að síður er sól í hjarta og bjartur dagur allan sólarhringinn. Ég fór í tilefni 19. júní í menningarreisu í Bárðardal með Fíu vinkonu mína og móður hennar Málmfríði frá Jaðri ,sem sat eitt kjörtímabil á þingi fyrir Kvennalistann. Fyrirheitnalandið var Lundarbrekka og heimsókn til mömmu. Áttum við góðan dag og sérstaklega skemmtilegt að fara um með gesti sem sjá og skoða öðruvísi en heimafólk. Voru þær mæðgur virkilega ánægðar með ferðina og móttökurnar. Mamma bestu þakkir fyrir daginn. Við fórum og skoðuðum nýopnaða sýningu um útilegumenn, sem búið er að koma fyrir í Kiðagili. Sýningin er vel heppnuð og virkilega þess virði að leggja á sig ferðalag og skoða hana, fá sér kaffi eða mat og njóta þess að stoppa og lesa um útilegumenn og heimsækja þá í hellisskúta sinn. Til hamingju Bárðdælingar með þessa sýningu. Málmfríður var 16 sumur ráðskona hjá vegagerðinni og var í skúrunum víða í Bárðardag á áttunda áratugnum. Þær mæðgur skoðuðu staðina og rifjuðu upp minningar frá þeim árum en Fía og Sigga systir hennar voru með henni í þessari útilegu.

Góðar óskir inn í daginn. Malla

Marína Sig

18.6.2008 kl. 23:34

Sumar og sól

Gott kvöld!
Senn líður að sumarsólsstöðum og eins gott að njóta birtunnar alveg í botn. Núna langar mig alls ekki að fara að sofa á kvöldin langar bara að sitja úti í fallegu sólarlaginu. En dagurinn er búinn að vera sólríkur hér og ég hef notað hann vel til að þurrka þvott úti en það er svo gott að geta hengt út í svona veður. Ég byrjaði reyndar daginn í Mosfellsbæ hjá konu sem ég er að taka við af sem gjaldkeri. Svo fór ég og hitti Laufeyju vinkonu mína frá Fornhólum. En þegar þessu var lokið tók við þvottur og þrif hér heima. Eva Margrét er víst flutt tímabundið að heiman en hún gisti hjá Særúnu frænku sinni síðustu nótt og aftur í nótt en kom ekkert heim í dag. Ég heyrði í henni í dag og þá sagði hún mér að þær lægju í sólbaði í bikini og með fallega gulan drykk í glasi :-) og búnar að bera á sig sólvörn. Í fyrramálið er ég svo boðin í "dögurð" eða var það "dragbítur" hjá samkennara mínum en við sem kennum verk og listgreinar ætlum að hittast og spjalla í sólinni (vonandi). Eiríkur er kominn á fullt í vinnuskólanum og líkar bara vel. Læt þetta duga í bili.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

17.6.2008 kl. 20:37

17. júní að kvöldi kominn.

Kæru lesendur. Ég hefi ekki verið dugleg að skrifa undanfarið því ég hefi haft annan félagsskap síðustu viku.
Guðrún Kristófer, Eva Margrét og Eiríkur komu á miðvikudagskvöld síðasta og hafa verið hér þar til í morgun, en voru komin heim síðdegis. Auk þess voru Malla og Jói hér líka með stráka sína á faraldsfæti 12.-15. júní. Við héldum upp á gullbrúðkaup okkar með því að bjóða afkomendum og fjölskyldum þeirra í mat í Kiðagili á fimmtudagskvöld, ásamt Atla og Stínu og svo komu óvænt í borðhaldið leynigestir, aldavinir okkar, Aðalsteinn og Sigríður frá Vaðbrekku og gistu eina nótt.
Laugardaginn síðasta var gerð tiltekt og undirbúningur á skítmoktri úr einu fjárhúsi af því fólki okkar sem þá var hér statt.
Í dag 17. júní var opnuð "Útilegumannasýning " í Kiðagili og við fórum þangað að sjálfsögðu. Kvenfélagskonur hér hafa unnið að þessu verkefni síðan í febrúar mars með Svartárkotsfólki undir heitinu: Svartárkot, menning náttúra. Sjón er sögu ríkari
Sýningin á að standa uppi næstu 3 ár og tækifæri að sjá og koða fyrir þá sem verða á ferð. En útilegumennirnir af holdi og blóði sem sýndu sig þarna í dag eru farnir til fjalla.Ræðuhöldin og skemmtikraftarnir , Kristján Hjartarson og Kristjana Arngrímsdóttir sem sungu útilegu-tengd og útilegumannalög eru líka farin af staðnum. Svo er eftir að vita hvort staðurinn laðar til sín þannig heimsóknir aftur.
Nú eru við aftur tvö í kotinu, búið að fella bjarndýr númer tvö og líklega beðið eftir því þriðja.
Svo það er ekki gúrkutíð í fjölmiðlunum. Sendum bestu kveðjur. Dísa og Geiri.

Hjördís Kristjánsdóttir

16.6.2008 kl. 21:18

Það er ekki hægt að segja að

það sé tíðinda laust á Íslandi núna síðustu daga Annar ísbjörn genginn á land og hrellir fólk og skepnur . Þjóðhátíðardagurinn á morgun og hann er þríheilagur í minni fjölskylu þjóðhátíardagurinn afmæli húsbóndans og brúðkaupsdagurinn okkar 40 ára brúðkaupsdagur í ár Sól og blíða hér núna og allt gott að frétta Kv Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

16.6.2008 kl. 12:49

Sumarblíða

Góðan dag!
Af okkur er allt gott að frétta héldum vel heppnaða afmælisveislu í gær og síðan verður stelpnapartý í kvöld. Ég verð alltaf meir og meir hissa hvað tíminn líður hratt mér finnst ég ekki hafa við að fylgjast með og ótrúlegt að það séu 11 ár síðan Særún fæddist og litli Ari fer í skóla á næsta ári. Ari kemur helst ekki inn þessa dagana heldur er alltaf útá fótboltavelli annað hvort einn eða þá um leið og einhverjir krakkar sjást þá drífur hann sig út, hann er líka á fótboltaæfingum tvisvar í viku og var að kaupa sér takkaskó :o)
Sem dæmi um hvað tíminn flýgur þá finnst mér Jónas og fjölskylda nýfarin til Tenerife en það eru víst komnar tvær vikur á morgun og þá koma þau heim.
Við förum í sumarfrí um miðjan júlí þegar leikskóladrengurinn fer í frí og verðum í fríi til 11. ágúst. Það eina sem er skipulagt er sumarbústaður í Stóruskógum 18-25 júlí og svo förum við eitthvað norður, verðum allavega í Hrútagilsgöngu og lummukaffi :o)
Sólarkveðjur úr Kópavogi
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

14.6.2008 kl. 20:10

Fórum í dag afskaplega

skemmtilegan bíltúr hjónkornin Fórum á Þingvöll Laugarvatn Geysi Gullfoss og Flúðir í þvílíkri bongó blíðu sól og hiti og fallegt um að litast Heyskapur á fullu á Suðurlandinu og mikið um túrista Annars allt gott að frétta Kv Guðrún besta frænka Ps eitthvað er fólk latt að tjá sig ´hér undanfarið Kv GJ

Guðrún Jónsdóttir

10.6.2008 kl. 18:28

Góða ferð Elma og gaman

að heyra að þið stefnið Í Lundarbrekku um Verslunarmannahelgi. Hjörvar minn er í NY í dag á heimleið frá Mexíkó þar sem sex skólafélagar hafa dvalið síðustu 10 daga. En við stefnum í Bárðardal á fimmtudag að samgleðjast pabba og mömmu á gullbrúðkaupsafmæli þann 12. júní. Njótið dagann hvar sem þið dveljið. Kveðja Malla

Marína Sig

10.6.2008 kl. 17:11

Kæra Elma frænka Við nágrannar þínir

Kleppsveginum óskun þér góðrar ferðar til NY Vonandi gengur þetta allt vel hjá ykkur og aðsókn verði góð. Njóttu fararinnar Kveðja Guðrún frænka

Guðrún Jónsdóttir

10.6.2008 kl. 11:00

Góða ferð Elma mín og komdu jafnsæl heim og þú ferð.

En gamla Ísland hefur líka ótrúlegt aðdráttarafl þótt okkur vanti ennþá óperuhúsið. Fyrir tæpri viku er bankað hjá mér um kvöldmatarleytið. og úti standa karl og kona, hjón eða feðgin , gat verið hvort sem var.
Þau töluðu bara ensku og höfðu í höndum eitt Íslandskort og ljósritaða síðu úr skrá útflytjenda frá Íslandi árið 1873.
Auðkennt með lit nöfnin Hrappsstaðir og Fremstafell.
Frá þessum bæjum fluttu feðgar, Magnús Kristjánsson og Kristján Magnússon, "my grandfather" sagði maðurinn. Nú átti að finna þessa bæi og kanna fornar slóðir. Þótt ég hefði veri vel talandi á ensku, sem eru langir vegir frá, þá hefði ég með engu móti getað sagt þeim nokkuð um þetta fólk.
Vona að þau hafi fundið Hrappsstaði , en þar er bara sumarhús og ekkert fólk. En mikil þrá eftir að leita upprunans hlýtur að standa á bak við svona ferðalög."Nafni "á Völlum er kominn og þeir frændur eru ekki að leita upprunans, heldur að leka á vatnsleiðslu okkar sem búinn er að vera viðvarandi á annan mánuð. Ég hefi góða von um að það takist að laga þetta í dag. Bestu kveðjur Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

10.6.2008 kl. 9:59

Lundarbrekka

Góðan dag og góða ferð elsku Elma til NY og njóttu vel því sem sú stóra borg hefur uppá að bjóða. Mín fjölskylda tekur hins vegar sefnuna á morgun í Lundarbrekku og ætlar að eyða helginni þar, meira segja held ég að veðurguðirnir ætli að vera okkur nokkuð hliðhollir í þetta sinn. Börnin mín loksins komin í sumarfrí en skólaslit og einkunnaafhending var í gær. Ég fór í sumarfrí á föstudaginn. Eigið góðan dag!

Guðrún Sigurgeirsd.

9.6.2008 kl. 23:35

NEW YORK

Góða kvöldið.
Þá er New York ferðin að bresta á. Verð að kíkja aðeins í vinnuna fyrripartinn á morgun og klára nokkur verkefni en svo er flogið út seinnipartinn á morgun til NY og fyrsta daginn, þ.e. þann 11. verður frí en svo taka við æfingar og tónleikar. Við, Óperukórinn í Reykjavík og fleiri kórar syngjum í Sameinuðu þjóðunum þann 12. júní og svo eru æfingar 13. og 14. og sungið í Carnegie Hall um kvöldið þann 14. Frí þann 15. og svo fljúgum við heim seinnipartinn þann 16. og mætum mátulega heim í skrúðgöngu á þjóðhátíðardaginn. Ég hlakka mikið til og það spillir ekki að ein besta vinkona mín og herbergisfélagi í ferðinni verður fertug á sjálfan tónleikadaginn þannig að við gerum okkur örugglega glaðan dag eftir tónleikana. Við vinkonurnar höfum hugsað okkur að hafa það rosalega huggulegt og versla, fara á Broadway sýningar og erum búnar að fá lista yfir marga skemmtilega og góða veitinga- og skemmtistaði sem við fáum kannski tækifæri til að heimsækja. Svo er planið að fara í útsýnisflug í þyrlu yfir Manhattan. Kannski verður stutt ferðasaga sett hér inn síðar. Af öðrum málum. Við systur erum búnar að skipuleggja það að vera á Ingjaldsstöðum um verslunarmannahelgina og mæta galvaskar í Lundarbrekku og höfum planað að draga hina fjölskyldumeðlimina með okkur, hvernig sem það mun ganga :-) Suma þurfum við reyndar ekki að draga því Berglind dóttir Rögnu hefur um nokkurt skeið verið að biðja um að fá að fara í Lundarbrekku. Hún var nefnilega að læra um landnámsjarðir í skólanum og var heldur hróðug þegar hún þekkti Lundarbrekku og gat sagt öllum í bekknum að afi hennar hefði átt heima þar.
Ég segi bara gleðilegt sumar og hafið það sem allra best.
Sjáumst um verslunarmannahelgina.
Elma

kv. Elma syngjandi glaða

Elma

9.6.2008 kl. 10:38

vantaði

"unga sem þá eldri"

Jóhanna Marína Baldursdóttir

9.6.2008 kl. 10:36

Álfaheiði-Dalvegur-Kópavogskirkja

Góðan dag gott fólk, þá loks læt ég heyra frá mér. Morgunininn hefur farið í skutl hjá mér en Særún mín var að byrja á sköpunarnámskeiði hjá Kópavogsbæ í morgun og það byrjaði kl. 9 þannig að fyrst fór ég í vinnu svo að skutla henni og svo hringdi hún þegar nestistíminn kom og þá var hún með fótaboltadótið hans Ara í staðin fyrir nestisbakpokann þannig að ég brunaði aftur?? hvað nýr sýslumaður segir um þetta :o)
Annars til hamingju með 8. júní taki til sín sem eiga, og svo styttist í 12. júní, mikill merkisdagur.
Við brunuðum í sveitina á laugardag þ.a.s. ekki Bárðardalinn heldur í Smárahlíð rétt hjá Flúðum en þar eiga hús foreldrar bekkjarsystur Særúnar og buðu öllum bekkjarfélögunum og foreldrum til sín og það var alveg meiriháttar, grillað bæði í hádegi og kvöld, farið í fjósið, reist við afvelta rolla. skoðað dautt lamb fyrir utan fjárhúsin en vinsælastur var nýfæddur kettlingur. Ari hljóp upp á fjall í stígvélunum svo eitthvað sé nefnd, foreldrar og börn fóru í hörku körfuboltakeppni og svo var kveiktur varðeldur um kvöldið þannig að þetta var mikið ævintýri fyrir unga sem ,við komum ekki heim fyrr en 24:30 dauðþreytt og ánægð með góðan dag.
Nóg að sinni
Eigið góðan dag
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

8.6.2008 kl. 20:36

Til hamingju með daginn til allra sem halda uppá 8. júní og takk fyrir hamingjuóskir til mín með fermingarafmælið.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

8.6.2008 kl. 19:17

Fermingarafmæli Guðrúnar systur

Elsku Guðrún mín til hamingu með fermingarafmælið eina fermingarafmæli sem ég man á hverju ári vegna þess að hún var ein-stök og gleymdist í fögnuði brúðkaups og svo brúðkaupsafmæla. Sendi líka innilegar hamingjuóskir til Atla og Stínu og Diku og Óla í tilefni dagsins. Það var viðeigandi en þó tilviljun að ég dundaði við tiltekt í kirkjugarðinum á Lundarbrekku og gróðursettir stjúpur á leiðum afa og ömmu á Lundarbrekku í dag. Fannst þetta einkar viðeigandi en mamma lagði auðvitað til stjúpurnar eins og öll hin árin. Átti þarna stund ein með sjálfiri mér í algleymi minninganna, veðrið ljúft, allur gróður eins og um hásumar væri. Hlakka til að minnast ömmu og afa með því að hittast á Lundarbrekku í sumar og fara í Hrútagilsgöngu og baka og borða lummur. Mér sýnist á öllu að þetta muni verða laugardag um verslunarmannahelgi. Sendi Sibbu samt sérstakar kveðjur og er tilbúin að fara æfingargöngu með henni meðan hún dvelur á Fróni í sumar. Veru og fjölskyldu sendi ég góðar ferðaóskir og vona að þið njótið heimsóknar til Danmerkur á næstu dögum. Bestu kveðjur Malla

Marína Sig

8.6.2008 kl. 18:02

Ég segi nú bara til hamingju

með brúðkaupsdagana Atli Stína Dika og Óli og Guðrún mín til hamingju með fermingarafmælið, Aldeilis stór dagur þetta. og svo hvíslaði lítill fugl því að mér að það væri lítill bumbubúi á Egisstöðum til hamingju með það Bryndís og Siggi verður spennandi að fá lítið frændsystkyni Kv Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

8.6.2008 kl. 15:38

Allt er þá þrennt er.

Fyrst stökk skjárinn frá mér áður en nokkurt orð komst á hann. Síðan voru villur í textanum, brúðkaupsdagur Marínu og Sigurðar var 8. júní 1930 og því 78 ára brúðkaupsafmæli þeirra í dag. Vona að þetta sé loks rétt.

Hjördís Kristjánsd.

8.6.2008 kl. 15:28

Fleiri brúðkaupsafmæli

Ég sagði " til hamingju með daginn" við Stínu á Ingjaldsstöðum í morgun og endurtek það hér til Atla líka.
En það má vel segja frá því að þetta var brúðkaupsdagur Marínu og Sigurðar, 8. júní 193 og er því 78 brúðkaupsafmæli þeirra í dag. Áttunda júní 1980 giftu þau sig Óli og Friðrika og Guðrún var fermd, má ekki gleyma því. Síðan eru 28 ár.
En þá voru 50 ár liðin frá því að Sigurður og Marína giftu sig , en hún lifði ekki þann dag.
Annars allt bærilegt að frétta, vel þegin rigning í nótt og dag. Heilsist ykkur vel. Kveðja. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

8.6.2008 kl. 15:17

Hjördís Kristjánsdóttir

8.6.2008 kl. 13:20

Brúðkaupsafmæli

Góðan daginn.
Ég var að hugsa um að nota þennan vettvang til að óska foreldrum mínum, þeim heiðurshjónum á Ingjaldsstöðum til hamingju með 39 ára brúðkaupsafmælið sem er í dag. Innilega til hamingju.
Elma

Elma Atladóttir

7.6.2008 kl. 15:57

Jæja þá erum við Særún Birta

búnar að ganga okkar 2 kílometra í kvennahlaupinu eins og við gerum árlega og hún alsæl með peninginn sinn.Á orðið tveim peningum fleiri en mamma það var sko flott eins og hún segir Rigning í dag en við létu það ekkert á okkur fá fórum bara í regngallann Annars allt gott að frétta Kv Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

6.6.2008 kl. 10:36

Þorgerður Brák

Sælinú!
Ég hreinlega verð að deila með ykkur því sem fyrir augu og eyru bar hjá mér og mínu samstarfsfólki á Landnámssetrinu í Borgarnesi í gær en þar fórum við á einleik um Þorgerði Brák eftir Brynhildi Guðjónsdóttur. Einleikurinn er í fullri lengd og er unninn upp úr Egilssögu en innblásinn af sagnahefð og sögum þeirra fjölmörgu kvenna sem hnepptar voru í ánauð og fluttar til Íslands á Víkingaöld. Þorgerður Brák var fóstra Egils Skalla-Grímssonar og ambátt Skallagríms. Brynhildur hefur unnið að því að skoða stöðu Þorgerðar Brákar sem konu, ambáttar og fóstru og þá skilyrðislausu ást sem hún bar til Egils. Tilfinningatengsl þeirra reynast margfalt sterkari en blóðtengsl. Hún sýnir fádæma hugrekki þegar hún stendur upp í hárinu á húsbónda sínum til varnar Agli en það var Skalla-Grímur sem varð henni að bana. Hann grýtti hana í Brákarsundi og kom hvorugt upp Brák né steinninn. Annars eru heimildir um Þorgerði Brák litlar, hennar er aðeins getið í 11 línum í Egilssögu. Þess vegna byggir Brynhildur verkið almennt á þrælasölu á víkingaöld og örlögum ótal kvenna sem voru teknar nauðugar til ambáttar. Leiksýningin um Brák er gerð fyrir Söguloftið á Landnámssetrinu í Borgarnesi Markmið sýningarinnar er að varðveita minningu mætra kvenna og það finnst mér hafa tekist frábærlega vel. Brynhildur sýnir snilldar leik og við skemmtum okkur hið besta. Það vakti mig sérstaklega til umhugsunar að enn þann dag í dag eru konur hnepptar í þrældóm og mansal blómstrar nú sem fyrr. Er þetta mannlegt eðli, eða hvað?
Takk fyrir mig Brynhildur!!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

4.6.2008 kl. 19:51

Sumarblíða og gróður rokið upp

Þegar ég kom heim frá Kaupmannahöfn hafði gróður heldur betur tekið við sér hér og sannkölluð sumarblíða þessa síðustu daga. Allt gott hér hjá mér og mínum. Ásgeri minn er að fara í síðasta prófið í MA á morgun og byrjar að vinna í uppvaski á veitingastaðnum Strikinu á föstudaginn. Sævar kláraði skólann í gær og er hlaupinn út í sumarið með fótbolta og kemur helst ekki inn fyrr en 10 á kvöldin. Hjörvar er í Mexíkó með skólafélögum úr VMA og hefur hann sent okkur smá póst um að hann hafi það gott og sé búinn að láta klippa sig. Jói er enn að vinna en fer í frí þann11. júní. Semsagt sumarfrí framundan hjá okkur hjónum og hugguleg heit. Kveðja Malla

Marína sig.

4.6.2008 kl. 9:16

Sól og vindur í dag eða stundum sól....

Góðan dag!
Af mér og mínum er allt gott að frétta. Ég er að klára síðustu vinnudagana fyrir sumarfrí og mikið verður fríið vel þegið. Er að fara í vorferð á morgun með vinnunni að sjá leikritið Brák í Borgarnesi og svo stendur til að snæða kvöldverð á hótel Hamri. Alltaf gaman í þessum vorferðum. Eigið ánægjulegan dag.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

3.6.2008 kl. 23:29

Þakkir frá mömmu

Sælir kæru lesendur.
Mamma er farin norður og hringdi í kvöld og bað mig þegar ég færi næst inn á síðuna að þakka öllum kærlega sem sendu henni hlýjar kveðjur á afmælisdaginn. Hér með er því komið til skila.
Góða nótt.
Elma

Elma Atladóttir

2.6.2008 kl. 15:27

Geiri kominn heim

Heil og sæl öll. Við komum heim upp úr kl tvö í dag, Geiri útskrifaðist af sjúkrahúsinu um hádegið og Friðrika sótti hann og ég fór með henni . Hann ber sig vel og kominn út á tún á fjórhjólinu og farinn að skoða lambærnar , sem því betur fóru næstum allar út úr húsum daginn áður en hann veiktist
Hann er klyfjaður lyfjum bæði til skemmri og lengri tíma en stefnir nú vonandi bara til meiri bata áfram. Veðrið leikur við okkur og styttist í fé verði sleppt.
Bestu kveðjur .Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

31.5.2008 kl. 20:59

Æi leitt að heyra að elsku frændi

skuli vera á sjúkrahúsi Elsku frændi láttu þér batna fljótt. Annars allt gott að frétta frá mér og mínum sjómannadagurinn á morgun og ég veit ekkert hvar sjómaðurinn minn er staddur eða hvar hann heldur daginn hátíðlegan E nNonni minn til hamingju með sjómanna daginn , Sól og gott veður í dag Kv Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

31.5.2008 kl. 12:27

fra Koben

Vid systur hofum verid i Kaupmannahofn sidan a tridudag en erum ad koma heim i kvold. Hofum verid a feiknagodu namskeidi, skolaheimsokn og solad okkur i einstakri sumarblidu her. Mjog an;gdar med ferdina en hugsum audvitad heim, pabbi a sjukrahusi og svo tessi feikna jardskjalfti. Eg ver lika stodd i Danaveldi arid 2000 tegar sudurland skalf. Bestu kvedjur Malla

Marina Sig

30.5.2008 kl. 21:38

Fréttir úr Glaðheimum

Sæl öll
Ég er rétt að byrja að ná mér eftir að hafa verið stödd í vinnunni minni uppi á 7. hæð þegar jarðskjálftinn reið yfir í gær. Það er nú ekki í frásögur færandi en ég var rétt komin inn á klósett þegar ósköpin dundu yfir og þetta er eitt það óþægilegasta sem ég hef upplifað lengi, þannig að ég get ímyndað mér hvernig fólki líður sem býr fyrir austan fjall. Annars er það að frétta að undirbúningur fyrir tónleika Óperukórsins í Reykjavík og fleiri kóra í Carnegie Hall í New York stendur sem hæst og það verða amk. tvennir upphitunartónleikar í Langholtskirkju á sunnudagskvöldið, uppselt kl. 20:00 skilst mér en enn lausir miðar kl. 22. Miðar í forsölu hjá mér á afslætti. Jafnvel verður boðið upp á miðnæturtónleika ef aðsóknin verður alveg ótrúlega góð. Mamma hefur verið í bænum síðustu daga vegna augnaðgerðar og við systur reynum að sinna henni eins og við getum. Hún er nú að byrja að vera óþolinmóð að komast ekki heim en hún á að mæta í skoðun á mánudaginn og situr því uppi með okkur fram yfir helgi og er náttúrulega hrædd um að pabbi og Siggi bróðir drepist úr hungri áður en hún kemst heim :-)
Annars er bara sumarið komið í Reykjavík og nú er bara að bíða þolinmóður eftir sumarfríinu sem hefst í lok júlí.
Bestu kveðjur. Elma

Elma

30.5.2008 kl. 11:48

Eiríkur frændi

Elsku Eiríkur innilegar hamingju óskir með daginn
Hafðu það sem allra best
bestu kveðjur
Hanna frænka og fjölskylda

Jóhanna Marína Baldursdóttir

30.5.2008 kl. 7:45

Afmæli.Eiríkur Kristófersson á afmæli í dag.

Elsku Eiríkur okkar. Innilegar hamingjuóskir með 14 ára afmælið. Vonum að þið eigið öll þ.e. a. s. þið systkin og pabbi ykkar, góða og skemmtilega sjómannadagshelgi á Patreksfirði. Bestu kveðjur frá ömmu og afa á Lundarbrekku.

Hjördís Kristjánsdóttir.

29.5.2008 kl. 18:18

Hér lék allt á reiðiskjálfi

var í vinnunni og allt í einu koma miklar drunur og síðan skalf allt og nötraði Gamla fólkið skelkað enda íbúðir þeirra allt að 12 hæðum Þvílik upplifun drottinn minn sæll og góður Yndislegt veður sól hiti og logn gertur ekki orðið betra Kv Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

28.5.2008 kl. 18:43

Yndislegt er að heyra að allt gengur vel í sveitinni

og sauðburður líka Þið eigið það nú skilið að veður fari að batna og hlýna Héðan allt gott að frétta Þvílik sæla hjá Særúnu Birtu afi gaf henni nýtt hjól í dag með gítum og öllun græjum og það er bara hjólað út í eitt þessa stundina Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

28.5.2008 kl. 17:18

Sælir kæru síðulesendur.
Einhverjir eru nú að lesa en lítið um kvittanir núna. Hér er hedur en ekki skipt um veðurfar síðan á hvítasunnu. Hægviðri eða breytilegur andvari , sólskin og hiti fer í 16-17°á daginn en svalara á nóttunni og döggfall sl. nótt og nú grænkar óðum. Ásmundur á Halldórsstöðum er hjálparmaður Geira þessa viku og þeir létu út í dag flest lambféð sem eftir var inni svo nú fer að minnka verulega vinnuálag á körlum. Ýmislegt þarf nú samt að gera þótt það sé mikill áfangi þegar fé er komið út og á næstu dögum kemur það mikill gróður að ekki þarf að gefa. Malla og Guðrún eru báðar í "Köben" og koma ekki heim fyrri en á sunnudagsnótt , ekki að vænta gestabókarskrifa frá þeim. Sendum bestu kveðjur úr sveitinni.

Hjördís Kristjánsdóttir

26.5.2008 kl. 12:13

matur og aftur matur

Já ég og mín fjölskylda vorum boðin í aldeilsis fínan dögurð í Skálaheiðinni á laugardag og skruppum svo aðeins heim og lögðum okkur, áður en við tók næsta veisla í Skálaheiðinni en við grilluðum saman og horfðum á evrovision, þetta var mjög gaman, innilegar þakkir fyrir okkur.
Á sunnudaginn kl. 11 var ég (ein) svo boðin í annan dögurð hjá Önnu vinkonu minni í Reynihvamminum, en þar hittumst við nokkrar Hornafjarðarvinkonur í tilefni þess að ein sem býr í Skotlandi var stödd á landinu, þar áttum við góða stund, borðuðum sallat og brauð og drukkum nýstárlegan drykk með myntu úr garði Önnu og við sátum mestallan tímann úti á svölum í sól og blíðu en ekki var nú golan sérlega hlý.

Ég er ekki enn farin að æfa mig í lummubakstri en ég frétti að Guðrún tók próf á Lundarbrekku um daginn.
Nóg um það í bili
Hafið það sem best
kv. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

25.5.2008 kl. 22:16

Takk fyrir viðbrögðin við vangaveltum mínum um "brunchinn"

Hér er fjösldkyldan frekar þreytt eftir mikla veisluhelgi en allir glaðir og ánægðir og við höldum að sumarið sé loksins komið til að vera. Slóum garðinn í dag og tókum til útivið.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

25.5.2008 kl. 14:37

Íslenskan á orð yfir allt!

Sunnudagur og sólskin og hitinn nálgast 17°í forsælunni.
Það er skammt öfganna í milli. Vegarykið þyrlast upp í strók á eftir hverjum bíl sem um veginn fer , fuglasöngur í lofti , en gróðurinn ekkert að flýta sér, er hissa og varfærinn eftir þessi umskipti eins og hann trúi ekki alveg að þetta sé alvöru vor.Segja má að sauðburði sé lokið ein ær eftir sem ekki ber fyrri en í júní, Helmingur lamb
fjár kominn út á tún fer ekki inn aftur , verður sleppt beint út af túninu en er gefið úti meðan það hefur áhuga á að fá sér hey. Malla , Jói og Sævar eru hér,þeir síðan á föstudag, en Malla kom í gær og þau fara í kvöld.Skemmtilegar umræður hafa orðið hér um enska orðið "brunch" . Þakka þeim Möllu og Elmu fyrir fróðleik og skemmtun í því sambandi. Ég var búin að hugleiða árbít og dögurð en vissi ekki að þessi orð væru orðin viðurkennd um þetta fyrirbæri, en hrifnust varð ég nú af orðinu " dragbítur", það er lýsandi og flott, þótt upprunaleg merking orðsins kunni að spilla fyrir því ( þ.e. sá sem alltaf letur til framkvæmda)Nóg komið af bulli í bráðina .
Bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir.

24.5.2008 kl. 21:54

Dögurður

Íslenska orðið yfir "brunch" sem ég hef heyrt er dögurður.
Fletti eftirfarandi upp á netinu:
Dögurður (eða dagverður og jafnvel hábítur) (enska: brunch) er máltíð sem kemur í staðinn fyrir morgunverð og hádegismat. Sumir hafa kallað dögurðinn dragbít í hálfkæringi, þar sem þetta er árbítur (þ.e. morgunmatur) sem dregst á langinn.
Bestu kveðjur. Elma

Elma Atladóttir

24.5.2008 kl. 7:48

Malla mér sýnist á öllu að það

vilji allir koma um verslunarmanna helgina en á kemst ég ekki svo ég sit hjá ´í þetta sinn ef það verður ni'ðurstaðan. Annars allt gott að frétta Óska þei frænkum mínum góðrar ferðar til Kóngsins köben Kv Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

23.5.2008 kl. 22:16

Brekfast og lunch samsett br-unch

Sæl og blessuð . Ég hef verið haldin hálfgerðri ritstíflu undanfarið en hrökk í gang þegar ég sá að þið voruð að ræða orðið brunch. Erfitt að setja saman orð úr morgunverður og hádegisverður en ef til vill má segja að miðmorgunverður sé réttnefni. Hinn eiginlegi Brunch upp á bresku á að vera samsettur úr brauði og áleggi og ýmsum heitum og köldum hádegisverðarréttum, gjarnan eggjaréttir ,bökur, ostar, ávextir ofl. ofl. En nóg um það. Hefði gjarnan viljað geta skroppið og tekið þátt í brunch hjá Evu og Eiríki. Það er afar skemmtilegt að sjá að fleiri eru farnir að kvitta í gestabókina okkar og mér fannst skemmtilegt orð sem kom fram hjá mömmu að Ríkarður hefði komið á minningadegi. Ég á fleiri minningardaga í maí og á meðal þeirra eru dagurinn þegar amma Marína dó og þegar þau frændsystkin voru jörðuð. Það er gott að eiga minningar og mála þær í fallegum litum með því að rifja þær upp og gleðjast yfir því sem var og því sem maður átti.
Svo er svo mikilvægt að gleðjast yfir því sem er eins og fallega hlýja veðrinu sem hér er núna. Á morgun er brautskráning í VMA afar hátíðleg athöfn sem gaman er að vera viðstaddur. Skólameistarar framhaldsskólanna hér á Akureyri leggja mikla áherslu á að héðan brautskrást nemendur en eru ekki útskrifaðir. Núna eru að brautskrást þrír matartæknar af þeim 12 sem ég var að kenna í lotunáminu um helgar í vetur. Ég er afar stolt af þessum konum og hlakka til að samgleðjast þeim á morgun. Seinnipart dags ætla ég svo í sveitina en þeir Jói og Sævar fóru austur í dag. Við systur ég og Guðrún bregðum svo undir okkur betrifætinum á þriðjudagsmorgun og förum með fríðu föruneyti hússtjórnar- og heimilisfræðikennara á námskeið til Kaupmannahafnar að læra að elda eitthvað hollt og gott. Bestu kevðjur til ykkar allra Malla
Ps. við verðu eiginlega að fara að ákveða minningardaginn um ömmu Marínu þ.e. hrútagilsganga og lummubakstu.

Marína Sig.

23.5.2008 kl. 21:24

Mér var eitt sinn boðið

til frænku minnar í bruns það var léttur hádegismatur brauð álegg te og kaffi <þetta kallaði hún bruns enda mars sigld eins og það er kallað og sagðist oft hafa farið í bruns svona léttan hádegiverð sem gat staðið fram á daginn ef því var að skipta bara svona smá innlegg kv Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

23.5.2008 kl. 20:22

Já Rúna mín, bara smá tillaga með"brunchinn". Var nefnilega að ræða þetta við einhvern nýlega. Gamla orðið "skattur" finnst mér mjög nærri þessu.
Talað var um að fá sér morgunskatt, litlaskatt og jafnvel jólaskatt þegar verið var að gera tilraun á fyrsta hangikjöti
eftir reykingu haustsins. Hér mætti hafa forlið eins og árdegisskatt, afmælisskatt, en allt á þetta við um máltíð sem er ekki alveg hefðbundin, en til hátíðabrigða. Kveðja. Mamma.

Hjördís Kr.

23.5.2008 kl. 18:26

Föstudagur

Sæl veri þið!
Ég er búin að halda hér grillveislu fyrir einar 11 - tíu ára dömur en Eva Margrét mín verður 10 ára á þriðjudaginn og vegna þess að ég verð farin að landi brott þá var ákveðið að þjófstarta afmæli og á morgun verður svo annar í afmæli en þau Eiríkur og Eva Margrét bjóða í "brunch" (er ekkert íslenskt orð til yfir þetta?) á morgun í tilefni af afmælunum sínum ef þið eigið leið um Kópavoginn :-). Já og Ísland komið áfram í Evróvision, þau stóðu sig heldur betur vel þau Friðrik Ómar og Regína Ósk í gærkvöldi. Ég horfði á með þremur 10 ára dömum og það var ekki leiðinlegt að heyra þeirra skoðanir og athugasemdir um keppendur og lög.
Eigið góða helgi kæri ættingar.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

21.5.2008 kl. 18:57

Aldeilis gaman að sjá

þá bræður frá Sigurðarstöðum vera komnir í samband við okkur.Nú mætti Ríkarður frændi fara að láta ljós sitt skína hér með okkur. Allt gott að frétta af mínum slóðum veður svona þokka legt mætti vera meiri sól Kvepja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

21.5.2008 kl. 16:36

Ágætu aðstandendur Lundarbrekkupósts!
Samgleðst ykkur og hlakka til að fylgjast með síðunum ykkar.
Megi ykkur vel gagnast til að efla ættarkenndina og stoltið í bestu merkingu þess orðs. Lundarbrekka hefur sérstaka þýðingu fyrir okkur Skúla bróður. Hér er hvílustaður foreldra okkar og forfeðra margra og skylduliðs. Yfir altarinu er brugið upp fjallasýn frá blessuðu Suðurlandinu okkar
Bestu kveðjur.
Sig. Sigurðarson

Sigurður Sigurðarson frá Sigurðarstöðum

20.5.2008 kl. 22:57

Frændsemi og frændrækni

Það er skemmtilegt Skúli Jón að þú skulir hafa uppgötvað síðuna okkar, en satt best að segja eruð þið bræður með frændræknustu mönnum sem ég þekki.Reyndar veit ég mörg dæmi þess að aðstæður eins og ykkar verða til þess að menn leita upprunans með eindregnari hætti en þeir sem alast upp í "ættarsamfélaginu"
En alltaf hlýjar það fólki þegar
ættartengslum er sómi sýndur og hafðu bestu þakkir. Ríkarður kom hér í dag á minningadegi.
Þennan dag fyrir 30 árum var sameiginleg jarðarför frændsystkinanna Sölva og Marínu hér á Lundarbrekku.Ríkarðu fór í fjárhús, sá lömb fæðast og gaf
kvöldgjöfina á garðana fyrir Geira og fann að hann gat það vel. Friðrika á Bjarnarstöðum var á fundi á Húsavík og heimsótti Jónídu, fannst hún bara sátt og ánægð , þegar Friðrika rifjaði upp með henni hvaða dagur væri, var hún eyðilögð á sér að hafa ekki munað það. En á veggjunum hjá henni eru myndir , önnur af kú og hin af hesti sem hún er búin að heimfæra á vissa gripi sem hún þekkti og mundi. Og það er góður félagsskapur.Nú eru góð veður , sólarlítið og helst til of blautt,en grænkar hratt ef sól fær að skína. Líklega fara fyrstu lambærnar út á morgun, en ennþá eru miklar fannir hér og hvar. Sendum bestu kveðjur.

Hjördís Kristjánsdóttir

19.5.2008 kl. 9:37

Frændrækni!

Það var skemmtilegt að sjá þessa síðu, en Ríkarður frændi benti mér á hana. Þar var gaman að fá smá tengingu við Lundarbrekkufrændfólkið sitt og í dalinn!! Annars hafa þræðirnir verið fáir og grannir okkar á milli, enda 65 ár síðan við bræðurnir fluttum frá Sigurðarstöðum suður á land.
Bestu kveðjur.
Skúli Jón Sigurðarson frá Sigurðarstöðum.

Skúli Jón Sigurðarson

18.5.2008 kl. 23:34

Lífið og tilveran

Hef ekki litið hér inn í nokkra daga, hef verið annað að stússa en nú er burðurinn á síðustu metrunum, og fyrstu lambærnar komnar út. Fjölmenni hér um helgina en krakkarnir voru öll heima og Jói og Elva einnig strákar þeirra Óla og Elvu + systursonur Elvu og Ásgeir bróðir Jóa.Óli H og Óli Skag voru búnir að vera síðan á þriðjudag í síðustu viku, Óli minnsti búinn að njóta sín vel í pollum og drullu.Það er líka mikið búið að gera hér í girðingarvinnu skítmokstri og ýmsu fleiru sem vorinu tilheyrir.En nú erum við orðin þrjú aftur en Hjördís er alveg heima þessa dagana hún vill alls ekki missa af sauðburði. Vonandi fer svo að hlýna heldur meira því hér eru ennþá skaflar á túnunum og á girðingum.

Friðrika

18.5.2008 kl. 21:40

Komin heim

Við erum komin aftur í Kópavoginn eftir að hafa verið í sauðburði á Lundarbrekku í rúma viku. Áttum afskaplega ánægjulega daga með mömmu og pabba og líka ánum í fjárhúsunum. Eiríkur og Eva Margrét eiga eftir að muna þessa daga alla sína ævi því það gerðist svo margt skemmtilegt og þau lærðu ýmis ný verk og ekki síst ný orð svo sem: stafgólf, garðastokkur, hespa, moðpoki, hneppi, fang, ábrystir o.fl. Endalaus fróðleikur frá morgni til kvölds og ekki leiddist Evu að fá að gefa lambi úr pela. Ég þarf ekki að hafa samviskubit yfir að hafa fengið frí í skólanum fyrir þau í þessa 4 daga, því það var svo margt sem þau lærðu án þess ég sé á nokkurn hátt að gera lítið úr skólanum. En elsku mamma og pabbi takk fyrir okkur.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

18.5.2008 kl. 17:42

Sælt veri fólkið

Alltaf gaman að kíkja hér inn... sé samt að hitastigið hefur verið heldur hagstæðrara hjá mér undanfarnar vikur. Það er búið að vera mjög gott veður hér í DK. undanfarið. Sé að það er komin inn skoðunarkönnun um lummukaffið.. væri gaman að geta mætt í það... en til þess að það geti orðið að veruleika þyrfti það að vera helgina 12-13 júlí... en þetta veður allt að koma í ljós. Jæja ég læt þetta duga að þessu sinni, kv úr DK

Sibba

18.5.2008 kl. 15:44

Nei Nei Dísa öllum getur orðið á

það var vitlaust skráð í niðjatalið ég sendi Sigga tölvupóst um leið og ég sá þetta og bað um leiðréttingu sem hann gerði með hraði kveðja til frænda og þú fórst alveg rett fram úr í morgun Kveðja besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

18.5.2008 kl. 15:33

Jæja Guðrún mín, þakka þér fyrir,þetta er líka rétt í niðjatalinu, best fyrir mig að skrásetja ekki meira í dag, hefi líklega farið með "öfugan fót framúr" í morgun. Kv. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

18.5.2008 kl. 11:26

Nei Dísa pabbi var fæddur 22 febrúar 1906

Leiðréttist hér með kv Guðrun

Guðrún Jónsdóttir

18.5.2008 kl. 9:49

Leiðrétting

Og svo setti ég inn tóma vitleysu
Bryndís María Pálsdóttir Glan er fædd 22. febrúar 2005.
Jón Lundi var fæddur 22. janúar 1906. Bið afsökunar á afglöpunum . Dísa.

Hjördís Kr.

18.5.2008 kl. 9:43

Enn um afmæli.

Góðan dag. Ég fór að skoða þetta aðeins með afmælin.
Bryndís María Pálsdóttir Glan er komin inn í niðjatal Jónasar og Jakobínu og á afmæli 22. janúar
sem einnig var afmælisdagur Jóns Lunda Baldurssonar. En hún hefur ekki verið sett inn á afmælislegginn ennþá og líka vantar fæðingardag Kristu á báðum stöðum.Þakka þér ábendinguna Sigga mín, en þetta er komið í hendur Sigga Hreins og aðrir hafa ekki lyklavöld á síðunni enn sem komið er. Sendið endilega athugasemdir og ábendingar inn á gestabók, ásamt pistlum og fréttum hvers kyns. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

17.5.2008 kl. 21:30

Afmæli

Skemmtileg síða hjá ykkur. Ég rak augun í að undir Kristjáns legg vantar afmælisdag Bryndísar Mariu Glan Pálsdóttur. Er það ekki 22. febrúar 2005?
Bestu kveðjur

Sigríður Helga

17.5.2008 kl. 19:39

Gott er nú blessað veðrið

þó sólin láti ekki á sér kræla. Var að koma heim úr vinnu vorhátið hjá vinnustaðnum sem þemað var Spánskir dagar tveggja daga hátið með yndislegum gítarleik nemenda úr tónlistarskóla Sigursveins og auðvitað spönsk lög spiluð, Veislukaffi báða dagana og mikið fjör hjá gamla fólkinu. Annars allt gott héðan Kveðja Guðrún.

Guðrún Jónsdóttir

15.5.2008 kl. 22:49

Út í vorið

Sæl öll Ég eins og Guðrún frænka var heima alla Hvítasunnuhelgina en eins og stundum áður búin að taka að mér vinnu við fermingarveislur. Hér hafa komið stakir góðir dagar en alltaf þoka, súld og kuldi á milli. Þannig að gróður fer sér hægt, en fjarska góður ilmur í loftinu þegar ég rölti í vinnuna núna á morgnana. Það er átakið hjólað í vinnuna sem ég er að taka þátt í en geng að vísu þetta vorið. ég hef misst af þessum frænkusamkomum en hitti þó Sigga Kristjáns í apótekinu í vikunni og þökk sé síðunni þá gátum við spjallað saman eins og við hefðum hist í gær og meðal annars rætt væntanlega Hrútagilsgöngu. Mín fjölskylda ætlar svo í Lundarbrekku á laugardag í sauðburð o.fl. Siggi hreinn ég er búin að bóka sumarhús á Tókastöðum á Héraði 14.-18. júlí og er jafnframt ákveðin í að vita hvort þið verðið heima:-) svo hægt verði að sníkja sér kaffi, eða verðið þið flogin í frí? Annars gott í bili. Bestu kveðjur Malla

Marína Sig.

15.5.2008 kl. 12:34

Sælt veri fólkið, já maður er ekki nógu duglegur að kvitta í gestabókina en af mér og mínum er allt gott að frétta, ég skellti mér norður með börnin um hvítasunnuhelgina og norðurferðin gekk mjög vel þrátt fyrir hálku og skafrenning, fór bara varlega.
Við skelltum okkur í sveitina með mömmu á hvítasunnudag og það var aldeilis gaman, þar hittum við Kristjönu frænku og fjölskyldu þannig að það má segja að það hafi verið áframhald á frænkuboði......... allavega nokkuð margar frænkur sem hittust á Lundarbrekku þann daginn og enn og aftur veitingarnar eins og í meðal fermingarveislu :o)
Á annan í hvítasunnu fórum við mamma svo á söngskemmtun í KA heimilinu með Óskari Pétussyni og Erni Árnasyni og það var í einu orði sagt FRÁBÆRT............
Ég keyrði svo suður á þriðjudag í blíðskaparveðri og bongóblíða í Kópavoginum þegar við komum heim og er enn, ég sá mikinn mun á gróðrinum þessa daga sem ég var í burtu.
Hafið það sem allra best og takk fyrir myndina Dísa, Palli ætlar að athuga hvort hann getur frískað hana eitthvað.
Bestur kveðjur til ykkar allra
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

14.5.2008 kl. 23:07

Innlit

Komið þið sæl.
Ég var bara að líta á þessa fínu síðu.Ætti auðvitað að vera duglegri við það en...
Kv.Dísa Árnad.

Þórdís Árnadóttir(Dísa frænka í Rvk)

barnaland.is/barn/18985

14.5.2008 kl. 18:57

Nei ekki alveg Dísa mín

´eg sit hér heima og fór ekki neitt um Hvítasunnuhelgina kvittaði um daginn og dáðist af síðustu myndum sem þú sendir, Bongó blíða hér í dag sól og logn, Annars allt gott frá mér og mínum Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

14.5.2008 kl. 10:46

Eru allir farnir út í vorið?

Sæl verið þið öll.
Það er ekki margt um manninn á síðum gestabókar upp á síðkastið, en hvítasunnan um síðustu helgi og fólk á faraldsfæti og vetrartíð fyrir hvítasunnuhelgina en vorveður allra síðustu daga gæti skýrt að fólk hefði haft öðru að sinna en skriftum. Guðrún og fjölskylda komu á föstudagskvöld og þá var líklega versta "færð" vetrarins alla leið úr Borgarfirði og hingað, ein gljá allur vegurinn og margir lentu í óhöppum , útafkeyrslum og bílar eyðilögðust, einhverjir slösuðust,þótt flestir hafi verið heppnir og komist á leiðarenda.
Guðrún, Eiríkur og Eva Margrét eru hér og verða fram á sunnudag en Kristófer fór á annan í hvítasunnu heim með flugi frá Akureyri. Í dag er sól og sumarblíða og vatnavextir miklir, en í gær var norðaustan svali ,þoka og súld svo það er ekki eindregið vor ennþá. Sauðburður hér er bara nýbyrjaður enda orðið fátt í fjárhúsunum. Hjá þeim á Bjarnarstöðum aftur á móti langt komið og gengur eftir atvikum vel. Núna vantar mest að jörðin geti þornað , þegar snjórinn fer og hægt verði að láta lambfé út. Girðingar eru enn á kafi og ekki hægt að gera við þær, snjóbrýr stórhættulegar á beljandi lækjum, það má helst ekki koma kuldi og krapahríð enn og aftur. Segjum þetta gott núna Kærar kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

9.5.2008 kl. 21:41

En gaman að sjá myndina af ömmu og afa

Ég er með hana í ramma ´´a borði í stofunni hjá mér . Og Dísa mín ástarþakkir fyrir að setja myndina af elsku Jónasi mínum og Ingigerði líka, Hér er held ég komið sumar yndislegt veður í gær og allur gróður tók stórt stökk ég sá mikinn mun á gróðrinum í garðinum en í dag rigning og á svo að vera alla helgina einmitt þegar maður á frí alltaf svoleiðis pirrandi. Kær kveðja til allra Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

8.5.2008 kl. 21:19

Hvítasunnukast

Gott kvöld. Mér datt þetta gamla orð í hug því nú er spáin heldur leiðinleg fyrir tvo næstu daga og komin norðan átt þoka og súld strax í morgun og skítakuldi um 0°núna, verður líklega hvítt í fyrramálið. Feykna leysing í gær og vatnavextir og hér er orðið talsvert autt og mjög blautt. Já það var talað um páskahret, lóuhret, spóahret, hvítasunnukast og fardagaflan (í byrjun júní) það vantaði ekki fjölbreytnina í nöfnin á norðan illviðrum vorsins.Nú er sauðburður alveg að bresta á og best að slá botn í þetta að sinni . Kveðja. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

8.5.2008 kl. 15:01

Vor í dag!

Góðan dag! Hér er allavega vor í dag, sól og hlýtt. Ég var að horfa á nokkrar stelpur hér úti á hlýrabol að leika sér. Annars liggur mín leið í Lundarbrekku á morgun og er stefnt að því að vera þar næstu vikuna í vonandi blíðskapar veðri og sauðburði. Eiríkur var að klára vorprófin í dag, þó einhver próf séu víst eftir seinna í maí. Eva er ekki í prófum fyrr en í lok maí. Ég ætla að fara núna aðeins út í góða veðrið og allavega týna rusl í garðinum og taka eitthvað til.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

evamargret.barnaland.is/

4.5.2008 kl. 19:52

Og meira til söngs

var að koma úr Langholtskirkju frá því að hlusta á Karlakór Reykjavíkur, mikil söngveisla það, Þá held ég að minn menningar kvóti sé búinn þetta árið búið að vera ansi gott, Vonandi fer að hlýna og birta hjá ykkur fyrir norðan Kveðja Guðrún.

Guðrún Jónsdóttir

4.5.2008 kl. 17:22

Mér láðist að geta þess að hér rignir stanslaust í allan dag og af því stafar nú elgurinn. Ég setti aðeins gamlar myndir inn til Sigga í morgun vonandi fáið þið bráðlega að sjá þær. H.H.

Dísa

4.5.2008 kl. 17:17

Betri tíð framundan?

Heil og sæl. Við verðum að vona að versti veðurkaflinn sé að baki þótt aldrei sé neinu að treysta.Í gær var úrkomulaust og birti seinni partinn og hiti fór í rúmlega 6°C , fraus ekki í nótt og fór að grisja á stöku stað í auða jörð, vegir að þorna, en í dag er nær logn 2°hiti og krapelgur um alla jörð og aur og drulla á okkar góðu malarvegum. Sígandi lukka er best segir gamall málsháttur og verði áfram frostlaust kemur þetta til með að kvelja snjóinn niður , en ekki er þetta neitt útivistarveður.Við erum nýkomin heim úr afmælisveislu í Kiðagili.
Mæja frá Arndísarstöðum bauð til veislu milli kl 14-17 í tilefni af 80 ára afmæli sínu sem er 14. maí n.k. Ekki giska ég á en fólksfjölda en Helga leggur úr Stafni fjölmennti, Bárðdælingar núverandi og burtfluttir , tengdafólk ,sóknarfólk úr Ljósavatnssókn og svo vinir og kunningjar, það var glatt yfir fólki og etið drukkið og spjallað og hittist þarna fólk úr ýmsum áttum sem ekki sést daglega.Mæja mín , þakka þetta prýðilega samsæti og lifðu svo heil. Sendum bestu kveðjur Dísa og Geiri.

Hjördís Kristjánsdóttir

3.5.2008 kl. 21:53

Helgar sumarsins og lummukaffi

Sæl og gaman að sjá að kosning hefur farið af stað . Nú þegar þetta er ritað eru sex búnir að láta í ljós skoðun sína og helmingur þeirra sem hafa kosið kjósa 2.-3. ágúst. Ég hef ekki kosið en helgina 9.-11. ágúst verð ég væntanlega á Króksmóti í fótbolta með Sævari mínum og þess vegna gengur sú helgi ekki upp en ég held að ég geti lagað mig að öllum hinum. Þið sem hafið áhuga á að taka þátt endilega kjósið og látið líka í ykkur heyra hér í Gestabókinni. Vonandi verður allt orðið snjólaust þegar við leggjum í hann en ég var að koma úr Lundarbrekku og þar er fannhvít jörð og vetrarlegt eins og sés á skrifum systur minnar í gærmorgun. Ekki björgulegt í sauðburðarbyrjun en gott veður í sólinni í dag og vel volgt í eldhúsinu hjá pabba og mömmu eða allt að 30°C

Marína Sig.

2.5.2008 kl. 17:48

Æ hvað er vont hljóðið

í henni Diku m,inni Vonandi fer allt á besta veg hjá þér frænka mín, Einnig er gott að frænku boðið tókst vel hjá ykkur Guðrún opg hanna. Fyrir 6 árum var haldið frænku boð frá ekru leggnum hér í Reykjavík og mættum við 63. stykki alstaðar af landinu að austan norðan og svo héðan af höfuðborgar svæðinu það var nú meira fjörið Kveðja Guðrún

Guðrún Jónsdóttir

2.5.2008 kl. 14:17

Því er ég sammála

með frænkuboðið aldeilis frábært og veitingarnar og veðrið algjört æði. Frænkurnar, Berglind, Eva og Særún, krúnkuðu sig saman út á róló og fengu gsm númer hvor annarar þannig að tengslin hjá unga fólkinu eru líka að virka, á þeirra hátt :o)
Gaman að hittast og bera saman bækurnar og kryfja þjóðmálin.
Eigið góða helgi
kv. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

2.5.2008 kl. 10:47

Frábært frænkuboð!

Góðan dag!
Frænkuboðið heppnaðist að sjálfsögðu vel. Veitingar eins og í meðal fermingarveilsu og skemmtilegt fólk, en við frænkur fjórar, Elma, Ragna, ég og Hanna Marína hittumst hjá Elmu með börnin okkar að undanskildum Eiríki mínum sem gaf sér ekki tíma sökum prófalesturs :-). En þetta er vonandi komið til að vera. Ekki veitir af að efla tengslin. Ég tók svolítið af myndum sem ég er því miður ekki búin að senda á Sigga Hrein sökum anna en geri það um helgina.
Hér er sól sól sól en hitinn mætti alveg fara hækkandi, en við höfum víst enga ástæðu til að kvarta heyrist mér. Vona að vorið verði farið að láta á sér kræla á norðurlandi að viku liðinni. Góða helgi.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

2.5.2008 kl. 8:45

Í anda föður og Baldurs föðurbr.

Góðan daginn.
Þetta er nú meiri andskotans helvítis veðráttan allt á leið til heljar, aldrei verið meiri snjór á vetrinum og kominn sauðburður,nóttin fór að stórum hluta í doðaveika kú og allt eftir þessu. Svona raus heyrði ég nú oft í æsku en í alvöru þá er nú ástandið svona en ég er nú bara svo kærulaus að mér finnst gaman að lömbin séu farin að fæðast, svo er nú beljan staðin upp alla vega í bili.Svo kemur annar dagur og þá er kanski hægt að sofa eða bara einhverntíman síðar.

Friðrika

1.5.2008 kl. 21:50

1. Maí-baráttukveðjur

Sælt veri fólkið. Bíð spennt eftir fréttum úr fyrsta frænkuboðinu hjá Elmu. Við heyrum það í útvarpinu að það hafi skinið sól á Suðvesturhornið í dag. En hér þurfum við að bíða enn eftir að vori og hláni, gróður hefur ekki verið svona laus við að vera kominn á stað hér á Ak. 1. maí í mörg ár. Vona ég nú að vorið sé á næsta leiti. Kveðjur Malla

Marína sig.

1.5.2008 kl. 2:25

Frænkuboð

Góða kvöldið
Takk kærlega fyrir afmæliskveðjur. Eins og þið sjáið á færslum Guðrúnu og Hönnu Marínu þá er frænkuboð á morgun, þetta er búið að standa til hjá okkur í allan vetur. Boðiðd er í Glaðheimum 14 kl. 15:00 þannig að ef það eru fleiri sem vilja koma þá er það velkomið. Við mætum ég, Ragna, Guðrún og Hanna.
Góða nótt.
Elma

Elma Atladóttir

30.4.2008 kl. 13:41

Gleðilegt sumar?

Kæra Elma, til hamingju með afmælið, eigið þið góðan dag öll. Ég nenni ekki að endurtaka tölvupóstinn sem ég var að senda Möllu , ferðasögu okkar í Laugar í morgun þar sem ég fór í nudd í 20 mínútur, vorum um klukkutíma hvora leið og vorum að þokast yfir Fljótsheiðina í blindbyl á bakaleið svo ekki sá á milli stika. Það var ekki sumarferðalag. Við förum ekki af stað aftur í Breiðumýri í kvöld á Fikka tónleikana þótt búið sé að moka hér dalinn núna. Bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

30.4.2008 kl. 12:17

Gleðilegt sumar

kæru ættingjar, þá er ég komin heim úr vel heppnaðri söng og árshátíðarferð til Berlínar. Við biðum 11 klukkutíma á flugvellinum áður en við komumst heim vegna vélarbilunar í vél Iceland express og þegar við svo loks lentum í Keflavík kl. 7 í gærmorgun að íslenskum tíma þá vorum við búnar að vaka í sólahring :o( altt í lagi með mig en verra með suma sem eru eldri og þá sem voru með kvefpest sem herjaði á hópinn.
Allavega heim komumst við að lokum og allir glaðir.
Eigið góðan dag og Elma til hamingju með daginn og við sjáumst á morgun í frænkiboðiðnu :o)
kv. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

30.4.2008 kl. 9:44

Til hamingju með daginn Elma!!

við sjáumst vonandi á morgun :-). En eigðu góðan dag.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

29.4.2008 kl. 22:56

Jæja nú var ég að koma

heim úr Óperunni frá því að hlusta á Willard Wite þvílík söngveisla sem maðurinn bauð upp á ógleymanlega skemmtilegt. Hér er fallegt veður en skíta kuldi ekta gluggaveður Var hugsað til ykkar frændfólk fyrir norðan vonandi er sauðburður ekki kominn á fullt í þessu tíðarfar hjá ykkur Kveðja Guðrún besta frænka.

Guðrún besta frænka

28.4.2008 kl. 9:24

Sumarið og kalda norðan áttin.

Sæl kæru ættingar. Já sumarið er mætt og hressileg köld norðan áttin sem hreytir einu og einu stöku hríðarkorni. Grátt í morgun í flögum hér á Eyrarlandsholtinu en autt og mun byggilegra á eyrinni minni þ.e. Oddeyrinni. Nú er síðasta kennsluvika annarinnar að byrja og próf hefjast hér í VMA á föstudaginn. Síðustu kennsluvikurnar eru alltaf mjög annasmar þegar verið er að undirbúa prófin og gera upp vetrarstarfið með yfirferð verkefna og öðru námsmati. Nú sé ég fyrir endann á þessu og eftir að verklegum prófum lýkur sem verða 6. maí fara í hönd rólegri tímar hjá mér. Þá er endurskoðun námsefnis og undirbúningur fyrir næstu önn. Allt jafn sjálfsagt og norðan áttin á þessum tíma árs. Annars er ég alveg farin að passa mig á að kvarta ekki undan norðan áttinni hún er sennilega betri en kæfandi hiti og þurrkur. Eigið góða vinnuviku og njótið frídagsins 1. maí. Kveðja Malla

Marína Sig.

27.4.2008 kl. 21:12

Sumarið er komið

Sumarið er komið með sínum vanalega snjó hér á víkinni sem er ekki alveg það sem maður var að panta þar sem svoleiðis dót var allt horfið héðan og allt orðið þurt og fínt...En svona er sumarið....Gleðilegt sumar kæru ættingjar

Víðir Lundi

Gambri4x4.tk

27.4.2008 kl. 18:58

Komið þið sæl og blessuð

Milið er veðrið búið að vera gott í dag ég slappaði bara af í dag var í gær á alveg yndislegun tónleikum í Grafarvogskirkju með Karlakórnum Þresti og Gunnari Guðbjörnssyni ógleymanlegt. Svo er það ný vinnu vika á morgun.Hfið það ætíð sem best Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

27.4.2008 kl. 17:50

Góðan daginn!
Mikið búið að ganga á á mínu heimili þessa dagana við framkvæmdir en allt samkvæmt áætlun. Hér er sól í dag en lofthitinn mætti nú alveg vera meiri. Ég eyddi morgninum frá 8.00-12.00 á handblotamóti á Seltjarnarnesi með Evu Margréti og gekk þeim HK stelpum alveg ljómandi vel þ.e. unnu alla sína fjóra leiki. Tvær vinkonur hennar gistu hér í nótt það var nokkurskonar hópefli :-) fyrir mótið.
Það styttist í að ég fari í Bárðardalinn að taka á móti nokkrum lömbum vonanadi.
Eigið svo góða vinnuviku framundan kæra frændfólk.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

25.4.2008 kl. 17:17

Dísa mín ég bara saknaði þess að ekkert var minnst á frænda

en eitt veit ég að þú ert með allt á hreynu. Varðandi Ingigeri eftir að frændi dó set ég í þinar hendur að meta Langaði bara að sjá hann meðal systkyna sinna í ættarleggnum eins og pabba og Sigga Kveðja Guðrún

Guðrún Jónsd,

25.4.2008 kl. 9:33

Jónas Baldursson f. 1916

´Já Guðrún mín " besta frænka" , mér er vel ljóst að Jónas Baldursson vantar og hefi búist við því að ég yrði að reyna að bæta úr því. En þetta tekur aðeins tíma. Ég er t.d. með viðamikla minningargrein eftir Jónas frá Hriflu, sem mér datt í hug að ætti heima undir Minningargreinum. Einnig erfiljóð eftir Kára Tryggvason. Einnig hefi ég eitthvað af myndum. Ég var að hugsa um að gera eitthvað í þessu, en hvað finnst ykkur ,þarf eitthvað meira. t. d. fylgja Ingigerði og hennar sögu eftir að Jónas dó? Enn er ég í góðu sambandi við hana. Það er heilmikið verk að tölvusetja minningargreinina sem ég nefndi , en ég get það alveg.Segið mér hvað ykkur finnst gott og viðeigandi að gera. Kv. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

24.4.2008 kl. 21:30

Kæru ættingjar

það er einn sem vantar í ættlegginn fyrir utan Lundarbrekku 11 Það er hann Jónas >Baldursson minn ekskulegi frændi Það mætti nú bæta honum við fæðingardag og dánardag, Þótt hann væri barnlaus var hann jú giftur og tilheyrði þessum stofni Því er hér með komið á framfæri Kv Besta frænka

Guðrún besta frænka

24.4.2008 kl. 14:05

Lóan er komin!

Kæru ættingjar, vinir og venslafólk.
Gleðilegt sumar og þakka kærlega samskiptin hér á síðunni í vetur.
Sumarið er nú ekkert að flýta sér en gott veður og smáleysing síðustu daga, komið talsvert af farfuglum, gæsinar og álftirnar fyrst, álftir eru nú reyndar allan veturinn á vissum stöðum hér, en nú fjölgar þeim, svo er komið fullt af skógarþröstum , sumir farnir að huga að hreiðurgerð í stafafurutrjánum hér í garðinum, Geiri búinn að sjá hrossagauk og ég hefi líka frétt af stelk, það er vonandi að þeir eigi ekki eftir að fá á sig hret og falla.Talandi um allan sönginn undanfarið, þá er því við að bæta að Vortónleikar Kirkjukórs Húsavíkur eru að þessu sinni helgaðir" okkar ástsæla lagahöfundi Friðrik Jónssyni frá Halldórsstöðum í Reykjadal" eins og segir í auglýsingu.
"Fikka okkar" eins og söngfólk kirkjukóranna hans og síðan heilu söfnuðirnir báru sér í munn.Á þessum tónleikum eru eingöngu sungin lög eftir Fikka og af nógu að taka. Fyrri tónleikarnir voru í Húsavíkurkirkju í gærkvöldi, þeir síðari n.k. miðvikudagskvöld að Breiðumýri.Hvort við svo komum okkur á staðinn er ekki vitað enn , en ég veit að þar verður gaman. Svo veit ég að tónlistin úr sýningunnu á Djöflaeyjunni mun verða sett á hljómdisk og fari hann í almenna sölu er það fín jólagjafahugmynd fyrir einhverja.Sumarkveðjur . Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

24.4.2008 kl. 13:49

Takk Guðrún frænka

fyrir að bregðast svona skjótt við að koma með ættarskrá. Og nú vantar bara frá Lundarbrekku II.
Gleðilegt sumar!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

23.4.2008 kl. 22:25

Kæru ættingjar og vinir

Gleðilegt sumar og takk fyrir samveruna á þessari yndislegu síðu í vetur.Vonandi fáum við öll gott sumar hvar sem er á landinu. Elma gaman að heyra að kór sóknar kirkjunnar minnar er að gefa út jóla disk,þá veit ég það Komin ein hugmynd af jólagjöf.En elskurnar mínar hafið það sem best Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

23.4.2008 kl. 22:12

Sumardagurinn fyrsti og söngur

Kæru ættingjar sendi ykkur öllum bestu sumaróskir og þakkir fyrir veturinn. Sumardagurinn fyrsti er alltaf hátíðisdagur í huga mínum alveg síðan í barnaskóla þegar árshátið skólans var haldin þann dag. Við Jói giftum okkur líka á sumardaginn fyrsta og höldum alltaf upp á það á einhvern hátt. Á morgun ætlum við á tónleika með Söngfélaginu Sálubót í Glerárkirkju í tilefni dagsins. Bestu sumarkveðjur til ykkar allra og vonandi kemur núna gott vor og ekkert að marka framtíðarveðurspá. Malla

Marína síg.

23.4.2008 kl. 11:10

Kveðja á síðasta degi vetrar!

Ég ætla að byrja á að þakka þér Hanna og þínum kórfélögum í Kvennakórnum Léttsveit Reykjavíkur fyrir skemmtilega tónleika í Bústaðakirkju í gærkvöldi, meira að segja Eva Margrét var hin ánægðasta. Svo vil ég þakka ykkur ættingjar fyrir þessi skrif hér á síðunni í vetur og vona að þau bara aukist. Þetta er Tilvalinn vettvangur til að fylgjast með já og læra að þekkja unga fólkið allt. Verið nú dugleg að senda inn myndir. Eins vantar ættarskrá fyrir Lundarbrekku II legginn og líka Jóns Lunda legginn svo við getum líka fagnað afmælum þeirra. Gleðilegt sumar og takk kærleg fyrir veturinn.
Guðrún Sigurgeirsd.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

23.4.2008 kl. 8:01

Þar sem ég hef nú minkað við mig vinnu

skrifa ég hér á síðuna svona snemma Vinn ekki á miðvikudögum en fer þess í stað í handavinnuna á vinnustaðnum og fæ leiðbeiningar með harðangurs dúkinn sem ég er að sauma. Erum þar nokkrar sem erum að minnka við okkur vinnu Starfsmanna saumaklúbbur segir leiðbeinandinn, bara gaman.Hér er sól þessa stundina og hlýtt. Auðvitað fer að verða nóg að gera í sveitinni sá tími er kominn sem blessuð litlu lömbin fæðast alltaf skemmtilegur tími það, Man þegar hann sonur minn var hjá Geira og Dísu að hann var orðin ansi óþreyjufullur að skólanum lyki og svo var farið flótlega af stað í sveitina til að ná þeim tíma áður en fé fór á fjall . kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

22.4.2008 kl. 23:17

Mör ull og fl.

Gott kvöld.
Það er best að ég skrifi nú einu sinni um það sem ég er að bardúsa en það er nú ekki söngur.Dagurinn byjaði eins og venjulega í fjósinu, síðan fór ég út í Stóruvelli og vann í mörbræðslunni í tæpa þrjá tíma síðan sturta og fór svo til Húsavíkur á einn fund og svo var kvenfélagið með kaffi í elliheimilinu Hvammi, greip aðeins í verk þar næst var að drífa sig heim og kom heldur seint í fjósið en fékk samt að gera þar megnið af mínum föstu verkum.Eftir kvöldmat fór ég svo að kemba ull en ég er að undirbúa kennslu í þæfingu sem verður í skólabúðunum í Kiðagil eftir næstu helgi. Einhvernvegin svona eru flestir dagar hjá mér núna,en það hægist nú um þegar sauðburðurinn byrjar.Gott að sinni og bestu kveðjur.

Friðrika

22.4.2008 kl. 22:34

Enn um söng

Best að halda áfram að skrifa um söng. Síðustu 4 þriðjudagskvöld hef ég verið ásamt félögum mínum í Kór Áskirkju að taka upp jólatónlist á geisladisk sem kemur út fyrir næstu jól. Óneitanlega svolítið sérstök tilfinning að syngja jólalög aftur og aftur í mars og apríl. En alla vega upptökum lauk í kvöld og ættingjar mínir sem fá jólagjafir frá mér vita þá hvað verður í jólapökkunum frá mér um næstu jól. Næst á dagskrá í söngnum er að undirbúa ferð til New York sem Óperukórinn í Reykjavík fer í ásamt fleiri kórum til að syngja Carmina Burana í Carnegie Hall. Tónleikarnir þar eru 14. júní ef einhver lesandi síðunnar verður staddur í NY þann dag. Annars er leikskólinn hans Atla lokaður fram yfir helgi vegna námsferðar starfsfólksins og við ætlum að nota tækifærið og flýja Reykjavík sem er orðið langþráð hjá húsmóðurinni. Reyndar er ferðinni því miður ekki heitið á Norðurlandið að þessu sinni en það verður bætt úr því um hvítasunnu þegar við systur ætlum báðar að bruna norður með börnin og gleðja okkar ástkæra bróður með nærveru okkar í nokkra daga. Sá verður nú glaður :-) að fá okkur báðar í einu ...
Bestu kveðjur. Elma

Elma Atladóttir

22.4.2008 kl. 16:08

Talandi um söng þá ætla ég

að fara þann 26 apríl í Grafarvogskirkju og hlusta á karlakórinn Þresti ú Hafnarfirði og svo þann 29 apríl í óperuna og hlusta á baríton söngvarann Willarð White tónleikar tileinkaðir söngvaranum Paul Robeson ansi menningarleg núna.

Guðrún besta frænka

22.4.2008 kl. 12:08

Já flott myndin af þeim pabba og Kristni

en svo við höldum áfram að tala um sönginn þá ætla ég og Eva Margrét að skella okkur á tónleika í kvöld í Bústaðakirkju með Kvennakórnum Léttsveit sem jú Hanna er að syngja í. Verður örugglega gaman. Ætla líka að hitta Möllu í smástund allavega að skutla henni á flugvöllinn.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

21.4.2008 kl. 16:06

Söngur og aftur söngur...gaman gaman

Sælt veri fólkið
allt of langt síðan ég hef litið hér við og skrifað. Af okkur er allt gott að frétta, brjálað að gera hjá mér í kórstarfinu en það eru tvennir tónleikar framundan (hér á landi) í þessari viku, þ.e. á þriðjudagskvöld og fimmtudagskvöld (nokkrir miðar eftir ef einhver vill kaupa hjá mér) og síðan er söng og árshátíðar ferð til Berlínar á föstudag til mánudags, semsagt ægilegt fjör framundan en síðasta æfingin er í kvöld. Við lentum í því að það var bakkað á bílinn okkar og það kom gat á vatnskassann þannig að sá gamli er á verkstæði og ég keyri um á þvílíkri gæsikerru (bílaleigubíl) að það verða viðbrigði þegar maður fer aftur á sinn (hef nú verið mjög ánægð með hann hingað til :o))
Jæja nóg um það, frábært að sjá gömlu fjölskyldumyndirnar og öll heimsaumuðu dressin og lesa pistla um það sem menn eru að aðhafast. Ég á sko græna kjólinn minn ennþá og þykir afskaplega vænt um hann og man eins og gertst hafi í gær þegar ég var stödd á Akureyri með mömmu og hún var að strauja kjólinn og það kom smá gat (skil ekki enn í dag afhverju hún var að strauja hann miðað við hvernig efnið er í honum)en hún saumaði gatið með tvinna sem var eins og kjóllinn þannig að þetta reddaðist en þetta man ég alltaf vel :o)
læt þetta nægja í bili bestur kveðjur til allra
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

20.4.2008 kl. 19:33

Góður pistill

Smá leiðrétting á fyrirsögn

Marína

20.4.2008 kl. 19:32

Góðu pistill

Sæl kæra frændfólk og mamma takk fyrir þennan góða pistil, mér finnst stundum eins og ég geti lesið dagbókina þína hjarna á síðunni og kann því fjarska vel. Það er dauft yfir fólki hér en samt ekki nærri eins dauft og á spjall síðu á heimasíðu Félags hússtjórnar og heimilisfræðikennara,en þar hef ég skrifast á við sjálfa mig nokkur undanfarin ár án þess að fá aðra til að tjá sig að nokkru marki. Við drifum okkur í gær í Breiðumýri að sjá Djöflaeyjuna og skemmtum okkur vel. Óli og aðrir leikarar að standa sig með prýði. Í dag var ég að klára kennslu matartæknanema sem ég hef verið að kenna aðra hverja helgi síðan um þorrablót. Mjög gott að þetta er búið en sakna þessa hóps fullorðinna nemenda sem ég hef haft í þessu í vetur. Búið að ver mjög gefandi og skemmtilegt en gott að þurfa ekki að fara fleiri helgar í þetta. Hér hefur verið fallegasta veður undanfarna daga og vorið farið að minna á sig. Krókusar og páskalijur farin að skjóta upp kollinum hér sunnan við húsið. Gaman af síðust myndainnsetningu hér man vel þegar þessar myndir voru teknar. Við mæðgur í kjólunum sem mamma saumaði á okkur áður en Friðrika var fermd, ég á minn kjól enn þá en hann passar ekki alveg. Bestu kveðjur og losið ykkur nú við ritstífluna. Kveðja Malla

Marína Sig.

20.4.2008 kl. 14:39

Sumarmál

Sæl verið þið öll.
Já það virðist ekki hafa verið mikil löngun til að tjá sig hér á síðunni undanfarið , en nú er vetur senn á enda og þá fer nú vonandi að lifna yfir mannskapnum.
Svo snauð er engin íslensk sál
að elska ei ljósið bjarta, að finna ei sérhvert sumarmál til sólargleði í hjarta. Þannig kvað Davíð Stefánsson og Björgvin Þ Valdimarsson gerði við þetta eitt af sínum ógleymanlegu lögum. Karlakórinn Hreimur söng og setti á geislaplötu, sem heitir " Dalurinn minn", útgefin 1992.
Til þess fallið að komast í sumarvímu að hlusta á þetta. En við laugardaginn síðastan í vetri stendur í almanaki háskólans: Sumarmál.
Og ég hefi það fyrir satt að þessir dagar, laugardagur til miðvikudags að honum meðtöldum, heiti einu nafni sumarmál.Og telji einhver sig vita betur má hann láta ljós sitt skína.
Svo er það hversdagsönnin í Bárðardal. Þótt við höfum nú aldrei talið okkur trú um að við byggjum í nafla alheimsins, þá er nú ýmislegt á seyði.Sauðburður nálgast, þá þarf að sprauta ærnar gegn ýmsum sjúkdómum sem kynnu að orsaka veikindi og dauða ófæddra lamba þeirra.
Alvöru bændur vigta ærnar,forðagæslumaður nýbúinn að heimsækja býlin, svo þegar snjórinn fer, kemur ýmislegt í ljós sem rusl má kalla og hvarf undir snjóinn í vetur , en nú þarf að taka til.Fundahöld hér og hvar sem kalla á fámennt lið landsbyggðar.Búnaðarfélög, búnaðarsamband, kvenfélög ,Kvenfélagasamband, Messa í Þorgeirskirkju í morgun í upphafi Héraðsfundar prófastdæmisins, Héraðsfundur haldinn í dag í Stórutjarnaskóla og endar með hátíðakvöldverði.Svo er enn verið að sýna "Djöflaeyjuna" og þar leikur Óli á Bjarnarstöðum og sýning í kvöld, en Dika á Héraðsfundinum.
Anna Sæunn kom í gærkvöldi og var að vinna í Kiðagili og er heima í dag og hjálpar Óla í fjósinu í kvöld svo hann komist nú í tæka tíð til að leika.Fleiri kýr þar nýbornar svo ekki má slaka á eftirliti. Þetta er bara lítið sýnishorn
af sveitalífi nútímans. Í gærkvöldi var bíó í Kiðagili. Fyrir því stóðu "Kiðagilshópurinn og Ungmennafélagið Einingin " Sýndar voru stuttmyndir úr dagskrám á þorrablótum félagsins , nokkur undangengin ár, ásamt ýmsu smálegu sem flaut með. Barinn opinn og boðið upp á pitsu og smárétti, fyrir og í sýningarhléi.Aðsókn eftir bestu væntingum .
Við gamla settið drifum okkur á staðinn og höfðum gaman af Sumt af þessu alltaf jafn drepfyndið þótt það eldist.Mér fannst það að minnsta kosti skemmtilegra en Drakúla greifi í Seðlabankanum sem Spaugstofan bauð okkur upp á í gærkvöl

Hjördís Kristjánsdóttir

20.4.2008 kl. 11:25

Sælt veri fólkið.

gott er nú blessað veðrið hér á höfuðborgar svæðinu Hlýtt en sólar laust Frekar fynnst mér hafa verið dauft yfir síðunni síðustu viku en fer vonandi batnandi Kveðja Guðrún

Guðrún Jónsdóttir

19.4.2008 kl. 23:02

Búið að vera gott veður í dag,,,,,,,,

.....vonandi er vorið komið. Logn og 7 stiga hiti hvað getur það betra verið 19. apríl. Erum reyndar búin að vera að rífa veggi og fara með nokkrar feriðir í gjaldskyldan úrgang í Sorpu. Ótrúlegt að þurfa alltaf að borga þegar maður er að reyna að flikka uppá híbýlin. En svona er þetta samt. Erum svo að skella okkur á árshátíð HK og Sálin að sjálfsögðu að spila og ég læt það EKKI franhjá mér fara.
Eigið góðan sunnudag kæru ættingjar.

Guðrún Sigurgeirsd.

17.4.2008 kl. 19:31

Dísa mín ég verð

að leggja mig alla fram til að ýta á Nonna að koma við í sveitinni þegar hann fer framhjá. Ég veit að þaug ætla að vera fyrir austan um verslunarmanna helgina og fara akandi svo hann er ekker of góður að taka á sig smá lykkju ef hann fer norðurleiðina. Annars allt gott að frétta héðan ég held að það sé loksins að koma vor allavega hlýtt og mikill fuglasöngur í trjánum fyrir framann gluggann hjá mér Kv, Besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

16.4.2008 kl. 14:12

Sammála síðustu skrifum

Sæl öll. Er mjög sammála því að leggja inn á reikning fyrir kostnaði og einnig þessu með gamlar minningar, ég átti mín fyrstu spor í matargerð í gamla eldhúsinu hjá ömmu, kraup upp á kassanum, þar sem afi sat gjarnan við að þæfa vettlinga og fleira,og hrærði í jólakökudeiginu, var nú ekki há í loftinu þegar þetta var. Eins finnst mér gaman að sjá myndir af unga fólkinu og börnunm þegar afkomendunum fjölgar þannig má mynda tengsl milli kynslóða. Bestu kveðjur Malla

Marína Sig

15.4.2008 kl. 18:30

Alveg er sammála ykkur Dísa og nafna.

ekkert vesen bara hafa þetta svona kveðja besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

15.4.2008 kl. 10:37

Sammála - gamlar minningar

Ég er alveg sammála þessu mamma.
Og vil svo enn ýtreka hvað er gaman að þessari síðu og gaman að rifja upp margt sem birtist manni í þessum myndum. Um leið og ég sá myndina af ömmu Marínu niðri í gamla eldhúsi mundi ég svo vel einu sinni þegar ég var að hjálpa (mér fannst ég allavega vera að hjálpa) henni að baka pönnukökur kænski voru það lummur? en allavega þá lagði ég lófann á heita helluna eftir baksturinn og brenndi mig. Mér er svo minnistætt hvað ömmu brá mikið og hún lét mi strax kæla lófann svo ekki yrði mikið sár.
Eigið góðan dag!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

15.4.2008 kl. 9:45

Niðurstaða?

Jæja, þá vitum við um kostnaðinn og ég sé að þetta er nú ekki upphæð til að gera stórt veður út af.En var ekki einhver stofnkostnaður , sem ekki er hér talinn ?
Ég rukka engan , en legg til að Siggi Hreinn gefi okkur upp reikningsnúmer og þeir sem vilja geta lagt inn 500 kall hver, núna til að byrja með og verði eitthvað umfram er sanngjart að Siggi fái það sem "vinnulaun" við að starta síðunni og sjá um hana fram að þessu. Vona að það margir bregðist við að endar nái saman þótt upphæðin sé ekki meiri.Þá er ég að tala um tímabilið frá 1. okt 2007 til áramóta 2008-2009.Um næstu áramót má svo stokka upp og sjá hvernig framhaldið verður. Segið hvvað ykkur finnst um þetta. Kv. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

14.4.2008 kl. 21:15

Siggi Hreinn minn

Þótt þetta sé ekki mikill kostnaður á ári þá finnst mér að við sem þessa njóta borgi líka og hana nú,Dísa þú ert svo útsjónar söm þú gerir eitthvað í málinu til að rukka inn tollinn. Kveðja besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

14.4.2008 kl. 21:07

Kostnaður

Já í sambandi við þessa kostnaðarumræðu þá ætla ég að upplýsa kostnað við þessa síðu, en hann er pr. mán ca 250 kr. eða 2990 á ári svo hann er nú ekki mikill.

Siggi Hreinn

www.123.is/sighj

14.4.2008 kl. 18:55

Það er eins gott að

Siggi stormur standi við þessa vorspá sína Alveg er ég búin að fá nóg af þessu veðurfari í vetur og vor. Malla en sá heiður að vera eina Guðrún Frænka með stórum staf,Svo þetta með bestu frænku nafnið Minn elsku frændi Hjörtur kallaði mig þetta alltaf og undirskrifir á jólakortum okkar á milli voru alltaf besta frænka og besti frændi svoleiðis var nú það, Mér finnst bara gaman að aðrir ættingjar eru að taka það upp. Lengi vel var ég kölluð litla frænka af ættingjunum á Lundarbrekku og Kristján bergður þvi á loft svona stundum, Vona að þið hafið haft gaman að myndunum sem ég sendi. Siggi Hreinn þarf bara að gefa okkur upp Dísa hvað kostar á mánuði að halda síðunni úti og svo deilum við því á okkur Með kærri kveðju Guðrún

Guðrún Jónsdóttir

14.4.2008 kl. 12:58

Kostnaðarskipting.

Ég vil ítreka það sem ég var búin að ympra á einu sinni og Guðrún besta frænka nefndi líka núna, að það þarf að skipta kostnaði við síðuna milli okkar um leið og verkaskipting kemst á. Upplýsingar um gjald sem greitt er fyrir síðuna og uppástungur um tilhögun innheimtu á "hinn almenna aðila " eru vel þegnar.Á að gefa fólki kost á að skrifa sig á styrktarlista, sem síðan yrði jafnað á og innheimt eftir? Þetta er skot út í bláinn, en orð eru til alls fyrst.

Hjördís Kristjánsdóttir

14.4.2008 kl. 9:09

Vorið og lummubakstur

Stalst til að kíkja hér inn þegar ég settist við tölvuna til að undirbúa vikuna í vinnunni. Gaman að sjá allar þessar myndir. aðeins nöfn á Lundarbrekku 2 síðunni sem ég hef ekki heyrt áður en reikna með að séu börn Páls Þórs, hlakka til að sjá Afkomendaskrá frá þeim legg svo og Guðrúnu frænku því ég á bara eina Guðrúnu Frænku með stórum staf. Hanna mín gott að þú æfir þig í lummubakstri en ég ætla að útnefna Sigga hrein sem lummubakara með okkur og Elmu sem yfirkaffihitara þá vantar bara göngustjóra og svo að finna daginn sem allir geta sameinast um. Friðrika er nú kjörinn göngustjóri en þar sem hún ætlar að koma úr öfugri átt verðum við að fá annan Lundarbrekku meginn. Fyrir ykkur sem ekki hafið gengið þessa leið er hún hvorki löng eða ströng og hæfir fólki á öllum aldri og sennilega ekki síðra fyrir klofstutta að ganga með Friðriku úr Bjarnarstöðum. Nóg í bil er elskusátt við þennan tímaþjóf. Kveðja Malla

Marína Sig

13.4.2008 kl. 23:30

Líflegt hér.

Góða kvöldið.
Hér er að gerast svo mikið að þetta er að verða talsverður tímaþjófur að sitja hér og skoða myndir lesa skrif og njóta alls sem hér er að sjá það er alveg óskaplega gaman að skoða allar þessar myndir, sit jafnvel með tárin í augunum við þetta og það rifjast svo margt gamalt upp.Annars allt gott af okkur að frétta sinntum búskap í dag við að undirbúa vorið, Óli svo að leika í kvöld, kveðja til ykkar allra.

Friðrika

13.4.2008 kl. 23:06

Kasta kveðju

Sælt það fólk sem hingað kemur.Gott að nota þetta Gestahorn hér til að kasta kveðjum á vini og skyldfólk.

Víðir Lundi og Sigríður Lóa Víðirsdóttir

Víðir Lundi

Gambri4x4.tk

13.4.2008 kl. 19:15

Sælt veri fólkið

Ég er búin að bæta nokkrum myndum við frá í gær Vona að þið hafið gaman að Kveðja besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

13.4.2008 kl. 18:23

Búinn til snjókarl

Sælt veri fólkið þá læt ég nú loksins heyra í mér, búinn að vera eitthvað agalega upptekin upp á síðkastið. Ég var líka búin að heyra að vorið kæmi á þriðjudaginn, þannig að ég ákvað að láta það ekki pirra mig þó allt væri alhvítt þegar ég vaknaði í morgun og það er búið að búa til snjókarl og renna á þotu á hólnum í dag og ég bíð spennt eftir þriðjudeginum :o) Ég er mjög sátt við að vera í lummukaffinefnd en það er skammarlegt hvað maður bakar lummur sjaldan en ég bjó til pönnukökur í dag og ætti líklega að stefna að því að baka lummur um næstu helgi, ég efaast um að sonur minn hafi nokkurntíman snakkað lummur þannig að þið sjáið hversum oft þær eru, en ég tel mig nú alveg kunna að búa þær til. Nóg um það, vona að allir hafi það sem best.
Bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína

13.4.2008 kl. 17:09

Snilld!

Hæhæ Siggi Hreinn.
Þetta er sko alveg snilldar síða hér hjá þér.
Svakalega gaman að skoða allar þessar myndir.
Mamma var að senda þér myndir af okkar skrýtnu familíu ;)
Sjáumst síðar.
Dísa frænka í Reykjavík.

Dísa frænka

barnaland.is/barn/18985

13.4.2008 kl. 10:51

Ekki verð ég sár

Siggi minn enda kann ég ekkert á tölvur. En eitthvað kostar þetta að halda þessu úti. Ég vil taka þátt í kostnaðinum og þú verður að láta mig vita hvernig ég borga þér ekkert vit í ´því að þú standir einn að þessum kostnaði Kveðja Besta.

Guðrún Jónsdóttir

13.4.2008 kl. 10:06

Já þetta er allt að koma

Héðan að austan er allt gott að frétta, slatti af snjó, en las það einhversstaðar að einhver veðurfræðingur segði að vorið kæmi á þriðjudaginn.Vonandi stenst það. Já þeta er allt að koma með stjórnkerfið er loksins farið að virka, svo nú verð ég bara að drífa í að virkja fleiri í að sjá um þessa síðu.En vil þó vera klár á að þetta sé í lagi og að ég kunni á þetta áður en ég reyni að kenna öðrum (það er að vísu ekki mikið að kunna) þetta er mjög einfalt og auðvelt kefi. en mun hafa samband við einhverja "útvalda" hinir meiga ekki verða sárir þó að við þá verði ekki haft samband, því það er ekki gott að of margir séu að sjá um þetta.
Kveðja að eystan
Siggi Hreinn og Co

Siggi Hreinn

13.4.2008 kl. 9:47

Um daginn og veginn.

Góðan dag.Þetta er í góðum farvegi núna á síðunni okkar , takk fyrir myndirnar "besta frænka", þetta rifjar upp gömlu dagana og höldum ótrauð áfram.
Við fórum á "Djöflaeyjuna´" á Breiðumýri sl föstudagskvöld og þetta var mikil og skemmtileg upplifun. því fyrir mig sem hafði lesið bókina á hundavaði og horft á
atganginn í bíómyndinni vissi ég ekki hvort einhverrar skemmtunar væri að vænta. En það tókst að gera þetta að óvæntri og hugljúfri upplifun, með endurfundi við klæðnað , hárgreiðslu og tónlist þessa tíma, nærfærnislega og fallega með farið.
Takk fyrir það.Svo er það biðin eftir vorinu.
Ætlar það að láta bíða eftir sér fram á sumardaginn fyrsta- eða lengur? Kveðjur til allra .
Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

13.4.2008 kl. 9:01

Myndirnar sem ég sendi

eru teknar á ýmsum tímum, Saabinn í hlaðinu er bíll sem Árni átti, myndin af Marínu og Geira eru teknar þegar ég leit aðeins við hjá ykkur á ferð minni með vinum mínum Stoppuðum ekki neitt aðeins kaffisopi.

Guðrún Jónsdóttir

11.4.2008 kl. 21:29

Baara vetur

Sæl og blessuð og góða ferð Elma. Hér er enn vetur og fátt sem minnir á vor nema birtan en vonandi fer þetta nú að breytast. Gaman að sjá myndirnar af Ingjaldsstaðasystkinum og gömlu myndirnar líka , er nema vona að ég héldi sem barn að allir reyktu það bara tilheyrði þegar maður yrði fullorðinn?? Njótið helgarinnar Malla

Marína Sig.

11.4.2008 kl. 0:57

Vorið ?

Held að loksins sé að koma vor. Búin að bíða óþreyjufull eftir því lengi. Var að syngja á tónleikum í kvöld með Óperukórnum í Reykjavík og Sinfó undir stjórn Askenasy. Voða gaman. Fór með drenginn í þriggja nátta pössun í kvöld þar sem við skötuhjú erum á leið til Stokkhólms í árshátíðarferð með fyrirtækinu sem ég vinn hjá. Best að leggja sig í ca. 3 klst. áður en ferðalagið út á völl hefst. Vonandi verða engir vörubílstjórar fyrir okkur á leiðinni
Góða nótt.
Elma

Elma Atladóttir

10.4.2008 kl. 16:43

Aðallega og eingöngu vetur.

Eins og þú Guðrún mín hefi ég hjög gaman af að lesa skrifin hér á síðunni og fygjast me og þá verður maður líka að kvitta fyrir sig.Við fórum allsnemma á fætur og Geiri fór í húsin. Hann fór til læknis í fyrradag og fór þá loks í myndatöku með mjöðmina sem búin er að vera að kvelja hann síðan í haust og hann hélt alltaf að þetta væri frá bakmeiðslinu. Mjaðmarliðurinn var víst ekki myndaður þá ( þótt ég héldi það)
Núna kemur í ljós að hann er uppslitinn og næsta skref hjá honum er tilvísun á bæklunarlækni á Akureyri. Ég ákvað að best væri að ég færi í skoðun eins og hver annar gamall bílskrjóður. Ég átti tíma kl 10 í morgun en þurfti að mæta fastandi og vera búin í blóðprufum kl 10 svo
það varð að taka daginn snemma. Þá var náttúrlega snjókoma, lítil hér syðst en fór vaxandi er kom norðar í dalinn og sáust bara stikurnar og stöku kantur og drulluaugu í vatnsholunum undir snjónum.Við vorum 45 mín í Fosshól og héldum að nú yrði hægt að aka greiðar.en þá var svarta þoka á Fljótsheiðinni og ekki búið að skafa hana svo það var ekki fyrri en í Reykjadal að við komum á auðan veg og þokuna skildum við eftir á heiðinni.
Það góða var það að ég fékk bara nokkuð góða skoðun, það var ekki búið að fara yfir blóðprufurnar , þegar við fórum heim, búið að hringja í mig núna og gamli skrjóðurinn fær "hvítan miða", var nefnilega dauðhrædd um að fá "grænan".Á heimleið var hætt að sjóa og hægt að keyra á eðlilegum hraða. Við stefnum á að sjá "Djöflaeyjuna" annað kvöld á Breiðumýri.Þetta er orðin mikil langloka. Kveð ykkur að sinni . Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

10.4.2008 kl. 9:06

Vetur/vor/vetur/vor/vetur.....

Ég er í vafa um hvaða árstíð er hér núna eins og sést á fyrirsögninni. Annars fór allt vel í leiknum sem ég var að tala um síðast semsagt 4-2 fyrir Eiríki nei ég meina Liverpool. Ég ætlaði nú bara enn og sftur að segja ykkur hvað mér finnst gaman að skoða allar þessa myndir hér á síðunni og skora á alla ættliðina að vera nú duglegir að senda inn myndir og líka að kvitta í gestabókina.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

8.4.2008 kl. 19:52

Liverpool/Arsenal

Gott kvöld, já það er greinilega nóg að gera í Þingeyjarsveit, ætli maður verði að gera sér ferð norður og kíkja á Djöflaeyjuna? það er víst jafn langt norðu og suður :-). Annars er allt gott hér, mætti gjarnan fara að hlýna aðeins. En á þessu heimili ríkir mikil spenna akkúrat þessa stundina þar sem Liverpool og Arsenal eru að spila síðasta leikinn af þrem of staðan er jöfn 1-1 í byrjun seinni hálfleiks og sonurinn er frekar spenntur. Áfram Liverpool

Guðrún Sigurgeirsdóttir

evamargret.barnaland.is/

6.4.2008 kl. 21:35

Lífsmark

Já ,ætli "botninum sé ekki náð" eins og þeir segja um efnahagssveiflurnar en þá á ég nú við tölvuumhverfið þessa dagana.Sá að Þröstur Kolbeins hafði fengið tölvupóst frá Stíg sem er í forsvari fyrir 123.is og hann býst við að það geti tekið 1 mánuð að ná þessu í gott lag. Fyrir þá sem ekki hafa þegar séð þetta þá er þetta skýrt á tenglinum Stafnsætt. Annars hefi ég verið á tölvunámsskeiði bæði í gær og dag hér í Kiðagili og svo vorum við í miklum gleðskap einnig þar í gærkvöldi.
Garðar á Stóruvöllum bauð ti "fagnaðar" í tilefni af fimmtugsafmæli sínu sem var 26. mars sl, og svo var móðir hans, Sigríður,(Lilla)
75 ára í gær.Vel var veitt í mat og drykk og sungið og ræður haldnar eins og í öllum góðum veislum og um 100 manns skemmtu sér konunglega fram eftir
nóttu.En jafnframt var verið að frumsýna
"Djöflaeyjuna" á Breiðumýri þar sem Óli á Bjarnarstöðum er að leika " Gretti"
svo hann gat ekki mætt fyrr en í blálokin í Kiðagili. Ég er farin að hugsa gott til að fara að hátta og sofa eftir þessa dúndur helgi. Hafið það gott . Kveðja. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

4.4.2008 kl. 19:37

Flott!

Mér líst vel á gönguferðarhugmyndina! :) ég kemst vonandi með og ætla að reikna með því, þar sem ég verð nú ekki langt frá!

Anna Sæunn

3.4.2008 kl. 21:14

Afleitur lummubakari en ...

Góða kvöldið.
Reikna fastlega með að ég verði fyrir norðan í kringum verslunarmannahelgi. Man reyndar sorglega lítið eftir ömmu Marínu, nema að hún stóð alltaf í dyrunum með hvíta svuntu þegar við komum í heimsókn. Ég er hins vegar til í að taka þátt í lummukaffi og öllu sem því fylgir nema ég held að það sé gáfulegt að einhver annar en ég baki lummur :-) En ég er ágæt í að hella upp á kaffi.
kv. Elma

Elma

3.4.2008 kl. 20:08

Komiði sæl enn og aftur.Gaman að sjá hvað margir hafa nú látið í sér heyra, bæði um Hrútagilsgöngu, lummukaffi og svo síðuna. Siggi Hreinn, þú lagðir fyrir liðið að þú vildir gjarnan fá aðstoð við uppfærslu og skriftir og mér sýnist að þú hafir fengið jákvæðar undirtektir úr fleiri áttum. Ég vísa því til þín þeim sem eru að banka upp á og vilja taka þátt. Sjálf kann ég ekkert til heimasíðugerðar og veit ekki hvort fólk á að fá aðgangsorð og koma svo inn með sitt þegar því þykir henta, eða hvort menn eiga að skiptast á með umsjón t. d. viku í senn eða lengur. Hitt sé ég vel að á meðan 123.is er í algjöru veikindaleyfi og eini samskiptamátinn er gestabókin þá verður nú ekki mikið unnið í þessu. En í von um að það eigi eftir að lagast þá væri ágætt að upplýsa okkur um hvernig hugsanlega mætti haga þessu fyrir þá sem vilja taka virkan þátt.Kveðja. Dísa.

Hjördís Kristjánsd.

3.4.2008 kl. 19:06

Hrútagilsganga

Sæl veri þið.
Auðvitað verð ég með í Hrútagilsgöngu en ég verð að halda uppi sið nöfnu minnar hér á Bjarnarstöðum og koma labbandi héðan að sunnan. Það geði hún oftast í minni bernsku og hafði þá með sér tiltæka krakka er voru hér á Bjarnarstöðum og Rauðafelli. Kveðja að sinni.

Friðrika Sigurg.

3.4.2008 kl. 18:27

Dísa mín til er ég

en þarf að fá allar leiðbeiningar frá ykkur sem eruð full fær í þessu öllu Vonandi fæ ég leiðbeiningar svo sem hvernig ég sendi myndir og hvert Pistlana get ég skrifað en í guðana bænum látið mig vita.

Guðrún Jónsdóttir

3.4.2008 kl. 18:27

Dísa mín til er ég

en þarf að fá allar leiðbeiningar frá ykkur sem eruð full fær í þessu öllu Vonandi fæ ég leiðbeiningar svo sem hvernig ég sendi myndir og hvert Pistlana get ég skrifað en í guðana bænum látið mig vita.

Guðrún Jónsdóttir

3.4.2008 kl. 18:03

Óþolinmæði

Rosalega kannastég við svona óþolinmæði með tölvur, núna er til dæmis stjórnkerfið hjá 123 ekki alveg að virka eins og ég myndi vilja sérstaklega með myndirnar það gengur eitthvað brösulega að koma þeim inn, en vonandi lagast þetta.
Kv Siggi

Siggi Hreinn

3.4.2008 kl. 18:00

Lummukaffi/Hrútagil

Mér lýst vel á þessa hugmynd með lummukaffið og Hrútagilsgöngu. Ég er asskoti góður lummubakari þó ég segji sjálfur frá.En endilega drífa í þessu í sumar.

Siggi Hreinn

www.123.is/sighj

3.4.2008 kl. 16:05

Leiðrétting

Hanna mín fyrirgefðu en auðvitað átti að standa Hanna en ekki Hann. Kv. Malla

Marína Sig.

3.4.2008 kl. 16:04

Sæl öll og takk fyrir góð viðbrögð. Hann mín þú ert komin í Lummukaffisnefnd með mér enda viðeigandi að hafa tvær Marínur í því. Við höfum einu sinni farið í Hrútagilsgöngu sem var mjög vel heppnuð og nú vonandi verða enn fleiri sem komast með. Það eru myndir á síðunni undir ýmsar myndir úr Hrútagilsgöngu sumarið sem Ingigerður kom í heimsókn með alla fjölskylduna. Gunna og amma með hóp af börnum mishá í loftinu. Mamma takk fyrir loforð um aðstöðu fyrir lummubakstur ræðum þetta allt þegar og ef af verður. Hlakka til að heyra meira frá ykkur öllum. Malla

Marína Sig

3.4.2008 kl. 11:35

Þegar ég var að setja inn minn pistil áðan sá ég skrifin hennar Diku og gat ekki annað en skellihlegið og hringdi í hana til að segja henni að þetta eru ekki Stafnsgen, þar er meiri undirliggjandi þungi.Þetta eru gömlu hjónin bæði á Lundarbrekku, Baldur og Guðrún og börnin þeirra, Marína og Siggi.Gunna mín Kristjáns sagði að það væri heldur munur að vinna með honum Sigurði Sigurgeirs heldur en Sigga , manni sínum, það væri ekki þessi asi og gauragangur. og það var ekki að ástæðulausu að hermt var efir mæðgum ,Marínu og Rúnu-
O-bobb-o og hlaupið af stað með ófyrirsjánlegum afleiðingum,hvort sem síminn hringdi, svara, kalla einhvern í síma eð sauð upp úr potti. Ógleymanlegt atvik: Hjörtur 2ja til 3ja ár í pössun hjá Rúnu ömmu niðri í kjallara og Marína uppi í símastjórn. Hjörtur var stríðinn og fannst hann ekki nógu frjáls, amma að siða hann. Hann greip skítuga skinnhúfu í framkjallara og skaust bak við ömmu inn í búr, hún á eftir en hafði alls ekki við honum og hann kom húfunnu kyrfilega ofan í sláturtunnu.Þá var nú æsingur og gauragangur , þegar mamma hans kom og dró húfuna rennblauta upp úr sýrutunnunni.Dika skoraði á mig að setja þetta á síðuna og ég vona að fleirum en mér finnist þetta græskulaust og bara fyndið.Kveðja. Dísa.

Hjördís.K.

3.4.2008 kl. 10:58

Sæl verið þið öll.
Velkomin á síðuna afkomendur Jónunnu, það eru tregablandnar tilfinningar að horfa á myndirnar af Bryndísi og hennar fjölskyldu , en líka að horfa á Sigga og Gunnu meðan allt lék í lyndi.Ég veit að Jónas var að hugsa um hvort ekki mætti útvíkka enn til afkomenda Jónasar og Jakobínu. Það er ekki margt fólk, en því minnisstæðara.Guðrún mín Jónsdóttir ,Þú kæmir þá formlega inn með pabba þinn og hans afkomendur og svo er það Jónas Baldursson, ættleggurinn ekki mikill, en sagan hans einstök og þess verð að minnast.
Hrútagil og lummukaffi er vel viðeigandi í minningu ömmu Marínu og vænti þess að hér veri a. m. k. aðstaða til að hita kafi og baka lummur ef af verður.
Sendi bestu kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

3.4.2008 kl. 10:43

Óþolinmæði.

Góðan daginn.
Settist niður við tölvuna en hún er svo hræðilega lengi að ég er alveg að tapa stillingunni, ég kemst alls ekki inn á myndirnar af fólkinu sem ættað er frá Lundarbrekku 2 hvað sem veldur.Hvaðan er þessi óþolinmæði komin er þetta stafnsgen eða komið annarstaðar að eru fleiri haldnir þessum kvilla að ef hlutirnir ekki ganga strax þá fer alveg ótrúlegur pirringur um mig.Kveðja til allra.

Friðrika Sigurgeirsd.

3.4.2008 kl. 9:56

Til er ég

Góðan dag
mér líst ljómandi vel á lummukaffi og gönguferð í Hrútagil og ég er til í að hjálpa til við það Malla mín, mér finnst trúlegt að við verðum fyrir norðan kringum og um verslunarmannahelgi og svo langar okkur Palla að fara í eyðibýlagönugna, þú veist Malla, en það varð ekkert af því síðasta sumar við líka komum ekkert norður þá (alveg glatað) af því að við fórum að asnast til útlanda og fórum tvisvar til Hornafjarðar, þannig að það verður stoppað lengi á norðurlandi næsta sumar ef ég fæ að ráða :o)
bestu kveðjur til ykkar allra
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

2.4.2008 kl. 19:31

Eitthvað er nú blessuð tölvan að stríða mér ,,

Gott kvöld!
Ef þið sjáið skrítnar athugasemdir við myndir hér þá fraus tölvan eitthvað og þetta skolaðist eitthvað til. Siggi Hreinn þú mátt laga þetta ef þú sérð athugasemdir sem enganveginn passa við myndirnar. Líst vel á göngu í Hrútagil og lummkaffi. Já gaman að sjá fleiri tjá sig hér og kíkja á þessa fínu síðu.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

2.4.2008 kl. 18:57

Malla frábær hugmynd

hjá þér ég veit nú ekki eins og er hvenær ég verð á Norðurlandinu en læt vita Siggi Kristj, ykkur er fyrirgefið í þetta sinn Við erum víst öll að eldast. En kæru ættingjar og vinir hafið það ætíð sem best Kveðja Guðrún

Guðrún Jónsdóttir

2.4.2008 kl. 18:50

Malla mér list ljómandi velá hugmindina. Guðrún besta frænka þú verður að fyrirgefa pabba gamla aldurinn farinn að segja til sín kveja til allra sig k

sigurður kristjans

2.4.2008 kl. 17:07

Gleður mig

Góðan dag kæra frændfólk. Gleður mig að sjá að allt Lundarbrekkufólk er að koma inn á síðuna en jafnframt fæ ég kökk í hálsinn þegar ég horfi á myndina af Bryndísi og Gilla og hugsa til þess að hún skildi hverfa svo snöggt frá fjölskyldunni. Arnar Rafn kom aðeins til mín í matreiðslu í kynningaráfanga í VMA s.l. haust og hafði ég gaman af því að læra að þekkja hann. Hlakka til að sjá fleiri myndir og fara að lesa hugleiðingar fleiri á gestabókinni.
Eins og þið öll vitið hefði amma Marína orðið 100 ára næsta haust og í tilefni af því hefði mig langað til að hafa lummukaffi í sumar ef einhverntíman væri þannig staða að sunnanfólkið sem flest væri statt á Norðurlandi t.d. í kring um verslunarmannahelgi. Þessi síða væri nú kjörinn miðill til að láta vita af sér svo ef til vill væri hægt að koma þessu við. Eins auglýsi ég hér eftir þeim sem hefðu áhuga á að hjálpa mér við þetta. Staðsetningin hefur ekki verið ákveðin en draumur minn er gönguferð í Hrútagil og Lummukaffi á Lundarbrekku á eftir. Hvernig lýst ykkur á hugmyndina. Hlakka til að lesa skrifin ykkar. Góðar kveðjur Malla

Marína Sig.

1.4.2008 kl. 16:10

Sæll frændi smá athugasemd við mynd af mér og foreldrum Mamma var Ingvarsdóttir ekki Ingólfsdóttir Hér með komið á framfæri Kveðja besta frænka

Guðrún Jónsdóttir

31.3.2008 kl. 18:14

Heil og sæl!
Greinilega allt í rugli ennþá hjá 123.is, sumt kemur inn og annað ekki, en þetta kemst vonandi í lag von bráðar.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

31.3.2008 kl. 8:53

Afmæliskveðjur til Hjartar Smára og Sigga stóra

Kærar afmæliskveðjur til Hjarta og Sigga Bald datt allt í einu í hug Siggi stóri og Siggi litli, en það er nú liðin tíð. Bestu kvðjur og heyrumst hér á Siðunni. Malla

Marína sig

30.3.2008 kl. 23:02

Afmæliskveðja

Innilegar afmæliskveðjur til þín Siggi nú er aldursmunurinn aldeilis orðinn mikill á okkur þú kominn á sextugsaldur en ég bara rúmlega fertug en annars bestu kveðju frá Bjarnarstaðafjölskyldunni.

Friðrika

30.3.2008 kl. 22:35

Hææ

Siggi innilegar hamingjuóskir með 50ára afmælið þitt...=) sjaáumst bara ;)
-Særún-

Særún sigurpálsdottir

--

30.3.2008 kl. 21:51

Er Eyjólfur að hressast?

Segi nú svona því síðan hefur ekki verið aðgengileg í dag.Siggi, til hamingju með fimmtugsafmælið. Kveðjur frá Geira og Dísu.

Hjördís Kristjánsdóttir

30.3.2008 kl. 13:14

Allt í fári hér bara einu sinni smellti ´wg afmæliskveðjunni Guðrún

Guðrún Jónsdóttir

30.3.2008 kl. 13:13

Til hamingju með daginn

Siggi frændi hafðu góðann og skemmtilegan dag kveðja Guðrún frænka

Guðrún Jónsdóttir

30.3.2008 kl. 13:13

Til hamingju með daginn

Siggi frændi hafðu góðann og skemmtilegan dag kveðja Guðrún frænka

Guðrún Jónsdóttir

30.3.2008 kl. 13:13

Til hamingju með daginn

Siggi frændi hafðu góðann og skemmtilegan dag kveðja Guðrún frænka

Guðrún Jónsdóttir

30.3.2008 kl. 13:13

Til hamingju með daginn

Siggi frændi hafðu góðann og skemmtilegan dag kveðja Guðrún frænka

Guðrún Jónsdóttir

30.3.2008 kl. 13:00

Það er eitthvað að síðunni!!

Það vantar allt inn sem var skrifað í gær, þ.e. afmæliskveðjur til Hjartar Smára og svo er alfælisbarn dagsins í dag Sigurður Baldursson, hann er fimmtugur í dag, til hamingju með daginn Siggi.
Guðrún, Kiddi og börn

Guðrún Sigurgeirsdóttir

28.3.2008 kl. 16:35

Spennufall?

Líklega er fólkið eitthvað í meiri hægagangi eftir páskana og " fríið " í kringum þá. Ég játa að ég er bara löt.Ég fór samt að fletta gömlum myndaalbúmum
því ég er alltaf með það á dagskrá að koma meiru inn í varanlegri albúm og merkja svo fólk geti skoðað þetta sér til gamans síðar meir. Þá datt mér í hug að senda Sigga tvær eða þrjár gamlar.Þið megið alveg setja nöfnin við þær ,það er ekki nein gáta, bara til að ég sleppi við það. Góða helgi . Kveðja. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

28.3.2008 kl. 13:14

Sælt veri fólki, maður er bara eitthvað svo andlaus og hefur ekkert að segja nema bara allt gott ,og engar fréttir eru víst góðar fréttir
góða helgi
kv. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

27.3.2008 kl. 21:36

Kveðja úr Kópavogi

Góða kvöldið!
Eigum við nú ekki að taka okkur á í kvittinu hér á síðunni:-), mér finnst eitthvað svo dauft yfir þessu núna. Allt gott hér annars, skítakuldi og ennþá vetur.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

25.3.2008 kl. 10:14

að loknum páskum

Sæl og blessuð og kveðjur að loknum páskum. Ekkert meira vieigandi en senda línu frá Lundarbrekku. Eftir vel heppnaða ferð til London með alla synina erum við nú hér á Lundarbrekku og Jói og Hjörvar að aðstoða við rúning en fagmaðurinn sem ráinn er í verkið er auðvitað Siggi á Ingjaldsstöðum. Sævar fylgist svo grant með en Ásgeir sefur enn á sínu græna eyra. ég vil nota tækifæri og óska afmælisbörnunum sem átt hafa afmæli frá 14. mars og til 23. mars til hamingju með áfangann ótrúlega margir sem eiga afmæli á þessum tíma. Geymi heimspekihugleiðingar þar til síðar en gaman að lesa það sem hér er birt. Bestu kveðjur Malla

Marína Sig.

24.3.2008 kl. 20:58

Sammála

Já sennilega erum að horfast í augu við hina illu fylgifiska neysluæðisins sem hefur tröllriðið vesturlöndum undanfarin ár, ég býst við að þetta sé bara eitthvað sem hafi þurft að gerast til að maður myndi ekki alveg gleyma sér og fara að sjá að sér... eða hvað finnst ykkur?

Varðandi öll þessi ofbeldisverk held ég að þetta séu a' hluta til afleiðingar þess að krakkar eru látin dúsa ein meira og minna allan daginn og eyða meiri tíma með sjónvarpi og tölvuleikjum en foreldrum sínum og fá þaðan alls konar grillur sem eru gjarnan ekki leiðréttar því foreldrarnir eru uppteknir við eitthvað sem þeir telja mikilvægara (eins og að kaupa hlutabréf eða eitthvað álíka). Held þetta sé svona í stórum dráttum í mörgum tilfellum, án þess að ég viti nokkuð um það svosem... en maður hefur þetta pínu á tilfinningunni miðað við hvernig þjóðfélagið er að þróast í dag.
Æji annars veit ég ekkert um þetta, sjálfsagt er þetta líka eitthvað tengt öllum þessum innflytjenda skara sem hingað sækir.
Finnst samt í alvöru ógnvænlegt hvað fólk virðist oft ekki hafa tíma til að eyða tíma með börnunum sínum, sbr. auglýsingu sem var gagnrýnd á barnaland.is þar sem foreldrar auglýstu eftir manneskju til að fylgja börnunum sínum í og úr skólanum og gefa þeim að borða kvöldmat og hátta þau, vegna anna foreldranna, svo var víst þriðja barnið Á LEIÐINNI.
Ég ætla ekki að vera með neinn hroka en af hverju í ansk''''' er fólk að unga niður öllum þessum krökkum ef það er ekki gert neitt annað en að ráða manneskju til að sinna þeim allan daginn? Er ekki lágmark að fólk gefi sér allavega tíma til að hátta börnin sín og svæfa þau?
Þetta veldur mér ótrúlegu hugarangri.

Hvað finnst ykkur um þetta? Nú er ég ekki það reynslumikil að ég geti tjáð mig um þetta af öryggi eða að ég þekki stöðu fólks svo endilega segið hvað ykkur finnst.

kv

Anna Sæunn

annasaeunn.bloggar.is

24.3.2008 kl. 9:47

Annar í páskum

Sælt veri fólkið!
Sennilega margir verið á faraldsfæti um hátíðirnar og enginn tímin til að kíkja hér inn og kvitta fyrir sig. En ég er satt að segja orðlaus, hvað er að gerast hér, það er ekki nóg með að krónan sé í frjálsu falli niður á við, heldur eru þvílík ofbeldisverk og árásir orðið daglegt brauð hér, hvað er að gerast? Erum við að missa tökin á þessu öllu? Eða er þetta fylgifiskur þessa samfélgas sem við búum í? Nei ég vil ekki trúa því, eitthvað verður að gerast hér. En þetta eru sennilega spurningar sem erfitt er að finna eitt svar við. Ég og mín fjölskylda höfum átta rólega páska og ég hlakka til að mæta endurnærð aftur til vinnu á morgun. Eigið góðam dag.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

21.3.2008 kl. 18:25

Gleðilega páska......

....til ykkar allra. Var að koma úr góðri göngu á Helgafellið og stefni á Keili á Páskadag ef veður leifir, svo Esjan í apríl. En aftur eigið ánægulega páskahátíð hvar sem þið eruð kæru ættingjar.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

21.3.2008 kl. 17:16

gleðilega páska..

Gleðilega páska allir saman og vonandi hafiði það gott í páskafríinu..
Ef þið eigið leið um í mýv er um að gera að skella sér í Jarðböðin þar sem ég mun veraa að vinna alla páskana=)

Kveðja
Sylvía Ósk (:

Sylvía Ósk

sylviaaosk.central.s

21.3.2008 kl. 13:57

Gleðilega Páska, allir ættingjar og vinir.

Allt gott af okkur að frétta. Malla, Jói og synir í London, væntanleg heim á morgun.
Búið að vera gott fólk í kringum okkur í morgun, bæði hér inni og í kirkjunni að þrífa og snurfunsa. Mér datt í hug sögn gamallar ættmóður hér á Lundarbrekku. " Það er best að vera sem aumastur, þá er manni gefið mest". En ég er bara innilega þakklát og glöð
yfir að fá hjálp og stuðning þegar á liggur.Þakka sérstaklega og sendi kveðjur þeim sem duglegastir eru að skrifa línu og kvitta á síðuna.
Lifið öll heil. "Í Guðs friði."Kveðja frá Dísu og Geira á Lundarbrekku.

Hjördís Kristjánsdóttir

21.3.2008 kl. 13:31

Gleðilega páska

Gleðilega páska og hamingju óskir til allra sem eiga afmæli....
Með kveðju frá Húsavík í blíðunni

Víðir L og Sigríður Lóa

Víðir L

Gambri4x4.tk

19.3.2008 kl. 21:11

Allir ættingjar og vinir

Gleðilega páskahátið, og hafið það sem best, Héðan allt gott að frétta Dísa fór austur í Einarsstaði á völlum um hátíðina Nonni heima fram á þriðjudag Árni að vinna sína nætuvinnu þessa helgi og ég slappa bara af.Þetta eru helstu fréttir frá mér núna Guð veri með ykkur öllum Kveðja Guðrún Jóns.

Guðrún Jónsdóttir

19.3.2008 kl. 14:54

Páskafrí framundan :o)

Góðan dag
það eru líklega allir ættingjarnir farnir til útlanda í kreppunni eða önnum kafnir við að undirbúa páskahátíðina, og gefa sér ekki tíma til að kvitta í gestabókina :o)
Nú er gott frí framundan og ég ætla ekki að gera neitt nema það nauðsynlegasta, hvíla mig vel og borða góðan mat (ekki sleppir maður því nú, þó það sé dýrt) Palli var að tala um í gærkvöld eftir allar slæmu fréttirnar í þjóðfélaginu að líklega yrði maður að fara að veiða í matinn ? hvað verður.
Já smá vangaveltur, annars er bara allt við það sama og allir hressir vildi bara kvitta fyrir mig og óska öllum gleðilegra páska með bestu kveðjum
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

17.3.2008 kl. 10:05

Takk fyrir kveðjur á fermingardaginn

og innilegar þakkir til ykkar sem komuð og glöddust með okkur á fermingardaginn. Nú er þetta allt afstaðið og ég og börnin komin í páskafrí og ætlum að eiga ljúfa daga framundan. Mamma og pabbi eru hér hjá okkur en eru að fara heim í dag. Búnir að vera góðir dagar og alsæll fermingardrengur þakkar fyrir sig.
Guðrún

Guðrún Sigurgeirsdóttir

15.3.2008 kl. 17:28

Elsku Eiríkur frændi

Eigðu minningarríkt og skemmtilegt kvöld og gangi þér vel á morgun.
Til hamingju með daginn!

Kveðja

Anna og Jói

Anna og Jói

15.3.2008 kl. 14:47

Elsku Eiríkur frændi

Eigðu minningarríkt og skemmtilegt kvöld og gangi þér vel á morgun.
Til hamingju með daginn!

Kveðja

Anna og Jói

Anna og Jói

15.3.2008 kl. 11:35

Fermingardrengurinn Eiríkur Kristófersson

Innilegar hamingju óskir með fermingardaginn
Guð og gæfan fylgi þér kveðja Guðrún frænka og Árni

Guðrún Jónsdóttir

13.3.2008 kl. 20:15

Afmæli

Jón Stefán Baldursson á afmæli á morgun, 14. mars.
Nonni minn, bestu kveðjur og hamingjuóskir frá okkur Geira.
Biðjum að heilsa Önnu og krökkunum. Sjáumst væntanlega um helgina. Kv. Dísa.

Hjördís Kristjánsd.

11.3.2008 kl. 17:20

Alveg út úr mínu hjarta talað.

En erfitt fyrir Íslendingana að stoppa sig af. Það er eins og menn séu alltaf að verðlauna sig fyrir að hafa nú þraukað af þennan langa vetur og þeir eru búnir að vinna svo mikið og lengi og þó að fjármálakreppa sé nú uppsiglingu þá verða þeir að fara í sólarlandaferðina sem þeir eru búnir að borga hvort sem er, eða vinnuveitandinn b o r g a r.sem er agnið . Þetta reddast nú , það er bara maturinn sem er dýr og allra helst þessar landbúnaðarvörur, það að er nú meiri heimtufrekjan í þessu bændapakki, það ættu nú bara allir að rækta lífrænt, þá þarf ekki að kaupa tilbúinn áburð, æ, æ, er ekki nóg komið. Kveðja. Dísa.

Hjördís Kristjánsd.

11.3.2008 kl. 9:13

Sannleikur

Góðan dag. Svo mikill sannleikur í heilræðinu sem við vitum öll, gleymum bara of oft og hlaupum á eftir tilbúnum þörfum en gleymum að hlúa að kjarnanum. Farið vel með ykkur og munið að njóta þess sem hversdagslífið bíður upp á. Kveðja Malla

Marína Sig.

11.3.2008 kl. 8:59

Heilræði dagsins

Dag einn var sérfræðingur í tímaskipulagningu að tala fyrir framan hóp viðskiptafræðinema. Til að koma merkingunni almennilega til skila notaði hann sýnikennslu sem nemendurnir gleyma aldrei.
Þar sem hann stóð fyrir framan þennan hóp af metnaðarfullu fólki sagði hann: ,,Jæja, þá skulum við hafa próf." Hann tók upp 5 lítra krukku með stóru víðu opi og setti hana á borðið fyrir framan sig. Svo tók hann um það bil 10 hnefastóra steina og varfærnislega kom hann þeim fyrir í krukkunni, einum af öðrum. Þegar krukkan var full og ekki hægt að koma fleiri steinum í hana spurði hann: "Er krukkan full?" Allir í bekknum svöruðu já. "Jæja" sagði hann. Hann teygði sig undir borðið og tók upp fötu með möl. Því næst sturtaði hann smá möl í krukkuna og hristi hana um leið, sem orsakaði það að mölin komst niður í holrúmin á milli stóru steinanna. Svo spurði hann hópinn aftur: "Er krukkan full?" Í þetta sinn grunaði nemana hvað hann var að fara. "Sennilega ekki" svaraði einn þeirra. "Gott!" svaraði sérfræðingurinn. Hann teygði sig undir borðið og tók upp fötu af sandi. Hann hellti úr henni í krukkuna og sandurinn rann í öll holrýmin sem eftir voru milli malarinnar og stóru steinanna. Enn spurði hann: "Er krukkan full?" "Nei!" æptu nemendurnir. Aftur svaraði hann.
"Gott!" Hann tók því næst könnu af vatni og hellti í krukkuna þar til hún var alveg full. Svo leit hann á bekkinn og spurði. "Hver er tilgangur þessarar sýnikennslu?" Einn uppveðraður nemandinn rétti upp höndina og sagði: "Tilgangurinn er að sýna að það er sama hversu full dagskráin hjá þér er. Ef þú virkilega reynir geturðu alltaf bætt fleiri hlutum við!" "Nei" svaraði sérfræðingurinn. "Það er ekki það sem þetta snýst um. Sannleikurinn sem þetta dæmi kennir okkur er þessi: Ef þú setur ekki stóru steinana í fyrst, þá kemurðu þeim aldrei fyrir." Hverjir eru stóru steinarnir í þínu lífi? Börnin þín? Fólkið sem þú elskar? Menntun þín? Draumarnir þínir? Verðugt málefni? Að kenna eða leiðbeina öðrum? Gera það sem þér þykir skemmtilegt? Tími fyrir sjálfa(n) þig? Heilsa þín? Maki þinn?
Mundu að setja STÓRU STEINANA í fyrst eða þú munt aldrei koma þeim fyrir. Ef þú veltir þér upp úr litlu hlutunum (mölin, sandurinn, vatnið) fyllirðu líf þitt með litlum hlutum sem skipta í raun ekki máli og þú munt aldrei hafa þann tíma sem þú þarft til að eyða í stóru mikilvægu hlutina í þínu lífi (stóru steinarnir).
Sem sagt, í kvöld eða í fyrramálið þegar þú hugsar um þessa stuttu sögu, spurðu sjálfa(n) þig þá þes

Guðrún Sigurgeirsdóttir

10.3.2008 kl. 21:40

Hmmm

Ég veit ekki hvernig ég flokkast varðandi svefntíma, stundum er ég glaðvöknuð fyrir allar aldir og stundum get ég sofið langt fram eftir morgni, þetta gæti verið út af því að ég er að vinna svo misjafnar vaktir. veit það samt ekki, en finnst mjög líklegt að ég verð A mannesekja með tímanum, og finn það strax að ég verð þreyttari fyrr á kvöldin og vakna útkvíld fyrr á morgnanna, vona allavega að það verði frekar þannig, það er eitthvað svo gott að eiga allan daginn eftir. :) (þó að auðvitað geti allt farið út í öfgar)
Annars er það að frétta, svo ég blaðri nú aðeins meira, að það er margt búið að gerast í Kiðagili, erum búin að vera mála og sparsla og gera við og hanna aðeins og breyta, það eru meira að segja komnir upp heilir klettaveggir, til að fá svona aðeins á tilfinninguna að maður sé kominn ofan í Kiðagil og geti þá lokst andað léttar, en þið þekkir víst flest kvæðið! :)
Veit ekki hvort að fólk á eftir að hata eða elska þessa hugmynd en hún er allavega svolítið frumleg og táknrænt fyrir staðinn. Allavega verða allir að kíkja við í sumar og líta á listaverkin. ;)
Varðandi nánari fréttir af mér er tiltölulega nýuppfært fréttablogg á bloggsíðunni minni.
Hafið það gott

kv Anna Sæunn

Anna Sæunn

www.annasaeunn.bloggar.is

9.3.2008 kl. 20:37

Seint verður nú sagt um mig að ég sé svefnlétt og árisul þo ég eldist

Sæl og blessuð öll. Við hér í Norðurgötunni höfum átt góðan dag og ég notið þess að fá gesti í kaffi, hef nú fengið það með nafni að vilja hafa kaffi og tilstand af og til, til að fólk komi saman. En meira fengið af svefngenum úr honum Halldóri heldur en systur mínar sem oft skortir þessi gen. Þær koma sennilega meiru í verk fyrir hádegi heldur en ég. Enda erum við pabbi ekki alltaf með sama tímatal þegar dagurinn stendur sem hæst hjá mér upp úr hádegi er kominn seinnipartur hjá honum og dagsverkinu á helst að vera lokið. Mér finnst hins vegar ágætt að það séu ekki allir eins og hef engar áhyggjur af þessum svefnvenjum. 'Eg hafði gaman af að sjá að hugleiðingar Önnu Sæunnar hér í janúar vöktu athygli og voru einnig á síðu Stafnsættar. Gaman þegar unga fólkið lætur í sér heyra. Sendi enn og aftur þakkir fyrir afmæliskveðjurnar og kveð að sinni ári eldir en í gær. Malla

Marína Sig.

8.3.2008 kl. 11:04

Ég skal segja þér það Guðrún frænka

að þessar svefnvenjur eru i genunum hjá okkur Ég get aldrei sofið lengur en til kl 6 þá er ég glað vöknuð búin að sækja blöðin og les þau þar til ég fer í vinnuna Svona er ég búin að vera í mörg ár.Svo þú veist þá hvað bíður þín á efri árum Kveðja Guðrún frænka

Guðrún Jóns

8.3.2008 kl. 8:56

Ég skal segja þér það Jón, að það er nú munur að fara snemma á fætur.

Þetta er ein af gömlu sögunum sem gengið hafa á bæjunum Lundarbrekku og Sigurðarstöðum á öldinni sem leið.Jón á Sigurðarstöðum, faðir Sölva var allra manna árrisulastur, enda sonur Maríu Friðriksdóttur sem aldrei svaf nema 4 tíma á sólarhring að sagt var. Nágranni Jóns, Friðrik á Hrappsstöðum þótti svefn-þungur og seinn til verka að morgni. En einhvern tíma hafði hann brugðið venjunni og komið miklu í verk að morgni , svo að hann hafði tíma til að heimsækja nágranna sinn og deila með honum þessar reynslu. Þú hefur að minnsta kosti fengið eitthvað af þessum genum Guðrún mín, en ekki" svefninn úr honum Halldóri " sem mér er sagt að Anna amma mín hafi stundum talað um. En afmælisdagagenin og allt það eru nú ekki frá honum pabba þínum. Við verðum víst að sitja með það sem skaparinn úthlutaði okkur að reyna að rækta fremur það betra en verra. En ég er nú sammála um að sóunin á öllum hlutum er gegndarlaus og þyrfti að ver hægt að róa niður þett neysluæði sem tröllríður öllu. Eigið svo góðan dag Kveðja . Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

8.3.2008 kl. 7:56

MORGUNSTUND GEFUR GULL Í MUND

Hvernig verð ég eiginlega sjötug? Stórt er spurt, en ég er nefnilega orðin alveg eins og pabbi hvað varðar svefnvenjur. Sef eða dorma yfir fréttunum á kvöldin og fer snemma í rúmið og er svo glaðvöknuð uppúr kl. fjögur (fjégur eins og afi Sigurður hefði sagt). Mér finnst þetta stundum svolítið leiðinlegt, en stundum er maður búinn að öllu fyrir hádegi. Ég hefði sennilega átt að verða bakari, sé að sá vinnutími hefði allavega hentað þessum svefnvenjum. En kæru ættingjar vona að þið eigiið ánægulega helgi og njótið dagsins.

Guðrún

7.3.2008 kl. 22:36

Gleymdi......

...rótin að þessum hugrenningum hér að neðan eru allir þeir auglýsingapésar, sneplar, heilu bækurnar og tilboð á tilboð ofan sem hafa hrunið hér inn um lúguna síðustu vikur. Einungis af því við eigum fermingarbarn, Það er fermingar þetta og fermingar hitt og fermingar svona og fermingar hinsegin. Ekkert smá leiðinlegt.
Og hvað skyldu nú allir þessir litprentuðu fínu glansbæklingar kosta? sem fara svo beint í ruslið hjá mörgum allavega mér.
Það eru allir að reyna að græða og græða og græða.
Jæja nóg um þetta.
Góða nótt aftur :-)

Guðrún Sigurgeirsdóttir

7.3.2008 kl. 22:31

Alveg er ég sammála þér frænka Óska ykkur til hamingju með fermingardrenginn um næstu helgi Kveðja Guðrún

Guðrún Jónsdóttir

7.3.2008 kl. 22:26

Hvers virði er allt þetta veraldlega

Smá framhald af hugrenningum Önnu Sæunnar frænku minnar hér á síðunni um daginn.
Daglega dynja á okkur auglýsingar og það oft á dag og einnig allskonar áróður um að veraldlegir hlutir munu færa okkur hamingjuna. Ef við göngumst við því kemur óhjákvæmilega að því að leiði og vanlíðan sækir á okkur, annaðhvort vegna þess að við þráum stöðugt hluti sem við getum ekki eignast, eða vegna þess að við eignumst þá og uppgötvum að þeir færa okkur enga hamingju. Ef þú kannt að meta sjálfa/n þig þá rennur upp fyrir þér hvílík gersemi þú ert og gersemar krefjast ástar og umhyggju.
Þegar þú öðlast skilning á því getur þú hætta að hafa áhyggjur og hrífur fólk með návist þinni.

Láttu ljós þitt skína alla daga!!!!!

Góða nótt

Guðrún Sigurgeirsdóttir

5.3.2008 kl. 10:09

Takk fyrir afmæliskveðjurnar

Góðan dag
Þá er maður nú orðinn fertugur en ég finn nú engan mun frá því ég var 39 :o)
Ég átti góðan dag heima og hafði smá kaffi fyrir fjölskylduna og Guðrún, Eva og Siggi bróðir komu að kíkja á þá gömlu.
Í gærkvöld fór ég svo á kóræfingu og þar var að sjálfsögðu sungið fyrir mig og knúsuð í bak og fyrir.
Takk kærlega fyrir allar góðu afmæliskveðjurnar.
Ég er nú að fara heim úr vinnunni að sinna dóttur minni sem er komin með Barcelonapestina okkar Palla :o(
Bestu kveðjur
Hanna 40 ára

Jóhanna Marína Baldursdóttir

4.3.2008 kl. 21:36

Hláka og 6 stiga hiti!

Gott kvöldið! Hér er komin hláka og 6 gráðu hiti, Eiríkur minn á að fara í skíðafferð í Bláfjöll á morgun með skólanum en ég er hrædd um að af því verði ekki en það kemur í ljós á morgun. Ég kíkti á afmælisbarnið í dag og fékk veilsukaffi á 40 ára gömlum útsaumuðum dúk úr búi ömmu Marínu og drakk kaffi úr gamala sparistellinu hennar, þetta smakkaðist allt einstaklega vel og gaman að sjá þessa hluti. Afmælisbarnið ber aldurinn nokkuð vel en núna er hún eiginlega alveg að ná mér í aldri :-). Læt þetta duga í dag.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

3.3.2008 kl. 19:59

Á ég að trúa þessu.

Elsku , Freyr , litli hunangsdropinn.Til hamingju með átta ára afmælið en mér finnst bara svo ótrúlegt að árin hafi liðið svona fljótt, þú ert nýbúinn að vera 5 ára finnst okkur. Guð og gæfan veri með þér og bestu kveðjur til fjölskyldunnar. Dísa og Geiri.

Hjördís Kristjánsdóttir

3.3.2008 kl. 14:17

Sælt veri fólkið og elsku Freyr frændi innilegar hamingjuóskir með 8. ára afmælið, mikið finnst mér nú stutt síðan þú fæddist og ég man eftir því að afi Baldur sagði þá, hefði ekki verið hlaupár þá hefðir þú fæðst á áfmælisdegi mínum (Hönnu) Gaman að sjá að Víðir Lundi og Siggi Atla eru líka farnir að tjá sig á síðunni og Siggi meir að segja í bundnu máli, bara glæsilegt.
bestu kveðjur til allra úr veðurblíðunni í Kópavogi
kv. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

3.3.2008 kl. 13:30

Afmælismánuðir, Freyr til hamingju með daginn

Sælt veri fólkið og sendi afmæliskveðjur til allra sem eiga afmæli um þessar mundir Dika í gær, Freyr í dag og Hanna á morgun. Mér finnst virkilega gaman að sjá að hér skrifa æ fleiri og Siggi Atla og Víðir velkomnir í blogg hópinn. Góðar kveðjur Malla

Marína Sig.

3.3.2008 kl. 13:13

Til hamingju með daginn Freyr frændi!

Já enn halda afmælin áfram og innilegar hamingjuóskir í tilefni 8 ára afmælisins þíns Freyr.
Kveðja úr Skálaheiðinni

Guðrún Sigurgeirsdóttir

3.3.2008 kl. 11:42

áhugaverð síða

sælt veri fólkið,er nú að skoða þessa síðu af einhverri alvöru í fyrsta sinn og líkar vel.Finnst fólkið ótrúlega duglegt að skrifa og held að ég verði að herða mig og tjá mig eitthvað stöku sinnum.Er búnin að eyða síðustu 3 dögum í Reykjavík hjá systrum mínum þeim til ómældrar gleði er að stefna norður núna á eftir.Gerðist ofur menningarlegur og fór í óperuna virkilega magnað,og svo auðvitað var aðeins tekið út næturlífið þannig að staðan er lík og venjulega þegar maður fer heim úr svona (fríi) er ég svefnlaus og ákaflega þreyttur,enda aldurinn farin að segja til sín og varla hægt að sleppa mörgum nóttum úr.

Í sveitasælu held nú heim,
horfinn er minn kraftur
sytrum mínum segi tveim
samt mun koma aftur.

kveðja sigatla

sigurður atlason

2.3.2008 kl. 11:23

Elsku Dika frænka Innilegar hamingjuóskir í tilefni dagsinns Héðan allt gott að frétta .Nonni og hans kærasta una sér vel í nýju íbuðinni og hafa það gott, Litla fjölskyldan í Álfheimum hefur það líka gott og við gamla settið á Kleppsveginun unum bara sæl við okkar Hafðu goðan og skemmtilegan dag, Guðrún frænka

Guðrún Jónsdóttir

gudrun-jonsdottir@hotmail.com

2.3.2008 kl. 9:44

Afmæli og nóg af þeim

Held að það sé best að óska fólki til hamingju með afmælin sín bara hér ,,,,og svo bara kveðja til allra hinna

Víðir L

2.3.2008 kl. 9:36

Afmæli

Dika til hamingju með daginn og takk fyrir myndirnar, Einnig vil ég fyrir hönd Agnars þakka fyrir allar kveðjurnar, héðan að austan er allt gott að frétta,vetur konungur er hérna þessa dagana, allt hvítt og fallegt. Það kom fullt að fólki að norðan í afmælið hjá Agnari þannig að það hefur verið nóg að gera þessa helgina og mjög gaman,

Siggi Hreinn

www.123.is/lundarbrekka

2.3.2008 kl. 8:34

Elsku Friðrika systir, til hamingju með daginn!

Já góðan og blessaðan daginn! Hér bara vetur, frost og skafrenningur. Ég var að rifja upp í gærkvöldi að á þessum tíma þ.e. febrúar/mars áttu ALLIR afmæli (og eiga reyndar enn :-), en mér fannst frekar fúlt að eiga afmæli í október þegar næstum allir hinr krakkarnir á torfunni nema Jónas áttu afmæli á þessum tíma. Það var allat annaðhvort smalamennska eða sláturtíð á mínu afmæli. en alltaf var nú haldin afmælisveisla og ég átti hana ein þannig að þegar upp er staðið hefur þetta sennilega bara verið betra. Annars er allt gott hér hjá okkur, við Eiríkur erum aðfara í messu kl. 11.00 , þá síðustu fyrir fermingu. En ég vona að þið eigið notalegan sunnudag og aftur til hamingju með daginn Dika.
Guðrún

Guðrún Sigurgeirsdóttir

28.2.2008 kl. 21:05

Þakklæti

Elskulegu ættingjar og vinir, yngri sem eldri. Mínar innilegustu þakkir fyrir allar kveðjurnar og hamingjuóskirnar í dag, bæði hér á síðunni, en líka tölvupóst , símtöl og hjá sumum hvort tveggja. Anna Sæunn og Jói gerðu það ekki endasleppt en birtust hér um kaffileytið klyfjuð gjöfum og ég hafði reyndar bakað furstaköku og þeytt rjóma sem ég bjóst við að við sætum tvö að, en fékk svo þessa góðu gesti. Elma mín ,vonandi fer nú heilsan á elsku litla Atla að batna ef einhvern tíma skánaði tíðarfarið, sú var tíðin að maður leitaði til Ástu grasalæknis í öngum sínum og vandræðum. Hún er að vísu dáin en tvö börn hennar halda uppi merkinu. Hverju sem var að þakka þá var mixtúran kláruð og jafnvel endurnýjuð. Hanna mín, mamma þín lýsti því fyrir mér í símann þegar verið var að máta peysufötin og ég óskaði þess að ég hefði verið komin. En auðvitað þarf að setja þau í hreinsun og dytta að þeim , fá nýja skotthúfu og sjálfsagt er nú slifsi og svunta í geymslu hjá mér sem nota mætti og líka útvega nýtt.. En það er gaman að þessu. Geiri er farinn að spila bridds á Fosshóli en biður að heilsa. Enn og aftur .Takk fyrir mig. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

28.2.2008 kl. 20:05

Afmæliskveðja og fleira

Við hér í Glaðheimum óskum Dísu til hamingju með daginn. En héðan er annars helst að frétta fyrir utan að veðrið er alltaf ömurlegt að Atli er núna með þriðju lungnabólguna á 2 mánuðum og heimilisfólkið því alvarlega farið að hugsa um að eyða næsta vetri á heitari slóðum. Ef einhver veit um "ömmu" sem vantar vinnu dag og dag þá má alveg láta mig vita.
Bestu kveðjur. Elma

Elma Atladóttir

28.2.2008 kl. 15:25

Afmæliskveðja

Elsku Dísa
Innilegar hamingjuóskir með afmælið.
Bestu kveðjur
Hanna og fjölskylda

Jóhanna Marína Baldursdóttir

28.2.2008 kl. 12:22

Afmæli

Elsku Amma! TIl hamingju með afmælið í dag!
Hafðu það nú gott!
Kveðja

Anna Sæunn og Jói

Anna Sæunn

28.2.2008 kl. 10:19

Afmæli

Elsku Amma! TIl hamingju með afmælið í dag!
Hafðu það nú gott!
Kveðja

Anna Sæunn og Jói

Anna Sæunn

28.2.2008 kl. 10:02

Elsku mamma á afmæli í dag!

og innilegar hamingjuóskir sendum við þér héðan.
Rúna, Kiddi, Eiríkur og Eva Margrét

Guðrún Sigurgeirsdóttir

28.2.2008 kl. 9:19

Til hamingju með daginn.

Elsku mamma til hamingju með daginn. ákvað að senda hamingjuóskir um þennan miðil og hringi seinni partinn þegar ég verð komin heim. Er sem sagt í vinnunni að undirbúa kennslu o.fl. Bestu kveðjur Malla

Marína Sig.

28.2.2008 kl. 6:26

Hún á afmæli í dag

Ídag á húsfreyjan á Lundarbrekku afmæli Elsku Dísa til hamingju með daginn Kveðja til frænda frá okkur hér á Kleppsveginum Guðrún

gudrun-jonsdottir@hotmail.com

27.2.2008 kl. 11:36

Gleymdi

Sæl aftur ég gleymdi að segja innilegar hamingjuóskir með afmælið Ragna frænka, mér skilst að við frænkurnar ætlum að hafa frænkuboð, þ.a.s. ég, Guðrún, Elma og Ragna með börnin okkar, við verðum að fara að drífa í því að hittast þetta gengur ekki að búa allar hér á höfuðborgarsvæðinu og hittast aldrei og börnin mín þekkja ekki börnin ykkar Elma og Ragna en Guðrún hefur nú verið duglegri en ég að hafa samband. Þegar við hittumst í fermingarveislunni þá held ég að við verðum bara að festa dag fyrir frænkuboðið.
kv. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

27.2.2008 kl. 11:11

Veturinn heldur áfram

Góðan dag gott fólk, jæja þá er ég komin úr árshátíðarferðinni til Barcelona og það var að sjálfsögðu ægilega gaman og loksins fengu allar kellurnar sem ég vinn með að sjá hann Palla minn og þær heilluðust auðvitað af honum. Já mikið er nú gaman að fylgjast með hér á síðunni og gaman að sjá hvað margir eru farnir að tjá sig. Þegar ég las skrif Möllu þá áttaði ég mig á því að það verður líklega ekki hentugt fyrir mig að vera í peysufötunum í fermingarveislu Eiríks þar sem ég hef líka boðið mig fram í eldhúsið, þannig að ég er löglega afsökuð :o) Ég er samt staðráðin í því að fara í fötin og láta mynda mig og birta á síðunni, ég verð bara að fara að drífa í því, best að biðja mömmu (af því að hún er enn hjá mér) að hjálpa mér að dubba mig upp í búninginn og bið svo Palla að smella af.
Ég náði mér í kvefpest þegar ég kom heim úr hitanum svoleiðis að kúnnarnir mínir í dag halda að ég sé agalega sorgmædd því þetta lagðist svo á augun mín en þetta hlítur að fara að lagast.
hafið það sem allra best
kv. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

26.2.2008 kl. 21:52

Takk

Takk fyrir mig. Er alveg að fara að senda myndir, á helling af myndum af mér og mínum, aðallega mínum:)

Kv. Ragna.

Ragna Atladóttir

26.2.2008 kl. 18:02

Til hamingju með daginn Ragna!

Eigðu ánægjulegan dag. Verðum svo að fara að hittast.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

26.2.2008 kl. 11:08

Tuttugasti og sjötti febrúar.

Ragna Atladóttir á afmæli í dag og við sendum hamingjuóskir og bestu kveðjur til hennar og barnanna.
Ég er að vinna í því að senda ykkur eina miðaldra mynd með um 50 andlitum sem ég er að streitast við að nafngreina áður en ég sendi hana frá mér. Ég á ekki stafræna myndavél og kann ekki á Ipod, en ég keypti mér skanna fyrir jólin og hefi haft ómælda ánægju af að snúa mér ögn til fortíðar í þessum efnum og þið hafið örlítið notið góðs af því. Sjáum hvað setur. Bestu kveðjur Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

25.2.2008 kl. 21:53

verður maður ekki að reyna að vera virkur..

þar sem maður skoðar þessa síðu thja næstum daglega=)
Það er allt gott að fretta og loksins er farið a snjoa aftur á Akureyri, og vonandi helst hann uppi fjalli sem mestur..
Annars lögðum við uppí langt ferðalag um helgina og fórum alla leið á ísafjörð og ekki skil ég hvernig fólk nennir almennt að keyra þangað! En samt sem áður var þetta var fínt, kepptum og fórum á nokkrar æfingar...

Sylvia

sylviaaosk.central.is

25.2.2008 kl. 15:50

Stafrænar myndir

Ég tek undir með Guðrúnu gaman ef kæmu fleiri myndir inn. Við hjón erum enn svo lítið tæknivædd að við eigum ekki stafrænamyndavél svo ekki koma myndirnar frá okkur. Einnig hef ég verið að leita mér að aðstoð við að læra að setja lög inn á Ipot sem Sævar var að eignast og þetta barst í tal við Önnu og Nonna í gær en upp kom að við erum öll haldin sömu fötlun og kunnum þetta ekki svo nú nota ég þennan miðil og auglýsi eftir leiðbeinanda. Helgin var góð í Norðurgötu og við Friðrika horfðum saman á söngvakeppnina og ég var harla fegin þegar búið var að upplýsa lögin í þriðja og öðru sæti. Páll Rósikrans var í uppáhaldi hjá mér en kaus samt Friðrik Ómar og Regínu og eins Magna og Birgittu bara til að kjósa eitthvað annað en þessi fyrrnefndu tvö lög sem ég óttaðist að færu út fyrir Íslands hönd.

Marína Sig

25.2.2008 kl. 14:16

Gaman að lesa þetta allt....

og fylgjast með ykkur. Skora á fleiri að láta í sér heyra hér á þessum vettvangi. Einnig ættu einhverjir að senda Sigga Hreini fleiri myndir til að koma hér inná síðuna, það er svo gaman að skoða þær. Annars er nú frekar vetrarlegt hér í dag, held það hafi verið um 10 gráðu frost í morgun. Við fjölskyldan eyddum helginni að Skógum undir Eyjafjöllum ásamt vinafólki okkar úr Hafnarfirði. Áttum þar virkilega notalega helgi og var mikið hlegið, spjallað, spilað og borðað. Fórum líka í gönugferðir og skoðuðum byggðasafnið þar já svo ég gleymi því ekki þá horfðum við að sjálfsögðu á Eurovision og lagði okkar vann. En mér fanns líka lögin hjá Páli Rósinkrans og Ragheiði Gröndal mjög flott en sennilega of flott fyrir þessa keppni.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

24.2.2008 kl. 21:57

Helgin liðin

Jæja þá er þessi helgi liðin og við komin heim eftir afleysingar fyrir mömmu og pabba í búskap. Þetta var fín helgi því mikið komst í verk, bæði í Kiðagili og heima, en samt náði maður að kvílast líka. Mamma og pabbi skruppu til Akureyrar og fóru meðal annars í mat til Möllu og í leikhús. Ég og Jói gáfum þeim eina nótt á Hótel Kea og leikhúsmiða í jólagjöf sem var notað í gær og lá ekki verr en svo á starfsfólki Hótel Kea í gær en að þau fengu sjálfa forsetasvítuna, svo þau Bjarnarstaðahjón, framar afar mörgum öðrum, geta státað sig af því að hafa gist í henni. Gaman að geta komið góðu til leiða! :)
Óli litli Skagfjörð var einmitt hjá okkur um helgina og hann er orðinn svo altalandi og skilningurinn orðinn svo djúpur að það er hreint ótrúlegt. Komst nú reyndar lítið annað að þessa helgi en afa dagtor og afa buuu og afa hitt og þetta. Svo var hann aðal hjálparkokkurinn í fjósinu (sumir myndu nú reyndar kalla þetta atvinnubótavinnu en hvað um það...), tók við málinu hjá okkur þegar við vorum búin að tutla (handmjólka til að ná síðustu mjólkinni úr kúnni) og bar að fötunni sem hún á að fara í, hellti góðri slummu, sem fór í flestum tilfellum á réttan stað, en fékk sér svo alltaf vænan sopa af restinni og passaði að það væri alltaf smá eftir í botninum til að geta dreipt á. Í fjármálageiranum held ég að þetta myndi kallast að draga sér fé... ! :)

Annars bið ég að heilsa, þetta er víst nóg í bili.

kv.

Anna Sæunn

24.2.2008 kl. 16:53

Konudagur

Sæl og blessuð öll saman.( Ég lýsi eftir skýringu á orðasambandinu"öll sömul", sem meðal annars Karl Th Birgisson notar svo einarðlega í þættinum skemmtilega " Orð skulu standa". Hvernig beygist þetta? Eins og gömul eða hvað?) En þetta er nú útúrdúr .
Til hamingju með konudaginn og þakka ykkur sem hafið verið svo dugleg að skrifa á síðuna undanfarið, aðallega konur auðvitað.Til hamingju Elma með hvað La Traviata gengur vel.
Ég man að ég táraðist yfir örlögum Kamelíufrúarinnar, þegar ég las bókina um fermingaraldurinn og get hugsað mér að þetta efni sé ekki síður áhrifaríkt þegar það er komið í óperubúning.Svo eru nú pælingarnar um íslenska búninginn skemmtilegar, látið endilega ekki sitja við orðin tóm.
Bestu kveðjur Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

22.2.2008 kl. 23:46

Afa drattor.

Góða kvöldið ættingjar góðir.
Í gistingu er hjá okkur Óli Skagfjörð en hann er rúmlega eins og hálfs árs , um leið og hann kom í dag vildi hann fara í afa drattor og alltaf þegar hann sér dráttarvél heldur hann að afi sé í henni.Það beygist snemma krókurinn þar. Anna Sæunn er hér heima líka en hún og Óli Hjörtur ásamt Jóa ætla að taka að sér búskapinn í sólarhring er við hjón bergðum okkur af bæ eins og komið hefur hér fram á síðunni.Enda oftast daginn á að líta hér inn mér til gamans og finnst frábært hvað er að lifna yfir skrifum hér. Að lokum bestu kveðjur.
Friðrika Sigurgeirsdóttir.

22.2.2008 kl. 9:56

Skemmtileg morgunstund

Góðan dag. Það er skemmtileg morgunstund að lesa skrif ykkar hér á síðunni, til hamingju Elma með hve óperan gengur vel og þú þarft að vinna mikla yfirvinnu. Hanna góða skemmtun í Barcelonaferðinni. Hanna mín ef þú mætir í peysufötunum í fermingu Eiríks mæti ég í upphlutnum mínum í kirkju þegar Eiríkur verður fermdur, ætla ekki að vera í honum í veislunni vegna eldhúsverka. á laugardagskvöldið ætla ég að taka á móti Bjarnarstaðahjónum og eiga með þeim ánægjulega kvöldstund þar sem þau ætla að eiga helgarfrí á Akureyri og fara í leikhús og gista á hóteli. Ég reikna líka með að elda ekki kjúkling það kvöld. Góðar kveðjur til ykkar allra og njótið helgarinnar malla

Marína Sig.

21.2.2008 kl. 9:51

Gott að byrja snemma

Góðan dag
takk fyrir áskorunina Elma mín, aldrei að vita hvað verður.......
Já mikið er gaman að heyra að Berglind litla er komin með hlutverk í óperunni, þetta eru allt saman litlir snillingar sem er um að gera að virkja snemma í söng og leik, meðan áhuginn er fyrir hendi :o)
Ég sá þig einmitt í kastljósinu Elma þar sem þið voruð að sjæna ykkur fyrir sýningu og hafði orð á því að ég yrði að drífa mig í óperuna.
Á morgun erum við hjónaleysin að fara til Barcelona í árshátíðarferð með sýslumannsembættinu og mamma er komin til mín til að gæta bús og barna á meðan.
Eigið góðan dag öll
kv. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

21.2.2008 kl. 0:56

Áskorun

Sæl aftur.
Skora hér með á Hönnu frænku mína að klæðast peysufötum ömmu Marínu í afmælinu og líka í fermingu Eiríks. Hlakka til að sjá konuna í peysufötunum
:-) Segi þetta í þeirri von að afmælisboð berist ...

God nat ...
Elma

Elma Atladóttir

21.2.2008 kl. 0:46

La Traviata og fleira skemmtilegt

Góða kvöldið kæru ættingjar.
Ég veit, það er komið fram yfir kristilegan svefntíma fyrir okkur vinnandi fólkið, en aukavinnan mín þessa dagana verður þess valdandi að lítið er um svefn sumar nætur. Ég dunda sem sagt við það 2-3 kvöld í viku að rölta syngjandi um svið Íslensku óperunnar í kór óperunnar í sýningum á La Traviata sem sýnd er við fádæma vinsældir og hver aukasýningin á fætur annarri hefur verið sett á dagskrá, meira að segja þegar ég ætlaði að líta á ættingja mína í fermingu Eiríks. Ég næ kannski að reka inn nefið þar áður en ég þarf að mæta í Óperuna. Berglind, dóttir Rögnu fer líka með örhlutverk í Óperunni og finnst það mjög gaman. Þannig að ef það leynast óperuáhugamenn í hópnum þá má berja okkur Berglindi augum í Íslensku óperunni næstu helgar ... og reyndar stundum á miðvikudagskvöldum líka. Atli bóndi á Ingjaldsstöðum og frú munu heiðra Óperuna með nærveru sinni á föstudagskvöldið ... og á laugardaginn verður að öllum líkindum hin notalegasta fjölskyldusamverustund þar sem Ingjaldsstaðabarnabörnin 4 munu njóta þess sjaldgæfa munaðar að hafa afa og ömmu í sveitinni í heimsókn. Líklega verður ekki kjúklingur í matinn hjá okkur systrum það kvöldið :-)

Bestu kveðjur úr Glaðheimum
Elma

Elma Atladóttir

20.2.2008 kl. 15:23

svo er snjórinn farinn

Góðan dag
Já veðrið er ekki lengi að breytast, mokandi snjókoma og hálka þegar maður fór í vinnu í morgun en síðan komin rigning og aftur rigning eins og það sé ekki búi að rigna nóg.............
Það má lengi tala um veðrið ef maður hefur ekkert annað að segja. Mér dettur í hug af því að það tengist nú einmitt þessari síðu að ég á peysuföt ömmu Marínu, og líklega verð ég að dubba mig upp í þau og láta Sigurpál taka mynd af mér og senda Sigga Hreini, til að setja á þessa síðu. Þá gæti ég reyndar í framhaldi fengið áskorun um að klæðast fötunum jafnvel ja í fermingu Eiríks þannig að ég veit ekki hvort ég legg í það, en það gæti verið ágætis æfing fyrir fermingu Særúnar, því ég man að Malla sagði þú verður í þeim þegar Særún fermist :o) Til gamans má geta að ég ætla að halda smá partý þegar ég kemst á fimmtugsaldurinn og það yrðu nú held ég svolítið hissa gestir ef húsfreyjan stæði mjaðmamikil í peysufötum í forstofunni og tæki á móti gestum með fordrykk.................bara smá grín og pælingar sem ég lofa ykkur að njóta með mér.
Allt gott að frétta hjá okkur
hafið það sem best
bestu kveðjur
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

20.2.2008 kl. 15:14

Betri tíð.

Kæru ættingjar og vinir sem skoðið þessa síðu.
Ég sé að hér líta margir inn og gaman að því og unga fólkið líka sem er allra best. Nú hafa orðið mikil stakkaskipti á veðri hér. Alla síðustu viku mikil hláka og allur snjór farinn af láglendi án þess þó að yrðu miklir vatnavextir. Okkar fáu ær fengu að fara út í gær eftir innistöðu síðan í nóvember og komnar rúllur" út fyrir garð" svo þær geta étið í sjálfsafgreiðslu og Geiri fær frí við að gefa en hreyfingu við að láta út og hýsa meðan svona viðrar. Við gömlu hjón fórum á dúndrandi gott þorrablót í Ljósvetningabúð með Atla og Stínu síðastliðið laugardagskvöld og lauk þar með þorrablótavertíðinni hér.
Það er kominn dorgarfiðringur í ýmsa karla, enda jafnast víst fátt á við það að sitja á skrínu úti á ís og difa færinu og draga hvern silunginn af öðrum upp um vökina.læt þetta nægja núna . Lifið öll heil

Hjördís Kristjánsd.

19.2.2008 kl. 13:52

Þá er farið að snjóa aftur!

Já snjórinn var passlega farinn þegar aftur er farið að snjóa, hér er mokandi snjókoma í þessum töluðu orðum. Ég verð reyndar að játa að mér líkar það betur en rigningin, rokið og myrkrið. En ég veit að það eru ekki allir sammála því. Það er allt gott að frétta hjá okkur núna síðustu viku Þorra en hann hefur eiginlega flogið framhjá, tíminn er einhvernveginn farinn að líða svo hratt að maður fylgist varla með. Þetta er sennilega aldurinn!! En alltaf gaman að kíkja á síðuna okkar!!

Guðrún Sigurgeirsdóttir

18.2.2008 kl. 12:47

hæhæ

vá, hvað það er langt siðan maður skoðaði þessa heimasíðuu =) Gaman að sjá hvað það eru virkilega margir virkir sem skoða hana dags daglega næstum... ;D

Sylvia

www.sylviaaosk.central.is

18.2.2008 kl. 7:57

Katrín 5 ára

Innilegar hamingjuóskir og kveðjur til fjölskyldunnar. Dísa og Geiri

Hjördís Kristjánsdóttir

18.2.2008 kl. 7:25

Til hamingju Katrín!

Já ég tek undir afmæliskveðjuna til Kat´rinar, innilegar hamingjuóskir elsku litla frænka.
Guðrún, Kiddi, Eiríkur og Eva Margrét

Guðrún Sigurgeirsdóttir

17.2.2008 kl. 21:31

Til hamingju með afmælið Katrín Jónsdóttir

Sæl verið þið öll. Sendi Katrínu litlu Jónsdóttur kærar kveðjur í tilefni af 5 ára afmælinu sem er í dag 17. febrúar.
Annars er gaman að lesa hér vangaveltur um hátíðisdaga og sé að ég þarf að taka upp sið ömmu Marínu og halda upp á Yngismannadaginn og eiga eitthvað gott með kaffinu þriðjudaginn þann. Allt gott af mínu fólki. Við fórum í Lundarbrekku og stoppuðum í einn sólarhring í góðu yfirlæti eins og ávalt en vorum komin heim um hálf sex á laugardag til að sá elsti og yngsti í fjölskyldunni næðu að horfa á leik í enska bikarnum í fótbolta. Voru þeir mjög ánægðir með úrslitin og að hafa séð leikinn.
Siggi Hreinn og fjölskylda bestu hamingjuóskir með nýju íbúðina finnið þið hvert annað í allri þessari víðáttu? Vonum að allir hafi það gott sem hér líta inn og lesa . Bestu kveðjur Malla

Marína Sigurgeirsdóttir

17.2.2008 kl. 9:50

Sælt veri fólkið .Var aðeins að líta inn til ykkar kæra frændfólk og kvitta að sjálfsögðu, Hér rignir bara og ætlar víst að halda því áfram.Allt gott að frétta af mínum heimavelli Kær kveðja Guðrún

Guðrún Jónsdóttir

gudrun-jonsdottir@hotmail.com

16.2.2008 kl. 20:17

Jamm og jæja

Það er svo gaman að lesa umræðurnar hérna! :)
Þrátt fyrir að ég sé ung og áhrifagjörn finn ég satt að segja heldur ekki þessa þörf til að halda upp á valentínusardaginn, reyndar hef ég nú heldur ekki haldið mikið upp á aðra íslenska daga, flestir þessir dagar eru bara venjulegir vinnudagar og því lítið hægt að bregða út af denjulegri dagsrútínu...
Annars ligg ég heima upp í sófa, uppgefin eftir vinnudaginn, laugardagar eru endalaust andlegt áreiti í lobbíinu, en það er líka mjög gaman því helgargestir eru flestir í fríi og í góðu skapi, margir eru t.d. að fara í leikhús. Það er t.d. hópur kvenfélagskvenna frá Þistilfirði í gistingu hjá okkur og þær eru voðalega indælar, ekta sveitakonur auðvitað! Maður tekur ótrúlega eftir því hvað fólk úr sveitunum er oft kurteisara og lausara við stress en margir aðrir, á ég þá aðallega við stressaða Reykvíkinga! ;) En það eru nú reyndar flestir bara ósköp inndælir.
Ég er svo að fara í leikhús á eftir á Fló á Skinni, voru eftir einhverjir auka miðar á KEA og ég ákvað að við skelltum okkur, þó ég hafi varla orku, en þetta á víst að vera alveg stórkostlegt stykki... Segi ykkur meira frá því síðar. :)
kv

Anna Sæunn

14.2.2008 kl. 11:33

Viðbót

Ég verð að segja ykkur frænkum að amma Marína "hélt alltaf upp á " Yngissveina eða yngismanna daginn með því að baka eitthvað gott með kaffinu alveg frá því að strákarnir hennar voru í vöggu og þangað til þeir voru "gengnir út" :)Synd að þessir siðir skuli geta týnst svona. En ég átti bara stelpur og hélt upp á sumardaginn fyrsta hvort sem var og það var kannski ekki svo mikið um þetta talað.Kv. Dísa.

Hjördís Kristjánsd.

14.2.2008 kl. 11:25

Góðan daginn
Já veðrið er yndislegt en þvílík hálka ég labbaði niður brekkuna í vinnuna í morgun og tel mig heppna að hafa sloppið óbrotin. Ég held ekki uppá valintínusardaginn en miklu frekar bónda og konudag, ég hef ekki heyrt um yngismeyjardag og Yngissveinadag en það eru dálítið flott nöfn á dögum :o)
Hafið það sem best
kveðja
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

14.2.2008 kl. 10:59

Saga daganna.

Góðan og blessaðan daginn var sagt í mínu ungdæmi, en sem nærri má geta er langt síðan. Heil og sæl öll. Já Guðrún mín ,ég er eins og þú að mér þykir lítið varið í Valentínusardaginn við áttum nóg af ágætis dögum til að halda upp á og sem voru notaðir fram yfir miðja 20. öld til að gera sér dagamun. Í sögu daganna eftir Árna Björnsson er hægt að lesa sér til um þetta, en ég fletti upp í almanaki Háskólans og sá að þar eru ekki lengur inni aðrir en Bóndadagur og Konudagur. En þetta voru fyrstu dagar gömlu mánaðanna, Bóndadagur fyrsti dagur Þorra,alltaf á föstdegi Konudagur fyrsti dagur Góu alltaf á sunnudegi, Yngismannadagur fyrsti dagur Einmánaðar alltaf á þriðjudegi og Yngismeyjadagur fyrsti dagur Hörpu alltaf á fimmtudegi og alltaf á sumardaginn fyrsta. Skil ekki í Ásatrúarmönnum ef þeir halda þessu ekki á lofti! Hér er hláka 5-6 °hiti og vatn farið að renna svo höggva þarf klaka til að fá ekki vatn inn í kjallara. Allt gott hér. Kveðja . Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

14.2.2008 kl. 9:03

14. febrúar

Góðan dag! Í dag er þessi ágæti dagur 14. febrúar og ég er ein af þessum "gömlu" þar sem ég á frekar erfitt með að tileinka mér þessa amerísku siði þ.e. að halda uppá Valentínusardag. Ég er ekki nógu amerísk í mér það er greinilegt. Mér finnst við Íslendingar eiga svo mikið af skemmtilegum dögum sem við ættum frekar að halda á lofti og gera okkur dagamun þá daga. Man nú ekki alveg hvenær þeir eru en man eftir að hafa lesið í bókinni "Sögu daganna" um Yngismeyjadag og Yngissveinadag eitthvað í tenglsum við fyrsta vetrardag eða hver veit þetta? Mamma mannst þú þetta? En við eigum líka Bóndadag og Konudag sem hafa sem beturfer ekki gleymst. En hvaða dag eigum við Íslendingar fleiri. Endilega spáið aðeins í þetta.
Allt gott annars hér, hláka og 6 stiga hiti og mikil hálka á gangstéttum.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

10.2.2008 kl. 21:05

Bubbi innilega til hamingju með daginn og bestu þakkir fyrir mynd og jólakveðju um jólin, gaman að litli Jón Þór sé fæddur 3 ágúst sama dag og Geiri minn.Bestu kveðjur til fjölskyldunnar.
Friðrika Sigurgeirsdóttir.

10.2.2008 kl. 19:34

Baldur, til hamingju með daginn!

Tek undir afmæliskveðjuna hér að neðan. Til hamingju Baldur með daginn.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

evamargret.barnaland.is/

10.2.2008 kl. 12:41

Afmæliskveðja.

Baldur Jónasson á afmæli í dag og er 26 ára. "Bubbi litli", bestu hamingjuóskir á afmælisdaginn og góðar kveðjur til Söndru og Jóns Þórs.
Dísa og Geiri Lundarbrekku

Hjördís Kristjánsdóttir.

9.2.2008 kl. 10:47

Daginn gott folk og annað Fólk

Datt í hug að henda kveðju hér inn svona fyrst maður er hér,alltaf jafn gaman að skoða þessar gömlu myndir

Víðir Lundi

Gambri4x4.tk

8.2.2008 kl. 23:18

Lægð yfir landinu...

Já það er skondið hvernig veðrið er þessa dagana. Allt á kafi í snjó fyrir sunnan og brjálað veður en hér er bara hláka, allavega þessa stundina. Það var svolítið skrautlegt að vinna á Hótelinu í gær því dagurinn fór að mestu í að tékka út og inn sama fólkið og taka við afbókunum fyrir helgina. Skondið að það var einn Ítala hópur sem voru ákveðin í að komast suður, ætlu þau hafi ekki átt flug út daginn eftir, og hættu sér á rútu suður um miðjan dag og freistuðu þess að búið yrði að opna Holtavörðuheiðina, en vesalingarnir sátu föst upp á Öxnadalsheiði hálfan daginn og máttu svo loksins snúa við til okkar þegar búið var að losa þau. Maður veltir bara fyrir sér hvað það hljóti að vera gaman að vera í fríi sem hefur nú örugglega ekki kostað lítinn pening og lenda svo í þessu...

Jæja allavega, bestu kveðjur til allra hér.
Anna Sæunn

Anna Sæunn

8.2.2008 kl. 16:02

Enn ein lægðina að ganga yfir

Sæl veri fólkið!
Enn ein lægðin að ganag yfir okkur. Ég mætti ruslatunnum og alls konar dóti á leiðinni heim úr vinnunni. Vonandi gengur þetta nú fjótt yfir, sýnist allavega að það verði ekki farið mikið út úr húsi í kvöld. Best að glápa bara á sjónvarpið :-).

Guðrún Sigurgeirsdóttir

evamargret.barnaland.is/

7.2.2008 kl. 19:17

Góðan daginn gott fólk.Hér í höfuðborginni ríkir vetur Svona snjó og ófærð hef ég ekki séð hér fyrr kannast vel við svona veðurfar á Austurlandinu.Var að skoða gömlu myndirnar og ég man vel eftir því að ég var viðstödd ullarþvott þar sem frænka mín stoð við ullarþvottinn Mér fannst þetta æði merkilegt kaupstaða barninu Þetta er frábær síða óska ykkur til hamingju með hana Kær kveðja frá okkur á Kleppsveginum Guðrún.

Guðrún Jónsdóttir

gudrun-jonsdottir@hotmail.com

7.2.2008 kl. 17:53

Sjöundi febrúar.

Góðan dag. Ekki er nú samt gott veður hér ídag snjóaði um tíma í morgun svo hvessti á vestan ogerði öskubyl um alllangan tíma ,svo er að hvessa af suðaustri næst. Óli Hjörtur okkar. Innilegar hamingjuóskir með 29 ára afmælið og láttu þér nú batna þessa andstyggðar pest sem er að herja á þig og þína.Afi biður kærlega að heilsa. Amma Dísa.
P. S. Kærar kveðjur til allra lesenda síðunnar.

Hjördís Kristjánsdóttir

7.2.2008 kl. 9:12

Alvöru snjór!

Góðan dag.
7. febrúar og alvöru snjór hér á höfuðborgarsvæðinu.
Til hamingju með daginn Óli Hjörtur! Mér finnst nú eiginlega mjög stutt síðan hann fæddist, en hann er víst 29 í dag. Þetta er ótrúlegt, bara alveg að ná mér. En eigið góðan dag.
Guðrún

Guðrún Sigurgiersdóttir

6.2.2008 kl. 20:11

Góða kvöldið.
Sit hér ein heima og nenni ekki að gera neitt, kallinn á leikæfingu út á Breiðumýri, ég hef síðustu þrjá daga unnið út í Hamsahúsi frá morgunmjöltum og frameftir degi svolítið mislangir dagarnir þar.En nú er vinnuvikan þar búin bara kusurnar og annað þvíumlíkt að snúast við fram á mánudag. Skoða þessa síðu flesta daga en eins og fleiri er ég ekki nógu dugleg að kvitta hér fyrir mig.Að lokum bestu kveðjur.Dika

Friðrika.

6.2.2008 kl. 10:39

Góðan dag
Þá er öskudagurinn runninn upp enn eina ferðin, ég útbjó lítinn sjóræningja í leikskólann í morgun, þar var glaður drengur á ferð.
Hjá mér núna er ekki mikill "vinnufriður" margir skrautlegir hópar á ferð með mismunandi úgáfur af sama laginu :o)
Já það er gaman að þessu öllu saman.
Dísa, Siggi Hreinn var svo góður að senda mér myndina í tölvupósti, þannig að ég get prentað hana út fyrir mig, takk fyrir það
Bestu kveðjur til allra
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

5.2.2008 kl. 21:28

Gott kvöld. Já , Hanna þessi mynd af þeim bræðrum var í gömlum konfektkassa sem Sigurður afi færði mér einhverntíma seint á árum,þetta voru myndir
ömmu ykkar og hann fékk mér þær til varðveislu.Hann kom líka með albúmin með öfum og ömmum, en það er líka albúm hjá Diku sem amma átti, sem hún sagði mér frá en við höfum ekki skoðað. En myndirnar sem ég sendi Sigga Hreini í pósti eru ennþá hjá honum ,þær gleymdust þegar þau komu um jólin, en hann ætlaði að skila þeim þá en ég hélt að best væri að hann kæmi bara með þær næst.Bestu kveðjur. Dísa

Hjördís Kristjánsdóttir

5.2.2008 kl. 15:09

Góðan dag
Já maður á að kvitta í gestabókina í hvert skipti sem maður fer inn á síðuna :o) Ég hef ekki alveg staðið mig nógu vel í því en allavega kvitta ég núna. Það er búið að vera rólegt hjá mér í vinnunni í dag þ.a.l. hef ég verið að rannsaka myndirnar betur, þó sérstaklega gömlu myndirnar og þetta er auðvitað alveg frábær fjársjóður af minningum. Átt þú þessa mynd Dísa af Geira og pabba þegar þeir eru litlir og pabbi er uppi á stól ægilega rogginn á svip?
Hafið það sem best
kveðja Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

5.2.2008 kl. 11:19

Halló ! Halló !

halló frá Kópavogi !
Bara kvitta fyrir mig , ég var bara að skoða myndir og fleira á þessari flottu síðu !

Særún

saerun.blog.is

4.2.2008 kl. 21:11

Kæri Siggi Hreinn

Mér til mikillar gleði og örlýtis klökkva er ég búinn að skoða þessa síðu í kvöld. Takk.
Jónas á Lundarbrekku

Jónas Sigurðarson

4.2.2008 kl. 10:17

Bolla, bolla, bolla!

Góðan dag. Varð fyrst á Bolludag til að skrifa í gestabókina. Ég er nú búin að vera lasin síðustu daga en er óðum að ná mér eftri að ég fékk minn venjulega sýlalyfjaskammt :-). Börnin í vetrarfríi í dag og á morgun og svo hafðbundnar Öskudagsskemmtanir á Öskudaginn. Hér hefur aðeins hlýnað síðan síðast, en enn vetur og snjór.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

evamargret.barnaland.is/

3.2.2008 kl. 9:20

Molar.

Heil og sæl öll.
Mér datt í hug að setja hér inn nokkrar vísur sem Sigurður afi var oft að fara með og rifja upp fyrir sér og tengdust ævi hans og umhverfi í Stafni. Víðasel var einn af heiðarbæjunum, ( í byggð 1863-1926 .Byggðir og bú 1985) Síðasti ábúandi þar var Baldvin Jónatansson, "Baldvin skáldi" og vísur hans og kviðlingar krydduðu tilveruna í lífinu sem þá var lifað. Baldvin var bláfátækur og hjálpsemi góðra granna og annara gerði honum kannski mögulegt að hafast við í Víðaseli.Svo launaði hann greiðviknina með vísu.
Baðlyf kom í Stafn sem Baldvin átti. Þá kom þessi vísa.
Gustuk að þið gerið verk
á góðu baðlyfs safni
Baldvins er það bónin sterk
til bændanna í Stafni.
Jón í Stafni fékk þessa vísu í sendiferð í Víðasel.
Jón í Stafni ötull er
ungur stálarunnur.
Hefur étið hrafnaber
hans það sýnir munnur.
Baldvin orti er hann var við slátt með Baldri bónda á Lundarbrekku í rigningu.
Ýmis heiði, hættu að rigna
hlæi sól um fold og grund.
Lilju grösin láttu ei digna
lengur en fram á tólftu stund. Þá brá svo við að birti upp.
Já nú er bollu og sprengidagsátið framundan en það var nú undirbúningur 7 vikna föstu . Ætli því sé haldið til haga eins og öllu átinu Hafið það sem best öll. Kveðja Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

1.2.2008 kl. 22:23

Fréttir

Já það tekur alltaf eitthvað við, hátíðirnar nýbúnar og maður heldur að nú geti maður aðeins tekið sig á í mataræði og hrist af sér jólaspikið, en nei áður en maður veit af er átþrennan mikla hafin, bolludagur, sprengidagur og öskudagur. Býst við að páskarnir verði líka komnir áður en maður veit af, og í kjölfarið sumarið... mmm ég hlakka svo til í sumar, það er ekkert betra í heiminum en íslenskt sumar! Annars, til að koma með smá fréttir, þá er búið að færa mig um deild á Hótel Kea, ég var í morgunmatnum þar sem ég mætti kl 6 á hverjum morgni og sá um morgunverðinn og vann til ca. 12 en er núna komin í lobbíið þar sem ég mæti hálf 8 og vinn 12 tíma vaktir, vinna þrjá daga og frí í tvo og svo frv. Þetta er eiginlega mikið betra því maður fær heila frídaga í staðinn. Er reyndar ennþá að vinna í abaco líka en ætla reyndar að reyna að hætta þar með vorinu og vera Kiðlingur í fullri vinnu í sumar..
Jæja, fleiri að koma með fréttir... :)
kv Anna Sæunn

Anna Sæunn

1.2.2008 kl. 11:41

Góðan daginn gott fólk, já það er kalt í Kópavogi í dag en afskaplega fallegt veður.
Nú er það saltkjöt og baunir og bollur framundan nammi namm...
Allir hressir í Álfaheiði og sendum bestu kveðjur til allra
kv. Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

1.2.2008 kl. 9:01

1. febrúar

Góðan dag!
Brrrrrrrr hér er 10 stiga frost og smá gola og mér finnst hann heldur kuldalegur og spáir líka kólnandi, alvöruvetur! Ég er búin að liggja veik heima í gær og dag með þessa helv.... hálsbólgu. En ég er nú alveg sérstaklega næm á að grípa hana hvar sem hún er. En hér er annars allt með kyrrum kjörum og lífið gengur sinn vanagang. Það er nú að lifna yfir síðunni hjá okkur og gaman að heyra frá sem flestum já og svo getur maður alveg gleymt sér í að skoða þessar gömlu myndir, þær eru alveg dásamlegar margar hverjar.
Guðrún

Guðrún Sigurgeirsdóttir

evamargret.barnaland.is/

30.1.2008 kl. 21:54

Já Elma mín ég verð líklega að fara að gæta tungu minnar betur, það eru fleiri búnir að taka mig á orðinu en þú, Siggi Hreinn búinn að setja slóðina á Fjárvís inn, en ég var auðvitað að grínast því við erum ekki með aðgangsorð að Fjárvís og höfum aldrei haft en ég meinti þetta nú þannig að það yrði helst til þess að Siggi bróðir þinn liti á síðuna Þakka þér svo fyrir myndirnar ég er ekki búin að skoða þær sem komu í dag,geri það á morgun . Kv. Dísa.
P.S. Ég held alltaf að ég hafi móðgað þá sem kalla mig frú Hjördísi , bið því afsökunar til vonar og vara.H.K.

Hjördís Kristjánsd.

30.1.2008 kl. 17:11

Myndir

Tók frú Hjördísi á orðinu og sendi Sigga Hreini nokkrar myndir. Því miður hef ég ekki mikinn áhuga á traktorum og því ekki mikið um slík tæki á myndunum, held þó að það megi sjá umræddan "Jón dýra" ef vel er að gáð. Reyni að taka fleiri traktorsmyndir í næstu norðurferð :-) Held að bæði sjáist þó kindur og jafnvel hundur á myndunum sem ég sendi.
P.S. Malla það munu engin útstæð eyru erfast frá mér :-)

kv. ELma

Elma Atladóttir

29.1.2008 kl. 22:05

Kvöldskemmtun

Góða kvöldið. Við hjón erum búin að eyða góðum klukkutíma við tölvuna að skoða myndir, þvílíkur fjársjóður, mynd af ömmu að þvo ull, Lundarbrekkukonur á ýmsum árum, börn frá öllum áratugum o.sv.fr. Hugsið ykkur hvað þetta er skemmtilegt til að tengja saman kynslóðir og sýna þeim yngstu myndir frá búskaparháttum og fólki á fyrri árum. heimsótti Gósu í tilefni af afmælinu og við skemmtum okkur við að rifja upp hvenær þessar myndir höfðu verið teknar, svo er það hárgreiðslan og tískan. Elma mín ekki henda myndunum af þér við verðum nú að geta skoðað hvaðan ættareinkennin koma og hvert þau erfast eins og t.d. útstæð eyru. Bestu kveðjur Malla

Marína Sig.

29.1.2008 kl. 10:28

Tölvunámskeið

Heil og sæl
mér datt í hug þegar Elma segir að mamma hennar eigi sennilega ekki eftir að lesa þetta að ég var að tala við mömmu í gær og hún var að tala um myndir á síðunni en Jónast hafði sýnt henni síðuna um helgina og hún skemmti sér vel við að skoða gamlar og nýjar myndir og ætlaði ekki að trúa að ég hefði átt þessa mynd af henni og Diku og Möllu (bara aldrei séð hana)
Síðan heyrði ég í henni aftur í gærkvöld en Særún mín talaði lengi við ömmu í tilefni dagsins og mamma sagði svo við mig í framhaldi af þessu tali okkar um myndirnar að líklega yrði hún bara að fara að fá sér tölvu og fara á námskeið :o)
Hafið það sem best
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

29.1.2008 kl. 8:58

Meira gaman

Góðan daginn. Nú líkar mér við ykkur stelpur mínar. Elma mín ég vil vekja athygli á því að það má líka setja inn myndir úr búskapnum, kindur, kýr og jafnvel myndir af traktorum " Jón dýri" t.d. flott myndefni fullt af svoleiðis fínu efni á Ingjaldsstöðum. Þú skalt nú ekki vera svo viss um að mamma þín eigi ekki eftir að lesa það sem hér mer skrifað, hana vantar ekki áhugann bara að fá tengingu við sína tölvu, þá held ég að hún hefði mjög gaman af að fylgjast með okkur hérna.En ég hefi einmitt saknað þess hvað fátt er um myndir og skrif frá Atla legg.Siggi Hreinn var að setja inn Ferguson síðu, ætli við verðum að setja inn Fjárvís næst? kærar kveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

28.1.2008 kl. 23:08

Gaman

Komið þið öll sæl og blessuð.
Var búin að steingleyma þessari síðu en Malla minnti mig á hana og nú er ég búin að sitja í klukkutíma og vafra um og lesa og skoða myndir og skemmta mér mjög vel. Sýnist að minn leggur mætti nú vera duglegri við að tjá sig hér (eins og kannski á fleiri stöðum) og betrum bæta myndasafnið. Ég reyni að senda myndir við tækifæri, alla vega af syninum. Með nútíma tækninni eyði ég sem flestum myndum af mér :-)
Dettur alltaf reglulega í hug þegar ég er að mynda þegar mamma var að taka myndir af okkur systkinunum og við búin að stilla okkur upp og þá átti eftir að trekkja eða flasskubburinn var búinn. Svo komu myndirnar úr framköllun löngu seinna og þá vantaði kannski ofan á hausinn á einhverju okkar eða eitthvert okkar var bara hálft á myndinni. Held að mamma eigi ekkert eftir að lesa þetta ...

Bestu kveðjur úr leiðindavetrinum hér í Reykjavík. Elma

Elma Atladóttir

28.1.2008 kl. 19:23

Góðar kveðjur á þorran

Sæl verið þið öll og gaman að fara hér inn og lesa það sem hefur verið skrifað. Nú er janúar að verða liðinn og daginn tekið aðeins að lengja. Hér á Akureyri er allt mjög svellað og vetrarlegt þó að það sé nánast snjólaust. Vonandi hressist Eva fljótt Guðrún mín þó gott sé að kúra heima dag og dag. Kærar kveðjur Malla

Marína Sig.

28.1.2008 kl. 14:59

Gefst ekki upp......

.....að kvitta hér í gestabókina þó ég geri það dálítið oft miðað við marga. En Amalía Jónsdóttir á afmæli í dag og innilega til hamingju með það Gósa. En ég er heima við í dag vegna þess að hún Eva Margrét er með hálsbólgu og erum við því að kúra saman í dag mæðgurnar, eiginlega bara notalegt að fá svona veikindadag a.m.k. þegar það eru ekki alvarleg veikindi. Skora á ykkur frændfólk að vera nú dugleg að skrifa eitthvað hér inná heimasíðuna. Það er alltaf gaman að fylgjast með.
Guðrún

Guðrún Sigurgeirsd.

27.1.2008 kl. 11:47

Góðan og gleðilegan þorra.Anna Sæunn mín og þið öll í þorrablótsnefnd "Einingarinnar"2008 eigið heiður skilinn fyrir afbragðs þorrablót. Það eina sem á skyggði er gamla vandamálið að heyra.Hvort sem það verður einhverntíma leyst með betra hljóðkerfi eða bara texta handa okkur heyrnleysingjum,þá var dagskráin ágæt og hugmyndin um þróun tegundarinnar( er þetta ekki fengið úr þáttum David Attenborrow ?) var fín. Ég sé fyrir mér göngulagið, álútir með hendur á baki, nýlega las ég að þetta hefði nú verið kallað að teyma skrattann í sumum landshlutum , en um það' vissum við Bárðdælingar nú ekkert.Og flensusprautuserían og inkaupakörfurællinn, ég hlæ enn.Margt fleira mætti nefna svo sem góða og markvissa stjórn og Snorra Guðvarðarsyni má þakka bæði söngstjórn í fjöldasöng og danshljómsveit.Aðkomugestum fannst til um hvað dampurinn hélst á dansgólfinu frá upphafi til enda. Okkur sem oft höfum orðið vitni að endalausu hringli og þrætum um lok dansleiks fannst líka frábært að hætta á skikkanlegum tíma og fólk færi úr húsi með jafn góðu flæði og það kom inn. Ég upplýsi nú að ráðning gátunnar er r e f u r.Það eru allir löngu búnir að sjá. Set kannski aðra inn bráðum . Hafið það öll sem best. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

27.1.2008 kl. 11:08

Þorrablót

Góðan dag. Já það hefa nú yfirleitt ekki klikkað blótin í Bárðardal þó það sé langt síðan ég hef verið þar á blóti. Við ætlum að skeppa á eitt um næstu helgi hér í bæ sem við höfum farið á í mörg ár en það er þorrablót brottfluttra Patreksfirðinga og Rauðsendinga, það klikkar ekki. Við hér erum annars að fara á Akranes núna í dag í skírn, vonum bara að veðrið versni ekki úr þessu. En hér er dálítið hvasst og komin þíða. Eigið góðan dag.
Guðrún

Guðrún Sigurgeirsdóttir

26.1.2008 kl. 23:32

Gleðilegan Þorra!!!

Held ég hafi líka svarið við gátunni amma. Annars ætlaði ég að segja að mér er létt í dag því þorrablótið í Bárðardal er búið og þar ef leiðandi aðal stress síðast liðins mánaðar. Annars var ég ekkert smá ánægð með þetta, töluðu allir um hvað þetta hefði verið flott og gaman hjá okkur svo ég er allavega stolt! Ekkert smá stuð að vera í svona þorrablótsnefnd! :)
Sendi kveðju til ykkar allra.
Anna Sæunn

Anna Sæunn

annasaeunn.bloggar.is

26.1.2008 kl. 10:37

Heil og sæl allt skyi-ldfólk og vinirHér í höfuðborginni kom Þorri gamli með stæt En eldriborgarar á mínum vinnustap létu það ekki á sig fá og mættu á þorrablót stöðvarinnar flestir komnir undir nírætt og sumir komnir yfir það ,Hörku fjör í mannskapnum Þakka enn og aftur þessa síðu sem er frábær Með kærri kveðju

Guðrún Jónsdóttir

gudrun-jonsdottir@hotmail.com

25.1.2008 kl. 9:13

Gátan ráðin

Þessi gáta er leyst en gef ekki upp svarið frekar en Guðrún hér að framan. Vildi bara líta inn og kvitta fyrir mig. Vil skora á Lundarbrekku frændfólk mitt að vera duglegt að nota þessa síðu, þetta er svo gaman. Verið ávalt velkomin á Stafnssíðuna líka.

Sjáumst í kvöld á blótinu.
mbk,

Þröstur Kolbeins

25.1.2008 kl. 8:46

Fyrirgefið allar villurnar í textanum.

Guðrún Sigurgeirsd.

25.1.2008 kl. 8:43

Vetur hér í bæ á Bóndadag!

Góðan dag! Ég er búin að ráða gátuna en ætla samt ekki að setja svarið hér inn sov fleiri geti spreytt sig á henni. Í morgun er alvöru snjóbylur hér og gaman að vera úti, eða það finnst mér allavega. Það eru nú ekki alveg aðallara skapi heyrist mér. En þetta er tilbreyting frá rokinu og rigningunni. En ti lhamingju með daginn allir bændur landsins. Þorrinn byrjar með stæl.

Guðrún Sigurgiersdóttir

24.1.2008 kl. 9:28

Sæl verið þið öll. Ósköp er nú dauft yfir mannskapnum þessa dagana, fáir sem koma á síðuna, enn færri tjá sig. Við megum ekki láta þessa ágætu síðu lognast út af vegna áhugaleysis og framtaksleysis. Hér er ein gáta handa ykkur að glíma við, manni dettur nú bara í hug borgarstjórnarpólitíkin í henni Reykjavík.
Soltinn hann um fjöllin fer
Falskur þetta heiti ber.
Í þorskhausnum er sagður sá
Sérstök skák er kennd við þá. Kveðja. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

21.1.2008 kl. 15:33

Sælt veri fólkið.
Ég varð nú að fara að kvitta, það hefur enginn gert í rúma viku. Hér er tíðindalítið, snjór á jörð og frost frá 2°-10°. Vorum að fá í heimsókn sölumanninn, Ásgeir, frá Darra á Grenivík, með þorrablótsharðfiskinn, rófurnar og allt það, styttist í að sækja trogið, en hér á að blóta þorra n.k. föstudagskvöld .Látið ykkur líða sem best. Kærarkveðjur. Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir.

13.1.2008 kl. 10:07

Elsku Siggi frændi Alveg er þetta frábært hjá þér Hef gaman að að skoða þetta Kristján frændi sagði mér rá þessu Kveðja Guðrún besta frænka

Guðrún Jónsdóttir besta frænka

gudrun-jonsdottir@hotmail.com

12.1.2008 kl. 15:56

spurning (svara bara i gesto)

Hæhæ.
Ég ætlaði bara að spurja hvort við gætum fengið myndina af mér og Evu frænku að syngja??

Særún

.

11.1.2008 kl. 19:43

kveðja

Sælir kæru ættingjar. Ég ákvað að skrifa í gestabókina í þetta skiptið... fer reglulega inn á þessa síðu og skoða... gaman að þessu öllu saman:D
Bestu kveðjur frá Dalvík, Maja

Maja frá Sandvík

alexanderm.barnaland.is

10.1.2008 kl. 0:13

Smá afmælistjáning! :)

Kæru ættingjar! Gleðilegt nýár og takk fyrir afmæliskveðjurnar! :) Ég er satt að segja eiginlega nýbúin að uppgötva þessa síðu en verð áreiðanlega fastagestur hér eftir því hér er ótrúlega margt ómetanlegt og skemmtilegt. Mig langar í tilefni þess að segja nokkur orð sem liggja mér á hjarta.
Ég er ekki gömul en ég finn það að því eldri sem ég verð hef ég meiri löngun til að halda sambandi við ættingja og rifja upp gamlar minningar og lesa minningar annarra forfeðra eða ættingja. Maður áttar sig smátt og smátt á því að lífið er valt og hver dagur svo ofbosðlega mikilvægur.
Ég veit ekki hvort það einkennir mína kynslóð eða hvað, en allavega á það við um mig að vera alltaf að eltast við óorðna hluti, geta aldrei notið dagsins í dag heldur alltaf vonast eftir einhverju betra í framtíðinni. Ég vona að ég eigi eftir að geta vanið mig á að njóta augnabliksins, áður en það verður of seint og öll bestu augnablikin verði einungis horfnar minningar. Þess vegna ætla ég að vera dugleg að fylgjast hér með og ég vona að það eigi allir eftir að eflast í að nota þessa síðu sem samskiptamáta okkar á milli, sérstaklega þeirra sem búa í öðrum landhlutum. Það væri líka ótrúlega gaman, fyrir ráðvillt ungmenni eins og mig og fleiri ef veraldarvanari fjölskyldumeðlimir væru til í að skrifa minningar öðru hvoru sem koma upp í hugann, bæði góðar og slæmar, því slæmu minningarnar geta líka oft hjálpað þeim reynsluminni. Það væri gaman að safna í smá minningarbanka, allavega hefði ég gaman af að lesa slíkt.
Annars ætla ég ekki að hafa þetta lengra (þeir sem þekkja til mín vita að ég er langorð þegar ég tek mig til) en mig langar að segja hvað ég er stolt af að vera af þessari ætt, finnst allir hér vera svo frábært og duglegt fólk og eiga allt það besta skilið!
Hvernig væri annars að halda smá Lundarbrekkuættarmót við tækifæri?? :)
Þakka annars fyrir mig í bili, veriði endilega dugleg að skrifa og setja inn myndir því ég er viss um að það getur hjálpað mörgun að geta leitað hingað.
kveðja Anna Sæunn

p.s Sendi afmæliskveðju til Jóa Áslaugs á hinndaginn, 11. jan!

Anna Sæunn Ólafsdóttir

8.1.2008 kl. 11:53

Gleðilegt ár

Kæru ættingjar og vinir ég sendi ykkur öllum mínar bestu óskir um gleðilegt ár og þakka fyrir það gamla.
Ég sé það að ég fer alltof sjaldan inn á þessa síðu þó svo að ég hafi verið búin að lofa bót á því. Ég er þriðja í röðinni í tölvuna á heimilinu og þeir dagar sem ég hef verið í vinnu kringum jól og áramót hafa verið annasamir :o)
Varðandi bernskujólin mín á Lundarbrekku man ég ekki eftir jólaföndri með ömmu Marínu eða dans kringum jólatré en man vel eftir heitu kakói og súkkulaðilengum með sykri ofan á og þegar við frændsystkyni vorum að skreyta hjá ömmu og afa, (amma vildi skreyta mikið en afa fannst það óþarfi). Einnig er aðfangadagskvöld sterkt í minningunni allir saman í gömulu stofu og hvað amma var spennt með pakkana í hveitipokum og Geiri lék jólasvein, það sem maður fékk fallegar gjafir allt heimaprjónið á dúkkuna frá ömmu Marínu og stóran stafla af bókum. Laufabrauðsdagurinn er líka minnisstæður, við Gurún höfum tekið upp þann sið að gera laufabrauð saman sl. tvö ár og nú síðast vorum við einmitt að rifja upp ýmsar minningar frá þeim degi þegar við vorum börn og þegar við vorum að steikja þá orðuðum við það stundum að þessi hefði nú verið talin of dökk og illa pressuð :o)
Það er líka langt síðan maður hefur smakkað siginn silung en það er líka bernskujólalykt hjá mér því amma og afi borðuðu hann á aðfangadagskvöld.
Já það er margs að minnast og gott og gaman að ylja sér við minnignarnar.
Bestu kveðjur til allra
Jóhanna Marína

Jóhanna Marína Baldursdóttir

7.1.2008 kl. 7:51

Gleðilegt nýtt ár til allra ;O)

Mbk.
Anna Júlía Jófríðar og Alladóttir.

Anna Júlía

www.annajulia.bloggar.is, www.123.is/stafn1

31.12.2007 kl. 7:49

Kveðja á síðasta degi ársins!

Góðan dag. Hér er búið að vera heldur leiðinlegt veður síðasta sólarhringinn en er skárra akkúrat í augnablikinu. Ég er búin að fá mér morgungöngu með Moggann með Eiríki og var það mjög hressandi. Annars erum við búin að eiga róleg jól og á ég von á að áramótin verði það líka og vona að veðrið haldist þokkalegt. Ég óska ykkur öllum kæru ættingjar gleðilegs nýs árs og vona að þið eigið ánægjuleg áramót. Guðrún, Kristófer, Eiríkur og Eva Margrét

Guðrún Sigurgeirsdóttir

25.12.2007 kl. 23:03

Jólakveðja

Eg óska ykkir gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þakklæti fyrir það gamla.Gaman að fylgjast með ykkur í gegnum síðuna. Kær kveðja Ása frá Stafni

Ása

25.12.2007 kl. 13:07

Jólakveðja

Sendum öllum Stöfnungum nær og fjær, háum sem lágum okkar bestu jólakveðjur með von um gleði og hamingju á þessari miklu hátíð ljóss og friðar. Hafið þökk fyrir "samverustundirnar" á ættarsíðum þeirra bræðra og miklu snillinga, Helga í Stafni og Sigurðar á Lundarbrekku.

Kærar kveðjur,
Þröstur og Svala
Akureyri.

Þröstur Kolbeins

24.12.2007 kl. 17:05

kæra frændfólk og vinir
Óska ykkur gleðilegra jóla og góðs komandi árs Gunna frá Stafni

Gunna

24.12.2007 kl. 14:30

Jólakveðja

Sælir kæru ættingja. Sendi ykkur öllum óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári. Á margar ljúfar jólaminningar úr bernskunni. Fallegur aðfangadagur hér á Akureyri sem við látum líða í rólegheitum við matarundirbúning og Sævar heldur uppi spennustiginu á heimilinu. Kærar kveðjur malla

Marína Sigurgeirsdóttir

24.12.2007 kl. 12:15

Jólakveðja

Kæru ættingjar.
Nú er rólegur aðfangadagsmorgun hér á Bjarnarstöðum, engin börn og bara yngsta greyið heima og sefur vel út það er af sem áður var. Í morgun hef ég notið þess að vera í kvikmyndahúsi náttúrunnar að fylgjast með birtingu í morgun hefur verið alveg stórkostlegt, jólasnjórinn kom í gærkveldið og svo er tunglið fullt.Og að endingu óska ég ykkur aöllum gleðilegra jóla .
Bestu kveðju Friðrika.

Friðrika

23.12.2007 kl. 21:59

Gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár

Kæru ættingjar og tengdafólk.
Nú ætla ég að nota mér að óska ykkur öllum "þarna úti "innilega gleðilegra jóla og góðs komandi árs, með þakklæti fyrir árið sem nú á ekki nema um viku eftir af tíma sínum. Dætur mínar muna af skiljanlegum ástæðum betur eftir jólaföndri og barnakökum í gömlu borðstofu, en ég. En mér eru minnisstæðir laufabrauðsdagar, þegar byrjað var eldsnemma að morgni að breiða út laufabrauðið og keflasmellirnir heyrðust úr kjallara upp á efri hæðir, þegar búið var að snúa við borðplötunni á "séra Þorsteini" (borðið gekk undir því nafni , því það hafði verið keypt á uppboði endur fyrir löngu úr búi einhvers séra Þorsteins.) og breitt var út á borðplötunni öfugri. Svo var sameiginlegt laufabrauðskaffi fyrir alla á torfunni á eftir þegar búið var að skera og steikja, því allir sem vettlingi gátu valdið komu að skera, en laufabrauðsdagar voru stundum þrír eða fjórir, einn fyrir hvert bú. Jólakveðjur frá Geira og Dísu á Lundarbrekku.

Hjördís Kristjánsdóttir

22.12.2007 kl. 7:25

Gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár

Góðan dag, jú ég man eftir að væri dansað í krignum jólatréð í gömlu stofu en eftir föndrinu man ég ekki. Ég man líka vel eftir gamla borðstofuborðinu og heitu kakói og barnakökum eins og amma kallaði það. En ég er svo ung :-). En hér í Kópavogi er stillt og bjart og örlítið frost, tilbreyting frá síðustu rok og rigningardögum. Ég vil nota tækifærið og óska ykkur öllum kæru ættingar gleðilegra jóla og gæfu á nýju ári. Jólakveðja, Guðrún, Kristófer, EIríkur og Eva Margrét

Guðrún Sigurgeirsdóttir

19.12.2007 kl. 20:25

Ásláttarvillur

Biðst afsökunar á ásláttarvillum í texta hér á undan. Kv. Malla

Marína og Jóhannes

19.12.2007 kl. 20:23

Jólaföndur í gömlu borðstofu

Sæl kæru ættingjar. Sig hér og skoða myndir á síðunni og rifja upp jólaundirbúning með ömmu Marínu,. Lundarbrekkubörn munið þið jólaföndrið með ömmu og kakó og barnakökur á eftir við gamla borðstofuborðið. Þessar minningar koma mér í jólaskap einnig brosi ég ósjálfrátt þegar ég hugsa um ömmu drífa jólatréf í gömlustofu fram á gólf og alla út á gólfið að ganga í kringum það og syngja. Ég held að þetta hafi verið fyrir tíð jólastrss og jólakvíða. Njótið jólanna og góðar óskir um farsæld á nýju ári. Kveðja Malla

Marína Sigurgeirsdóttir

16.12.2007 kl. 10:58

Góðan daginn. Við höfum nú sloppið blessunarlega hér við veðrahaminn sem barið hefur á Suðvesturhorninu og víðar undanfarið. Hér var nóg að gera í gær við að fylgjast með viðburðadagatalinu eins og það heitir á síðu Þingeyjarsveitar.
Á Fosshóli eru laugardagar í desember samkvæmt þessum fræðum "viðburðadagar" og var það ekki með minna móti í gær.Við fórum gömlu hjónin, því veður var gott og hálka bara við hús og á heimreiðum , en þar var nú betra að gæta sín. Kvenfélagið okkar "Hildur " var með tombólu, Kristlaug í Engidal seldi fatnað, Goðafossmarkaður opinn og þar margt eigulegra muna til jólagjafa o. fl. Verslunin með ýmislegt á boðstólum og kaffihlaðborð með dýrindis tertum og svo líka kleinur og jólakökurog flatbrauð að sveitasið.Jólasveinar komu í heimsókn og heimamenn spiluðu á harmónikur, þeir Grímur og Tryggvi Hösk.EinarIngi söng með þeim nokkur lög og Kalli í Víðikeri söng líka og spilaði undir á gítar, mest jólalög. Ari Bald var líka á staðnum og fékk gítarinn hans Kalla lánaðan um stund og settist hjá harmónikufélögunum . Ef ekki á heimsmælikvarða, þá að minnsta kosti á landsmælikvarða var þetta allt. Svo var Óli í Hlíð með lifandi jólatré á boðstólum. Í gærkvöldi var svo jólahlaðborð í Kiðagili, sem "Kiðagilshópurinn " stóð fyrir. Ég verð að geta þess að salurinn var einstaklega fallega skreyttur og Grýla og Leppalúði tóku á móti gestum ,tóku af þeim ytri föt og vísuðu til sætis.Maturinn var "frábær", (er það ekki orðið sem notað erum allt meira en sæmilegt nú á dögum?), enda okkur málið skylt."Þingeysku dívurnar", Dagný og Stína á Ljósavatni sungu. Einar Ingi söng einsöng, Stína og Einar sungu tvísöng all frjálslegt og glatt og fullt af börnum með í borðhaldinu , allt niður í nýfædda hvítvoðunga.Maður var í senn uppgefinn og endurnærður eftir svona dag . Hafið það sem best öll saman. Kveðja Dísa

Hjördís Kristjánsdóttir.

14.12.2007 kl. 14:07

Góðan daginn
Já það er hryssingslegt veður í Kópavoginum í dag enginn skóli og fáir leggja leið sína til Sýslumannsins. Annars allt gott að frétta hjá okkur enginn rúða brotnað eða annað tjón en húsbóndinn áætlaði að fara til London í morgun en situr ennþá í flustöðinni og bíður eftir að komast. Helgin verður róleg, áætlað að fara og labba laugarveginn á morgun og fá sér heitt kakó vonandi verður veðrið skaplegt.
Bestu kveðjur til allra
Jóhanna Marína

Jóhanna M. Baldursdóttir

11.12.2007 kl. 21:41

Aðventan-góður tími

Verð nú aðeins að láta í mér heyra hér það gera það svo fáir. En hér á bæ er verið að undirbúa jólin í rólegheitum eins og líklega hjá flestum öðrum. Við frænkur ég og Jóhanna Marína ásamt fjölskyldum okkar, skárum og steiktum laufabrauð í gær og í kvöld var bakað aðeins á bænum. Annars er þetta allt mjög notalegt og yndilsegt allt nema jú veðrið. Ég hélt satt að segja að þakið myndi fjúka að kofanum í nótt en það slapp til sem betru fer. En það gerðist víst hér í næstu götu samt. Jæja verið nú dugleg að segja eitthvað hér eða allavega að kvitta fyrir innlitið. Njótið Aðventunnar

Guðrún Sigurgeirsdóttir

2.12.2007 kl. 21:39

Halló halló... alltaf gaman að líta hér inn. Úr DK er allt gott að frétta, enginn snjór ennþá, komu nokkur korn um daginn en ekkert hefur sest að. En kuldinn er hins vegar mættur á svæðið og það í miklu magni.

En bið kærlega að heilsa ykkur öllum, kveðja frá Danmörku Sibba.

Sibba

29.11.2007 kl. 13:26

Halló kæru ættingjar var að kíkja á ykkar síðu en ég geri það nokkuð reglulega en kvitta nú ekki alltaf ,gaman að fylgjast með ykkur líka .Kveðjur úr Melasíðunni .Sissa og co .

sissa (Gerður H alls .

28.11.2007 kl. 17:35

Ég er sammála síðasta ræðumanni!

Við verðum að vera duglegri að láta eitthvað í okkur heyra. Ég kíki flesta daga á síðuna en hef nú ekki kunnað við að vera að kvitta hvað eftir annað á eftir sjálfri mér hér. En hér í Kópavogi er grá jörð og mikil hálka sérstaklega fyrir gangandi vegfarendur. Þeir eru alltaf svo snöggir að salta göturnar blessaðir.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

http://evamargret.barnaland.is/

28.11.2007 kl. 17:15

Komið þið sæl öll í Lundarbrekkulegg.
Það eru komnir 17 gestir í dag og enginn hefur neitt að segja. Þau eru miklu duglegri að tjá sig á Stafnssíðunni. Öðru vísi mér áður brá, það þóttu nú meiri hávaði og læti og obb-o -bo í Lundarbrekkufólki hér áður. Hér snjóaði í nótt ,alhvítt og við eru orðin svo afvön vetri að okkur bregður í brún.Bestu kveðjur frá gamla landnámsbænum.

Dísa Lundarbrekku

22.11.2007 kl. 22:19

hæ hæ

Takk æðislega fyrir afmæliskveðjurnar,já já árin skella víst á mig eins og aðra.Það verður bara að taka því með bros á vör.

Hafið það gott öll sömul.

Kveðja kristín.

Kristín Aðalsteinsdóttir

21.11.2007 kl. 17:03

Hæ,hæ allir !

hæhæ , flottar myndir ! pabbi sendi mér þessa síðu bara á msn og ég fór á han , hún er voða flott ! :) bless í bili !

Særún Sigurpálsdóttir (dóttir Jóhönnu)

.

20.11.2007 kl. 13:35

hæh

herðu, ég vissi nu ekkert af þessari síðu fyrr en núna! Þetta er samt alveg rosalega sniðugt þvi þá getur maður séð myndir og aflað sér upplýsingar um gamla ættingja:)

Sylvia

blog.central.is/sylviaaosk

17.11.2007 kl. 14:11

Já tek undir afmæliskveðjuna!

Innilegar hamingjuóskir til afmælisbarna dagsins, Daða Jónssonar og Jónasar Baldurssonar.
Guðrún og fjölskylda

Guðrún Sigurgeirsdóttir

17.11.2007 kl. 13:05

Til hamingju með daginn Jónas og Daði og gangi ykkur allt í haginn um ókomna tíð.

Dika og Óli

12.11.2007 kl. 13:51

Komiði sæl kæru ættingjar, ég var búin að gleyma síðunni þannig að ég hef ekkert skoðað hana frá því fyrst og svo núna, þannig að það var mikil breyting, núna skoða ég hana oftar og kvitta fyrir mig. Það er frábært að sjá þessar gömlu myndir.
bestu kveðjur til allra
Hanna

Jóhanna Marína Baldursdóttir

9.11.2007 kl. 0:03

Já SeiSei

Jú flott er þetta nú hjá þér Siggi gaman að skoða þetta allt.
Bið að heilsa þér og þínum

Víðir Lundi

www.Gambri4x4.tk

7.11.2007 kl. 20:54

Alltaf gaman að kíkja á síðuna!

Gott kvöld!
Jæja kæru ættingjar, eigum við ekki að reyna að vera svolítið dugleg að skrifa í gestabókina og senda svo Sigga myndir o.fl. sem okkur dettur í hug að setja hér inn. Þetta er svo skemmtilegt.
Bestu kveðjur úr Kópavoginum.

Guðrún Sigurgersdóttir

6.11.2007 kl. 22:13

Mér þykir þetta gott framtak hjá frænda vildi sjá fleiri gamlar myndir og meiri skrif.Til hamingju með síðuna. Sig Kr.

Sigurður Kristjáns

2.11.2007 kl. 17:37

Til hamingju með síðun

Kæri siggi og aðrir ættingjar. Til hamingju með síðun gott að fletta upp afmælisdögum á henni var einmitt að því núna. Frábært framtak og verum nú dugleg að senda Sigga hreini myndir. Kærar kveðjur til allra Malla

Marína Sigurgeirsd.

2.11.2007 kl. 16:36

Síðan mánaðargömul
Til hamingju með það.
En það væri nú tilbreyting að fleiri en við mæðgur skrifuðum í hana, því einhverjir fleiri eru að skoða hana, eða er það ekki? Svo er það annað.Þröstur setti mynd inn á Stafnssíðuna af Sigurgeiri og Kristínu og sonum þeirra, en myndin er illa farin og höfuðið vantar á Pétur. Hann er að lýsa eftir betri mynd. Í ættartölunni frá 1994?
er þessi mynd , að vísu örlítið önnur uppstilling, en sú mynd er heil. Man nú einhver hver skannaði myndirnar inn og hvaðan komu þær þá ? Kveðja.

Dísa Lundarbrekku.

1.11.2007 kl. 8:14

Er ekki síðan mánaðar gömul í dag?

Mánuður síðan Siggi startaði þessari síðu og ég kíki oft á hana. Mikið er gaman að skoða allar þessar gömlu myndir, þetta er frábært!
Guðrún

Guðrún Sigurgeirsdóttir

http://evamargret.barnaland.is/

31.10.2007 kl. 21:16

Skrifa í gestabókina núna því að hún virðist ekki uppfærast hér nema sé skrifað í hana,alltaf gaman að skoða þessa síðu.

Friðrika

20.10.2007 kl. 23:26

Í dag 20 okt hefði hún amma orðið 99 ára ef henni hefði enst aldur til, bara að minna á afmælisdaginn hennar. Skoða þessa síðu reglulega, og skora á ykkur sem skoðið síðuna að vera duglegri að skrifa í gestabókina.

Friðrika

20.10.2007 kl. 11:33

Það var öllum á "torfunni"boðið í lummukaffið.

Oftast voru menn í sláturstörfum á þessum árstíma og það var kærkomin tilbreyting að hittast í lummukaffinu. Svona hefða er gott að minnast, þegar tveir eða þrír eru að gaufa þar sem áður var hægt að kalla saman 20-30 manns. Bestu kveðjur til ykkar allra . Dísa.

Hjördís Kristjánsdóttir

20.10.2007 kl. 10:24

Amma hefði orðið 99 ára í dag

Lummukaffi á Lundarbrekku var siður þennan dag. Best að steikja lummur með kaffinu í dag. Eigið góða helgi.
Guðrún

Guðrún Sigurgeirsdóttir

15.10.2007 kl. 18:11

Til hamingju með síðuna Lunndarbrekkufólk.

Snorri í Stafni

14.10.2007 kl. 14:57

Smá viðbót...

Svona á þetta að vera.

Þröstur Kolbeins

http://www.123.is/stafn1/default.aspx?page=blog&sa=GetRecord&id=158304

14.10.2007 kl. 14:56

Fæðingardagur Krístínar Ingibjargar Pétursdóttur er í dag 14. október

Vildi benda á smá minningarbrot um ættmóður okkar Kristínar Ingibjargar á Helga og Jófríðar síðu.
http://www.123.is/stafn1/default.aspx?page=blog&sa=GetRecord&id=158304

mbk.

Þröstur Kolbeins

8.10.2007 kl. 9:05

Til hamingju með daginn afmælisbörn dagsins!!!

Til hamingju með daginn frændur þ.e. Ásgeir Jóhannesson 16 ára í dag og Atli Þráinsson 2ja ára í dag

Guðrún Sigurgeirsdóttir

7.10.2007 kl. 12:54

Frábært framtak ;), gaman að fylgjast með ættingjunum hér ;)

Kveðja

Anna Júlía og Jófríður

Anna Júlía og Jófríður

6.10.2007 kl. 22:51

Frábært!

Þetta finnst mér alveg frábært framtak hjá þér Siggi minn.
Svakalega gaman að skoða þessa síðu og sjá allar myndirnar.
Kærar kveðjur úr Reykjavík.
Dísa frænka.

Dísa frænka

barnaland.is/barn/18985

6.10.2007 kl. 9:51

Gott framtak

Góðan daginn kæru ættingjar. Treysti á þig kæri bróðir að þú verðir duglegur að uppfæra þessa síðu.

Kveðja úr DK
Sibba

Sibba

sssol.bloggar.is

5.10.2007 kl. 21:39

Flott hjá þér, hvar í helv grófstu upp myndina mér og bola?
bkv Jónas

Jónas B

5.10.2007 kl. 16:08

Halló ættingjar var að rekast á slóð á þessa síðu á okkar síðu . gaman að geta fylgst með ættingjum sínum svona .gott framtak hjá þér Siggi.kveðja Sissa frá Sandvík.

sissa (Gerður H alls .

5.10.2007 kl. 16:06

Siggi, velkominn í hópinn.....

Var búinn að ganga með þetta í maganum í nokkurn tíma og lét svo verða af þessu fyrir c.a. 6 vikum síðan. Viðbrögðin hafa verið hreint frábær og ef ég hef smitað ykkur, frændfólkið á Lundarbrekku þá er ég stoltur, ekki bara af vefsíðu smitinu heldur einnig að vera skyldur ykkur. Haltu ótrauður áfram eins og ég ætla og reisum glæsilega "vef-bautasteina" til heiðurs okkar fólki. Ég mun "hlekkja (tengla)" ykkur á Helga og Jófríðar síðu. Mest er þetta samt gert af kappi en þekkingu þar sem ég hef takmarkað vit á svona síðu smíðum. Getum kanski skipst á tækni upplýsingum í framtíðinni þar sem betur sjá augu en auga.
Bestu kveðjur til þín og þinna.

Þröstur Kolbeins

http://www.123.is/stafn1

4.10.2007 kl. 21:56

Skemmtilegt hjá þér að koma upp svona síðu bið að heilsa þínu fólki.

Friðrika

4.10.2007 kl. 10:21

Frábært framtak hjá þér Siggi

Fékk þetta sent frá mömmu og líka Möllu og líst vel á þess hugmynd.

Guðrún Sigurgeirsdóttir

2.10.2007 kl. 13:00

Takk fyrir sendingununa. Skemmtilegt framtak hjá þér Siggi minn.
Eitthvað er nú til af myndum og fleiru hér.
Kveðja Dísa og Geiri.

Hjördís Kristjánsdóttir

1.10.2007 kl. 12:53

já varð fyrstur

Siggi

Flettingar í dag: 37
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 12
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 220989
Samtals gestir: 43480
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:39:15

Vafraðu um

clockhere

Tenglar

Flettingar í dag: 37
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 12
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 220989
Samtals gestir: 43480
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:39:15

Lundarbrekkufólkið

Farsími:

Siggi:8683924. Guðrún:8618790

Heimasími:

Siggi:4663922. Guðrún:5650812

Um:

Netföng. Siggi: staffsba@simnet.is Guðrún:alfholl66@simnet.is